Lögberg - 06.04.1911, Blaðsíða 2
2.
LÖGBERG. FIMXUDAGINN 6. APRÍL 1911.
Ættartölur
Vestur-íslendinga.
ÞaS hefir frá alda Ö5li veriS
talið meðal œðstu kosta manns'að
vera vél ættaður, og allmörgum
er enn í dag alveg jafnsárt um að
sá kostur sinn (virkilegur eða í-
myndaðurj sé viðurkendur út í
frá, eins og annað ágæti í fari
sínu. Svo mjög sem fornöldin
lagði rækt og lotning við hetju-
skap og hugprýði þá lyfti þó
ættar aðall þeim afburðum á
æðra og göfugra stilg i áliti manna.
Og kvað svo mjög að þessu, að
framúr skarandi yfirburði þurfti
oft og einatt fyrir ótigna menn til
að brjótast fram til meta og
mannvirðir^ga. |Þ|essu samfara
var svo það, að jafnt og
ein þjóð sótti fram fyrir
aðra að mentun og mann-
dáð þótti það mikilf sæmdarauki
að heyra þeirri þjóð til og vera
af henni fæddur. Þannig er það
t. d. haft eftir hinum nafnkenda
grísika speking Platon, að eitt af
því þrennu sem hann þakkaði guð
dóminum fyrir, væri það að hann
væri fæddur grískur. Þessi ætt-
göfgis og þjóðernis metnaður fet-
ar svo niður eftir öllum öldum alt
til vorra daga,—og rennur i raun
inni saman við ættrækni og sjálfs-
elsku annars vegar, en þjóðrækni
og ættjarðarást hinsvegar.
Það má án efa fullvel segja,
þegar á þetta er litið, að of mikil
áherzla hafi fyr á öldum verið
k%ð á ætt- og þjóð-göfgina eina
út af fyrir sig, án neins tillits til
persónulegra kosta mannsins
sjálfs í eiginlegiun skilningi. En
jafnframt því virðist það þó ein-
mitt hafa vakað ósjálfrátt fyrir
þjóðum alt til þessa, að ekiki
sé það einskisvert fyrir afkomand
ann hvert og 'hvílíkt foreldri hans
er, — sem einmitt nú er svo frek-
lega að sannast af. athugunum vís-
indanna á vorum dögum. Og er
þetta atriði eitt af þeirn sem fylgt
hefir eðliskynjum mannkynsis frá
byrjun. En hins vegar: þó segja
megi, -að ættarmetnaðurinn hafi
óneitanlega á aðra hliðina leitt til
oflætis og hégómlegs þótta, þá
þá hefir það aðeins átt sér stað til
jafns við hvern annan mannlegan
kost, sem er þessi metnaðar til-
finning fyrir þjóð ög ætterni hefir
svo vakið þá fræðigrein sem
nefnd hefir verið œttfrœffi; og
höfum ver íslendingar staðið jafw
framarlega í þeirri fræði eins og
nókkur önnttr þjóð. Þö er ekki
svó að skilja að aðrar þjóðir séu
þar ekki teljandi til,—sem fáfræð,-
ingar geta ef til vill, ímyndað sér.
Einkum er það alkunna þeim
sem nokkuð ihafa lesið um háttu
annara þjóða að alt í frá fornöld
hefir það verið altítt ofan til vorra
daga, hjá hinum liœrri stjettum
menta-landanna, að gæta sem bezt
ætternis síns; meðfram að sjálf-
sögðu vcgtia erfðafjár og ytri
metorða, en jafnframt og með- ;
fram vegna meðf:eddrar ætternis
trygðar, sem náskyld er bæði föð-
urlandsást og ættrækni, og talin
hefir verið, af drengskapar mönn-
um ein hin æðsta sæmd nianns og,
ágæti. En til sönnunar þessari '
ættardýrkun meðal annara þjóða,
bæði fyr og síðar á tímum, má j
mörg og margvísleg dæmi til-
færa; og býst eg við að allir fróð- j
ir menn kannist vrð sitthvað þess !
efnis, að minsta kqsti við umhugs-
un.—
Að kynstórir ntenn haldi á ýmsr
an hátt fram ætterni sínu, er ekki (
nema mjög svo eðlilegt og enda
sjálfsagt, þar sem það er einn
þáttur pærsónitgildisins, í hverri ;
merkingu sem er. En í annan j
stað er það og jafn eðlilegt ætt- |
smáum mönnum að leyna upp- ;
runa sínum, og eru þá slíkar for-
eh'ra eða forfesra felur einn j
þáttur þeirrar smæðar.
