Lögberg


Lögberg - 09.09.1915, Qupperneq 8

Lögberg - 09.09.1915, Qupperneq 8
8 LtHyBEllG, FIMTUDAGINN 9. SEPTEMBEE 1915 Blue Ribbon KAFFI og Bökunarduft Biðjið um Blue Ribbon tegund og verið vissir um að kaupmaður- inn gefi yður það. Öll Blue Rib- bon vara er ábyrgst að líki. Ef ekki þá máttu skila þeim. Blue Ribbon kaffi og bökunarduft er það bezta sem selt er annars væri ekki hægt að ábyrgjast það. Or bænum BAZAR heldur kvenfélag Fyrsta lút. saínaöar þriöjudag og miðviku- dag, 5. og 6. Október. Kvenfélagiö biður alt safnaðarfólk aðstoöar til þess að bazarinn megi hepnast sem bezt. Thorleifur Hansson frá Álftavatns- bygð kom snögga ferð til bæjarins í vikunni. Mr. Hansson býr á landi, er Mr. H. Halldórsson, Winnipeg, á þar úti. — Hann lét vel af öllu úr sinni bygð. Þorbergur , Þorvarðsson dó þann 6. Sept. á Almenna spítalanum hér í Winnipeg eftir þriggja mánaða legu. Jarðarförin fer fram frá Fyrstu lút. kirkju á fimtudaginn kl. 2. Til frekari æfinga fóru austur í land i þessari viku 30 hermanna sveit, er á hjólum fara til sendiferða og njósna. í þeirri sv'eit er einn ís- lenzkur maður, Ragnar Johnson, son- ur Mrs. Helgu Bjarnason að Narr- ows, Man., af fyrra hjónabandi henn- ar. Ragnar hefir unnið hjá Ormsby félaginu um mörg ár. Nýtt vikublað er byrjað að koma út á Akureyri, er nefnist "íslend- ingur", undir ritstjórn Ingimar Ey- dals og Sigurðar dýralæknis. Það flytur nákvæmar fréttir af öllu land- inu, en einkum af Norðurlandi. Kost- ar $1.25 um árið og fæst í bókverzl- un Bardals. Sagt er af kunnugum, að það sé eina blaðið, sem nú kem- ur út á norðurlandi. Frú Lára Bjarnason ætlaði að leggja af stað fyrir nokkru frá Kaupmnnnahöfn, á leiðis hingað, en er til kom var heimtað af henni að sýna vegabréf, og má af þvl ráða, hve nákvæmt eftirlit er haft með ferðafólki, jafnvel i hlutlausum lönd- um í Evrópu. Frúin tefst við það i tvær þrjár vikur, meðan verið er að koma til hennar þeim skjölum sem á þarf að halda. Eg hefi nú nægar byrgðir af ‘granite” legsteintmum “góðu”, stöðugt við hendina handa öllum sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá, sem hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina í sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur. Yðar einlægur, A. S. Bardal. í Bardals Block finnið þér mig, enn á ný reiðubúinn til að gera alt gull og úrsmíði eins vel og ódýrt og hægt er. Gömlu viðskiftavinir mínir ættu ekki að gleyma þessu. G. Thomas. Til sölu 80 ekrur af góðu landi skamt frá Gimli. Upplýsingar að Lögbergi hjá ritstjóra. Nú er aftur byrjað á byggingu þinghússins fyrir fylkisstjórnina. Hefir stjórnin gert bráðabirgða- samninga um það verk við McDiar- mid félagið hér í borg. Stendur fé- lag þetta fyrir verkinu það sem eftir er sumars, en með vorinu verður kallað eftir nýjum tilboðum um lúkningu byggingarinnar. Hinn 4. þ.m. andaðist á Almenna spítalanum, eftir stutta legu, Pálmi Einarsson, hálfbróðir þeirra Kristj- ánssona, Aðalsteins og Friðriks, korn ungur maður ókvæntur. Þann 5. þ.m. andaðist