Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1914, Síða 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1914, Síða 6
14 ÞJOÐVILJINN. XXVIII., 3. -4. væri sjómennska, kaupavinna, daglauna- 'vinna, eða annað því líkt. Það væri unadw að því, ef slík smá- býli risu hér upp, æ fleiri og fleiri; — landið þá ólisu fegra, og hagsældin meiri. Þriðja aðal-tiliaga mín hnígur í þá átt, að komið sé upp nægilega öflugri útlánsstofnun, er eingöngu hafl það hlutverk, að lána út fé gegn veði í jarðeignum. Það er skoðun mín, að tii þess að flýta fyrir ræktun landsins, þurfi lánin i að vera fáanleg til mun lengri tíma, en j nú, — ekki til skemmri tíma, en til 60 ! ára, og jafnvel til 120 ára, og yrðu þá j árlegu afborganirnar algerlega hverfandi, i en lánin þó alveg hættulaus, þar sem i landið er sjálft að veði. En til þess að flýta fyrir ræktun | landsins, og framkvæmdum öllum að ' öðru leyti, þyrfti lán að fást, er nemur allt að ®/4 virðingarverðsins, ef ekki jafn vel 7/8. Frá útlöndum. Járnbrautarslys í Liverpool 15. okt síðastl. — Sex menn biðu bana, en tuttugu hlutu meiðsli. — Annað slysið varð þá og á Bretlandi um líkt leyti, — hlutu um 400 menn bana við námuslys i Cardiff; Trúlofuð ný skeð: Prinzinn af ðVales (brezki ríkisarflnn), íseddur 13. júní 1984, og Tatjana Nikolajevna, næst elzta dóttir rússnesku keia- ara-hjónanna, ^ædd 11. júní 1897. — — Danskir, og sænskir, efnafræðingar áttu fund með sér í Lundi 25. okt. þ. á. — Sendiherra Kússa í StokkLóimi var nýlega kvaddur burt þaðan í skyndi, talinn viðriðinn neinjósnarmál, þ. e. að hafa notað sænskon rrndirliðsforingja, Törngren að nafni, til að afla sér upplýsinga um ýms hormál Svia, er leynd áttu að vera. Um sömu mundir hvarf og alfarinn úr Stokk- hóimi María, kona Vilh6lms prinnz. — Hún er rússnesk stórfurstadóttir, og setja sumir brottför hennar í samband við fyr greint mál, þótt neitað sé því að vísu, af stjórnarinnar hálfu. Hún giptist prinnzinum 3. maí 1908, og eiga þau hjónin einn dreng, á flmmta árinu. — — Látnir í Danmörku f okt. tveir merkis- menn: Madsen-Mygdal, landsþingmaður (dó 19. okt.), og Ludvíg Arntzen, hæðstaréttarmálfærsiu- maður (f 24. okt.). Hinn fyr groindi var í millilandanefndinni 1908, en hinn aíðarneindi i fulltrúaráði íslands- banka. — — 22. okt. síðastl, fórst gufuskipið „Westkusten“ við Finnlands strendur. — 30—40 menn drukkn- uðu, en einum farþegjanum var bjargað. — Ofsa- rok var, og við ekkert ráðið. — — 17. okt. þ. á. kviknaði í loptskipinu: „L. II“, i grend við Berlfn i 200 metra hæð — Veður var fagurt, og aragrúi áhortanda, er það hóf sig 1 loft upp, en allt í einu sást eldstrókur, og lopt- farið síðan nær á sídu augnabragði í loga. — Menn tórust allir, 28 að tölu, og voru likin öll hörmulega skaðbrend. Mánuði áður mistu Þjóðverjar loptfarið: „L. I“, við Holgoland mjög skammt því slysanna á milli. — — 6gangur mikill í leikhúsi Kristianíu, er Jeppi á Fjalli var leikinn þar á landsmálinu: pípu- blástur, slagsmá), hnífstungur, og eigi all fáir sárir. — — Mikla eptirtekt hefur það vakið, að á 10 mán- uðum fóru 112 þús. hervarnarskyldra manna i Austurriki til Vesturheims, — rikið, með öðrum orðum. svipt stórum her á ekki fullu ári.