Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.11.1911, Qupperneq 2
1.8
JÞjÓÐVILJiISN.
XXV., 50.-51.
kelseon, hlutu: hinn fyr greindi 111 atkv.,
en hinn síðar nefndi 108 atkv.
Norður-Múlasýsla.
Kosnir eru þar:
Jóh. sýslum. Jöhannesson . 209 atkv. og
Einar próf. Jönsson. . . 202 -
Hefir hinn fyr nefnni að undanförnu
verið utan flokka að nafninu til, en þó
yfirleitt fylgt heimaatjórnarliðinu að mál-
nm. — Hvort hinn aíðar nefndi t.elur
sig utan flokka, eða til heimaatjórnar-
flokkainns, vitum vér og eigi.
Frambjóendur sjálfstæðismanna voru:
Jón á Hvanná og eira Björn Þorláksson,
og blaut Jón 159 atkv., en fiira Björn 136.
Suðiu’-Múlusýsla,
Kosningu þar hafa hlotið:
Jön Jónsson i Múla . . 329 atkv. og
Jön Ólafsson.......... 399 —
Frambjóðendur ejálfstæði&manna voru:
Sveinn Ólafsaon í Firði, er hlaut 236
atkv., og síra Magnús Blöndal 193 atkv.
Þar var og i kjöri Ari Brynjólfsson
á Þverhamri, er hlaut 38 atkv.
,, V iðr eisnar-flokk urlnn ‘ ‘.
Nýja blekkingar-heitið.
Eins og »heimastjórnar«-heitið var
fundið npp, og síðan hagnýtt, til að villa
almenningi sýn, — láta menn ímynda
sér, að í því fælist það, sem aðgreindi
hann frá hinum þingflokkinum, svo hafa
og einhverjir úr >heimastjórnar«-liðinu
ný skeð verið svo hugvitssamir, — og
jafn framt svo óprúttnir*), þar sem fyrra
blekkingarheitið hafði orðið að töluverð-
um notum — að finna upp nýtt blekk-
ingar-heiti, og kalla sig »viðreisnar-
flokk«.
»Heimastjómar«-nafnið átti almenn-
ingur að skilja svo, *em það væru þeir
einir, »heimastjórnarmennirnir, er vildu
fá stjómina inn i landið, en hinn flokk-
urinn ekki.
En nú var báðum flokkunum auðvit-
að jafn annt um það, að fá stjórnina inn
í landið, svo að í nafninu var eigi ann-
að falið, en — blelchjandi lygi.
Tilgangurinn með nýja blekkingar-
heitinu »viðreisnarflokkur», sem slegið
var út meðal almennings rótt á undan
kosningunum, hann er nú auðvitað sá,
að láta fáfróðari**) hluta þjóðarinnar í-
mynda sér, að það só aðal-aðgreiningar-
*) Svo er jaínan, eða þá tíðast, er prakk-
arar komast fram með óknytti sina, og strákskap
að þá vex þeim ósvífnin um allan helming, og
leika þá sama prakkaraskapinn, eða eitthvað
svipað, upp aptur og aptur.
**) Að hverjum manni er einmitt enn vand-
ara, er fáfræðin er annars vegar, hafa þá enn
brýnni skyidu en ella, að fara með það eitt, sem
er satt og rétt, um það hirða prakkavarnú ekki,
né heldur um siðferðislegu ábyrgðina, sem klapp-
ar þó á dyrnar hjá þeim öllum fyr eða síðar.
markið milli flokkanna, að annar vilji,
eða láti sér annt um, að fityðja að við-
reisn þjóðarinnar, þar sem hinn vilji það
á hinn bóginn ekki.
Meira þuríi svo ekki að segja þessum
mönnum, — eins og áður nægði, að benda
að eins á » heimastjórn ar«nafn ið —. nema
atkvæðasmölunum er þó að sjálfsögðu
falið að stinga því að mönnum í kyr-
þey, að hinir, þ. e. sjálfstæðismennirnir
séu nú allir í stórpólitíkinni(!)
En í hverju viðreisnin, sem þannig
er flaggað með, á að vera fólgin, um
það er auðvitað þagað, — almenn orða-
tiltæki látin nægja, t. d. að bændur viti
nú bezt, hvort ekki ami margt að hjá
þeim, — og þá sjómaðurinn, sé við hann
talað, o. s. frv.
Hinu er þá og þagað yfir, að það er
engu síðnr sjálfstæðisflokkurinn, sem að
viðreisn landsins vill vinna, styðja at-
vinnuvegi þess o. s- frv.; — auk þegs
er hann, meðal annars, hefir það fram
yfir »heimastjórnar«-flokkinn, að hann
lætur sér annt um sjálfstæði landsins.
Nafnið »viðreisnarflokkur« er því eins
og »heimastjórnar«nafnið, að eins —
blekkjandi lygi.
Og þótt leitt sé, verður því eigi neit-
að, að hér á landi eru eigi all-fáir kjós-
endur, sem svo eru gersneyddir pólitiskri
þekkingu, að þeir hlaupa eptir slíkum
eða þvílíkum blekkingar-heitum, enda
væru þau og ella eigi smíðuð.
Óefað hefir og »heimastjórnar«liðinu
áunnizt eitthvað á þann hátt við kosn-
ingarnar nýafstöðnu.
