Lögberg - 26.05.1904, Blaðsíða 1
$23,00.
kosta góð reiðhjó), single tube. ?24.00. sams-
konar hjól. double töbe. í gluKganum hjá
okkur getið þér séð öil nauðsynleg áhðld til
reiðhjóla; handföng o. s. frv.
AncJerson & Thomas,
638 Main Str. Hardw&re. Telepbcns 339.
m
§ ....................... ' .... .....
Glugginn tullur
af b«sel>all áhöldom, Laeioss sticks o^ holt-
! um, Lawn Teuuis Rucquetsog boltuui, net
: um, Lawn Markers. hengirúmunc, knat:-
trjám hacda drengjum 5c. og þar j íir.
Anderson & Thomas,
638 Main Str. Hardware. Teiaphone 338.
M»rki i rvartnr Ynle-lá*
1
17. AR.
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 26. Maí 1904.
NR. 21.
Fréttir.
Úr öllum áttum.
Francois Marret, franskur
bóndi, fyrir tveimur árum síöan
kominn vestur hingaö frá Frakk-
landi, varö btóöur sínum aö bana
á föstudaginn var. Réðist hann
að honum sofandi og vann á hon-
um meö öxi. Tók hann síöan lík-
iö á bak sér, bar þaö æöilangan
veg og fleygöi því í fljót nokkurt,
í því skyni aö dylja þannig glæp
sinn.
Nefnd manna fór á fund stjórn-
arinnar í Ottavva, á föstudaginn
var, í þeim erindum aö biöja um
aö út yröu gefin bannlög gpgn því,
aö strætisvagnar séu látnir ganga
á sunnudögum. Fékk nefndin
loforö fyrir því aö máliö skyldi
tekiö til athugunar.
'Verzlunarskýrslur Canada, sem
ná yfir síöastliðna tíu mánuöi,
sýna, aö verzlunin nernur þrettán
miljónum dollara meira í ár, en
á sama tímabili áriÖ sem leið.
Tolltekjurnar á sama tímabili eru
þrem miljónum og fimm hundruö
þúsund dollars hærri en á því
tímabili áriö 1903.
Tólf ára gamall drengur í bæn-
um Rosthern, N. W. T., myrti
systur sína í vikunni sem leiö.
Petrel, varöskip stjórnarinnar,
tók upp eitt hundraö og átján net
fyrir fiskiveiöamönnum frá Banda-
ríkjunum, í vikunni sem leiö.
Netin höföu þeir lagt í landhelgi
fyrir ströndum Erievatnsins. Net
©g afli var hvortveggja selt.
Bangs lögmaöurinn í Calgary,
sem áöur hefir verið um getiö aö
væri undir ákæru, fyrir hluttöku í
póstþjófnaöarmálinu, hefir nú
sagt til, eöa skilaö aftur nokkur-
um hluta peninganna. Eru það
milli fimm og sex þásund dollar-
ar, sem þannig hafa komið til
skila.
láta taka af þeim myndir. Bauð
hann stúlkunum þau kostakjör,
aö gefa þeim eina tylft af mynd-
um, og einn dollar í kaupbætir,
ef þær viidu skrifa nafn sitt undir
vottorö, sem hann lagði fram.
Skjal þetta var þess efnis, aö sú,
sem ritaði undir þaö, bar vitni
um, aö maöur þessi heföi læknað
sig af einhverjum sjúkdómi, er í
skjalinu var nefndur, meö meöáli,
er hann haföi á boðstólum. í
skjalinu var honum einnig gefin
heimild til aö nota mynd stúlk-
unnar og hiö undirskrifaöa vott-
orö fyrir auglýsingu, eins lengi og
honum þóknaöist. Fjölda af
vottoröum haföi maöurinn aflaö
sér á þessa leið.
mynni St. Lawrence flóans í vik-
unni sem leið. Sk pi3 var á leiö
frá Montreal og Quebec, til Lon-
don á Englandi, meö mikið af
sláturgripum og öörum vöruflutn-
ingi, sem alt fórst, en menn kom-
ust af.
Óspektir hafa enn orðið á Phi-
lippine-eyjunum. Var ein her-
deild Bandaríkjamanna þar um-
kringd og um tuttugu manna
drepnir.
Sýningu á hestum á að halda í
Calgary N. W. T. seinni part
sumars. Sýningin á aö standa
yfir í þrjá daga, og veröa hestarn-
ir aö því búnu seldir viö uppboö
þar á staönum.
