Lögberg - 11.02.1904, Blaðsíða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN u. FEBRUAR 1904.
Hreinlæti-
Eftir Dr. M. Halldórsson, ParkRiver,
Mörgum kann aö þykja, aö þaö
sje aö bera í bakkafullan lækinn
aö fara enn að rita um hreinlæti,
því að landar standi í raun rjettri
skör hærra en aörar þjóöir hjer í
landi í þessu efni. Þaö má vel
svo vera og eigi ætla jeg mjer aö
elta ólar um þaö; enda vil eg eigi
bera blak á íslendinga fremur í
þessu en ööru. En aldrei er góð
vísa of opt kveðin; og jeg hygg
aö vjer íslendingar gætum tekið
oss fram enn betur í þessu atriöi,
og því heldur ættum vjer, aö
gjöra þaö, sem sannreynt er, að
margir kvillar og sjúkdómar ein-
mitt stafa af óhreinlæti og skorti
á góöum aðbúnaði. Veit jeg vel,
aö hægra er aö kenna heilræöin
en halda þau; en vilji menn koma
einhverju í framkvæmd, verða
menn fyrst kostgæfilega og tíöu-
Iega aö hugsa um málefniö, síöan
tala um þaö aptur og aptur, svo
aö segja í tíma og ótíma, og loks
f verki sýna mönnum, aö þaö sje
engi ógjörningur aö koma því í
framkvæmd, og eigi sízt þar sem
málið varöar almenning. Aðvísu
er nærri því í engu máli ein skipt-
ar skoðanir manna, eins og þegar
um hreinlæti er aö ræöa; sumum
viröist þaö mesta óhreinlæti, sem
öörum þykir ei. Þaö var alsifa
á mínum duggarabandsárum
heima á Fróni til sveita, að þeg-
ar fólk á sunnudögum kom til
kirkju, var því veittkaffi; hef jeg
sjeö gamlar, ófrýnilegar kerlingar
optar en einusinni, illa til fara.
Iíttþvegnar, vera f óöa önn að
bryöja kandíssykur í mola meö
tönnunum, áður en kaffið varbor-
iö kirkjugestunum. Allir þekkja
söguna af kerlingu, sem einu sinni
átti að bera kaffi biskupi; það
hafði veriö gat á kaffipokanum,
svo kaffikorgur haföi hellzt í boll-
ann og sá hún þaö eigi fyrr c n hún
var inn komin.þarsem gesturbeiö
kaffisins; henni varö eigi mikið
um.heldur tók óhreint skyrtulafiö
og síaði kaffiö um! Jeg kom einu-
sinni meö presti aö Bjarnarhöfn í
Helgafellssveit. Hafði verið
rigning um daginn og haföi mynd-
ast forarpollur í baðstofugangin-
um svo lítt var fært þurrum fót-
um. Bóndinn, sem var mesti at-
orkumaður, vildi bæta úr þessu
og tók sauðarkrof, nýslátrað, sem
hjekk á þilinu, og lagði í forar-
pollinn, svo viö gætum stígiö yfir
hann! Ekki kom bónda til hug-
ar, aö við mundum taka til þessa
og s.'zt, að viö mundum kalJa
þetta sóöaskap! í annað sinn
kom jeg á bóndabæ og sá hús-
freyju hainast viö aö hreinsa áln-
arstóran blett á baöstofugólfinu.
síöan bar hún inn trog með niöur-
brytjuöu kjöti og tók aö saxa það
á blettinum, sem nýþveginn var.
Maður, sem var þar fyrir, tók til
þess við mig, hvað konan væri
hreinlát. I enn ööru sinni kom
jeg á bóndabýli í Danmörku og
var mjer gefin mjólk aö drekka,
en meðan eg var að drekka, kom
gríshvolpur inn og ólmaðis svo
kringum mig, aö mjólkin skvett-
ist úr ílátinu . Konan ljet sjer
ekki bilt viö verða, heldur sagöi
ofur rólega: „Veriðeigi hræddir,
aumingja grísinn lætur svona, af
því, aö hann þekkir, að þaö er
dallurinn hans, sem þjer drekkiö
úr. “ Jeg gekk út og spúði. Þetta
og annað eins er eigi eins dæmi,
en sýnir, hvað misskiptar skoðan-
ir manna um hreinlæti eru.
