Lögberg - 07.03.1907, Blaðsíða 2

Lögberg - 07.03.1907, Blaðsíða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. MARZ 1907 10 Ávarp Edwards Brown til íbúa Manitoba-fylkis. EFNl: — Askorun leiðtoga liberalflokksins. — Astœðan fyrir því hvers vegna flýtt er svo mjög fyrir kosningunum. — Eru íbúar Manitoba áncegðir með aðgerðir Roblin-stjórnarinnarf. — Abyrgð fylkis- stjórnarinnar á samgöngu-ólaginu. — Hvað liberalar cetla að gera, ef þeir komast til valda. TIL KJÓSENDANNA I MANITOBA! Herrar mínir! — Fylkisstjórnin í Manitoba hefir gripiö til þess úrræðis að drífa kosningarnar af í öndveröum þessum mánuöi. Meö þvi aö hraöa kosningunum svona tryggja þeir sér þaö, að þurfa ekki að opinbera þaö fyrir almenningi, hve mikil einlægni hafi fylgt máli hjá þeim, bæði aö því er “Grain Combine” máliö snertir og stofnsetning talþráöakerfa, fyr en eftir aö skoriö hefir verið úr því mdð atkvæöagreiðslu hvor flokkurinn skuli völdum halda næstu fjögur árin. Tilnefningardagurinn var ákveðinn, hinn síö- asta fyrra mánáðar, og nú Hggur fyrir yður að skera úr þvi með atkvæðum yðar 7. þessa mánaö- ar, hvort þér eruö ánægðir með núverandi fylkis- stjórn, og eruð reiðubúnir til aö láta hana halda völdunum næstu fjögur ár, eöa hvort þér hafið á- sett yður aö fá aðra hei'ðvirðari og ósérplægnari stjórn til að stýra þessu fylki. Fylkisstjórnin hefir ákveöið kosningarnar á þeitn tíma, er að vísu niá ganga aö fjöldamörgum bændum út um land verði mjög erfitt og sumum enda lítt mögulegt að ná til kosningarstaða til að greiða atkvæði. En jafnvel þó að stórviðri, sam- göngubönn með járnbrautum og illir vegir torveldi mönnum að greiða atkvæði í þessum kosningum, væntum vér að sérhver kjósandi telji það skyldu sína, að fara á kosningarstað sinn og greiða at- kvæði eftir sannfæringu sinni með heiðarlegu móti, einhverju þingmannsefninu, sem um er að gera. Á þann hátt að eins gefst kostur á áð í 1 jós komi hinn eindregni alþýðu vilji, sem vera skyldi vald það, er réði í landi hverju. Fylkisstjórnin, sem nú er við völdin, hefir ver- ið heppin með það, að bæði fyrir handleiðslu for- sjónarinnar og hina affarasælu stefnu sambands- stjórnarinnar ’i innflutningamálunum hefir hagur íbúanna í Canada yfir höfuð farið mjög batnandi á síðari árum. Næstliðin sjö ár hefir verið góðæri, ríkuleg uppskera, mikill tekjuauki hér i Manitoba fylki, eins og annars staðar í landinu. Hvernig hefir fylkisstjórnin hagnýtt sér þessi hlunnindi ? Plefir bændunum liðiö betur? Stend- ur akuryrkjan meö meiri blóma? Hafa skuldir fylkisins færst niður og stofnféð aukist? Er bónd- inn ánægður með það, sem hann hefir fengið í aðra hönd fyrir erfiöi sitt? Er hann ánægður með sölusamkepnina á hveitinu sínu? Er hann ánægð- ur með það, hve hægt hann á með að koma korn- tegundunum, sem hann ræktar, á bezta markaöinn? Þessum spurningum er sérhverjum kjósenda nauðsynlegt að svara áöur en hann greiðir atkvæöi, sem og öðrum, er mikils er um vert fyrir hann. Sjálfur vildi eg leyfa mér að beina þeirri spurn- ingu að yður, kjósendum í bæjunum og borgunum sérstaklega, sem og yfir höfuð öðrum, er út um land búa, hvort þér eruð ánægðir með hinn siðferð- islega árangur af conservatívu stjórninni? Eruð þér ánægðir með hið ósæmilega vinsölu-fargan? Hin margsviknu loforð stjórnarinnar ? Eruð þér ánægðir með að vínsöluleyfum sé þrengt upp á sveitafélög í óþökk við íbúana, og að aðal-merkis- berar stjórnarinnar í kosningabaráttunni séu ill- ræmdustu vínsölu-seggirnir, sem hægt er að benda á í öllu fylkinu? \ Eg beini máli mínu til yöar, ibúar Manitoba- fylkis, hvaða flokki og hvaða stétt, sem þér heyrið til og