íslendingar hafa, eins og eg [■
- drap á, verið miklir ættfræðis og |
ættartölumenn, Jtæði að fornu cg
nýju. Ekki hefi eg orðið þess
var, að neinum þyki kynlegur
ættametnaður íslendinga til forna,
meðan þrek og þróttur þjóðarinn- j
ar stóð í fullum íblóma. En að }
hinu hefi cg heyrt vikið, að nú-1
tíðar íslendingar hugsi ekki um
annað en að stæra sig af fomu
ætterni sínu og láti þar við sitja;
en hinum þættinum gleymi þeir,
sem sannri ættartign og þjóðrækt
sé samfara, aö framfylgja kyn-
göfgi sinni í drengsikap og djarf-
legum afrekum,—og nemi staðar
við orðin tóm.— Þetta er sagt, og
á sér ef til vill nokkurn stað;
bæði hvað snertir dúmalegar
misskilnings hugmyndir alþýð-
unnar á seinni timum yfirleitt við
víkjandi háttum og framgöngu
fornmanna: og í annan stað
orðabelgingar ýmissra (eink-
um ungra mentamanna á vorum j
dögum, um forn réttindi og forna I
þjóðgöfgi samfara glitmiklum j
glamuryrðum um frElsi, siálf-
stæði, framsókn o. s. frv.ý alt að .
einu hefir í ættartölum verið
hylst til að rekja ættirnar upp til
konungborinna manna helzt,
hverja svo sem krókavegi vísinda
manna til þess þarf að fara! Alt
má þetta að visu til sanns vegar
færa.
En nú horfir við úr gagnstæðri
átt sú þjóðræktarleysis stefna,
sem einkum hér vestan hafs er
gróðursett í akri útlends fjár-
dráttar þótta, að einu gildi um
ætt og uppruna; alt sé undir kom-
ið afrekum einstaklingsins einum
saman; og sé auður og persónuleg
upliefð fyrir sig það eina sem
hann á að berjast fyrir og vinna
að. Aðrar hugsjónir allar séu
reykur einn og rugl. Mætti manni
finnast sem hér sé durnarskapur
seinni tíma alþýðu af þjóð' vorri
kominn fram í nýrri mynd. Og
í annan stað er þessi lífsstefna
svo lágrar ættar(!) serm verða
má, þar sem hún fyrst og frernst
dýrkar enskinn með þvi að taka
upp alla hans hugsun og háttu, en
afneitar þar með einnig sinni eig-
in þjóð og hennar eðli. — Það er
sagt svo, að ekki megi spyrja
hvítan Ástralíumann um ætterni
hans, og sé það honum mióðgun.
því Ástralíuhúar yfirleitt eru
komnir af sakamönnum sem flutt-
ir varu þangað í hegningarskyni
á 18. öldinni. Einhver svipuð til-
finning virðist vaka fyrir þeim
sem afneita ætt sinni og þjóðerni
og elta annars lands hugsun og
háttu. En að svo er, hváð ýmsar
íslenzkar persónur snertir, eftir
að til þessa lands kom, á því er
enginn vafi,—og það í svo frekri
mynd sem vera má. Svo langt
getur einfeldni olg fordild farið
með fólk.
Svo að eg viki nú betnt að ætt-
; artölunum aftur, þá er meðal ann-
ars þess að spyrja: Að hvaðá
| haldi kemur mönnum að vita um
I uppruna sinn og ætt? Þlví svara
eg: Svo framarlega sem það er
nokkurs virði fyrir nokkurn mann
að þekkja sjálfan sig — sem að
sjálfsögðu er eitt 'hið fyrsta og
helzta framsóknar 9kilyrði hvers
einasta manns, — þá er það og
jafnhliða nauðsynlegt að þekkja
ætt sína og uppruna. Því framar
í ættinni kdma ef til vill fram ýms
þau eðliseinkenni, stundlum á hærra
og stundum á auðsærra stigi en
hjá viðkomanda sjálfum. Sé hann
af tignum ættum, þá er það hvöt
fyrir hann til að halda uppi sóma
ættarinnar með framkomu sinni
! og framkvæmdum. Sé hann aft-
ur á móti smáéettaður er altað einu
hvöt fyrir hann að jafna upp það
j sem á skortir í ættinni, með eigin
manndáð og atroku. En fyrir ætt
sína ætti eníginn að fyrirverða sig,
hver sem hún er; vegna þess
frernur að bera af forfeðrum sín-
um sem smærri eru. — Og enn er
]>ó ótalinn sá kostur ættfræði (og
1 ættartalnaj. að hún hvetur niðj-
ana til þjóðrækni og þar ,með til
1 þjöðannfetoaðar; og verður vor
kynslóð því fremur fyrirmynd
komandi kynslóða í þessnm efn,-
um, sem hún rekur hér rækilegar
úr hlaði, og liggur þess meira við
í þessu máli sem yngri kynslóðin
hér uppald^ hefir engan hug né
hneigingu til síns forna ættlands
að neintt leyti svo framarlega sem j
hún ekki fær sérstaka næma hvöt j
frá eldri kynslóðinni. Og geti
þeir meðal annars ekiki talið ættir
sínar lengra en til einihvers Amer-
íkufarans t. d. á fyrri öldinni, svo
frantarlega sem þeir hafa engin
gögn í höndum. Enn fremur verð
ur allur litur á landnámssögum
Vestur íslendinga ( munnlegum
eða skriflegumý eða að minsta
kosti samband þeirra við heima-
landið þess frjórra og fetskarja
sem fleiri ættfræðisgögn sem eru
fyrir höndum. Hitt er annað mál
að mikið fram að þessu hefir
hagur flestra Vestur íslendinga
staðið svo, að þeir hafa haft ann-
að að hugsa um en ættfræði. ' En
’nú er hagur allmargra þeirra kom
inn í þann blóma, að þeir geta
farið að líta í kring um sig ögn,
og sinna fleiru en slitalausu veg-
broti fyrir lífsins þurftum. Og!
