Lögberg - 10.12.1914, Blaðsíða 9

Lögberg - 10.12.1914, Blaðsíða 9
27. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 10. DESEMBER 1914 NOMER 50 Gunnar B. Björnsson. Minnesota-ríki telur nær hálfa þriöju míljón íbúa. Þar eru borgir stórar og auöur mikill. Margt er þar stórmenna og þeirra, er láta til sín taka um landsmál. Fátt er þar íslendinga og ekki eru þeir allir í einni þinghá, svo ekki munar mjög um fylgi þeirra viö kosningar til hinna hærri embætta. Gefur því aö skilja, að ekki er það áhlaupa verk fyrir íslending aö komast til hárra valda og metorða í svo stóru og auð- ugu ríki. Þó er nú svo komið, að einn þeirra manna, er mestu ráða i stjórnmálum þess ríkis, er fslend- ingur: Gunnar B. Björnsson, þing- maður og formaður öflugasta stjórn- málaflokksins í ríkinu. Gunnar Björnsson er fæddur í Márseli í Jökulsárhlíð í Norður- Múlasýslu á Islandi 17. dag Ágúst- mánaðar árið 1872. Faðir hans hét Björn Björnsson, en móðir hans heit- ir Kristín Benjamínsdóttir og er ætt- uð úr Axarfirði. Hún er enn á lífi við háan aldur (í. 3. des. 1837J og til heimilis hjá Gunnari syni sinum í Minneota. Móðirin annaðist ein um uppeldi sv'einsins, og er hann var fjögra ára gamall fluttust þau mæðg- in til Vesturheims og settust að í ís- lenzku nýlendunni í Lyon County í Minnesota. Dvöldu þau fyrst út í sveit hjá bændafólki, en rétt bráð- lega tóku þau sér bústað í þorpinu Minneota og hafa átt þar heima á- valt síðan. Móðirin vann fyrir sér og syni sínum af miklum dugnaði og kom honum í barnaskóla. Lauk Gunnar venjulegu lýðskóla-námi, en i æðri skóla hefir hann ekki verið, annað en einn vetur er hann nam verzlunarfræði við skóla í Quincy, Illinois. Snemma varð Gunnar að ganga að erviðisvinnu. Gætti hann hjarða á sumrum framan af, en er hann þroskaðist, vann hann við húsa- smíðar. Siðan var hann verzlunar- maður um hrið og loks lærði hann prentiðn. Það gefur að skilja, að uppv'axt- arár Gunnars hafi verið all-ervið. En það hefi eg fyrir satt, að fyrir erviðleika þá, er hann átti við að stríða, hafi hann fengið líkams- og sálar-þrek það, sem síðar auðkendi hann. Gunnar mun hafa verið bráð- þroska. Eg kyntist honum fyrst rúmlega tvítugum ungling. Var hann þá þegar búinn að afla sér óvenju- lega mikillar þekkingar, enda var hann sí-lesandi. Lífsskoðanir hans voru þá enn ekki fastákveðnar orðn- ar. Fór honum sem fleirum ungum gáfumönnum, að hann vildi þar ryðja sér brautir sjálfur, en ekki krækja stigu annara hugsunarlaust. Voru skoðanir hans á mannfélags- málum heldur ekki við eina fjöl feld- ar. Það var honum eðlisnauðsyn að “rannsaka alt og halda hinu góða.” Fyrir það varð hann og sjálfstæður og stefnufastur maður. Það mun hafa verið árið 1897, að þeir Gunnar Björnsson og S. Th. Westdal, sem nú er nýkosinn þing- maður í N.