Lögberg - 20.08.1903, Side 4
4
LÖGBEKG 20. ÁGÚST 1903
gTógberg
th ftmtudag «# THB LÖGBSXO
>aiNTING £ PUBLiSHISQ Co. Qflggilfc, &8
£*». Wiu.uM Avit VVmwii-Ra. MAm.
»ta.ac nro WS íá utofldJ I IffJ Borgigt
ELostök «r. i wurt.
PobBsfted «vary TborwKi/ öf THB LÖGBERG
PRINTING A PUBUSHING Co. tlncorporfttedj,
&Cor. Wnxuu Xm. *«c N'rsx Wnmirea
a. — Sab8CTia?l«» prtcv #tac wr w. ooyftWft
^vssct. Mngl* sc-trww i swtt
WTIT7ÍW »
Paolaoo*
tnowrfvm aifisn.
Johc A, Bloode^
AUGLÝSINaAR r—Sœ4-<ntt^íngtr ( «tt gWftf
j ewni tytfcr %o or8 «0* i þ»:ml dálkaleagdsj. *■
)npm aaa au&itiðimL A rtíerrf •oglýwijgoia i
Wtgrl tírna. a&láuor etiir tuxsmingl
BÚ3TAÖA-8XIFTI kaomroda vgrður •«
rnma gkrlflarga <Of gota »» íy^*«nuidl sfirtaa
■afatmat-
Hl biaflalaa
T>v«* «t» **txfc Oo.,
e C. B«í 12^2.
tiaaiflH mx íirienlPNr. *
JTjpJUteB/ltSÁ &e
f >>cr t2SV *rtv*t*trm
tfa*
^V^CVkvailU il'dlifHfWS 9-' 3PP®&|D' laWtzHt
» hUhi tgiid Dem« /larru »é akðldlaua. {>€K*r /íanp
•einr apv- -E' KaLj^aadL s*«ia «r < vkuld við blaoio.
ivtcr vistíet laui án þett \6 dikynLa heimiliMktfp
or pafc fyrir dórasMJunnm «dida aýmleg
mmuiP f.rrir prettvíjiegunj tilgangi
FiTvtndar/inn 20 Áytiit 1903
Grand Trunk Paciflc
jámbrautin.
Vt'r höfum áður skýrt frá járn-
brautarsamningum á milli Dominion-
stjórnarinnar og Grand Trunk P&ci-
fic lelagsÍDS, sem nú liggja fyrir
þinginu í Ottawa. þá var einnig
frá því skýrt, að járnbraut þessi
ætti aft leggjast alla leið frá bænum
Moncton í New Brunswick til Port
Simpsoa í British Columbia, eða frá
Atlanzhafinu til Kyrrahafsins, og
öll brautin að byggjast í Canada
Ennfremur skýrðum vér frá þvf, að
járnbraut þessi kostaði ekki landið
nema um þrettán miljón dollara og
beDtum 4 hvað lítið það væri í sam-
anburði við hátt á annað hundrað
'miljónir dollara, sem aftarhalds
stjórnin í Ottawa lagði á landið fyr
ir bygging Can, Pac. járnbrautar-
innar með samningnum 1881. Ot í
mál þetta höfðum vér hugsað oss að
fara ekki frekar að svo stöddu eða
ekki fyr en það verður afgreitt
þingi; en 18. þ. m. stendur ofnrstutt
grein í „fregnsafni" „Heimskringln“
sem reknr oss til að taka til máls á
ný. Grein þessi hljóðar á þessa leið:
„Laurier-stjórnin ætlar að gefa
Grand Trunk Pacific fólaginn meira
en það, sem C. P. R. félagið fókk
þegar það lagði fyr3tu brautina
þvf-rt yfir landið, eða frá hafi til
hafs. Járnbrautarstefna liberala er
20 ar á eftir tírnanum og langt fyr-
ir neðr.n fólkið.“
Hvar skyldi „Heimskringla“
hafa vtfuað frótt þessari? Hún er
að Dtinsta kosti ósönn hvaðan sem
hún er fengin, og vegna þess járn-
brautarmál þetta er til orðið fyrst
og frernst og aöallega vegna Mani-
toba fylkfs og hins mikla norðvest-
urlands og, komist brautin á, ver&-
ur hún bygð þeim hluta landsins
kostnaðarlaust að heita má, þá er
nauðsynlegt að fyrirbyggja það, að
óhlutvandir menn eða blöð egni
menn með missögnum og ósannind-
um upp á móti þvf, sero framtfð
þeirra er lífsnauðsynlegt að fái fram-
gang. Mótspyrnu fær fyrirtæki
þetta. Við öðru er ekki að búast.
