Lögberg - 11.07.1901, Side 2
2
LOGBERG, FIMTUDAGINN 11 JULÍ 1901
Ferðasaga séra Friðriks.
Eins og áður hefur veriS skýrt
frá ( Lögbergi, er ná fyrir nokkru
komin út sérlega fróðleg bók eftir
séra Friðrik J. Bergmann á Gardar,
1 Norður-Dakota, er nefnist „ísland
um Aldamótin," og er það ferðasaga
séra Friðriks til íslands og um ís-
land sumarið 1899. Bókin er prent-
uð í „ísafoldar“-prentsmiðju og kom
út snemma á þessu ári. Hún er 321
bls. að stærð, prentuð á góðan papp-
ír, í mjög smekklegu bandi og allur
frágangur á henni góður. Bókin er
nýlega komin hingað vestur til sölu,
og kostar 1 bandi $1.00—.óvanalega
ódýr bók eftir stærð og þvf, hvað
til hennar hefur verið vandað.
Vérhöfumnú lesið þessa bók
séra Friðriks vandlega, og vér verð-
um að segja það eins og er, að vór
höfum ekki lesið neina íslenzkabók
með jafn-mikilli nautn í langan
tíma. Hún tekur langt fram öllum
ferðabókum, sem ritaðar hafa verið
um ísland, er ágætlega skrifuö og
skemtileg, og full af fróðleik spjald-
anna á unilli um ástand hinnar fornu
fósturjarðar vorrar og bræðra vorra
þar—bæði í líkamlegum og andleg-
um efnum—í lok hinnar nýliðnu
aldar.
Hvernig á því stóð, að höfund-
urinn réðst í að rita óg gefa út þessa
ágætu bók, gerir hann grein í for-
málanum sem fylgir:
„þegar heim kom úr Islandsferð
minni í fyrra haust, voru menn hér
fyrir vestan svo sólgnir í að heyra
fréttir frá Islandi, að eg mátti til
með að vera einlægt að segja kafla
og kafla úr íerSasögu minni. Eg
rnátti hvað eftir annað til með að
draga upp fyrir öðrum þá mynd af
landinu, fólkinu og lífskjörum þess,
sem eg hafði flutt með mér að heinj-
an. Eg leitaðist við að gera þett'a
eins rétt og eg hafði vit á og láta
bæði björtu hliðina og hina myrkari
koma i'ram, svo myndin yrði sönn.
En einkum langaði mig til, að láta
myndina vera þannig, að kærleikur-
inn milli Vestur- og Austur-Islend-
inga efldist og skilningurinn á þjóð-
lífsbaráttunni yrði ljósari. Mig
langaði til að láta ferðasögu mína
leggja brú í milli landa. Að hve
miklu leyti mér hefur tekist þetta,
veit eg ekki. En til þess loksins að
slíta hugann lausan frá þessu, fór eg
til og hripaði upp efni þess, sem eg
hafði flutt munnlega, og nú birtist
það í þessari bók. Eg hélt, að það
gæti ef til vill verið nokkurs um
vert í bókmentalegu tilliti, að til
væri mynd af landi og lýð, högum
og háttum nú um aldamótin, dregin
upp af Islending, sem verið hefur
fjarlægur fósturjörð sinni 25 ár og
kemur svo h e i m með einlægum
vilja til að skilja það, sem fyrir aug-
uu ber, og skilja það á bezta veg.
En svo er þetta mikið vandaverk,
og eg finn nú bezt til þess sjálfur,
hve myndin er ófullkomin. Lík-
lega hefði hún getað að einhverju
leyti orðið fullkomnari, ef eg hefði
haft slíka bók í huganum á ferða-
laginu sjálfu. En það var langt frá
því. Sú hugmynd varð ekki til fyr
en löngu seinna. þyki einhverjum
eg hafa verið of nærgöngull ein-
hverstaðar í einstökum mannlýs-
ingum, bið eg þá að gæta þess, að
fjarlægum mönnum, sem aldrei eiga
kost á að sjá þá menn, sem um er
að ræða, en einlægt eru að lesa eitt-
hvað eftir þá og hugsa um þá, þykir
ekki minst í þess háttar varið,
Svo sendi eg þá bók þessa út
frá mér, með hjartans þakklæti til
allra hinna mörgu, sem tóku vel og
bróðurlega á móti gestunum héðan
að vestan, og bið drottin að blessa
hag þeirra og vorrar ástkæru fóstur-
jarðar á ókomnum tímum.“
Efni bókarinnar skiftist niður
í 17 kafla, sem fylgir:
1. „Austur um hyldýpis haf“ (bls.