spyr: Fallist þér á aðgerðir fylkisstjórnar- innar, er hún svifti giftar konur atkvæðisrétti í sveitamálum, um eitt ár, til þess að greiða fyrir þvi, að vínsala kæmist á í vissum sveitafélögum, og voru tvö þau sveitarfélög í Dufferin-kjördæm- inu, sem kosið hefir stjórnarformanninn (Hobliný fyrir málsvara sinn? Núverandi fylkisstjórn náði völdunum meö því að gera fjárspamað og umbætur að aðalatriðum stefnuskrár sinnar. Á næstliönum sjö árum hefir henni innhenzt $5,135,398.56 tekjuauki fram yfir þaö, er stjórninni á undan barst í hendur á jafn- löngum stjórnartíma. Og enda þótt conserva- tíva stjórnin er nú heldur völdunum hafi lagt fram minna fé til almennings þarfa en hin liberala, er fé það, er hún getur nú sýnt í sjóði, eigi meira en $812,000. Sú litla upphæð að eins er nú eftir af öllum tekjunum. Til að vega upp á móti þessu sjóðfé, þessum $812,000, sem stjórninni hefir tekist að draga sam- an á sjö árum, hefir hún aukið beinar skuldir fylk- isins sem svarar $500,000 og óbeinar skuldbinding- ar svo $23,155,000 skiftir, að ótaldri landþurkunar- véðskulda-ábyrgöinni. En jafnhliða hefir stjórnin selt 1,243,263 ekrur af fylkislöndum, stofnfé fylk- isins, en hefir aö eins $919,086 innstæðufé í opin- berum byggingum og því líku til að leggja á móti því. Ef vér snúum oss aftur að landsölu-aðferð fylk- isstjórnarinnar, sjáum vér, að hún hefir fargað 60 prócent af öllum fylkislöndunum, sem komist hafa undir hennar hendur síðan árið 1900, og eytt öllu fénu, sem inn hefir komið fyrir þau, eins og það værú venjulegir tekjuliðir. Meðalverðið á lönd- um vorurn, sem stjórnin hefir selt, hefir verið $2.86 ekran. Á þessu verði hefir stjórnin ekki vílað fyr- ir sér að selja löndin, jafnvel þó þau hafi verið að stíga jafnmikið í verði og ölltim íbúum hér í Vest- ur-Canada er kunnugt, og þó að bæði Dominion- stjórnin, C. P. R. og Hudson Bay félagiö, sem og þau félög önnur, er mikið af löndum hafa selt, hafi áð meðaltali selt sín lönd á 9—12 dollara ekruna. Löndin, sem fylkið átti, þegar núverandi stjórn þess kom til valda, voru ekki tóm flóalönd, heldur* voru meðal þeirra sem næst 800,000 ekrur af ágcet- is, úrvals-járnbrautarlöndum í Manitoba og Sas- katchewan, og eru þau nú öll að heita má seld. Ef þessi lönd hefðu verið seld nýlendumönnum á áöurnefndu svæði, til að efla innflutning og stofnun nýrra og blómlegra bygða, þá hefði þjað verið málsbót fyrir fylkisstjórnina. En af mönnum, sem beinlínis hafa verið nýlendumenn, og ekkert annað, hefir jaínan verið heimtað hæsta verð fyr- ir lönd, þann'.g að af sumum þeirra hefir stjórnin hfimtað $12 fyrir ekruna. Ástæðan fyrir því að meðalverðið, sem stjórn- •'n hefir fengið fyrir löndin, er jafn-lágt og áður er tekið fram, er sú, að feikistór landflæmi, milli /,000 og 250,000 ekrur að stærð, hafa verið seld unuin stjórnarinnar á verðinu frá $1.56 til $3.50 ekran. Fylkisstjórnin komst til valda fyrir þjóðeigna- loforð sín og hélt þau í tíu daga—timabilið, sem leið á milli þess að samningarnir voru gerðir fyrst við Northern Pacific félagið og siðan við Canadian Northern félagið. En Victoriadaginn næstan á undan síðustu kosningum fullyrti Mr. Roblin, að með samningnum við Canadian Northern félagið "hefði fylkisstjórnin fengið eins ótakmörkuð og fullkomin yfirráð í hendur eins og ef hún hefði tekið að láni tuttugu miljónir dollara og sjálf látið leggja hverja einustu mílu af járnbrautum félags- ins." Kjósendum allsstaðar i fylkinu er fullkunnugt um hvernig hveitiflutningarnir brugðust si’ðastliðið haust, og hversu gersamlega Can. Northern félagið hefir brugöist og ekki uppfylt samningana um flutninga nú