Lögberg - 16.05.1907, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. MAÍ 1907
5
BETRI
AFGREIDSLU
^et eg nú lofað skiftavinum mínum en
nokkuru sinni áður. Eg
hefi nú flutt í stærri og
þægilegri búð og get því
haft á boðstólum, miklu
meiri og margbreyttari
vörur en áður, með 6-
trúlega lágu verði. Búð-
in er að
286
MAIN STR.
á horni Main og Graham
stræta, fjórum dyrum
sunnar en búöin sem eg
hafði áður.
VIÐGERÐIR
FLJÓTT og VEL
af hendi leystar.
TH. JOHNSON
JEWELER
noc MAIN STREET
ZUU horni Graham Ave.
TELEPHONE 6606
Auglýsing. •=«»
Til vitundar gefst hér meS, Is-
lendingum, aö Good Templara-
stúkurnar Hekla og Skuld hafa á-
kveSii5 aö fara skemtiferö til Gimli
ii. Júlí næstk. Fullkomnustu
skemtanir, sem hægt er aö hafa,
svo sem ræðuhöld, söngur, glímur,
sund og aðrar íþróttir veröa viö-
haföar í feröinni. Nákvæmar
veröur þetta auglýst síöar. Landar
góöir! Takiö ráö ykkar í tíma og
fariö aö búa ykkur undir þessa
skemtiferö nú strax.
Ur bænum.
Mrs. Guörún Jónsdóttir og Mrs.
Guörún Halldórsson eiga Islands-
bréf á skrifstofu Lögbergs. Miss
Laufey Swanson á lika bréf þar.
Miss Rósa Christopherson frá
Baldur hefir veriö hér um tíma
meö systur sína unga, til lækninga.
ÍÞær fóru heim aftur í síðustu
viku.
Úr bréfum frá Cavalier héraöi í
Norður Dakota, er sagt aö bætidur
séu ekki farnir aö sá enn (um síö-
ustu helgij. í Argyle eru menn
að reyna aö sá lítið eitt um hádag-
inn.
Thore gufuskipafélagið hefir
sent Lögbergi nokkur eintök af á-
ætlun skipa þess. Þeir sem vilja,
geta fengiö þær meö því aö snúa
sér hingað á skrifstofuna.
Happyland, sem á íslenzku hefir
veriö skírt “Munarheitnar”, verð-
ur opnað á mánudaginn kemur.
Þar kvaö ýmislegt hafa verið um-
bætt frá í fyrra, en lítið gagn aö
þvi meöan ekki bregður til meiri
hlvinda.
Hvern, sem veit um núverandi
heimili Björgólfs Jónssonar frá
Kristnes P. O., Sask., sent dvaliö
hefir niður viö Manitoba-vatn í
vetitr, biö eg aö láta ntig vita ut-
anáskrift hans nú þegar.
Stefán Helgason,
Kristnes, P.O., Sask.
“Winnipeg Skandinaven” heitir
nýtt blað, sem í ráði er aö stofna í
bænum. Fyrir því gangast fáeinir
velmetnir Norömenn hér. Blaðið
á aö veröa málgagn frænda vorra
Norðmanna, en þeim fjölgar nú
óöum hér í Canada.
í nefnd til aö undirbúa “íslend-
ingadaginn” 2. Ágúst í sumar,
voru kosnir á almennum fundi á
mánudagskveldiö var þessir menn:
J. J. Vopni, kaupmaður,
Þórður Johnson, gullsmiöur,
Sveinn Pálmason, trésmiður,
Guöj. Johnson, frá Hjaröarfelli,
A. J. Johnson, organisti,
Alb. Johnson, kaupmaöur,
Alb. Goodman, verzlunarmaður,
Ásm. Jóhannsson, trésmiður,
Ásb. Eggertsson, fasteignasali.
Eftir síöustu skýrslum, sem
bæjarráösmennirnir hafa fengiö, á
strætisvagnafélagið nú aö borga
$4.060 í sektir fyrir ánóga starfs-
rækslu.
