Lögberg - 26.06.1913, Síða 4

Lögberg - 26.06.1913, Síða 4
LÖGBEEG, FIMTUDAGINN 26. Júní 1913. LÖGBERG Gefiö út hvernfimtudag a£ The COLUMBIA PrBSS LimITED Corner William Ave. & StierbrooWe Street WlNNIPEG, — MaNITOFA. STEFÁN BJÖRNSSON, EDITOR J. a. BLÖNDAL, business managp:r UTANASKRIPTTIL BLAÐSINS: TheColumbiaPress.Ltd. P. O. Box 3172, Winnipeg, Man. UTANÍSKRIFT RITSTJÓRANS: EDITOR ^LÖGBERG, P. O. Box 3172. Winnipeg, Manitoba. TALSÍMI: GARKY 2156 VerS blaðsins $2.00 um árið. Kirkjuþingið. Tuttugasta og níunda ársþing hins evengelíska lúterska kirkjufé- lags Islendinga í Vesturheimi var sett í kirkju VíkursafnaSar að Mountain N. Dak. fimtudaginn 19. Júní þ. á. kl. 1 ol/2 f. h. Voru þar sainan komnir 12 prestar kirkjufélagsins, 37 erind- rekar safnaðanna fyrir utan'mik- inn fjölda gesta er sóttu til þing- setningarinnar. Séra Björn B. Jónsson, forseti kirkjufélagsins, flutti þingsetning- arprédikun. Lagði hann út af 2. Mós. 3. kap. 1—6 versi, og talaði um lotning fyrir guöi og lotningar- leysi. Var það mjög timabært er- indi og skorinort deilt á vægðar- leysi í ræðu og riti gagnvart trú- arskoðunum manna, og því sem öðrum er heilagt i þeim efnum. Ræðan var skörulega flutt, og mun alment hafa þótt mikið til hennar koma. Á eftir prédikun voru prestar og kirkjuþingsmenn til altaris. Setti forseti því næst þingið með þeim ummælum sem venja er til. Þessir prestar mættu á þinginu: Dr. Jón Bjarnason sr. St. Steingr. .Thorláksson sr. Björn B. Jónsson sr. R. Marteinsson sr. F. Hallgrimsson sr. K. K. Ólafsson sr. Jóhann Bjarnason sr. H. J. Leó sr. G. Guttormsson sr. S- S. Christophersson sr. C. J. Olson sr. H. Sigmar. Erindrekar frá hinum ýmsu söfnuðum voru þessir: Frá St. Páls söfn.: Bjarni Jones Gunnar B. Björnssun Vesturheimssöfn; Kristján Árnason Lincoln söfn.: John A. Johnson S. J. Isfeld Pembina söfn.: Kristbjörn S. Eymundsson Vidalíns söfn.: Guðm. Einarsson Helgi Thorlaksswii Víkursöfn.: H. G. Guðmundsson Thomas Halldórsson Þingvallasöfn.: Sigurbjörn Guðmundsson Lúterssöfn.: Vigfús Johnson Stefán Eyjólfsson Fjallasöfn.: Ólafur Einarsson W. G. Hillman Melanktonsöfn.: Sigurður Johnson Fyrsta lút. söfn.: Stefán Björnsson Jón J. Bildfell Jónas JÓhannesson H. S. Bardal Selkirk söfn.; Þprleifur Jacksson Guðleifur Dalmann Víðinessöfn.: Ketill Valgarðsson Benedikt Freemannsson Breiðuvíkursöfn.: Bjarni Marteinsson ' Geysissöfn.: Tómas Björnsson Árdalssöfn. r Eiríkur Jóhannsson Sigurjón Sigurðsson Bræðrasöfn.: Jóhann Briem Fríkirkjusöfn.; Páll Anderson Frelsissöfn.: Olgeir Frederickson Immanuelsöfn.: Hjörtur Davíðsson Lundarsöfn.; Jón Halldórsson Konkordíusöfn: Sveinbjörn Loftsson Kristnessöfn.; W. H. Paulson Immanuelsöfn. að Wynyard: Steingr. Johnson. Á þingi mætti ennfremur Dr. G. H. Gerberding fyrir hönd General Councils. Fyrsta þingdaginn var tekið á móti skýrslum embættismanna cg milliþinganefnda, og verður þeirra nánar minst síðar. Eftir að skýrslum þessum hafði verið veitt viðtaka af þinginu, var gengið til embættismanna kosninga. Voru allir embættismenn