Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.02.1911, Blaðsíða 1
Verð^árgangsins (minnst,
90 arkir) 3 kr. 50 aur.
trlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borqiat ýyrir júnlmánað-
nrlok.
ÞJÓÐVILJINN.
——TuT^TUGASTI OG FIMMTI ÁB3ANGUB. -- . . --
Uppsögn skrifleg ðgild
nenui komið sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyri/r
bla'ðið.
M 7.-8. |l ReYKJAVÍ*. 18. EEBR. li 1911.
Fregnir frá alþingi.
— o—
I.
Alþingi sett.
Eins og lög gera ráð fyrir, varalþingi
sett á miðvikudaginD 15. febrúar þ. á.
SöÍDuðust alþÍDgismenn saman í al-
þingishúsinu laust fyrir bédegi, og gengu
siðan þaðan til kirkju, svo sem venja er
til.
Sté sira Björn Þorláksson á Dverga-
steini, alþÍDgismaður Seyðiefjarðarkaup-
•taðar, í stólinn í dómkirkjunni, og gengu
þingmenn síðan, að guðsþjónustugjörðinni,
iokinni, aptur til alþingisbússins, og tóku
sér sæti í sal neðri deildar.
Ráðberra Björn Jónsson las síðan upp
boðskap konungs til alþingis, og lýsti
þingið sett.
Stóð þá upp Júlhis amtmaður Havsteen
konungkjörÍDn þingmaður, og mælti:
rLengi lífi konuDgur vor, FritJrih VIU\U
— Risu þingmenn þá allir úrsætumsín-
um, og tóku undir, með niföldu húrra-
brópi.
Ráðherra kvaddi siðan elzta þÍDgmann-
inn, .Túlíus Hsvsteer, til þess, eem ald-
ursforseti, að gangast fyrir kosningufor-
»eta sameÍDaðs alþingis, og gekk hann
þá þegar til forsetasætis.
EmbœttismenD
sameinaðs alþinr/is.
Þá fór fram kosning forseta samein-
aðs þings, og var kjörinn:
Skúli 1 h oroddsen,
er hlaut 28. atkvæði (H. Hafstein, fyr-
verandi ráðherra, hlaut 18 atkvæði, en
Ól. Briem 1, og 3 atkvæðamiðar voru
auðir, þ. e. ekkert nafn á þeim.)
Hinn nýkosni forseti gekkst því næst
fyrir kosningu vara-forseta sameinaðs al-
þingis, og var kjörinn:
Signrður prófastur öunnarsson,
er blaut 10 atkvæði (Ól. Briem hlaut 1.
atkv., en 18 atkvæða-seðlar voru auðir.).
JÞá voru, að viðhafðri flutfallskosning-
araðferð, kosnir skrifarar sameinaðs al-
þingis, og hlutu kosnÍDgu:
sira Sig. Stefánsson og
Jón Ólafsson.
Kjörbréfaneínd.
Þá voru, að við hafri hlutfallskosning-
araðferð, kosnir þessir 5 þingmenn í kjör-
bréfanefnd:
Kristján Jónsson
Jón MagDÚsson
Sig Stefáns9on
Ben. Sveinssop og
Lárus Bjarnaon.
Ætlunarverk nefndar þessarar er, að
rannsaka kjörbréf nýkjörinna þingmanna
fari svo, að einhver breyting verði' á skip-
un þingsins á þingtimanum, sem litlar
eða engar líkur eru að vísu til.
Þingmenn skipast i deildir.
ÞA var lokið störfum sameÍDaðs al-
þingis, eptir það, er ráðherra hafði getið
þess, að bann ætiaði þá sauidæ^uta, að
leggja stjórnarfrumvörpin fyrir deildirnar
og gengu þingmenn efri deildar þá inn
í þÍDgsal efri deildar, og gekk aldurs-
forseti hvorrar deildarinnar um sig þá
fyrir kosDÍngu forseta.
Embættismenn efri deildar.
Þar féllu atkvæði svo við forseta-
kosDÍDguna, að Kr. Jónsson háyfirdómari
og Jens prófastur Pálsson hlutu tvívegis
7 atkvæði hvor, svo að varpa varð hlut-
ke9ti, og varð þá niðurstaðan, að forseti
var kjörinD:
Jens prófastur Pálsson.
Þá var kosinn fyrri varaforseti deild-
arinnar, og var kosinn Stefán kennari
Stejánsson, en annar varaforseti var kjör-
inn Július amtmaðar Havsteen.
Skrifarar deiidarinnar voru kosnir
Steine/rímur sýslumaður Jónsson og síra
Kristinn Daníelsson.
