Lögberg - 09.09.1915, Qupperneq 1
PENINGAR FYKIK BÆIÍIJK.—Hæstu prísar og
skærustu skildingar borgaíir fyrir 11. útg. Encyclo-
pedia Britannica, Book of Knowledge, Stoddard's
Lectures, nýjar sk&ldsögur og skólabækur 1 bandi.—
Bækur, frimerki, fftséSir gripir og myndir keyptar,
seldar eSa teknar f skiftum. púsundir .útvaldra
bóka, nýrra og gamalla, fyrir hálfvirSi eSa minna.
Stærsta úrval fornra og fágætra bóka vestanlands.
Sérstök kjörkaup og kaupbætir um stundars'akir. —
Allir velkomnir aS skoSa. “Ye Oltle Book Shop”. 253
Kotre Bame Ave. gegnt Grace Church. Ph. G. 3118.
Két
stjórnareftirliti.
Búnaðar stjórnardeild Canada lætur stimpla két af öllum
skepnum, sem slátrað er í þeim stofnunum, sem hún hefir
eftirlit með: ,,Canada approved.“ Vor aðferð er að selja
aðeins két af heilbrigðum skepnum. Gætiðað stimplinum
FORT GARRY MARKET CO., Limited
330-336 Garry St. Phone M. 9200
28. ARGANGUR
WLNNIPEG, MANITOBA, FI.MTUDAGINN 9. SEPTEMBER 1915
NÚMER 37
Stjórnin veitir fé til flug-
náms í Winnipeg
Hon. Thos. H. Johnson lýsir því af hendi stjórn-
arinnar á fjölmennum borgarafundi.
í hinum stóra samkomusal iSnsýn-
ingarinnar var fundur á föstudaginn,
afarfjölmennur. og voru þar saman-
komnir margir helztu borgarar til
þess aö ræSa um ýms atriði stríöinu
v'iSkomandi og af því leiöandi. Þar
lýsti Hon. Thomas Johnson því af
stjórnarinnar hendi, aö hún mundi
veita 10 þús. dali til fyrirhugaös
flugskóla hér í bænum, gegn tillögum
annarsstaöar frá, og var aö því gerð-
ur mikill rómur. Þessi fjárveiting
er umfram þaö fé, er stjórnin hefir
boöist til aö leggja fram til aö kaupa
flugvél til hernaðar og fá mann hér
til aö stjórna henni, en þaö boð hef-
ir þegar þegið veriö meö þökkum, og
er stjórnin að gera ráðstafanir til aö
kaupa þaö og senda af staö. Ræöa
Mr. Johnsons er mjög lofuð af blöð-
um hér og birtist ágrip af henni hér
á eftir.
Borgarstjórinn VVaugh bar fyrtr
fundinn þaö mál, sem honum er hug-
arhaldið um, en það er að liðsinna
þeim mönnum, sem heim eru sendir
úr hernaði, sumir illa leiknir og ó-
sjálfbjarga, en slíkir eru nú að byrja
að koma, einn og einn eða í smáum
hópum. Félag er stofnað til að ann-
ast framkvæmdir í þessu efni, það
eina, sem enn er komið á- laggirnar í
þessu landi, og brýndi hann fyiir
fundinum, að það væri óhjákvæmileg
borgaraskyldá, að hjálpa þeim mönn-
um til viðurlífis og sæmilegra daga,
er lagt hefðu heilsu eða limi í sölurn-
ar á vígvellinum, svo og aðstandend-
um þeirra, sem fallið hafa. Hann
skýrði frá ýmsum drengilegum til-
boðum frá einstökum mönnum, er
boðist höfðu til að sjá fyrir slikum
mönnum, einum eða tveimur, þar á
meðal frá konu í þessu fylki, sem á
tvo syni i hernuni. Hún bauðst til
að sjá fyrir einum hermanni, er illa
væri fær um að komast af á eigin
spýtur, af áverkum. Hann kvað lög-
in um styrk til örkumlaðra hermanna
þurfa endurbötar við, með þvi að
þeim manni væri nú ætluð 30 cent á
dag, er þyrfti mann með að aka sér
á hjólum til að komast úr stað.
Hann kvaddi menn til að ganga i fé-
lagið og leggja fram sinn skerf til að
koma þessu þarfamáli á rekspöl.
