Lögberg


Lögberg - 24.01.1907, Qupperneq 5

Lögberg - 24.01.1907, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JANUAR 1907 5 eftir örfáa aö eins.. Loksins komu leitarmenn, sem sendir höfðu veriö til að svipast um eftir vísundum, aftur, og skýröu þeir frá því, aö geisimikil vísundahjörö væri á beit, eigi meira en tvær mílur þaö- an, sem flokkurinn var. Af hæð nokkurri, kippkorn frá okkur, mátti sjá hjöröina, er breiddi sig út um mikiö sléttuflæmi. Þegar svo stóö á, var það brot gegn veiöi ve.ijum flokksins, ef nokkur lagöi á staö til aö hefja atlögu á dýrin fyr en allir voru tilbúnir til aö taka þátt í henni. Var nú mikill handagangur i hópi veiðimann- anna, er allir voru að búa sig. Hver veiöimaöur lierti á hnakk- gjörðum sínum, hlóö riffil sinn og fylti munninn meö byssukúlum, til þess að eiga hægra með aö ‘hlaða’ á sprettinum. Göpilu veiöimenn- irnir aövöruöu hina yngri og lögðu þeim ýmsar þarflegar lífs- reglur. Að því búnu gaf foring- inn merki. Var þá riðið af staö, fót fyrir fót. Komust veiðimenn- irnir svo nærri hjöröinni, áður en vísundarnir sáu þá, að færið var eigi meira en tvö hundruð “yards”. En er dýrin uröu vör viö hættuna geistust þau á stað með háum öskr um og klaufnasparki, og hófust nú veiðarnar fyrir alvöru. Hér um bil að tuttugu mínútum liðnum voru veiðimennirnir komnir inn í miðjan hjaröarhópinn. Keyrðu þeir hestana afskaplega og skutu hverju skotinu á fætur öðru á ör- skömmu færi. í hvert sinn, er vis- undur var feldur að jöröu, kastaði sá, er feldi hann, einhverju á hræ- iö, vetling, húfu, bandi eða öðru smávegis, er meðferöis var haft í Þessu skjuii, til þess áð lielga sér veiðina. Síðan hlóð hann aftur byssu sína eða riffil, án þess að hægja ferðina minstu vitund, hrækti kúlu út úr sér ofan í byssu- hlaupið og miðaði og skaut aftur. Þetta var ógurlega tryllingsleg veiðiaöferð, svo æsandi, aö blóðiö hlaut áð hitna, jafnvel í hinum nllra dauflyndasta manni. I hjörð þessari voru á að gizka fimm þús- und vísundar. Það voru ljómandi fallegar skepnur, alt saman bolar. Eg sá enga einustu kú í öllum hópn um. Á einum klukkutima voru feldir eigi færri en fimm hundruð visundar af þessum hóp.” Kane tók þátt í veiðunum. Og skaut hann einn vísund, en særði annan. LTm það atriði segist hon- um sjálfum svo frá: “Eg komst í færi viö gríðarstóran vísund, og var svo heppinn að geta felt hann í fyrsta skoti. Eg réö mér ekki fyrir veiðihug eftir þenna sigur; fleygöi húfunni minni til þess að helga mér dýrið, óg skaut á ann- að litlu síðar. Þaö féll samt ekki við skotið, en stanzaði og leit til mín illilega, rótaði upp jörðinni með framfótunum, og grenjaði af- skaplega. Blóðiö streymdi út úr munninum á því, og eg hélt að það mundi detta dautt niður eftir fáar minútur. Vísundurinn var svo tignarlegur, þar sem hann stóð þarna og var að berjast við dauð- ann, að eg gat ekki á mér setið að draga upp mynd af honum. Eg sté því af baki og byrjáði á myndinni, en þá tók dýrið undir sig stökk og æddi á móti mér. Eg fékk naumast tíma til að henda mér á bak á hestinum, og forða mér undan, en