Nýlega týndi enskur vísinda-
maöur pjáturbauk á leiðinni á
milli Chicago til St. Paul, eöa
bauknum var stoliö. I bauk
þessum voru mörg þúsund kóleru-
bacillur, sem maþurinn ætlaði til
vísindalegra rannsókna á Englandi
og Þýzkalandi. Tap þetta er
ekki hættulaust ef finnandi (eöa
þjófurinn) opnar baukinn.
Slys varö af gas-sprengingu í
námu í Illinois á miövikudaginn
var. Margir menn særðust og
fimm biöu bana.
Marconi er að undirbúa^það að
hægt sé aö gefa út dagblað á
Cunardlínuskipinu Campania, sem
flytji farþegjum fréttir, hvar sem
skipiö er statt á -hafinu, af öllu
því merkasta sem til tíöinda ber f
heiminum.
Meö bráöabirgöar dómsúr-
skurði hafa Hogan Bros., eigend-
ur skógarhöggs í Thunder Bay
héraöinu, fengið bann Iagt fyrir,
aö A. Mann láti höggva skóg
þeirra. Á sama hátt hefir og
veriö lagt bann fyrir að Can.
North. járnbrautarfélagiö, og A.
R. Mann, hagnýti sér sjötíu þús-
und járnbrautarbönd meðfram
brautarstæðinu, sem Ixjggvin hafa
verið og fiutt burtu af landi Ho-
gans.
Þjónar á veitingahúsum í St.
Louis nota tækifærið, nú á meöan
á sýningunni stendur, og hóta I
verkfalli nema kaup þeirra sé
hækkaö. Er þaö taliö líklegast, ■'
að kröfum þeirra veröi fullnægt, ■
því annir eru nú svo miklar á.
hótelunum aö eigendur þeirra1
standast ekki viö aö nein hindrun 1
veröi á afgreiöslunni.
Kol og steinolía hafa nýlega.
fundist í ríkulegum mæli í Yukon. I
° !
Kolin eru sögö aö vera annarrar
tegundar, eöa nokkuö frábrugöin
kolum, er hingaö til hafa fundist, i
en bæöi góö og hitamikil. Rann- !
sókn á steinolíufundinum er ekki
enn lokiö, en svo mikiö þykjasl
nienn þó nú vita, aö mikiö sé af
henni þar í jöröu fólgið, og gera
s6r hinar beztu vonir um fram-
tíöarúrangur af olíunámum þar
noröur frá.
Útfiutningur fólks frá Bret-
landseyjunum til Canada fer óö-
um vaxandi. Hina fjóra fyrstu
mánuöi ársins óx tala þeirra um
eitt þúsund, en á sama tímabili
óx útflutningurinn til Ástralíu og
New Zealand ekki neitt. Þang-
að flutti ekki meira en einn sjö-
undi hluti á móts við þaö, sem
hingað kom. Til Suöur-Afríku
fara útflutningarnir frá Bretlandi
þverrandi. Síðan 1. Janúar hafa
fiuzt út alls þrjátíu og sex þúsund
fimm hundruð og sextíu manns
frá Bretlandi, og af þeim er sagt,
að tuttugu og tvö þúsund og sex
hundruö hafi fariö til Canada.
Stríðið.
Síöustu stríösfréttir eru þær
helztar, aö Japansmenn hafamist
tvö af skipum sínum fyrir aögerö-
ir Rússa. Rak annað þeirra sig
á rússneska torpado á rúmsjó Jtíu
mílur undan landi. Hefir sú aö-
ferð Rússa vakið eftirtekt mikla
aö hleypa slíkum drápsvélum á
haf út, þar sem allra þjóða skip-
um jafnt er stofnað í hættu. Fyr-
spurnir hafa veriö sendar stór-
veldunum um þaö, hvort slíkt sé
leyfilegt; og Bandaríkjamenn hafa
þegar gert ráöstafanir til aö(fá
skýrslur um skipskaöa (annarra
þjóöa en Japansmanna), sem
þessar rússnesku morðvélar valda.
Af landhernum fást mjög óljós-
ar fréttir. Nýlega þóttust Rússar
hafa drepiö niöur nálægt Port
Arthur tvær stórfylkingar af ridd-
araliði Japa; en nú er slíkt boriö
til baka. Enn hafa Japansmenn
ekki tekið Port Arthur, en búist
viö, að þess veröi ekki langt að
bíða.