Hon. Mr. Johnson bað viðstaddan
hermann, ofurstann Currie, er á
fundinum var til að eggja menn að
ganga í herinn, að bera þau boð
canadisku piltanna i vígskurðunum
og á spítölunum, svo og öllum al-
menningi á Betlandi, að þeir í Can-
ada væru með í þessari hrikalegu
hríð, allir bæði karlar og konur, og
mundu ekki verða annara eftirbátar.
Ráðgjafinn mætti fyrir hönd Hon. T.
C. Norris, og lýsti fjárveitingu af
stjórnarinnar hendi til fyrirhugaðs
skóla hér til að kenna að stýra flug-
vélum, og v'ar því tekið með fögnuði
af fundarmönnum. Hann kvað þess
enga þörf, að biðja menn ákaflega að
fara í leiðangur, þvi að ekki mundi
ervitt vera að fá úóga menn til her-
ferðar. Til þess væru nógir menn,
fúsir og reiðubúnir, og menn væru
hér saman komnir til að láta þá sem
til vígvallar væru farnir og í þann
v'eginn að fara þangað, vita af því,
að borgarar í Winnipeg könnuðust
vel við, hvað þeir legðu í sölurnar.
Þeir vildu einnig láta það í ljós, að
ekki stæði á ef fleiri manna þyrfti,
jafnvel eins margra og farnir væru.
Hann kvað sér hafa verið skýrt frá
því, að úr þvi hersv'æði, er Winnipeg
væri í, hefðu 16,000 menn gengið á
vígvöll og 10 þús. af þeim hefðu
komið frá Winnipeg. En engipn
skyldi halda, að fyrirstaða væri á
því, að fá þá 12 þús. menn, sem nú
þyrfti með. Þeir mundu hæglega
fást, því að nú væri um þetta að
ræða: “Hverjum hlotnast sú ham-
ingja, að ganga i 90. sv'eitina, 79.
sveit Camerons Hálendinga eða aðr-
ar sveitir, sem úr þessari borg hefðu
farið. Hver ætlar að nota sér færið,
að gera skyldu sina og taka þátt í
frægðinni, sem hinir hugprúðu her-
menn Canada hafa áunnið sjálfum
sér og ríkinu.”
Um óbreytta liðsmenn í Canada
her kvað ráðgjafinn svo að orði, að
þeir þyrftu ekki að vera fæddir í
Canada, til þess að vera góðir Can-
adamenn. Það væri ekki meiningin
að örva hingað komna menn til að
vera Canadamenn til hálfs, en einu
gilti, hvar þeir væru fæddir. Allir
væru velkomnir til þessa lands, en
þeim sem hér settust að væri ætlað
að ganga undir borgaraskyldur, eins
og öllum öðrum. Úr því að þeir væru
hingað komnir. væri af þeim heimtað
að verða góðir þegnar Canada lands,
að öðrum kosti væri ekkert sérlegt
keppikefli að fá þá hingað.
Margir íbúar þessa lands væru
fæddir í öðrum löndum, en hefðu
gengið undir skyldu sina og þá á-
byrgð sem borgararétti fylgdi. Þeir
vissir um aö á vigvellinum væru
þeir allir Canadamenn án nokkurs
manngreinarálits.
Ehn tregðu i liðsafnaði væri ekki
að tala, því að tiógir menn mundu
bjóðast, jafnskjótt og þeirra væri
leitað. En sér virtist, að þeir menn,
sem nú byðu sig fram, mundu verða
til þess að bera vopn inn í römmustu
vigi keisarans. Þeirra, sem eftir
yrðu, væri það, að sjá um að pilta-
arnir á vígvéllinum hefðu engar á-
hyggjur af kjörum þeirra er þeir
skildu eftir. Enginn þeirra mætti
skorta, íim það byði skyldan oss.
Mr. Johnson lýsti því, af hendi
stjórnarformannsins, að stjórnin, sem
fulltrúi fylkisbúa, hefði boðið og
væri þess albúin, að vera í samv'innu
við herstjórnina í Ottavva, um alt sem
að hernaðinum lyti, svo langt sem
orka leyfði.