Bazar hélt kvenfélag Fyrsta lút.
safnaðarins í sunnudagsskóla-
salnum á þriðjudaginn og miö-
vikudaginn í síðustu viku. Þar
voru seld föt og sitthvaö fleira,sem
félagskonur sjálfar höföu búiö til,
auk þess var þar selt kaffi. Litlar
stúlkur höfðu þar borð út af fyrir
sig, og seldu ýmsa smámuni, sem
þær höfðu gert sjálfar.
Ólafsson & Sveinsson, eftirmenn
G. Olafson & Co., létu ökumenn
sína segja viðskiftavinum, aö þeir
gætu fengið hveiti, meö sama veröi
og áöur, til síöustu helgar, þrátt
fyrir veröhækkunina sem varö í
öndverðum mánuðinum. Slíkt er
vel gert, enda munu margir hafa
sætt þessu boöi þeirra.
Páll M. Clemens byggingameist-
ari hefir gert uppdrátt að skóla-
húsi, sem byggja á við Oakdale
Park í sumar. Hann hefir og í
undirbúningi uppdrátt af tveim
íbúðarhúsum, sem á aö reisa á
horni Kate og Bannatyne. Þau
verða bæöi úr múrsteini.
I Þingvallanýlendunni er nýlega
látin merkiskonan Margrét Kristj-
ánsdóttir kona Mr. Þ. J. Norman.
Hún var ættuö úr Eyjafirði, frá
Steðja í Þelamörk. Hingað flutt-
ist hún áriö 1876, og giftist hér
Jóseph Ólafssyni frá Hvammi í
Eyjafirði. Þau bjuggu í Þing-
vallanýlendunni og þar dó maður
hennar. Seinna giftist hún aftur
eftirlifandi manni sínum, Þórarni
Jónssyni Norman.
Guðm. Jónsson frá Rabbit Point
P. O., kom til bæjarins á fimtu-
daginn var með konu sinni. Hún
er hér til lækningar viö augnveiki.
Enginn heyskortur var þar í vest-
ur parti Álftavatns nýlendunnar,
en sagt að komið mundi aö þrotum
fyrir mörgum í Shoal Lake bygö-
inni. Jón Sigurösson, Mary Hill
P.O., keypti í haust sem leiö bind-
ingsvél, og sendir nú töluvert hey
hingað til bæjarins bæöi fyrir sig
og aðra. Jón er meö gildari bænd-
um úti þar.
Á föstudaginn kemur, 17. Maí,
er þjóöhátíðardagur Norðmanna.
Þann dag heldur “Norðmannafé-
lagið” fagnaðarsatnkomu í Young
Men’s Liberal Hall á Notre Dame
ave. Þar verður margt til skemt-
unar: ræðuhöld, söngur og hljóö-
færasláttur. Auk þess veröur
leikiö “Fjallæfintýriö”, gamanleik-
ur norskur, sem lengi var leikinn í
Þ jóöleikhúsinu- í Kristjaníu 17.
Maí. Aö síöustu verður sýnd
hópmynd (tableau) af brúðkaups-
ferð. Landar ættu aö sýna Norö-
mönnum bróðurhug sinn meö því
aö koma þangað.
Mr. Gísli Sveinsson frá Gimli
var hér á ferö fyrir síöustu helgi.
Hann sagöi aö margir væru nú
orðnir heytæpir þar niöri frá, en
aö skepnum mundi þó óhætt úr
þessu, af því aö dálitil snöp væri
komin, og svo mætti gefa þeim
kornfóður. Is lá þá enn á Winni-
peg-vatni og fariö meö æki eftir
þvi daglega. Á Gimli sagöi hann
nóg um vinnu bæöi við byggingar
og viðarfang. Kordiö af tamarac
og birki er selt á $6 í vagn komiö.
C. P. R. félagið er aö láta gera
skurð allmikinn frá brautarstöö-
inni niöur í vatn. Fasteignir í tölu-
verðum uppgangi.
Thos. H. Johnson þingmaður
leggur á staö nú í vikunni suöur til
St. Peter, Minn., til aö vera viö
skólauppsögn Gustavus Adolphus
Coll. Hann er útskrifaður þaöan
fyrir 14 árum síðan. Nú í ár ætla
aö hittast þar, þeir, sem beztir voru
söngmenn i þá daga, og rifja upp
gamlar endurminningar meö einu
lagi. Mr. Johnson var í karlkór
þeim við skólann, sem mönnum
þótti svo mikið til koma á þeim
árum.