-Dakota, eignuðust prent- smiðjuna í Minneota og tóku að sér útgáfu vikublaðsins “Minneota Mas- cot”. Var það fátækleg prentsmiðja þá og blaðið lítilfjörlegt. Nú er sú prentsmiðja orðin myndarleg, með flestum nýtízku-tækj um og blaðið talið með helztu vikublöðum i Min- nesota-ríki. Af bessu starfi lét Gunn- A LEIÐ TIL VALDA 0G UPP- HEFÐAR I M1NNES0TA-RIKI 'Ki GUXNAR B. BJÖRNSSON, Rltstjórl og þlngmaður, Minneota, Minnesota. ar þó um stutt skeið og gegndi ýmis- konar umboðsstöðum fram að alda- mótunum. Keypti hann þá blaðið og prentsmiðjuna einn—af S. Th. West- dal, sem þá fór til Washington í stjórnarþjónustu. Nú gerðist Gunn- ar ritstjóri og hefir verið það síðan. Brátt fór að bera á frábærum hæfi- leikum Gunnars sem blaðamanna Smám saman fór hið litla vikublað í afskektum sveitar-bæ að vekja eft- irtekt út um alt ríkið. Blaðið gat hann stækkað meir og meir. Rit- stjóragreinar hans voru teknar upp í ótal blöð og þar á meðal í stórborga- blöðin. Loks hafði Gunnar Björns- son náð svo miklu áliti sinna starfs- bræðra i Minnesota-ríki, að hann var kjörinn formaður blaðamannafélags- ins i ríkinu, og má það með afbrigð- um telja, að hann væri það upphaf- inn yfir ritstjóra hinna stóru dag- blaða. Stöðu þessa hafði Governor Johnson haft á undan Gunnari. Jafn- framt blaðamenskunni hafði Gunnar mörg bæjarstörf með höndum. Póst- meistari var hann mörg ár og lengi hefir hann verið formaður skóla-1 stjórnar. Átt hefir hann einnig mik- inn þátt í félagsmálum. Með blaði sínu komst Gunnar Björnsson til mikilla valda í stjórn- málum, fyrst í héraði og siðan i rik- inu. Hann fylgir flokki Repúblíka, og þeirri stefnu flokksins, sem miðar að framsókn og umbótum. Lengi var hann tregur til að taRast embætti á hendur. Lét hann þó tilleiðast að gefa kost á sér til þingfarar og var hann kosinn þingmajður hauistið 1912, og varð enginn til að bjóða sig fram á móti honum. Svo fór aftur Við kosningar í síðasta mánuði, að hann var endurkosinn mótstöðulaust. Gunnar varð stórvirkur þegar á fyrsta þingi og náði fljótt viður- kenningu sem einhver atkvæðamesti maður i fulltrúadeild ríkisþingsins. í þeirri deild eru 130 þingmenn, en i öldungadeildinni um 65. Mest hefir Gunnar Björnsson lát- íð til sin taka í stjórnmálum nú á siðasta ári. Ólag nokkurt hefir ver- ið með forystu í flokki Repúblíka i Minnesota hin siðari ár. Kom það greinilega í ljós við ríkisstjórakosn- kosningar 1912. Og er leið að und- irbúningi kosninga 1914 virtist sækja ætla í sama horfið og fylkingin að sundrast. Var þá af leiðtogum flokksins stofnað til sérstaks flokks- þings í Minneapolis síðastliðið vor til að velja merkisbera í komandi kosn- inga-Ieiðangri. Var á því þingi sam- ankomið um þúsund manns. Átti Gunnar Bjömsson mestan þátt í því að korna þeim fundi á og fá mál þar til lykta leidd þannig, að til einingar og samvinnu horfði. Óx Gunnar mjög af þeim málum. Litlu siðar var hann kjörinn formaður í mið- stjórn flokksins. Settist hann þá að t i Minneapolis og stýrði kosninga- leiðangrinum. Repúblíkar unnu mik- inn sigur undir stjórn hans við þing- kosningarnar síðustu en töpuðu rík- isstjóra embættinu af óViðráðanleg- ; um ástæðum. Sem venja er til eftir kosningar, koniu þingmenn meiri- hluta-flokksins sér saman um þing- forseta, er formlega verður kosinn i byrjttn þings eftir nýár. Bentu þá blöðin einna helzt á Gunnar, sem for- seta-efni, en er á flokksfund kom. baðst hann ákveðið undan þeirri sæmd, og var annar til nefndur, en enginn maður hefir nú nieiri völd á löggjafarþingi Minnesota-ríkis en Gunnar Björnsson. Gunnar Björnsson er mörgum þeim eiginleikum