Ofurstinn Currie lýsti nákvæmlega
lífinu i vígskurðunum, en þar hefir
hann stýrt 48. hersveitinni. Hann
var í orustunni við Langentarck eða
St. Jitlien. þar sem Þjóðverjar beittu
eiturlofti í fyrsta sinn, og sagði ná-
kvæmlega frá þeirri viðureign. Svö
sem kunnugt er, hörfuðu þær her-
sveitir, er næst voru Canadamönnum,
undan eiturmóðunni og varð þá .Can-
adalið 15,000 manns, að taka á móti
Þjóðverja her, 250 þúsundum og
halda uppi bardaga, ella var stórmik-
ið í voða. Vorir menn reyndust þá
svo hraustir, og harðir, að það er að
ágætum haft. Þeir gerðu níu atlög-
ur að fylkingum Þjóðverja, með ber-
um hyssustingjum, og svo hart lögðu
þeir að, að Þjóðverjar hopuðu und-
an mílu v'egar. og hefði þá mikill sig-
ur unnist, ef meira lið hefði verið
fyrir hendi til aö hjálpa þeim. 90.
sveitin í Winnipeg var í þeim bar-
daga og dugði svo vel, að konungur
hefir veitt þeim fyrirliðum medalíur
sem herteknir voru, sem er einsdæmi.
Þessi orusta var ein hin mesta, sem
saga hins brezka rikis hermir frá.
Þegar hinar þýzku fylkingar komu
vaðandi frani, bak við eiturmökkinn,
þá var svo að sjá sem allur hinn
brezki her mundi v'erða eyddur. En
svo fast stóðu Canadamenn fyrir,
að ekki ortist á þá. Mannfallið var
ógurlegt, um helmingur af liðinu
varð óvígt, af eiturgasinu, en fylk-
ingin canadiska vann sér og landi sínu
ódauglega frægð með framgöngu
sinni og ágætri hreysti, , í þeirri
grimmu hríð.
Ofurstinn sagði frá því, að þeirrar
stundar yrði ekki langt að bíða, að
þýzkir yrðu undan að láta, með þeim
liðsafnaði og útbúnaði, sem nú væri
fenginn, en verið hefði af skornum
skamti til þessa. En meira lið þyrfti
umfram alt til þeirrar síðustu hríðar,
ef duga skyldi, og hvatti hann alla til
að leggja ríkinu lið sitt á þeirri úr-
slitastund.
Vínbannslög í Nýfundna
landi.
I Nýfundnalandi stendur yfír
rimma um það, hvort heppilegtl sé
að afnema vínsölu á því eylandi og
viðhafa hvorirtveggja ált kapp,
bæði bindindismenn og, vínviniir.
Ástæðan er sú, að í nóvember i
haust á að fara fram atkvæða-
greiðsla um það, hvort í lög skuli
taka lagafrumvarp um vínsölu-
bann, er simþykt var þar á síð-
asta þingi. 40 per cent af öllum
atkvæðum þarf til þess að sam-
þykkja frumvarpið. Því er haldið
íram, að hægt sé að aftra því, á
eynni, að vín flytjist í land, miklu
hægra en í vissum landspörtum á
meginlandinu, sérstaklega þar sem
svo stendur á, að lönd liggja sam-
an, og vínsala er leyfð í sumum,
en bonnuð í öðrum.
til
Málin byrjuð.
Sakamálin á hendur f jórum j
meðlimum Roblins stjórnarinnar J
eru nú byrjuð með því, að lög-J
menn sækjast á um sakarefni, þeir
Bonnar og Andrews, og þeir sem
þá aðstoða. ITinn reglulegi dóm-
ari, Sir Hugh John Macdonald
víkur sæti í málinu, með því að
hann var meðlimur rannsóknar-
nefndaúinnar er þegar hefir gefið
álit sitt um sökina, er kæran er
bygð á, og heitir sá og Macdonald
sem sæti hans hefir tekið- Hinir
sakbornu fyrv. ráðherrar mæta
fyrir réttinum, en hlíft er þeim við j
að f jölmenni hópist þangað, í hvert
sinn, og bægir lögreglan öllurn frá, J
sem ekki eiga löglegt erindi í rétt- j
arsalinn.
Dr. Guðm. Finnbogason
A fundi þeim, er skólaráð
kirkjufélagsins hélt síðastl. laug-|
ardag, var ákveðið að bjóða dr.
pbil. Guðm. Finnbogasyni i I
Reykjavík kennara-stöðu við skóla |
kirkjufélagsins, Jón B jarnason
Academy. Er til þess ætlast, aðj
hann kenni íslenzku og íslenzkarj
bókmentir við skólann, ásamt I
fleiri námsgreinum. Skólastjórn- |
in hefir góða von um að dr. G. F.
íaki boðinu og komi vestur áður
en langt líður.
Dr. Guðm. Finnbogason er
lærður maður á heimspeki, við há-
skólann í Danmörk og í öðrum
löndum, hefir líka stundað menta-
mál með opinberum, styrk og ver-
ið ráðanautur stjórnarinnar á ís-
landi, um stjórn mentamála þar.