varð að skilja eftir teikniáhöldin og byssuna.” Samt tókst Kane aftur að ná í dót sitt og riffiliún og skjóta vís- undinn. Myndin af þessu dýri kvað vera í málverkasafni því, er hann hefir látið eftir sig. Sýnir þ^ssi atburður, að Kane lét fæst fyrir brjósti brenna til þess aö fá því augnamiði framgengt, er hann hafði sett sér á ferðum sínum um landið. Á leiðinni til tjaldstaðarins reið Kane fram á nokkra veiðimennina, er þvældu á undan sér fáeinum særðum vísundum áleiðis heim. Gerðu þeir það til þess að greiða fyrir flutningnum, sem var allerf- j iður. Um veiðiskapinn segir Kane ; svo, áð hann hyggi, að árlega hafi j Kynblendingar einir drepið eigi færri en þrjátíu þúsundir vísunda. Kveðst hann hyggja, að þeir hafi notað mest af þeim.að minsta kosti skinn og kjöt. Eftir að vísundaveiðarnar voru afstaðnar, sneri Kane aftur með íylgdarmanni sínum til FortGarry. j Voiru þeir á leiðinni þangað hálf- smeykir við, áð Sioux Indíánarnir mundu gera árás á þá, eftir það sem á undan var gengið. En eigi er svo að sjá, að þeir hafi samt lent í neinar skærur á þessari leið. Aftur á móti gekk þeim ferðin seint, því að fylgdarmaðurinn var mjög veikur og dó hann áður en Kane kom til virkisins. Segir Kane að mislingar muni hafa orðið hon- um aö bana, og hafi sú veiki um þær mundir verið allskæð meðal Indíána og Kynb’endinga. Frá Eort Garry hélt Kane vest- ur á bóginii til Saskatshewan Feiðaðist hann fyrst með báta- flota Hudsons Bay félagsins upp eftir Saskatchewan-fljóti. Getur hann þess, eins og til skemtunar og fróðleiks, að meðal flutnings þess, er á þeim bátaflota var, hafi verið grávöruskattur , er Hudsons Bay félagið hafi greitt og sent Rússa- I stjórn, sem endurgja'd fyrir að í hafa veiðileyfi og bólstöðvar í Al- j aska. En skatturinn var fimm þús- I und oturskinn, þau völ 1 ísti'. og beztu, er auðið var að fá við Mac- kenziefljót, og voru þau Lutt vatna j leiðina og afhent í Sitka. Kane þótti alldauflegt að ferð- ast með bátunum og sté því í land, er hann átti fáar dagleiðir eftir til Edmonton, og ferðaðist þangað landveg méð fylgdarmanni. Um þá landferð fer hann svo feldum orðum: „Síðustu dagana, sem við vorum á leiðinni til Edmonton, voru allar slétturnar,sem við fórum um, krök- ar af vísundum. Varð okkur meira að segja erfitt áð komast áfram fvrir dýrunum, og lá stundum við köfnun af rykmekkinum, er hjarð- irnar þyrluðu upp alt í kring um okkur.” Samt ber frásögn Kanes það með sér, að hann hafi eigi gengið áð því gruflandi, að vís- undarnir mundu á skömmum tíma verða upprættir, enda ganga ýms- ar sögur um eyðilegging þeirra hér glæp næst. Kynblendingar segir hann að drepið hafi mikið af dýrum þessum, en hafi þó notað mest af þeim, sem þeir veiddu. Aftur á móti ber Kane Indíánum ver sÖguna. Segir hann að þeir hafi felt ógrynni af þessum dýrum beinlínis sér til gamans.. Bæ'öi hafi vísundarnir verið veiddir miskun- arlaust á sléttunum og víða með frarn Saskatchewanfljóti hafi ver- ið stórar krár fullar af visunda- beinum. Þangað höfðu Indíánar flæmt stóra hópa af dýrunum og drepiö, en muni