Lögberg - 18.04.1912, Síða 1
Graín Commission Merchants
-- 201 GRAIN EXCHANGE BUILDING -
Members Winnipeg Grain Exchange, Winnipeg
I
ISLENZKIR KORNYRKJUMENN
Sendið hveiti yðar til Fort Willianr^
eða Port Arthur, og tilkynnið
Alex Johnson £> Co.
aol GKAIN EXCHANGE. WINNIPEG.
Fyrsta og eina íslenzka kornfélag í Canada.
25. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 18. APRÍL 1912
i
NUMER 16
MESTI MANNSKAÐI Á SJO.
STÆRSTA SKIP í HEIMISEKKUR.
UM 1500 MANNSFARA í SJÓINN.
Skipið Titanic sökk kl. 2.20 á mánudags morguninn. Milli sex
og sjö hundruð komust af, mest konur og börn. Margir
frœgir menn fórust, þar á meðal C. M. Hays, forseti
Grand Trunk, J. J. Astor o. fl. Nokkrir Winnipeg-menn
meðal hinna látnu. Eignatjón um 1 3 miljónir.
Skipiö Titanic, hiö stærsta sem
nokkurn tíina hefir á sjó komiti,
rakst á ísj'aka fyrir austan New-
foundland á mánudagskvöld, og
brotnaöi svo, aö þaö sökk nokkr-
um stundum síöar. Á skipinu
voru 1,310 farþegar og 860 sjó-
menn. Alls 2,170 manns. Af
þeim var bjargaö aö eins 870 kon-
um og börniun í 20 bátum, ásamt
því skipsfólki, sem til þurfti, aö
róa bátunum, um 70 manns. Bát-
unum var öllum bjargaö af skipi,
sem heitir “Carpathia” og nú er á
leiðinni til New York meö þá,
sem í bátana komust.
Skipiö rakst á jakann á mánu-
dagskveld, hér um bil tveim stund-
um fyrir miðnætti. Rúmum fjór-
um stundum síöar sökk þaö.
Eftir öllum líkindum hafa karl-
menn, sem á skipinu voru, látið alt
kvenfólk og börn sem voru innan-
borðs, fara í bátana, og beöið
dauöa síns er skipið sökk. Bátar
voru ekki til handa fleirum. Mörg
skip voru á sömu slóðum, en þeg-
ar þau komu að þeim staö, þarsem
slysið vildi til, var ekkert að sjá
nema bátana og einstaita reköld af
hinu sokkna skipi.
Meðal þeirra 1,500 karlmanna,
sem mistu lifið, eru margir alþekt-
ir menn, svo sem C. M. Hays, for-
seti Grand Trunk járnbrautarfé-
lagsins og ti tugu aðrir úr Canada.
Frá Winnipeg voru fjórir, þar á
meðal Hugo Ross fasteignasali og
Mark Fortune, gamall og velþekt-
ur borgari i Winnipeg. Kona
hans og þrjár dætur komust af.
Auðmaðurinn J. J. Astor frá New
York var með skipinu og lét lífiö
og fjölda margir aðrir menn úr
Bandarikjum, vel þektir.
Þetta slys er eitt hið mesta, sem
á sjó hefir orðið, frá því sögur
hófust. Skipið var nýbygt, þetta
var þess fyrsta íerö, og ;var svo
látiö af eigendum, sem þaí" gæti
ekki sokkið, þó að brotnaði á sjó.
Menn geta sér til, að það hafi
verið á fullri ferð í myrkrinu,
þegar það rakst á jakann. Dýpið
er sagt tvær enskar rnílur, þar sem
það sökk og engin von um að
bjargað verði þeim dýrgripum og
verðmætum skjölum, sem á þvi
voru.
Veður var stilt og þokulaust og
stilt i sjóinn, að sögn. Virðist þvi
sem mannskaðinn sé því að kenna,
að bátar voru of fáir til að taka
alla farþega. Verður þvi ábyrgð
skipseigenda þung, enaa er sagt,
að í Fondon og New Yórk sé fólk
svo æst, að lögreglumenn verði að
gæta stöðva félagsins.