Sigurleif Pétursdóttir Erlendsson að heirriili Péturs sonar síns 692 Banning St., eftir stutta legu; hin framliðna var 73 ára gömul, ættuð úr Suður Múla- sýslu. Takið eftir auglýsingunni um sjón- leik á öðrum stað í blaðinu. Ágóðan- um verður varið til að hjálpa bág- stöddum. Sækið leikinn og styrkið með því gott málefni. Leikurinn fer fram í Goqdtemplarahúsinu og verð- ur sýndur 16. þ.m. Séra Friðrik Friðriksson hefir um Ágústmánuð þjónað Skjaldborgar- söfnuði í fjarveru séra Rúnólfs Mar- teinssonar, sem verið hefir að ferð- ase um bygðir íslendinga með erindi fyrir Jóns Bjarnasonar skóla. Séra Friðrik fór í gær vestur til Argyle og dvelur þar um vikutíma og gerir ráð fyrir að standa lítið eitt við hér í Winnipeg áður hann leggur af stað áleiðis til íslands um Dakota og sem leið liggur um New York. Nú er langt.komið að gera við og breyta hinu nýja heimili Jóns Bjarna- sonar skóla á Beverley stræti, mun verða fullgert um miðjan mánuðinn. Það verður mjög vistlegt fyrir skól- ann, kenslustofur bjartar og rúmgóð- ar og mörg aukaherbergi til þæginda fyrir kennara og nemendur. Skrif- stofa skólastjóra verður þar i einu herberginu, í öðru geymist bókasafn kirkjufélagsins; þá er og sérstakt herbergi er stúlkur þær er á skólann ganga get geymt föt sín í og haft til annara athafna sinna, og annað her- bergi er ætlað piltum sérstaklega. Gufuhitun er í byggingunni og önnur nýmóðins þægindi. Alt þetta ætti að mæla með skólanum við ungt náms- fólk vort, sem á siíkan skóla ætlar að ganga. Bygging ein býsna stór stendur á horni Portge ave. og Sherbrooke St. hér í borg, sem um mörg ár var höfð til afnota fyrir daufa og málhalta unglinga o gbörn. Var skóli haldinn þar fyrir þetta fólk að búa það undir lífstarf þess. í fyrra var flutt úr húsi þessu og v'estur í hin forna bún- aðarskóla á suðurbakka Assiniboine- ár, sem er stærri og þótti hentugri að ýmsu leyti. Síðan hefir bygging- in gamla á Portage Ave verið notuð til ýmsra hluta. er fylkisstjórnin hef- ir haft með höndum, og höfðu her- fylkingar þar bækistöð sína um hríð. Nú hefir hin nýja fylkisstjórn látið endurbæta og hreinsa þessa byggingu og ætlar að lát háskólaráðiS hafa þar skrifstofur sínar í þeim væng er að Sherbrooke stræti liggur. í hinum vestari væng er gert ráð fyrir að dómari sá er fjallar um misgerðir unglinga f'Juvenile CourtJ hafi rétt- arhöld sín, en áður hefir sá dómur haft einkar óþægileg og ónóg heim- kynni. Vinnukona óskast í góða íslenzka vist hér í borginni nú þegar. Ráðs- maður Lögbergs vísar á. Meðal íþrótta, sem reyndar voru hér á verkamannadaginn var þriggja mílna kapphlaup, er íslenzkur maður vann, A. O. Magnússon, og það svo greinilega, að hann var langt á und- an öðrum. Steikjandi sólarhiti var og varð flestum svo ervitt um hlaup- in að þeir hættu i miðju kafi, að eins þrír fyrir utan Mgnússon, hlupu skeiðið á enda. Tími: 16.25. Þinghúsbyggingin. Ráðgjafi opinberra verka í fylkinu hefir lýst því, að byggingu þinghúss- ins verði haldið áfram með kappi það sem eftir er