Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1912, Side 2
230
Þ JC ÐVjlLJINN.
XXVI., 58. -59.
ÞJÓÐVILJINN.
Verð árgangsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 a.,
erlendis 4 kr. 50 a. o? í Ameríku doll.: 1,50.
Borgist íyrir júnímánaðarlok. Uppsögn skrifleg
ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 30. dag
júnimánaðar og knupandi samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir blaðið.
má ganga að því vísu, að það verði að
eins í bráðina, og að landsbúar fái í raun
og veru engu þar um að ráða, þóttráða
eigi einir, en að stórveldin heimti, að
þar verði fursti eða konungur á laggir
settur.
Meðal þeirra, sem nefndir eru sem
fursta- eða konungs-efni í Albaníu — auk
þeirra, er blað vort hefir áður getið ,
þá eru nú og tilnefndir: hertoginn af
Abruzzeme, og egypzkur prins luad að
nafni. — Hann er af albönskum ættum,
en hefir alizt upp á Italíu, og ann mjög
ítalskri þjóðmennmgu, að mælt er.
Er stórvelda ófrið að óttast?
Meðan er þrætan stóð sem hæðst milli
Serba og Austurríkismanna, út af því,
hvort Serbar fengju að halda hafnar-
borginni Durazzo við Adría-hafið*), var
því um hríð mjög almennt spáð, að eigi
vrði komizt hjá stórvelda ófriði.
Rússar fylgdu Serbum öfiuglega að
máli, — tóku þegar að leggja nýjan veg,
til að greiða fyrir herflutningi o. fl., til
borgarinnar Toporeutz, sem er í grennd
við landamæri Austurríkis Ungverjalands.
Jafn framt höfðu Rússar þá og lið-
safnað á Pólverjalandi, og víðar, — enda
siðurinn, að menn eru reknir í hópum
og láta reka sig á slátrunarvöllinn, er
stjómendunum sýnist.
Austurrikismenn tókust þá og að her-
væðast sem ákafast, — eigi síður en
Serbar —, og draga herlið að landa-
mæmnum, er að Serbíu og að Rússlandi
vita.
Enn fremur lýsti þýzki ríkiskanzlar-
inn, Beihmann-Hollveg, því þá og yfir í
ræðu, er hann flutti í þýzka rikisþinginu,
að ef bandamenn Þjóðverja, Austurríkis-
menn, sættu árásum, myndi og Þjóðverj-
um að mæta.
Ræðan auðvitað í því skyni flutt, að
draga úr vígahug Rússa, enda urðu og
áhrifin þau, sem til var ætlast, að óðum
fór að draga úr fylgi Rússa við Serba,
og Serbar, er í skjóli Rússa — höfðu
látið mjög vígamannlega, ogsagzt aldrei
mundu sleppa borginni Durazzo, fóru þá
og að verða mun deigari, og gera sig
líklegri eða tilleiðanlegri til samkomu-
'*) Borgin Durnzzo — nefnd á serbnesku
Dratsh — hét i fornöld Epidamnos, en var síðar
af Rórnverjum, nefrnl Dyrrhachium. — Hún var
upphafiega byggð árið 625 f. Kr., en komst á
vald Tyrkja seínt 4 miðöldunum, tekin herskildi
árið 1501 e. Kr.
Borgin (íbúar um 5 þús.) er siglingaborg mikil
þótt eigi sé hún fjölmennari, og enda þótt böfn-
in sé að vísu hvergi nærri góð, vegna sandgrynu-
inganna, sem þar oru.
lags, þótt mjög gremdist þeim, sem von
var, hversu Rússar höfðu brugðist þeim.
Fór loks svo, að Nicola Pasic (les:
Pasjitsj), forsætisráðherra Serba (fæddur
1846), sá sig til knúðan, að lýsa yfir því,
að Serbar myndu eigi alls ótilleiðanlegir
j til að víkja i'ir Durazzo, þótt fána sinn
| hefðu um hríð látið blakta þar, og kveðja
I herlið sitt þaðan.
Fari nú þetta svo, eins og líklegt
j mun megja telja, mun mega telja það
l alveg áreiðanlegt, að hjá stórvelda ófriði
| verði þá stýrt að þessu sinni.
En hefði Rússum og Austurríkis-
mönnum lent saman, má telja víst. að
Italir hefðu og — auk Þjóðverja — veitt
Austurríkismönnum að málum (sbr. þrí-
veldasambandið), en Frakkar þá einnig
j séð sig knúða, að koma til skjalanna, og
j veita Rússum, bandamönnum sínum.
Sízt og að vita, hvort Bretar þá og
j eigi orðið við ófriðinn bendlaðir, þar sem
j vinfengi hefir um hríð verið eigi all-lítið
! milli þeirra og Frakka, en kali að mun
til Þjóðverja, sökum þess, hve mjög þeir
eru á seinni árum farnir að reyna að
keppa við Breta, að því er til yfirráðanna
kemur á sjónum.