Þegar um hreinlæti er að tala,
er eigi nóg, að við sjálfir og börn-
ia sjeum hrein og hreinlega til
fara, heldur og aö matarhæfi vort
og allur aöbúnaður sje hreinlegt,
húsiö hreint og fágaö, umhverfis
húsið þrifalegt, fjósiö, skepnurn-
ar og annars allt, se.n vjer höfum
undir höndum og förum með eða
önnumst, sje hreint. það er satt
að þaö lendir optast á konuna að
sjá um, að allt innan húss sje
þrífalegt og þokkalegt, en opt er
hún svo önnum kaön, aö þaö get-
ur aldrei lánast vel nema bóndinn
styðji hana og styrki í þessu efni
sem ööru. Skítsæll, tóbakstiggj-
andi og spýtandi maður ætti þó
aö taka dálítiö tillit til konunnar
sinnar, sem er að reyna til að
þrífa heimili hans og halda því
hreinu. Satt er það, að illt er
aö koma í veg fyrir, aö tóbaks-
maður eigi hræki opt og tiðum,
en hann ætti ávallt, þcgar hann
er f húsum inni, að sjá svo um,
aö hann hrækti f hrákadall, sem
aldrei getur kostaö offjár. Hráka-
klessur á gólfi, auk þess sem þær
eru sóöalegar á að horfa, haíaopt
í sjer ýmislegsóttkveikjuefni, sem
geta orðiö hættuleg heilsu manna,
og engi veit nema þau sje að
finna í nærri hverjum hrákabletti.
Þegar hrákinn þornar, blandast
hann opt ryki, og getur meö því
borizt langar leiöir og, ef sótt-
gerflar finnast í hrákanum, stofn-
aö lífi margra í háska. Sjúkling-
ar ættu æfinlega að nota hráka-
dall; en vandlega veröui að j.æta
þess, að hreinsa hann iðulega og
vel, einkum ef veik n, sem gcng
ur að þeim, er smittandi. Þ. gar
menn þurfa aö snýta sjer, ættu
menn aldrei aö gjöra það f fingur
sjer eða þurka horiö á ermar sjer,
heldur ætíö hafa vasaklút til þess.
Áður fyrr var sá siöur aö bat a
líkama sinn, miklu almennari en
nú, og fór þessi böðunfram íbaf-
stofunum, sem enn draga nafnsitt
af því. í Eyrbyggju er sagt frá
því, aö þegar Styrr haföi látið
berserkina ryðja götu yfir hraunið
út til Bjarnarhafnar og leggja
hagagarð yfir hrauniö, bað hann
þá fara í bað og hvíla sig. og er
þeir komu í baðiö, ljet Styrr byrgja
baðstofuna og bera grjót á hlemrn
inn er var yfir foistofunni, Ijet
síðan breiöa nautshúö hráblau:a
hjá uppganginum; síöan Jjet hann
gefa utan baðiö í glugga, er yl r
var ofninum; varð þá baðið svo
heitt að berserkir þoldu eigi í
baðinu og hljópu á hurðina, en
Ijellu á húöinui og vc itti Styrr
þeim banasár. Víöa í sögunum
er þannig baöstofu getið, máætla
v.'st, aö baöstofa hafi til forna
veriö svo aö segja á hverju heiin-
ili. Færi vel á, aö þessi siöur
væri tekinn upp á ný, því það er
allsendis ónógt aö baöa hendur
og andlit að eins; allur líkaminn
þarf viö og viö og aö baöast, og
þessu höföu fornmenn veitt eftir-
tekt. Baö eigi að eins hiessir
líkamann og s'yrkir, heldur miklu
fremur varnar frá líkamanum
sjúkdóinum. Það er nú aö vísu
eigi aö búast viö þvf, aö sá maö-
ur, sem þarf að ganga íalla vinnu
alla daga, moka fjós, hiröa gripi
o. s. frv., geti allt af gengiö
hreinn til fara, og eigi við ööru
aö búast. en að siíkum manni,
þegar hann kemur frá vinnu,
fylgi miður þægileg lykt. En
þegar hann setzt undir borö til aö
snæða, ætti hann þó að minnsta
kosti æfinlega aö þvo hendur sín-
ar og andlit úr sápuvatni; og þeg-
ar hann hefur lokið starfi sínu aö
kvöJdi dags, að þvo sjer enn og
fara í hrein föt. Og þegar vikan
væri liðin, hvað væri þá að því
að taka bað og láta alit heimilis-
fólkið gjöra eins? Ef menn vend-
ust á það, þá mundu menn fyrir
engan mun, vilja veröa af baðinu.