Flann er þjóðkunnur rithöfundur,
manna bezt orðfær, bæði í ræðu
og riti, og er orðlagt hversu snjalt
honum mælist; þegar honum tekst
upp. Ef hann heldur áfram eins
og hann hefir byrjað, þá er vafa-
laust að merkilegt æviverk liggur
eftir hann í ritstörfum.
Það má vel fagna því, að skóla-
ráðið var svo stórhuga, að reyna
að útvega sér þann manninn, sem
ákjósanlegastur var, úr því að það
leitaði kennara frá íslandi, á ann-
að borð. Þeir sem eru kunnugir
Dr. Guðmundi munu vera kirkju-
félaginu þakklátir fyrir að ná hon-
um hingað vestur, því að það er
ávinningur að fá svo vel mentað-
an, hugmíkinn og góðan dreng í
hópinn.
Þjóðræknis gjafir.
Bændur í vestur Canada hafa
sýnt mikinn áhuga á þvi að leggja
í “Patriotic Acre” sjóðinn, sem
stofnaður var í fyrra haust,
skömmu eftir að stríðið í Norður-
álfunni byrjaði. Mörg þúsund
bændur hafa lofað að gefa afurð-
irnar af einni ekru í haust. Þetta
er mjög þakklætisvert. jafnvel þó
ekki sé hægt að segja að mikið sé
í sölurnar lagt þótt gefnar séu af-
urðir af einni ekru, þegar upp-
skeran er góð.
Grain Growers’ Grain félagið i
sér um, að auðvelt sé fyrir bænd-!
ur að koma gjöfum sínum í
“Patriotic Acre” sjóðinn eða aðra
þjóðræknissjóði. Þeir sem hveiti
rækta í Alberta, Saskatchewan og
Manitoba geta þegar þeir senda
vagn’nlass sitt til bændafélagsins,
tekið fram hve háa upphæð þeir
vilja gefa og tiltekið sjóðinn, sem
þeir ætlast til að gjöfin renni í.
Félagið sér um að féð komist í
þann sjóð sem til er tekinn, gef-
anda að kostnaðarlausu. Kvittun
verður send beint frá umboðs-
manni eða forstöðumanni sjóðs-
ins. sem við gjöfinni tekur.
— Kona í Danmörku var að
reita illgresi úr garði og fann
gamlan gullhring. Af tilviljun
kom það í ljós, að hringirnir voru
tveir, en feldir svo vel saman, að
mjög lítið bar á samskeytunum.
Þegar hringimir voru aðskildir
sáust þessir stafir á fleti annars
hringsins: R. T. B. 1704. Eflaust
verður erfitt að rekja sögu þessa
gamla hrings.
— Kona dansks konsúls, sem
lengi hefir dvalið i Brasilíu, var á
ferð að heimsækja kunningja og
vini í Árósum ásamt 4 bömum
sínum. Það yngsta er þriggja en
elzta 10 ára gamalt. Lét hún
skíra þau öll sama daginn í St.
Pauls kirkjunni, því fyrri hafði
henni ekki tekist að ná í lúterskan
prest.
Lögreglan leitar hjá
Kelly.
Á fimtudags kveldið var hélt
lögreglan til hins skrautíega íbúð-
arhúss Thos Kelly og lettaði þar
hátt og lágt að skjölum, er komið
gætu réttvísinni að haldi í væntan-
legu máli hins opinbera við hann.
Og rétt af stundu gerði hún skrif-
Stofu hans sömu skil. Var þar
hvert plagg tekið, er málfærslu-
menn stjómarinnar álitu til gagns
geta orðið í málarekstrinum. Skrif-
stofustjóri Kellys mótmælti rann-
sókninni og neitaði að opna dyrn-
ar á jámskáp, t.- þar var og fékk
lögreglan því æfðan lásasmið til
að reyna sig við hann. Skápurinn
hafði verið smíðaður sérstaklega
fyrir Kelly og var læsing hans af-
ar traust og kænlega gerð. Effir
margra klukkustunda viðureign
tókst smiðnum loksins að opna
hann, og var hann fullur af skjöl-
um. Þau hirti lögreglan öll, er
viðstaddir lögmenn vildu með sér
hafa.
