Lögberg - 28.09.1905, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. SEPTEMBER 1905
5
unin, baráttan fyrir því að kom-
ast að takmarkinu, er þaö þ'vngd-
arlögmál, sem ríöur baggamun-
inn.
* * *
Fað er enginn efi á því, að hver.
sem getui sér þann orðstír að
haun !ey.-i verk sitt vel af hendi á
víst að komasi vel áfram. Það
vekur traust á manninum og er
vottur um ráðyendni, því hitt er
óráðvendni að leysa illa af hendi
þau verk, sem manni er trúað
fvrir og getur oft leitt af sér hið
mesta tjón. Hugsum oss hversu
margir tugir þúsunda af mönnum
hafa orðið ósjálfbjarga, fatlaðir
aumingjar alla æfi, þvað margir
hafa hnígið á banabeðinn fyrir ör-
lög frain sökum hirðuleysis eins
einstaks manns, sökum þess ein-
ungis, að einhver einstaklingur-
inn ekki leysti verk það ráðvand-
lega af hendi, sem honum var trú-
að fyrir. Hvað margir tugir
þúsunda af peningum fara ekki á
ári hverju að forgörðum sökum
ósegjanlegs hirðuleysis - flónsku
og kæruleysis þeirra er með eiga
að fara?
Er þér, sem kvartar yfir kjörum
þínum, það fullkomlega ljóst,,
hvað leggja verður í sölurnar
til þes að verða aðnjótandi að
nokkuru sem heitir af -gæðum
þessa heims? Hvað mikið liefir
þú lagt á þig til þess? Hefir þú
nokkum tíma beitt skallanum í
veðrið, bitið á jaxlinn, kreft hnef-
ana &vo hvítnaði fyrir hnúumum
og verið ósveigjanlega einbeittur
í því „aldrei að víkja“, hvaða
torfærur sem yrðu á leið þinni,
aldrei að horfa til hægri né
vinistri, en keppa beina leið að
takmarkinu ? Ef ekki, þá hefir þú
engan rétt til að kvarta vfir hvað
lítið þér hafi orðið ágengt.
I>að er framgjarni maðurinn,
sá sem er ákveðihn’, kjark'mikill
og þrautseigur sem öðlast hnoss-
ið, er hinn, sem var hikandi veill
og hálfur, ætlað sér að ná. Gæf-
an fer ekki að gera sér ferð til
þín upp úr þurru. Hún leggur
ekki á stað í áttina til þín fyr en
þú hreyfir hönd eða fót. Þú
ve.rður að mæta henni á miðri
leið. Þú verður að sækja á. Þú
vinnur ekki sigur nema þú legg-
ir þig allan fram.
Þú kemur aldrei miklu til leið-
ar ef Iþú aldrei drepur hendinni í
kalt vatn. Þú verður að fara úr
treyjunni, bretta upp ermarnar
og ráðast af alefti á örðugleikana
©f torfærurnar ef þú ætlar þér
að vinna sigur. '
„Líf er nauðsyn, lát þig hvetja,
líkst ei gauði, berstu djarft.
Vertu’ ei sauður, heldur hetja
hníg ei dauður fyr en þíirft.“
— Success.
------o-------
Trúboðar og Þjóðverjar.
Það er ekkert nýtt að heyra
því haldið fram, að tipplilaup og
hryðjuverk i ókristnum löndum
sé í flestum tilfellum fyrst og
fremst kristnum trúboðum að
kenna. Naumast ferðast nokkur
svo umhverfis hnöttinn, að hann
ekki komi heim aftur sannfærð-
ur um það, af viðtali við hvíta
rnenn, sem hann hefir kynst á
ferðinni, að létu trúboðarnir fólkið
afskiftalaust og leyfðu því aö
halda við trú feðra sinna, sem
því *sé holkist og bezt hver svo
sem hún er, þá yrði samkomu-
lagið með því og hvítum mönn-
um hið bezta, þá elskaði fólkið
hvíta nienn og virti og hlýddi
þeim í öllu. Og samt er það
kunnugt, að hin einu afskiifti
trúboðanna af fólki þessu eru
þau að bæta hjartalag þess, í stað
þess, að erindi annarra inn á með-
al þess er að gera það og landið
þess sér að féþúfu.
