Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.03.1904, Qupperneq 4
44
hríð þessi hafi eiiikuin verið gjörð í því
skyni; að villa Rússum sýn. svo að Jap-
önum veitti hægra að koma herliði á land
í Koreu, enda er mælt, að Japanar hafi
þar nú um 200 þús. landhers.
„Jenisseju, eitt af herskipum Rússa,
er átti að koma fyrir sprengivélum neð-
ansjávar í mynni Port Arthur hafnarinn-
ar, sprakk í lopt upp, er það var að því
starfi.
Um viðureign á landi eru allar fregn-
ir mjög óljósar enn. — Sumar fregnir
segja, að landorusta hafi orðið við Yalu-
fljót, sem er á landamærum Koreu og
Mandsjúrísins, og hafi Rússar misst þar
2500 manna; en hæpið, að fregn þessi sé
áreiðanleg.
Um mannfall í sjóorustum þeim, er
háðar hafa verið, eru fregnir mjög óljós-
ar; en yfirleitt virðast Japanar enn hafa
misst fátt manna, en Rússar fleirihundr-
uð.
Nýlega náðu Rússar 23 japönskum
liðsforingjum í Mandsjúríinu, er voru þar
dnlarklæddir, og í þeim erindum, að
reyna að sprengja upp járnbrautina. —
Þeir voru allir umsvifalaust hengdir.
Mælt er, að nokkrir (8?) Japanarhafi
og verið teknir á Rússiandi, dularklædd-
ir, og hafi Rússar sízt átt þeirra von þar
heima hjá sér.
Fullyrt er, að Frakkar hafi keypt her-
skipastól Chilí-ríkis handa Rússum, og
eigi þau herskip þegar að halda til ófrið-
arstöðvanna.
Almennt kvíða margir því, að ófriður
þessi kunni að berast til norðurálfunnar,
og að Bretar verði við hann riðnir, og
getur þá orðið langt í honum, og hvað
sem um það verður, þá eru engar líkur
til þess, að lyktir verði fyrir [næsta
haust.
Bankastjórar íslandsbanka.
—^
Loks er það þá ákveðið, hverjir stjórna
skuli íslandsbanka, þar sem fulltrúar
hluthafanna hafa nú, auk aðal-bankastjór-
ans hr. E Schou’s, ráðið hr. Sighvat
Bjarnason, bókara við landsbankann, og
amtmann Pál Briem, sem meðstjórnend-
ur, eða gæzlustjóra, og eru hinum fyr-
nefnda ætlaðar 4 þús. kr. í árslaun, en hin-
um síðar nefnda 2 þús. króna, enda er
eigi ætlast til, að starfstími hans verði
lengri, en 1—2 kl.tímar daglega.
Að því er báða þessa menn snertir,
eru víst flestir sammála um það, að þeir
séu vel til starfa þessa fallnir, enda er
hinn fyr nefndi, hr. Sighvatur Bjarnason,
alvanur bankastörfum, og drengur góður,
sem alls eigi þarf að óttast, að misbeiti
stöðu sinni á neinn hátt, sakir flokks-
fylgis, enda þótt skólinn hjá gamla
Tryggva, sem hann kemur úr, sé að vísu
sagður miður hollur.
Og að því er til hr. Páls Brienikem-
ur, er tekur við starfi þessu 1. okt. næstk.,
þá er hann mjög eindreginn framfara-
maður, svo að hluttaka hans í stjórn
Þ J Ó rJ 7 jt I. J i. s .
bankans ætti að vera trygging þess að
skynsamlegum framfarafyrirtækjum verði
síður synjað hjálpar.
En þó að bankastjóravalið sé þannig
á endanum all-viðunanlega til lykta leitt,
þá er sagan um hringl bankastofnand-
anna, og allt, sem þar að lýtur í meira
lagi annálsverð, ef í letur væri færð.