gæddur, sem til for- ystu heyra. Hann er hár maður vexti og þrekinn, hefir og safnað holdum til muna á síðari árum. Hann er glæsimenni sem nafni hans á Hlíðarenda og velur sér fatasnið einkennilegt. Hann er hvatur á fæti og hinn kempulégasti. Svipurinn er mikilúðlegur og drengilegur, hárið mikið og svart, augun skær og gáfu- leg. Hvar sem hann fer, veita menn honum eftirtekt. Gunnar Björnsson er all-vel máli farinn, en þó er hann meiri rithöf- undur en ræðumaður. Kappræðu- maður er hann með afbrigðum og er því við brugðið á þingi. Orðhvass getur hann verið og napur og sækir enginn gull í greipar honum, þegar því er að skifta. Skálmeistari er hann nær óviðjafnanlegur sökum fyndni, og er mjög sókst eftir honum til þess vandaverks í veizlum og á gleðimótum. Ef eg ætti að láta í ljós álit mitt um orsakir þeirra miklu vinsælda, er Gunnar Björnsson nýtur, myndi eg segja, að þær ætti hann drenglyndi sínu mest að þakka örlyndur er hann og skapstór nokkuð, en aldrei hefi eg vitað hann vísvitandi bregðast sínum betra dreng Þess vegna leita svo margir til hans með vandræði sín; þeir vita, að honum má treysta. Og sá, sem orðið hefir vinur Gunnars, býst naumast við að eignast nokkurn tíma tryggari vin á lífsleið sinni. Bókamaður er Gunnar mikill og á ágætt bókasafn. Hann dáir mjög ís- lenzkar rímur og kann utanbókar fjölda mörg rímna-erindi. Uppá- halds-skáldið hans er Hinrik Ibsen. Hann er svo vel að sér í ritum skáld- jöfursins norska, að eg efast um að nokkur íslendingur sé honum þar fremri. Fjöllesinn er hann og fróð- ur. Trúmaður er Qgpnar Björnsson og eindreginn kirkjumaður. Hann er formaður safnaðarráðsins i söfnuði sinum og öflugur máttarstólpi kirkju- félags v'ors, hins íslenzka og lúterska. Af kirkjulegum starfsmálum hefir hann látið heiðingja-trúboðið sig ekki sizt varða, og hefir gefið meira fé til þess en nokkur veit af. Ekki er hann auðugur maður að fé, en drengileea styður hann öll þarfleg og kristileg mál og enginn getur ver- ið fljótari en hann til hjálpar bág- stöddum bræðrum. Gunnar Björnsson er kvæntur Ingibjörgu Agústu Jónsdóttur Hörg- dal, ágætis-konu. Er hún ættuð frá Hóli í Hörgárdal. Faðir hennar á heima við Lundar, Manitoba, og er hún uppalin hér í Winnipeg. Þau hjón eiga fjögur börn á lífi: Eð- varð Hjálmar, Kristján Valdimar, Gunnar Björn og Helgu Sigriði. I stuttu ágripi hefir hér sögð verið saga Gunnars Björnssonar, svo langt sem hún er komin, en verði honum langra lifdaga auðið, má fullyrða, að hið mesta og glæsilegasta sé eftir ó- skráð enn, og verður þó eigi annað sagt, en að mikið sé dagsverk það, sem þegar er unnið. B. B. J. | FYRIR BÖRN OG UNGLINGA \ t Hvernig hann Egill litli Böðvarsson gaf jólagjafir. 1 Egill var fátækur; en oftast lá honum það i léttu rúmi. Raunar gat það stundum komið sér illa að verða að vera án ýmsra hluta, sem aðrir drengir töldu sér nauðsynlegt að hafa; en vanalega gat hann fengið nóg að gera hjá fólki, og fyrir það sem hann innvann sér á þann hátt, gat hann keypt sér föt og bækur, og með þvi líka orðið mömmu sinni að liði með að sjá fyrir heimilinu. Á því voru þau mæðgin og Jón litli bróðir hans. En á jólunum var raun að vera fá- tækur—þegar út af