Skipið Titanic var 882 fet á
lengd og nálega 47,000 smálestir
aö stærð. Hæðin var nálægt 100
fet; það hafði ellefu þilför úr stáli
og kostaði 10 miljónir dollara.
Ekkert hafði verið til sparað að
gera það svo vel úr garði, sem
mannlegu hyggjuviti var mögu-
legt.
Eftir síðustu fréttum er svo að
isjá, sem skipiö hafi rent á isfjallið
; á fullri ferð og brotnað aftur á
1 söx. Stefnið og þilförin rifnuðu
og fór alt í mola, bátar allir, sem
fram á voru og jafnvel aftur á
miðju. Skipiði rendi upp á jakann
svo að nálega tókst upp úr sjó að
framan og ofan af honum aftur,
og fór þá nálega alt í sjó. Lá þá
I við aö þvi hvolfdi. Þá rifnaði
botninn úr því, frá miðju og fram
Jað stefni og féll þar sjórinn inn.
Dælurnar réðu ekki við neitt og
tók skipið strax að sökkva að
framan og leggjast á aðra hliðina
og velta 1 mikilli lognöldu. Mikið
af ís hafði ruðst á skipið og brun-
uðu jakarnir fram og aftur með
miklum skruðningum, svo að mik-
il hætta var að vera á þilfari.
Ivastið varð svo mikið, er skipið
rakst á, að alt tréverk brotnaði
undir þiljum. Eftir eina klukku-
stund var vélarrúmið fult af sjó;
þá stöðvuðust rafmagnsvélar og
gerðist dimt um alt skipið. Eftir
því sem hólfin fyltust, tók skipið
veltur á ýmsar hliðar og brotnuðu
þá margir bátarnir. ■ í myrkrinu
sóttist seint að koma burtu bátun-
en þó er sagt, a® allir hafi
um,
þeir lausir verið við skipið, þegar
það að lokunum sökk í sína
tveggja mílna djúpu gröf.
Það má heita mikil furða, hversu
aðdáanlega þeim mönnum fórst,
sem voru staddir í þessum lífs-
háska 'og voru svo vel stiltir, að
þeir létu þá sem voru minni mátt-
ar ganga fvrir að leita sér lifs, og
biðu sjálfir dauðans.
Heimastjórn á írlandi.
Frumvarp < þar að lútandi hefir
Asquith stjórnarformaður lagt
fyrir neðri málstofu Bretaþings.
Er svo mælt fyrir í frumvarpi þvi,
að írland skuli fá hálfá þriðju
miljón dollara tillag af rikissjóði,
Aem smáminkar. írar fá að 'kjósa
til þings í Dublin, er verða skal í
tveim deildum. Til efri deildar kýs
og stjórnin, en almenningur til
hinnar neðri. Mörg mál eru und-
anskilin valdi hins írska þings, en
látið í veðri vaka, að sum þeirra
vérði þinginu falin þegar timar
líða. Fulltrúa á írland að hafa 42
á þingi Breta eftir sem áður.
Heimastjórnarflokkur Ira lætur
vel yfir frumvarpi þessu og þykir
það frjálslegra en við mátti búast.
Unionistar ganga sem harðast á
móti þvi og er Balfour ætlaö það
verk, að kryfja það á þingi. Lá-
varðadeildin er talin vís að fella
það tvivegis, sem henni er leyfi-
legt samkvæmt lögum, og er það
eina von conservatíva á Bretlandi,
að Asquith verði farinn frá völd-
um áður en neitunarfrestur lá-
varðanna er útrunninn.
Nýja þjóðveldið.
Sú nýstárlega fregn er flutt frá
Kina, að þeir sem þar ráða mestu
hafi í hyggju, að innleiða ein-
skattinn og afnema alla tolla og
aðra skatta. Það er haft eftir Dr.
