Lögberg - 19.09.1901, Side 8
2
LOGBERG, FIMTUDAGINN 19 SEPTEMBER 1901
VOTVIDRI.
Jafavel þó blautt sé nú, þá finnið þér
ekki svo mikið til þess ef þér hafið okkar
góðu vatnsheldu yfiiskó.
Hver einasti maður og kona geta feng-
ið hér einmitt það, sem við á. Votviðra-
skófataaður okkar er góður. og svo ódýr, að
það er miklu léttara að borga fyrir hann en
að borga fyrir lækningar fyrir að ganga votur.
Sama verð til allra.
719-721 MAIN STREET,
Nálægt C. P. R. vagngtðdvnnum.
WINNIPEC.
Ur bænum
og grendinni.
Næsta fimtudag er bfiist við
hertogannm af Cornwall og York.
I.esið ritgjörð séra F. J. Berg-
manns um Wesley College á 5.
blaðsíðu.
Islenzka jafnaðarmannafélagið
heldur fund á Unity Hall í kveld
(19. Sept).
Fimm vikna gamalt barn á
Arthur str. hér í bænum féll át úr
hengirúmi og beið bana af.
Á sumum stöðum í fylkinu hafa
bændur fengið alt að 50 bush. af
hveiti að meðaltali af ekrunni.
Mr. J. A. Blöndal för vestur til
Yorkton & mánudaginn í erinda-
gjörðum blaðs vors og bjóst við að
verða alt að tveimur vikum að
heiman.
Fáeinir íslendingar eru ný-
komnir frá Islandi, þar á meðal Miss
Kristjana ThorarinseD, sem til ís-
lands fór fyrir tæpu ári síðan.
Hinn 13, þ. m. andaðist þor-
björg Sigurbjörnsdóttir, kona ívars
Jónnssonar hér í bænum, og var
jarðsett hinn 15. Jarðarförin fór
fratn frá Fyrstu lútersku kirkjunni.
hvert þeirra á þingið, og auk þess
eiga frjálslyndu þingmennirnir þar
sæti. Beri kosningar bráðan að, þá
verður fundardeginum breytt.
Mackenzie og Mann hafa keypt
stóra landspildu í St. Boniface beint
á móti Lombard st., og er búist við,
að þeir ætli að láta byggja þar vöru-
hús og hafa aðalaðsetur þar fyrir
vöruflutningsvagna Can. Nortlíem
járnbrautarinnar.
Christian Jacobsen bókbindari
hefir nú flutt sig til 521 Elgin ave.
Honum þykir dæmalaust vænt um
að fá bækur til að binda. þeir, sem
geta gefið honum eitthvað þesshátt-
ar til að gera gleðja hann og gera
góðverk.
Séra Friðrik J. Bergmann kom
hingað til bæjarins á föstudaginn til
þess að búa sig undir kennarastörf
sín við Wesley College, sem byrja
1. næsta mánaðar. Hann fer suöur
aftur í dag snöggva ferð og prédik-
ar næsta sunnudag fyrir söfnuðum
sírtum eins og auglýst er á öðrum
stað í blaði þessu.
Guðsþjónustur verða haldnar
á sunnudaginn kemur 22. Sept. á
Gardar kl. 11 árdegis, á Eyford kl.
2 og á Mountain kl. 4 stðdegis.
Séra Priðrik Bergmann prédikar
við allar þessar guðsþjónustur.
Frjélslyndi flokkurinn í Mani-
toba hefir ákveðið að halda flokks-
þing hér í Winnipeg 13. Nóvember
næstkomandi til þess að búa sig
undir næstu fylkiskosningar. Frjáls-
lyndu félögin í hverju kjördæmi
hafa rétt til að serrtla fimm menn
Nefndin, sem sór um allan und-
irbúning við að taka á móti hertog-
anum af Cornwall og York, hefir
nú ályktað að láta reisa einungis
tvo boga yfir Main st. Ann.r
þeirra verður við Higgins st., og á
að kosta $850; hinn rétt sunnan við
ráðhúsið, og á hanu að kosta $1,100.
Pall á að reisa fram undan minnis-
varðanurn á ráðhúsflötnum, og þar á
að færa hertoganum ávarp bæjar-
manna til þess sem flestir geti verið
viðstaddir.
Y?
ID AFHENDUH
YDUR FOT-
IN EFT1R^24
KL.TIHA.
Við ábyrgjumst hverja flík
er við búum til, seljum
með sanngjðrnu verði, og
höfum beztu tegundir af
fataefnum. Föt úr Tweod sem
kostuðu $19.00 og $22.00, seljum
við nú á $16.00.
OLLINS
Cash Tailor
355 MAIN ST.
Beint á móti Portage Ave,
í bænum Prince Albert er all-
mikil hreyflng I þá átt að gera
Saskatchewan héraðið að fylki.
