Lögberg - 05.04.1906, Blaðsíða 1
ReiðhjóL
SkoCiö reiöhjólin ckkar á $40.00, $45.00 og
$50.00 áöur en þér kaupiö annars staðar í vor.
Nýjar tegnndir til.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
S38 Maln Str. Telepljone 339
T résmíða-áhöld.
Viö erum alveg nýbúnir aö fá birgöir af þess-
um áhölélum, tilbúnum bæði í Canada og Banda-
ríkjunum. Ýmiskonar verö. Vörurnar teknar
aftur ef þær reynast öðruvísi en þæreru sagöar.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Maín Str, Telephon 339
19 AR.
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 5. APRlL 1906.
NR 14
Hinn nýi foringi liberal-flokksins í Manitoba.
EDWARD BROWN
borgarstjóri í Pörtage l<* Prairie.
Fréttir.
Sex ítalir fundust dauöir í liúsi
nokkru i St. Paul, Minn., fyrra
niiövikudag. Voru lík þeirra söx-
uö og sundur höggvin, enda bar
húsið þess menjar, aö þar heföi
veriö háöur haröur bardagi. Lög-
reglan þykist sjá þaö á ýmsum at-
vikum að fleiri muni hafa tekið
þátt í bardaganum og flúiö á burtu
þegar honum var lokiö. Enga
frekari vitneskju hafa menn þó
enn fengið um þaö, hvert þeir hafi
flúiö eða hvernig á þessum hryðju
verkum standi.
Frá nafnkendum lækni í Minne-
apolis var í vikunni sem leiö stolið
þrjú hundruö þúsund dollara viröi
í peningum, dýrgripum og verö-
bréfum. 1 engum vafa þykjast
menn þar vera um það hver þjóf-
urinn sé, en allur var hann á bak
og burt áöur en hægt væri aö hafa
hendur í hári hans, og er nú ræki-
leg leit eftir honum gerö.
í námaslysi í Japan fórust tvö
hundruö og fimtíu manns í vik-
unni sem leiö.
Slys vildi til á Can. Pac. járn-
brautinni náfægt Neepawa, Man.,
á föstudaginn var. Köstuðust tveir
öftustu vagnarnir í lestinni út af
brautarsporinu og ultu . um.
Maröist einn maöur til dauös, ung-
ur maður frá London ,Ont., Elli-
ott aö nafni. Fjölda margir af
farþegunum, sem í þessum tveim-
ur vögnum voru uröu fyrir meiri
og minni áverkum. Handleggs-
brotnuöu menn og fótbrotnuðu,
gengu úr liöi, möröust og skárust
á rúðubrotum. Voru allir hinir
saeröu menn fluttir á sjúkrahúsiö í
Neepawa og sendir þangaö auka-
læknar til aðstoðar. Margir hinna
særöu manna eru svo illa leiknir,
að óvíst er taliö aö þeir muni rétta
viö aftur, en sumir veröa aö lik-
indum örkumlamenn alla æfi.
Tvö hundruö og fimtíu þúsund
ekrur af landi, sem „Independent
Order of Foresters" lífsábrgöar-
félagiö átti í Norövesturlandinu,
hefir þaö nú selt og fengiö ágætt
verö fyrir. Eftirspurnin eftir landi
á þessum stöövum er nú meö
Iángmesta móti.
Urn ókyröina og upphlaupin á
Rússlandi víðsvegar bera blöðin
fleiri og færri sögur daglega, sem
allar bera með sér, að langt eigi
það enn i land, að spekt og friður
komist þar á. Við lögregluliö höf-
uöborgarinnar var nýlega bætt
fjórtán nundruö manns, svo með
því sem áður var fyrir má það nú
heita heill her manns, sem settur
er þar til að gæta réttar og laga.
En alt um það brjótast óspektirn-
ar út hingað og þangaö um borg-
ina, viö og við, og margir spá þvi
aö þessi óöld, sem nú er á Rúss-
landi, geti ekki endað ööru vísi en
með blóðugri innanríkis uppreist,
á svipaðan hátt og á Frakklandi
gerðist foröum.
