Alþýðublaðið - 06.07.1960, Síða 5

Alþýðublaðið - 06.07.1960, Síða 5
WASHINGTON, 5. júlí (NTB— REUTER). Bandaríska landbún aðaráðuneytið stöðvaði í dag ínnflutning á sykri frá Kúbu. Þetta eru fyrstu pólitísku ráð- stafanirnar, sem Bandaríkja- Stjórn hefur gert gegn Kúbu síðan Castro forsaetisráðherra byrjaði fyrir tæpu ári á stefnu ínjög fjandsamlegri Bandaríkj- iinum og tók að halla sér að Sovétríkjunum og öðrum kom- múnistaríkjum. Ákvörðun ráðu- neytisins nær til þess, sem ó- Innflutt er af sykurmagni þessa árs, 740 000 tonn af 3 200 000 tonnum alls. Akvörðun þessi er tekin í ivon um, að Eisenhower forseti mpti sér völd sín samkvæmt hin íim nýju sykurlögum, er heim- Lyndon ila niðurskurð á innflutningi sykurs frá Kúbu. Er búizt við, að Eisenhower muni gera þetta. Góðar heimildir segja, að Castro sé að reyna að afhenda Bandaríkjamönnum 75 þúsund tonn af sykri, áður en Eisen- hower taki ákvörðun sína. Jafniramt því að Bandaríkja- menn tóku þessa ákvörðun sína er upplýst í Havana, að 19 olíu- skip með samtals 200 000 tonn af hráolíu um borð muni koma til kúbanskra hafna frá rúss- neskum höfnum við Svartahaf í júlímánuði. Er hins fyrsta þeirra vænzt til Havana á mið- vikudag. Olían verður hreinsuð í hinum þjóðnýttu stöðvum Shell, ESSO og Texaco olíufé- laganna. Sovézka skipið Tsjer- novskij kom til Havana í gær með 9000 tonn af hráolíu FaSlin stiarn MOSKVA, 5. júlí (NTB —REUTER). Ritari mið- stjórnar kommúnista- flokksins í Ytri Mongólíu, Tumur Ochia, hefur verið leystur frá störfum og við þeim tekið Sajinnyam, meðlimur stjórnmála- nefndar (politbúró), segir Tass. Þá hefur Tumur Ochia einnig verið vikið úr stjórnmálanefndinni. f marz í fyrra var 14 með- limum stjórnmálanefndar- innar vikið. TUNIS, 5. júlí (NTB-AFP). — Ferhat Abbas, forsætisráðherra algiersku útlagastjórnar!nnar, sagði í ræðu í Túnis í dag, að skilmálar þeir, sem franska stjórnin hefði boðið fyrir því, að -viðræður hæfust um vopna- hlé í Algier væru svo lítilmót- legir og auðmýkjandi fyrir út- laga stjórnina, að þeirra vegna væri ekki nokkur möguleiki á frjálsum samningaviðræðum. Abbas minnti á, að hann hefði bent á það 20. júní s. 1., MONTE CARLO, 5. júlí — (NTB—REUTER.) Onassis hef- ur hafnað beiðni frá Rússum um að flytja olíu til Kúbu, sagði talsmaður Onassis-félagsins hér í dag. „Við höfum fengið möx-g tilboð frá Rússum um ólíuflutn inga, ekki aðeins til Kúbu, held ur og til annarra heimshluta, en hafnað þeim öllum,“ sagði tals- maðurinn. I að viðræður táknuðu ekki frið. Sú revnsla, sem samningamenn. okkar öðluðust í Melun, sýnir, að við verðum að vera betur á verði en nokkru sinni, sagði Abbas. Stríðið getur staðið lengi ennþá. Á meðan við reynum að koma á viðræðum og noturn hvert tækifæri til að koma á friði, verðum við að styrkja baráttugetu okkar. Við fáum ekkert sjálfstæði, við verðum að vinna okkur það, sagði Ab- bas, er flutti ræðu sína í útvarp- til Algierbúa „ WASHINGTON, 5. júlí (NTB >—REUTER). Ljmdon Johnson, leiðtogi demókrata í öldunga- deild Bandaríkjaþings tilkynnti í dag, að hann hefði ákveðið að leita eftir útnefningu sem for- setaefni demókrata á flokks- þingi flokksins, sem haldið verð Mr í Los Angeles í næstu viku. Aðrir demókratar, sem sækjast eftir útnefningu, eru John Ken- nedy og Stuart Symington, báð ir öldungadeildarþingmenn. — Richar Nixon varaforseti er tal inn eina foi-setaefni repúblí- kana. ug átök í Kasai og blóðstraum hótað LEOPOLDVILLE, 5. júlí (NTB -Reuter-AFP). — í dag kom til blóðugra átaka milli ættbálka í héraðinu Kasai í Kongó og bera fyrstu fregnir með sér, að fimm manns hafi látizt í áflog- um með hnífum og öðrum frum stæðum vopnum og að rúmlega 200 kofar haf; verið brenndir. Öeirðirnar eiga bæði rót sína j að rekja til erfðafjandskapar ! Baluba- og Luluaættbálkanna | og til andstöðu við hina nýju miðstjórn ríkisins undir for- ehru kannar landvamir NÝJU DELHI, 5. júlí (NTB- Reuter). — Nehru, forsætisráð- herra, kannaði í dag frenxstu varnarlínu Indveija við landa- mæri Tíbet og fór síðan í flug- vél yfxr landamærasvæðið og skoðaði kínverska liðið, sem tekið hefur sér stöðu Tíbetmeg íii landamæranna. í ræðu. lét Nehrú í ljós ánægju