i vetur. Yfir Can. Pac. járnbrautar- félagið hefir hið sama gengið hvað tíðarfarið snert- ir, en ekki hefir það hætt öllum tökum, látið braut- ir sinar eiga sig eða látið almenning hafa fyrir þvi sjálfan að reyna að halda þeim auðum. Canadian Northern félagið, hafandi í höndum ábyrgð fyrir hér um bil tveggja miljóna og sex hundruð þús- und dollara fjárveitingu, er fylkisþingið sérstak- lega samþykkir til þess að félagið geti aflað sér nægilegs útbúnaðar, hefir sýnt og sannáð, að það er allsendis gagnslaust og skeytir hvorki um skömm né heiður. Og Mr. Roblin hefir, frá sæti sínu á síðastliðnu þingi, komist í algerða mótsögn við allar hinar fyrri yfirlýsingar sinar er hann varð að viöurkenna að: "vér höfum engu meiri yfirráð yfir Canadian Northern félaginu og aðal-aðgerðum þess hetdur en yfir Canadian Pacific járnbrautarfélaginu.” — Og jafnframt gaf hann það til kynna, að einu for- réttindin, sem Manitoba hefir í þokkabót fyrir hina geisimiklu ábyrgð almennings til þessa brautar- félags, séu í þvi innifalin aö halda áfram að standa í ábyrgð fyrir það þangað til veðböndin eru leyst. Hin núverandi fylkisstjórn ber beinlínis ábyrgð á núverandi ástandi hvað járnbrautir 5 Manitoba snertir, sökum þess aö hún breytti tölu þeirra úr þremur og í tvær méð framkomu sinni árið 1900, og ennfremur útilokaöi hún tvö önnur félög, sem buöust til aö leggj a hér brautir á árunum 1900 og 1902. í staðinn fyrir fimm járnbrautafélög, er keptu hvert við annað, höfum v«r liaft, alt þangað til Midland-félagið kemur til sögunnar nú í ár, að- eins tvö járnbrautarfélög, Canadian Pacific fél. og Canadian Northern félagið. Ábyrgðin á hinu nú- verandi óþolandi ástandi, hvað járnbrautamálin snertir, hvilir því eingöngu á herðum fylkisstjórn- arinnar í Manitoba, sem enn fremur frá því Grand Trunk brautarlagningin kom til umtals, ekki hefir farið neitt dult með óbeit sína á því, að leyfa nýj- um keppinaut að komast að. Þá hafa og ekki einstakir meðlimir stjórnarinnar sparað að láta í Ijósi fjandskap sinn gegn nýrri járnbrautarlagn- ingu. Það voru vínsölubanns-loforðin, .sem lyftu stjórninni upp í valdasessinn, en við fyrsta tæki- færi braut hún þau loforð, og þó eitthváð tuttugu og tvö sveitafélög hafi með eigin samþyktum tölu- vert minkað vínsölusvæðið, hefir þó núverandi fylk- isstjórn aukið tölu vinveitingaleyfanna frá 167 og upp í 254, ne\ tt vinveitinga’eyfum upp á hvert hér- aðið á fætur öðru þrátt fyrir mótmæli íbúanna, á- lyktanir dómstólanna og sín eigin ákveðnu og ein- dregnu loforð, eins og t.d. átti sér stað hvað Nor- wood snertir. Hún hefir komið í veg fyrir að hægt væri að koma fram hegningu og ábyrgð á hendur þeim mönnum, er brotið hafa vínsölulögin og opinberlega verið í bandalagi við vinsölumenn- ina. Eruð þér ásáttir með að leyfa vínsölumönn- unum að kjósa þingmenn og ráða lögtlm og lofum á fylkisþinginu ? Sé svo, þá er það skylda yðar að styðja Roblin-stjórnina. Viljið þér eiga fleiri ár enn við þessi kjör að búa eða ekki? Er vér förum fram á að þér greiðið atkvæði með andstæðingum núverandi fylkisstjórnar, höf- um vér ekki óákveðna og staðlausa stjórnarstefnu fram að bjóða. Hinn endurmyndaði liberalflokkur æskir atkvæða yðar með uppbyggilegri framfara- stefnu. Vér heitum því, ef þér heiðrið oss með til- trú yðar, að gefa nákvæman gaum að akuryrkju- málum fylkisins og skipa sérstakan akuryrkjumála- ráðgjafa, sem verji tíma sínum eingöngu í þarfir þessarar stærstu atvinnugreinar fylkisins. Vér heitum því að láta rannsaka alt, er að hveitiflutn- ingunum og geymslu þess viðvikur, í því augna- miði að hjálpa bændunum, og munum annað hvort láta byggja