1—16). þessi kafli er um tildrög
þess, að höf. fór í þessa íslandsför
sína sumarið 1899, um ferðalagið frá
Winnipeg til Skotlands (bæði á landi
°g sjó), lýsing á Montreal, Edin-
burgh og á Skotum.
2. „í Noregi" (bls 17—31) þessi
kafli er um dvölina í Noregi, afar
fróðleg lýsing á rnerkum rnönnum
og andlegum hreifinguin í Noregi á
Cildinni sern leið, og einnig lýs ng á
bænum Christiansand, landinu þar
norður undan (Seljadal) og íbúuin
þessa hluta Noregs.
3. „Danmörk og danskt kirkju-
líf“ (bls. 35—59). Mjög skemtileg
og fróðleg lýsing á landtdagi, búnaði,
bæjum, mönnum og andlegum hreif-
ingum og stefnum í Danmörku.
4. „Koman til Reykjav'kur. Sy-
nodus. Latínuskólinn“ (bls 60—76).
þessi kafli er um ferðina frá Khöfn
til Rvíkur, viðtökurnar þar, hvað
fram fór á Synodus (kirkjuþingi ís-
lands), um burtfararpróf í latínu-
skólanum, kennara hans og ástand
skólans.
5. „Alþingi“ (77—85). þessi kafli
er um alþingishúsið nýja, þingmenn,
helztu málin, sem voru fyrir alþingi
(það sat einmitt þegar höf. kom til
Rvfkur), og hinar pólitísku stefnur
,á íslandi.
6. „Hjá guðfræðingunum" (bls.
86—93). Lýsing á hinum kirkju-
legu leiðtogum í Rvík og ýmsar
skarpskygnar hugleiðingar út af
kirkjulega ástandinu á íslandi.
7. „Ritstjóraspjall“ (bls. 94—101).
'þessi kafli er um ritstjóra helztu
Rvikur-blaðanna, um stefnu blað-
anna og blaðamensku á íslandi yfir
höfuð.
8. „Öldungatal'1 (bls. 102—111).
Kafli þessi er um hina helztu bók-
menta-leiðtoga í höfuðstað íslands
og starf þeirra fyrir þjóð vora.
9. „Hvernig er höfuðborgin í
hátt?“ (bls. 112—124). í þessum
kafla er lýsing á Rvík, bæjarstæðinu,
strætum, húsastil, sölubúðunum, o.
s. frv.
10. „Austur um land '(bls. 125—
135). þessi katii er um ferðina frá
Rvík (með strandferðabátnum „Hól-
ar“) til Eyjafjarðar, og er í honum
fróðleg lýsing á viðkomustöðunum
á austurhelmingi Islands, ástandi
manna þar, o. s. frv. ,
11. „Eyjafjörður" (bls. 136—160).
í þessum kafla er lýsing á Eyjatirði
(æskustöðvum höf.), Akureyri, og
breytingum, sem orðið hafa á þess-
um hluta landsins—langur kafli og
fróðlegur.
12. „Á hestbaki'* (bls. 161—204).
þessi kafli er um ferðina, landveg,
frá Eyjafirði saður í Borgarfjörð
(um Skagafjarðar, Húnavatns, Dala
og Stranda sýslur) og sjóveg frá
Borgarnesi til Reykjavíkur—langur
og sérlega skemtilegur og fróðlegur
kafli.
13. „Andlegur vorgróður" (bls.
205—219). þessi kafli er um kristi-
legan fólagsskap meðal stúdenta í
Rvík og þesskonar starfsemi í höf-
uðstað íslands.
14. „Austur að Stóranúpi" (bls.
220—248). þessi kafli er um ferð-
ina (landveg) trá Rvík austur um
Árnessýslu, að Eyrarbak ka, Stóra-
núpi, Gullfossi, Geysi, þingvöllum
og aftur til Rvíkur—sérlega skemti-
legur kafli.
15. „Höfuðból í grend við höfuð-
staðinn" (bls. 249—257). þessi
kafli er um Laugarnes-spítalann,
Viðey, Engey, túnaræktina í kring-
um Rvík, o. s. frv.
16. „Framfarir" (258—292). þessi
kafli er um framfarir þær, sem orð-
ið hafa á íslandi í líkamlegum og
andlegum efnuin hinn síðasta f jórð-
ung aldarinnar í heild sinni, og hið
núverandi ástand fólksins þar yfir
höfuð eftir áliti höfundarins. Kafl-
inn br sérlega fróðlegur og sýuir,
live óvenjulega skarpskygn höf. er
og hve mikið far hann hefur gert
sér um að finna sannleikann í þes3U
efni, sem öðrum.