í gær var byrjað aö grafa líkin,
sem staðið hafa uppi í líkhúsum
grafreitanna í vetur. Þaö er eitt-
hvaö hálfum mánuöi síðar en vant
hefir verið.
D. Jónasson, sem lengi hefir unn-
iö hjá The Co-operative Bakery á
Elgin ave., hér í bæ, lagöi á staö í
gær vestur til Elkhorn, Man., á-
samt konu og barni. Líklega dvel-
ur Mr. Jónasson þar um hríö, áö-
ur en hann heldur lengra vestur,
sem hann þó kvaö hafa í hyggju.
J. G. Christie, gestgjafi á Gimli
var hér á ferö í gær. Hann segir
allbærilega líöan manna þar um
slóðir. Is er enn þá á vatninu.
Mr. Christie er aö koma sér upp
nýju gestgjafahúsi. Þ.aö á aö
byggjast úr steyptum steini. O. J.
Ólafsson, Winnipeg, sér um stein-
verkiö.
I vor útskrifaðist af Gust. Ad.
Coll., í St. Peter, Minn., Miss Jó-
hanna Högnason meö I. ágætis-
eink. Henni hlotnaöist sá heiður
aö vera útnefnd Valedictorian.
fValedict. heldur skilnaöarræö-
una). Þaö er einhver mesta sæmd
sem skólinn veitir. Jóhanna er
dóttir Snorra Högnasonar, Minne-
ota Minn.
Ian Maclaren.
Eins og vér gátum um í síðasta
blaöi lézt skáldmæringurinn John
Watson suöur í Bandarikjum í vik-
unni sem leið. Hann var fæddur í
Essex á Englandi 1850. Foreldrar
hans voru báöir skozkir og í Skot-
landi hlaut hann alla mentun og út-
skrifaðist af háskólanum í Edin-
burg. Áriö 1880 varö hann prest-
ur viö presbytera kirkju eina i Liv-
erpool, og þeim starfa hélt hann í
25 ár. Hann þótti snemma kenni-
maður góöur, en frægur varö hann
þó einkum fyrir bók er hann gaf
út 1894 og heitir “Beside the Bon-
nie Brier Bush”. Ritaði hann und-
ir dularnafninu Ian Maclaren, og
því nafni hefir hann ávalt haldiö
síðan. I þeirri bók tók höfundur-
inn sér skozkt sveitalíf aöyrkisefni.
Síöan hefir Ian Maclaren ritað
hverja söguna á fætur annari og
eru flestar þeirra látnar fara fram
á Skotlandi, því maðurinn var ein-
lægur ættjaröarvinur.
Ræöuskörungur var hann dá-
góöur, en afburða fyrirlesari.
Hann hafði áöur ferðast hér um
Ameríku og haldiö fyrirlestra; í
þetta sinn ætlaði hann aö dvelja
hér árlangt.
Helztu ritverk hans, auk 2>ess,
sem áður er talið eru: “The Days
of Auld Lang Syne”, “A Doctor of
the Old School”, “Young Barabar-
ians”, “Afterwards and other
Stories”, o. fl., o. fl.
NýkominH
hingaö til bæjarins frá íslandi
er Björn Jónsson, sá er brá sér
þangað skemtiferð i vetur leiö.
Hann á heima vestur viö haf, í
Vancouver, en vinnur á sumrum
norður í Klondyke og þangað ætl-
ar hann í sumar. Vel lét hann yfir
ferðinni, viðtökunum heima og
gestrisni manna. Töluveröum
stakkaskiftum þótti honum Reykja
vík hafa tekið á þeim 6 árum, sem
hann hefir verið hér vestra. Mörg
ný og vönduö hús reist þar og göt-
um víöa breytt til batnaðar. Ný
skemtigata kvaö nýlega hafa veriö
lögð frá læknum með tjörninni alla
leið suöur aö skothúsi, henni er vel
til haldið og er hún einhver mesta
bæjarprýöi. Viö hana stendur hiö
nýja hús ráðherrans, í tjarnar-
brekkunni. Laglegt hús fremur.