Kelly er sjálfur, einsog kunn-
ugt er, suður í Bandaríkjum og
fæst ekki til að koma hingað til
vitnisburðar. Heyrst hefir, að
reynt sé við Bandaríkja stjóm að
fá hann tekinn og sendan hingað,
og ef svo er, mun sakamál vera
höfðað gegn honum. Er svo að
skilja af umsögnum blaða, að
honum séu tveir kostir fyrir hönd-
>im, koma hingað, af sjálfsdáðum
og bera vitni fyrir hinni kgl.
rannsóknarnefnd, ella verðo hand-
tekinn og afhentur stjómarvöld-
um hér.
Sendiherra í klípn.
Sendi'herra Austurríkis og Ung-
verjalands í Bandaríkjum, Dr.
Dumba nefndur er kominn í klipií
útaf afskiftum af verkamönnum
úr hinum nefndu löndum, þeim
sem í Bandarikjum vinna. Hann
skrífaði bréf stjórr. sinni þess efn-
is, að hann starfaði að því, með
öðrum mönnum sinnar þjóðar, að
koma á verkfalli meðal þeirra
austurrísku manna, sem vinna i
hinum stóru verksmiðjum, þarsem
skotfæri eru búin til handa banda-
mönnum. Bréfinu ásamt fleiri
skjölum kom hann á blaðamann
að nafni Arch'ibald, semi lézt fara
sinna erinda áleiðis til Berlinar og
Vínarborgar. En Bretar tóku
skipið sem flutti hann og leituðu
á honum og tóku öll skjöl sem
hann hafði meðferðis, og við það
komst þetta ráðabrugg á loft.
Sendiherrann stendur nú í þvi, að
afsaka síg og aðra stundina held-
ur hann því fram, að sér væru
þessi afskifti leyfileg, en líklegt er
talið, að endalokin verði þau, að
Bandaríkja stjórn afsegi hann sem
fulltrúa keisaradæmisins austnr-
ríska.
Sannar sögurnar.
Kvenlæknir frá 1 Bandaríkjum
er þangað nýlega komin eftir
langa burtuveru í stríðslöndum
Evrópu. Hún kom í flesta spítala
þar sem sárir menn eru stundaðir
í Frakklandi og sá upp á þeirra
kvalir. Henni þótti þær mestar, er
þeir tóku út, er orðið höfðu fyrir
eiturlofti Þjóðverjá. Hún sá 700
konur fá læknishjálp, er sjúkar
urðu af misþyrming þýzkra. Hún
segir sögur um níðingsverk þeirra
á kvenfólki ekki ýktar, hel lur
sannar, og eru margar agalegar,
svo sem það, að þeir gengu af
stúlkubörnum dauðumi. Fátt kven-
fólk segir hún að hafí komizt
undan þeim á Erakklandi, þarsem
þeir lögðu undir sig land, en að-
farir þeirra í Belgiu segir hún þó
ennþá hroðalegri.
Heil herdeild vígbúin.
Það er haft eftir hermála ráðgjaf-
anurn Sam Hughes, að 37 þúsundir
Canadantanna berjist í vígskurðum í
Belgíu og á Frakklandi og 40,000 séu
á Englandi fullbúnar til vígs. Það
mun láta nærri, að þegar þeim flokk-
um er lagt saman, verði það heil her-
deild, er Alderson hershöfðingi á að
hafa yfirstjóm yfir, en canadiskir
hershöfðingjar standa honum næstir
í herstjórninni, þeir sem vanir eru
orðnir bardögum i vígskurðum.
Orozco feldur.
í einni af þeim hryðjum, sem j
oft gerast á landamærum Mexico j
og Bandarikja féll hinn nafnkendí I
hershöfðingi Orozco, er fyrst réði
fyrir liði Maderos og fylgdi síðan 1
Huerta. Dauða hans bar þannig
að, að hann var á ferð með ein-
hverjum sinna félaga, i þeim er-
indum að reisa flokk til hernaðar
og kom inn'í Texas, en þaðan
hafði hann áður strokið úr haldi,
er ‘hann var tekinn ásamt Huerta.
Hann og hans menn rændu hesti
hjá bónda og kúguðu hann til að
járna hann. Nágrannar hans
söfnuöust saman og eltu ræningj-J
ana, yfir tuttugu manns, og stóð
sá eltingarleikur lengi, því Mexi- j
canar eru kænir að fara í króka, j
en þeir sem eftirförina veittu voru
enn slóttugri og komu að hinum
óvörum, er þeir voru seztir fyrir
við eld, i gljúfri nokkru. Er ekkij
að orðlengja, að þeir voru þegar j
drepnir, nema tveir, er leituðu af- j
dreps á hlaupum. Féll annar á
hlaupunum, dauðskotinn, og var j
það Orozco, hinn tók til að kliíra j
upp gilbarminn og var skotinn er
hann var kominn hálfa leið, hrap-
aði hann og brotnaði í honum hvert!
bein, er hann komí niður.