kirkju- félagsins endurkosnir í einu hljóði. Forseti séra Björn B. Jónsson. Skrifari séra F. Hallgrímsson. Féhirðir Jón J. Vopni. Varaforseti séra N. Steingr. Thorlakson. Vara skrifari séra K. K. Ólafson Varaféhirðir Friðjón Friðriks- son. Séra F. Hallgrímsson gat þess að þingsetningardagurinn 19. Júní væri afmælisdagur forseta, og hinn 24. s. m. er þingi skyldi slita væri 20 ára prestskapar afmælis- dagur hans, og árnaði honum ham- ingju á ókomnum æfidögum, ásamt þingmönnum öllum. Til að íhuga skýrslu forseta og raða málum á dagskrá, voru kosn- ir Stefán Björnsson og Kristbjörn S. Eymundsson. Lögðu þeir fram þessa skýrslu á kveld-fundi fimtu- dagsins: 1. Séra Björn B. Jónsson hefir á umliðnu ári gegnt forseta em- bætti kirkjufélagsins með dugnaði, skörungskap og forsjá, sem sjálf- sagt er að veita honum réttmæta viðurkenningu fyrir. Hann hefir staðið í fylkingar brjósti sem ár- vakur, öruggur og traustur foringi. Starf mikið hefir hann á sig lagt, sérstaklega á síðastliðnu hausti er hann ferðaðist um sex vikna tíma meðal safnaða kirkjufélagsins, átti við þá bróðurlegt samtal, og flutti viða hjá þeim guðsþjónustur. Fyr- ir alt þetta leggjum við til að kirkjufélagið tjái honum alúðar þakkir sinar og biðji blessunar drottins yfir hann og starfi hans á ókomnum tima. 2. Við mælum með þvi að kirkjufélagið samþykki þá $300,00 sem óskað er eftir í skýrslu for- seta til safnaðanna á Kyrrahafs- strönd. 3. Við leggjum til, út af sorg- inni þungbæru, er séra K. K. Ólafssyni bar að höndum síðastlið- ið vor, í missi hans göfugu og góðu eiginkonu — frú Sigrúnar — að kirkjufélagið votti honum, og öörum aðstandendum, sína hjartan- legustu hluttekningu. 4. Við leggjum til að kirkju- þingið samþykki það $75,00 lán úr heimatrúboðssjóði, sem herra Halldóri Jónssyni, væntanlegum guðfræði nema vestur á Strönd, hefir þegar verið veitt. S<>muleið- is að sama manni verði veitt |ioo,o0 lán á þessu ári. Ennfremur mælum vér með því að kirkjufélagið veiti ísl. guð- fræðinemánum, Sigurði Ólafssyni, í Portland Oregon, þann styrk, sem það sér sér fært á þessu ári, gegn því, að kirkjufélaginu sé trygð, svo sem verða má, þjónusta beggja þessara manna, að afloknu námi. Við leggjum til að þessi mál verði tekin á dagskrá þingsins: 1. Heimatrúboð 2. Heiðingjatrúboð 3. Kirkjubyggingarsjóður 4. Sameiningin 5. Útgáfumál 6. Sunnudagaskólamál 7. Skólamálið 8. Kennara-embættið við Wesley 9. Fjárstyrkur til Þingvallasafn. 10. Tillögur fjársöfnunarmanns 11. Gamalmenna-hælið 12. Social piorne Reform-málið. Allmiklar umræður urðu um þá Iiði nefndarskýrslunnar, sem fjár- málin snerta, en að lyktum var nefndarálitið alt samþykt. Á föstudaginn kl. 2, flutti séra F. Hallgrímsson fyrirlestur um Leikmannastarfann í kristindómm- um, sagði sögu hennar og mæltist vel. Var fyrirlesaranum greitt þakklætis atkvæði að lokum fyrir lesturinn. Þá flutti Dr. G. H. Geberding þinginu kveðju frá General Coun- cil, skýrði frá stefnu pess félags, og bauð kirkjufélaginu inngöngu í það. Séra Runólfur Marteinsson svaraði því