----- Allt enn i uppreisnarbáli i Marocco, — hver vopnfær maður i liði uppreisnarmanna, og kon- ur einar, börn, og gamalmenni í þorpunum. — Spánverjar eiga því mjög i vök að verjast, — misstu og 130 manna í orustu við Alkassar 6. okt. þ. á.. 400 manna daginn eptir. — Bólusótt einnig mjög skeinuhætt þar.------ f 18: okt. þ. á. andaðist Dinisulu, er um hrið var viðurkenndur konungur Zulukaffa i Afdku, að föður hans, Cetevayo látnum. — Áttu þeir feðgarnir báðir í höggi við Breta og loks var Dinisulu sviptur konungdómi, og fluttur til eyjarinnar St. Helena. Árið 1897, er Yululandi hafði verið sameinað brezku nýlendunni Natal, var Dinisulu þá leyft að hverfa heim aptur, og hafði siðan all-viðunn- anleg eptidaun. — — 1874—1914. (Fertugs-afmæli löggefandi Alþingis). 5. janúar þ. á. (1914), voru fjörutíu ár liðin, síðan er Alþingi varð löggef- andi, þ. e. stjórnarskráin, frá 6. janúar 1874, orðin þá fertug. 5. janúar þ. á. var þá og jafnframt fertugs-afmæli konungkjörnu þingmann- anna, — þ. e. sem löggjafa. Á hinn bóginn eru þeir, sem kunn- ugt er, að mun eldri, en fertugir, í þing- sögu vor íslendinga, þar sem þeir áttu og sæti á öllum ráðgefandi þingunum, síðan er Alþingi var endurreist að nýju, og voru þar — eigi vel ræmdir. í ráði, að þeir hverfi nú og úr sög- unni, sem telja má vafalaust, að sam- þykkt verði á komanda sumri. AUir munu fagna því, að þeir eru nú að hverfa. 1. des síðastl. (1913) voru rétttíuár- in liðin, síðan er fyrsta „jóla-merkið“ var gefið út í Danmörku, og var ágóðinn þó orðinn — þá þegar — frek milljón, sem varið i-r til baráttunnar gegn berkla veikimu. Það var Holböll póstmeistari i Dan- mörku, sem fyrstur manna fann upp á því, að láta menn skattskylda sig á þenna hátt, — gefa þeim kost á, auk vanalegu frímerkjanna, að líma ofan greind merki á bréf sín, fyrir og um jólin, og styðja þannig að heptingu berklaveikinnar. Sömu aðferðina hafa menn síðan tekið upp í ýmsum löndum, til þess að safna fé, í hinu eða þessu góðgjörða-skyninu. Eptir Messína-hörmungarnar miklu (árið 1908) voru og gefin út „velgjörða- merki“, sama merkið prentað á tólf tungu- málum, og söfnuðust á þann hátt eigi all-fáar milljónir króna. Hér á landi veldur fólksfæðin því, að minna verður úr slíku, og ætti þó einatt, á undan hverjum jólum, að reynast, — þ. e. að leggja á þann háttinn drögin til hinna, eða þessara, gagnlegra sjóðstofn- ana, er tíminn, eða vaxta-söfnunin, léti þá verða að miklu liði, er tímar líða. Húsbruni á Húsavík. Faðir reynir að bjargra priurtrjrt ara syni sínnin, — brenna báðir inni. Húsbruni varð í Húsavíkurverzlunarstað að- faranóttina 30 ,jan-!'ar þ. A., og tókst þé svo afar-slysalega til, sem hér að ofan segir. Húsið hét Sunnuhvoii, eign Dræðra tveggja. Friðgeirs og Hjélmars Mngnússona, og var það Hjálm.ir se.n inni brann. Nánari fregnir bíða næsta nr. blaðs vors, þar sem blaðið var fullsett, þ. e. albúið til prentun- sr, er