Sun Yat Sen, sem var forseti um
eitt skeið, að einskatturinn muni
komast a mjög bráðlega, með því
Búskapur Bretastjórnar
Fjárlög eru nýlögð fyrir brezka
þingið, af f jármálaráðherra Lloyd
George. Tekjur reyndust vera
tæpar 39 miljónir umfram útgjöld
og er það meiri tekju afgangur en
nokkur stjóm liefir nokkum tima
getað sýnt i þvi landi. tJtgjöldin
voru árið sem leið 28 miljónum
dala hærri, heldur en nokkru sinni
fyr, sem kom til af þvi, að stjómin
leggur þriðjung til styrktarsjóða
verkamanna, samkvæmt hinum
nýju lögum og þar að auki keýpti
hún alla talþræði á Bretlandi á
þessu ári, og “rendi’ þeim með
góðum arði, það sem af er árinu.
Það er rétt álíka og búskapurinn í
Manitoba, eða hitt þó heldur!
að í Kína finnist engin öflug auð-
félög til þess að standa i móti hon-
um og öðrum umbótum til almenn-
ings heilla, eins og í Ameríku ger-
ist og Canada. Hann lét i veðri
vaka, að sú mundi koma tíðin, að
þjóðveldið eignaðist allar rikis-
eignir, svo sem námur, jámbrautir
og aðrar þjóðnytjar, sem einstakir
menn og auðfélög hafa fyrir fé-
þúfu í Canada og viðast hvar
annarsstaðar. Mætti það undarlegt
heita, ef hið forna, stirðnaða Kina
veldi yrði fyrst til að taka upp þær
framfarir, sem verið er að berjast
fyrir í hinum “siðuðu’ löndum. —
Að öðra leyti er ekki enn full-
tryggur friður í Kína, einkum
sunnan til. I Tibet er sagt, að til
ófriðar dragi og blóðsúthellinga
með þjóðveldismönnum og hinum
hófsamari.
Klórað neðanmáls.
undir tœkifœrisvísur alþýðumanns
í Óðni.
Sé þeim óþökk, sem að gaf
‘Sendlings kvæða-nefi,
Hjáræmi og hæsi af
Heimastjórnar kvefi.
7.-4.-T2.
Stephan G. Stephansson.
Frá dögum bólunnar.
Nú eru um 35 ár síðan landar
vorir, sem hér komu fyrstir, voru
svo aðfram komnir og illa haldnir,
að tæplega mundi nolrkur önnur
kynkvísl geta staðist þá eymd, sem
að þeim þrengdi þá. Dálitla á-
drepu þessu eymdar ástandi við-
vikjandi, má sjá í blaðinu Free
Press, er gefið var út þann 14.
Apríl fyrir 35 árum síðan. Þar
birtist bréf frá einum lækninum,
sem sendur var norður að stunda
hina bóluveiku, og má af því
marka, hvernig löndum vorum
nnini hafa vegnað í óbygðinni og
veikindunum og vetrarhörkunum.
Hann segir svo, þtssi Baldwin
læknir, að hann fór frá Winnipeg
um veturnætur og kom til Gimli
eftir tveggja daga ferð. Þar var
þá spítali upp settur, fullur af
bóluveikum mönnum. Þar næst
fór hanrí að heimsækja húsin í
kring og segist aldrei • hafa séði
eins auman útbúnað. Þau voru öll
svo lág, að læknirlnn gat varla
hvergi staðið uppréttur og skríða
varð hann á höndum og fótum inn
um sumar dyrnar. Óþrifnaður var
þar óumræðilegur, segir hann, enda
hafi hann búið sig undir það—:
hafði með sér leðurúlpu skósíða og
svaf 1 henni á nóttunni til þess að
forðast lús. Húsin voru vitanlega
óþiljuð í Sundur, og kýr víða hafð-
ar innan um fólkið, sem var æva-
margt í hverjum kofa, jafnvel 18
eða 19. Læknir þessi fór svo um
bygðina þar til hann kom í Mikley.