Eitthvað af fáfróðari, og grunnhyggn-
ari kjósendunum, sem veiðibrellan var
ætluð, látið ginnast.
Lygarar, og prakkarar, hafa, sem
kunnugf. er, opt gagn af óknyttunum
í svipinn.
Og um hitt er þá eigi hugsað, hvað
á eptir fer þó, — fyr eða síðar.
U 11 ö n cl.
—o—
Til viðbótar útlendu fréttunum, er síðast birt-
ist í blaði voru, skal þessara tíðinda enn getið.
Daninörk.
Sögunarmylna brann í borginni Vejle í ágúst-
mán. þ. á., og er skaðinn metinn 20 þús. kr. —
19. ág, þ. á. andaðist P. G. C. Jensen lands-
þingsmaður, og hæztaréttarmálflytjan di. — Hann
var fæddur 25. apr. 1840. —
Dönsk blöð geta þess, að i siðastl. ágúst-
mánuði hafi skuldbeimtumenn veitingahússins
„Hotel d’Angleterre", sem allir íslendingar, er
til Kaupmannahafnar hafa farið, kannast við,
átt fund með sér, til þess að ræða um það,
hvort eigi væri rótt, að lýsa gjaldþrota, en hafi
þó frestað fullnaðaráiyktun þar að lútandi til 4.
sept. þ. á. —
Noregur.
Sýningu hafa Norðmenn áformað að halda i
Kristjaníu árið 1914, og hefur bæjarfólagið i
þvi skyni veitt 300 þús, króna. —
Svíþjóð.
Stórkaupmaður nokkur, Cedergreen að nafni,
varð nýlega gjaldþrota, og eru skuldir taldar
1 millj. 300 þús., en eignirnar að eins 424. þús. —
Frakkland.
Prakksr sondu ný skeð nokkrar hersveitir-
að austurlandamærunum, og Þjóðverjar stefndu
þá einnig nokkrum hersveitum til Elsass. —
Líklega er það ágreiningurinn, út af Marocco-
málinu, cr þessu hefur valdið. —
f Dáinn er ný skeð dr. Georges Dieulafoy
i París, 71 árs að aldri. — Hann var f tölu
nafnkunnustu ioeknanna á Frakklandi.
Þýzkalaud.
Nýlega brann í Kusselheim stór verksmiðjá,
Opelverk-smiðjan svo nefnda. — Þar brunuu
reiðhjól, og saumavélar, svo að þúsundum skipti,
og er skaðinn metinn 3—4 millj. rígsmarka
(eitt rigsmark er um 89 aurar.)
Við bruna þenna urðu 3 þús. manna atvinnu-
lausar, að mælt er. —
Portúgai.
Eigi verður enn sagt, að lýðveldið Btandi
föstum fótum í Portúgal, þar sem búist er við
byltingu af hálfu konungsliða i Norður-Portú-
gal, er minnst varir, sem og að konungsliðar,
er ffúið hafa til annara landa, einkum til Spán-
ar, kunni að brjótast inn í landið. Mœlt er, að
innanrikisráðhf rrann, og fjármálaráðherrann séu
og konungsliðum sinnandi.
Ítttlítt.
Tuttugu menn sýktust ný skeð í borginni
Sori, með því að þeir höfðu drukkið úr brunni.
er vatnið hafði eitrazt í, og voru 15 dánir, er
siðast fréttist. —
Bandaríkin.
Taft forseti hefur ný skeð neitað, að stað-
festa lög þess efnis, að Arizona og Nýja-Mexico
verðitekini ríkja tölu, með því að í lögum þar
sé ákveðið, að dómarar skuli vera lýðkjörnir,
en það geti valdið því, að þeir verði almenn-
iugi háðir. — Hitt er þó fráleitt betra, að dóm-
arar séu stjórninni háðir, að meira eða minna
leyti. —
Maroceo.
Eins og bent er á hér að framan eru Frakk-
ar og Þjóðverjar enn að semja um Marocco-
málið, og gengur illa, að koma sér saman. —
Finnland.
Eimm finnskir stúdentar voru ný skeð tekn-
ir fastir, og fluttir til Pétursborgar, — líklega
eitthvað bendlaðir við pólitisk samtök, eða því
um líkt, er stjórninni hefur eigi getizt að. —
Pei'saland.
17. ág. þ. á. fréttist frá Perslandi, að Mu-
hamed Alí, fyrverandi soldán Persa, heíði ver-
ið myrtur, en fullar sönnur þó enn eigi fengn-
ar um það, hvort fregnin sé rétt. —
Pl'Ó Vll l öllíllim hafa ný skeð borist
þær fregnir að keisarinn í Kína hefur afsalað sér
einveldinu, og heitir þegnum sínum frjálslegri
stjórnarskipun.
Uppreisnin, sem verið hefur í Kína, ernúog
sögð á enda. —
í Trípolis cr mselt, að ítalar hafi nýskeð beðið
lægri blut í vopnaviðskiptum við Tyrki.
Vanjiakklátir kjósendur.
H.áðungin í höíuðstaðnnm.
—0—
Ekki munu þess mörg dæmi, sem betur fer,
að kjósendur nokkurs kjördæmi hafi nokkuru
sinni sýnt þingmönnum sínum öllu meira, eða
jafn mikið mnþakklœti, sem kjósendur Reykjavik-