Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.08.1910, Síða 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.08.1910, Síða 6
146 Þjóbviljtnn XXIV.. 36.-37. hreppi 10. maí 1854. Foreldrar hans 'voro: Pétar bóndi Magnússon og kona hane Hallfríðar Jónsdóttir, sem þá bjuggu þar og kunn voru fyrir dugnað, gestrisni í og annan rausnarskap. A unga aldri fluttist Guðmundur sál. með foreldrum sínum frá Melum og sð Dröngum, og var þar hjá þeim, þar til þau önduðust bæði vorið 1887. Þá reisti hann bú að Dröngum, og árið 1890 kvænt- ist hann Onnu Jakobínu Eiriksdóttur, er lifir mann sinn. Þeim bjónum varð fjögurra barna auðið, tveggja sona og tveggja dætra, sem öll eru á lífi. Ennfremur tóku þau til uppfósturs dreng af fátækum for- eldrum, og er bann nú fulltíða maður og vinnumaður ekkjunnar, fóstru sinnar. Snemma var Guðm. sál. mannvænleg- og efnilegur maður. Búsýslan lét bonum vel, og métti bann teljast búhöldur góður, bæði starfsmaður, meðan heilsan leyfði, og reglusamur og stjórnsamur húsbóndi, enda vel efnum búinD. Kaup hafði hann fest á ábýlisjörð sinni, er hann haiði áður mikið bætt. Guðm. sál. var jafnan höfðinglegur heim að sækja, manna gestrisnastur og á- i-eiðanlegur í ölium viðskiptum. Ráðhollur var hann einnig og eÍDlægur þeim, sem leituðu aðstoðar hans. Margra ára heilsuleysi veiklaði smám saman krafta hans og dró úr framkvæmd- uin hin síðari árum, enda þótt ráðdeildin hóldist að mestu óskert til hins síðasta. Vinnr hins látna. Látinn er nýskeð í Arnartírði, Guð- bjartur bóndi Kristjánsson á Borg, „Vel efDaður bóndí, og vel metinnu, að því er segir i bréfi til ritstjóra blaðs þessa. Hann dó á sóttarsæng. 23. júlí þ. á. andaðist i Seyðisfjarðar- kaupstað Olöf Einarsdóttir, móðir Einars Th. Hallgrímssonar, konsúls á Vestdals- eyri. Hún var 95 ára að aldri. 18. júlí síðastl. andaðist að Ósi í Bol- UDgarvík í Norður-lsafjarsýslu Ólafur Gissurson, er þar hafði lengi búið. Helztu æfi-atriða hans verður vænt- j anlega getið síðar í blaði voru. Hitt og þetta. Miklu varið tii jólagjai'a. Síðastl. jól varði „internatioual Harvester1* félagið í Chicago alls 1 millj. og 500 þús. doll- ara tii jólagjafa handa verkafólki sínu, enda hefur það nítján verksmiðjur f Evrópu og Am- eríku, og verkamenn alls 40 þús. að tölui Gjafirnar til hvers um sig námu 10—3000 doiiara. Ýms önnur félög, og bankar í Ameríku, verja og til jólagjafa 5—25 þús. dollara árlega, og nema gjafirnar tiðast 5—25 dollurum til hvers verkamanns, eða meira, sé um þá að ræða, sem umsjón hafa á hendi, eða yfirmenn eru. A-j-S. Stört hersbip. Samkvæmt tillögu Genrge von Meyer’s, her- I málaritara, hafa Bandamenn áformað að Játa smíða herskip, sem að likindum verður stærsta herskip í heimi. Skipið verður 32 þús. smálestir, og á að kosta 18 millj. dollara. Stóru orustuskipin, sem stórþjóðirnar, Bretar, Þjóðverjar og Erakkar, hafa nýskeð látið smíða, og nefnd eru „Dreadnougth11 (frh.: dreddnót, þ: e. á Islenzku: óskelfandi) eru að eins litið yfir 20 þús. smálestir, og kosta að eins 10—11 millj- ónir dollara. A-)-S. Vel launað. Maður nokkur í Galveston í Texas í Banda- ríkjunum, Strnme að nafni, lagði 27. febr. þ. á. Jíf sitt i hættu, til þess að aptra því, að sex vetra gömul telpa May Jennings að natni, yrði fyrir járnbrautarlest. Faðir telpunnar, sem er auðmaður mikill, gladdist svo yfir þvi er llfi einkadóttur hans var bjargað á fyrgreindan bátt, að hann gaf mann- inum eign, sem talin er einnar milljónar dollara virði, og