minst af þcirri vefði hafa notað. Koman Hl Bdmonton Daginn sem Kane kom til Ed- monton, komst hann og fylgdar- maður hans í mikla hættu af skóg- areldi. Áttu þeir í það skifti frá- leik hesta sinna fjör að launa. Engar vænlegar framtíðarspár 'ætur Kane í ljósi um Edmonton. Það var þá eitt virki Hudson Bay j ídagsins og lýsir Kane því árið 3846 á þessa leið: ‘T Edmonton eru töluverðar brggirgar, og er það ekki nema eölilegt, þar eð föng eru sótt þang- ftð allviða að, og þarf því að geyma þar töluverðar vörubirgðir. Þar er forðabúr fyrir ýms matvæli, þurk- að kjöt, tungur og “pemmican" ókæfuj. Meðal íbúanna má telja yfirumbo'ðsmanninn, skrifara lians og fjörutiu til fimtíu aðra karl- menn. Ásaiíit konum þeirra og börnum eru íbúar þar um hundr- að og þrjátíu manns. Atvinnuveg- ir, sem þar eru stundáðir, eru að- allega bátasmíðar, og að saga við. Starf kvenmanna þar, sem því nær allar eru annaðhvort Indíánakonur eða Kynblendingar, er að sauma “:uoccasins”, fatnáð handa karl- mónnunum, og búa til “pennican” úr þurkuðu kjöti.” Eigi stóð Kane nema stutt við i Edmonton á vesturleið og beið þar að eins til að ná í bátaflota, er fór upp eftir Athabascaánni, vestur til Klettafjallanna. Feröaðist hann með flotanum upp eftir þeirri á, og fór fram hjá Jasper House, er stendur skamt frá upptökum ár- innar í Klettafjöllunum. \ estur hélt Kane yfir fjöllin og síðan báta leiðina suður eftir Columbia fljót- inu. Tólf hundruð mílurnar niður til mynnis Columbiafljótsins fór hann á fimtán dögum. En sömu leiðina til baka komst hann samt eigi á skemri tíma en fjórum mán- uðum. Síðasti áfangastaður báta- flotans var Fort Vancouver í Ore- gon (sem eigi má blanda saman við borgina. Vancouver í British ColumbiaJ. Er það örskamt frá mynni Columbiafljótsns. Kane dvaldi þar mánaðartíma. Eftir það hélt hann norður til Camosum, eða Fort Victoria, sem þá var far- ið að kalla þann stáð á Vancouver- ey, og hefir það nafn haldist síðan. Þ a.r dvaldi Kane í tvo mánuði hjá manni þeim, er Finleyson hét, og var umboðsmaöur Hudson Bay félagsins. Eigi var fleira fólk þá í Victoria en tíu menn hvitir og fjörutíu Indíánar. Kane lagði það- an í landkönnunarferð um sundin i grend við þan nstað, er Vancouv- erborg stendur nú, en brátt varö hann að hverfa aftur úr þeirri ferð, sakir áreitni Indiánanna. Meðal kjörgripa þeirra, er Kane fénaðist hjá Indíánunum í þessari ferð, var ábreiða ein, gerð úr ull af fjallafénu, og höfðu Indíánar verið svo árum skifti að búa hana til. Eins og gefur að skilja, var eigandinn tregur til að láta þenna kjörgrip af henidi, en þó gat hann eigi staðist kostaboð þau, er Kane bauð honum; en það voru fimm pund af tóbaki, tíu sköthylki, ein ábreiða, tvö talnabönd, tvær köfl- óttar skyrtur, og síðast en ekki sízt, tvö lóð af rauðum lit. Ef Kane hefði ekki verið málari, eru lítil líkindi til að kaupin liefðu gerst. En þegar hann tæmdi tnál- krukku sína og seldi ábreiðueig- andanum rauða litinn í hendur, gat hann ekki staðist mátið. Samt var Kane svo hræddur um að seljandi myndi von bráðar rifta kaupunum, að hann