Embættismenn
neðii deildar.
Yið forsetakosDÍnguna i neðri deild
hlutu þeir Hannes Þorsteinsson og Ólafur
• Briem jöfn atkvæði, 12 hvor, svo að kosið
var að nýju, og var þá forseti kjörinn:
Hanncs Þorsteinsson,
er hlaut 14 atkvaaði (Ól. Briem hlaut þá
12 atkv.)
Þá var kosinn fyrri vara-forseti deid-
arinnar: Ben. Sveinsson og síðan annar
vara-forsetr. eíra Há\fdán Ouðjónsson.
En skrifarar deildarinnar voru kosnir,
að viðhafðri hlntfallskosningar-aðferð: síra
Björn Þorláksson og síra Eggert Páleson.
Skrifstofa alþingis.
Skrifstofustjóri alþingis er Einar Hjór-
leifsson, og honum til aðstoðar á skrif-
stofuDDÍ: Einttr Þorkelsson, stud. jur.
Björn Palsson, Öuðm. skáld Magnksson.
Flokkaskiptingin á þingi.
Eins og á síðasta alþÍDgi, eiga núsæti
á þingi, eða voru í þingbyrjuD, tuttugu
og fimm sjálf'stæðismenn og fimmtán
heimastjórnarmenn (sex þeirra eru kon-
ungkjörnir).
Fjáriaganefnd neðri deildar.
Við fyrstu umræðu fjárlaganna i neðri
deild 17. febtúar, voru kosnir 7 menn í
fjárlaganefnd. Hlutfallsko9DÍngaraðferðin
var við höfð, og voru kosnir:
Skúli Thoroddsen
Sig. Sigurðsson
Björn Sigtússon
Björn Þorláksson
Pétur Jónsson
Eggert Pálsson og
Jóh. Jóhannpssor'.
Eru fjórir hinir fyrst neÍDdu úr flokki
sjálfstæðismann?, nu hinir þrír úr minni
hlutanum.
Til fjárlaganeÍDdarinnar var, svo sem
venjulegt er, vísað fjáraukalagafrumvarp-
inu fyrir árin 1910 og 1911.
Fjárlaganefndin kaus á fundi samdæg-
urs Skiiia Jhoroddsen, sem formann, og
síra Björn Þor\áhsson skrifara.
Keikningslaganefnd.
Til þess að ihuga frv. um samþykkt
iandsreikninganna fyrir árin 1908 og 1909,
var á fundi neðri deildar 17. febrúar kos-
in þriggja maDna nefnd.
Kosnir voru:
Ólafur Briem
síra Hálfdán og
Stefán í Fagraskógi,
og er hinn síðast taldi úr minni hlutanuai.
Til nefndar þessarar visar deiidin fjár-
lagafrumvarpinu fyrir árin 1908 og 1909.
Útrýming fjárkláðans.
A þingfundi neðri deildar 17. febrúar
voru kosnir þessir 5 meno, til að íhuga
stjórnarfrumvarpið um útrýmingu fjáikláð-
bds: Jón a HvaDná, sira Hálfdán, Þorleif-
ur Jónsson, Einar Jónsson og Pétur Jóns-
son.
Tveir binir síðast nefndu eru úr minni
hlutsnum.
Landbúnaðarmál.
Þrír þÍDgmenn (Sig. Sig., Ól. Briem
og Jón á Hvanná) hafa í neðri de'ld bor-
ið fram þÍDgsályktunartillögu þess efnis
að skipa 5 manna nefnd, til þoss að í-
huga landbúnaðarmál þjóðarinnar, og koma
fram með tillögur þar að lútandi.
Stjórnarskrárfrumvarp.
Dr. Jón Þorkelsson og Bjarni Jónsson
frá Vogi hafa í neðri deild borið fram
frumvarp til stjórnarskrár Islands.
Á frumvarp þetta verður siðar minnzt
i blaði voru.
Samkomudagar reglulegs alþingis
Um frumvarp stjórnarinnar, að láta
reglulegt alþingi koma saman 15. mai
annað hvort ár, — en eigi 15. febrúar,
sem nú — urðu töluverðar umræður á
fundi neðri deildar 17. febrúar, en niður-
urstaðan varð þó sú, að skipuð var þriggja
manDa nefnd, til að íhuga mál'ð, og voru
að viðhafðri hlutfallskoaningu, valdir í
nefndina: Sig. Gunnarsson, Þorleiíur Jóns-
son og Jón Ólafsson, — hinn síðast taldi.
úr minm' hlutanum.