Og hversu marga sjúkleika oghve
mikla sorg og sút mundi þá eigi
heimiliö veröa laust viö!
En eitt veröur öðru að fylgja.
Fötin, sem menn eru í, veröa aö
vera hrein og þokkaleg; nærfótin,
sem menn fara í eptir baðiö, veröa
að vera nýþvegin, og ytrihafnar-
fötin viöruö og strokin. Til fata
má einnig telja rúmfötin og
rekkjuklæðin. Þau ættu að vera
borin út undir bert lopt og viöruð
aö minnsta kosti einusinni á viku
hverri. Vel færi á aö láta þau
hanga á streng, svoað vindur og
sól næöi til þeirra, síðan dusta
þau vel, áður en þau væru inn-
borin.
Þá kemur meöferð matarins.
Þá er fyrst að nefna mjólkina, því
það er næsta vandfariö með hana
af því aö hún er mjög móttækileg
fyrir óhreinindi Og ýms efni, er
mega spilla gæöum hennar. Kýr-
júgrið verður að vera hreint, og
hendur þess, sem mjólkar, verður
aö vera tárhreinar, og um fram
allt má aldrei hrækja í fingur sjer
til þess að Ijettaundir mjöltunum;
þetta er sóðaskapur. Skilvindur
eru nú almennt notaöar, og fer
vel á því ef þær eru reglulega
þvegnar og vandlega í hvert skipti
og þær hafa verið notaðar. Það
Sim eptir veröur í kúlunni má alls
eigi nota og sízt láta saman viö
aðra mjólk, þar eð í því geta ver-
iö margskonar sóttgerflar, sem
gela veriö mjög hættulegir heilsu
manna og dýra, Ef menn vilja
láta mjólkina setjast, veröur aö
hafa hana í húsi sjer, þar sem
ekki er súgur nje sól; samt má
vera bjart á henni. Við tilbún-
ng á smjöri og osti veröa menn
að viðhafa margar varúöarreglur
oæöi viövíkjandi hita og fl., en
vanti hreinlætiö, þá vantar jfiö,
setn mest er í varið. Kýrnar láta
.jss í tje mjólk, sem optast er ó-
skemmd, en vjer spillum henni
opt í meðferðinni. Þegar menn
fara meö smjör eöa ost, þá er
eigi einungis, að hendur verða að
vera hreinar, heldur má eigi vera
neinn skítur undir nöglunum, sem
ætíö verður að skera vel áöur en
til strokkunar er tekið, menn
vjrða aö binda hvítum og tár-
hreinum klút um háriö, fara í
h eina treyju og binda um sig
h.eina svuntu; brjóta vel ermarn-
ar uppog þá ersjálfsagt að arm-
eggirnir þurfi aö vera tárhreinir.
Sjálísagt er aö fara með mjólk,
s njör og osta ísjerstöku herbergi,
s in til þess er ætlað og svo út-
b íð, að hægt sje að hreinsa það
vel. Ef menn þurfa að vera með
þitta í eldhúsinu og ef gólfið hef-
ur eigi veriö ný þvegið, verður
aö skvetta á það hreinu vatni,
svjdustið rjúki eigi í mjólkina
eða smjörið.