Henry Morton Stanley.
Á Bahamaeyjunum beiö ein af
herdefldum Bandaríkjanna nýlega
ósigur fyrir uppreistarmönnum.
mistu þeir þar fimtíu og fjóra
menn og sextíu og sjö uröu óvígir
af sárum.
Maöur^nokkur vartekinn fastur
í Toronto, í vikunni sem leið. j
Honum var gefiö að sök aö hann !
sæti um að ná f ungar stúlkur þar
á strætunum, og fengi þær meö
sér til ljósmyndara, til þess aö
Heldur en aö láta undan kröf-
um skipstjóra og hafnsögumanna,
á flutningaskipum á stórvötnun-
um, segjast flutningafélögin ætla
sér aö verja fimtán miljónum doll-
ara, til þess aö koma í veg fyrir
aö þeir fái sínu framgengt, hvaö
kauphækkun og aörar kröfur
snertir.
Eitt af fiutningaskipum Allan-
línunnar rakst á sker í þoku fyrir
H. M. Stanley, hinn frægi Af-
ríkufari andaðist þriöjudaginn
hinn 10. Maí síöastliöinn.aö heim-
ili sínu f London á Englandi.
Hann haföi veriö lasinn f nokk-
ura mánuöi, og rúmum hálfum
mánuöi áöur en hann dó, fékk
hannmjög þungt kvef, sem breytt-
ist síöan í brjósthimnubólgu og
dró hún hann til dauöa.
H. M. Stanley er einna frægast-
ur landkönnuður á síöari tímum.
Enginn hefir átt eins mikinn þátt
í því eins og hann, aö lyfta blæj-
unni, sem huldi Suöur-Afríku fyrir
sjónum manna, og enginn hefir
fylt út eins margar og stórar eyö-
ur á landabréfi þeirrar álfu og
hann. Saga hans er líkari æfin-
týri en virkileika, enda má svo
kalla, aö lífsskeiö hans, frá upp-
hafi til enda væri óslitin viöbirrða-
rík hættuför.
Upphaflega hét hann ekki Hen-
ry Stanley, heldur John Rowlands
eöa Rollands, og var hann fædd-
uríDenbigh.í Wales áriö 1841.
Tveggja eöa þriggja ára gamall
misti hann fööur sinn og var þá
sendur á munaöarleysingjahæli til
uppfósturs. Þegar hann var ung-
liiigur aö aldri vaknaöi hjá honum
áköf löngun til þess aö komast
vestur um haf, og kom hann því
í framkvæmd á þá leiö, aö vinna
af sér fargjaldiö meö því aö hjálpa
skip'verjum til á leiöinni yfir hafiö.
í New York komst hann á skrif-
stofu hjá kaupmanni einum er
Stanley hét, og tók hann ástfóstri
við drenginn. Á meðan Johnj
Rowlands var þar tók hann sér
nýtt nafn og kallaði sig Henry j
Morton Stanley. Bar hann þaö J
nafn síöan til dauöadags, enda er
hann undir því nafni einu kunnur
heiminum.
Þegar stríðið hófst milli Suöur-
og Noröurríkjanna geröist Stanley
brátt sjálfboöaliöi í her Sunnan-
manna. En þar átti hann ýmsu (
ógeöfeldu aö mæta og varö sá (
endirinn á, aö hann snérist í liö (
meö Norðanmönnum. Aö end- .
uöu stríöinu geröist hann blaöa- J
maöur. Vakti hann þegar all- ,
mikla eftirtekt og varð innan (
skams umferöa fregnriti fyrir stór-
blaöiö ,,New York Herald“. j
Tók hann þá þátt í hernaði Breta
gegn Abyssiníumönnum,áriði868.
Meö óviöjafnanlegu snaræöi tókst ^
honum þá aö koma vel ritaöri |
frásögu, um þýöingarmikla or-
ustu, er háö var þar, til New
York, degi áöur en nokkur frétt
var komin til London. Þótti ^
þetta svo vel aö veriö aö nafn
Stanleys var nú á allra vörum.
