Lögberg - 05.04.1906, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN .5 APRÍL 1906
Á vorinngöni>udaginn.
I>'aS er kalt veöur í dag, þennan
lyrsta dag vorsins, en voriö er þó
byrjaö.
Og með hinni hækkandi sólu
koma hlýir dagar, bjartir dagar.
í staö ísbresta og hríðarorga
vetrarins, koma söngraddir vin-
anna fleygu, og hinn ómþýöi ang-
anblær vorsins.
Náttúran birtist oss í áinni fögru
og fullkomnu lífsmynd. Minnir
oss á æskuna, ástina, vonina. Bend
ir oss áfram og hærra, til eilífrar
þroskunar, til eilífrar fullkomnun-
ar.
Mjúklega, sem móðir hagræöi
veiku barni sinu, leysir vorið nátt-
úrunni svefnþorn hins kalda vetr-
ar, og vekur alt sem lifir — alt og
alla jafnt. < , .
Voriö er upprisuhátíð lífsinv.
Það vekur hina undur smáu
jurt, sem þarf að tylla sér á tá á
ibrjóstum móðurinnar, til aö , geta
notið vorsólarinnar, jafnt og hina
afarmiklu eik, sem breiðir greinar
sínar og lauf, upp í heiðuna háu.
Þaö vekur jafnt orminn smáa,
sem hinn sterka skógarbjörn.
Það leggur sömu orð á tungu
flugunnar sem fuglsins, til að
hljóma frá fjöru til fjalls og um
nm firðina alla: „Himneskt er að
lifa.“
Sólin signir jafnt jökulsóleyuna
sem túnsóleyuna, fifuna sem fjól-
una, skollafingurinn sem Maríu-
hlómið. — Alt og alla jafnt.
Til mannheima kemur vorið
vermandi, vekjandi, lífgandi.
Til mannanna, sem hafa feg-
urstu söngröddina, dýpstu tilfinn-
ínguna, glöggasta fegurðaraugað
af öllum börnum jarðarinnar.
Syngjum vér þá?
Sjáum vér fegurðina?--------•
Vér syngjum, en undur fáir:
„Himneskt er að lifa,‘ — heldur
tlapran sorgaróð yfir löngum vetri,
sem lamaði lífskraftana og vor-
þrána.
Vér finnum til. Já, mikið, mik-
íö—margir, margir. Finnum til
böls og sárinda. En vér fyllumst
ekki fjöri og vorgleði. Nei. Vér
negum ekki vera að þvi — fæstir.
Vér finnum eins og í draumi, og
sjáum eins og í þoku vorið nálg-
ast. Það koma einn eða tveir sár-
ír stingir í hjartað, hjá sumum. —
Vortilfinningin. — Svo er það bú-
íð. —Maðurinn er búinn að ganga
aftur á bak úr faðmi náttúrunnar,
þangað til hann er orðinn líkari
steindrang, en lifandi barni henn-
ar. —
Vér sjáum fegurðina — sumir,
Já, að eins, að eins sjáum hana.
Og það ^r alt og sumt.
Vorið getur ekki vakið lífið i
niannheiminum.
Mennirnir eru búnir að skifta
sér niður í alls konar stéttir, til
þess að geta ekki notið vorsins.
Til þess að reka sólskinið burt úr
sölum mannkynsins, en innleíða
tnyrkur. Reka burt hina með-
fæddu lifsást og kærleika, en inn-
leiða kulda og hatur.
Það er valdið—misbrúkað vana-
vald, sem gerir alla að þrælum, alt
frá keisara og páfa niður til stór-
glæpamannsins og hins „fallna.“—
,Sem rekur burtu vorið og sólskin-
íð úr mannheiminum.
Vanavaldið skapar hugsunar-
leysi o~ heimskufullar sérkreddur.
Lögvaldið skapar forherta
•óbótamenn!
Auðvaldið skapar fátæklinga og
íiumingja.
Og alt þetta vald sameiginlega
skapar djöful \mdirferilsins og ó-
hreinskilninnar. Býr til þjóf úr
þeim, sem hungrar og þyrstir, en
getur ekki veitt sér það með
frjálsu móti. 1 Kveykir ótrygð
þrælsins i brjósti allra þeirra, sem
finna að þeir eru ofurseldir nauð-
ungarvaldinu, en geta ekki losast.
Vorið finnur þá ekki.
En böðlar þrælanna eru seldir
sínu eigin drambi, kuldanum, kær-
leiksleysinu.
Vorið finnur þá ekki heldur.
„Guð lætur sína sól upp renna
yfir góða og vonda, og rigna yfir
réttláta og rangláta.“ — Gerir
hann það? Nei. Hann getur það
Contraetops!