sé eg meðal annars þá frelsis- j
hvelfd í fegurstri og hugþekkastrj ;
rnynd fram koma hjá þeim sem
taka sér næði til að hverfa um
stund heim til fósturjarðarinnar.
Og sprettur þetta alt upp af ein-
um meiði, og það sem eg hefi hér
um rætt aðallega.
Eg veit ekki til að hér vestan
hafs séu nein veruleg gögn fyrir
höndum til samstæðra og áreiðan-
legra ættfræðis rannsókna og ætt-
artalna. Býst við að heim til ís-
landsj verði að snúa sér í þeim
efnum, en mikil trygging er þar
fyrir áreiðanleik þeirrar fræði-
greinar. Héðan af safn alla finn-
anlegra eldri heimilda í þeim efn-
um sem öðrum til landsbóka og
landskjalasafnsins — svo sem
ministerial bækur, sem hafa fæð-
ingar og dauða dægur manna inni
að halda o. s. frv. Enn fremur
eru og nú í Reykjavík sérstakir j
fræðimenn í þeirri fræðigrein,
með greiðari aðgang að heimildr
um og meiri þekkingu en áður
var vegna þess sérstaka hægðar-
auka, sem þessu nýja safna fyrir-
komulagi er að þakka. Og má því
jafnframt að sjálfsögðu búast við
að ódýrari séu nú einnig upplýs-
irtgar allar í ættfræðisefnum held
ur en nokkru sinni hefir áður
verið. Að minsta kostií tiltölu
við vaxandi tryggingu og áreiðan-
leik.
Þorsteinn Björnsson
Ur Pipestone bygð.
Bardal P. O., 18. Marz 1911.
I>að er nú æði lamgt siðan Lög-
; berg hefir fært lesendum sínum
! nokkrar fréttir héðan úr þessari
. bygð, og dettur mér því í hug hr.
j ritstjóri, að senda fáeinar línur í
; yðar heiðraða blað, Lögberg.
| Mér finst lika, að margir ættu
1 að skrifa meira úr landsbygðunum
í til Lögíbergs, því það er nú orðið
j svo stórt, að það rúrnar meira
' lesmál síðan um nýárið að það
stækkaði, og er stór munur á því
! nú eða var fyrir 20 árum síðan,
j þegar það var nýfætt, og átti þá
í við fátækt og erfiðleika að
| stríða. Og mikið mega nú aðj
j standendur Lögbergs vera ánægð-
ir yfir þeim framföram, að sjá nú
; blaðið vera komið í þá stærð er
j það er nú í, ásamt því, að geta nú
j sagt, að það eigi stórt og vandað
j hús fyrir sjálft sig, og svo það,
j aö geta leigt út af því pláss íil
| margra annara afnota, sem aðrar
bygg.rngar ekki geta, nema þær
j séu af hinni 'beztu tegund. Heið-
ur sé aðstandendum Lögbergs, og
j óskandi að blaðið blessist vel í
sinni veglegu byggingu í framtíð-
' inni.
Til þess að fá eitthvert umtals-
efni verð eg að fara nokkuð aftur
I í tínrann. Og til þess að minna á
j hið umliðna verð eg t.d. að nefna,
j að árið 1909 var beldur þurka-
j samt fyrir kornræktina yfir höf-
: uð að tala; en samt fengu menn
í hér meðal uppskeru, og gott verð
j fyrir afurðir sínar, og mátti því
kalla það ár heldur affarasælt;
j veturinn milli 1909 og 1910 mátti
j kalia heldur mildan, og snjóa lít-
j inn, snjó tók af jörðu æði snemma
| að vorinu til, en þó varð sáning
j ekkert fyr um garð giengin en
j venjulega, og gerði það kuldakast
j er kom fyrir miðjan sáningartim-
í ann; það hamlaði mönnum frá
: akurvinnu á aðra vi'ku, en samt
j mun það hafa verið álitið að alt
I útsæði, er íbændur sáðu, hafi kom-
ist óvengjulega vel í jörðu, og frá-
j gangur hinn bezti hjá öllum; gerði
I það hin hagstæða Veðrátta, sem
kom eftir kuldakastið áðurnefnda;
j öllum kom saman uirn, að aldrei
hefðu fnenn séð korn koma upp
eins jafnt og fallega. því að það
virtist eins og hvert eitt einasta
j korn er í jörð var látið,* kæm.i
upp og þrifist eins vel og lmgsast;
í gæti. Voru akrar því hinir feg- !
urstu yfir að líta, þar til síðast í !