Fullnaöarsætt viröist nú vera á
komin uni Morocco-málin, og því
engin hætta á því lengur, aö af
þeim deilum muni neinn ófriöur
eða styrjöld risa. Ekki hafa þó
sætta-atriðin enn veriö gerö heyr-
um kunn, en svo er sagt, aö ekki
muni langt liða þangað til aö ná-
kvæmar veröi frá þeim sagt, og er
svo af látið, aö báöir hlutaðeigend-
ur, Frakkar og Þjóðverjar, séu á-
nægðir yfir málalokunum.
Arthur prins af Connaught kom
til Vancouver á laugardaginn var,
og var þar tekið meö hinurn mesta
fögnuöi og viöhöfn. Fór svo prins-
inn ásamt föruneyti sinn þaðan og
austur á leiö næsta dag.
Tveir menn i Kenora, Ont., sem
voru aö sprengja grjót meö púöri
í vikunni sem leið, uröu fyrir svo
miklum áverkum að ekki er þeirn
lif ætlaö. Af einhverju ógáti kvikn-
aöi i púörinu fyr en mennirnir áttu
von á og gátu forðað sér undan.
Fjórir slökkviliðsmenn biðu bana
og margir menn af slökkviliöinú
fengu stórkostleg brunasár viö til-
raun til aö slökkva eld, er kom upp
í sex lyftri bvggingu i New York
í vikunni sem leiö.
ítalskur aðalsmaður er nýlega
kominn til Tóronto, sendur at
stjórninni á ítaliu sérstaklega i
þeim erindum að grenslast eftir,
hvort ekki væri æskilegt að konia á
verzlunarviðskiftum miUi Canada
og ítaliu. Segist sendimanni þess-
um svo frá, aö nægur markaður
mundi veröa á ítalíu og í ná-
grannalöndunum fyrir ýmsar vör-
ur héöan frá Canada. Skýrir hann
meðal annars frá þvi, að til ítalíu
hafi veriö flutt inn tólf miljóna
virði af húsavið áriö sem leið.
Nýjustu fréttir frá Japan segja
að hallærið og hungursneyöin þar
í landi sé miklum mun vfirgrips-
meiri en menn i fvrstu höfðu hug-
mvnd um. Ástandið er sagt rniklu
voöalegra en átt hefir sér stað á
nokkruni öörum stað nú á siöari
árum. Alment var haldið aö hall-
ærið ætti sér staö einungis í hinum
norðlægari héruðum i Japan, sök-
um þess að þar hefði hrísgrjóna-
uppskeran brugöist og væri það
að eins nokkrar stéttir manna þar
nyrðra, er af hallærinu hefðu að
segja. En nú berast fréttir urn
þaö, aö óárið og hallæriö gangi aö
mestu leyti yfir land alt og sé
nú nálægt því ein miljón Japans-
manna, er líði hungur. Og ekki
er það eingöngu hrísgrjóna upp-
skeran, sem brugöist hefir, heldur
og flestallur. annar jaröargróður,
sakir fádæma úrfellis. Og til þess
aö herða enn meir á vandræðunum
hefir vfirstandandi vetur verið ó-
venjulega harður, eftir því sem í
Japan gerist.
Nú er þaö fastráöið aö J. J. Hill
járnbrautarkóngur leggi samfelda
járnbraut alla leið frá Vancouver,
B. C., til Winnipeg. Eftir mæl-
ingum þeim að dæma undir braut-
arstæði, sem hann nú er að láta
gera, og brautarlagningu þeirri,
sem nú er aö unnið, veröur
þess ekki langt að biöa að Great
Northern félagið eigi eins mikiö í
mílnatali í járnbrautum í Canada
eins og i Bandarikjunum. J. J.
Hill hefir nú hátt á fjórða þúsund
manna, sem eru aö vinna að járn-
brautarlagning, og með sumrinu
býst hann við aö þurfa að mínsta
kosti á helmingi fleiri mönnum að
halda. Meðal annars cr hann nú
að láta leggja braut frá St. John í
North Dakota til Brandon, sjötíu
og fimm mílur vegar,og á sú braut
að veröa fullgerð í næstkomandi
Ágústmánuöi. Þá er og kappsam-
lega unnið að brautarlagningu frá
Neche í North Dakota til Portage
la Prairie, áttatíu og fimm mílur.
Enn fremur eru nú menn Great
Northern félagsins viö mælingar
norður frá Brandon og mæla þar
út stefnu og legu nýrrar auka-
brautar.