Frá Abyssiníu var Stanley send-
ur til Spánar. Uppreist var þá;
hafin þargegn Isabellu drotningu,
og átti Stanley aö senda fréttir af
þeim viöskiftum. Þá bar þaö viö
er Stanley var staddur í Madrid,
höfuðborg Spánar, árið 1869, að
húsbóndi hans, James Gordon
Bennett, eigandi stórblaösins
,,New York Herald“ kallaöi hann
á sinn fund til Parísarborgar, og
gaf honum hina fáoröu en afar-
þýöingarmiklu skipun: ,,Faröu
til Afríku og findu Livingstone. “
Þessi stuttoröa fyrirskipun varö
undirrótin undir því aö gera
Stanley að heimsfrægum manni.
Og hún haföi einnig önnur þýð-
ingarmikil áhrif, því meö henni
byrjar nýtt tímabil í rannsóknum
á heimsálfu þeirri, er áöur var
heiminum aö miklu leyti ókunn.
Livingstone, hin ágæta skozka
hetja, haföi þá í þrjú ár dvalið
einhverstaöar á meginlandi Afríku.
í full tvö ár af þeim tíma var nú
hinn mentaði heimur búinn aö
bíða eftir fréttum af honum, meö
hinni mestu óþreyju, og árangurs-
laust. Voru menn farnir að álíta
að honum heföi viljaö eitthvert
slys til og aö hann mundi vera
dauöur. •
Þessum manni átti nú Stanley
aö fara aö leita aö, og hann lagöi,
möglunarlaust, á staö í leiðangur-
inn. í Marzmán. 1871 lagöi
hann á staö, með stóra lest klyfj-
aöa ýmsum nauösynjum, inn á
hiö mikla ,,dimma meginland. “
Eftir níu mánaöa ferö, fulla af
hættum og torfærum, kom hann
loks til Ujii viö Tanganikavatniö,
inn í miöri Afríku.
Þar fann hann Livingstone.
Lýsing Stanleys á því er fund-
um þeirra bar saman er mjög á-
takanleg. Livingstone var þá
nýkominn til Ujiji úr langri rann-
sóknarferð, og ekki mátti tæpara
standa fyrir honum, þegar Stanley
mætti honum og lét honum liö-
veizlu sína í té. Þeir voru nú
saman í nokkura mánuöi. Eftir-
lét Stanley honum síöan allar
birgöir sínar, er hann haföi komiö
með og flýtti ferö sinni sem mest |
hann mátti til Zanzibar. Þaðan 1
gat hann símritaö blaöi sínu þá
gleöifrétt að Livingstone væri
fundinn.
Og næsta dag var hann orðinn !
frægur um víöa veröJd.
En Stanley var ekkí þannig
variö aö hann léti hér viö sitja.
Fjórum árum síöan er hann aftur
kominn til Atríku meö miklu
föruneyti. Livingstone var and-
aöur, og nú var þaö ætlunarverk
Stanleys aö binda enda á rann-
sóknir hans á meginlandi Afríku.
Frá Zanzibar hélt hann nú alla
leið til Ujiji og þaöan til Araba-
nýlendunnar Nyangwe, inn í miðri
Afríku. Þar fyrir vestan var
landabréf Afríkn autt og nafna-
laust f þá daga, og hið mikla fljót
Lualaba hvarf þar noröur í landiö
án þess nokkurum væri kunnugt
um hvert þaö færi. Stanley setti
sér þaö nú fyrir nrarkmiö aö rann-
saka þetta fljót, og kom þá í ljósj
aö það og Kongofljótiö var eitt
og hið sama. Stanley haföi þann-
ig leyst úr einni ráögátunni enn í
Afríku. Níu hundruö níutíu og
níu dögum eftir aö hann hóf ferö
sína frá Bagamoyo, beint á móti
Zanzibar á austurströnd Afrfku,
kom hann til Emboma, viö
mynnið á Kongofljótinu á vestur-
strönd Aíríku. Var hann hinn
fyrsti hvíti maður er fór yfir hiö
,,dimma meginland“, frá hafi til
hafs. Þegar hann kom þangaö
var hann oröinn dökkbrúnn á
hörundslit af sólbruna, og hvítur
fyrir hærum.
Á árunum 1887-89 fór Stanley
enn á ný til Afríku, og enn var
þaö erindiö aö leita aö manni,
sem ekkert haföi frézt til í mörg
ár og allir voru orðnir hræddir
um. Þessi maöur var Emin
Pascha. Aö vísu tókst Stanley
aö flnna Einin Pascha og hafa
hann með sér til Zanzibar, en
haldiö hefir því veriö fram að
Stanley hafi, svo að segja, þving-
að hann til þess aö veröa sér
samferða þangaö.