sumars, og hefir falið McDiarmid félaginu að vinna að henni fyrir fimm percent þóknun umfram kostnað. í ráði er að koma norðurvæng hússins, sem lengst er á veg kominn, undir þak, áður en hörk- ur leggjast að, svö að starfað verði þar að innivinnu í vetur. Verkinu er kappsamlega haldið áfram, ekki sizt í því skyni, að veita verkmönnum at- vinnu í því vinnuleysi sem hér er nú meðal þeirra, sem hafa atvinnu af húsabyggingum. Hvaðanæva. — Tyrkir hafa ótrúlega grimd í frammi við Armeniumenn. í einu þorpi voru þúsund menn, konur og böm lokuð inni í timburhúsum og húsin niður brend tii ösku og komst auðvitað enginn lífs af. Úr öðtru stóru þorpi komust að- eins þrjátíu og sex manneskjur lífs af úr grimdarklóm þeirra. Tyrkir hafa og það að Ieik, að binda saman menn og konur og kasta þeim í vötn og ár. — Sjö nafntogaðir menn hafa verið dæmdir til dauða í Vínar- borg fyrir landráð. Meðal þeirra voru tveir læknar og fréttaritari blaðsins Novoe Vrernoa, sem út er gefið í Pétursborg. SJÓNLEIKUR og D A N S fer fram í GOODTEMPLARA-HÚSINU á Sargent Ave- FIMTUDAGSKVELDIÐ 16. SEPT. NEI-IÐ er leikur sem allir þekkja og öllum geÖjast að. Það verður leikið af œfð- um leikendum. Ennfremur verða þar ræður, einsöngvar og margt fleira. Agóðinn til þess að hjálpa veiku fólki. Dans á eftir AÐGANGUR 25c. BYRJAR KL. 8 síðd. Dánarfregn Hrein, góð herbergi, uppbúin og óuppbúin, eru til leigu að 498 Victor stræti. Húsið er vel hreint og hlýtt. Leigan rýmileg. Upplýsingar fást í húsinu eða með telefón Sherbrooke 2294. Komið og lítið á herbergin. Herbergi til leigu að 724 Beverlev stræti. óuppbúið, stórt og rúmgott, fyrir væga borgun. Uppbúið ex óskast. Það er í næsta húsi v'iö Jóns Bjarnasonar skóla. Gamalmenna-heimilið. Um mánaðamótin síðustu flutti kirkjufélagið líknarstofnun sína frá bráðabirgða heimilinu i Winni- peg til hins fasta bústaðar á Gimli, Svo sem kunnugt er orðið, keypti kirkjufélagið hús all-mikið á Gimli, sem fyrirhugað hafði verið sem gistihús (hótel), en var al- drei til þess notað. Nú hefir hús- ið verið stórum endurbætt af kirkjufélaginu, bygður undir það steinsteyju-grunnur og kjallari, sett í það beztu hitunarfæri (Tnið- hitun með gufuj, bygðir Við það pallar og svalir reistar; einnig hef- ir það verið málað innani og fleiri umbætur gerðar, sem kostað hefir ærið fé. Húsið er prýðilegt orðið og notalegt. Sunnudaginn þann, er gamal- mennin voru síðastan hér í borginni, 29. ágúst, var þeim ekið í bifreiðum til kirkju. Var sú guðsþjónusta þdim sérstaklega helguð og neyttu þau þar altaris- sakramentis. Á mánudaginn fylgdu þeim margir til jámbrauta- stöðva og nokkrir alla leið að Gimli. Tólf vom gamalmennin sem héðan fóru og 1 bættíist við í Selkirk á leiðinni. Nú er stjórn- amefndin að íhuga umsóknir þeirra, sem sókt hafa um inntöku, en beðið hafa vegna þess, hversu takmarkað húsrúmið hefir verið hingað til. Búizt er við að vist- menn verði milli 20 og 30 í vetur. Þær Elenóra Júlíus og Ásdís Hin- riksson veita heimilinu forstöðu fyrst um sinn. Fyrirtæki