En sú mótspyrna kemur frá mönn-
um í aasturfylkjunnm. þeir finna
til þess, að það er Vestur-Canada,
sem mest gott hefir af brautirini og
vilja þvf, að sá hluti landsins beri
mestan hluta kostnaðarins eins og
við bygging C. P. R. brantarinnar
um árið. En samningunum hefir
verið hér vestra tekið mjðg fegius
hendi, jafnvel af andstæðingum
Laurier-stjórnarinnar. Roblin-
stjórnin er málinu mótfallin vegna
sambands hennar við Canadian
Northern félagið og andstæðinga-
flokk Dominion-stjórnarinnar aust-
ur frá. þess vegna er þá lfka
„Heimskringla“ mótfallin samning-
j unum, til þess er hún vaíalaust
j neydd; en þar ineð ætti ekki að
j fylgja> a® bún þýrfti að segja ósatt
jfrá málinu; því það eru ósannindi—
j vísvitandi ósannindi—að Lanrier-
i stjórnin ætli að gefa Grand Trunk
J Pacific félaginu líkt því eins mikið
hvað þá meira en afturhaldsstjórnin
gaf C. P. R. félaginu fyrir bygging
brautar þess. það verður sanuar-
lega fróðlegt að heyra „Kringlu“
færa iök fyrir þessari staðhæfing
sinni.
það er í mesta máta nauðsyn-
legt íyrir meBn að setja sig vel inn
í msl þessi, rifja upp íyrir sér
kostnaðinn við C. P. R. brautina aö
þvi leyti sem hann verður metinn
til poninga og aða sér áreiðanlegra
upplýsinga um kostnaðinn við þessa
nýjn fyrirhuguðu jirnbraut. þá
fer samanburður að verða auðveld-
ur og með samanburði verða stað-
hæíÍDgar eins og „Heimskringlu^-
staðhæfir-gin, sem hér að ofan er til-
færð, sér til skammar. Hér á eftir
setjum vér samanburð lesendum
Lögbergs til leiðbeiningar. Líkur
samanburður hefir birzt áður í
helztu blöðum landsins og enginn
leyft sér að gera þar við neinar at-
bugasemdir.
1 samanburði þessurn er ekki
talið neitt lán eða ábyrgð sem C. P.
R. félagið fékk hjá Dominion-stjórn-
inni, heldur einungis það sem fó-
lagiö fékk að eign og þurfti aldrei
að standa skil á beinlínis eða óbein-
línis. Vert er einnig að göta þess,
að afturhaldsstjórnin samdi við C.
P. R. félagið um 2 550 míluraf járn-
braut, eða frá Callander við North
Bay og vestur til Vancouver í B. C.;
en nú semur Laurier-stjórnin
um 81800 mílur af járubraut—frá
Moncton til Port Simpson—eða 750
inílum meira.
í samanburðinum er ekki held
ur talin tibyrgð sú, sem Laurier-
stjórnin veitir þessari nýju járn-
braut. það er búist við því, að járn-
brautin í heild sinni muni borga sig
langt fram ytír það og svo bætist og
þar við, sem sérstök og tnikilsverð
trygging, að á bak við samningana
stendur hið öfluga Grand Trunk
járnbrautarfélag.
Frá Moncton til Winnipeg er
1,300 mílur. þann hluta brautar
innar byggir stjórnin sjálf og hann
verður framvegis þjóðeign; en í
samningunum skuldbindur járn-
brautarfélagið sig til að borga vexti
af öllum byggingarkostnaðinum
næstu fimtiu ár að undauteknum
fyrstn sjö árunum.
það, sem Laurier-stjórnin geng-
ur inn á að borga Grand Trunk
Pacific félaginu í poningum, er sjö
ára vextir af kostnaðinum við að
leggja járnbraatina gegnum Kletta-
fjöllin; sjö ára vextir af kostnaðin-
um við að leggja brautina frá Mono-
ton til Winnipeg, og sjö ára vextir
af kostnaðinu/n við að brúa St.
Lawrenco-fljótið hjá Quebee. Allar
upphæðir þessar eru samtals $11,-
082,823.
Laurier-stjórnin ábyrgist 75
prct. skuldabréfanna til að mæta
byggingarkostnaðinum frá Winni-
>og vestur að hafi, sem ekki má
vera meiri en $18,000 á míluna frá
Winnipeg til Edmonton og ekki
yflr $30,000 frá E.imonton til
Port Simpson. Áhyrgð sú gildir til
fimtíu ára. En gegn því lofar fé-
agið að hafa vagna og allan annan
útbúnað á brautinni jafn vandað og
fnllkomið eins og á Grand Trunk
brautunum austur frá, og tekur það
stórum fram öllu því, sem sést hefir
þessum hluta Canada og verður
meðal annars til þess, að C. P. R.
iélagið hlýtur að bæta braut s(na og
l’ólksfiatninga eigi það ekki að
verða unidir í samkepninni.
a
Samanburður
j árnbrautarsamningum.