Þetta varö síöasta ferö Stanlejfs
til Afríku. Síðan var hann til
dauðadags í London. Fyrir
nokkurum árum síðan bauö hann
sig fram til þingmensku og náði
kosningu, en ekki afrekaöi hann
neitt á þingi, sem orð var á ger-
andi.
Um hinar mörgu feröir sínar
hefir Stanley ritaö fróölegar og
skemtilegar bækur. Hafa þær
veriö þýddar á f jölda mörg tungu-
mál, og kykir hvervetna mikiö til
þeirra koma.
Stanley var hinn mesti.afburða-
maður til sálar og líkama, eins og
saga hans ber ljósastan vott um,
og ekki væri þaö heiglum hent aö
ætla sér aö feta í fótspor hans.
Úr bænum.
og grendinni.
Þorbergur Féldsted hefir tekið
aö sér gæzlu vitans hjá Gull Har-
bor á Mikley í staö Ágústs Magn-
ússonar. sem nú er fiuttur vestur
í Shoal Lake-bygöiua.
Alec. Haggart lögmaöur var
kosinn bæjarfulltrúi í annarrikjör-
deild síöastliöinn þriöjudag í stað
John Russells sáluga.
Síðastliöinn föstudag lögðu all-
margir íslendingar á staö héöan
úr bænum vestur til Foam Lake,
Assa., og ætla aö setjast þar að á
löndum sínum. Á meöal land-
takenda þessara voru: Páll F.
Magnússon meö fjölskyldu sína,
Lúövíg Laxdal meö fjölskyldu
sfna, Nikulás Johnson, Jóhann
Jónsson, Stefán E. Guöjohnsen.
Laugardaginn 21. þ. m. lézt úr
lungnatæringu, vestur á Kyrra-
hafsströnd, eftir margra áia heilsu-
leysi Haraldur Sigurösson prent-
ari, sem lengi vann í prentsmiðju
Lögbergs. Hann lætur eftir sig
ekkju, Sigríöi dóttur þeirra hjóna
Þorvaröar Sveinsson og konu
hans.
Undanfarna viku hefir tíðin
verið einkar hagstæö fyrir allan
gróöur, talsveröar rigningar fyrir
og um síðustu helgi og kuldaveö-
ur þaö sem af er vikunnar.
R. La Touche Tupper sem lengi
var umsjónarmaöur við hvítfisk-
klakið í Selkirk og margir fslend-
ingar kannast viö, lézt á Almerna
sjúkrahúsinu hér á laugardaginn
var. Hann var 59 ára gamall.
Utanáskrift þeirra LúövfgsLax-
dals og Páls F. Magnússonar ve'rö-
ur framvegis: Foam Lake, Assa.,
N.W.T.
Mrs.G.Thorkelsson. Oak Point,
haföi áöur ætlaö sér aö hætta
verzlun, en hefir nú fastráöið aö
halda áfram. Fyrst um sinn veröa
allar vörur seldar með 10 prct. af-
slætti gegn peningaborgun út í
hönd.
Skemtisamkomu
heldur stúkan ,,Tilraun No. 5. I. O. G.
T.“, íimtudaginn 2. Júníl904 á Biú-
Hall.
PRÓGRAM.
1. Ræða: — séraFriðrik Hallgrímsson
2. Solo: —Jón Friðfinnsson.
3. Organ Solo: — Pétur Johnson
4. Kecitation: — Miss S. Frederickson
5 Vioiln Solo: — Kristjin Hjálmarss.
6. Solo: — Sveinbjörn Hjaltalín.
7. Ræða: —Kristján Jónsson.
8. Duet: — Miss Guðný Arason,
Gmtna Sveinsson.
9. Solo: — Mrs. Lilja Peterson.
10. Phonograph Music.
11. Solo: —Sveinbjðrn Hjaltalín.
12 Recitation: — Kjartan ísfeld.
13 Violin Solo: — Kristján Hjálmarss.
14. Sjónleikur (Frá einni plágu til ann-
arrar) í fjóium þáttum. Phonograph
music á milli þátta. Svaladrykkir til
sðlu & staðuum. Byrjar kl. 8 e. h Ad-
gangur 25 cents.
Forstödusefndin.
Tveir piltar geta fengiö hús-
næöi og fæöi að 646 Agnes st.