fregnin barst oss. Frétta-upptínmgnrinn. (Hvað er »ð frétta?). „Heima«tjórnarfélagið“ á Akureyri hélt fund rétt fyrir áramótin (28. des. síðastl.), og varð fundurinn fámennur. — að eins um þrjátfu hræður, er komu »ér þó að lokunum saman um það, að skoða „sambanas“flokkinn, sem sinn flokk, þ. e. styðja hann við komingarnar. Hrúto-týningar f öllum hreppum Húnavatnssýslu í haust , er leið, — styrktar að kálfu af Land- búnaðarfélaginu, en að hálfu af hlutaðeigandi sveitarfélagi. — Sýnir þetta, hve ríkt Húnvetn- ingum, öllum öðrum fremur, er orðið það í huga, að bæta avo fjárræktina, sem unnt er. Hettuidttin, aem tínt hefir að undanförnu upp bæði börn, og yngra fólk, i Reykjavík, mun nú mega teljaat komin, ef eigi um land allt, þá þó í fjölda héraða landsins, — hennar nú síðast getið í Húsavfk, Flateyri í Önundarflrði, og víðar, og víðar — Um taugaveiki getið á Snæ- fjallaströndinni í Norður-ísafjarðarsýslu, á einum bæ þar, — Sandeyri. Maður datt út af bryggju í Stykkishólmi á annan dag jóla, og var örendur, er hann náðist, — aét Jón Einarsson, og var frá ísaflrði. — Hann lætur eptir sig ekkju, og tv j börn, sem bæði eru enn ung. Skemmdir urðu að mun á tveim vélabátum á ísafirði, á jóladaginn, — rak annan (,,Skuld“) í jand í Króknum, og brotnaði að mun, en hinn (mótorkúttarinn ,,Freyja“) varð fyrir árekstri, og brotnaði og töluvert. — Gfetið er þess og, að einn hásetanna bafl þá orðið tyrir eigi all-litlum meiðslum. „Happið“ er nafr.ið á leikriti, eptir Pál kenn- ara Jónsson á Akureyri, sem þar hefir verið sýnt á loiksviði í vetur. — Söngskemmtun gekkst frú Valgerður Briem á Hrafnagili einnig fyrir á Akureyri (7. des. éíðistl.) — söng þar þá og lag, er hún sjálf hafði samið. — Um „geislaefni11 (radíu.n) flutti og Va'demar læknir Steffensen fyrirlestur á Akureyri (4 des siðastl.), { stúdentafélaginu þar. — Enn má og geta þess, að 10. des. siðastl. 'néldu ýmsir Akureyrarbúar Stefáni skólameistara Stefánssyni, og frú hans^ samsæti, í tilefni af silfurbrúðkaupi þeirra hjón- anna o. fl. All-góðan afla fengu Bolvíkingar, er á sjó fóru, milli jóla og nýárs, — svo að sjá, sem fiskurinn hafl þá, sem opt vill verða, hlaupið á unaan hafísnu u, er litlu síðar fyllti allt Ut- Djúpið. --—<OOgOCo------- Fyrir mannsaldri — segir hr. Adolph Jensen, formaður dönsku hagstofunnar —, að á 1000 íbúa hafi í Danmörku komið alls B24/10 fæðingar árlega, en hafi á hinn bóginn árið 1911 verið komnar ofan í 267/10. Hugsunarhátturinn í Danmörku — eins og í ýmsum hinna siðmenningarland- anna, sem svo eru nefnd, — yfirleitt, að færast í þá áttina, að eiga fremur fá börn, en mörg. Fleira fæðist þó enn i Danmörku til- tölulega. en í Noregi, eða Svíþjóð, — hvað þá heldur en i Englandi, eða á Frakklandi. Hugsunarháttinn telur hann verða að gjörbreytast, eigi fæðingunum aptur að fjölga. Hitt, — að leggja skatt á piparsveina, eða á hjón er fá börn eignast, telur hann eigi mundu nægja, þar sem skatturinn yrði eigi svo hár, að barns-uppeldið kost- aði þó eigi enn meir.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.