hráðaði sér brott með á- breiðuna, strax og hann var búinn að taka á móti henni. Öðrum Indíána, gömlum for- ingja, varð hann að gefa heila tó- baksplötu, til að mega draga upp mynd af honum; en Kane þótti það kjarakaup. vegna þess, að sá Indíáni var svo afskaplega ljótur ásýndum, að varla átti hann sinn líka meðal kynflokks síns. Annars segir Kane svö frá, að honum hafi gengið tregt að fá Indíána til að lofa sér að mála þá. En með því að hann var djarfur máður og einbeittur, tókst honum oftast að ná myndum af þeim rauðskinnum, er hann reyndi til við. Dálítið sýnishorn af því má sjá af þessum orðum hans sjálfs: “Einu sinni fór Bandáríkjamað- urinn dr. Whiteman, í Oregon, með mér til híbýla Indíána nokk- urs, sem hét Soma-kus. Ætlaðist Whiteman til þess, að eg málaði mynd af honum. Við fundum In-: díánann i kofa sínum. Sat hann þar allsnakinn. Aldrei hafði eg séð grimmúðugra andlit á nokkr- um manni, heldur en á honum, né illilegra augnatillit. Hann varð þess eigi var, hvað eg var að gera, fyr en eg var rétt að segja búinn méð myndina. Kom liann þá til mín og leit á hana, og spurði mig, hvað eg ætlaði að gera við hana. Hvort eg ætlaði að gefa Banda- rikjamönnum hana. Leyndi það sér ekki, að honurn var meira en lítið þungt í skapi til þeirra. —Svo ætlaði hann að fleygja myndinni í eldinn, en eg gat þó hrifsað hana af honum áður en hann gat komið því við. Hann hvesti á mig augun og var sem eldur brynni úr þeim, en áður en hann kom sér fyrir me'ð að ráðast á mig, vorum við White- man komnir út og á bak hestum okkar. Hleyptum við svo á burt frá kofanum svo hart sem hestarn- ir komust, því að við bjuggumst við örfadrífu á eftir okkur frá rauðskinnanum, sem við höfðum móðgað með því að taka mynd af honum. Þegar eg málaði myndir af Indi- ánum, var eg vanur að ganga rak- leiðis inn í kofa þeirra, og byrja á myndunum án þess aö segja eitt einasta or'ð, því að venja Indíána er þá að þegja líka og láta sem þeir sjái eigi komumann, ef eigi er til þeirra talað að fyrrabragði. Ef þeim gazt illa að því, sem eg var að gera, voru þeir vanir að standa upp og ganga burt. Bæði eg þá áð bíða og fara eigi ,neituðu þeir því vanalega, og var sem þeim þætti það niðurlæging fyrir sig, að taka slíkar óskir til greina.” Einkennilegur póstflutningur. Meðal hinna einkennilegu sið- venja á vesturströndinni,sem Kane lýsir, er póstflutningurinn á þess- | um tímum. Er lýsingin þannig: “Umboðsmenn þeir, sem höfðu yfir hinum ýmsu virkjum Hudson Bay félagsins í Norðvesturlandinu j að ráða, þurftu oftsinnis, eins og lög gera ráð fyrir, að senda skrif- uð skeyti hver til annars, og’ ó- j sjaldan býsna langar leiðir. Var þá tíðast vænja áð fá bréfið í hend- j ur einhverjum Indíána, er lofaðist til að koma því eins langt og hann treysti sér til eða vildi. Þegar hann var kominn á þann stað, er um var samið við hann, seldi hann bréfið ö'ðrum Indíána, sem bar það þangað til hann gat aftur selt öðr- um Indíána það; þannig var hald- ið áfram að kaupa og selja bréfið þangað til þáð var komið á ákvörð- unarstað sinn, en alt af jókst verð