Lögberg - 24.05.1900, Qupperneq 2
2
LOQBERÖ, FIMMTUDAGINN 24. MAÍ 1900.
W
"Ví®
1*
yjtjf
Wm
OPID BREF.
Áriö 1874, 2. dag ágústmánaðar, komu nokkrir ís-
. 5 lendingar saman í Milwaukee í Wisconsin til þess aö minnast
þúsund ára byggingar íslands, eins og landar þeirra geröu
þann dag heima á föðurlandi voru.
Menn höföu góöa skemtun um daginn, en samt var ekki
slíkum samkomum haldiö uppi hin næstu ár á eítir. En þeg-
ar tímar liöu og smærri og stærri hópar af Islendingum höföu
tekið sér bólfestu víösvegar um landiö, bæði í Canada og
Bandaríkjunum, þá fóru þeir að finna, að það væri bæði til
gagns og gamans fyrir Vestur-íslendinga að hafa eina árlega
skemtisamkomu. Og, eins og við var að búast, voru Islend-
ingar í Winnipeg, sem bjuggu þéttast, fyrstir til að koma á
slíkri samkomu hjá sér, og var þá alment farið að nefna sam-
komudaginn íslendingadag. í fyrstu var hann haldinn 2. ág.,
sumpart af því, að þann dag var þúsund ára þjóöhátíðin á ís-
landi árið 1874, og kannské meðfram af því, að Kristján kon-
ungur níundi kom þá með ,, frelsisskrána í fööurhendi“ til
landa vorra heima. En ekki leið á löngu áöur fjöldi
inanna varð óánægður meö það að hafa Islendingadag 2.
ágúst, vegna þess :—
1. —Að ekki virtist gild ástæða til aö halda árlega gleöi-
samkomu fyrir það, að einu sinni var höfð þúsund ára
þjóöhátíð á íslandi.
2. —Aö stjórnarskrá sú, sem íslandi var veitt og sem gekk í
gildi 1. ágúst 1874, er með stórgöllum og ekki viðunan-
leg né þess verö aö þakkaö væri árlega fyrir hana.
3. —Að fyrir lang-flesta Islendinga í Bandaríkjunum og
Canada, þá sem búskap stunda, er 2. ágúst mjög óhag-
kvæmur samkomudagur þar eð bændur eru um þær
mundir önnum kafnir við heyvinnu og hveiti-uppskeru,
svo ekki má frá því víkja.
Eftir að ágreiningur um þetta mál haföi um nokkurn
tíma átt sér stað, var átta manna nefnd valin í Winnipeg til
þess að koma á samkomulagi um þaö. Varö þaö ályktun
nefndarinnar, að ráða íslendingum til að halda upp á 1*7.júní,
sem árlegan íslendingadag, í minningu um það, aö þann dag
kom hið' fyrsta Alþing Islendinga sainan á þingvelli við Öxará
áriö 930 og þjóðstjórn hófst á íslandi. Jón Sigurðsson, hinn
mesti og þolbezti forvígisinaöur í stjórnarbótarmáli Islands,
var líka læddur 17. júní árið 1811, og þótti mönnum það eiga
vel við að minnast hans í sambandi viö áður nefndan
merkis-atburð.
Tillaga átta-inanua nelndarinnar varð alment mjög vin-
sæl, en til óhamingju hurfu nokkrir af nefndarmönnum frá
ályktup sinni og fóru aftur að gangast fyrir því, aö íslendinga-
dagur væri haföur 2. ágúst, og hafa þeir komið því til leiöar,
aö hinn mesti flokkadráttur á sér staö í þessu máli, svo að
ekki lítur nú út fyrir, aö flokkarnir vilji nokkuö slaka til
hvor fyrir öörum.
íslendingar í Argyle, sem eindregiö voru 17. júní-menn
og hafa þann dag, eins og margir aðrir, haldið sinn íslendinga-
dag, sáu, þegar svona var komiö, aö nauösynlegt var aö gera
tilraun til að fá Vestur-íslendinga til að koma sér saman um
einhvern einn ákveðinn þjóðminningardag, og kusu okkur
undirskrifaða til þess að taka þetta efni til íhugunar og frain-
kvæmda.