jólahugsaninni löngunin til þess að gefa eins og ið- aði í öllum fingurgómunum á hon- um, en hann hafði ekkert cent af- gangs, þegar hann var búinn að kaupa jólagjafir handa mömmu sinni og bróður sínum, en langaði þó til að gefa fleirum. Egill hafði unnið sér inn þessa jólaföstu töluvert af peningum fyrir að moka snjó af gangstéttum hjá ríka fólkiu, sem heima átti á stræt- inu hinum megin við húsið þeirra; en þeir voru látnir ganga til þess að fullnægja vetrarþörfunum mörgu. Hann átti eftir bara nóg til þess að kaupa fyrir fallegan vasaklút handa henni mömmu sinni og eitthvað af gullum handa honum litla bróður sínum. En nú langaði hann svo hjartanlega til þess að endurgjalda nokkrum fátækum nágrönnum góð- semi þá, sem þeir höfðu auðsýnt, með því á einhvern hátt að hjálpa til að gleðja þá á jólunum. En nú virtist ekkert geta orðið úr því fyrir honum, því engir voru peningarnir. Um þetta alt talaði hann við mömmu sína jólanóttina á meðan þau sátu undir borðum. Hann sagði þá, að ef hann væri ríkur, skyldi hann kaupa fallegt jólatré og hengja á það fall- egar gjafir og hlý föt handa börnun- um hennar Helgu, sem allan liðlang- an daginn vann baki brotnu við þvottabalann til þess að geta borgað húsaleiguna og keypt eitthv'að af mat upp í litlu munnana. Og bara ef hann hefði peninga, hvað mikið hann kyldi gera henni gömlu Björgu til þæginda, sem byggi ein sér og ætti svo erfitt með að láta litlu eftirlaun- in hrökkva til þess að bæta úr helztu þörfunum I Og ef hann hefði pen- inga, hvað mikið af góðum og fall- egum bókum skyldi hann ekki kaupa handa honum aumingja Bjarna, kryplingnum, sem einu sinni hafði verið einn af góðu kennurunum í bænum, en út úr veikindum orðið heilsulaus maður. En auðvitað var ekki til neins að hugsa um þetta. Hann var bara fátækur drengur og gat því ekkert gert fyrir aðra. Jóladagsmorguninn vaknaði Egill við sköllin í litla bróður sínum, sem var að tæma jólasokkinn sinn með eins mikilli ánægju og börn sem rík- ari voru. Egill reis upp við olnboga í rúminu sínu og sá í gegnum glugg- ann, að rnikill snjór hafði fallið um nóttina. Þessi mikli snjór, sem sv'o erfitt er að moka og sópa. Fyrsta hugsunin hans var, að nú biði eftir honum fólkið, sem hann var vanur að moka fyrir af gangstéttunum, og hann hentist fram úr rúminu. Hann vaknaði þennan morgun miklu fyr en vanalega, af því Jón litli bróðir hans hafði sofið svo laust vegna geðshræringar út af jólasokknum hans, sem hann átti von á, og hafði haft sig á kreik onúr rúminu undir eins og birti. Hugsun ein greip Egil alt í einu. Hann tókst eins og allur á loft meðan hann var að klæða sig, svo flýtti han nsér. Mamma hans var þegar komin ofan og var í eld- husinu að búa til morgunmatinn, þegar hann kom fram og kallaði til hennar með mikilli kæti: “Eg ætla að fara út og færa nágrönnunum okkar dálitlar jólagjafir.” Hún sá ákafann í andlitinu á hon- um og horfði á hann forviða og sagði: “En , sonur minn! hvað hef- ir þú til að gefa?” “Eg ætla að gefa þeim snjólausar gangstéttir,” sagði hann. “Ef það er peningavirði fyrir rika fólkið að fá gangstéttirnar sínar hreinsaðar, þá hlýtur það að vera einhvers virði fyrir fólk, sem ekki getur gert það