Hvað afturhalds-stjórnin HvaöTrjálslvnda fstjórnin
gaf C. P. R. félaginu &gefur~G.T. P. félaginu||
með samningunum með samningunum
1S81: 1903: "
25,000,000 ekrnr af laadi, byggilegu
aðra hverja sectiou (640 ekrur hver)
á tuttugu og fjögra mílna svæfi
meðfram brautinni báðumegin alla
loið frá Rauðá og vestur að Kletta-
fjöllum. Fengist ekki þannig nóg
byggilegt land á svæði þessu, þá átti
fólagið heimting á að fá viss svæði í
frjósama beltinu'geymd handa því
til nð fylla ekrutöluna.
825,000,000 í peningum,
Enga einnstn ekrn af landi.
$37,742,816, eða um 700 milur af
járnbraut sem Dominíon-stjórnin
hafði látið byggja og félagina var
gefið. Braut þessi er hér nákvæm-
lega metin til peninga eins og hún
kostaði stjórnina.
Tuttugu ára járnbrautar-einveldi,
þannig að Dominion-þingið lofaði að
banna járnbrautarlagning á milli
aðalbrautar félagsins og Bandaríkja-
landamæranna fyr3tu tuttugu starfs
ár þess. Fyrir ötula framgöngu Mr.
Greenway varð Dominion-stjórnin
að kaupa sig undan loforði þessu
fyrir 815,000,000.
$11,032,323 þannig: Sjö ára vextir
af byggingarkostnaði 4 480 rnílum
gegn um fjöllin ($2,354,575); sjö ára
vextir af byggingarkostnaði á 1,875
mílum frá Moncton til Winnipeg
($8,853.502); sjö ára vextir af kostn-
aðinuin við að brúa St. Lawrence-
fljótið hjá Quebec (£324,246).
Enga milu af járnbrautum.
Ekkert minsta loforð eða ákvæði
um járnbrautareinveldi.
Stjórnailand undir járnbrautina, Stjórnarland undir jérnbrautina,
vagnstöðvar, verkstæði o. s. frv. vagnstöðvar, verkstæði o. s. frv.
Loyfi til að flytja inn tollfrítt alt
efni og vörur til braut irinnar.
Ekkert slíkt leyfi,
Undanþágu frá sköttum. Hvorki
Dominion-stjómin, né fylkin, nó
nein fylki, sem hér eftir myndast í
Canada, mega nokkurn tíma leggja
skatt á vagnstöðvalóðir félagsins,
verkstæði þess, byggingar, vagna-
kvíar, vagna eða neinn útbúnað eða
áhöld sem útheimtist til bygginga
eða notkunar járnbrantanna, né á
hlutabréf þess. Og öll lönd félag3-
ins skulu undanþegin frá skatt-
gjaldi í tuttugu ár frá því Domin-
iou-stjórnin afhendir þau félaginu
Alls enga undanþagu frá skatt-
gjaldi.
UndaDþágu frá öllum stjórnar- Stjórnarumráð
umráðum ytír flutningsgjaidi þang- gjaldi.
að til gróðinn er orðinn 10 pr«t. á
ári af byggingar koetnaði brautar-
inuar, sem með fyrirkomulagi fé-
lagsins seint mun verða.
yfir flutnÍDgs-
Algerð
innar.
eign og umráð brautar-
Stjórnin leigir G. T. P. félaginu
austurhluta braatarinnar, en éskilur
að Intercolonial brautin megi nota
bana með sömu kjöram, og enn
fremur aö önnur járnbrautarfélög
eigi kost á að láta vagna ganga eft-
ir henni með samkomulagi við G. T.
P.; komist ekki samkomulag á milli
G. T. P. og annarra félaga, er braut-
ina viija nota, þá skal Dominion-
stjórnin skera fir ágreiningnum.
þe8s má geta hér, að samkvæmt C. P. R. félagsins eigin áætlun hefir
bygging brautar þess með vögnum ogöðrum útbúnaði kostað $91,000,000.
það, sem hér er talið að ofan og fólaginu var getið til fulls og alls, er, með
því að meta landið á $2 ekruna, sem sízt er of hátt metið, $112,742,816
Hafa því félagsmenn eigi^ast alla C. P. R. brautina fyrir alls ekki neitt
og nærri $22,000,000 fyrif að þiggja hana að gjöf.
Eins og er tekið fram á öðrum stað í blaöinu, er hér ekki talið
fé það, sem stjórnin hefir lánað fólaginu, né $15,000,000, sem það fékk
fyrir að gefa eftir loforöið um járnbrautareinveldið. Væri alt þetta tal-
ið, þá hlypi öll hjálp frá Dominion-stjórninni til C. P. R. félagsins upp á
eitt hundrað sjötíu og þrjár miljónir og nokkuð betnr, án þess þó só reynt
að meta skatta þá til peninga, sem féiagiö sleppur frá að borga og mundi
nema stórfé árlega.