þetta hefir að mak- legleikum hlotið almenna hylli og ber nú öllum ærlegum Islending- um að styðja það drengilega. Stórviðri veldur skemdum. Á fimtudagsnóttina gerði stór- viðri mikið með regni og hagli er olli æði miklum skemdum til og frá um fylkið. Veðrið virðist hafa verið mest á fimm mílna svæði í vesturhluta fylkisins og valdið þar miklu tjóni á ökrum og húsum. Það korn sem óslegið var, bældist og það sem í drýli var, fauk víða vega. Útihús brotnuðu eða færðust úr stað, bæði fjós og hlöður. Á tveim stöðum tók veðrið jámbrautarvagna feykti þeim af teinum. Sumir bændur mistu nálega alt óslegið kom, en sumir helming, á stöku stað lagði hagl alt óslegið korn að jörðu. * í bæjum brotnuðu búðarglugg. ar. Hér í bænum laust eldingu niður í hús í norðurbænum og brann það og tvö önnur er hjá því stóðu. Þrumurnar sem veðrinu fylgdu voru sumstaðar meiri en menn muna til. ,.Eg lœt vera þó hann Júdas vanti” Fátt var komið til kirkjunnar, ekki við nema ellefu. Þótti varla mesufært, og miðaði einhver við það að næðist ekki einu sinni postula- talan. En prestur skar úr og sagði: “Það er bezt að messa. Eg læt vera, þó hann Júdas vanti.” Presturinn var séra Gísli Skúlason, þá á Stóra-Núpi.—N. Kbll. — Manntal hefir nýlega verið tekið í North Dakota. Telst svo til að íbúatalarx sé tæpar 632,000 eða rúmum 54,000 hærri en hún var fyrir fimm árum. Ekkjan Gróa Snæbjarnardóttir, ætt- uð úr Skorradal í Borgarfjarðar- sýslu á Islandi, andaðist eftir stutta banalegu, nær því 82 ára gömul, að heimili sonar síns, hr. Sn. Anderson, 1517 Main St.. hér í Winnipeg, þann 10. Ágúst síðastliðinn. Gróa sál. flutti hingað vestur til barna sinna (sem hingað voru komin á undan hennij fyrir 18 árum, og dvaldi hún síðustu árin hjá áðurnefndum syni sínum og konu hans. Gróa sál. var myndar og merkiskona. Blaðið “Isa- fold” er vinsamlega beðið að birta dánarfregn þessa, systkinum og vin- um hinnar látnu heima á ættjörðinni. B. M. 'RED CROSS. Áður auglýst............$277.45 S. S. Hofteig, Sr., Cottonwood, Minn................... $5.00 Samtals .., $282.45 T. E. Thorsteinsson, féh. ísl. nefndarinnar. Frá Wild Oak, Man., er ritað 1. þ.m.,: “Þann 29. Júlí s.l. andaðist hér í bygð merkisbóndinn Friðfinn- ur Þorkelsson, eftir langvarandi van- heilsu; Þingeyingur að kyni. Hann var jarðaður 1. Ágúst; jarðarförin mjög fjölmenn. Friðfinns verður nánar minst í blöðunum síðar. — Tíðin hagstæð í sumar; heyskapur góður, því nýting hefir verið ágæt. þó grasvöxtur hafi verið tæplega í meðallagi. — Sláttur á ökrum langt kominn; ef nýting verður góð lítur út fyrir góða kornuppskeru, einkum á hveiti. — í gærdag var byrjað að þreskja norður hér. — Heilbrigði al- menn.” Andlátsfregn. Hinn 28. Júlí síðastl. andaðist á almenna sjúþrahælinu í Portage la Prairie, gamalmennið Jósef Frí- mann. Jósef var fæddur 27. Júní 1824 áGeitaskarði í Húnavatnssýslu. Foreldrar hans: Jósef Guðmundsson frá Móbergi, og Ingibjög Sveinsdótt- ir frá Ýtri Löngumýri i Blönduhlíð. Fyrir fjörutíu og einu ári síðan fór Jósef