Þjóðverjar halda því nú hik-
laust fram, að trúboðunum sé um
svertingja-uppreistina i nýlendum
þeirra i Austur-Afriku að kenna.
Þjóðverjar voru þeir fyrstu sem
með hervaldi tóku höfn í Kína og
sýndu þann yfirgang að leggja
undir sig fylkið, þar sem höfnin
var. Þeir höfðu það sér til afsök-
unar, að illa hefði verið farið með
þýzka rómversk-kaþólska trú-
boða, en auðvitað liefþi slíkt verið
jafnað á annan hátt hefði ekki
Þýzkalands-keisara legið á að
nota það sem ástæðu. Þetta til-
tæki Þjóðverja vakti ýmislegt á
meðal Kniverja, sem ekki var bú-
ist við, þar á meðal föðurlands-
ást og hugrekki. Það kom fram
í Boxara-uppreistinni. Þaö var
ekki nema náttúrlegt þó heróp
föðurlandsvinanna yrði á
móti útlendingunum sem óvinum
föðurlandsins. Að því leyti sem
Kínverjar vissu hvað ensku blöð-
in, sem þar eru gefin út, sögðu
um málið, þá var sízt að undra þó
þeir litu þannig á. Og þá var ekki
heldur nein furða þó fyrst yrði á
trúboðana ráðist, sem voru varn-
arlausir á víð og' dreif út um
landið. En í hverjum verzlunar-
stað hvítra manna gekk það fjöll-
unum hærra, að trúboðunum væri
um alt uppnámið og liryðjuverkin
að kenna. Jafnvel Salisbury lá-
varður tók í þann strenginn. En
þetta hefir verið rekið til baka
með því, hvað vel trúboðum hefir
verið tekið þar síðan, hvað frá-
bæra trygð fólkið hefir sýnt þeim
og hvað mikinn árangur starf
þeirra læfir haft.
I nýlendum Þjóðverja í Suður-
Afriku er skattur lagöur á svert-
ingjana — menn, sem aldrei fyrri
hafa neitt haft af slikum álögum
að segja. Þeim er þröngvað til
að vinna við opinber störf, ef ekki
til vinnumensku hjá prívat-mönn-
um og félögum. Auðvitað er það
eða ætti að vera þeim fyrir beztu,
að brvr séu bvgðar, vegabætur
gerðar og iðnaði komið upp á sem
flestum stöðum. Jafnvel Canada-
menn verða að leggja á sig dags-
verk til vegabóta. Og á ýmsum
stöðum, jafnvel hér í Manitoba,
hefði landið gott af því ef hægt
væri að neyða menn til þess með
svipu-höggum og sverðsoddum að
koma vegunum í viðunanlegt
lag. En menn mundu ekki taka
þess konar harðstjórn með þökk-
um. Þess mundi ekki langt að
bíða, að slíkt leiddi til uppreistar.
Enn þá miklu minni líkur eru þó
til þess, að svertingjarnir uni öðru
eins — menn, sem ekki gera sér
það skiljanlegt, að þeim skini
neitt gott af umbótum í landinu
heldur álíta alt slíkt gert útlend-
ingunum til hagnaðar. Öll stjórn
Þjóðverja í nýlendunum er misk-
unnarlaus harðstjórn, algerlega í
höndum hervaldsins, og það er
vitanlegt, að meðferð þeirra á
svertingjunum er hin versta.
Og samt er því nú haldið fram,
að öll uppreistin þar sé vesalings
trúboðunum að kenna — mönnun-
um, sem leggja lif sitt í hættu af
elsku til svertingjanna og ferðast
verjulausir inn á meðal þeirra til
þess að koma kristindóminum inn
i hjörtu þcirra og gera þá að
betri og göfugri mönnum. Eng-
um kemur til hugar að neita því,
að á meðal svertingjanna fái trú-
boðið misjafnlega góðan byr.
Á meðal þeirra, eins og á meðal
annarra manna, setja þeir sig upp
á móti kenningu kristindómsins
sem lifa og breyta gagstætt henni
og ekki vilja frá því hverfa. Og
það veikir trú svertingjanna á
kristindómsmálefninu þegar þeir
sjá Þjóðverja, sem telja sig
kristna, breyta gagnstætt því sem
trúboðarnir halda fram að eigi að
einkenna hvern einasta sannkrist-
inn mann.
