Alþýðublaðið - 06.07.1960, Blaðsíða 16
mMSUD
41. árg. — Miðvikudagur 6. júlí 1960 — 149. tbl.
„ÞEIR Flóki sigldu vestr
yfir Breiðafjörð ok tóku
þar land, sem heitir
Vatnsfjörðr við Barða-
Strönd. Þá var f jörðr-
inn fullr af veiðiskap, ok
gáðu þeir eigi fyrir veið-
um at fá heyjanna, ok dó
allt kvikfé þeira um vetr-
inn. Vár var heldr kalt.
Þá gekk Flóki upp á fjall
eitt hátt ok sá norðr yfir
fjöllin fjörð fullan af haf-
ísum; því kölluðu þeir
landit ísland, sem þat
hefir síðan heitit“
Svo segir í Landnámu af
komu Flóka Vilgerðarsonar í
Vatnsfjörð. Og fleirum hefur
illa gengið búskapurinn í
Vatnsfirði en Flóka, því að
engin byggð er þar um þessar
mundir. Vatnsfjörður er vest-
astur svonefndra Þverfjarða
og blasir við, þegar komið er
véstur af Þingmannaheiði.
Inn af firðinum er Vatnsdal-
ur og samnefnt vatn, en hlíð-
ar eru skógi vaxnar milli
fjalls og fjöru,
Vestan Vatnsfjarðar, innar-
lega, er Penná, þar sem skipt-
ast leiðir. Út með firðinum
liggur leiðin út Barðaströnd
til Patreksf/jarðar, en upp með
Penná, meðfram Þverdalsfirði
og fyrir Hornatær liggur hin
nýja Vestfjarðaleið, sem opn-
uð var í vor Hornatær eru há-
ir tindar, er Flóki mun hafa
gengið á, þegar hann sá fjörð-
inn fullan af hafísum og gaf
landinu nafn.
Því er hér fjölyrt um Vatns
fjörð, að þar hefst ný leið, áð-
ur ókunn ferðamönnum en hef
ur nú tengt höfuðstað 'Vest-
fjarða við akvegakerfi lands-
ins. ísfírðingar geta nú brun-
að á bílum sínum um landveg
beint til Reykjavíkur, þó að
leiðin sé löng og erfið. Einn
helzti farartálminn er Þing-
mannaheiði; sem verður ófær
við fyrstu snjóa á haustin og
opnast ekki fyrr en komið er
langt fram á vor. Þá er Breiða
dalsheiði með hæstu fjallveg-
um landsins eða 610 m.
Og varla var vegurinn til
Isafjarðar opnaður fyrr en
framtakssamir menn hófu
þangað sérleyfisakstur. Vest-
fjarðaleið h.f. hefur þegar ek-
ið þangað í þrjár vikur, eina
ferð í viku, og mun svo verða
í sumar. Blaðamönnum og
fleiri gestum var boðið í aðra
ferðina, sem farin var í síð-
ustu viku. Verður hér á eftir
drepið á nokkur atriði úr
þeirri ferð, sem öllum var til
ánægju, einkum þeim, sem
aldrei höfðu áður til ’Vest-
fjarða komið.
Farið var frá Bifreiðastöð
íslands kl. 8 árdegis fyrra
mánudag og er skemmst frá
því að segja, að ferðin til ísa-
fjarðar tók 20 klukkustundir.
Þess má þó geta, að tveggja
tíma töf varð við Búðardal,
auk þess sem stanzað var á
hæfilegum fresti til að farþeg-
ar gætu satt hungur sitt. Of
langt mál yrði að lýsa hér
allrj leiðinni, sem er 538 km.
löng. Sjón er líka sögu ríkari
og víst er, að margir ferða-
menn munu á næstunni leggja
leið sína um Vestfirði eftir að
vegur er greiður og regluleg-
ar sérleyfisferðir komnar á.
Flestum mun seint líða úr
minni, að koma til ísafjarðar
kl. 4 á sólbjartri júnínótt. Á
vinstri hönd gnæfir Eyrar-
fjall, en Skutulsfjörður til
hægri handar, spegilsléttur í
logninu, svo að fjöllin í kring
speglast í sjónum. Bærinn er
í fastasvefni, nema á stöku
stað hefur einhver átt von á
gesti með bílnum og vakað
þessa náttlausu stund. Okkur,
sem erum boðsgestir ferðar-
innar, er ekið rakleitt að eina
gistihúsi bæjarins, Herkast-
alanum við Mánagötu, þar
sem svefninn er ekki lengi að
sigra komumenn.
Daginn eftir notum við til
að skoða okkur um á ísafirði.
Atvinna er næg í bænum um
þessar mundir, bátarnir farnir
á síldina, en rækjuveiðarnar.
ekki byrjaðar. ísafjörður er
bær, þar sem hús eru í háu
verði og ekki er unnt að í-
mynda sér annað en þar muni
á næstu árum fjölga fólki og
atvinnulíf standa í blóma.
Þarna hefur nýlega risið upp
glæsilegt fiskiðjuver ísfirð-
ings h.f., sem bæjarútgerðin á
stærstan hlut í, og tveir tog-
arar eru gerðir út við góðan
orðstír.
í skipasmíðastöð Marsellí-
usar Bernharðssonar er fiski-
bátur í smíðum og okkur gafst
kostur á að skoða bát, sem
skipasmíðastöðin hafði nýlok-
ið við. Heitir sá Hjálmar NK
3, glæsilegasta fiskiskip, 82
tonna og mun leitun á vand-
' áðri bát hérlendis. Enda vaT
gripurinn ekki gefinny bví
að með öllum útbúnaði til síl<3,
veiða mun Hjálmar hafa kost-
að á sjöttu milljón króna. Von
andi aflar slíkur dýrgripur
vel í sumar. Skipasmíðastöð
M. B. hefur auk Hjálmars
smíðað tvo báta eftir sömu
teikningu, Rán og Gunnhildi*
sem gerðir eru út frá Hnífsdal
og ísafirði. ,
Síðdegis á þriðjudag er
skroppið til Bolungarvíkur,
15 km. leið frá ísafirði. Veg-
„ urinn þangað er allhrikalegur
á köflum, snarbrattar skriður
á aðra hönd en hyldjúpt hafið
hins vegar. En leigubílstjór-
inn á í-450 ekur gætilega. Það
Framhald á 14. síðu.
MMmWMWHMWMIWMMW
íl Mynditnar
KORTIÐ efst á síðunni
sýnir helztu þjóðvegi á
Vestfjörðum; þó vantar
vestasta hluta landsins, ná
grenni Látrabjargs. Þettá
er hluti af hinu nýja vega
korti Vegagerðar ríkisins.
Myndin neðst á síðunni
sýnir Fagranes við
bryggju á Melgraseyri.
Langferðabifreið Vest-
fjarðaleiðar h.f. bíður til-
búin til brottfarar.
MMtMMtWmMMWMUMIM