erindi, og var sam- þykt að bæta því máli: Sambandi kirkjufél. við General Council. á dagskrá og verður það rætt síðar á þinginu. Samkvæmt tillögu þingnefndar sem skipuð hafði verið til að ihuga inngöngu beiðnir safnaða í kirkju- félagið, var þessúm söfnuðum inn- taka veitt: Blaine-söfnuði í Blaine, Wash., Þirenningar-söfnuði í Point Roberts, Wash., Vancouversöfn- uði í Vancouver, B. C., Vestfoldar- söfnuði í Shoal Lake, Man. Grunnavatnssöfnuði í sömu bvgð, og Skjaldborgarsöfnuði í Winni- peg. Kirkjubyggingar sjóðmálið. Það var rætt nokkuð og að lok- um samþykt, svohljóðandi tillaga frá séra F. Hallgrímssyni: “Þingið þakkar Jjóni J. Vopna fyrir það góða verk er hann hefir unnið í þessu máli, svo og þeim mönnum er fé hafa gefið í sjóðinn — og endurnýjar umboð hans á komandi ári.’r Tillagan var sam- THE DOMINION BANK Slr EUJICND B. OSLER, M. P., Pre» W. D. MATTHEWS ,Vice-Pre». C. A. BOGERT, General Manager. Höfuðstóll boi'gaður . . . . .$5,360,000 Varasjóður Allar eigulr . . .$79,000,000 I'eKar yííur innlieimtast nokkrir dnllarur elia liumlruS. þp legKift þaS Rtrax í spariajöe í Ilomininn hankanum, ot draRÍS þc ekki út nema brýn nauSnyn krefji. ÞaS er liu.Rra aS Npura peninKa þannix en xex'ina ’bá 1 xoNunum, þxi þaSan vilja þeir hverfa, en í bankanum eru þeir 'úhiiltir nii nvii hietiiNl vextir viS. NOTKE DAME BBANCH: Mr. C. M. DENTSON, Manager. SEI.KiHK BRANCH: J. GRISDALE, Mauager. gestirnir sem til þessa kirkjuþings sóttu, munu hlotið að hafa orðið varir við þetta, og hvað helzt þeir, sem ekki var fullkúnnugt um slíkt áður, fyrir utan gestrisnina og hlý- leikann, sem hvervetna andaði móti aðkomumönnum, vermandi eins og sólskinið, og hressandi eins og gróðrarilmurinn, sem andvarinn flytur manni frá laufguðum lund- um Pembinafjallanna. fFramh.J. Gimli kosningin og Methodistar. Útaf þeirri yfirlýsing, sem gerð var á fundi Metódista i Brandon, og gétið var i síðasta blaði, farast blaðinu Free Press orð á þá leið, að tillagan sýni þó það, sem fleiri merki sjáist til, að almennings álit- ið í Manitoba sé að vakna úr dauða dvala og sé farið að veita eftirtekt kosninga tilhögun í Mani- toba. Tillagan glæði þá von, þó veik sé, að þeim hugsunarhætti verði hnekt, sem lengi hafi rikt í fylki voru, að ekkert geri til hverj- þykt í einu hljóði. Nú þegar hefir um ráðum sé beitt, ef niðurstaðan í sjóð þenna safnast $1025,00. Þiar af hafa þeir J. J. Bildfell, J. J. Vopni, T. H. Johnson og Árni Eggertsson gefið sína $200,00 hver, en ónefndur í Minneota $225.00. Sameiningin. Um útgáfu Sameiningarínnar urðu alllangar umræður. Allir, sem tóku til máls, létu að einhverju leyti i ljósi ánægju sína með rit- stjórnina. Að loknum umræðum var sam- þykt tillaga frá séra F- Hallgrims- syni um að endurkjósa Dr. Jón Bjarnason ritstjóra “Sam.” en séra B. B. Jónsson meðritstjóra. Ráðs- maður var endurkosinn herra Jón J. Vopni. Var öllum þessum starfsmönnum greitt þakklætis at- kvæði af þingi fyrir verk þeirra í “Sam.” þarfir á umliðnu ári. Á laugardaginn kl. 2 hélt séra G. Guttormsson