Jútií of fyrst í Júlí að hitarnir !
urðu svo gífurlega miklir og lang-
stæðir, að alt fór að ganga til j
rirnunar. Mun það láta nærri, að
í átta daga, meðan hitaaldan stóð
sem hæst, hafi hitinn stöðugt sað-
ið frá 95 til 108 gr. dag eftir dag.
Munu þá flestir ekki hafa séð
fram á annað en algerðan upp-
skerubrest, því jörðin varð svo ó-
venjulega heit og þur, svo að
plantan upp af korninu brann og
lá í legum á ökrunum. En alt
fyrir það varð þó uppskera nokk-
ur, og sumir fengu sem svaraði j
hálfri uppskeru, eða meira,; en ■
samt var af öllum korntegundum
rír uppskera; en hið góða verð er j
bændur fengu fyrir hveiti sitt, þó>
lítið væri, hjálpaði þeim undur j
vel, og fyrir áikaflega hagstæða
veðráttu að 'haustinu til hirtust j
allar afurðir bóndans æskilega.
Þó grasspretta væri með lak- ;
asta móti síðastliðið sumar, þá
mutiu flestir hafa náð í nokkurn
veginn nóg hey handa skepnum
síínum. En þó mun hálrrmr, eða
strá, hafa verið brúkað meira til
foðurs á þessum vetri alment, era
nokkurn tíma áður; og sem eðli-
leg afleiðing af hinum langa og
stranga vetri, mun mest ef ekki
al fóður verða uppgefið þegar
sönn vorveðrátta kemur.
Það má segja íslendingum í
þessari bygð til hróss, að þeir
munu standa flestum bændum
framar hvað fóðurforða snertir,
því þar mun engin undantEkning
\eta; og aí langri reynd er mér ó-
hætt að fullyrða, að íslendingar
standa í fáu eða engu á baki ann-
ara þjóða mönnum, þegar litið er
á llan fjöldann, og mun vera eng-
in undantekning heldur. Það mun
þykja eftirtektarvert, að þegar um
eitthvað er um að vera, eða ís-
lendingurinn þarf að fá lánað
e'íthvað, t. d. hjá verzlunarmönn-
um, þá er það ávalt sjálfsagt og
velkomið. Þegar annara þjnðaj
menn annað hvort fá neitun, eða I
það tekur langa umhugsun; eða í |
þriðja lagi, að nákvæmlega er leit-
að eftir kringumstæðum og mann-
oygð hins þurfanda. I þessu munu
vera fáar undantekningar. ef þær
era nokkrar. Árvekni og um-
hyggja íslendinga hér fyrir heim-
ili og fjölskyldum sínum, er óef-
að meiri og sterkari en fyrir öllum
fjöldanttm af annara þjóða fólki.
Þó er ekki hægt að neita því, að
í'-'endingar eru á eftir hér í einu,
og það er, að þgir hafa engan
tnann eða menn í neinum opin-
bentm stöðum. Ekki mun það
vera skortur á viti hjá íslending-
um, heldur Skortur á valdi á hér-
lendu máli, að hafa gott vit og
geta hugsað vel eða talað vel mál-
ið á mannfundum, á opinberum
stöðum, svo að æskilegt og áheyri
legt sé. Það er ekki að búast við
að menn, sem koma hingað á full-
orðins aldri, þá mállausir hvað
enskuna snertir, og með ekki aðra
tnentun en þá, sem viðgengst
heima á íslandi, geti lært málið
svo vel, að þeir geti staðið jafn-
vígir mönnum, sem læra málið á
ungdómsárum og hajfa gengið á
j enska skóla lengri eða skemmri
j tíma, og þar að auki jafnhliða
j því áð vera mállaus, að fara að
berjast að stríða fyrir lífinu og
heimilinu út í óbygðiim. og þar
| við ibætist, að verk eða vinna hér
j í þessu landi er alt öðru vísi en
| vinna sú, er við sáum og lærðum
j heima á gamla Fróni, og verðum
í því að læra að brúka hérlenda
aðferð við vinnuna; læra að skilja
hana og árangur hennar, og læra
að mörgu leyti nýtt líf, og skilja
það til hlítar. Og auðvitað að
læra tnálið jafnhliða hinu, sem
þurfti að læra fyrst, en t mörgum
tilfellum verður seinast, og veldur
því strit og þungi dágsins, ásamt
of mikilli fjarveru frá enskumæl-
anrli fólki.