Þar tók fylgdarmaður hans bol-
una og svaf hann hjá honum í
margar nætur þar til hann gat
fengið Indiána til að flytja sig í
land.
| Þrívegis fór hann til Mikleyjar
um veturinn. Á þriðju ferðinni
|Varð hann að taka af þrjá fætur
af mönnum vegna kals. Hann var
^á sifeldu ferðalagi í þrjá mánuði
^að stunda þá bóluveiku. “Þegar
, eg kom á suma bæi,” segir hann,
; “þá voru þar einir sex eða átta
j sjúklingar, og sumir þeirra áttu
ekki nema fáar stundir ólifaðar,
| garnalt fólk og ungt og blessuð
börnin, sem sárt var upp á að sjá.
Fyrst þegar eg kom, þá héldu mæð-
ur þeirra á þeim, en næst var ef til
vill búið að leggja litla kroppinn
til úti fyrir, þangað til næðist í
timbur til að smiða stokkinn utan
vun hann. í annað sinn, sem eg
kom til Mikleyjar, fór eg út á Big
Black Island, með því eg frétti, að
eitt heimitj væri þar. Sú aðkoma
verður mér minnisstæð. Konan var
nýstaðin upp úr bólunni með barn
á brjósti, komið að. dauða. Þar
var ekkert til að færa það í. Eg
gat ekki staðið uppréttur í kofan-
um og ekkert var til að borða
handa mér nema fiskur, ekkert
rriél og ekkert annað af neinu tagi.
Eg skildi eftir meðöl handa barn-
inu, og verður mér minnisstæður
gleðisvipurinn á foreldrunum, er
vonin lifnaði hjá þeim um það, að
barnið héldi lífi. Það var níu mán-
?ða gamalt og dó daginn eftir.
Foreldramir urðu að geyma litla
krcppinn uppi á þekju, þangað til
hægt væri að smíða utan um hann.
• Eg þóttist eiga bágt á minu ferða-
lagi stundum, en þegar eg hugsa
til þess hvað íslendingar máttu
þola þennan vetur, þá verður lítið
úr mínum svaðilförum.”
Eftir þriggja mánaða tíma var
laknir þessi kvaddur burt, settur í
sóttvörn um hálfan mánuö, vegna
þess að hann einn hafði ekki feng-
ið veikina af þeim fjóram, sem
sÞ nduðu þá sjúku, og settist síðan
að við sina fyrri iðju í Winnipeg.
Úr bænum
Þeir prestarnir, séra N. Stgr.
Thorláksson og séra Jóh. Bjama-
son eru 'staddir hér í bænumi á
fundi, sem þeir vom kvaddir til.
Nýja heilsuhælið 1 Elmwood er
nú þvi nær fullgert. Það mun
kosta $100,000 og verður tekið til
aínota í næsta mánuði. Heilnæm-
ar uppsprettur hafa fundist þar í
nánd, og er mikið látið af þeim.
Miss Vilhelmína Vopni, dóttir
Olafs Vopna, fór vestur að Kyrra-
hafi á mánudagskveldið var. Hún
ætlar að dvelja þar um hnð hjá
föðurbróður síhum, F. Vopna í
Bellingham.
Herra Baldur Sveinsson, fyrr-
um meðritstjóri Lögbergs, hefir
nýskeð skrifað og lætur híð bezta
af högum sínum. Hann kom til
Reykjavíkur um miðjan Desem-
bermánuð, og réðist i Febrúar-
mánuði öndverðum til Miljónafé-
lagsins svo nefnda og gerðist verk-
stjóri þess í Viðey. Baldur biður
Lögberg að færa vinum og kunn-
ingjum hér vestra kærar kveðmr
sínar. "
Hans Niels Níelsson lézt að
heimili sonar síns, Friðriks bónda
í Árdalsbygð i Nýja íslandi, þ. 29.
Jan. s.l. fult níræður að aldri. Bjó
'áður fyrram á Hallbjamarstööum
á Tjömesi og síðan á Baugastöð-
um í Kelduhverfi i Þingeyjarsýslu.
Flutti vestur um haf 1875. Hans
var fjörmaður og gleðimaður á
yngri árum og var em vel þar til
fyrir tveim árum, að sjónin bilaði.
Hnignaði honum þá óðum og lá
rúmfastur það sem eftir var æf-
innar. Sjö börn Hans sál. eru á
lífi, þar á meðal Friðrik bóndi, sem
áður var nefndur, og Hans bóndi
nálægt Akra, N. Dak.