Þeir, sem slátra, ættu áöur að^
þvo hendur sínar vel, og hafa á-
vallt vatn í íláti við hendina með- \
an á verkinu stendur. Hafa hvít-,
an kufl og brjóta vel upp er’narn-j
ar; aö minnsla kosti verða menn
aö hafa hvíta svuntu framan á
sjer. Þegar slátruninni er lokið, |
æitu menn þegar í staö aö taka
allt slengi og láta það á sinn stað,
og þvo af allt blóö vel. Allir þeir
bollar og ker, sem notuð eru til
matar og drykkjar, mega aldrei
notast til neins annars. Þau ílát
sem höfð eru til þvottar, má eigi
nota undir mat. Eigi er nóg að
fága kaffiketilinn að utan, sem
þó er sjalduast gjört, heldurverð-
ur líka aö hreinsa hann innan.
Hjá öllum þjóÖum, nemahjáokk-
ur íslendingum, er kaffiketillinn
fægður á degi hverjum, og hús-
freyjurnar álíta það heiður að
hafa hann skínandi fægðan, svo
að megi spegla sig í honum. Jeg
hef aldrei sjeö þetta hjá okkar
þjóö. Einusinni í viku ætti aö
láta kaffibolla af viðarösku í ket-
ilinn, fylla hann síöan vatni og
láta þetta sjóöa saman, og síðan
er hann skolaöur aö innan, því
að annars setzt svartur sori innan
í hann og þá kemur óbragð af
kaffinu. Hjer í landi, þar sem
altt vatn er ,,hart“, þarf nauð-
synlega aö taka upp þenna sið.
Konurnar okkar hafa orö fyrir að
búa til bezta kaffiö, en þær gætu
gjört það bragðbetra með lítilli
fyrirhöfn.—Alla potta og kirnur
verður aö þvo vandlega þegar í
stað eftir að þau hafa verið notuð,
úr köldu hreinu vatni, svo þau
sjeu til taks þegar nota þarf þau
aftur. Helzt ætti að þvo öll glös,
bolla og diska tvisvar úr heitu
vatni og láta lítið eitt af matar-
sóda í vatnið. Bezt er aö hafa
vatniö eins heitt og fært er. Meö
þessu móti næzt öll fita vel af
glervöru allri. Það er auðvelt
aö þvo hnífa, en verra er aö þvo
forka, svo þeir veröa vel hreinir;
til þess þurfa menn að hafa bursta
því ella er illt að ná úr greipum
forkanna matarleifum og fitu.
Aldrei má láta hnífa í vatn, því
þá skemmast sköptin. Allar
þvögur á að þvo og vinda
vandlega upp úr heitu vatni og
hengja upp til þerris. Borðin
eiga menn aö þvo ©pt og ítarlega
sömuleiðis hillur, skápa, bekki og
stóla og gólfið eins opt og hægt
er. Jeg er alveg ósamdóma Lög-
bergi, þegar þaö um daginn var,
aö fræöa konurnar um, að óþarfi
væri á vetrum aö þvo gólfin.
Maddömu Subbu þótti vænt um
ráðiö; en jeg vil segja henni, aö
frá heilsufræðislegu sjónarmiði er
slíkt óráð mesta. Helzt ætti,
bæöi vetur og sumar aö þvo gólf
tvisvar í viku eða jafnvel á hverj-
um degi. Gleymiö eigi aö draga
borð, bekki og rúm opt fram á
gólf, svo hægt sje aö hreinsa und-
ir þeim. Húsveggi ætti aö þvo
vor og haust og fyrir jólin. Þaö
er góður siöur, sem farinn er að
tíðkast með löndum hjer íDakota-
byggðum, að leggja veggi í svefn-
stofum og íverustofunni olíudúk;
bæði er þetta hlýtt og gjörir þaö
ljett fyrir konuna að halda veggj-
unum hreinum.— Auðvelt er aö
halda gluggum vel fáguðum og
hreinum meö sápuvatni eða aö
eins meö því að núa þeim með
brjefi. Verja má rúðunum frosti
með því aö bera á þær viö og viö
meö blöndu úr alkoholi oggiycer-
in í. Allt kringum húsiö ætti að
vera hreint og þrifalegt og engum
ætti aö iíöast aö kasta óþverra
nálægt húsuin. Heima var það
alsiöa, aö hafa forina rjett í hlaö-
varpanum; þetta er eigi að vísu
gjört hjer, en sorphaugurinn er
þó hafður víðast hvar allt of nærri
húsum og iöulega er skólpi kast-
að rjett út fyrir eldhúsdyr. Slíkt
er óhæfa og sóðaskapur, skaðvænt
og hættulegt. Ættu menn að
hætta þessu sem fyrst.