En alt fyrir þetta, eins og eg
sagði áðan, af langri reynslu má
eg fullyrða, að íslendingar eru
ekki á eftir. Þeir taka þátt í
pólitískum niákim, og gefa att-
kvæði sitt með eða mlóti; og þar
er engu að ýta; þeir eru fastir
fyrir, hver með sínum flokki, og
það er ekki að lasta. Það er því
langt frá mér að segja, að við ís-
lendingar séum á sama máli ætíð;
það getur ómögulega verið, þvi að
“svo er tnargt sinnið sem skinn-
ið”, og það breytist aldrei.
Eg hefi nú tekið útúrdúr, sem
máske ekki hefði átt að verá- og
skal eg því snúa mér að því er eg
1 .daði, nefnljega að alt fóður
mundi verða uppétið þegar VDrið
kærrí. Nú eru menn í bæjum farn-
ir að fá hey flutt að á járnbraut-
tu.n, og er það orðið afar dýrt
þegar það er komið hingað. Eg
sá fyrir nokkru selt aðflutt bund-
ið hey í Reston fyrir $14; og núno
fyrir litlu síðan sá eg part af
tonni selt í Sinclair fyrir sem svar"
ar $17 tonnið; má það heyta afar-
verð, og óheyrt hér fyrri.
•Vetrar veðrátta var kcmin hér
20. Nóvember og suma daga í
Desember voru miklar hörkgr.
l.r. eftir að nýár ibyrjaði til fyrstu
viku ■ Febrúar var óslitinn vetr-
argaddur, og því snjóþyngsli
mikil; engar ákaflegar frost' örk-
Iiafa verið síðan í miðjum Eebrú-
ar; það sem er af Marz hefir mátt
heita góð veðrátta, og siðustu
daga hefir verið sólbráð og góð-
viðri og snjór sigið mikið, hæstu
hólar komnir upp úr snjónum.
Hér hafa nú orðið mörg og stór
umskifti (hin síSustu ár 'til hins
betra. Þegar við komum hér fyrst
fyrir 19 árum, þá var hér engin
járnbraut; en nú eru hér fjórar
brautir komnar; allar liggja þær
frá austri til vesturs. Reston cg
Arcola brautin liggur í gegnum
miðja bygðina, og er Sinclairbær
á henni, og stendur í miðri
íslendinga bygðinni. Þang-
að hafa íslendingar sótt mest
þarfir sínar, og dregið þangað
hveiti sitt. Það er góður verzl-
unarstaður, enda er þess þörf, því
alt land þar er þétt bygt og alt
akuryrkja. Þó hafa bændur tölu-
vert af gripum og svínum, ásamt
fuglarækt. í SincJair bœ eru 2
verkfærasölubúðir, 1 járnsmiður,
1 timbursölumaður,, pósthús, harð
vörubúð, “livery stahle”, veitinga-
ihús og 1 matvöruverzlun; og miun
það nú þykja á vanta, að þar er
engin samkepni i þeirri tegund.
Það voru áður tvær matsölubúðir
og þrifust vel, en annar maðurinn
hætti og fór vestur til Edmonton,
en kona hans og nokkuð af börn-
um þeirra búa nú á landi, er hann
keypti tvær mílur frá Sinclairþæ.
Hann byrjaði fátækur, en fór með
alla vasa fulla, en búðina hefir nú
verandi matsölu kaupmaður keypt
til þess' að enginn annar maður
gæti byrjað þar neina verzlun í
samkepni við hann. Hann græðir
offjár, og hafa nú margir tekið
það ráð, að sækja þarfir sinar til
Reston eða Antler, Sask, þó að
það sé lengra að fara. Reston er
ákaflega góður verzlunarbær og
framfarabær. Þaðan liggur Res-
ton anrl Wolsley járnhrautin og
fer östutt norðan til við nyrztu
íslendingana í bygðinni;, á 1 enni
stendur Ebor bær 3 cg hálfa mílu
fro nyrztu íslenzku bændunum.
I>að lítur út fyrir, að það verði
góður verzlunarstaður. Þar eru
3 akuryrkjuverkfæra búðir, 2 mat-
söluibúðir, einn timbursali, ei m
járnsmiður, pósthús, veitingahús,
“livery stable”, “poolroom” og
kjötsali Frá Bbor til Sinclair er
alt j>étt bygt Iand, og má það heita
óslitinn hveitia'kur á sumrum. Um
2 til 3 mílur norð-austur af Ebor-
bæ ligur C. N. R. brautiti; hún
liggur eftir hæðum vestan til við
Pipestone ána, þar stendur Cromer
bær nokkuð austar betur, 6 mílur
frá Ebor, niður í dalverpinu, að
heita má á árbakkanum. Það mun
mega segja að sá bær stendur í
bezta hveitibeltinu sem hér er, og
á allar hliðar eru stórefnaðir bænd
ur og gömul bygð. Suður af Sin-
clair liggur Bröomhill and Tillson
brautin, og er rétt sunnan við
syðstu íslendinga, og mun það
vera um 14 til 15 mílur frá Sin-
clair til Tillson bæjar, en þar er
eg ókunnugri; en eg veit þó, að
það svæði er óslitinn akur að ka'la
tná, og gott og fallegt land; þar
Iiefi eg heyrt að væri einokunar-
verzlun.