nægilega margar kornhlöður, er fylkis- stjórnin sjálf eigi, eða stærri kornhlö'ður og færri, eftir því sem bezt hentar. Vér ætlum oss einnig greiðlega og hæfilega eftir þörfum,en að öðru leyti sem í voru valdi stendur, að haga samgöngunum greiðlega og hæfilega eftir þörfum, en að öðru leyti munum vér, þar sem oss skortir vald til að skerast í leikinn, leggja umkvörtunarefni vor undir úr- skurð járnbautamálaneíndarinnar í Canada til þess að fá bætur ráðnar á því sem ábótavant kann að vera. Vér munum neyða Can. Northern járnbrautar- félagið til þess að framfylgja samningi þeim, sem þaö hefir gert við fylkið, og veitir félaginu svo verulegan styrk af hendi fylkisbúa. Vér munum leggja járnbrautir þar og þá, er þeirra gerist þörf, en ekki halda áfram hinum takmarkalausu og stór- kostlegu veðskuldaábyrgðum, sem átt hafa sér stað að undanförnu, og munum gera vort ítrasta til að koma á samkepni milli hinna ýmsu járnbrautafé- laga. Vér munum með því að koma á umferða- kenslu í mjólkurmeðferð, fyrirlestrum um búnað, aðstoð í því að velja útsæði og ríflegum styrkveit- ingum til búnaðarfélaga, ekki eingöngu'gera land- búnaðinn að ábatavænlegri atvinnugrein en verið hefir, heldur og veita bændunum hjálp til þess að geta staðist samkepni þá, er þeir bráðlega mega eiga von á af hendi akuryrkjumannanna, sem hafa tekið sér bólfestu fyrir vestan Manitoba-fylki. Vér heitum því, að auka styrkveitinguna til hinna almennu undirbúningsskóla, breyta örlátlega við hina hærri mentaskóla og yfir höfuð að tala gefa mentamálunum nákvæman gaum, í samráði við mentamálaráðgjafa, er gefi sig allan við þeim störfum er að mentamálum lúta. Vér munum framfylgja alþýðuskólalögunum hlutdrægnislaust og án neinna ívilnana. Ekki mun- um vér láta það viðgangast, að veita stjórnarstyrk þeim skólum er ekki uppfylla fyrirmæli alþýðu- skólalaganna, og vér munum ötullega verja rétt fylkisins til einka-yfirráða hvað mentamál þess snertir, verði á hann ráðist. Jafnrétti öllum til handa; engin sérstök einkaréttindi! Þ'að er heróp vort. Landeignum fylkisins munum vér verja til al- mennings heilla, og að eins selja þær á þann liátt, að almenn samkepni komist að, eða þeim mðnnum sem landnemar eru og annað ekki, og verður and- virðinu fyrir slík Iönd varið til þess áð mæta borg- un upphæða þ^irra, er löndin standa að veði fyrir. Vér munum fara sparlega og hyggilega með almanna fé, og með niðurfærzlu á kostnaðinum við fylkisstjórnina spara árlega 250,000 dollara út- gjöld, er varið verður aftur til mentamálanna. Vér viljum glæða ástina til fána landsins og láta útskýra þýðingu hans i skólunum, en ekki munum vér álíta nauðsynlegt að leitast við að efla drott- inhollustuna með hótunum um hegningu skóla- kennurum né skólanefndum til handa, þó ekki blakti fáninn yfir hverju skólahúsi, né telja slíkt skort á drottinhollustu, sem lemja þyrfti inn í þá með ógnunum og hótunum um synjun fjárstyrks eða kensluleyfis. Vér ætlumst til að stjórnin taki að sér mál- þráðalagningu til þess áð koma í veg fyrir að sveitarfélögin þurfi að baka sér mikinn kostnað og takast á hendur þunga ábyrgð með þvi að leggja slika þræði og standast samkepni út í frá. Vér munum framfylgja lögum fylkisins hlut- drægnislaust, en ekki láta stjórnast af neinum póli- tískum hagsmunum. Vér munum veita ríflegan styrk til vegabóta og brúarsmíðis og láta oss ant um samgöngubætur, en andstæðir munum vér verða allri óþarfaeyðslu og umsóknum um styrk- veitingar af almannafé i pólitísku augnamiði. Vér ætlum að veita fylkinu heiðarlega, réttláta °g hyggilega forstöðu hvað vínsölumálið snertir, og fara i þeim efnum eftir óskum