Lögberg - 18.04.1912, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN i8. APRÍL 1912.
5-
i
I
•*<
♦
t
+
•f<
♦
■f
-f
■í<
f
4«
-f
4<
-f
(9®
SetjiB trjávið jafngóðan okkar á
nauðsynja skrá yðar, ef þér viljið
að afleiðingar verði góðar og til
þess að vera viss um að fá góðan
við, þá komið til vor. Vér seljum
að eins þaer tegundur, sem reynast
v«l. Vér seljum svo ódýrt eigi að
síður, að allir v ndrast.
, .Komið til vor. Vér seljum vöruna
The Empire Sash & Door Co.
Limited
HENRY AVE., E. PHONE M. 2510
Equitable Trust k Loan
—Cnmpanv. I.iinitpil———
Hér ineb auglysist aö ankafundur hluthafa þtssa
félags veröur haldinn á skrifstofu minni, stofu nr. 204
Mclntyre Block, í Winnipeg-borg, á föstudagskveld
þann 26. dag Aprílmánaöar 1912, stundvíslega klukk-
an 8 e.m , til þess meöal annars aö gera ráðstafanir
um þessi efni :
1. Kjósa stjórnarnefnd.
2. Heimila aö stjórnarnefndin gefi út og selji
ný hlutabréf.
y. Skera úr hvort ráölegt sé aö selja nokkuö af
fasteignum félagsins eða allar.
4. íhuga og ræöa hvort og aö' hve miklu leyti sé
ráðlegt fyrir félagiö aö ráöast í meiri kaup og
reka þau störf, sem félagiö var stofnaö til að
reka, með meira kappi nú þegar ogframvegis,
heldur en gert hefir verið um undanfarin ár.
5. Ransaka skýrslu um hag félagsins, er hinir frá-
farandi stjórnarmenn hafa lagt fram.
6. Breyta samþyktum félagsins, einkum þeirri er
mælir fyrir um boöun hluthafafundar og hvern-
ig hann skuli auglýsa hluthöfum.
Dagsett í Winnipeg hinn fyrsta dag Aprílmánaö-
ar, áriö eftir Krists burö 1912.
ÁRNI EGGERTSSON,
skrifari og ráðsmaður.
Frá íslandi.
Reykjavík, 21. Febr. 19x2.
Verkfalliö í Hafnarfiröi stend-
ur enn. Verkafólkiö hefir valiö 3
fulltrúa til þess að semja viö
vinnuveitendur, en samningar eru
ekki komnir á. Vinnuveitendur
segja, aö ef þeir færi lágmark tíma
kaups kvenfólksins upp í 18 aura,
þá sé gamalt kvenfólk útilokaö frá
vinnunni og eins unglingar. Auk
þess stendur þræta um kaup fyrir
aukavinnu og sunnudagavinnu, og
þar eru karlmennirnir líka með í
kröfunum. En vinnu hafa þeir
ekki lagt niöur.
Á SeyÖisfirði féll snjóflóð úr
Bjólfinum 3. þ. m. á Fjarðaröldu
utanverða, náði lítið eitt utar en
snjóflóðið mikla sem kom þar fyr-
ir tæpum 30 árum. Þetta snjóflóö
tók vörugeymsluhús, sem Fram-
tíöarverzlunin átti, og fjárhús með
13 kindum.
I snjóflóðum 'hafa tveir menn
farist nýlega nyröra, annar á leið
yfir Siglufjarðarskarö, hinn í svo
nefndum Þorvaldsdal og var hann
þar á rjúpnaveiðum. — Lögrétta.