-------—--------
uJón Bjarnason
Academy!,
IJóns Bjarnasonar skólij byrjar, ef
guð lofar, þriðja starfsár sitt fimtu-
daginn 30. þ.m., kl. 10 f.h.
Hingað til hefir skólinn verið hald-
inn í Skjaldborg. Nú hefir hann
fengið heimili í leigðu húsi á horni
Beverley og Wellington stræta. Er
nýgjört við alla bygginguna og er
þar húsrúm svo gott og önnur þæg-
indi fyrir hendi svo góð, að skólan-
um ætti að farnast þar vel í vetur,
enda lítur nú allvel út með góða að-
sókn.
Dálítið auglýsingaspjald áhrærandi
skólanum hefir verið gefið út og
sendist hv'erjum sem óskar þess. En
vera má að einhver, sem sér það, fari
að athuga, að þar eru ekki nema 27
nöfn nemenda síðastliðið ár, þar sem
það hefir áður birzt, að skólann
hefðu sótt 28 nemendur og er það
rétt, en á skólaspjaldið vantar eitt
nafn, sem af vangá hefir fallið hurt:
Jóhannes Olafur Olson.
Mjög líklegt er, að sumum leiki
forvitni á að sj'á nákvæma skýrslu
yfir það, hvernig nemendur vorir
stóðu sig við hin opinberu próf síð-
astliðið vor. Skal hér því sett til
fróðleiks nákv'æm skýrsla um það
atriði: Af 4 nemendum i efsta bekk
stóðust 3 prófið, einn með 1B eink-
unn ; af 10 nemendum í öðrum bekk
stóðust 7 prófið. 2 með 1B einkunn;
af 4 nemendum í kennaradeild stóð-
ust 2 prófið. Eru það samtals 18
nemendur, sem undir próf mentamála
deildarinnar gengu, en af hinum
voru 8 í almennu deildinni, en 2 í
undirbúningsdeild voru farnir af
skóla. Ef nienn eiga kost á, geta
menn gjarna borið þetta saraan við
Collegiate Institute í Winnipeg, sem
líklega er talinn bezti miðskóli fylk-
isins, og séð hvort skóli vor líður við
samanburðinn.
R. Martcinssoti,
493 Lipton St.
Bœndur bíða halla.
Svo má sjá í blöðum um þessar
mundir, að bændum sé skaði búinn í
hveitiprísum á þessum tímum, er
hveiti fellur stöðugt í verði á hveiti-
kaupa stöðum stórborganna. Verðið
mun nú v'era nálægt 70 cent, sem
bændur fá, en í Liverpool er prísinn
$1.65. Gufuskipafélögin hirða 30
cent fyrir hvert bushel er þau flytja
yfir pollinn, og er þá auðreiknað, að
járnbrautafélögin taka 65 cent a.f
busheli fyrir flutning ’til hafna, en
þar í telst með ábyrgð og hlöðugjald.
Það er talið miður sanngjarnt, að
bændurnir, sem framleiða vöruna, fá
að eins 70 cent, en þeir sem flytja
hana til markaðar 95 cent. Skilja
má, að þeir sem hveitiprisunum vilja
halda niðri, ráði nú mestu um verðið
og er bændum það mikill grikkur, að
það skuli koma f-yrir einmitt þegar
þeir þurfa að selja vöru sína.
Það er einn þátturinn í ráðagerð
þeirra, sem hv'eitiprísum vilja halda
sem lægst, að gera sem mest úr upp-
skerunni, en það mun satt vera, að
allmikið af hveiti hefir skemst við
næturfrost að undanförnu, og niunar
það stórmiklu hér í Manitoba, að ó-
v'ilhallra manna frásögn, meðal
þeirra Hon. Dr. Armstrongs, fylkis-
ritara, er segir miklar skemdir orðið
hafa af gaddi, á hveitiökrum hér í
fylki, en hnn er málinu kunnugur
eftir langt ferðalag nýafstaðið, um
marga parta fylkisins.
Kafbáta íloti Þjóðverja
gengur saman.