1[|AFIÐ þér gert yður hugmynd um
Ji hvaðmikið þér getið sparað yður
með því að kaupa JÁRNVÖRU af okk-
ur? Við búumst við að selja mikið á
komandi sumri og höfum þess vegna
fengið birgðir af vörum. Við höfum fært niður verðið á öllu
eins mikið og okkur er mögulegt, því v.ið álítum betra að hafa
MIKLA SÖLU og LÍTINN ÁGÓÐA heldur en litla sölu með
miklum ágóða. Takið ekki okkar orðtrúanleg. Komið sjálf- j
ir og berið saman verð okkar við lægsta verð hjá öðrum. Byrj-
ið reikning við okkur.
Flutt tafarlaust heim til ydar.
FRASER & LENNOX,
157 NENA ST. - ’PHONE 4067
JARNVAKA
ekki. — Valdið — hinir „réttlátu“
— safna öllu sólsklninu á einn
stað, handa sjálfum sér, og sleikja
það þar. Og vatninu safna þeir á
santa hátt, handa sér til drykkjar,
svo þeir valdalausu—hinir „rang-
látu“ — ná ekki í gæði þau, sem
þeim voru upphaflega ætluð af
drotni.
Og hinir voldugu kveljast af of-
fylli, en hinir valdalausu strita og
strita á galeiðum valdsins.svo þeir
fái að draga fram lifiö á leifum
hinna valdmiklu.
Nitján hundruð og sex sinnum
hefir vorsólin risið upp frá djúpi
vetrarins síðan meistarinn miklf
íæddist. Hann, sem svo öruggur
og ókvíðinn barðist fyrir kærleik-
ann, fyrir vorið, fyrir ljósið. Fyr-
ir því, að vorsólin skini mannanna
börnum öllum. Eins hinurn ber-
syndugu sem hinum skriftlærðu.
Að allir fengju að njóta lífsins
himnesku gjafir. En hvar standa
þeir nú, merkisberar hans? Eru
þeir ekki orðnir einskonar ofvald,
að eins til að stjórna? Og hvað
er kærleikans kenning þeirra nú?
Er hún ekki „hljómandi málmur
og hvellandi bjalla“ hjá flestum?
Hverjir eiga að beina Ijóss-
straumum vorsins inn í mannheim-
inn, að hjarta þjóðanna?
Allir, sem eigfa rautt lífsblóð í
æðum en ekki svart dauðablóð.
Allir, sem eiga logandi eld í
hjarta, en ekki útkulnaðar glæður.
,AUir, sem þrá vorið og ljósið í
stað kulda og myrkurs.
Allir, sem þrá að fullkomnunin
færist áfram og upp á við að eilífu
í mannheiminum.
Allir, sem vilja læra að þekkja
lífið og skilja orsök og afleiðing
tímanna.
Hjá þeim, og frá þeirn, verða
lifandi, eldlegir straumar að ber-
ast til allra. Lýðurinn verður að
skilja, að það var „guð, sem gaf
honurn landið.“ Gaf honum jörð-
ina, — öllum jafnt. Hnefaréttur
bræðranna verður að útrýmast af
jörðinni. Harðstjórarnir verða að
skila fólkinu aftur því, sem þess
var og er, því til þarfa og lifs-
sælda, svo það geti notið lifsins og
hrópað og sungið með náttúrunnar
eigin börnum, frá fjöru til fjalls
og um firðina alla:
„Himneskt er að lifa!“ —
Og lýðurinn getur tekið jörðina
sína aftur hve nær sem hann vill.
Engir gullkrýndir harðstjórar, né
kveljandi og sjúgandi auðkóngar
og auðfélög þurfa að vera til,
lengur en lýðurinn leyfir. Það er
að eins eitt orð, í þess fullu merk-
ingu, sem vér þörfnumst, orðið:
s a m t ö k.
Fólkið getur sagt við konung
sinn þegar það vill:
„Brott! Þú stjórnar oss
eigi lengur. Vér stjórnum oss
sjálfir. Oss var öllum gefið frels-
ið, lífið og landið jafnt af náttúr-
unni, en þú hefir gjört fátækan
og ríkan, niðurlægt og upphafið.
Brott með hásæti þitt, kórónu þína
og veldissprota. Héðan af ertu
að eins bróðir vor.“ —
Það eru ágætismenn þjóðanna,
andlega atgjörfi og, menning
þjóðanna sjálfra, sem þarf til aö
stýra fólkinu. Ekki sem kúgandi
lögvald, auðvald né kirkjuvald,
heldur sem vald kærleikans og
sannleikans. Þjóðirnar þurfa sam-
eiginlega að skilja þetta, svo þær
geti notið vorsins og lífsins góöu
gjafar. Lýðurinn þarf að verða
snortinn af brennandi á huga fyr-
ir sinni eigin heill. Strax og allir
skilja, allir vilja vera bræður, -allir
frjálsir, þá er alt fengið. Og
reynum allir, í nafni kærleikans,
að hjálpa til þess.