Við því hafði veriö búist aö al-
mennt verkfall meöal kolanáma-
manna í Bandaríkjunum mundi
byrja innan skamms, eða um síð-
astliðin mánaðamót. Nú hvggja
menn að afstýrt sé þeirri hættu, og
hafa samningar komist á, er veita
námamönnum ýms hlunnindi og
hækkun kaupgjalds. Telst svo til,
að samkvæmt þeim samningum fái
nú nálægt því eitt hundraö þúsund
verkamanna í Bandarikjunum
kaup sitt hækkaö.
Fjörutíu og þrjú hundruð inn-
flytjendur lentu í St. Johns, N. B.,
á mánudaginn var, og héldu áfram
þaðan samdægurs vestur á leiö
með jámbrautunum. Um fjórtán
hundruö af þessum stóra hóp voru
enskir menn. Hitt Þjóöverjar,
rússneskir Gyðingar og Italir. Von
er á þrjú þúsund innflytjendum í
viöbót núna í vikunni austan um
haf.
Norðan til i Síberiu hefir vetur-
inn veriö óvenjulega harður i ár.
Bjargarskorturinn hefir verið þar
svo gersamlegur, aö sagt er að í
sumum héruðunum þar norður frá
hafi menn lagt sér til munns lík
þeirra, skyldra og vandalausra,
seni hungursneyöin hefir oröið aö
bana, og jafnvel drepið hver ann-
an sér til matar.
Nýlega hafa lögreglumenn á
Spáni kornist á snoöir um samtök
í þá átt að ráða bæöi Alfons Spán-
arkonung af dögum, móöur hans,
Kristinu ekkjudrotningu og Maríu
Theresu svstur konungsins. Var
svo ráð fyrir gert, aö morðin
skyldú framkvæmd í páskavikunni.
FrétOibréf.
Pine Valley, 20. Marz 1906.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Það kemur sjaldan1 fyrir, að hér
úr þessari bvgð sjáist nokkuð i
blöðunum ; það fitur helzt út fyrir
þaö, að þessi nýlenda sé einhvers-
staðar utan við allar mannlegar
samgöngur, en því er þó sanpar-
lega ekki svo varið. Við erum vel
settir hvaö það snertir, eigum ör-
skamt til járnbrautar, og þó verö-
ur þaö enn þá betra, þegar nýja
járnbrautin er albúin, því hún ligg
ur gegn um miöja bygðina, enda
eru menn farnir aö flytja eldivið
til burtflutnings aö járnbrautar-
stæðinu og búa sig undir það að
byggja þar, og er það mjög lík-
legt að þar rísi upp dálítill bær áð-
ur mörg ár líða. Það má telja
það góös vita, aö skólahús verð-
ur liklega það sem byrjað verður
þar meö og er það nú þegar i und-
irbúningi. Hér er sérlega vel fall-
ið til hveitiræktar, því jarðvegur
er góöur, og engjalönd ágæt, svo
menn geta hér stundað bæöi hveiti-
rækt og gripa, og allir sem hér
hafa brotið hafa þegar haft frem-
ur góða uppskeru. Enginn efi leik-
ur á því, að þessi bygö á mikla og
góða framtíð í vonum; en menn,
sem hér hafa sest aö, hafa veriö
efnalitlir, og þess vegna orðið að
vinna út til þess aö geta séð fyrir
sér og sínurn, en það dregur
vinnukraftinn út fyrir sín eölilegu
takmörk, og er þess vegna illur
Þrándur í Götu á framfara braut-
inni, en eg vona að það lagist bráð
lega; enda mun nýja járnbrautin
ýta undir menn aö framleiða brauð
og blessun úr jörðinni.— Veturinn
er hér alment talinn einn sá allra
bezti, mátulega snjómikill til þess
að nota sleðana, og enginn sérleg-
ur frostavetur.
Hér í bygðinni hefir verið frem-
ur kranksamt af ýmsum kvillum,
þó hafa engir látist hér utan Guð-
ríður Halldóra Jónsdóttir kona
Kristjáns Sigurðssonar Eyford.—
Kana mátti óhætt telja eina mestu
og beztu konuna í þessari bygö, og
er þaö því annað en lítill sjónar-
sviftir ekki einungis fyrir vini og
vandamenn, heldur fyrir alla í
bygðinni, því þau hjón voru jafn-
an reiðubúin til þess að hjálpa
þeim sem bágt áttu og nauðir
liðu.