fyrirlestur, um fyrirheitna landið. Var sá fyrir- lestur rnjög vel sóttur eins og allir fundir, og erindi sem haldin hafa verið á þessu kirkjuþingi. Fyrir- verði að óskum, og að i stað hans komi það, að báðir flokkar verði neyddir til að beita sæmilegum ráð- um í kosningum eftirleiðis. Þarnæst tekur blaðið upp aftur í stuttu málij það sem það hafði áður sagt um aðferð conservativa i kosningu Mr. Taylors, á þessa Ieið: “Vér höfum sagt, að Gimli kosningin sé hin óhæfilegasta sem fram hefir farið í þessu fylki; að þar hafi þorparaskapur og alls- konar svívirðingar í kosningum náð hámarki sínu; að hótanir, lokkanir, og mútur voru hafðar í frammi við kjósendur; að kosn- ingasnatar fóru yfir kjördæmið hundruðum saman, margir hverjir mjög svo óvænlegir borgarar; svo og að vínföngum var hampað á lofti um alt kjördæmið til þess að spilla siðferði kjósenda. Vér höf- um sagt, að þó að blaðið vildi ekki taka að sér að segja til um Iöglega ábyrgð Mr. Taylors, þá beri hann þó siðferðislega ábyrgð á þessu at- ferli, með því að hann hlaut að vita nokkuð af þvi, hverjum aðferðum var beitt í kosningarbaráttu hans. Það er allajafna viðkvæði con- servativa við þessum áburði, bæði þeirra sem vita að bann er sannur, og hinna, seni álíta hann illgirnis lesturinn var hákristilegt erindi, j leg brígzli ab sá f|0kkurinn sem prýðlega rökstutt og snildargóður frágangur á. Komst einn prest- urinn svo að orði um það á eftir, að það væri “bezti evangeliski fyr- irlestur sem hann hefði heyrt flutt- an á kirkjuþingi.” Fyrirlesaran- um var greitt þakklætis atkvæði að loknu máli. Á sunnudaginn voru guðsþjón- ustur í öllum kirkjum safnaða kirkjufélagsins í bygðinni. Yngri prestarnir prédikuðu. I kirkju Víkutsafnaðar messaði séra Runólfur Marteinsson, kirkju Lúterssafnaðar að Garðar, séra Carl J. Olson, í kirkju Pét- urssafnaðar, séra H. J. Leú, í kirkju Vídalínssafnaðar, séra H. Sigmar, í kirkju Hallson-safnaðar, séra Sigurður Christophersson og í kirkju Fjallasafnaðar, séra Jó- hann Bjarnason. Allar guðsþjón- usturnar hófust kl. 11 f. h. og var fjölment við allar kirkjurnar. Klukkan 3 e. h. hófst trúmála- fundur að Mountain, og var séra N. Steingrímur Thorlaksson máls- hefjandi, og flutti erindi, sem hann nefndi “tímabæra prédikun”, og var þar ítarleg grein gerð fyrir, hversu slík prédikun ætti að vera; tar að því erindi gerður ágætur rómur að maklegleikum, og lang- ar umræður á eftir, er f jölda marg- ir tóku þátt í, en húsfyllir, svo að trautt fengu allir sæti, er til höfðu sótt. 1 ! Bar aðsóknin við guðsþjónust- urnar og við síðast talda sam- komu, það með sér, að Dakota-bú- arteljaþað ekki eftir sér, að sækja kirkjulegar samkomur, og að áhugi þeirra á þeim málum er mikill, og félagslíf fjörugt og gott. Allir verður undir, eigi annaðhvort að taka þegjandi við ósigri sínum, ella láta dómstólana skerast í leik- j inn. Þieir conservativar, sem vinna ; í kosningum vita vel, hversu lítils j virði sú vörn er, þó þeir beiti henni j fvrir sig. en hinum af þeirra liði, j er ekki vilja né geta