Þess má geta, að nú er talsími
að heita má í hverju húsi hér norð
j an til við Sinclair; en stutt fyrir
sunnan Sinclair skiftist landið t
annað sveitarfélag, og eru þeir þar
á eftir tímanuin með talsímana, en
sagt er að þaö lagist að sumri. $20
um árið verður bóndinn að borga
fyrir símann, og þó að það sé mik-
ið fé, munu fáir vilja án hans vera
fyrir það verð, þvt að ómetanleg
þægindi eru það som maður getur
haft af honum.
Á þessum síðustu árum hafa
flestallar vörur hækkað í verði, er
bóndinn þarf að kaupa; þó mun
vera tilfinnanlagast fyrir bóndann
verðhækkun á akuryrkjuvélum
sem er afar mikil; t.cþ má geta
þess, að nú eru vélar ekki eins
endingargóðar og þær áður voru,
en hærri í verdi. Eg fékk bindara
fyrir 12 árum stðan fyrir $140;
með honum hefi eg slegið og bund
ið uppskera mína á hverju ári síð-
an til síðasta hausts; þá var hann
orðinn svo útslitinn að eg varð að
fá annan, og hann kostaði $190,
og vann bæði ver og slitnaði fljóþ-
ara, og eg ímynda mér að hann
verði útslitinn og til einskis nýtur
eftir eins til tveggja ára vinnu til.
Eg vil minnast þess, af því það er
svo tilfinnanlegt fynr bændur, að
á fyrstu áruni okkar hér gátum við
fengið góðan vagnkassa fyrir
$15.00 með sæti á, fyrir peningai
út í hönd, en ’nú eru þeir sætis-
lausir seldir á $27 til $32; og
aðrar vélar munu hafa stígið í
verði hlutfallslega.
Þessi verðhækkun mun vera á-
litin tolllögunum að kenna, og
varla mun bændum hafa þótt Mr.
Fielding hafa haff mikla með-
aumkvun með iKindanutn þegar
hann í Janúar gerði samningana
við Baudarikja forsetann, um toll-
lækkunina, afi hann skyldi ekki
vilja taka nema 2]/2% af akur-
yrkju verkfærum, en láta 15%
standa; það er ekkert efunarmál
fyrir bændum, að Mr. Fielding er
þar einum um að kenna, því að
Bandaríkjamenn vilja fá góðan
markað fyrir vörtt sína ef auðiJS
j er, og hvergi betri markaður en í
Canada; en tolIjgarSurinn er til
j fyrirstöðu.
En sá tími er nú ekki langt í
burtu að stjórnendur Iandsins
| verða að gera eins og hóndinn vill,
I og kom það berlega í ljós að svo
j er á bændafundi 10. Marz þ.á, sem
haldinn var á Sinclair, því að á
3 þingmenn var skorað að segja
af sér þingmannsstöðunni, sökum
Jiess að þeir brugðnst bændum al-
gerlega í tollmálinu; tveir af þess-
um mönnum eru fylkisþingmenn,
báðir conservatívar, og eru báSir
góðir menn og vel látnir; þessir
tnenn eru Harvey Simpson frá
Virden og A. M. Lale, þingmaður
fyrir Melita. Þessir menn reyndust
báðir niótstöðucnen^ nins mesta
áhugamáls bænda, nefnil. samn-
inganna á milli Canada og Banda-
ríkjanna, og mega þeir vera vissir
um, að fá ekkert atkvæði aftur t
héraði sínu til þingsætis framvegj-
is. Hinn þriðji er þingm. Bran-
dons í Ottawaþinginu, Mr. Clif-
ford Sifton, gamall Brandonbúi
og Vestur-Canada maður, og vin-
ur bænda áður meir; maður sem
er mjög vel skynsamur og einn af
mestu ræðuskörungum þessa lands.
Hann þekkir þarfir bænda og
Norðvesturlandsins og afstöðu
þess í öllum málutn, betur en flest-
ir aðrir menn. Hann var innan-
ríkis ráðgjafi í mörg ár fyrir Cattr
ada, og skildi verk sitt vel og vann
það manna bezt, enda er gáfum
hans og hæfileikum við brugðið;
á fyrri árum sínum var hann fa-
tækur maður, en með tímanum og
forsjálni hefir hann auðgast mjög
mikið. svo að hann mun nú vem
í ríkra manna tölu í Canada, enda
hefir hann n,ú skift stórkostlega
um skoðanir, því að nú er hann
orðinn meðmæltur auðmönnum,
verksmiðjumönnum og einokun,
ásamt því, að vera nú orðinn
strangur tollverndar maður; og
enginn maður hefir lofað 'hátíð-
legra loforði en hann lofaði Mani-
toba bændum, í ,hvert skifti er
hann hélt fundi og ræður fyrir
hverjar þingkosningar, er hann
sótti tim og var kosinn í, viövíkj-
andi fríverzlun eða tolllæklcun á
allri þeirri nauðsynjavöru, er
bændur þyrftu að £á handan yfir
Bandaríkja landamærin. En hve
brást nú ekki Mr. Sifton txend-
rnn? Af því set eg hér sýnis-
liorn.