Það er kalt veður í dag, þennan
fyrsta dag vorsins, en vorið er þó
byrjað.
En þegar sá Vorinngöngudagur
kemur til mannheima, sem flytur
það vor í skauti sínu sem vekur öll
mannanna börn — alt, ag alla
jafnt. — Þegar hinn styrki styður
hinn óstvrka, en sparkar hann
ekki, — þá verður Vorinngöngu-
dagurinn hlýr og bjartur. Þá geta
allir tekið undir með náttúrunni
og sungið:
„Himneskt er að lifa!“
Þ.ví þá líður anganblær vorsins
yfir heimkynni friðar og kærleika.
Yfir „nýjan himin og nýja jörð.“
Þorsteinn Þ'. Þonsteinsson. .
------o-------
Gigtarverkir lœknaðir.
Hin skjóta lækning, sem Cham-
berlain’s Pain Balm hefir veitt
þúsundum manna, er þjáðst hafa
af gigt, hefir gert þetta meðal
nafnfrægt. Það veitir bæði hvíld
og svefn. Fjöldi manna hefir
komist til fullrar heilsu, sem not-
að hefir þenna áburð. Til sölu hjá
öllum lyfsölum.
The Alex. Black
Lumber Co., Ltd.
Verzla með allskonar
VIÐARTEGUNDIR:
Pine,
Furu,
'edar,
Spruce, ^
Harðvið.
Allskonar boröviður,
shiplap, gólfborö,
loftborð, klæðning,
glugga- og dyraum-
búningar og alt sem
til húsagerðar heyrir.
Pantanir afgreiddar
fljótt.
relU596.
Higgins’& Gladstone st.
Winnipeg.
S. Anderson
HEFIR
Skínandi* Veggj a-
pappír.
Eg leyfi mér að tilkynna, að nú
hefi eg fengið meiri birgðir af
vefl&jaPappír en nokkru sinni áð-
ur, og sel eg hann með svo lágu
verði, að slíks eru ekki dæmi í
sögunni. T. d. hefi eg ljómandi
pappír fyrir 3ý£c. strangann, og
svo fjölmargar tegundir með
ýmsu verði, alt að 80 c. strangann.
Verð á öllu hjá mér í ár er frá
25—30 prct. lægra en nokkurn
tíma áður. Enn fremur er hér svo
miklu úr að velja, að ekki er mér
neinn annar kunnur í borginni, er
meiri birgðir hefir. Komið og
skoðið pappirinn, jafnvel þó þér
kaupið ekkert.
Eg er sá eini Islendingur hér í
landi, sem verzla með þessa
vörutegund.
103 Nena Street.
..5’. ANDERSON.
Höfuðverkur kemur af óreglu í
maganum og læknast að eins með
Chamberlain’s Stomach and Liver
Tablets. Seldar hjá öUum lyfsöl-
utn.
The Winnipeg Paint£* Qlð»&. Co. Ltd.
Góður húsaviðurj
unninn og óunninn, bæöi í smá og
stórkaupum. Verðið hjá okkur
hlýtur að vekja athygli yðar. 4
Nauðsynin á að fá bezta efni-
viðinn sem bezt undirbúinn er öll-
um augljós. Með ánægju gefum
vér yður kostnaðar-áætlanir.
The WinmpegPaint d Glass Co. Ltd.^SH
hornlnn á St
Street og Gertrad.
>’ort Rouge, t
, ’Phones: 2750 o« 3282.1
H. E. BIRD
570 MAIN ST,
A meðan strætisvagna-verkfalliö er og þér þurfið að
ganga ætlum við að selja beztu tegund af skófatnaöi .með
lágu verði.
Þetta eru að eins nokkur dæmi:
KARLM. B Calf Bals ágætir vor-skór. Vanalega $3,25.
Á laugardaginn.............$2,50.
KARLM. Buff og Dongola Bals skór. Vanal, $2,00.
Á laugardaginn.............$1,50.
KVENM, skór með lágum hælum. Vanal. $1,75.
Á laugardaginn.............$1,25,
A. E. BIRD
Eftirmaður Adams & Morrison
CAN AD A-N ORÐ VESTURL ANDIÐ
HEGI.UK VIÐ LANDTÖKU.
Af öllum sectlonum meS jafnrl tölu, sem tllheyra sambandsstJörnlnnL
I Manltoba, Saskatchewan og Alberta, nema 8 og 26, geta fJölskylduhöfuB
og karlmenn 18 kra eöa eldrl, teklð sér 160 ekrur fyrlr helmlllsréttarland.