17. „Kristindómur þjóðar vorrar"
(bls. 293—321). þessi (stðasti) kafli
bókarinnar er um kristindóms og
kirkjulega ástandið á íslandi t heild
sinni, og er mjög fróðlegur og lær-
domsríkur, ekki síður en annað í
þessari ágætu bók séra Friðriks.
Eins og lesendur vorir sjá af
efnis-yfirlitinu hér fyrir ofan, þá
ferðaðist sóra F, J. Bergmann um
mikinn part af Islandi á hestbaki,
og kom á allar helztu hafnir sunn-
an, austan og norðan lands, svo
hann fekk bezta tækifæri til aý afla
sér upplýsinga um hvað hefur gerst
á landinu í heild sinni á síðastliðn-
um aldarfjórðingi, hvað var að ger-
ast þegar hann ferðaðist um, og
hvernig ástandið var þá. En það
er ekki nóg að ferðast, heldur verð-
ur ferðamaðurinn að hafa opin aug-
un og skilja það, sem hann sér og
heyrir. þetta hefur séra F. J. Berg-
mann gert betur en nokkur annar,
sem ritað hefur um ferðalag sitt á
íslandi. Vér höfum aldrei fyr séð
annan eins fróðleik saman kominn
í einni bók um alla hluti, er snerta
landið, lýðinn og ástand lians í
hverju sem er. Og að voru áliti
dæmir séra F. J. Bergmann rótt og
hlutdrægnislaust um sérhvað það,
er hann ritar um.
Nokkrir blygðunarlausir rógbor-
ar hafa verið að reyna að telja
mönnum trú um, að séra F. J Berg-
mann hafi verið leyniagent Canada-
stjórnar og verið að æsa menn á
Isl. til vesturflutnings. Ef nokkuð
annað en orðstír þeirra sjálfra, er
þessu hafa haldið fram, þyrfti til að
sanna mönnum að þeir voru að fara
með helber Ó3annindi, þá er þessi
bók sönnun fyrir þvf. Sóra F. J. B.
hefur auðsjáanlega rniklu meiri trú
á framtfð Islands en fjöldi þeirra
sem þar eiga heiira, og hvergi hvet-
ur hann nokkurn mann til burt-
flutnings. En hann hvetur íslend-
inga til að læra verklegar framfar-
ir af öðrum þjöðum — ekki sízt
Ameríkumönnum—, sem gengur
landráðum næst I aug um þeirra er
vilja halda þjóð sinni í vesaldómi og
fáfræði—til þess þeir geti kúgað
hana og flekað á allan hátt. Hví-
líkir föðurlands- og þjóðvinir!
Enginn getur iilað hlýlegar
um ísland, um þjóðinPog hvern ein-
stakling, sém hann minnist á, en
séra F. J. Bergmann gerir í bók
sinni. Enginn maður er dæmdur
hart, og kristilegur kærleiki og um-
burðarlyndi gengur eins og rauður
þráður í gegn um alla bókina. það
yfirgengur allan skilning, hvernig
nokkur maður getur verið svo djöf-
ullegur að Ijúga á og svívirða jafn
góðan og göfugan mann, eins og
höf. bókarinnar „ísland um alda-
mótin" er. En þetta hafa .þeir samt
gert, afdankaði „Tjaldbúðar“-prest-
urinn og „þjóðólfs“-durgurinn.
Hver oinasti íslendingur, sem
vill fá fullkomna og rétta þekkingu
á ástandi bræðra vorra á íslandi í
líkamlegum og andlegum efntim, og
um það hvernig nú hagar til á fóst-
urjörðinni gömlu, ætti að lesa bók
séra F. J. Bergmanns „ísland um
aldamótin" — ætti að lesa hana upp
aftur og aftur, svo hinn mikli fróð-
leikur, sem hún hefur inni að halda,
festist í minni hans og bókin verði
eign hans í orðsins fyllsta skilningi.
Bókin er sannur gimsteinn í sinni
röð, og vér getum ekki mælt of fast
með að hún sé alment keypt—og
lesin, lesin vel.
JamesLindsay
Cor. Isabel & Pacific Ave.
Býr til og verzlar med
hus lamþa, tilbúið mál,
blikk- og eyr-vöru, gran-
ítvöru, stór o. s. írv.
Blikkþokum og vatns-
rennum sértakur gaum-
ur gefrnn.
Phycisian & Surgeon.
Útskrifaður frá Queens háskólanum f Kingston
og Toronto háskólanum f Canada.