I vetur sendu bændur mörg
hundrað manns austur tjl
Ottawa til að bera fram áhugamál
sín fyrir stjórninm, og var toll-
málið eitt af þeim veigamestu.
Þann dag sem sendinefndin (16
Jan.J mætti Sir Wilfrid Laurier,
var Sifton hvergi sjáanlegur, né
finnanlegur þó að hann vissi að nú
voru bændur Vesturlandsins og
vinir hans komnir, og vissi að þeir
vonuðust eftir að hann mætti
þeim, talaði máli þeirra, og að
hann sýndi þeim alt það göfug-
lyndi er þeir áður voru búnir að
sýna honum. En slíkt brást al-
gerlega. Hann forðaðist að láta
þá sjá sig i þá 4 daga er sendi-
nefndin stóð við i Ottawa. Hann
hafði augsýnilega haldið sig í
burtu af ásettu ráði, og verið í
góðum felum þann tíma, er vinir
hans þurftu hans með, og var það
slæmur fyrirboði fyrir bændur.
En strax og bændur voru komn-
ir af stað heim til sín, þá var Mr.
Sifton á sínuim “pósti”, og þegar
nefnd sú er Sir Wiífrid Laurier
sendi til Washington til að gera
smninga um tollmálin við Taft
forseta, kom til baka til Ottawa'
óg gerði heyrin kunnugt hvernig
samningamir voru, reis Mr. Sif-
ton andvígur og öfugur á móti
öllurn samningunum og vildi þá
enga tolllækkun, heldur algerða
tollverndun, og hélt þá eina af
þessum “rífandi” ræðum, sem hon
utn er svo eiginlegt, sem var öll í
vil verksmiðjumönnum og auð-
kýfingum og einokunar félögum',
en algerlega í öfuga átt við stefnu
bændanna. En nú er þess að gæta
að nú er Mr. Sifton ekki fátækur
maður lengur, heldur auðmaður
og orðinn hlyntur þeim, og snýr
því bakinu við bændum, og bœjar-
lýð, og án efa 'hugsar sem svo: Eg
þarf ykkar ekki við lengur. Eg
er sjálfbjarga. En nú segja bænd-
ur: “Við þurfum þin ekki við
lengur. Þú hefir brugðist okkur,
og segðu af þér starfa þeim, sem
við trúðum þér fyrir. Þú ert
ekki hans verður.”
Tilfinningar þær og skoðanir,
sem eg bst hér í ljós að framan,
eru mínar eigin, og eru þær i sanv
ræmi við skoðanir bænda er komu
í ljós á fundum bænda er haldnir
eru 'hér stöðugt, nema hvað eg
reyni að koma þeim í mildari róm
án æsinga eða otsa. Bændum er
heitt til þeirra þingmanna, sem
eru á móti þeim velferðarmálum
,-eni þeir eru að berjast fyrir.
Þótt ekki væri hér stór upp-
skera í sumar sem leið, þá er hér
þó almenn velliðan fólks á meðal;
engir skaðar eða hnekkir orðið á
árinu af náttúrunnar hálfu, nema
einn landi okkár, Kristján Bardal,
varð fyrir þeirn skaða á síðasta
sumri, að missa fjós sitt í eldi, og
fóru þar með tvö hross og nokkuð
af nautgripum, ásamt ýmsum nyt-
samlegum hlutum er í því voru;
fjósið var timburbygging og því
tilfinnanlegt tap í byggingunni,
því að viður er dýr og byggingar
kostbærar þegar þær eru albúnar
eins og það var, íyrir utan hross-
in ,sem liggur hin mesta peninga-
upphæð í á bændabýlum, því að
gott hestapar mun nú trauðlega
fást fyrir neðan $600; tapið er því
rnjög tilfinnanlegt..