sjálft. Þetta er snemma morguns, og fólkið, sem eg sópa fyrir, þarf mín ekki enn þá. Eg ætla því að flýta mér og fara til hennar gömlu Bjargar og sópa hjá henni. Þú manst ívað góð hún var við mig, þegar eg lá í gigtinni, og gaf mér af gigtar- áburðinum sínum til þess að smyrja mig með. Og svo ætla eg að fara og moka af gangstéttinni hjá aum- ingjanum honum Bjarna kennara. Hann hefir verið svo góður að ljá mér bækur. Og þá er hún Helga, sem engan hefir til þess að hjálpa sér með börnin sin, sem ekki eru mikið eldri en hann Nonni. Eg ætla að vera búinn að sópa hjá henni áð- ur en hún kemur út.” “En þú bíður, þangað til þú ert búinn að borða morgunmatinn þinn, sagði móðir hans. “Nei-nei! Eg hefi engan tíma af- gangs. Eg þarf að vera búinn með þessa þrjá staði áður en eg fer á vanalegu plássin mín. Eg er ekkert svangur og fæ bara betri lyt á mið- dagsmatnum mínum. Og eg er nærri viss um, mamma! að steikin þín verður eins góð á bragðið og “jóla- tyrki”, um það eg er búinn að ljúka verkinn mínu.” Ög svo var hann þotinn á stað. Snjórinn var mikill og mokstur- inn erfiður, svo að eftir lítinn tíma var honum orðið svo heitt, að hann þurfti að fara úr treyjunni sinni; en hann mokaði áfram ötullega, þangað til hann hafði lokið við plássin þrjú. Þá tók hann upp úr vasa sínum miða, skrifaði á hvern þeirra: “Gleðileg jól I frá Agli Bárð- arsyni,” lét einn á þrepið hjá hverri hurð og flýtti sér svo á stað til næsta strætis. Þegar Björg gamla opnaði dyrnar um morguninn og leit út og fann miðann á þrepinu, tók hún eftir þvi að búið var að moka snjóinn af stétt- inni hjá hér og segir: “Guð blessi hann I Hvað hann er góður í sér I” Bjami kennari skjögraði til dyr- anna með kústinn sinn. Honum létti, þegar hann leit út, og hann sagði: “Úr þeim dreng verður maður, sem hún mamma hans verð- ur stolt af.” Helga með barnahópinn, þreytt og kjarklítil orðin út af öllu striti sínu, einmana í heiminum með börnin, komst svo við að hún táraðist út af hugsunarsemi hans og góðvild, og fékk í sig nýtt hugrekki. Hann var þreyttur, drengurinn sem kom heim þennan morgun með skófl- una sína, en ríka fólkið hafði borg- að honum vel fyrir verkið hans, og hann var glaður. Hann ætlaði að komast fram hjá húsunum þar sem hann hafði mokað fyrst, án þess að tekið yrði eftir honum; en Helga kom hlaupandi til dyranna og börnin með henni, og þau þökkuðu honum. Gamla Björg kallaði til hans með skjálfandi rödd: ‘Guð blessi þig, drengur minn!” Og Bjarni kennari kom studdur staf sínum og lagði aðra höndina á öxl Egils og sagði: “Eg hefi lifað mörg jól, góði minn ! og hefi fengið hluta minn af gjöf- um, en enga hefir mér þótt eins vænt um og gjöfina þína, af því þú gafst mér hluta af sjálfum þér, og þú hefir líka gefið mér nýja hugsun. Það var búið að bíta sig fast hjá mér, að nytsemi æfi minnar væri lokið; en nú finst mér að eg muni geta gert eitthvað fyrir þig, sem verði þér að liði. Ef þú vildir koma inn til mín á kvöldin og lesa, þá hefi eg nóg af bókum að lána þér, Og það skal vera mér ljúft að hjálpa dreng, sem svo fús er að hjálpa sér og öðrum.” “Er nú drengurinn minn of þreytt- ur til þess að geta notið jólamatar- ins síns?” spurði mamma hans, þeg- ar hann