Tundurbátar Þjóðverja eyðast jafnóðum og bygð-
ir eru, meðýmsum ráðum flotastjórnar Breta
Svo er sagt, að þýzkir hafi lagt J
sig fast fram um tundurbáta smíð i
í seinni tíð, til þess að reyna að J
fylla upp í skörðin, sem banda-
menn og einkum Bretar höggva
jafnt og þétt í neðansjávar flot-
ann þýzka. Það hefir jafnan ver-J
ið siður hinnar brezku stjórnar, að
láta ekkert spyrjast frá sér, hvar
og hvenær þýzkum kafþátum er|
grandað, þartil nú nýlega, að hún
lýsti því, að 42 þýzkir kafbátar
hefðu eyðilagðir verið af brezkra
manna völdum, auk þeirra, sem
Frakkar og ítalir hafa séð fyrir.
Síðan eru liðnar þrjár vikur ogj
nokkrir kafnökkvar eru áreiðan-j
lega úr sögunni síðan. Ekki vita j
menn með fullri vissu hverjum
ráðum er beitt, til að veiða þessa
skæðu hrökkála undirdjúpsins, en
talið er að í gildrur sé það gert.
Stálnet eru lögð í sjóinn, þarsem
kafbúta er von, kænlega gerð, og
ef þeir renna á þau, geta þeir ekki
losnað, svo haganlega eru stálnæt-
ur þessar útbúnar. Þ.essar stál-
gildrur munu víða vera í sjónum
umhverfis Bretland-s eyjar. En i
Ermarsundi er svo um búið með
einhverjum vélum, að þýzkir kaf-
bátar koma þar ekki nærri, svo að
ferðir mfilli Englands og meginlands
eru eins greiðar og hættulausar nú,
einsog á friðartímum. Kafbátar
sem þýzkir smíða nú, eru dávæn
skip, miklu stærri en áður tíðk-
uðust, og tvennar skipshafnir á
hverjum, svo að hægt sé að kenna
sem flestum meðferð þessara dýru
og flóknu drápsvéla. Manntjón og
eignatjón, sem þýzkum stafar af
missi kafbáta sinna er stórmikið,
og svo lítið vinna þeir á- um að
gera verzlun Breta méin, að tæp-
lega nemur 2 per cent af verzlun-
arflota þeirra, er þýzkir hafa
grandað. Nú er þeir liafa undir-
gengist að halda víking sinni inn-
an vissra takmarka, mun ennþá
minna vinnast á um hemað af
hendi neðansjávar flota þeirra.
Stórbruni í borginni.
Eldur kom upp í vöruhúsi
Bright & Johnson á Bannatyne
East, að kveldi verkamannadags-
ins og varð það afarmikið bál, því
að mikið af eldfimu efni var á
efsta lofti hússins. Eldliðar um
hundrað talsins gengu rösklega að
því að kæfa hann og komu\ há-
spennu-dælur borgarinnar að góðu
haldi til þess. Þær sendu margar
bunur af . Rauðárvatni í bálið,
fjögra þml. gildar og svo kraft-
miklar að bæði múrsteinar og
gluggakistur fuku fyrir þeim.
Mörg félög geymdu meira og
minna af vömm í húsi þessu og
er skaði þeirra allra til samans
metinn 135 þús. dalir. Um upp-
tök eldsins er ókunnugt, því að
verkafólk hafði ekki komið þar frá
því á laugardag.
Keisari tekur herstjórn.
Stóru fari grandað.
Þýzkur tundurnökkvi brýtur stór-
skip á leið til Canada og veld-
ur manntjóni.
Stórskipinu Hesperian, á leið frá
Liverpool til Canada var grandað
með tundurskoti fyrir vestan Ir-
land um helgina. Það hafði 350
farþega og 300 háseta innanborðs
og bjargaðist alt það fólk nema
rúmir tvennir tugir, í skip, sem
að komu áður en það sökk til
fulls. Þetta skeði í rökkurbyrjun
á sunnudagskveld og sáu því fáir
tundurskeytið á leiðinni til skips-
ins, en sannað er þó, að með því
móti var skipinu sökt. Fólkið
leitaði i bátana, en sutraim þeirra
hvolfdi, einsog verða vill, er skip-
inu hallar og bátum verður ekkí
rent beint niður á sjóinn, og með
því móti munu einhverjir hafa
mist lífið. Þess er getið um einn
mann, er heimfaraleyfi hafði
hingað af áverkiim, að hann kom
| konu sinni og barni fyrir í bát, eu
Nikulás Rússakeisari hefir tekið
við æztu völdum yfir stjóm herliðs
síns og er kominn tU vigvallar að j er honum hvolfdi, steypti hann sér
sögn. Ekki vita menn, hvortj úíbyröi8 og fékk borgið báðum á
Nikulás hertogi hefir verð settur
algerlega til síðu, þvi að engin
frétt er um þessa ráðabreytni
komin, neraa símskeyti frá keis-
aranum til forseta Frakklands, er
sundi, og komið i aðra báta, var
þó farlama af sárafari. Skipið.