Og svo er „Heimskringla" nógu óvönduð í sér til að slengja út þeirn
tilhæfolausu ósannindum, að Laurier-stjórnin gefi G. T. P. fólaginu meira
fyrir jTeesa nýju járnbraut en afturhaldsstjórnin gamla gaf am árið fyrir
bygging G, P. R, brautarinnar.
Kosningaloforðin í
Gimli-kjördæminu.
Fyrir nokkuru gat Lögberg
þess, að orð léki á því, að í kosninga-
baráttunni síðusta hefði þingmanns-
efni Roblin stjórnarimiar í Gimli-
kjördæminu lofað kjósendum ýms-
um nmbótum á vegum o. s. frv. ef
hann næði kosningu. Og svo end-
aði Lögberg þau orð s n á þessa leið:
„Lögberg vill af öllum kröftum
styðja að því að Gimli-þingmaður-
inn efni sem ailra flest kosmugalof-
orð s n, og í því efni getur blaðið á-
orkað talsverðu ef það fær að vita í
hverju loforðin eru fólgin.
Vór förum því fram a það, að allir
í Gimii-kjördæminu sem einhver
loforð hafa fengið um opinberan
styrk til vegabóta, brúagerðar, fram-
ræslu o. s. frv. lati ritstjóra Lögberg3
vita um það með bréfi, nöfnum ailra
slíkra manna skal haldið leyndum,
sé þess beiðst, og brétín ekki birt
fremur en mann vilja. Að eins
verða upplýsingar þessar notaðar
til þess að herða á þingmanninum
með efndirnar."
Við þessa aíferð Lögbergs er
vissulega ekkert vítavert. Loforð
þÍDgmannsefna Roblin stjórnarinnar
í öðrum kjördæmum fylkisins hafa
verið birt í blöðunum í því;[skyni
auðvitað aö hjálpa til þess, að síðar
verði komist hjá að efna þau. Hvers
vegna þá ekki að viðhafa sömu að-
ferðina með loforðin í Gimli-kjör-
dæminu?
það lítur meira að segja út fyrir
að þörtin á birting kosningaloforð-
anna í Gimli-kjördæmínu só heldur
meiri en minni en á samskonar iof-
orðum annars staðar, því að blað
þingmannsins vill auðsjáanlega ekki
að þeim verði hampað framan í al-
menning, sem naumast getur þýtt
annað en það, aö einhrer þeirra á
að svíkja. BlaBið gengur jafnvel
svo langt að reyna að innprenta
mönnum, að þeir, sem opinbera lof-
orðin, fari með pólitískar slúður-
sögur, og hetir það þannig glappast
fram úr penna ritstjórans—þó óvart
kunni að hafa orðið—að kosninga-
loforð þingmannsins í Gimli-lrjör-
dæminu eigi nú að skoða3t sem
slúður og markleysa.
Honum ber að vita.
Hios má geta, hvort sem
„Heimskringlu" fellur það betur eða
ver, að Gimli-menn líta á mál þessi
eins og menn í öðrum kjördæmum
gera; og sumir þeirra, sem ioforð
fengu fyrir kosningarnar um styrk
af opinbern fé til vegabóta, fram-
ræslu o. s. frv., hafa nfi þegar látið
Lögberg um það vita með línu, og
vér búumst við fleiri bréfnm þess
efnis
Helztu kjarnyrðin í ajálfs-
lýsing B. Lj. Baldwinsonar.
„Gimli-kjördæmi á þess vegna
því láni að fagna að hafa (mig) B.
L. Baldwinson i önnur fjögur ár
fyrir þingmann sinn.“
. „það er ekki of mikið sagt að
segja það, að þegar (eg) B. L. Bald-
winson Tarð þingmaður Gimli-kjör-
dæmis, þá rann því og íbúum þes3
fyrst upp framfara og menningar-
sólin, og mun hún æ hækka á lofti
meðan ( eg) hann er þingmaður þess
kjördæmis, som (eg) hann á skilið
að vera eins lengi og (eg) hann
vii(l) eða get(ur).“
„Og íslendingar í heild sinni hór
í landi mega vera stóram upp með
sór af að eiga annan eins mann og
(eg) B. L. Baldwinson er.“
C. P. R. löndin.
Að sögn er nú svo komið, að C.
P. R. félagiB hefir valið ait land það,
sem því ber eftir samningunum frá
1881. Samkvæmt samningunum
var vissum hluta lands haldið, sem
hvorki fékst keypt né sem heimilis-