Hér skal þó eigi að svo stöddu langt
út í þá sálmana farið, en að einsmáláta
þess getið, sem að vísu er löngu þjóð-
kunnugt orðið, að frumkvöðlar banka-
stofnunarinnar, Arntzen hæztarét.tarmála-
færslumaður og Warburg stórkaupmaður,
höfðu bréflega falað héraðslækni Pórð J.
Ihoroddsen, sem bankastjóra, og hafði
hann tjáð sig fúsan til þess, að verða við
þeim tilmælum.
En þegar til kom, virðist svo, sem
ónefndum mönnum íslenzkum, er miklu
vilja ráða, hafi hugkvæmzt, að óvíst væri,
að þeir gætu haft hr. Þórð J. Thorodd-
sen svo i hendi sér í þeirri stöðu, sem
þeir vildu kosið hafa, og því var það
ráðs tekið, að látið var í veðri vaka, að
einn þeirra, er lagt höfðu fram hluta-
féð, hefði áskilið það tvennt,
að íslenzki bankastjórinn væri óviðrið-
inn landsbankann, og
að hann hefði verið kaupmaður, eða
verzlunarstjóri í 10— 20 ár.
Síðara skilyrðinu fullnægði hr. P. J.
Thoroddsen vitanlega ekki, og á þenna
hátt var þá fyrir það girt, að þeir Arnt-
zen og Warburg gætu staðið við tilboð
sitt, að sagt var.
En hve mikið þetta svo kallaða skil-
yrði var að marka, hafi það á annað borð
nokkurn tíma verið annað, en tilbúning-
ur ofan nefndra ónefndu herra, má bezt
sjá af því, að þegar hr. alþm. Björn
Kristjánsson, er þá átti að koma að, og
ginntur var til Kaupmannahafnar í því
skyni, var aptur „út úr spilinu"*, þá var
í einu hljóði samþykkt, að bjóða Páli
Briem amtmanni stöðuna.
Bréfið til hr. Páls Briem var þó, að
því er mælt er — til að styggja ekki(!) —,
sent ráðherranum, þótt eigi ætti hann
atkræði um málið.
En ráðherranum — með „ m atar-pro -
grammið'* — gat auðvitað eigi hugsað
sér annan, en „heimastjórnarmannu (hr.
Sighvat Bjarnason, eða forngripavörð Jón
Jakobsson), er tæki á móti bankastjóra-
*) Sú sagan gengur, að þegav hr. H. Hafstein
var í Kaupmannahöfn í síðastl. nóvemhermán-
uði. hafi hr. Albertí haldið honum, og bankamönn-
unum, veizlu, og hafi þá af hálfu bankamann-
anna orðið tilrætt um það við hr. H. Hafstein,
hvert bankastjóraefnið myndi vera líklegast:
kaupmaður Björn Kristjánsson, héraðslæknir Þ.
J. Thoroddsen, eða bankabókari Sighvatur Bjar.na-
son. — Hr. H. Hafstein hafði þá, að sagan segir,
alls ekki kannast við kaupmann Björn Kristj-
ánsson, en rankað þó loks við, og sagt, að hann
hefði þekkt skósmið einn, er því nafni hefði
heitið(!); en að því er hr. Þ. J. Th. snertir, seg-
ir sagan, að hnnn hafði sagt brosandi, sem svo,
að hlutafélagsbankinn hefði nú vitanlega fengið
mörg sárin, og þyrfti því má ske læknis. — En
hr. Sighvat Bjarnason þekkti hr. H. Hafstein
þegar, og það var duglegur maður.
Svona gengur sú sagan.
XVIII., 11.—12.
laununum, þótt frá ,, landráða-stofnunu
kæmi, og segir því sagan, að bréfinu til
Páls amtmanns hafi ekkert verið hraðað,
og þegar ráðherrann kom til Kaupmanna-
hafnar seint i febr., þá varð niðurstaðan
að lokum, sem fyr segir, að hafa ísl.
bankastjórana tvo, i stað eins, er fyrst
hafði verið áformað, og að láta „heima-
stjórnarrnanninn" hafa feitari bitann, eins
og sjálfsagt var.