Björn forvitnaöist lítið eitt um
gullgröftinn, hann er vanur hon-
um úr Klondyke, en varö lítils vís-
ari. Enn er ekki fariö aö bora fyr-
ir því, og virtist það mál hvorki
reka né ganga. Fremur hélt hann
mundi veröa erfitt að vinna gull
þar úr námum, en reyndar væri
ekkert hægt að segja um þaö fyr
en tilraunir heföu veriö geröar.
—Eitthvað hélt liann mundi koma
vestur af fólki í ár, haföi hann
heyrt þó nokkra tala í þá átt. Um-
boðsmaður Dom. stj. var á ferö
um Norðurland þegar Björn fór
úr Reykjavík 8. April. — Tíö var
oröin góö um það leyti, hláka og
blíöviöri, og byrja að koma góöir
liagar.— I Skotlandi var hann 11
daga og var þar þá fremur kalt,
en er til New York kom, voru þar
aftaka rigningar.
Fréttir frá íslandi.
Stykkishólmi, langa frjádag.—
Síöastliöin nótt var allægileg.
Fyrri hluta nætur kviknaöi í
húsi Sveins Jónssonar snikkara, i
hliöarbyggingu niöri, þar sem Sv.
haföi geymsluhús. En á efra lofti
í hliöarbyggingunnt eru nokkur
herbergi, er hann leigði Oddi
skipstjóra Valentínussyni.
Oddur varð fyrst var eldsins ná-
lægt kl. 2 eða heldur fyr og Sveinn
um svipað leyti. Var eldurinn þá
orðinn svo magnaður í geymslu-
húsinu, aö ekki varö viöráöiö.
Komu þeir fólki sínu út með
naumindttm, flestu á nærfötum
einum.
Svo sorglega stóö á, aö kona
Sveins varö fyrir nokkru hættu-
lega veik og var enn rúmföst og
langt fram yfir það. Sveinn varö
aö bera hana þann veg á sig
komna út úr logandi húsinu í yfir-
sæng einni.
Oddur, sem á 5 börn ung—hiö
síðasta skírt í gærkveldi—, varö
sania sem aö fleygja þeim út eins
og þau komtt upp úr rúminu.
Svo má heita, að engu hafi orö-
iö bjargað, nema mannslífunum,
en það var nú ltka aöal-atriöiö.
Þó er vanséö hvort Guörún kona
Sveins ber af þessa voðanótt.
En ekki var nóg meö þetta. Tvö
önnur hús, og fleiri þó, voru í
mestu hættu; kviknaði í báöum. I
öðru varö slöktur eldurinn vonum
bráöara, en um hitt stóö bardaginn
hálfa aöra klukkustund. Varð að
lokum slökt. En húsiö gersamlega
ónýtt eftir.
Þ'ess þarf naumast að geta, að
hús Sveins, er fyrst kviknaði í,
brann til kaldra kola með öllum
húsgögnum og munum, þar á
meðal eflaust allmiklu af bókum.
REIÐHJÓL.
Nú fara menn að þarfnast reiðhjólaanna. I>á munu flestir hussa sér að lí sér ný
reiðhjdl. Þegar þér kaupið ný reiðhjól þá verið viss um að kaupa þær tegundir sem
hægt er að fá viðgerð á hér í bænum,—Þess vegna skuluð þór naupa ; BRANTFORD
PERFECT. SILVER RIBBON. MASSEY. CLEVELAND. RAMBLER eða IMPER.
IAL.—Vér gjörum við allar þessar tegundir hjóla.
The Alex. Black Lumber Co., td.
Verzla með allskonar VIÐARTEGUNDIR:
Pine, Furu, Cedar, Spruce, Harövið.
Allskonar borðviður, shiplap, gólfborð
loftborð, klæðning, glugga- og dyraum-
búningar og alt semtil húsagerðar heyrir.
Pantanir afgreiddar fljótt.
fel. 59ft. Higgins & Gladstone st. Winnipeg
Báðar fjölskyldurnar standa eftir
slyppar að öllum húsgögnum, mat-
vælum o. s. fr. Oddur skipstjóri
var fátækur maður fyrir.
Missir Sveins er ákaflega mikill
þó húsið væri vátrygt. Innan-
stokksmunir hans voru tiltölulega
miklir ög vandaðir.
Þetta er í fyrsta sinn í manna
minnum, að íbúðarhús farast hér í
Hólminum af eldsvoða.
