Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.06.1911, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.06.1911, Qupperneq 2
102 Þjóðviljíkn. XXV., 26.-27. BÍn fyrir frambjóðendum þess þingmála- iokksins, er slíku fer fram, sem hér hef- ur verið getið. TJ 11 ö n d. —o— Leith 27. mai 1911. Helztu tíðindi frá útlöndum eru, sem hér greinir: Danmörk. Friðrik konungur VIII., oe drottning hans, brugðu sér í þ. m. til Parísar, og fagnaði Falliéres forseti þeim með mikl- um virktum. Bretland. Verkfall í Wales, er staðið hefir yfir í sex mánuði, og nú er að enda, kvað hafa bakað verkamönnum verkalauna tap, er nemur alls um 500- 560 þús. sterlings- punda. Höll brann í Sledmere 23. þ. m. — Þar brann inni töluvert af málverkum, og er skaðinn metinn 60 þús. sterlings- punda. f Dáin er ný skeð frú W. P. Fle- ming, stjarnfræðingur, fædd 1867. Eldsvoði varð í Lundúnum 24. þ. m. og er skaðinn metinn 8 þús. sterlings- punda. Nýlega lýsti Asquith,yfirráðherra Breta, því yfir, að frumvarpið um þingfararkaup yrði eigi lagt fyrir þingið að þessu sinni. — En þÍDgmenn Breta hafa til þessa eDga borgun fengið, og hefir blað vort áður bent á, hve óheppilegar afleiðingar slíkt fyrirkomulag hefir. f Dáinn er ný skeð (19. þ. m.) Ger- ald James Noel, 87 ára að aldri. — Hann hafði áður gegrt ráðherrastörfum i ráða- neyti íhaldsmanna („Tory^-flokksins). Bretar og Kinverjar hafa nýlega gert samninga þess efnis, að takmarka ópíums- ræktina í Kína, sam og innflutning ó- píums þangað frá Indlandi, láta hvort- tveggja minnka hlutfallslega á næstu sjö árum. f 20. þ. m. andaðist í Edinborg dr. P. H. Maclaren. — Hann var í tölu nafn- kunnari lækna þar. Nýlega var líkneski Victoríu drottn- ÍDgar afhjúpað í Lundúnum, og hélt Ge- org konungur þá sjálfur ræðu. — En með- al þeirra, er viðstaddir voru, vár Vilhjálm- ur Dýzkalandskeisari. Nýiega hefir Taft, forseti Bandamanna, lagt það til, að Bretar og Bandamenn geri samning þess efnis, að leggja öll deilumálefni í gerð, er upp kunna að koma milli þjóða þessara. f 22. þ. m. andaðist W. Hepton lá- varður. — Hann var á ferðalagi suður í Pyreneafjöllum. — Hafði fyrir nokkrum árum verið borgarstjóri í Leeds. Alríkisfundur hófst í Lundúnum í þ. m., og sækja hann forsætisráðherrar ensku- mælandi landanna, sem til brezka ríkis- ins teljast, og mun tilgangurinn aðallega sá, að fá nýlendurnar, er þeir svo nefna, til þess að leggja Dokkuð í herkostnað, til þess að tryggja sem bezt yfirráð Breta, eada eru nú Canadamenn þegar farnir að láta smíða sér fjögur herskip og sex tund- urbáta. Þegar krýning Georg’s konuogs fer fram í næstk. júnímánuði í Lundúnum, verður þar mikið um dýrðir og margt þjóðhöfðingja saman komið. — Páfinu ráðgerir og að ser.da sendinefnd, til að vera við krýningarhátíðahöldin. Ný skeð brann ,,Empireu-]eikhúsið í Edinborg, og brunnu nokkrir leikandanna þar inni, en áheyrendum varð bjargað, með því að lpiktjaldið var þegar dregið niður, er eldsins varð vart á leiksviðinu. Frakkland. 21. þ. m. var loptfar að leggja af stað frá París, og voru þar um 400 þús. manna viðstaddir. — Vildi þá það slys til, að eitthvað bilaði f loptfarinu, er það var skammt komið í lopt upp, svo að það féll niður, og varð Berteaux hermálaráð- herra fyrir því, og meiddist hann svo stórkostlega, að hann beið bana. — Monis, forsætisiáðherra, meiddÍ6t og mjög alvar- lega, og sonur hans o. fl. hlutu meiðsli, enda tróðzt fólk undir af ókyrrðinni, sem kom á alla, er slysið bar að. Portugal. Púðurverksmiðja sprakk nýlega í lopt upp