Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.06.1909, Blaðsíða 1
Verð árgangsins (minnsi
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
trlendis d kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Btrgisi fyrir júnimán-
aiarlok.
ÞJOÐVILJINN.
— ■ Tuttuöasti oö ÞBIÐJI ÁKGANGUK. =1-. --—
4—ÍK*|= RITSTJÓKI: SKÓLI THORODDSEN. =\*a€—»-
ZJppsögn skrijleg ogild
nema komið se til útqef-
anda fyrir 30. dag júni-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 27.-28.
Reykjavík, 12. JÚNÍ.
1909.
Útlönd.
- -o—
Helztu tíðindi, sem borist hafa frá út-
löndum eru:
Danmörk. Um úrslit þingkosninga,
Bem nýlega eru um garð gengnar, er get-
ið á öðrum stað í blaði þessu. — Mælt
að þingið muni eiga tveggja mánaða setu
í sumar, til þess að ráða hervarnainálinu
til lykta, hver sem úrslit þess þá verða.
f 7. maí þ. á. andaðist Joacliim Ander-
sen, er stýrði hljóðfæra-leikflokk í söng-
höllinni í Tívoií (í „Coneert“-salnum), sem
margiT af lesendum „Þjóðv.M að líkindum
kannast við. — hann var fæddur 29.
apríl 1847.
5. maí voru skógarbrunar miklir í
grennd við Borris á Jótlandi, og náðu
þeir yfir ferhyrningsmílu, og var það
mikill skaði.
Félag er nýlega stofnað í Danmörku,
sem ætlar að starfa að því, að ungbarna
dauði verði minni, en verið hefir, og ætl-
ar í því skyni að fræða mæður um ýmis-
legt, er að meðferð ungbarna lýtur, út-
býta ritlingum þar að lútandi o. fl.
f 14. maí siðastl. andaðist í Kaup-
mannahöfn A. Mohr, stórkaupmaður. —
Hann varð bráðkvaddur á skrifstofu sinni,
hné niður örendur, er hann var að hag-
nýta telefóninn til viðtals við einn skipta-
vina sinna.
13. maí þ. á. voru hundrað ár liðin
frá fæðingu tónskáldsins Emils Horneman
(t 1870), og var í minningu þess afhjúp-
að líkneski á gröf sonar hans, Chr. F. E.
Horneman’s (t 8. júní 1906), sem einnig
er talinn meðal nafnkunnari tónskálda
Dana.
Bernhard Hertz, danskur gullsmiður,
sem látinn er fyrir nokkru, ánafnaði í
arfleiðsluskrá sinni 900 þús. króna til
ýmsra sjóðstofnana.
Um miðjan júní þ. á leggur Einar
Mikkelsen af stað frá Kaupmannahöfn í
rannsóknarferð sína til Grænlands, á skip-
inu „Alabama“.
Þrír rummungsþjófar, er sitja í betr-
unarhúsi í Danmörku, skýrðu nýlega frá
því, ótilkvaddir, að þeir hefðu í samein-
ingu framið hundrað þjófnaði, sem þeir
hefðu komið sér saman um, að þegja yfir,
meðan stóð á sakamálsrannsókni gegn
þeim.
A fjárlögum Dana, er gilda frá 1.
april þ. á, til marzloka 1910, er tekju-
halli áætlaður 88/4 millj. króna, og bætist
þar við B1/^ milljón, eptir sérstökum lög-
um, er samþykkt voru á ríkisþinginu,
sem slitið var 6. maí þ. á. — Fjárhagur
Dana er þó engu að síður í mjög góðu
lagi, í samanburði við hag ríkissjóða ýmsra
annara þjóða.
t Dáinn er nýskeð í Kaupmaonahöfn
Sigurður Jóliannesson, stórkaupmaður, stór-
efnaður kjötsali, Múlsýslungur að fæðingu,
og munu ýmsir af lesendum blaðs vors
að líkindum hafa heyrt hans getið.------
Noregur. Hákon konungur ætlar í
sumar að bregða sér í kynnisför til Pét-
ursborgar, Vínar og Rómaborgar, til að
heimsækja Rússakeisara, keiaarann í Aust-
urríki—Ungverjalandi, og Italíu konung.
1B. mai síðastl. gekk afskaplegt norð-
anveður, með frosti og fannkomu, yfir
Noreg, norðanverðan, sein á vetrardegi.
— Gras, og akrar, sem farið var að spretta
og gróa, kulnaði út, og olli veðrið því
miklu tjóni. — En auk þess olli það og
ýmsum bátstöpum, og nokkur stærri skip
(hafskip) íóru8t. — Fréttir hafa þó eigi
borizt glöggar um þetta. — — —
Svíþjóð. 3. mai þ. á. var í Stokk-
hólmi afhjúpað líkneski Karls XV., Svia-
konungs og Norðmanna (f 1872) Karl XV.
var sonur Oscars 1. — Liggur eptir hann
ýms ljóðmæli, sem og rit um hermál. —
Þegar Þjóðverjar tóku hertogadæmin af
Dönum 1864, vildi Karl XY. veita Dön-
um lið, en ráðherrar hans fengu þó af-
stýrt því. — En þetta mun þó eigi hvað
sizt hafa gefið tilefni til þess, að Friðrik
VIII., Dana konungur, og drottning hans,
Louise, voru viðstödd, er líkneskið var
afhjúpað. — Það sýnir konung á hest-
baki, og er reist á stað þeim, er Djur-
gárden nefnist.