var, sem sagt á vesturleið og hafði
engan forboðinn varning innan-
ferðs, aðeins fólk í löglegum er~
indum. Er þvi hér um ac6 ræða
tuttlega ský-rir frá þessu, ásamti f rekju þýzkra til hervirkja, gagn
þeim ásetningi keisara, að berjast, shteða þehn loforðum er sendiherra
til þrautar og öruggri trú hans á, J I,e'rra hafði hátíðlega gefið Banda-
að sigur vinnist áður lýkur. Þessu j r'hja stjórn. Skipið héízt á floti
fylgdi skömmu síðar, að þýzkum ^en&' en sökk að lokum, áður
veitti nú erfitt, og mundi sókn f°&að til lands. Noklkurt
fólk frá Winnipeg var í þvi, og
komst það alt af.
þeirra linast, með þvi að Rússa-
her hafí fengið nýjan hug og dug
og vænkist hagur hans á hverri
stundu.
Það virðist auðsætt, af fréttum
frá. Berlin, að Rússar haldi ekki
undan orustulaust, heldur verjist
hraustlega á ýmsum stöðum, svo
að þýzkir vinna lítið á, nema með
ógurlegu mannfalli. Eru ýmsir
Þjótandi skotbákn.
I síðastliðinn hálfan mánuð 'hafa
fallbyssumar dunað á Frakklandi,
fjalla og 'fjöru milli. Sú skothríð
hefir verið ákafari og ólmari en
, , ,. , , , nokkru sinni fyr, og þykjast menn
staðir nefndir, þarsem bloðugir \ „ ..
, , • JvarIa knniia að segja, a hvað vita
bardagar standa, er þyzktr segjast' ____ • „ , „ ,. , .
b ’ nj sj 1 mum, nema venð se að undirbua
áhlaup á hin ramgirtu þýzku vígi,
sem jafnt og þétt hafa fengið liðs-
auka í seinni tíð. Þess má þó
geta til, að þýzkir seu deigari til
, , „ , . , áhlaupa er svo agaleg sprengi-
vetrarsetu og umbunaðar, borgin , •, , , „ , , , . , r ,
s„ , ’ : b kulna hrið dynur a þeim an afláts.
er stor og a„*„g þar er hersk,pa-i s- „„ , ,!|r af ihlall ,m „
L*T ? f , T'T^ihvorir tveggja gera á s„m„m s,ÖS-
sjolei* (ra Þyzkalan<l,. En R„ss- um ^ta* þar miki6 „j
hafa vinninginn í, sem líklegt ex,
þarsem þeir hafa gnægð vopna og
sleotfæra. Fyrir sunnan Riga eru
sviftingarnar harðastar. Borg
þeirri vilja þýzkir ólnfir ná, til
ar vita hvað við liggur og leggja
sig fast fram til mótstöðu. Stend-
fall, er skotgrafir og vigf komast
á ýmsra vald mörgum sinnum á
ur þar í járnum, að hvorugir vinna , „ •• , .
,. ,.x__‘__x L , j viku. Þær sogur syna mikmn
hetjuhug og hreysti á báða bóga.
á öörum og stendur þar hvíldar-1
laus orrahríð á hinum sama víg-
velli, einn sólarhringinn eftir ann-
an. Sagt er, að þýzkir haldi uppi
stöðugum árásum á hafnarmynnið
— Þýzkir njósnarar eru furðu
djarfir í Belgiu, einkum á vig-
velli Breta. Einu sinni komu þrír
og verði nokkuð ágengt. Þarmeð^menn í bifreið, tveir i frönskum
fylgir að Pétursborgar menn hugsíi i foringja einkennisbúningi, en sá
til að verja þá borg og hafi mik-j þriðji í þýzkum .einkennisfötum.
inn viðbúnað til varna, ef til skyldi j Skyldi svo líta út sem hann væri
þurfa að taka. En yfirleitt eru ^ hertekinn. Þeir voru því nær
fréttir faorðar um þann ferlega og komnir til aðalstöðva er upp kom-
hrilrcIpcrn VtíMarl^íL- A ooefm __________:i _ t .
hrikalega hildarleik, sem á eystra
vígvelli fer fram.
ust svikin. Ekki er þess getið,
hvern dóm þeir fengu.