•................•
Skúla-ústandið.
Frá Kaupmannahöfn er ritað 4. marz síðastl.:
„Stúdentafundur var haldinn hér nýlega, og var
ráðherrann boðinn þangað, og þá hann boðið. —-
Rs»tt var um æðri skóla á íslandi, og prófessor
Finnur Jónsson fenginn, til að hefja umræðu;
var það af ásettu ráði gjört, því að þá héldu
menn, að Hafstein myndi íremur koma, envildu
gjarna, að hann hlustaði á umræðurnar áð því
leyti, sem þær snertu reotor og latínuskólann.
Yar farið ómjúkum orðum um skóla-óstand-
ið, og all-mjög hallað að rector og ýmsum kenn-
aranna, og jafn framt sú von látin í Ijósi, að
nýja stjórnin myndi telja helga skyldu sína, að
bæta úr fári þessu hið bráðasta“.
Sögunarmylna
er nýlega sett á fót á Húsavík, og er hún að
nokkru leyti eign Eitíks Þorbergssonar trésmiðs,
en að nokkru eign kaupfélags Suður-Pingey-
inga.
Ný trésmíðavei'ksmiðja.
Hlutafélag er nýiega stofnað í Reykjavík, til
að koma þar á fót trésmíðaverksmiðju, og er
hlutaféð alls 12 þús. króna, eða 40 hlutir á 300
kr. hver.
í stjórn félags þessa eru trésmiðirnir Hj'órt-
ur Hjartarson, Magnús Blimdal og Sigvaldi Bjarna-
son.
Skaðar aí snjó- og' vatnstlöðum.
Seinni part febrúarmán. urðu víða nokkrir
skaðar af snjó- og vatns-fióðum á Austfjörðum.
Á Brekkugerði í Fljótsdal rann snjóflóð á
fjárhús, og drap 20 kindur, og á Klausturseli i
Jökuldal kom vatnsflóð á fjárhús, og drap þar
30 fjár.
I Seyðisfjarðarkaupstað tók vatnsflóð 22. febr.
fjóra báta, og keyrði þá út á sjó, og brotnuðu
þeir allir, og fleiri urðu þar skemmdir af vatns-
fióðum.
Hús Bergs, hvalveiðamanns á Mjóafirði varð
og fyrir töluverð um skemmdum af snjó- og vatns-
flóðum.
Á Fagradal braut snjófióð 6 stórtré er ætluð
voru til Lagarfljótsbrúai'innar.
Nokkrar smá skemmdir urðu einnig á Eski-
firði, og víðar.
Bæjarbruni
Bæjarbruni varð á Sauðárkoti á Upsaströnd 2.
marz síðastl., og brann þar baðstofa, búr og eld-
hús, og varð að eins bjargað rúmfatnaði, og ein-
hverju af matvælum.
Þegar brunans varð vart, var enginn karl-
maður á heimilinu, en að eins 2 kvennmenn og
4 börn, og hljóp húsfreyjan því til næsta bæjar,
en hinn kvennmaðurinn gætti barnanna. — Brugðu
menn vel við, og komu til hjálpar, og tókst því
að bjarga fjósinu, en svo ílla tókst til, meðan
á björgunartilraununum stóð, að tveir menn urðu
undir þekju, og slösuðust all-mikið, fótbrotnaði
aimar, en hinn skaddaðist stórum á lærinu.
Stokksejrarprestakall
í Árnespróíastsdæmi var 18. marz auglýst til
umsóknar, og er umsóknarfresturinn til 14. mai,
og veitist brauðið frá næstk. fardögum — Brauð-
ið er metið 2478 kr. 75 a., en þar af nýtur
prestsekkja 181 kr. 58 a. eptirlauna, og næsta
fardagaár nýtur iinnur prestsekkja náðar árs.
Embættaveitingar.
Landritari, hr. lil. Jónsson, og skrifstofustjór-
arnir: Jón Magnúsion, Jón Hermannsson og Eggert