þess (flutningskostnaðurinn), eft- ir því, sem bréfið komst lengra á- leiðis. Síðasti bréfberinn tók svo vi'ð laununum fyrir flutninginn af bréfseiganda. Á þenna hátt bár- ust bréf manna á milli, furðu skil- víslega og miklu greiðar, en þá var hægt að koma við með nokkru öðru móti.” Það var í Októbermánuði 1846 sem Kane lagði á stað frá Edmon- ton í ferð sína vestur að hafi, en ekki fyr en í Nóvembermánuði ár- ið eftir komst hann austur fyrir Búðin þægilega. ^48 Ellice Ave. Hinar miklu vörubirgðir vorar seljum vér nú langt undir nafn- verði. Vér þurfum rúm fyrir vor- vörurnar. Munið eftir fimtudags- kjörkaupunum hér í hverri viku. Hér á eftir er upp talið fátt eitt af kjörkaupunum: Stór grá blankets, ágætlega góð, vanal. á $2.75—$4.25. Nú á $1.99. Cotton flannels, sérstaklega góð, fyrir hálfvirði. Kvenblouses, ýms- ir litir. fyrir minna en hálfvirði. — Munið eftir að koma og skoða vörumar. Allir hlutir i búðinni rrteð niður- settu verði. Munið eftir fimtudags kjörkauj>- unumb. Hér eru heimkjmni kjörkaup- anna. Klettafjöllin til Jasper House. Þáðan hélt hann áfram ferð sinni austur eftir ásamt nokkrum ferða- mönnum, og sakir snjóþyngsla, sem komu þegar ' á öndverðum þeim vetri, urðu þeir að ganga á j þrúgum alla leið austur til Edmon- ton. Var Kane óvanur að ferðast me'ð þeim hætti og þoldi illa að ganga á þrúgunum, enda var ferð- in hin erfiðasta, ófærð mikil, vistir af skornum skamti og tíð óvenju- lega köld. Eftir miklar þrautir I komust þeir loks til Fort Assini- ) boine, og skömmu áður en þeir j náðu þangað voru þeir orðnir svo j aðþrengdir, að við sjálft lá, að I þeir slátruðu tveimur hundum, sem j þeim fylgdu, og legðu sér til j munns kjötið af þeim. Rétt fyrir jólin komust þeir til Edmonton, og sátu þar í allgóðum fagnaði fram yfir hátíðina. Mál- aði Kane þar mynd af fallegustu Kynblendingastúlkunni í Edmon- ton. Setur hann þá mynd fremsta í bók sinni. Á leiðinni austur eftir Saskat- chewanánni hitti Kane þá Sir John Richardson og dr. McRae, er voru ! þar á tveimur bátum, og ætluðu til Mackenzie-fljótsins áð leita að Sir , John Franklin. Munu þessir tveir nýnefndu menn hafa verið einhverjir hinir j fyrstu, er sendir voru til að leita I norðurfarans, en þá voru tæplega jþrjú ár liðin frá því hann hafði lagt á stað frá Englandi i leiðang- ur sinn. Þáð, sem eftir var ferðarinnar ; austur eftir, gekk óhappa- og stór- j viöburða-laust að kalla mátti, og kom Kane til Sault Ste Marie, við sundið milli Lake Superior og Lake Huron eftir hæfilega langa ferð frá Edmonton. Lýsir hann siðasta áfanganum. j sem þá var eftir heim, þannig: “í Sault Ste. Marie er óhætt að j segja, áð lokið hafi verið ferðalagi mínu meðal Indíána, því að þaðan ! af ferðaðist eg með gufuskipi aust- j ur til Toronto, og það eina, sem mér varð til ama á þeirri leið var það, hve erfitt mér féll að sofa í hinum mjúku sængum, er farþeg- unum voru búnar á skipinu.” Hér meö auglýsist að vér höf- j um byrjað verzlun að 597 Notre j Dame Ave. og seljum þar góðan, brúkaðan fatnað. Sýnishorn af verðlaginu: Karlm. buxur frá 25C. °g þar yfir. Kvenpils frá 20C. Kventreyjur frá ioc. Þetta er að eins örlitið sýnishorn. Allir vel- komnir til að skoða vörurnar þó ekkert sé keypt. The Wpeg High Class Second-hand Ward- robe Company. 