Mánudagsmorguninn 12. þ. m.
lögðu 2 motorbátar á stað frá ísa-
firði, áleiðis til Vestmanneyja, til
að stunda þar fiskiveiðar. Komu
þeir vi'ð á Bildudal til þess að taka
þar beitu,' en fóru þaðan sama
kveldið. Fengu þeir bezta veður
til þess er þeir komu á Faxaflóa;
tók þá að hvessa á austan og á
þriðjudagskvöldið var komið rok,
þegar fulldimt var oröið, Klukk-
an 10 og hálf voru bátamir skamt
hvor frá öðrum, en þá dó Ijósið á
öðrum þeirra og gátu þeir eftir
það ekki haldið saman. Um kl. 11
svo, aö 3 menn höfðu ekki við að
dæla með 2 dælum, og virtist þá
lítil von afkomu. Sex menn vora
á bátnum og lagði hver sitt. fram
til þess að halda honum á floti.
Nál. klukkan 2 um nóttina sást
ljós á botnvörpung skamt frá. Var
þá brugðið upp olíukyndli á bátn-
um til þess að vekja athygli botn-
vörpungsins. Tókst það, og komst
báturinn aö honum á hléborða. Vél
arrúmið' var þá orðið hálffult af
sjó og vélin þvi stönzuð. Komust
bátsmenn með naumindum og alls-
lausir upp í skipið og fengu þar
beztu viðtökur. Skip þetta var frá
Grimsby. Fór það með bátsmenn
b’l Keflavíkur og setti þá þar á
land á fimtudagsmorguninn ('is.
EebrJ; þaðan gengu þeir til Rvík-
Ur- Komu þeir við á Auðnum og
náðu til Hafnarfjarðar um kvöld-
ið. Höfðu þeir þá ekki bragðað
mat frá því ikveldið áður á skipinu
þvi peninga sína höfðu þeir mist
ineð bátnum eins og annað.
Báturinn var eign Jóhannesar
Péturssonar á ísafirði. Form.
á honum var Hreggviður M. Hans-
son, en hásetar Jón Kristjánsson,
Sigurgeir Sigurðsson, Knut Jak-
obsen ("NorðmaðurJ, Guðm. Krist-
jánsson og Páll B. Pálsson. Allir
frá Isafirði.
Úr Húsavík er skrifað, að ráð-
gerð sé mikil breyting á Kaupfé-
lagi Þingeyinga. Var í ráði að fá
formanni meiri ráð og störf í j
hendur, veita honum 3000 króna j
árslaun og hafa hann búsettan í j
Húsavík. Þó eru ýmsir félags^ j
menn mjög andvígir þessari breyt-,
ingu.
Agúst Flygenring kaupmaður í |
Hafnarfirði misti nýlega mjög
efnilegan son (10 áraj Olaf Hauk j
að nafni, úr heilabólgu.
Reykjavík, 6. Marz 1912.
Nýlega hefir orðið mikið mann-
tjón á 2 skipum í þilskipaflota
Reykjavíkur — 6 menn tekið út
af þeim og hafa þeir allir druknaö.
Þetta gerðist í aftakaveðri aðfara-
nótt 23. f. mán—út af Eyrarbakka
eða Selvogi. Þilskipið Haffari
Eign Sigurðar í Görðunum, misti
út stýrimann sinn: Þórð Erlends-
son, kvæntan barnamann héðan úr
Rvík. Er það annar maður, sem
ekkja hans missir í sjóinn.
Hitt skipið var “Langanes” eign
Miljónafélagsins. Það misti út 5
nianns. Þessir 5 menn voru:
1. Guðjón Jónsson frá Ána-
naustum í Reykjavík, ekkjumaður,
er misti konu sína síðastl. vetur,
en átti 1 bam.
2. Jón Pálsson úr Reykjavík,
28 ára gamall, kvæntur og átti
ðörn.
3. Kristján Magnússon frá Pat-
reksfirði, ókvæntur.
4. Sigurg Olafsson. frá Bjama-
borg í Reykjavík, kvæntur, átti 1
bam.
5. Sigurður Jónsson frá Syðra-
velli í Gaulverjabæjarsókn, ókv.,
28 ára gamall.