Bæöi af viötali við ýinsa menn, sem hlut eiga að máli,
og bréfaviðskiftum við þá, urðum við þess vísir, að ekki voru
líkur til þess, að flokkarnir gætu látið sér koma saman um að
hafa íslendingadag annaðhvort 17. júní eða 2. ágúst, og því
virtist okkur reynandi að ráða til þess, aö einhver annar
merkisdagur væri ákveðinn til þess að vera árlegur þjóöminn-
ingardagur Vestur-íslendinga.
Viö kvöddum til fundar á Brú í Argyle-bygð hinn 2. apríl
næstl. til þess að ræða um þetta mál. Ágrip af því, sem
geröist á þeim fundi, birtist í blööunuin, ,,Lögbergi“ og
,, Heimskringlu“, sem komu út .12. apríl. Leyfum viö okkur
að biðja yður að athuga skýrslu okkar ura málið í þeiin
blöðum.
Á fundinum var nálega í einu hljóði — að eins þrjú at-
kvæði á móti — samþykt svolátandi tillaga :—
a—, ,Að Islendingar í Argyle hafi þjóðininningardag í bygð
sinni hinn 19. júní næstkomandi, til minningar um það,
að hinir fyrstu íslenzku landnámsmenn stigu þann dag á
land í Quebec árið 1870, og að þá byrjaði saga vor
Vestur-Islendinga; og,
b—, ,Að vér vinnum að því að fá hinn 19. dag júnímánaðar
viðtekinn framvegis sem árlegan þjóðminningardag ís-
lendinga í Vesturheimi fyrir það tilefni, sem að framan
er á minst. ‘ ‘
Fundurinn beiddi okkur undirskrifaða svo á ný að halda þessu
máli uppi.
Um leið og við hér með lýsum yfir því, aö okkur mundi
þykja mjög vænt um að sjá yður, sem við sendum þetta bréf,
og sem allra flesta góða íslendinga á samkomu okkar í
Argyle hinn 19. júní, leyfum við okkur að skýra yður frá því,
að við höfum ákveðið að hafa altnennan fund á mánudaginn
18. júní, klukkan 3 eftir hádegi, í samkomuhúsinu „Skjald-
breið“ í Argyle-bygð, til þess að ræða um íslendingadags-
málið og fá þar ráð góðra og viturra manna um meðferð þess
framvegis.—
Viö biðjum yöur nú vinsamlega, kæri herra, að gangast
fyrir því í yðar bygðarlagi, að íslendingadagsináliö verði á al-
mennum fundi tekið til umræðu og ályktunar, og að sá fundur
kjósi, einn erindsreka til að mæta fyrir hönd bygðar sinnar á
fundi vorum í Argyle hinn 18. júní, ef þér og bygðarmenn
yðar ekki álíta það of kostnaðarsamt sökum vegalengdar eða
annara erfiðleika. En úr þeim bygðum, sem engan erinds-
reka geta sent á fundinn í Argyle, óskuin við að fá skriflega
skýrslu um það, hvern dag tneiri hluti bygöarinanna mundi
helzt kjósa fyrir árlegan þjóðininningardag íslendinga. þær
skýrslur þyrftum viö undirskrifaðir að fá, ef unt væri, til aö
leggja þær fram á fundinum 18. júní.
Við væntum aö fá niðursett fargjald hjá járnbrautarfélög-
uní fyrir fólk það, sem sækir á samkomuna í Argyle 19, júní
og fundinn, setn nú var á minst. Skulum viö, svo fljótt setn
hægt er, skýra nákvæinlega frá því í íslenzku blöðunum, hvaö
okkur veröur ágengt í því efni.
Treystandi góövild yöar og dugnaöi í þessu mali erum við
Yðar með virðingu,
FRIÐJÓN FRIÐRIKSSON,
Glenboro, Man.
BJORN JÓNSSON,
Brú, Man.
Glenboro, Manitoba, í maímánuði 1900,
w
Alexandra
Rjoma-Skilvindan
Verð 50.00. og þar yfir.