Hugmyndin hefir hingað til verið
sú að gera alt Norðvesturlandið að
einu fylki, en Prince Albert menn
eru stranglega á móti því. þeir á-
líta, að Saskatchewan ætti að vera
fylki út af fyrir sig, og sama sé að
scgja um hin héruðin. Hugmyndin
er falleg, en stjórn Norðvesturlands-
ins yrði með þvl lagi nokkuð kostn-
aðarsöm—ef alls staðar skyldi verða
afturhaldsmenn við völdin.
Veðráttan hefir verið mjög
stirð síðan Lögberg kom út síðast.
Sífeldur norðvestan kuldi og úr-
koma. í fyrri nótt birti upp með
frosii, og er það vlst fyrsta frost-
nóttin á haustinu. Bændavinna
hefir því eðlilega gengið lítið þessa
vikuna; en nú lítur út fyrir breyt-
ingu til hins betra. Glaða sólskin
og blíðviðri þegar þetta er skrifað
(miðvikudag).
Ógiftu stúlkurnar í Fyrsta lút-
erska söfnuði eru í undirbúningi
með sfna vanalalegu árssamkomu
og hafa ákveðið að halda hana
stuttu eftir miðjan Október næstk.
það er óþarfi nú orðið að mæla fram
með samkomum óyiftu stúUcnanna;
ær samkomur eru orðnar viður-
kendar, enda þá æfinlega liúsfyllir.
í þetta sinn búast stúlkurnar ekki
við að geta haft veitingar vegna
annríkis, en þær búast við að láta
hinar andlegu veitingarnar verða
þeim mun vandaðri en undanfarin
ár, að þær meira en bæti það upp,
svo það ætti að verða gróði en ekki
tap fyrir samkomugestina. Munið
eftir þessari samkomu og ákveðið
yður ekki til neins annars það
kveld; prógram verður auglýst síðar.
Mr. H. C. Reikard hefir'sett upp ak-
*ý(?ja verkstæði og verzlun liðuga mílu
norðan við Lundar, Man. Hann býr til
og selur aktýgi og af öllu tagi og alt ak
týgjum viðkomandi, svo sem kraga
nærkraga (Sweat Pads) bæði fyrir ein
föld og tvöföld aktýgi. Enn fremur sel-
ur hann alls konar skófatnað og gerir
við gamla skó. Alt verk vandað og all-
ar vörur seldar með mjög ganngjörnu
verði. Hann er nú í undirbúningi að
flytja til Mary Hill og biður menn að
veita þvl eftirtekt, að hann verzlar þar
framvegis. Einnig hefir hann umboð að
selja Deering jarðyrkjuverkfsri.
Hvergi í bænum fáið þér
ódýrari giftingahringa, stásshringa
og alt annað sem heyrir til gull- og
silfurstássi.^ úr og klukkur enn hjá
Th. Johnson,
292^ Main St.—Allar viðgerðir fljótt
afgreiddar og til þeirra vandað.
Meðlimir Oddfellow’s stúkunnar
...LOYAL CEYSIR...
halda.....
OOSMCERT
og dans
ALBERT HALL
(Cor. Main & Markot St.)
þriðj ud agsk v eldið
24. þ. mán. . . .
Inng, 25c. Allir velkomnir.
PROGRAM:
1. Miss Blanch Hagel: Comic Solo.
2. Miss L. Valdason: Recitation.
8. Miss Roche: Solo.
4. Mr. Chipman: Instrumental Solo.
5. Misses K, Johnson ogG.Hördal: Duet
6. Mr. Wm. Christianson: Solo..
7. Misses Simonson og Prof. Bergreen:
Special Instrumental Selections.
8. Miss Nora Vigar: Solo,
9. Mr. Stack: Cornet Solo.
10. Mr. T. C. Godard: Coraíc Solo.
11. Miss J. Johnson: Recitation.
12. Miss S. A. Hördal: Solo.
18. Mrs. Stack: Piano Solo.
14. Miss Blanch Hagel: Solo.
15, Mr. S. Anderson: Solo.
Eftir concertinn verður DANS.—Hlut-
taka í honum kostar 25 cent fyrir karl-
inenn en ekkert fyrir kvenfólk.
Haost-treyjur
og
Kjolar
Sem {fauga í augu kven-
fólksins.
Kvenfólks „Tailor-made“ treyjur
og kjólar, sem vif höfum haft á boð-
stólum, hefir algerlega gagntekið
hjarta hverrar einustu kouu, sem hefir
sóð, hvort heldur treyjurnar eða kjól-
ana, og sem eru úr bezta og falleg-
asta efni, að við ekki tölum um snið,
sem er með cýjustu tfzku. Ef þér
viljið fá hugmynd um hvernig nýjasta
saið á að vera, pá heimsækið oss, og
skoðið það sem við höfum að bjóða.
Verð frá U 00 til $18.00.
BarnaReefers $2.50 — 5.00
J. F.
Fumerton
& Co.
GLENBORO, Map.
Armann Bjarnason hefir gufubát
sinn ,,Viking" í förummilli Sel-
kirk og Nýja íslands í sumar og
flytur bæði fólk og vörur. Báturinn
fer frá Selkirk á þriðjudagsmorgna og
kemur sama dag til Gimli og Hnausa,
og svo til Selkirk aftur næsta dag. Ný
gufuvél í bátnum.
