Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.06.1909, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.06.1909, Blaðsíða 6
110 Þjóbv iljinn. XXIII., 27.-28. Heimspekisprftf tóku í maí þ. k. við háskólann i Kaupmanna- höfn: Ksmundur Ouðmundsson frá Reykholti Jnkob Jóhannesson frá Kvennahrefcku og Skúli S. Thoroddsen, Reykjavík og hlutu allir ágætiseinkunn. Kcnnaraskólinn. Kennaraskólinn i Reykjavík hefst að hausti vetrardag fyrsta, samkvæmt lögum, er samþykkt voru á nýafstöðnu alþingi. Lœknasjóður. Námsmenn á læknaskólanum hafa nýlega stofn- að vísi til sjóðs, sem ætlað er, að styrkja lækna til að afla sér sérþekkingar í ýmsum greinum læknisfræðinnar. Úr sjóðnum verðurþó enginn styrkur veittur, fyr en ársvextir nema 2000 kr. Námsmönnum á læknaskólanum er ætlað, að greiða árstillög til sjóðsins, auk þess er vænzt er, að læknar styrki hann að einhverju leyti með gjöfum. Afmælisdagur konungs. Hans var minnzt i Reykjavík 3. júní síðastl. með fánum á stöngum, sem og samsæti í Iðnað- armannahúsinu, og tóku um 40 þátt í þvi. Þar mælti ráðherra fyrir rainni konungs, skrif- stofustjóri Indriði Einarsson, fyrir minni íslands og síra Jón Rdqason, torstöðumaður prestaskól- ans, fyrir minni Danmerkur. Konungi var sent samfagnaðarskeyti, sem hann svaraði. Aflabrögð il Austfjörðum. Prýðis góð aflahrögð hafa verið á Austfjörð- um síðari hluta maímánaðar. 8tór-stúkuþing Goodtemplara. Það bófst i Reykjavík 7. júní síðastl., byrjaði með guðsþjónustugjörð í dómkirkjunni kl. 11 f. h. og prédikaði cand theol. Sigurbjörn Á. Oísla- son. Fulltrúar 60—70. Rannshkn íslenzks inosa. Danskur lyfjafræðingur kvað hafa fengið 2000 kr. styrk úr danska Carlshergssjóðinum, til að rannsaka isienzkan raosa, og ætlar að ferðast hér á landi í sumar i nefudum erindagjörðum. Ritstjórn „ísafoldar'" hefir hr. Einar Hjörleifsson tekið að sér i öndverðum júní, fyrst um sinn. — Mannalát. I Isafjarðarkaupstað andaðjst 1. júli f. á. (1908) ekkjan Orón Þorvaldsdóttir, og skal hér getir helztu æfiatriða hennar: Gróa Þorvaldsdóttir var fædd 24. okt. 1845 í Lágadal á Langadalsströnd. Foreldrar hennar voru Þorgerður Gísladóttir frá Múla við ísa« fjörð, og lifði hún ógipt, og Þorvaldur Snjólfs- son frá Bakkaseli i Langadal, sem síðar gipt- ist Evfemíu Þorleifsdóttur síðast prests að Gufu- dal. Gróa ólst upp með móður sinni til fullorðins i ára. lengstum hjá merkishjónunum Guðm. sál- i uga Ásgeirssyni og konu hans Daghjörtu sál- ugu Sigurðardóttur, sem þá bjuggu á Arngerð- areyri. Þar naut hún góðrar uppfræðingar, ept- ir þátíðar tízku, enda var hún vel skynsöm að upplagi. — Frekari menntunar leitaði hún sér sjálf á fullorðins aldri, og var hún vel að sér hæði til sálar og Kkama. Hagorð var hún vel, þótt lítið bæri á því, en þó liggur eptir hana saknaðarstef eptir barn, sem hún fóstraði. Árið 1873 flutti hún, sem vinnukona, að Kleppistöðum í Strandasýslu, og var þar 9 ár, hjá sömu húshændum, Jóni sáluga Árnasyni og konu hans, Jóhönnu sálugu Jónsdóttur. 14. sept. 1881 giptist Gróa Steini Jónssyni, mesta atgerfismanni, bæði til lífs og sálar; hann hafði dvalið í Ameríku 3 ár, og var þvi tungu- málafróður, svo að hann var fær um að vera túlkur. Þau eignuðust eina dóttur, Margrétu að nafni, sem að eins varð viku gömul. Hj óna- hand þeirravarð skammvinnt, því að Gróamissti mann sinn 16. des. 1881, og fékk það mjög á hana, og þráði hún hann til dauðadags. Hann var á ferð vestur á ísafjörð, veiktist þar snögg- lega, og dó, og er þar jarðaður. Eptir lát manns síns var Gróa hjá tengda- foreldrum sínura, því þau vildu ekki missa hana hurt ftá sér, og mun ekki ofsagt að tengdamóð- ir hennar elskaði hana, enda virti Gróa hana, sem móður, og reyndist henni sem góð dóttir, og stundaði hana í banalegu hennar, ogmáfull- yrða að fráfall Jóhönnu var nýtt sár fyrir Gróu. Litlu eptir lát tengdamóður sinnar flutti Gróa brott írá Kleppistöðum að Kyrkjubóli i Langadal og dvaldi þar 2 ár. — Umþærmundir