Hinn 1. þ. m. andaðist að heim-
ili Mrs. Gíslason á Victor stræti
hér í bæ, öldungurinn Benedikt
Sigurðsson, 82 ára gamall. Bene-
dikt sálugi var ættaður frá Heið-
arseli í Hroarstungu i Norður-
Múlasýslu. Hann fluttist vestur
um haf 1889 °g dvaldi í Nýja Is-
landi, Selkirk og Winnipeg. Konu
sina misti hann 1904. Þau hjón
áttu niu börn, og lifa tvö, ölveig
Sigurlína Gíslason og Sigfús Bene-
diktsson í Winnipeg. Benedikt
var vel greindur maður, og fróður
um margt; hann lagði stund á
homo-pathíu lækningar og' þótti
oft takast vel. Hann var stiltur
maður, hóflyndur og vel látinn.
Herra Þorsteinn Jónsson, banka
þjónn frá Reykjavík, Iagði af stað
á mánudagskvöld vestur á Kyrra-
hafsströnd til Vancouver. Hann
mun hafa átt von á að fá þar at-
vinmi við bankastörf.
____________i_
Sex þumlunga djúpur snjór féll
sumstaðar hér i Manitoba um sið-
ustu helgi. Sáning var viða komin
vel á veg, en varð að hætta við
þetta áfelli. Annars þótti bændum
viðahvar gott að fá úrkomu, þvi
að jarðvegur var ákaflega þur
eftir langstætt úrkomuleysi.
Hinn 1. þ. m. andaðist að heim-
ili dóttursonar sins Kristján í
Bradburn, nálægt Hallson, N. D.,
Tómas Kristjánsson. Tomas heit-
inn var með elztu Islendingum,
fæddur 1818 í Dalasýslu á Islandi.
Þar hafði hann búið. þangað til
skömmu áður en en hann fór vest-
ur um haf, til Canada, árið 1876.
Hann eignaðist 15 böm með fyrri
konu sinni. Af þeim lifa nú þrjú,
S’griðttr Helga, Guðrun og Mar-
grét. Hann átti 13 systkini, sem
öll eru dáin nema Guðrún, vestur
á Kyrrahafsströnd, háöldrað kona.
-Tómas sálugi var mjög vel gef-
inn maður, síglaður og öraggur,
ákveðinn trúmaður og tryggur vin-
ur. Hann var greftraður 3. þ.m.
i grafreit Péturssafnaðar. Séra H.
B. Thorgrímsen jarðsóng hann,
flutti húskveðju og líkræðu á is-
lenzku og ensku. Við útforina var
fjöldi manns viðstaddur.
Samferða Sveinsonls-fólkinu
vestur að hafi á sunnudagskveldiö
var urðu þau Mr. og Mrs. Matthí-
as Metúsalemsson, ásamt syni sín
um. Þau hafa lengi átt heima
hér í bænum Þati setjast að í
Vancouver.
Miklar timræður eru um breyt-
ingu þá á skólalöggjöfinni, sem
gerð var á siðasía þingi. Skóla-
nefndin kvað líta svo á, að sér beri
ekki að hirða neitt um breytingar
á lögunum fyr en kaþólskir krefj-
ast að hún sinni þeim.
Hópur íslendinga lagði af stað
héðan úr bænum vestur á Kyrra-
hafsströnd sunnudagskvöldið var.
í þeim hópi vora þær mæðgur,
Mrs. Ingibjörg Sveinsson og Anna
dóttir hennar, saumakcma. Enn-
fremur Sveinn Sveinsson sonur
Ingibjargar, kona hans Vigdís og
Þorsteinn fóstursonur þeirra. —
A laugardagskveldið heimsóttu
nokkrar íslenzkar konur Miss
Sveinsson i húsi Guðm. Thordar-
sonar bakara, og gáfu henni gullúr
°g gullfesti að skilnaði. Miss
Sveinsson hafði saumað fyrir þess-
ar konur um mörg ár og var oröin
þeim mj% kær, því að bæði er
hún ágætlega vel að sér í sinni
ment og frábærlega wönduö stúlka
og viðkvnnisgóð. Móðir hennar
var og i samsætinu og var henni
; gefin vönduð ferðataska.— Svein-
sons-fólkið sezt að í Point Roberts.