Margt fleira væri hægt að skrifa
héðan en eg læt þetta nægja að
sinni. E. J.
-------0--------
Fréttir frá lslandi.
Reykjavík, 21. Febr. 1906.
Nýja verzlun setur í vor kom-
andi upp á Hornafirði Gunnlaugur
Jónsson, sem lengi hefir verið
verzlunarmaöur á Seyðisfirði, fyrst
við Thostrups verzlun og síðan hjá
pontúnarféaginu.
Reykjavík, 28. Febr. 1906.
Úr bréfi frá Guðmundi héraðs-
lækni Björnssyni: — „Líkneski
Jónasar Hallgrímssonarfí gips) er
vnllgert og komið til steypumanns;
baö er tæpar 4 álnir á hæð; Jónas
er berhöföaöur, hefir hægri hönd í
ba-mi —það \ar siöur hans,—en
l eldur vinstri hörd niður meö sið-
u.ini, og hefii Htinn blómvönd í
þeirri hendi Mér lízt prýöisvel á
I'kneskið að ölhi leyti- og ekki sízt
það sem must er um vt rt—andlitiö
sjálft. Út úr því skín andinn, ang-
urblíöar i kxs.ðunum. Þegar ’ikn-
eski þetta er komiö heim, undir
bert loft, mói: sólu, ]>á munu v»*"a-
laust allir landar Einars Jónssonar
ganga úr skugga um það, a"ð hann
er listamaður. ,
Listaskólinn danski hefir nú veitt
Einari ferðastyrk fDet Kufímann-
ske Legat),-1200 kr.; því hafa
ráðið helztu listamenn Dana. Ein-
ar fylgir alt annari stefnu í list
sinni, en þeim er tamt; þess láta
þeir lika getið; en segjast engu aö
síður ánafna honum þetta fé, af
því aö srníðar hans beri vott um
óvanalegt sjálfstæði, elju og á-
huga.
Einar veröur þjóð ginni til sóma.
Og þjóöin ætti að nnina að láta
sér farást sómasamlega við hann/
í síðasta tölubl. Lögréttunnar og
í þessu blaði, stendur auglýsing frá
hlutafélaginu „Málmi“ um að
hiutabréfaáskrift félagsins verði
hér lokiö á morgun. Reykviking-
ar taka alla hlutina, svo að gera
má ráð fyrir,. að innan skamms
verði byrjað á borunum. Stjórn fé-
lagsins er að semja við enskt félag
um ,að taka að sér boranirnar, en
þeir samningar eru ekki fullgerðir
enn.
Heiðafélagið danska hefir orðið
við þeirri áskorun Landsbúnaðár-
lagsins að ljá því í sumar einn
verkfræöing sinn til aö gera land-
msflingar og áætlun um vatnsveit-
una vfir Skeið og Flóa. Verkfræð-
ingurinn heitir Thalbibitzer og
kemur væntanlega í maímánuði og
verður hér sumarlangt. Landsbún-
aðarfélagið greiðir ferðakostnaö-
inn og fyrir aðstoð við verkið, en
Heiöafélagið lánar manninn fyrir
ekkert.—Lögrctta.
Reykjavík, 9. Febr. 1906.
Járöskjálftakippur mjög harður
fanst austur á Rangárvöllum 13.
f. m. kl. 6—7 e. h. Er skrifað
þaðan að austan 4. þ. m., að eng-
inn kippur hafi þar jafn snarpur
komið siðan í jarðskjálftunum
miklu 1896. Fólk varð þar víða
allhrætt, og hugði ný býsn fyrir
höndum. I Nóvembermán. síðastl.
kom svo haröur kippur efst á
Rangárvöllum, að fólk frá Hauka-
dal nálægt Heklu, flúði til næsta
bæjar.
Reykjavík, 16. Febr. 1906.
Látin er fyrir skömmmu í K.aup-
mannahöfn frú Guðrún Scheel,
ekkja Prebens Scheel greifa, vfir-
foringja í sjóliðinu, en dóttir Árna
kaupmanns Ólasonar Sandholts á
Isafirði fd. 3. Sept. 1869J og
Mettu Guðmundsdóttur frá Búð-
um. Hún mun hafa verið komin
á sextugs aldur.
Reykjavík, 23. Febr. 1906.