trúað, að slíkt háttalag eigi sér stað í sið- uðu landi, skal það sagt, að ástæð- an til þess, að laganna er ekki leit- að, er sú, að engum lögum verður komið yfir conservativa kosninga sntala í þessu fylki, né þeirra brall í kosningum. Þeir bera allir á sér syndakvittan er staðfestir og fyrir- 1 gefur allar þeirra gjörðir, hversu óhæfilegar og frekjufullar sem þær eru. í Macdonald kosningunum i haust leið, gerði þingmaður á Manitoba fylkisþingi það, að hann lagði undir sig drykkjustofu i einu hóteli, um 40 mílur á burt frá j Winnipeg, og byrjaði þar drykkju | er stóð alla nóttina og öllum rút- J um úr grendinni var boðið í. Með þessu braut hann bæði kosninga I lög landsins og tróð vínveitinga lög j fylkisins undir fótum. Þ.essi at- burður komst upp og varð al- ræmdur. Var maðurinn settur undir rannsókn? Vitanlega alls ekki. Hvaðan stafar sú hlífð? Þegar hann braust inn í drykkuj- stofuna, vildi hótelhaldarinn sporna við þvi, og tjáði honurn að slikt væri lagabrot, en fékk ekki annað en þetta drembilega svar: “Lögin! Lögin eru eg!” Það reyndist og svo sem hann sagði. 1 þeirri sömu kosningu var vín flutt inn í “local option” hérað, og ekki farið leynt með, og skenkt út frá opinberri byggingu svo allir sáu, af lærðum rnanni, sem er góður borgari utan kosninga. Þietta vissi nálega hvert mannsbarn í þorpinu, yfirvaldið þar líka, lögregluþjónn þorpsins, og annar, sem þangað hafði verið sendur til að ögra mótflokknum, og þeim sem unnu í þágu hans. Það er vel líklegt, að sóknarprest- urinn hafi vitað það líka. En ekkert var því máli hreyft né það rannsakað. Ef liberalar höfðuðu einkamál út af þessum aðförum, þá mundu þeir hafa hlaup en engin kaup. Frá upphafi niundu þeir finna að eitt- hvað hulið og harðskeytt vald ynni á nióti þeim í laumi, og þar á með- al þeir, sent lögunum eiga að stýra, ekki síður en löggæzlumenn og tindirdómarar. Ef málið snérist um nokkuð rninna en mannsmorð, með yfirgnæfandi sönnunum, þá mundi það líklegast stranda á leið- inni, áður en það kæmist frá þeirri dómnefnd, sem dómsmála stjóri fylkisins ræður yfir, þó leynt fari, og færi fyrir yfirdóm, þarsem hlutdrægnislaus dómur vitanlega fengizt. Ljóst dæmi þess, hvernig réttarfarið í fylkinu er nú komið, er mál þeirra tveggja kosninga- svikara, sem st-aðnir voru að því að kjósa undir annara nafni í Macdonald. Frá þeirri stundu, er þeir voru teknir fastir, var öllu opinberu valdi beitt, ekki til þess að refsa þeim, heldur til þess að hnekkja tilraunum Iiberala til þess að fá lögum komið yfir þá. Þeim var sleft lausum gegn veði, þvert í móti lands lögum, af dóm- ara, er fór eftir því, sem flokkur hans vildi vera láta, og voru loks frikendir í leynilégu réttarhaldi, ólöglegu, gegn lítilli sekt, sem borguð var fyrir þá. Ef þessir af- NORTHERN CROWN BANK AÐALSKRIFSTOFA í WINNIPEG Höfuðstóll (löggiltur) . . . $6,000,000 Höfuðstóll (greiddur) . . . $2,746,000 STJÓRNENDUR: Formaður................Sir D. H. McMillaD, K. C. M. G, Vara-formaður - - - - - - - Capt. Wm. Robinson Jas, H. Ashdown H. T. Champion Frederick Nation Hon.