þaö er aö segja, sé landlö ekkl éöur teklö, eöa sett tU sföu af stjórninní
tll vlðartekju eöa einhvers annars.
DTNRITUjr.
Menn mega skrlfa slg fyrlr landlnu & þelrrl landskrifstofu, sem n«sat
Uggiir landlnu, sem teklö er. MeO leyfl lnnanrlklsráöherrans, eöa lnnflutn-
inga umboösmannslns I Wlnnlpeg, eöa næsta Domlnlon landsumboösmanns,
geta menn geflö öörum umboö tll þess aö skrlfa slg fyrir landL Innritunar-
gjaldtö er $10.00.
HEIMUTSRÉUrAR-SKYIJOUR.
Samkvœmt núgildandl lögum, veröa landnemar aö uppfylla helmlU^
réttar-skyldur stnar & einhvern af þelm vegum, sem fram eru teknlr I eft—
lrfylgjandl töluUðum, nefnllega:
1«—Aö böa & landinu og yrkja þaö aö minsta kostl t sex m&nuöl &
hverju érl 1 þrjú ár.
8.—Ef faöir (eöa möölr, ef faðlrlnn er i&tlnn) elnhverrar persönu, sem
heflr rétt til aö skrlfa slg fýrlr heimUisréttarlandl, býr & bttjörö 1 n&grennl
vlö landlð, sem þvlltk persöna heflr skrlfaö slg fyrlr sem heimllisréttar-
landl, þ& getur persðnan fullnægt fyrlrmælum laganna, aö þvt er &búð á
landlnu snertlr áöur en afsalebréf er veltt fyrir þvt, & þann hátt aö hafa
helmlH hjá fööur slnum eöa mööur.
•
S—Ef landneml heflr fengiö afsalsbréf fyiir fyrrt helmillsréttar-búJörS
slnnl eöa aklrteint fyrlr aö afsalsbréflö veröl geflö út, er sé undlrritaö t
samræmi viö fyrirmæll Domlnion laganna, og heflr skrlfaö slg fyrir liöari
heimllisréttar-bújörö, þ& getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, aö þvl
er snertlr &búö & landlnu (siöari heimllisréttar-búJörClnni) &Cur en afsals-
bréf sé geflC út, & þann h&tt aG búa & tyrrl helmlllsréttar-JörCinni, ef siCari
helmilisréttar-JörCin er I n&nd vIC fyrri helmilisréttar-JðrClna.
4.—Ef landneminn býr aC staSaldri & búJörC, sem hann heflr keypt.
teklC t erfCir o. s. frv.) 1 n&nd viC helmilisréttarland þaO, er hann heflr
stkrlfaS sig fyrir, þ& getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, aö þvt er
ábúC & helmlllsréttar-jörClnnl snertir, & þann h&tt aO búa & téCrl elgn&r-
JörC slnni (keyptu landl o. s. frv.).
BEIDNI um EIGNARBRÉF.
ættl aC vera gerC strax eftir aC þrjú árin eru llOin, annaC hvort hj& næsta
umboGsmannl eCa hj& Inspector, sem sendur er U1 þess aC skoCa hvað &
landlnu heflr veriO unnið. Sex mánuðum áöur veröur maöur þö aö hafa
kunngert Dominion lands umboCsmannlnum I Otttawa þaO, aO hann ætll
sér aO biCJa um eignarrétUnn.
UEIDBEINTNGAR.
Nýkomnir innflytjendur f& & innflytjenda-skrifstofunni I Wlnnlpeg, og &
ðllum Domlnlon landskrifstofum innan Manltoba, Saskatchewan og Alberta.
lelCbelningar um þaC hvar lönd eru ötekin, og allir, sem & þessum skrlf-
stofum vlnna veita lnnflytjendnm, kostnaCarlaúst, lelCbeiningar og hj&lp til
þess aC n& t lönd sem þelm eru geðfeid; enn fremur allar upplýsingar viO-
vtkjandl timbur, kola og n&ma lögum. Allar sllkar regiugeröir geta þetr
fengtö þar'geflns; einnig geta irenn fengið reglugerölna um stjðmarlönd
innan J&mbrautarbeltisins 1 Britlsh Columbia, meö þvt aö snúa sér bréflega
U1 rltara innanrtkisdelldarinnar t Ottawa, innflytjenda-umboösmannsins I
Winnipeg, eöa U1 einhverra af Ðomlnlon lands umboösmönnunum t Manl-
toba, Saskatchewan og Alberta.
þ W. W. CORY,
Deputy Minlster of the Interior.
PÁLL M. CLEMENS
byggingameistari,
Bakrr Block. 468 Main St.
WINNIPEG Phone 4887
PRENTUN
allskonar gerö á Lögbargí,
fljótt, vel og rými’lega.
I