Við höfum nú mist einn af
frumbyggjum þessarar bygðar til
hinnar löngu hvílu, nefnil. Kristj-
án Abrahamsson, er lézt í Winni-
peg fyrir skömmu síðan. Hann
var einn af þeim sem, leomu
hingað allra fyrst, og barðist í
gegn um súrt og sætt, oggafst al-
drei upp við erfiðleika er frurn-
býlingsárin höfðu í för með sér, fyr
en heilsa hans bilaði; þá varð
hann að hætta búskap og tók sér
aðra stöðu léttari til að geta hald-
ið viðunanlegri heilsu. Hann var
kominn i góð efni þegar hann
varð að yfirgefa búskapinn. Hann
var sómamaður, góðhjartaður, eð-
allundaður, gat ekkert aumt séð,
án þess að víkja góðu að í orði og
verki; f jöíhæfur maður var hann
meir en almenit gerist. Kærteik
og manndiygð var ætíð að finna
þar sem Kristján var. Blessuð
veri minning hans,
Það hafa engir dáið hér síðan
að kona Bergvins dó 1909, og
Sigurbjörg dóttir Carolínu yfir-
setuikonu; en nokkuð af börnum
hafa fæðsfc
Sumir eru nú komnir í nokkuð
góð efni, sumir í minni, og aðrir
mæta ýmsum mótgangi í lífinu,
og má mest af gömlu vísunni
sannast hér við: ‘Sumir fætðast,
sumir klæðast helju, sumir vaða
sorgardý, sumir baða rósum i. Þó
munu rósirnar fáar, er ibaða híð
daglega líf hjá bondanum.
Bið eg svo Lögberg velvirð-
ingar, á öllu sem eg hefi skrifað.
Með vinsemd,
Hinrik Johnso«.
Stórfengileg loftför frá íslandi.
Nokkrir þýzkir yísindpmenn
hafa hugsað sér að fara yfir At-
landshafið í loftfari sem stýra má.
Þeir ráðgera að leggja upp frá
nágrenni Reýkjavíkur og lenda í
Canada. Þessir fara förina:
Joseph Brúcker frá New York,
Doctor Hans Fabrice forstöður
tnaður her-flugskólans í Múnoh-
en, Professor Halt við veður-
rannsóknastöðina i Múnohen,
verkfræðingurinn M. Muller og ör
nafngreindur flotaliðsforingi.
Aðal örðugleikinn við þessa
löngu leið, er að komast hjá of
miklum gas-missi, vegna sólar-
hita.
Professor Halt og Brúcker
hugsa sér að ráða bót á þessum
örðugleikum með því að væta yff-
irborð loftfarsins með þar til
gerðri dælu sem dreifi vatni yfir
belginn.
Til þess að komast hjá slysum
verður farþegarúmið bátur, 10
stikur að lengd og 3 að breidd,
með tveimur bifvélum, er hafa
100 hesta afl.
Princessa Heinriche verður við-
stödd þá er þessi loftbátnr “hleyp-
ur af stokkunum” í Kiel.
Það er stór þýzk cacaoverk-
smiðja, sem ber allan kostnað við
för þessa og á loftfarið að heita
eftir henni. — Vístr.
Borgþór Jósefsson.
11. Jan. þ. á. voru liðin 25 ár
frá því bæjargjaldkeri Borgþór
Jósefssoií gekk inn i stúkuna Ein-
ingin nr. 14 (í RvíkJ; allan þann
langa tíma befir hann starfað
hlífðarlaust jafnt fyrir stúku stna
sem Góðtemplararegluna í heild
sinni, og mun ekki ofmælt að eng-
inn maður hér á landi ihafi starf-
að í þarfir bindindismálsins með
jafnmikilli festu og ósérplæjni
sem þessi maður, enda lipurð
hans við brugðið.
í tilefni af þessum 25. ára af-
mælisdegi héldu nokkrir samc erka-
ntenn hans úr Einingunni honum
samsæti á “Hotel Island” og af-
hentu bonum að gjöf mjög vand-
aö skrifborð rneð amerísku lagi,
úr mahogani, með ágrafinni silf-
urplötu eftir Árna Gíslason, sem
á stendur: “Til minningar um 11.
Janúar 1911”. Samsæti þetta fór
mjög vel fram, og sást það hér
glögt. hversu miki'la vinsælda
Borgþór nýtur meðal almennings.
Kona hans, leikkonan Stefanía
Guðmundsdóttir, sat samsætið með
manni sínum og er ekki ofmælt,
að hún hefir frá fyrstu verið
manni sínum samhent x því, að
vinna hindindismáltnu gagn. Að
samsætinu loknu fylgdu gestirnir
hjónunum heim til sín.—Lögrétta.
Máttleysi í öxl orsajkast nær alt
af af vöðvagigt, sem læknast ef
Chamberlain’s áburður fChamber
lain’s Liniment) er duglega bor-
inn á. Seldur hjá öllum lyfsölum.
<cnx
Þegar um er ræða
PAPPÍRS-BIRGÐIR
og
ELDSPYTUR
Þa höfatn vér úrvals tegundirnar. Pappfr og eldspýtur eru atfal varningur
vor. LátiS oss vita um þarfir yöar,—vér önn-
ttcnst alt anaaS.
The E. B. Eddy Go. Ltd.
HULL, CANADA
TEE8E & PERSSE, LIMITED, Umboflsmcnn. Winnipoæ, Calgary, Edmonton,
Rcgina, Fort William og Port Arthur.