var kominn heim. “Já, eg er. þreyttur, mamma!” , sagði Egill; “en eg er svo glaður! Bjarni kennari segist skuli hjálpa [ mér með lexíurnar mínar. Hann segir að það sé jólagjöfin hans til mín,. Og það er einmitt það sem eg þarf. Eg hefi líka lært nýja, góða lexíu í dag. Eg sé nú, að allir geta gefið jólagjafir, hvað fátækir sem þeir eru. Þeir geta gefið eitthvað til hughreystingar og hjálpar, þótt ekki sé nema gleðjandi orð eða hjálpar- hönd, sem rétt er að einhverjum þurfandi manni. Og það held eg sé betri gjafir, en fallegu gjafirnar, sem kosta mikla peninga, ef þær koma ekki frá hjartanu.” býtt af N. S. Th. “Hafið þið farið fram að Grund? Þið ætlið þó ekki að yfirgefa okkur án þess að koma þar við ?” Þessar og þvílíkar spurningar mæta ferða- mönnum, sem koma til Akureyrar. Því Akureyrarbúar eru stoltir af framfaramönnum sýslunnar, hvar sem þá er að finna. Þó mun þeim vanalega verða fyrst fyrir, þegar þeir vilja sýna ferðamönnum eitthvað sérstaklega tilkomumikið, að vísa þeim fram að Grund. Eg er þess fullviss, að það er sameiginlegt á- hugamál Akureyrarbúa, að fram- faramönnum sýslunnar geti fjölgað sem allra fyrst. Þeim þykir lítið til þeirra manna koma, sem eru daufir og ráðlitlir—um þá menn, sem “fara hjá sér”, eins og haft var eftir Grundarklrkja. bónda í öxnadal, láta þeir sér fátt um finnast. Þeim mundi vera sönn ánægja að því að leiðbeina ferða- mönnum frá einum framfarabónda til annars, og þeir hafa sterka von með að geta það síðar. En þeir eru ekki ánægðir með lítið þar á Aknr- eyri, þess vegna vísa þeir mönnum fram að Grund, því þar finst þeim að þeir finna hámark búnaðarfram- faranna. Eg heyrði talað um Magnús Sig- urðsson á Grund í Eyjafirði, þegar eg var svolitill drengur í Hörgárdal. Það kom mjög fljótt fram á ung- lingsárum hans, að hann var fram- gjarn og stórhuga, útsjónarsamur og áræðinn. Við vorum svo óheppin, þegar við komum að Grund, að Magnús var ekki heima; var okkur tekið þar mjög hlýlega, höfðum þar all-langa viðdvöl og tókum myndir, og svo urðum við vitanlega að þiggja kaffi og súkkulaði. Það ætti enginn Vestur-íslending- maður getur dáðst að, og mætti rita um það langt mál. Frágangur er allur svo vandaður sem bezt má verða og virðist ekkert vera til þess spar- að, að gera alt eins trúlega og hagan- lega eins og frekast er auðið. Stein- steypan er sérstaklega vönduð og veggirnir þykri en vanalega gerist hér. Það er álit margra heima, að steinsteypubyggingar séu of dýrar til þess að geta verið almennar, en eg held það sé rangur skilningur: þær ðyggingar verða vitanlega að miklutn mun dýrari, enn sem komið er, en þær þyrftu að verða; verkalaunin verða líklega í flestum tilfellum tvisvar eða þrisvar sinnum hærri en þau þyrftu að verða, af þvi það eru svo fáir, sem kunna að búa til steyp- una; en þó er ekkert meiri vandi að búa til steinsteypu, en að búa til brauð; enda er lítill vafi á því, að innan skamms v'erður hver bóndi í landinu búinn að læra að búa til steinsteypu Það sem sumir hafa á móti steypunni, er, að hún sé raka- söm Vitanlega ættu steinsteypuhús ætíð að standa sæmilega hátt, svo það hallaði vel frá þeim; einnig væri ráðlegt, að hafa lokræsi annað hvort í kringum