Skrifstofa í HOTEL GILLESPIE,
€KVSTAL, M, D
Iunlekllr
yðar fara eftir því hversu góð vara
uppskera yðar er.
Upkeran
fer að miklu leýti eftir því hversu
góðar vólar þór notið.
IlaílA þór nokk-
urntíma liugsað
um það ?
Ef þór haflð gert
pað, þá gerið J>ér
sjálfsagt mun á
góðri vöru og
slæmri.
Kunnið þér að meta góðar
vélar? Ef svo, þá getum
vér gert yður til hæfis.
Vér ábyrgjumst* gæðin fen þér njótið ánægjunnar.
Skrlfid eftir Cataloguelmedjmyudum.
Nordvestur deild :
WINNIPEQ
MAN.
REYNID THE
GLADSTONE FLOUR
Yður hlýtur að geðjast að því mjöli. það er
Snjóhvítt og skínandi fallegt.
® Að prófa það einusinni, mun sannfæra yður.
* Pantið það hjá þeim sem þór verzlið við.
Ávalt til sölu í biið Á. Fridrikssonar.
RJOMI
Bændur, sem hafið kúabú, því losið þér
yður ekki við fyrirhöfnina við smjörgerð og
I „ láið jafnframt meira smjör úr kúnum mej)
1 J því að senda NATIONAL CREAMERY-FE
LAGTNU rjómann ? Því fáið þér ekki penlnga fy-rír í etað þe®”
að skifta því fyrir vörur i búðum ? Þér bæði græðið og sparið peninga
með því að senda oss rjómann.
Vér höfum gert samninga við öll járnbrautarfélögin um að taka á
móti rjóma. hvar sem er í fylkinu. Vér borgum flutningin með iárn-
brautum. Vér virðum smjörið mánaðarlega og borgum mánaðarlega-
Skrifið oss bréfspjald pg fáíð allar upplýsingar.
Nationa/ Creamery Company,
'Í 330 LOGAN AVE., WINNIPEG.
'^.S^^AiiYiSSSXíX.iiiSií&^SSlá'tii^SBiilWÆSiSíeíisiíSöSSiiSsSiSl&VSíSö&ÍKíl/SSSSMSííSiSSÍiSíBlSSSAYSíSSlSlíX^
&JAEYERD
á saumavólum af ýmsu tagi, brúkaðar
en alveg eins góðar og nýjar.
Maskínu olía, nálar og viðgerð á
allskonar vélum.
The Bryan Snpply Co.,
243 Portage Ave., Winnipeö,
Heildsöluagentar fyrir
Wkcelcr & Wilson SaiiniHvélar
IIYIIAMESS-
BUII - - ■
J. M. CAMPBELL,
sem hefur unnið hjá E. E. Hutoh-
ings í nærri þvífi21 Ar, hefur nú
yfirgefið hann og byrjað sjálfur
verzlun að
Þeir, sem vilja fá hrein
og ómenguð sætindi, ættu
æfinlega að kaupa þau frá
Boyd, þau eru æfinlcga ný,
búin til í Winnipog og seld á
10 cents upp í 75 cents pundið
W. J. BOYD.
I. M. Cleghorn, M D.
LAfiKNIR, og 'YKIR8ETUMADUR, Kt-
11efur keypt lyfjabúöina á Baldur og hefur
hvl sjálfúr umsjon í öllum meflölum, sem hanc
yetur frá sjer.
EEIZABETH 8T.
BALDUR, - - MAN
P.8. Islenzkur túlkur viö hendina hve
nær sem þörf ger.ist.
242 MAIN STR.
á milli Grabam og St. Mary’s Ave.
Þar er honum ánægja í að þeir
finni sig, sem þurfa aktýgi fyrir
Carriages, Buggies, Expressvagna
og Double Harness af öllu tagi ;
ennfremur hefur hann kistur og
töskur. Viðgerð á aktý^jum, kist-
um, töskum og öllu þesskonar
fljót og vönduð.
P. S.— Þar eð beztu verkmenn bæjar
ins vinna hjá honum, þá getur hann á-
byrgst að gera alla ánægða.
Turner’sMusic House$
PIANOS.
ORGANS,
Saumavélar x>g alt þ.vr að lútandi.
Meiri birgðir af MÚ8ÍK en hjá
nokkrum öðrum. «(
Nærri nýtt Píanó| til sölu fyrir
$185.00. Mesta kjörkaup.
Skrifiö eftir verðskrá.
Cor. Portage Ave. & Carry St., Wirjryipeg. 'é
!■%'%/%%/%%.%/%%%'%%%/% %ri