Hagnaðurinn af 6 kúm sé Rjómaskilvinda bríik-
uð jafnast á við hagnaðinn af 8 kúm án henn. át
þess að meta neitt hæeðarauka og timasparnað
Biðjið nm verðskrá á islenzku og vottorða afskil
tir er sýna hAaðmikið betri okkar skilvindui
eru en nokkrar aðrar á markaðnum.
R. A. Lister & Co., Ltd.
282 King Str., Winnipeg.
Fyrir 6 mánuðum
tok Canadian Dai-
ry Supply Co. að sér
De Laval Skilvindu-soiuna
í Alanitoba og N
W. T. þótt mikilb
mótspyrnu mætti
og hlyti að keppa við vélar, sem boðnar voru fyrir hvað sem fékst,
þá eru yfirburðir
“Alpha Baby” Skilvindunnar
Vidurkendir n* sannadár med vnttordum fjttldanr,
■em brúkar faana.
Ttie
BanKrupl
Siock
Buying
Company
Cor.
Main & Rupert 8t.
Næstu dyr fyrir sunnan Brunswick
•%%%%%%•
ALT AF
FYRSTIR
•%%%%%^%«
Mikil fata-sala
•%%^%%%*
Birgðir aí
Kvennm.
Spring: (Joats
keypt fyrir fiOc. dollars
virðið, verða seld áfl.75,
$2 00, $2.50, $3.00 og
$4.00
Rétt hálfvirdi.
250 Euskar kttrlniantitt regnkáþur,
með flöjels kraga búnar til úr
góðu efni, vanaletra seldar & $7,
OKKAR VERÐ $2.00
47 Scartar „Rubber“-regnkápur með
„Cape“ $4.50 virði
OKKAR VERÐ »1.95
100 þör af sterkura vinnubuxum $2
Látum fara á 75c.
89 Tylftir af beztu nýjum Dewi.n &
Moleg Overalls með buxnasniði
á 75 eents.
44 Serge karlmannafatnaðir. Inn-
flutt efni, alull. L&tiO fara á
$4.75 ifttin.
100 Tylftir af bláurn og Hvftum neg-
lige skyrtum með kraga. L&tn-
ar fara & 4öc. Helmingi meirs
virði.
Við kau^um og seljum fyrir
pemnga út í hönd.
EDDY’S
H UtS-, HROSSA-, GOLF. OG STO-
BUSTA
Peir endast BETUR en nokkrir aörir, somjboönir eru, og eru'viðurkendii af
öllum, sem brftka f>&, vera ölluai öðrucujhetri.
Faik Homb Farm, Axwell,Mam.,10. nóv. 1899.
The Canadian Dairy Supply Co.. Winnipeg, Man.
Hekrar mínir —Með því eg þarfnaðist rjómaskilviudu síðastl. vor
þá fékk ég mér fyrst ;,Mikado!‘-skilvindu frá Manitoba Produce-félag-
inu og reyndist hún vel i fáeina daga, svo kom eitthvert ólag á hana
og afréð ég þá að reyna .,MeIotte ‘-skilvinduna, en hún reyndist lítið
betur og reyndi ég þá eina af yðar skilvindum, sem hefur reynzt ágæt-
lega vef. Hún nærðllum rjómanum, er mjög létt og þægilegra að haída
henni hreinni heldur en nokkrum hinna. Eg vil ráða fólki til þess að
taka De-Lava-skilvindurnar langt fram yfir allar aðrar; sem óg hef
reynt. Yðar einlægur.
AVM, DARWOOD
Mr. Árni Eggertsson er aðal-umboðsmaður Canaihan Dairy SuRPLY-félags-
ins á meðal íslendinga og ferðast um allar íslenzku nýlendurnar í vetur og vor
C'hristiiin .fohnson á Baldur er umboðsmaður vor í Argylo-bygð.
T«e CANABIÁN DAIBY SUPPLY CO.,
236 KING ST„ WINNIPEG.
|égf*’Verðinu skilað aftur ef vör-
urnar lika ekki.
♦%%%%%►%♦
The BANKRUPT
STOCK
BUYING 00.
965 os 567 Main StreeL