undirstöðuna eða í gegn um hana; mætti hafa undirstöðuna nokkru þykkri en vanalega, og hafa lokræsi eftir endilöngum veggnum, 3 eða 4 þumlunga breitt; vitanlega ætti það ekki að þurfa nema fyrir í- búðarhús. Suma heyrði eg tala um það heima, að hafa steypuna tvö- falda, en þá held eg það yrði ódýr- ara að hlaða holum múrsteini innan i á röð; eru þá settar í steypuna járnþynnur og látnar standa inn úr veggnum; mætti hafa til þess ódýrt gjarðajárn. Það er víst óhætt að segja, að steinsteypubyggingar hafa í flestum tilfellum gefist Vel heima á íslandi; menn mega heldur ekki gef- ast upp, þó þeim verði eitthvað á- bótavant til að byrja með, því reynsl- an mun verða sú, að þær verða kostn- aðarminni, en ekki dýrari með ára- fjöldanum, ef þær eru vel gerðar, vegna þess að þær endast mörgum sinnum lengur en byggingar úr timbri eða torfi og grjóti. Byggingarnar á Grund og frá- gangur allur, eru líklegar til þess að verða fyrirmynd annara langt fram í ókominn tíma. Mér flaug í hug, þegar við vorum að fara þaðan, að sveitabvgðir íslands mættu vel við una, ef byggingar fyrirkomulagið verður komið i svipað horf alment að 200 árum liðnum. Það meinar auðvitað ekki, að bændur alment verði eins efnaðir eða allir geti bygt eins stórar og dýrar byggingar, heldur að eins, að maður hefir á- Bæjarliús á Grund. 1 miSiS: íbúSarhús og búS. Til vinstri: fjós. _____________ ' komu- og vöruhús. Til hægri sést á sam- ur, sem ferðast heim, að láta það bregðast að koma að Grund—enginn, sem ann framförum í byggingum og jarðabótum. Magnús hefir bygt fimm dýrar og vandaðar byggingar: Kirkju, víst eina þá allra vönduðustu og stærstu á landinu; íveru- og verzl- unarhús stórt og vandað; er bæði kirkjan og verzlunar og íbúðarhúsið úr timbri; svo hefir hann bygt þrjár ðyggingar úr steinsteypu, samkomu- og Vörugeymslu-hús, og gripafjós stórt og mjög einkennilegt; eru grip- irnir uppi á lofti; þó þurfa þeir hvorki að fara upp stiga eða í “lyfti- vél”, heldur er því svoleiðis háttað, að það er ofurlítil brekka eða halli upp að dyrunum, mjög laglega fyrir komið; svo er safnhús undir Ioft- inu, og er hægt að keyra þar inn vagna. Svo var verið að byggja þar í sumar fjárhús og hlöðu, með fjöl- stöðulagi sem kallað er, sem munu rúma allmargt, líklkega hátt á annað hundrað fjár. Það er margt í sam- , bandi við þessar byggingar, sem stæðu til að vonast eftir, að bændum smátt og smátt lærist að byggja hag- anlega og með það augnamið fram- undan, að byggingarnar geti haft varanlegt gildi. Vitanlega hefir miklu verið kostað þar til annara bygginga, girðinga og jarðabóta, en því miður gafst mér ekki tækifæri til að kynnast því nákvæmlega, og kom það sérstaklega til af því, að foringi og frumherji framfaranna var fjar- verandi. “Góð er hún Grund að sjá, guð veit hver hana á; þar um jeg þenkja má, þegar eg fer þar hjá.” Það er sagt að þetta hafi verið kveðið eftir mannfellisharðindi af manni, sem hafi orðið að selja Grund fyrir fáeina málsverði, og gömul munnmælasaga segir, að Grund hafi verið seld fyrir langlegg. Maður bæði óskar og vonar, að slikar landi>!águr gangi aldrei fram- ar yfir þjóðina. A. K.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.