sál. vestur um haf. Var mest- an hluta æfi sinnar eftir það á Gimli, þar til 11. Maí 1912 að han nfór á áðunefnt hæli, þá mjög farinn að heilsu sakir ellilasleika. Jósef heitinn vann hér mikið að smíðum, var trésmiður góður; í dag- fari var hann jafnan glaður og óá- leitinn, gefinn fyrir fróðleik og las talsvert hérlend rit Ein systir Jósefs er á lífi heima á íslandi, Ingibjörg að nafni. Frœndfólk hins lánta. Þakklœti Hérmeð þakkar Kvenr. kvenfélag- ið “Sigurvon”, Gimli, öllum þeim, er á einhvern hátt aðstoðuðu það við samkomu, er það gekst fyrir að hald- j in væri á Gimli föstudagskveldið 3. Sept. síðastl., til arðs fyrir Red Cross félagið. — Alls komu inn á samkomunni $93.25. Kostnaður nam að eins $1.65 því allir gáfu hjálp sína og lánuðu án endurgjalds þá muni er með þurfti. Hreinn ágóði sem afhent ur verður C. F. Roland, Industrial Bureau, Winnipeg, sem er móttöku- maður Red Cross hjálparsjóðsins, er I því $91.60. — Þökk é öllum, er unnu að þessu og sóttu samkomuna. Oft er þörf en nú er nauðsyn. Djáknanefnd Fyrsta lút. safnaðar- ins er fjárþrota, en margir sem þurfa liknar með. Við höfum t>eðið séra Friðrik Frið- kisson að segja okkur sinar falleg- ustu sögur, og því hefir hann lofað. Svo við komum saman í kirkjunni á miðvikudaginn þ. 15. þ.m., kl. 8 e. h.. Það verða 2 eða 3 önnur val- in stykki á prógrami. Svo förum við öll niður í neðri salinn og drekkum frítt kaffi og röbbum saman um hvers okkar líkn- arstarf. Það v'erða tekin samskot fyrir líknarstarfið. Við vonum, að allir komi; já, allir, allir, hvort þeir hafa skildinga eða ekki. A. S. Bardal, forseti nefndarinnar. — Eldur kom upp í verksmiðju Exseí Carbon Paper fél" Montreal og olii $15,0 Einn úr slökkviliðinu %.. háum palli og mei ogl * Oskast strax. Hjón til vinnu á sveitaheim- ili í haust og vetur. Helzt barnlaus. Vanalegt kaup er í boði, ferðakostnaður lagður fram ef vill. H. J. Jósefsson, Elfros, Sask. Yfirlýsing. Eg vil hér með opinberlegu þakka herra kandídat Þorsteini Björnssyni fyrir þá miklu hjálp, 68 dollara í peningum, sem hann safnaði og færði mér á síðastliðmjm vetri. — Það eru auk þess nokkrar manneskjur, sem eg verð sérstaklega að geta með innilegu þakklæti. Jón Eggertsson í Winnipeg safnaði og gaf mannin- um mínum sáluga rúma 30 dollara meðan hann lá banaleguna. Það er að vísu langt um liðið, en þó ekki gleymt; en vegna ýmissra kringumstæðna hefir dregist að geta þess fyr. Árni Eggertsson hefir gef- ið mér alls 10 dollara. Kona ein hér í þorpinu, sem ekki vill láta nafns síns getið hefir gefið mér 5 dollara í peningum og vagnhleðslu af eldi- við o. fl. Hún hefir verið mér sú sannasta vinkona, sem eg get hugsað mér; skilur og þekkir mínar tilfinn- ingar betur en nokkur annar, sem eg hefi kynst, næst mínum framliðna ástvin. Enn fremur hafa Austdals- hjónin hér í þorpinu reynst mér ein- llægir vinir; einnig gefið mér og hjálpað á annan hátt. 