Yið afhjúpun líkneskis voru, sem lög
gera ráð fyrir, ræðuhöld, ættjarðarsöngvar
sungnir, drynjandi fallbyssuskot, og mikið
um dýrðir, en hersýning á eptir. — Síð-
ar um daginn hafði og Oustaf konungur
um hálft annað hundrað manna í boði
sínu. — — —
Bretland. Stjórnin hefir í fjárlaga
frumvarpinu gert ráð fyrir, að hækka að
mun skatta, sem á efnamönnum hvíla, og
yfirleitt þykir frumvarp hennar bera vott
um, eða hafa keim af skoðunum jafnaðar-
manna. — Hefir Bálfour, foringi íhalds-
manna, lýsti megnri vanþóknun sinni á
þessari tilhögun stjórnarinnar, og tjáir
hana munu leiða til þess, að brezkir auð-
menn komi fé sínu á vöxtu í öðrum
löndum.
En þrátt fyrir hækkun skatta, sem fyr
segir, þá er þó gert ráð fyrir, að 1ö1/^
milljón sterlingspunda tekjuhalli verði á
fjárlögunum, og stafar það að mestu af
auknum fjárframlögum, til berskipaflotans.
Þrir dularbúnir menn réðu nýskeð á
mann þann, er gætir þráðlausu hraðskeyta-
stöðvanna í Grímsby, börðu hann á næt-
urþeli o. fl., og er talið víst, að þeir hafi
verið njósnarmenn. — Breta stjórn hefir
því sett sérstaka gæzlu við téða hrað-
skeytastöð, er þeir ætla sérstaklega að
hagnýta sér á ófriðartímum, og þykir því
miklu skipta, að eigi vitnist, hversu hag-
að er til um. — — —
Frakkland. Póstþjónar, og símaþjónar,
hafa gjört verkfall, og hefir stjórnin svipt
um 600 póstþjóna atvinnu, og gefið i
skyn, að fleiri verði beittir sama, sé verk-
fallinu ekki hætt.
Miklar æsingar á Frakklandi, út af
verkfalli þessu, og jafn vel liótað almennu
verkfalli. — En stjórnin vill þó í eogu
slaka til. — — —
Þýzkaland. Vilhjálmur keisari, og
drottning hans, brugðu sér til VÍDar i
maí, á fund Franz Jóseps keisara.
16. maí var frakkneskur maður tekinn
fastur i Berlín, er nefnir sig Roger Floton
d’Harancourt, markvísa. — Hefir hann
gert sér það að atvinnu, að selja orður
og krossa í ýmsum löndum, og fengu þeir
sem keyptu, þetta krossa-glingur einatt
á réttum tírna, og hann góða borgun. —
Sjálfur bjó hann til þessar orður og krossa
sern kaupendur hugðu vera frá hlutað-
eigandi þjóðhöfðingjum.
Danska blaðið „Politíken-4 gizkar á,
að hér og hvar á Þýzkalandi muoi vera
eigi all-fáir „fals-riddarar“ dannebrogs-
orðunnar. — — —
Pólverjaland. í Bandaríkjunum and-
aðist nýskeð nafnkunn pólsk leikkona,
Madjiska að nafni. — — —
Rússland. í ár eru liðin hundrað ár,
síðan rússneska lýðskáldið Alezej V. Kól-
zov fæddist (f 1842). — Hafa ljóðmæli
hans opt verið gefin út, og ætlar bæjar-
stjórnin í Moskva nú að minnast aldar-
afmælis hans á þann bátt, að útbýta ó-
keypis BO þús. eintaka af kvæðasafni hans.
Kotten, lögreglustjóri í Moskva, sem
staddur var í París, var nýlega særður
hættulega. — Rússneskur maður, er hann
eigi þekkti, ginnti hann með sér inn á
gistihús, kvaðst þurfa að skýra honum
frá morði, er áformað væri, en þreif í þess
stað skammbyssu, og skaut á hann.
6000 rússneskra lýðskólakennara ætla
í sumar að bregða sér til útlanda snöggva
ferð, í sumarleyfinu, og hafa um þrjú
hundruð þeirra heitið ferðinni til Norð-
urlanda.
Frumvarpi, sem rikisþing Rússa hafði
samþykkt, og fór í þá átt, að koma nýju
skipulagi á herskipaflotann, hefir Nicolaj
keisari synjað staðfestingar, og hefir Stóly-
pín, forsætisráðherra, því beðizt lausnar.
— Keisari hafði þó enn eigi orðið við
lausnarbeiðDÍ hans, er síðast fréttist.
Mælt er, að Nicolaj keisari hafi ákveð-
ið, að láta smiða ýmsa menja-gripi úr
314 pd. af skíru gulli, til að víkja fyrir
sig á ferð sinni í sumar, og sagt, að hann
flytji enn fremur með sér fjórai stóreflis