597 N. Dame Ave. Phone 6539. beint á móti Langside. Lán út á fasteignir. Eg er nú reiðubúinn að lána bæði peninga og lífsnauðsynjar öll- um þeim, sem vilja gefa nægilega tryggingu, svo sem verðmæt lönd. Þetta fæst gegn átta prct. rentu, sem er sú lægsta renta er hægt er að fá peninga fyrir í öllu landinu. Undir þessum kringumstæðum geta engir sagt, að þeim sé neitað um lán ,nema þeir, er enga trygg- ingu vilja gefa, en sem >þó klaga kaupmenn fyrir að vilja ekki góð- fúslega lána hverjum það sem hafa vill, án þess að hafa nokkum staf éða nokkra tryggingu fyrir. Alla þá, sem hafa borgað mér að fullu einu sinni á hinu liðna ári, á- lit eg góða viðskiftavini mina, og vil eg þakka þeim fyrir öll okkar viðskifti. Stefán SigurSsson, Hnausa, Man., 14. Jan. 1907. Caitns, Sajlor Co. Eftirmenn J. F. FUMERTON & CO- GLENBORO, MAN. Mikið niðursett verð á öllum vörum. Margra dollara sparnaður ef þér notið tækifærið. Þetta er kjörkaupatiö. Vér hyggjum, að allir muni viðurkenna að vér höf- um bætt verzlunina síðan vér kom- um til Glenboro. Nú getið þér sparað yður peninga, i hvert skifti sem þér komið til Glenboro, með því að verzla hér í búðinni. Vér ábyrgjumst að vörurnar séu af beztu tegund. Wagstaffs Jam*— Þetta er eitt hvert það bezta jam, sem fáanlegt er í Canada, búið til úr beztu Canada ávöxtum eftir enskri fyrir- sögn. Selt i tinfötum. Kosta þær vanal. 75C. Söluverð nú 10 cent. Bezta tegund af döðlum, 8c. pd. Döðlurnar eru i pökkum, er vanal. eru seldir á ioc. Kosta nú 8 c. Fikjur.—Beztu borðfíkjur, i tíu punda kössum. Vanal. verð 12JÚ c. pundið. Söluverð nú 10 c. vj - ' Græn epli—Bezt að ná i eina tunnu af þessum eplum, Baldwins og Ben Davis tegundir, á $3.95 tunnan. Rúsínur—Valencia rúsinur, — betri tegund en nokkurn tíma áður. Vér erum búnir að selja 1,000 pd. af þeim undanfarna daga. Þær kosta vanalega 15C. pundið. Söluver'ð nú 8 c. pd. Niðursoðnar pumpkins — Bezta tegund af niðursoðnum pumpkins. Vanal. á I2j4c. pundið. Söluverð nú 10 c. pd. Sirz og Wrapperettes. — Bezt að nota tækifærið á méðan verðið er lágt. Þau eru falleg og af beztu tegund. Vanal. veið 15C. Útsöluverð nú ioc. 1 Kvenpils—Betri tegundir en áð- ur hafa nokkru sinni verið seldar hér í bæ. Búin til úr ágætu Friez og Tweed. Af ýmsum stærðum. Kosta vanal. $5, $6 og $7. Nú seld á $3.00. Kjólaefni fyrir hálfviröi. —Mik- íö af kjólaefnum ljósleitum og dökkleitum. Nú fyrir hálfvirði. Karlmanna og drengja fatnaður með 20% afslætti. Sleppið ekki þessu tækifæri. Nóg úr áð velja. t&m*- ■ Loðfóðraðar karlm. yfirhafnir— Hvergi betri kaup. Ýfirhafnirnar eru fóðraðar með dökku Canada rottuskinni og méð oturskinns krögum. Að eins þrjár eftir. Sérstakt verð $40. Karlm. flókaskór — 25% sparn- aður að kaupa þá hér. Vanal. verð $3, nú $2. Vanal. verð $3.50, nú $2.75. CAIRNS, NAYLORCO GLENBORO, MAK.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.