Reykjavík, 6. Apríl 1907.
Nýtt samkomuhús hefir K.F.U.
M. eignast hér í bænum nýlega,
allmikið og veglegt, við Skóla-
stræti, þar sem áður var Félags-
bakaríiö, þetta sem brann í fyrra
haust. Þaö mun hafa kostaö milli
20 og 30 þús. kr. Þar af 10 þús.
kr. styrkur eöa gjöf frá Dönum, þ.
e. Kristilegu félagi ungra manna í
Danmörku. Húsiö er þrílyft, aö
háum kjallara meötöldum, meö
flötu þaki. Aöalsamkomusalurinn
á efra lofti tekur um 300 manna.
Niöri eru kenslustofur og lestrar-
herbergi m. m. Matsala er í hús-
inu, kaffiveitingar o. fl.
Húsiö var vígt á Skírdag meö
sálmasöng og ræöum að viöstödd-
um fjölda bæjarmanna.auk félags-
manna, meyja og sveina. Þ.eir
A. S. BARDAL,
selui
Granite
Legsteina
alls kcnar stærðir.
Þeir sem ætla sér að kaupa
LEGSTEINA geta því fengið þá
með mjög rýmilegu verði og ættu
að senda pantanir sem fyrst til
A. S. BARDAL
121 Nena St.,
Wintiipeg, Man
nú. Hún var þá 3 vikur rúmar aö
vinna upp bæinn, frá miöjum Maí
og þangað til viku af Júní. Hún
kom meö strandbátunum snemma
í Maimánuöi, aö norðan og vestan.
Meö líkum aðförum ætti hún að
fluttu ræöur séra Jón Helgason
("form. fél.J og séra Friörik Friö-
riksson stofnandi þess ffyrir 9 ár-
umj. —ísafold.
Inflúenzan hefir áreiöanlega
borist hingaö meö póstskipinu x f.
mán. Gekk í Khöfn þegar þaö
lagöi á stað hingaðþá, annaö skift-
iö í vetur, ef hún er þá ekki bein-
línis landlæg þar.
Þetta er fjóröa skiftið, sem hún
gengur hér, svo menn viti fyrir
víst. Hin skiftin voru: 1890, 1894
og 1900.
Sumir læknar telja ekki ósenni-
legt, aö sumar þungar kvefsóttir,
er hér gengu miili 1860 og 1870,
hafi verið inflúenza. En þeir full-
yröa ekkert um þaö.
Meö vægasta móti þykir hún
vera í þetta sinn. En fer mjög
hratt yfir. Skilur líklegast fáa
eftir.
Siöast, áriö 1900, taldi héraös-
læknir Reykjavíkur, sem þá var,
landlæknir Guöm. Björnsson, nær
sanni, aö 90 prócent af bæjarbúum
heföi fengið sóttina. Meö öðrum
oröum ekki undan gengiö nema
10. hver maöur.
Við búiö, aö líkt fari sóttin aö
vera búin aö Iúka sér af hér seint
í þessum mánuöi.
Þá taka sveitirnar viö. Þ'ví ekki
er neitt viölit aö ætla sér aö stööva
hana. Þaö er reynslan búin aö
margsýna. Hún getur stöövast
viö stærstu þröskuldana, sem til
eru hér á landi, svo sem Skeiöar-
ársand eöa Mývatnsöræfi. En
varla annars staðar. Sennilegt aö
hún veröi búin aö lúka sér af fyrir
slátt. Og væri það góöra gjalda
vert.
wmœ t
Dánar; Guörún Jónsdóttir í Unu-
húsi, 81 árs, 1. apr. — Ingibjörg
Einarsdóttir, kona Eirxks á Eiði,
76 ára, 3. Apr.
<
Þrír menn fórust nú um pásk-
ana á bát í selaróðri frá Steindyr-
um á Látraströnd viö Eyjafjörð,_
er símaö í dag norðan af Akureyri.
Þaö er nú farið aö veröa sæmi-
lega vorlegt. Umskiftin gagngerð.
Snjór mjög horfinn í bygö. Hiti
6—8 stig dag hvern.
Norðan af Eyjafirði símað í dag,
aö þar sé blíðviðri og bezta tíö.
—Isafold.
. ------o------