í grennd við Lissabon, og biðu eigi all-fáir baDa, og margir hlutu meiðsli. Uppvíst hefir orðið um samsæri gegn lýðveldinu í Coimbra, og hafa ýmsir ver- ið teknir fastir. — Ókyrrð hefir og verið nokkur í borginni Oporto. Enn fremur hefir munkum, eða öðrum kaþólskum andlegrar stéttar mÖDnum, ver- ið gerður nokkur aðsúgur í borginni Braga. Ágreiningur kvað vera töluverður milli ráðherranna um það, hvort sníða skuli stjórnarskipunina eptir stjórnarskipunar- lögum Frakka eða Bandamanna. Spánn. í frakknesku blaði var þess nýlega getið, að Alfonso konungur væri orðinn berklaveikur, en hvað hæft er í því, vit- um vér eigi. Balkanskaga-ríkin. Eptir nokkurt hlé, hófu Albanar upp- reisnina gegn Tyrkjum að nýju, og hafa ýmsir Montenegroingar veitt þeim lið, svo að Tyrkir hafa dregið lið að landa- mærunum, og hafa þeir því leitað vernd- ar stórveldanna, að vernda sig gegn árás af hálfu Tyrkja, og hafa Rússar því gefið Tyrkjum bendingu um, að hafa sig hæga. Abdul Hamid, fyrverandi Tyrkja soldán, er rekinn var frá völdum, er nú látinn hafa aðsetur í borginni Saloniki, og var hann sagður hættulega veikur, er síðast fréttist. Róstur hafa orðið nokkrar í héraðinH Kurdistan, og ýmsir Armenningar verið drepnir. Austurríki — Ungverjaland. Franz Jósep keisari hefir verið veik- ur, en var þó sagður á batavegi, er síð- ast fréttist. Yatnavextir urðu nýlega miklir i G-al- izíu, og hafa valdið töluverðu tjóni. j Aðfaranóttina 19. maí þ. á. andað- ist í Vinarborg tónlagasmiðurinn Gustav Mahler. Kona verkamanns nokkurs fyrirfór nýlogatveim dætrum s'num, annari þrettán, en hinni sex ára, og reyndi síðan að fyr- irfara sér, og særði sig þá mjög hsettu- lega. — Má nærri geta, að eitthvað hefir að heDni þrengt meira en minna. Svissaraland. Vatnavextir óvanalega miklir nýlega hlaupið í árnar; en um skaðsnn, er af hafi hlotizt, höfum vér eigi heyrt getið. Þýzkaland. 23. þ. m. vildi það slys til í borginni Strassburg, að flugvél féll úr tvö hundr- uð feta hæð, og beið maðurinn, er í henni var, þegar í stað bana. Rússland. FaDgavörður Dokkur i Vologda, Efim- off að nafni, er beitt hafði politiska faDga kagstrýkingum, var nýlega staddur í leik- húsi, og réð kvennmaður þá að honum, og skaut á hann fimm skotum, svo að hann varð all-hættulega sár, sem og kona hans og þriðji maður. — Að því loknu tókst stúlkunni að koma sér undan, enda æpti hún, er út á götuna kom, að kvikn- að væri í leikhúsinu. Enginn vafi er á þvi, að kvennmaður þessi hefir fundið sér eigi að eins heim- ilt, heldur og skylt, að vinna verkið, og mikinn siðferðislegan ábyrgðarhluta, að láta það ógert, enda á jafn svívirðilegt athæfi, sem að ofan greinir, alls eigi að' þolast. Gefur þetta, sem og fleira af líku tagi, almenningi hvöt til þess, að fara varlega i dómum sínum, er um lík neyðartiltæki ræðir. Maður nokkur í Pétursborg, Kurtz að naÍDÍ, skaut nýlega þrem skotum á konu sína, og særði hana hættulega. — Hellti hann síðan olíu á búshluti sína, og brann inni, ásamt þeim. Finnland. Þing Finna var rofið 24. mai þ. á., og fara þar því fram nýjar kosningar bréðlega. Nýlega tóku Finnar eina milljón sterl- ingspunda að láni í Lundúnum, og var rentan 41/2n/0- Bandaríkin. Eldsvoði varð i borginni Bangor í ríkinu Maine í öndverðum maí þ. á., og er talið, að helmingur borgarinnar hafi brunnið til kaldra kola, enda var veður hvasst, svo að eldurinn breiddist að mun fljótar út, en ella. — Hafa íbúar síðan orðið að hafast við á borgarstrætum dag

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.