Skúli S. Sivertsen, fyrram óö-
alsbóndi í Hrappsey, lézt hér í
bænum aðfaranótt 28. f.m. í hárri
elli. Hann hafði dvalist 15 árin
síðustu hjá dóttur sinni, frú Katr-
ínu Magnússon, og litla fótavist
haft lengi.
1 » 1- • l.t- A. t Í..I L I A.l A. A. I. A. t. A t. A A A t II A t A I. A T
T TT Tt TT TT TTtT YttTTTTT YT YTTTTTTTTTTTTTTTtTTt TTTTtT ±
I Vér viljum selja yður vorhattinn!
<4- ■ 1 ......$
4. Um tvær vikurnar síðustu hafa margar konur ogstúlk- £
X ur sem þér þekkið, komið hér og þótti vænt að fá hér +
! FALLEGA HATTA FYRIR LÁGT VERD I
4 prísar
$3.50 ^
$5.00 Í
$7.50
$10.00
4prisar
$3.50
$5.00
$7.50
$10.00
J Vér seljum aðeins þrýdda hatta. Veljið þaðn sem yð-
♦ ur líkar. Þér vitið upp á hár hvað þér fáið og hvernig yður
£ fer hatturinn. Sjáið hattana hjá oss áður en þér kaupið.
Stór
borgunar-
dags sala
Jbjá
OVER-LAND
House Furnishing Co., ýs
! THE NEW YORK HAT SHOP t
| 496 Portage Ave. coloSTV* balm'Öral I
580 MAIN ST.
580 MAIN ST.
A Hæli í Gnúpverjahreppi lézt á
fyrra fimtudag Sigríður Melsteð,
dóttir Páls heitins Melsteð sagna-
ritara, komin um sjötugt.
Um Snæfellsnessýslu hafa þeg-
ar sótt þessir menn: Bjöm Bjam-
arson sýslumaður Dalamanna,
Halldór Júlíusson sýslum. Stranda
manna, Páll Bjarnason á Sauðár-
árkrók, Marínó Hafstein fyrv.
sýslumaður og kandídatamir Ari
Jönsson og Kr. Linnet. — Settur
sýslumaður um stundarsakir frá 1.
Marz er Magnús Blöndahl hrepp-
stjóri í Stykkishólmi. — Isafold.
í haust var Jón Jónsson Gauti
á Héðinshöfða í Þingeyjarsýslu
sendur til Danmerkur í kjötsölu-
erindum fyrir Sambandskaupfélag
íslands.
Hann seldi Larsen kaupmanni í
Esbjerg 218 tunnur af norðlensku
saltkjöti og lét kaupmaðurinn hann
hafa tvo víxla á sig. Nam annar
3,238 krónum, hinn 8,460 krónum.
Áttu þeir að borgast í Desember
og Janúar. Með það fór Jón Gauti
heim, erindi feginn.
En frá kaupmanninum Larsen
er það að segja, að hann kom kjöt
inu í lóg — en hvarf 5. Des. og
hefir ekki sézt síðan.
Búið er gjaldþrota og tekið til
skiftameðferðar. Hafði maðurinn
verið í botnlausum skuldum. Var
í fyrstu taliö líklegt, að skuldeig-
endur mundu fá 5 prct. upp í
skuldir sínar, en síðan hefir komið
ný skuldakrafa í búið. er nemur
20 þúsundum króna.
Það era því litlar líkur til að
kaupfélögin fái nokkurn eyri fyrir
kjötið. Verða að hafa þetta sem
annað hundsbit.
Kjötsalinn var í hárri lífsábyrgð
en óvíst með öllu, að hún verði
útgoldin, þar sem engin sönnun
er fyrir því, að maðurinn sé dauð-
ur.
“Sunanfari” kemur út endur-
vakinn næstu daga. Ritstjórar
Guðbrandur Jónsson og dr. Jón
Þorkelsson. — Vísir.