Ekkert getur hugsast ranglát-
ara en það, að halda því fram, að
uppreistin í Afríku gegn Þjóð-
verjum og óstjórn þeirra þar sé
kristnu trúboðunum að kenna.
Síðan uppneistin hófst hefir svert-
ingjunum oftast veitt betur en
Þjóðverjum, og væri það ekki á-
hrifum trúboðsins að þakka, þá
rnundu Þjóðverjar mæta enn þá
þyngri kostum í höndum svert-
ingjanna en þeir gera, því að fyr-
ir framkomu Þjóðverja gagnvart
svertingjunum verðskulda þeir
enga miskunn.
Sviöi t brunasárum lœknast fljótt
með Chamberlains Pain Balm.
Mr J.ames N. Nichols kaup-
maður og póstafgreiðslumaður í
\ ernon Conn., gefur svolátandi
vitnisburð: „Litla barnið hans
Mikaels Strauss þjáðist nýlega
mikið af brunasárum á hendinni.
Faöir þess kom til mín til þess
að fá meðul við þessu. Eg hefi
margskonar áburði til sölu, en
réði honum til að reyna Cham-
berlain’s Pain Balm, og jafn-
skjótt og þaö var borið á dró
bólguna úr og sviöinn hvarf. Eg
hefi sjálfur reynt þenna áburð og
ræð til að brúka hann við skurði,
brunasár, tognun o. s. frv., því
eg veit að hann hjálpar ætíð. Til
sölu hjá öllum kaupmönnnum.
Geo. R. Mann.
Flytur inn og selur álnavöru.
548 Ellice Ave.
nálægt Langside.
Islenzka töluð íbúöinni.
- Því skylduS þér ekki verzla hér
ogsparayður peninga? Hér er
dálítið sýnishorn af verðlaginu:
FLANNELETTS, bleik,hvít,blá.
góðar tegundir, á 50. yd. Enn-
fremur. 34 þml. breið á ioc.
og 150. yd.
RÖNDÓTT FLANNELETTS,
36 þml. breið á 8c., ioc., I2ýýc-
og 150. yd.
KJÓLAEFNI. Ýmsir litir. i2*4c.
yd.
WRAPPERETTES. Ágæt teg-
und á ioc. yd. Haldgóðir litir.
Komið og skoðið.
Kurteisin kostar ekki pen-
inga.
Komið og sjáið hvað þér getið
sparið mikla peninga með því að
verzla hér.
■Fumerton &Co.
HAUST JACKETS. — Kvenfólk-
ið hugsar nú mikið um það
hvernig jackets það eigi að
brúka í haust. Sumar konur
vilja helst hinar síðu yfirhafnir-
Við höfum þær tiþbæði úr mis-
litu Tweed, einlitu Beavers og
Friezies, Svo höfum við þær í
meðallagi langar, handa þeim
sem þess óska, og með öllum
mögulegum litum, og líka úr
einlitu Beavers. Þegar þér
skoðið birgðirnar okkar munuð
þér fallast á að hér sé um veru-
lega nýja tegundir að ræða.
KVEN-JACKETS, síö og stutt,
flest úr mislitu Tweeds. Þau
klæða mjög vel og eru bæði
falleg og hlý.
BARNA-KÁPUR úr mislitu Friez
og Tweed, ýmislega skreyttar,
með herða slagi og breiðum
kraga. Mjög þægilegar og með
sanngjörnu verði.
FALLEG TREYJUEFNI úr
mislitu Plaids, sem verðu nýj-
asta tízka í haust, 6oc yd.
FRÖNSK FLANNELS, röndótt
og dropótt og allavega lit. Alt
eftir nýjustu tízku..
KJÓLAR. — Við eigum eftir, frá
sumrinu, nokkura kvenkjóla,
sem við nú seljum þannig:
$25.00 kjólar á $10.00
22.00 kjólar á 8.00
18.00 kjólar á 6,00
10.00 kjólar á 4.50
Ef þér viljiö ná í eitthvað a::
þessum kjörkaupum þá er bezt
að koma snemma álaugardaginn.