Þeir Ágúst Bjarnason heimspek
ingur og Jón Jónsson sagnfræð-
ingurt eru fyrir skömmu byrjaðir
að halda fyrirlestra hér í bænum,
Ágúst um heimspeki og önnur vís-
indi 19. aldarinnar,en Jón um gull-
ö!d Islendinga, ýms atriði úr sögu
landsins að fomu. Hvorttveggja
þessara sögulegu fyrirlestra em
hinir fróðlegustu, og ættu bæjar-
búar að neyta þess tækifæri, er
nú býöst, til aö afla sér fræðslu og
skemtunar.
— Djóðólfur.
------o------
Breytingar á feröaáœtlun nieö
C. N. R. brautinni.
Frá 1. Apríl verða þessar breyt-
ingar á áætluninni, frá því sem áð-
ur hefir verið:
Á aðal brautinni vestur— Milli
Winnipeg og Edmonton. frá Win-
nipeg kl. 8 að morgni, daglega,
nema á sunnudögum. Kemur trl
Edmonton kl. 10.15 að' kveldi,
dagl., nema á mánudögum.
Austur á leið frá Edmonton kl.
7.15 að kveldi, dagl. nema á föstu-
dögum. Kemur til Winnipeg kl.
12.20 dagl., nema á sunnudögum.
Á milli Winnipeg og Dauphin, um
Carberry, fer lestin á stað frá
W innipeg kl. 8 að mórgni á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögum. Kemur til Daupbin kl.
5.40 aö kveldi. Frá Dauphin fer
lestin kl. 2.50 á þriðjudögum,
fimtudögum og laugardögum.
Kemur til Winnipeg kl. 12.20.
Oak Point brautin: — Á milli
Winnipeg og Oak Piont veröur nú
lestin látin ganga þrisvar í viku.
Fer luín frá Winnipeg kl. 8.15 aö
morgni á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum. Kemur
til Oak Point kl. 12.30. Snýr aft-
ur þaðan sömu daga, og leggur þá
á stað frá. Oak Point kl: 2 að deg-
inum og kemur til Winnipeg kl.
6.15 að kveldi.
Winnipegosis brautin: — Lestin
fer frá Dauphin kl. 7 aö kveldi á
iriðjudögum og fimtudögum. Og
kemur til Winnipegosis kl. 9.30 að
kveldi. Leggur aftur á stað frá
Winnipegosis kl. 2 aðfaranótt
miövikudags og föstudags. Kem-
ur til Dauphin kl. 4.30 að morgni.
Swan River brautin: — Lestin
fer frá Dauphin kl. 4 að kveldi á
mánudögum, miövikudögum og
föstudögum. Kemur til Swan Riv-
er kl. 9.30 að kveldi Fer frá Swan
River kl. 11.30 að kv. á mánudög-
um og miðvikudögum. Kemur til
Melfort kl. 3.15 á þriðjudögum og
fimtudögum. Á austur leið fer
lestin frá Melfort kl. 7 að morgni
á miðvikudögum og föstudögum
og kemur til Swan River kl. 9.20
aö kveldi þá daga. Fer frá Swan
River kl. 11 að kveldi á mánud.,
miðvikudögum og föstudögum og
kemur til Dauphin kl. 4 að morgni
á þriðjudögum, fimtudögum og
laugardögum.
Kevkjanes.
Eftir Grim Thomsen.
(Óprentað áðurj.
Hvers í djúpum bullar brunni,
beljar sjór á hraunaflesi,
sjóöa jafnvel svalar unnir
suður undan Reykjanesi;
skelf eru kröppu skinnaköstin,
skeflir móti vindi röstin.
Undir bruna-áin rennur
út í mar hjá Valahnjúki,
undir hrönnum eldur brennur,
ekki er kyn þótt drjúgum rjúki:
hafs í ólgu og hveraeimi
hvirflast bólgiö öfugstreymi.
Óþreytandi elds er kraftur,
ár og síð í djúpi starfar,
stinga sér og upp þar aftur
eyjar koma likt og skarfar;
s k e r i n geta F u g 1 a - farið
fyrr en kannske nokkurn varir.
*) Kvæði þetta finst bæði sér-
stakt í syrpu skáldsins og svo sem
kafli í VIII. rímu af Búa Andríðs-
syni og Fríði Dofradóttur, serri
hann hefir ort. — óðinn.
------0-------