sína með aðgerðir indverska hersins til varnar landinu í þessu víðáttu- mikla og erfiða svæði. Nehru heimsótti fremstu Varðstöðvar í fjöllunum í heli- jkcpter. í för með honum voru yfirmenn landhers og flughers. í Katmandu upplýsti utanrík isráðherra Nepals, að kínverska ,;alþýðulýðveldið“ hefði fallizt á fund. í kíiiversk-nepölsku landamæranefndinni. Hefðu Kínverjar fallizt á fund þenn- an eftir að Chou En-Lai forsæt isráðherra hefði beðizt afsök- unar á, að kínverskir hermenn fóru um daginn inn fyrir landa mæri Nepals og drápu liðsfor- ingja og handtóku nokkra her- menn. Líkinu var skilað aftur í gær. Óeirðirnar urðu í höfuðstað Kasaihéraði, Luluabourg eftir að fréttist að Lumumba hvggð- ist handtaka meðlimi uppreisn arstjórnarinnar í Kasai, sem er undir forsæti A. Kagonji, sem er af ættbálki Baluba. í kvöld var mikil spenna í Luluabourg þar sem sett hefur verið á út- göngubann. Deild Baluba-flokksins í borg inni hefur sent Lumumba skeyti og gert honum ljóst, að blóð mundi fljóta, ef stjórn Kalonjis yrði ekki viðurkennd. Kalonji er meðlimur stjórpar- andstöðunnar á þingi Kongós, þar eð hann er einn af fáum ieiðtogum þjóðernissinna í Kongó, sem ekki tók sæti í stjórn Lumumbas, er hann hafði beðið ósigur við kosning- ar til fylkisþings í Kasai fvrir bandalagi manna Lumumbas og setti þá upp uppreisnar- stjórn sína. Lumumba ræddi ættbálka- deilurnar og vandamál þess að skapa festu og öryggi í Kongó í ræðu, er hann hélt í veizlu erlendra blaðamanna í gær- kvöldi. Hann kvað það stefnu stjórnarinnar að þvinga fram ró og spekt í landinu. Hann gerði mönnum það einnig ljóst, að Kongó mundi halda fast við meg'nreglu hins svokallaða „jákvæða hlutleysis“ í sam- skiptum austure og vesturs. AFP hefur það eftir góðum heimildum, að ekki þurfi að furða sig á óróanum, er ríki í Kongó, en hann eigi rætur sín- ar í tvennu. í fyrsta lagi ætt- bálka-ást og andstöðu við að láta öll völd í hendur einni miðstjórn, og í öðru lagi hafi margir Afríkumenn talið, að sjálfstæðið mundi sjálfkrafa leiða til bættra lífskjara. Ástandið í Kasai og Katanga, þar sem mest af námunum og iðnaðinum er, veldur stjórn- 'nni miklum kvíða enn, þar eð hættan á að þessi svæði segi sig úr lögum við lýðveldið er enn fyrir hendi. Góðar heimild ir telja, að allir meðlim'r hér- aðsstjórnarinnar í Kasai séu bafðir í haldi heima hjá sér. Skjóta út á Kyrrahaf MOSKVA, 5. júlí (NTB- REUTER—AFP). Rússar skutu í dag eldflaug, sem lenti i Kyrrahafinu. Skot þetta er hið fyrsta af mörgum tilraunum með eldflaugar, sem gerðar verða á næstunni, og tókst vel, segir Tass. Er hér um að ræða tiiraunir með nýja öfluga teg- und margþrepa Hauga, sem nota á við geimrannsóknir. Frakkar og Þjóðverjar á móti aðild Breta LONDON, 5. júlí (NTB— REU- TER). Löndin í Markaðsbanda- laginu virðast ekki hafa áhuga á samningaviðræðum við löndixi, sjö í fríverzlunarsambandinu (EFTA) um ráðstafanir í fram- tíðinni, sagði fulltrúi brezka verzlunarmálaráðuneytisins í neðri máistofunni í dag vegna spurningar frá einum þins- manni jafnaðarmanna um það, hvort nokkuð hefði gerzt í sara bandi við aðild Breta að Mark- aðsbandalaginu. Kvað fulltrú- inn ekkert hægt að gera fyrr eu fyrir lægi ósk um raunveruleg- ar samningaviðræður. Jafnaðar maðurinn kvað Frakka og Þjóð verja vera því mjög mótfallna, að Bretar gerðust aðilar að bandalaginu og vildi fá að vita hvaða tillögur brezka stjórniu : hefði gert í þessu sambandi. Hugh Gaitskell spurði hva<5 1 stjórnin hyggðist gera, ef Mark ! aðsbandalagið óskaði ekki eftir ! viðræðum og fékk það svar, að fulltrúar Frakka og Þjóðverja við viðræðurnar í París nýlega ' hefðu ekki sýnt neinn samnings vilja um viðskiptaráðstafanir í framtíðinni, Nú væri beðið ár- angurs af hinum nýja fundi I í París. BERLÍN, 5. júlí (NTB— RE- UTER). Austur-Þjóðverjar hafa sent öllum ríkjum við Eystra- salt orðsendingar °g vai-að þau við hættunni af vestur-þýzkri hernaðarsteínu, segir austur- þýzka fréttastofan ADN. Það var austur-þýzki varautanríkis- ráðherrann Otto Winzer, sem upplýsti þetta á blaðamanna- fundi í Rostock í dag. Alþýðublaðið — 6. júlí 1960 {£

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.