Ð.C- Cameron W, C. Leistikow Sir R. P, Roblin, K.C.M.G, Allskonar bankastörf afgreidd.—Vérbyrjum reikninga við eiustaklinga eða félög og sanngjarnir skilmálar veittir.—Avísanir seldar til hvaða staðaar sem er á slandi. — Sérstakur gaumur gefinn sparisjóðs innlögum, sem hægt er að byrja með einum dollar. Reulur lagðar við á bverjum 6 mánuðum, T. E. THORSTEINSON, Ráðsmaður. Cor. Willim Ave. og Sherbrooke St. Winnipeg, Man. brotamenn hefðu verið teknir fyrir í opinberu réttarhaldi, lögum sam- kvæmt, þá hefði líklegast verið unt að komast fyrir hverjir á bak við^ ,stóðu og réðu því, að um tvö hundruð atkvæði voru fölsuð í St. T|ames við þá kosningu. Við þessu várð að sporna fyrir alla muni, og við því var spornað með þeim ráðum, er réttarfarinu var smán að. Ekkert nema öflug samtök borgara, með fimtíu til hundr- að þúsund dala sjóð og ör- ' uggasta lagavit í broddi, sem til er í þessu fylki, mun með mál- ; sókn nokkurn tíma vtnna bug á ! þeirri traustu og skæðu svínfylk- ing, með' kjólklædda höfðingja yfir sér og leynilegt samband við hvert smávíti í fylkinu. Sá félagsskap- ttr lætur sér á sama standa.um lög og rétt; hann veit 'vel hvernig með þau skal fara. Hann hefir ekki beyg af neinu nema þvi, að hann sé dreginn fram í dagsljósið. Þjað- an stafar sú heift, sem beitt er í árásum á þau blöð eða einstaka menn, er gera athafnir hans að umtals efni. Liberalar geta vitanlega mötmælt kosninga úrslitunum í Gimli kjör- dæmi; en löng reynsla er fengin fyrir því, hversu ónóg sú aðferð er til að koma upp ólöglegu at- ferli í kosningum. Slíkt kann að bíta á mann í mótflokki stjórnar- innar, en ef hennar. flokksmaður á í hlut, þá gerir hann ekki nema kýma að því. Það þarf ekki mikla lagakróka til að þæfa slíkt mál í eitt eða tvö ár, og á þeim tíma má koma miklu af þeim sönnunar- gögnurn, er ntálið hvílir á, fyrir kattarnef. Og ef slíkt ekki tekst, þá losna við málið með þvi að rjúfa þing, eða setja viðkomandi þingmann i opinbera stöðu, og er þá þeirri rannsókn lokið. Sá dómstóll, er sækja megi að- farirnar í Gimli til Iaga, svo sem Mr. Woodsworth fer fram á, er ekki til. En slíkan dómstól má skipa . Hver veit nema kirkjuþing Methodista ráði nokkru við stjórn- ina i Manitoba. Ef svo skyldi vera, þá væri æskilegt, að það heimtaði dómara rannsókn, hlífð- arlausa, á aðförum beggja flokka í nefndum kosningum. Stjórnin hefir vald til að skipa slíka dóm- nefnd. Ef henni er gefið nægilegt vald og hæfilegar fyrirskipanir til að rannsaka til fullnustu alt um kosninguna, þá gæti slík nefnd, með dálítilli rögg og dugnaði, lagt fyrir ljósan dag, hvernig kosning- ar vinnast og tapast. Sú skýrsla mundi vekja jafnvel hina sljóv- ustu samvizktt í þessu fylki. Oss BLAÐIÐ ÞITT! SJÁLFSAGT ánægjulegra að lesa Lögberg ef búið er að borga fyrir það. Viltu aðgæta hvernig sakir standa með blaðið þitt? Athugaðu litla miðann sem límdur er á blaðið þitt, hann sýn- ir upp að hvaða tíma þú hefir borgað Lögberg.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.