Fylgið straumnum ogverzlið við
J. F. FDMERTON& CO.
Glenboro, Man,
í alþýðlegu búðinni
j The John Arbuthnot Co. Ltd. j
I HXJSAYIÐUR, gluggar, hurðir, harðvara og |
I WBWeBCeWBBBBWBP qgg og allar tegundir af bygginga- •
efni. Lágt verð góðir borg- I
I unarskilmálar. Orðtak okkar: FLJÓT AFGREIÐSLA, J
I
I
Skrifstofa og yard: Cor. PRINCESS á LOGAN.
’PHONES: 588
1591
3700
Harðvöru og Húsgagnabúð.
Vér erum nýbúnir að fá þrjú
vagnhlöss af húsbúnaði, járn-
rúmstæðum, fjaðrasængum og
mattressum og stoppuðum hús-
búnaði, sem við erum að selja
með óvanalega lágu verði.
Ágæt járn-rúmstæði, hvít-
gleruð með fjöðrum og matt- I
ressum................$6,50
Stólar á 40C. og þar yfir
Komiö og sjáið vörur okkar
áður en þér kaupið annars
staðar, Við erum vissir um að
geta fullnægt yður með okkar margbreyttu og ágætu vörum. Þér
munuð sannfærast um hvað þær eru ódýrar, t __J
LEON’S
605 til 603 Main St., Wlnnipeg
Aðrar dyr norðu. frá Iinperi.ú Hotel,
----Telephone 10S2——
Reynid 1 .pd.
AF
BAKINQ POWDER
Það borgar sig betur að brúka Blue Ribbon en
nokkura aðra tegund Bregst aldrei, er óblandað og
gerir kökurnar bragðgóðar og hollar. Biðjið kaupmann-
inn yðar um Blue Ribbon.
R«yal Lnraber og Fuel Co. LM.
HÚSAVIÐUR, KOL, ELDIVIÐUR
og FÓÐURTEGUNDIR.
OFFICE: 646 Notre Dame, Tel. 3390
YARD: Notre Damé West. Tel. 2735.
WINNIPEG, CAN.
The Wiimipeg
GRANITE & MARBLE CO.
Limited.
HÖFUÐSTOLL $60,000.00.
'W ,________
Vér höfum hinar mestu birgðir, sem til eru
í Vestur-Canada, af[öllum tegundum af minn-
isvörðum. Skrifið eftir verðskrá eða komið við
hjá okkur að
248 Princess st., Winnipeg.
^%. %%/%%%%/%%%/%%/% %/%%/%%%. %%%%.%% %%/%%%%. %^£
Tlie Piiil Portage Lniiikr f«.
LIMITED.
- AÐALSTAÐURINN til aö kaupa trjávið, borðvið, múrlang-
^ bönd, glugga, hurðir, dyrumbúninga,
^ rent og útsagað byggingaskraut, kassa
og laupa til flutninga.
Bezta „Maple Flooring“ ætíð til.
Pöntunum á trjávið úr pine, spruce og tamarac nákvaemur gaumur gefinn.
Skrifstofur og niylnnr i Norwood. T:e:‘ «« -
% %%%.%%%, %%%%%% %%%%%% %%%%%.% %%% %% % %
SKOLASKO-SALA.
Einmitt nú þegar börnin fara að þarfnast
fyrir skólaskóna höfum viö
ákveðið
TÍU DAGA SERSTAKA OTSOLU
á skóm handa skóla börnum. Við erum nýbúnir að
fá mikið af stúlkna og drengja skólaskóm, sem eru að
öllu leyti ágætir. Við ábyrgjumst hvert einasta par.
Rúmiö er ®f lítið hér til þess að geta lýst þeim ná-
kvæmlega. Skólaskór, á $1.00, $1.15, $1.25, $1.35.
$1.50 og $1.75, sem eru miklu meira virði. Allar
stæröir .Komið og sjáið hvað við höfum aðbjóðameð-
an þessi sérstaka útsala varir. Við höfum engan úr-
gang á boðstólnum. Munið eftir því, að þessi útsala
stendur aðeins yfir í tíu daga og þér megið ekki við
því aö missa af henni ef þér þurfið að kaupa skólaskó.
JVömns & JEortiðon |
570 MAIN ST.
á milli Pacific og Alexander Ave.
7 jf 1 ■ |i« M.M «1^ m «1» mi> j»x%. æl±m- mAÆ-Æam. uL mu.jlul *i% aia.
I £Sl-6il5 iiT ISt fffrITT?ÍtÍiíFíÍ líf iff CTfirtff líf TTI iTl lli >