veiktist móðir hennar og dó, og s»á hún um hana til síðustu stundar, enda hafði hún styrkt hana i fleiri ár, því hún var farin að heilsu, og orðin gömul. — Fyrir öldruðum og heilsuveikum föð- ur sínum sá Gróa í 8 ár, ásamt tveimum hálf- systrum sínum, Valgerði og Ingibjörgu Þorvald- ardætrum, og sá um útför hans. Skyldfólki sínu í heild sinni var hún bin tryggasta, og rétti hjálparhönd þeim, sem þess þurftu með, því hún var brjóstgóð við alla, sem áttu eitthvað erfitt, og mat það mest af öllu, að koma sem optast fram til góðs í orði og verki. Hún tók og aumingja dreng, bróðurson sinn, og gekk honum í móður stað í fleiri ár, kenndi honum kristindóminn, og sá um fermingu hans, og bar umhyggju fyrir honum til síðustu stundar. Piltur þessi hét Guðjón og drukknaði hann seytj- án ára gamall, með föður sínum, Jóni Halldórs- syni, á ísafjarðardjúpi 1890, á heimleið að Hall- stöðum á Langadalsströnd; þar bjó Jón heitinn þá. — Þar mátti Gróa sjá á bak bróður, og fóst- ursyni, í senn, því Þau Jón voru systkin að móðurinni, og var mjög vel saman. Þegar nýnefnt slys varð, var Gróa flutt í Reykjarfjörð, með merkishjónunum óðalsbónda Ólafi Jónssyni og konu hans Evlalíu S. Krist- jánsdóttur, og hjá þeim var hún 22 ár samfleytt og ávann sér hylli þeirra. — Hún fóstraði börn þeirra, og var ljósmóðir flestra þeirra. Fósturbörnum sínum var hún ágæt, og elskaði 196 „Ógæfan skal koma yfir yður, og þér skuluð deyja, eins og þeir, sem þór hafið myrt!a sagði hún ekki eitt- hvað á þá leið?“ tautaði hann við sjálfan sig, og varpaði blysinu frá sór. Maggy varð nú litið upp. „Allir farnir! Hvað ætla þér sér?“ „Þarna eru þeir!“ mælti Zeke, og benti á klettinn. „Hjá stöðvarhúsinu!“ mælti Maggy. „Guð minD'. Þeir drepa hann, vitfirringamir! Hefurðu gefið samþykki til þessr“ „Lofum þeim að gjöra, sem þeim sýnist! Þeir steypa sér i glötunina!“ „En Frank! Frelsaðu^bann frændi! Hann er dótt- ursonur þinn!“ „Mér er það kunnugt“, mælti gamli maðurinD, og brá hvergi. „Þér er það kunnugt“ mælti Maggy, og ætlaði varla að ná andanuro, „og skeytir þó ekkert um það, þótt hann sé myrtur“. „Hann er kominn til þess, að sjá um ,að formæl- ing móður hans rætist!“ sagði Zeke, „en hann skal ekki bera hærri hlut hvað mig"snertir!“ „Frændi!“ æpti Maggy, alveg utan við sig. „Auk ekki syndabyrgði.þína! Þú einn megnar að frelsa hann! Þú getur sefað þessa æðisgengnu"menn, og þór verður kennt um allt! Er eigi einhver rödd í brjósti þínu, sem talar máli hans?“ „Hann er barnabarnið mitt!“ mælti Zeke, „og á hann leggja þeir hendur níðingamir!“ Zeke teygði úr sór, og hrissti höfuðið. „Þeir skulu reka sig á það, þorpararnir að sigurinn er þar sem eg er. — Jeg er enn satni mað- 201 „Frændi! Þú mátt ekki yfirgefa mig, mátt ekki deyja!" „Vertu stillt, barnið mitt! Því er nú svo háttað að allir verða að deyja! Og verða forlög mín, að verða drepinn af félögum mínum! Formæling Kötu er að ræta9t!“ „Móður minnar?" mælti Frank, og greip hönd gamla mannsins. „Segðu mér, hvað gerðirðu moður minni? Hvaða glæpur rak hana til þess, að fara í annað land, sem beiningakona?“ „Það var ekki jeg, heldur forlögin!“ svaraði Konks. „Skipið — sem hún ætlaði að frelsa — og strandaði hór við klettinn — var „Mary Jane“ — og á þvi skipi var faðir þinn!“ Nú kom blóðgusa út úr gamla manninum, og hnó hann þá aptur á bak. Zeke Konks var dáinn! XÍX. kapituli. Það voru nú liðnir átta dagar. Fyrir framan Kitty-Hawk-klettinn lágu tvö skip við atkeri. Við hliðina á „Mosquito“ (fallbyssubátnum) lá skip, sem sjómerkjastjórnin hafði sent til Nagshead, jafn skjótt er spurzt hafði um atburði þá, er þar höfðu gjörzt, og á því skipi höfðu komið trósmiðir, er áttu að gjöra við stöðvarhúsið, meoo til að vera í stað Frank’s, og fólaga hans, sem og nokkrir — lögregluþjónar. í stöðvarhúsinu komst allt brátt í lag, og þar þurftu menn engar frekari árá9Ír að óttast, því að foringjar toll-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.