Á laugardaginn og mánudaginn
gefum við liverjum þeim sem
kaupir fyrir einn dollar, ,,Set of
Table Mats“—Eitt sett til hvers
kaupanda.
Jfáib
húðmuni
fallega, góða, ódýra hjá okkur. Við
höfum alt af öllu og lítinn tilkostn.
svo við getum selt ódýrt og boðið
yður betri kjör en nokkur annar.
Komið og látið okkur vita hvers
þér þarfnist og svo skulum við tala
um verðið.
Lewls Bros.,
I 80 PRINCESS'ST.
WINNIPEG.
þurflíT þér að fá
Ef svo er ættu* þér aB líta okkur vita )m8 nú
þegar. VIC ver7.1um með byggingastein, ogget-
um látið yður lí hann, nvað mikið ».m er oe
hvar sem er. Byggingamenn sækjaít nú mjög
mikið eftir ruble steini er við höfum, Hana
virðist fwllnægýa þörfinni bezt. Vér seljum
einnig bezta fótstefn og Calgary sandstein með
litlum fyrirvara.
Steintekja i Stonewall, Stony Mountain oe
Tyndall.
JOHIM CUNN,
402 flclntyre Blk., Winnipeg.
Skór og
Stigvjel.
Viljið þér kaupa skófatnað með
lágu verði þá skuliö þér fara I búð-
ins, sem hefur orð á sér fyrir að
selja ódýrt. Vér höfum meiri byrgð-
it en nokkrij aðrir í Oenada.
Ef þér óskið þess, er Thomas,
Gillis, reiðubúinn til að sinna
yður’ spyrjið eftir honum,hann hef-
•ur unnið hjá oss I tíu ár, og félag
vort mun ábyrgjast og styðja það,
sem hann gerir eða mælir fram með.
Vér seljum bæði í stór- og smá-
kaupum.
The Kilgoup Rimer Co„
Cor. Main & James St.
WINNIPEG.
James Lindsay
Cor. Isabel & Pacific Ave.
Býr til og verzlar með
bús lamþa, tllbúið mál,
blikk- og eyr-vöru, gran-
ítvöru, stór o. s. frv.
Blikkþokum og vatns-
rennum sór«tskur gaum-
ur gefinn.
ARINBJORN S. BARDAL
Belur^Jíkkistur og annaat um útfarir
Allur útbúnaður sá bezti.
Enn fremur salur hann ai.‘ íkonar
minnisvarða og legsteina.
Heimili: á horninu á ^'e^eP^lon4
Ross ave. og Nena str, 306.
■■■MBBBBIBBBBBHi MMMBWlMBnBiM—hmhwmmwmmmbbwiíiwb—
r
þrifl,juda>f
Miövikud.
FiiutudaK
Sept.
1 17.18.19
.V.’.W.KiV.VAV
Millinery Sala
Hin mikla Millinery Sala mln, sem Winnipeg
kvenfólkið hefir þráð svo mikið, byrjar nú 17., 18.
og 19. September.
Eg er nýkomin að austan, og get því betur en
áður fullnægt þörfum allra með góðum vörum fyrir
lágt verð.
Og þvi býð eg öllum að koma og sjá mínar ljóm-
andi vörur, sem breitt hefir nú verið úr til sýnis.
Mrs. R. I. JOHNSTONE,
204 Isabel St., cor. Ross Ave.
I
I
Eldur! v Eldur!
RAUDA BÚDIN í ELDI
$10,000 VIRDI AF VORUM SKEMMDAR
AF VATNI.
Verða allar að seljast á stuttnm tíma, með
hvaða verði sem fæst um sýninguna.
Okkar vörur eru FATAEFNI og FATNAÐUR.
Alt á að seljast.
Komið nú þegar,
Þeir sém fyrst koma verða fyrst afgreiddir og geta valið úr.
M. J. Chouinard,
318 Main St.
RAUDA BUDIN.
RJOMI
Bændur, sem hafið kúabú, því losið þér
yður ekki við fyrirhöfnina við smjörgerð og
fáið jafnframt meira smjör úr kúnum með,
því að senda NATIONAL CREAMERY-FÉt
LAGINU rjómann ? Því fáið þér ekki peninga fyrir smjöi'ið í stað þess
að skifta því fyrir vörur i búðum ? Þér bæði græðið og sparið peninga
með því að senda oss rjómann.
Vér höfum gert samninga við öll járnbrautarfélögin um að taka á
móti rjóma. hvar sem er í fylkinu. Vér borgum fiutningin með járn-
brautum. Vér virðum smjörið mánaðarlega og borgum mánaðarlega-
Skrifið oss bréfspjald og fáíð allar upplýsingar.
National Creamery Company,
330 LOGAN AVE., WINNIPEG.
g m8imissimmwmiSiiim>ssmsm^simmwmsmi^mM8smssmaamæs>miis!aaaisaama^M