*
Ur bænum,
Manitoba-stjórnin hefir skipað
Cumberland dómara í Public Ctili-
ty nefndina, eins-manns nefndina
margumræddu, sem sköpuð var á
síðasta þingi.
Samkoman, sem Goodtemplarar
héldu á fimtudagskveldið var tókst
mæta vel. Skemtiskráin var bæði
vönduð og áheyrileg. Mjög ítar-
leg erindi um bindindismálið fluttu
þeir Dr. O. Stephensen og séra F.
J. Bergmann. Samkomur eins og
þessi hljóta að verða bindindis-
starfseminni vor á meðal til styrkt-
ar og eflingar.
Þann 4. f.m. gaf séra F. J.
Bergmann saman í hjónaband þau
Edwin Armstrong og Alice Al-
bury. Hjónavígslan' fór fram að
heimili prestsins, 259 Spence St.
Vor-skór
karlmanna
Himr beztu skór til vor og
sumar brúkunar mjóir og
breiðir, með háa tákappa,
Tans, Gunmetals og Pa-
tents.
$4, $4.50, $5
Sideboards á $15
Stofuborð sem draga má sundur og
saman, eru nú seld á $10
Borðstofustólar á - $1.00
Þetta eru ágætir eikar-málaðir stólar.
Járnrúm $3, Fjaðrabotnar $2.50. Og
Rúmdýnur á aðeins - $3.00
Kommóður með speglum á - $10.50
Bezta Linoleum, yarðið á 45c
Stórt úrval af gólfteppum. Gluggatjöld og
gardínur. Alt sem með þarf til þess að prýða
með innanhúss á þessum húshreinsunar tíma.
Munið hvar búðin er:
Komið hingað eftir skóm yðar.
Quebec Shoe Store
Wm. C. Allan, eirandi
639 Main St. Austanverðu.
í þeirri litlu töflu, sem hér
fylgir, er sýnt á hvaða mánaðar-
dag páska hefir borið uppá, 28 ár-
um eftir fæðingu Krists og nokk-
ur árin næstu. Sömuleiðis er sýnt
hvenær páskatungl hafi verið fult
pau árin. Gamall maður, herra O.
Th„ sem nú er á níræðisaldri,
gerði það sér og oss til gamans, að
reikna þetta út eftir fingrarimi, og
var ekki lengi að því heldur. Hon-
um er auðvelt að finna þetta sama
á hverju ári sem vera skal, liðnu
og ókomnu. Af þessu sézt, að
fingrarímis kunnáttan er ekki með
öllu útdauð meðal vor og hitt ekki j
síður, hversu em þessi öldungur |
OVER-LAND
HOUSE FURNISHING CO., Ltd.
Horni MAIN ST. og ALEXANDER Ave.
Nýskeð kom heiman af Islandi
Mrs. Pálína Einarsson, móðir
Karls Einarssonar sýslumanns, og
Ingimundur sonur hennar, sem
hefir verið skipstjóri á norskum
skipum um hríð. Mrs. Einarsson
fór heim í fyrra vor, en sest nú
aftur að hjá dóttur sinni, Mrs.
Mooney á Manitoba Hotel. Ingi-
mundur sonur hennar kom með
henni skemtiferð vestur, en mun
hverfa austur um haf aftur bráð-
lega.
er.
Artal
28
29
30
31-
32
33
34-
35-
Páskar
9. Apr.
25. Mar.
14. Apr.
6. Apr.
28. Mar.
10. Ar.
2. Apr.
22. Apr.
Tunglfylling
4, Apr.
24. Mar.
12. Apr.
1. Mar.
22. Mar.
9. Apr.
29. Mar.
17. Apr.
Sumarpáskar og sumarauki 17. Ap.
Á sunnudagskveldið var komu
þeir Sveinn Brynjólfsson konsúll
og Brynjólfur sonur hans vestan
frá Kyrrahafi. Þeír lögðu af stað
í þá ferð í öndverðum Febrúar-
mánuði suður til Chicago og þaðan
vestur um Bandaríki, um New
Mexico, Arizona og Calfomíu.