fylkisbúa, og ætíð láta atkvæðagreiðslu þeirra skera úr hvort vínsóluleyfi skuli veitt eða því hafnað, og eins um það, hvort fækka skuli vinveitingaleyfum í ein- hvei.ii. s\eitarfelagi eða kjördeild. Eftirlitsmenn þeir, er skipaðir verða, skulu vera heiðarlegir menn og úrskurði þeirra skal ekki haggað með áhrifum af hendi stjórnarinnar né skoðanabræðra þeirra í stjórnmálum. Ef þér heiðrið oss með tiltrú yðar, munið þér komast að raun um, að yður sé ætíð óhætt að reiða yður staðfastlega á skuldbindingar vorar. Vér erum þess fullvissir, að sanngjörn og ríf- leg útfærsla á Iandamærum Manitoba-fylkis muni eiga sér stað áður en lokið er Dominion-þinginu, sem nú stendur yfir. Vér munum ekki ganga að hvaða samningi sem er um þetta mál og ekki veitir Manitoba-fylki fullkomin réttindi, bæði hvað það snertir og önnur ágreiningsmál milli fylkis- stjórnar og landstjórnar. En landamæramálið hef- ir aldrei verið neitt aðal-flokksmál hér í fylkinu, þó liberalflokkurinn yrði fyrstur til þess að hreyfa mótmælum gegn hinum ranglátlegu ákvæðum árið 1881 er kom fylkinu í þessa kreppu , og flokkur- inn hefir ætíð fylgt dvggilega jafnvel núverandi fylkisstjórn í þessu máli, þó hann jafnframt hafi mótmælt hinni óhyggilegu og skaðlegu aðferð, Manitoba-fylki til handa, sem í því er innifalin, að reyna að gera slík málefni að flokksmáli. Látið engar ofsafengnar tilvitnanir þessu máli viðvíkjandi né vísvitandi ósannindi í frásögninni um afstöðu liberalflokksins hvað þáð snertir, draga athygli yðar frá athöfnum núverandi fylkis- stjórnar, og þeim aðal-málum, sem nú eru á dag- skrá, eins og til er ætlast. Ekki ætti neinn heldur að láta sambandsstjómarmál, hverrar tegundar sem er, hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna. Atkvæða- greiðsla yðar með eða móti Roblin-stjórninni getur ekki haft nokkur minstu áhrif á gerðir sambands- stjórnarinnar. Vér skulum því beina óskiftu athygli voru að þessum tveimur atriðum: 1. Ert þú ánægður með að núverandi stjórn verði við völdin framvegis, um næstkomandi fjögra ára tímabil? 2. Er stjórnar- aðferð og stjórnarstefnu liberalflokksins i samræmi vi'ð skoðun þína á þjóðhollustu og skyldurækni? Undir því svari, sem hver einstakur kjósandi gefur sjálfum sér uppá þessar spurningar, ætti atkvæða- greiðsla hans að vera komin. Enga persónulega óvild né flokkshatur ættu kjósendurnir að láta hafa áhrif á það, hvernig þeir greiða atkvæði. Ekki ætti heldur neinn að greiða atkvæði með neinum umsækjanda um þingsetu sakir vinfengis eða kunningsskapar, án tillits til stjórnmálaskoðana hans, eða hverjum mönnum hann fylgir að málum. Þegar bardaginn er á enda kljáður og vér erum búnir að greiða atkvæði eftir beztu samvizku, þá látum oss umgangast hver annan án nokkurrar þykkju eða illvilja. Fari atkvæðagreiðslan fram heiðarlega og hleypidómalaust, mun liberalflokk- urinn gera sig ánægðan með úrskurð kjósendanna hver sem hann verður. Vér berjumst fyrir mál- efnum en ekki völdum, fyrir sannfæringu en ekki flokki. Eg skora á menn úr báðum stjórnmála- flokkunum að hjálpa oss til að vinna heiðarlegan sigur. Enginn skyldi selja atkvæði sitt fyrir vín eða peninga né láta neitt annað stjórna atkvæða- greiðslu sinni en eigin réttlætistilfinningu. Fylgi hver kjósandi þeirri leiðarstjörnu við atkvæða- greiðsluna 7. Marzmánaðar, þá er eg óhræddur um endalokin, og beini } fullu trausti þessari á- skorun til samborgara minna í Manitoba, sem sú á- byrgð hvílir nú á að skera úr hverskonar stjórn þeir vilji hafa yfir sér ,um næstkomandi fjögra ára t'mabil. Yðar einlægur, EDW'ARD BROWN.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.