Margt mætti fleira segja við-
víkjandi hreinlæti, en hjer skal
nú staðar numið að sinni. Ó-
hreinlæti hefur ávallt átt sjer stað
hingað og þangaö og ber meira
og minna á því hjá öllum þjóö-
flokkum hjer í landi. Sagt er aö
meö Frökkum hjer í landi sje
hreinlætiö á lægsta stígi, en iðju-
samir eru þeir og búhöldar góðir.
Hollenzkir nýlendumenn og þýzk-
ir munu aö jafnaði hafa bezt orð
á sjer fyrir þrifnað. — Þaö er eigi
að dylja, að viö íslendingar höf-
um hjer í landi ekki sjerlegt orð á
okkur í þessu efni; viö ættum að
reyna til aö bæta úr þessu, og
ættum eigi aö kippa okkur upp
við þó vandlætt sje viö okkur.
Islenzkur uppgjafapresturað heim-
an var einusmni nætursakir á bæ
hjá kanadískri konu, sem hafði
orö á sér fyrir hreinlæti; um morg-
uninn fór hún hægum oröum um,
aö hún hefði fundið lýseptir hann
í mjallahvítu rúminu, sem hann
haföi sofiö í. Hann styggðist
fjarskalega yfir þeirri hótfyndni
hjer í landi, aö taka til þess, þó
það fyndist lús á inanni! Hann
skildi þaö eigi, aö sóðaskapur
hans var kjaptshögg í andlit kon-
unnar fyrir gestrisnina.
L)r. O. BJORNSON,
650 Wllliam Ave.
Of’FiCB-TÍMAR: kl. 1.80 til 8 og7 til 8 e.h
Tki.rfí>n: 8í>.
NYOPNUD
YÍNSÖLUBÚD
í
SELKIRK
Heildsala Smásala
Nægar birgðir af vínum, liquors, öli, bjór
og öörum víntegundum. Vér seljum að eins
óblandaðar
yíntegundir
Þegar þér komið til Selkirk þá heimsækiö
okkur. Beint á móti
Bullocks Store, Eveíyn Ave..
SELKIRK, MAN.
ERUÐ ÞER AÐ BYGGJA?
EDDY’S ögegnkvæmi byggingapappir er sA brzti. Hann
cr mikið sterkari o« hvkkari en nokkur nnnar (tjðru eða
byvgingftj pappír. Vinctur fer ekki i gegn um hann heldur
kulda úti Og bita inni. engin ólykt að lionum, dregur ekki
raka í sig, og spillir enj'U scm hann liggur við llnnuer
mikið notaður. ekki eingðngu til að klæðn hús ir nð, heldur
einnig til að fóðra ineð fi ystihús. keelingarhús, nijúlkm hús,
smjðrgerðHrhús og önnnr hú-. þar sem parf j ifnau hita, og
forðast. þarf raka. Skrifið agentum vorum:
TEES & PERSSE, WINNIPEG, eftir sýnishornum,
Tlic E. II. Eddy Co. Lld., II11II.
Tees & Persse, Ajyents, Winnipesr.
LONDON »CANÁDIAN
LOAN - AGENCY CO.
LIMITED.
Peningar naBir gegn veði í ræktuöum bújörðum, með heegilegum
skilmálum,
Ráðsmaður: Yirðingarmafliir :
Ceo. J. Maulson, S. Chrístapfjerson,
198 Lombard St., Grund P O.
WINNTPEG. MANITORA
LaTidtil sðlu f ýmsum pðrtum fylkisins mefl láguverð og góflumkjörur
##*###*######4;*########*#«*
# *
# Viö búum til aö eins- $
*
#
5
#
#
#
#
#
BEZTU TEGUND AF HVEITI.
Okkar „premier hungarian"
tekur öllu ððrn fram.
Biðjið knpmanninn yðar nm það.
Mannfactnred by_
♦ ALEXANDER & LAW BROS., ♦
— Man.
##»######i