gefur af sór 70—100 þús. dollara ár- legan arð. A-j-S. Ilalastjarnan. Stöku menn í Bandaríkjunum kviðu mjög komu fíriH«//’*-halrtstjörnurinar, 18. maí þ. á„ og urðu þess jafn vel dæmi, að menn fyrirfóru sér, tveim eða þrem dögum áður, en hennar var von. Hræðsla þessi stafaði af því, að sumir stjörnu- fræðingar, og vísindamenn, létu í ljósi, aðíhala stjörnunnar væri svo mikið af eitruðum loptteg- undum, að jarðarbúum gæti staðið hætta af. Hafa frœðimenn þessir óspart fengið að kenna á háði í blöðunum, síðan spádómar þeirra reynd- ust tómur hugarburður: A-|-S. REYKJAVÍK 5. ágúst, 1910 Tlðin hlý undanfarna daga, yfirloitt unaðs- legasta sumarveður. IÞað fórst fyrir, að þjóðhátíð vœri haldin hér ( i hænum 2. þ. m., svo sem venja hefur verið 27 Það var eitt af tvennu, að þjófurinn vissi eigi hvar tappinn var, sem ýtt var á, er tendrað var rafmagns- Ijósið, eða hann þorði eigi að tendra það. Hann heyrði nú, að gengið var um gólfið í herberginu, og hann gat eigi betur heyrt, en að skrjáfið sem heyrðist væri í kvenDtnanns fatnaði. Harvey hraut blótsyrði af vörum. Honum hafði eigi komið annað til bugar, en að þjót'- urinn væri karlmaður. En nú varð að skera úr hvort sem þjófurinn var karl eða kona. Ljósglætan hvarf nú, með því að slokknað var á eldspítunni. En nú var kveikt á eldspítu að nýju, og síðan heyrðist, að vísu óglöggt, að lykli var stungið í skráar- gatið á skúfFunni, og dró Harvey þá gluggatjöldin burt, en mundi þá eigi í svip, að borð, sem ýmislegt smádót var á, stóð þar örskammt frá. Gluggatjöldin komu við borðið, og veltu því um koll. Og áður en hann kom auga á kvennmaDninn, slökknaði á eidspitunni, svo að í herberginu var níðamyrkur. Nú var dauðakyrrð í herbergÍDU, unz hoDum heyrð- ist, sem einhver drægi andann fljótt að sér, svo sem væri hann utan við sig af hræðslu. HanD heyrði, að eitthvað var ýtt við stól, og þótt- ist skilja, að stúlkað væri að reyna, að þreifa sig áfram til að komast út. Hann stökk því frarn að hurðinni og tendraði raf- magnsljósið í skyndi. 32 erÍDdagjörðum, að stela, og að hún hefði stolið hinum smarögðunura. Og — til þess að bjarga mér, vildi hún eigi segja neitt sér til afsökunar. Hún var hrædd um það, að vorkunnserni yðar yrði minni, ef þér fengjuð að vita, að karlmaður ætti hlut að rnáli. En jeg heyrði til yðar, og sá á henni, að einhver leiðinda misskilningur myndi hafa átt sér stað, þó að mér veitti að vísu örðugt, að fá hana til að segja mér, hvað gerzt h^fði. Hún grátbændí mig, að fara eigi ídd til yðar. En yður vildi eg þó fyrir hvern mun hitta, — kaus fremur að fara í fangelsi — eða bíða bana, od að láta yður ímynda yður, að hún hefði framið þjófnaðinn — Jeg gat eigi hngsað til þess, að bezta og ástríkasta systirin, sem til er í heimi, yrði að líða fyrir jafn létt- líðarfullan þorpara, sem jeg er!“ Harvey hafði staðið alveg þegjandi i sömu sporun- um, og starað á föla, og stamandi unga manninn. Hann var alvarlegur á svipinn, en undir niðri var hann þó engu að siður afar-glaður Stúlkau, sem hafði vakið hjá honurn fyrstu, einlægu ástina, var eigi að eins saklaus, heldur hafði hún og sýnt svo mikla sjálfsafneitun, að hann — þótt honum geðjað- ist eigi alls kostar að henni — hlaut að meta hana enn ineira, en áður. Allt í einu tók ungi Dale að baða út höndunum, sýnilega all-armæðulegur. „Æ, hr. Harvey!“ mælti hann. „Jeg á engin orð, til þess að lýsa því, hvaða tilfinningar hrærast hjá mér!

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.