En sem betur fer, mun nú sneitt hjá
þessum ófögnuði, stórvelda ófriðinum, að
sinni, enda flutti Lundúna-blaðið „Times“
(les: tæms), 26. nóv. síðastl., grein nokkra
er mjög mikla athygli vakti, og dregið
mun hafa úr ófriðarhuganum að mun.
I grein þessari er sýnt, fram á, að alls
engin ástæða væri til stórvelda ófriðar,
sem stendur, — hvorki blöðin nó þjóð-
irnar, er slíks óskuðu, og ríkja stjórnirnar
tæpast heldur, ekkert það áhuga-efni þjóð-
anna efst á baugi, er slíku gæti valdið.
Stórvelda-fundur.
(Um Balkan-málin).
Loks er nú svo langt komið, að full-
trúar stórveldanna (eða þá flestra þeirra),
sem og fulltrúar Balkanþjóðanna, er við
ófriðinn hafa verið riðnar, hafa sezt á
rökstóla í Lundúnum, til þess að semja
um friðarskilmálana.
Lundúnafundurinn hófst 16. des. þ. á.,
og er utanríkisráðherra Breta, Edward
Grey lávarður, heiðursforseti hans.
Mun þá vera svo að skilja, að ann-
ar forseti sé þá og jafnframt, sem fund-
arstjórnin o. fl. er ætluð.
En Edward (xrey hefur, að því er segir
í erlendum blöðum, talið þetta þrennt
mundu verða aðal-verkefni fundarins:
a, að trygga það að Albania verði sjálf-
stætt ríki
1), að sjá um, að ekkert stórveldanna á-
gyrnist nokkra af tyrknesku eyjunum
í Ægæiska hafinu, hvað sem um þær
verður að öðru leyti.
c, að sjá um, að herskipum allra þjóða
verði leyfð jafn frjáls leið um Darda-
nella-sundið; —en samningar, er stór-
veldin gerðu 1841, hafa til þessa ó-
heimilað öllum herskipum, nema her-
skipum Tyrkja, leið þar um.
Hver vill ná i
Milljónina?
Um það er von fyrir hvern þann, ■
sem kaupir sór lotteriseðil í flokki
þeim, sem í hönd fer af:
Danska Kolooial klasse-Lotteríiuu
sem er tryggt af danska ríkinu.
í lotteríinu eru 50.000 hlutir, 21.550
vinningar og 8 verðlaun og nemur
þetta alls
5 milljónuin 175.000 franka.
Stærsti vinningurinn er, ef heppni
fylgir:
í.000.000 franka
(ein milljón franka)
og skiptist þannig:
450 þús. 5 á 15 þús.
250 — 10-10 —
150 — 24 - 5 —
100 — 34 - 3 —
80 - 64 - 2 —
70 — 210 - 1 —
60 — og 21.197
50 — vinningar á
40 — 500 300 250
30 — 200 150
20 — o. s. frv.
1 -
1 -
1 -
2 -
2 -
2 -
3 -
Það er dregið einu sinni í mán-
uði og kostar seðillinn í hverjum
drætti:
í þesíu er fólgið
burðargjftld unáir
seðilinn og ilr£.tt-
arskrána.
V, seðill kr. 22.50
V, — — 11-50
v4 — — 6.00
Vs - - 3.25
Vegna hinnar miklu fjarlægðar og
strjálu póstferða verður að borga
fyrir minnsta kosti 2 drætti í
einu og má senda andvirðið í póst-
ávísun eða ábyrgðarbréfi. Danska
ríkið ábyrgist að vinningar sé fyrir
hendi og eru þeir greiddir áu
affalla.
Vegna þess, hve líkindin lil vinn-
ings eru mikil (nærri annað hvort
nr. vinnur), er líklegt að seðlarnir
seljist fljótt upp og skuluð þér þvi
eigi fresta að panta þá.
Utanáskript er:
0. Edeling,
Köbenhavn Ö. Danmark.
Um skiptingu á löndum Tyrkja i
norðurálfunni, virðist hann því gera ráð
fyrir, að Balkanþjóðirnar semji að öðru
leyti sjálfar við Tyrki.
Líklega þó nokkuð hæpið, að sú verði
niðurstaðan, eða stórveldin vilji eigi, er
til kemur, bafa þar einnig hönd í bagga.
Tyrkir hafa hafið andmæli gegn því,
að fulltrúi (Irikkja taki þátt í friðarsamn-
ingunum, þar sem þeir hafi enn eigi sam-
ið vopnahlé.
En ekki er svo að heyra, sem þess-
um mótmælum Tyrkja stjórnar verði þó
sinnt.