Þar á sonur Mrs. Ingib. Sveins-
son, Jónas, heíma, og nóttir ’nenn-
ar, gift kona.
Ólafur bóndi Ólafsson í
nesi í Mikley andaðist að
Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
ætlar að halda samkomu í næstu
viku til að fagna sumrinu eiiis og
vant er. Samkoman yerður að
kveldi næsta fimtudags, sumar-
dagsins fvrsta, 25. þ. m. Fer
fyrst fram mjög vandað prógram
i kirkjunni uppi og á eftir veit-
ingar niðri t sunnudagsskólasa’n-
I um. Lögberg vill mæla sem bezt
l fram me5 þessari samkomu, því
Skógar-1 ag vér höftim heyrt það undir
moti gestum smtmt.
Með síðustu skeytum frá Árborg
P. O., Man., berast þær fréttir, að
íbúðarhús hr. S. J. Hliðdals í
GeysÍrbygð i Bifrastarsveit, hafi
brunnið nýlega ásamt mestöllum
innanhússmunum; upptök eldsins
út frá ofn- og eldavélar-pípum í
þakinu. Mælt er að herra Hlíðdal
muni byggja sér nýtt hús aftur á
sama stað, svo fljótt sem þvi verð-
ur við komið.
heimili | væng, að vanda eigi býsna mikið
smu þ. 19. Marz s. 1. eftir stutta 191 hennar. svo að enginn, sem
leguj lungnabólgu, 72 ára gamall. sækir hana þarf ag kviga þvi>
\ ar ættaður úr Bolungarvík við Ihann sjái eftir að hafa farið þang-
Isafjarðardjúp. Var formaður þar|ag Kvenfélagskonur í Fvrsta
við Djupið i mörg ár og lánaðist j tót söfm,ði kunna að taka vel á
vel. Fluttist vestur um haf 1893.
Lætur eftir sig sex börn, tvö í Is-
landi, en fjögur hér vestra. Ólaf-
ur sál. var eljumaður og dugnaðar þjiðjiulhginn voru stödd hér
og drengur góður að dómi þeirra. ' bænum Iierra Þorleifur Jackson
er hann þektu. frá Kristnes og Thorstina dóttir
hans ásaVnt fósturdóttur ungri.
Miss T horstína Jackson var á leið
til Minnedosa. Þar hefir hún ver-
ið kennari í vetur viö Collegiate,
en var kvödd vestur til Kristnes
er móðir hennar lagöist banaleg-
une. Miss Jackson heldur áfram
kenslustörfum i Minnedosa til
loka skólaársins í Júni, en hverfur
þá til föður sins, sem nýskeð hefir
selt land sitt við Kristnes og sest
að í Selkirk-bæ.
Mánudaginn 25. f. m. andaðist
aö heimili sínu í Kristnes, Sask.,
Guðrún Jackson, kona Þorleifs
Jacksons, er þar hefir búið um
hrið. Guðrún sáluga hafði legið
veik tæpan mánuð, er hún lézt, 66
ára að aldri. Hún var mjög merk
kona, vel gefin og vel að^ sér á alla
lund. Verður hennar' sjálfsagt
minst ítarlegar liér i blaðinu.
- ' / ■
i. •; /
,.‘v v’
'
' • I - •-
rítVV'£r';.1,'*v______________________.47.».*_______. L,
mm *
; Li .' .Í J’ . Í..V..V .tíM.. ''A/ vVá'
'
13» I usv'íy
><**■*
*"*'v
■
:júul.
h *»*
■Aý \ 9,.*
vr;rf t A . ..... r-r-" -
* * 9 •••.•««#» « « * v* « « !*'» •»««»« ,
c *__*_f. • * • * •* »-»«•» • • ""L '1
1
SavCV. V' • VV''Vv