Mr. Brynjólfsson dvaldi um hríð
við Arrow Head böðin við St. Ber-
nardino, sem er fallegur bær suð-
austur af Los Angeles. Þaðan
fóra þeir feðgar suður með strönd
til San Diego og suður í Mexico.
Á leiðinni norður komu þeir við í
San Francsco og fleiri stórbæjum.
San Francisco er óðum að byggj-
ast, en mikið má sjá þar enn af
menjurn branans mikla. 1 Van-
couver og grendinni voru þeir
eitthvað hálfan mánuð, fundu Sig.
Christopherson, Araa Friðriksson
og fleiri landa. Á leiðinni austur
var konsúllinn eitthvað vikutima
við böðin i Banff. Þeir feðgar
láta vel yfir ferðinni og hafa
skemt sér hið bezta.
Tals. Carry 2520
CANADAS
FIMEST
THEATRE
3 kvöld byrjar Fimtud. 18. Apríl
Matinee á laugard.
Mort. H, Singer presents Chicago's mikla
söngleik
Miss Nobody
from Ntarland
með OLIVA VAIL og hina sömu leikend—
ur sem voru síöast hér.
Verð Í1.50 til 25C og Mat. f 1 til-<25c.
2 kvöld byrjar 22. Apríl
Gilbert og Sullivan’s gaman leíksöngur
H.M.S. PINAFORE
50 leikendur Agætis Orchestra
Verð: $1.50, $í.oo, 75C. 50C. og 25C
Fimtud., Föstud. og Laugard.
25., 26. og 27. Apríl •
German-French Musical Farce
ALMA, WHERE DO YOU LIVE?
Kemur beina leiö frá New York
þar setn þaö var letkiö í Weber’s
leikhúsi fyrir lengri tíma.
C. A. Murray, aðalmaður í leiknum “Alma , where do you live?”
Leikhúsin.
BMPRBSS.
Mjög frægur leikur verður leik-
inn alla næstu viku i Empress-
leikhúsi útaf fornulm æfintýram
í Seville á Spáni. 1 þeim leik
leika fimm manns, þrjár fagrar
konur og tveir karlmenn. Spænsku
búningarnir, sem þetta fólk ber,
era mjög fagrir og viöhafnar-
miklir. Ýmislegt fleira verður til
skemtunar.
WALKER.
Mi=s Nobodv from Starland”
er ágætur og frægur söngleikur,
sem kominn er til Walkcr frá
Princess leikhúsi i Chicago og
sýndur allan seinni part næstu
viku. Laugardags matinee eins og
vant er. Olive Veil er í broddi
fylkingar þess mikla flokks, sem
leikinn sýnir, og leikur og syngur
aiæta vel.
“Pinafore” verður sýndur á ný
á mánudag og þriðjudag 22. og 23.
Apríl. Sá söngleikur þarf ekki
iofsorða við, því að orð og lög og
samsetning er frábær.
“Alma, where do you live?” er
fransk-þýzkur gamanleikur með
söng, sem gerði mikla lukku í N.-
York og verður sýndur í fyrsta
sinn á Walker þann 26. Apríl að
kveldi og siðan þrjú kvöld og
Matinee á 1 augardag. Charles
Murray hinn vel þekti gamanleik-
ari og Mariette Flack, hin róm-
þýða söngmær, sýna leikinn með
r.iörgum öðram.
—Holstein Hleiðrugreifi var kat-
ólskur ,hinn nýlátni danski stjóm-
málamaður, og fylgdi sínu kirkju-
félagi kappsamlega í ræðu og riti.
Hann lét vígja háan hól til leg-
staðar sins, í hallargarm á greifa-
setri sínu, og þar var hann haug-
lagður, en greftranarathöfn haldin
hátíðleg í Hallarkirkju í Kaup-
mannahöfn.