'En einlæga vini tel eg alla þá, sem halda uppi vörn fyrir einstæðingum afheyris, þá sumir í heiminum beita mannorðs- raus skeytum sinum að honum. —■ En hann, sem eg trúi á, minn elskulegi frelsari, sem þekkir hag ekkna og munaðarleysingja, hann bið eg láta sína frelsandi og fullkomnustu bless- un þeim öllum í skaut falla, sem miskunnarverkin hafa gert á mér og mínum. Og eg veit sannarlega, að sá, sem ekki lætur einn vatnsdrykk ó- launaðan, hann endurgeldur Mr. Björnssyni og þeim öðrum, sem mér hafa líknað, þegar þeim mest á ligg- ur. Selkirk, í Ágúst 1915. Sigríðnr M. Sigurðsson. Lot til sölu á Gimli á góðum stað í bænum fyrir gott v'erð og með væg- um borgunarskilmálum. Finnið Jón Einarsson, 539 Victor stræti, Winnipeg. Leikhúsin. WALKER. Walker leikhúsið v'ar aftur opnati á mánudaginn var eítir sumarhvild- ina og var fyrst sýndur leikurinn “A Pair of Sixes”; hann verður leikinn alla vikuna með “matinees” á miðv.- dag og laugardag eins og venja er til. Næstu viku verða kvikmyndtr sýndar i leikhúsinu, mjög langttr leikur “The Spoilers.” Margir munu kannast við bókina með því nafni eftir Rex Beach og missir sagan ekk- ert af áhrifum sínum þótt hú sé í myndum sýnd. Helztu hlutverkin leika Mr. William Farnum og Miss Kathlyn Williams, sem allir sem leik- hús sækja kannast vel við. Miss Williams hefir síðastliðin þrjú ár leikið aðal hlutverkin í öllum helztu kvikmyndum, sem komið hafa frá Seliz félaginu. “The Spoilers” er saga frá Alaska, og allir sem ein- hvern grun hafa um hina gyltu hnjúka þar nyrðra, fagna henni. — Myndirnar verða sýndar alla næstu viku frá 13. Sept. Tvær sýningar daglega kl. 2.30 og 8.30. DOMINION. “The House.of a Thousand Can- dles”, sagan eftir Meredith Nichol- son um stórbýlið við Northern Indi- ana vatnið, verður leikin í Domin- ion leikhúsinu næstu viku. Margir munu hafa lesið söguna og þeir munu hrósa happi að fá að sjá helztu at- burðina, sem frá er sagt í sögunni, sýnda á leiksviði, því þá verða at- burðirnir mikltt. skýrari og ljósari. Geta má þess, að leikurinn er sér- staklega valinn vegna þess, að í hlut- verki “Bates” nýtur Mr. Camp svo ágætlega leikhæfileika sinna. Winni- pegbúar kannast við Mr. Camp og vita hve góðum leikhæfileikum hann er gæddur og munu geta ímyndað sér hve vel honum muni takast að leika “Bates”. PANTAGES. Bothwell Browne, hinn vel þekti gamanleikasmiður sýnir sig í Pant- ages næstu viku i “The Geen Nemis’ sem sagt er að sé einhver bezti af leikjum hans.. Þeir sem leikhúsið sækja, munu minnast Mr. Brownes síðan hann var hér á síðastliðnum vetri. Hann fullnægir kröfum hinna vandlátustu áhorfenda. Eitthvert merkilegasta atriðið í leiknum er dans árstíðanna fjögra. Margir aðr- ir ágætir Ieikir verða einnig sýndir svo sem “Night at the Club”, “A Bunch of Squirrel Food” o. fl. ORPHEUM Haustsýningarnar eru nú byrjaðar í Orpheum leikhúsinu og er leikið fyrir fullu húsi á hverjum degi. Leikendumir eru allir nafntogaðir í sinni grein bæði í Evrópu og Banda- rikjunum og Asiu. Alt það bezta er •~>rpheum. Það hefir beztu í- búktalaraó, söngvara, hin fræga ameríska 'iljóðfæramenn. Mrs. til Winnipeg í næsta WILKINSON & ELLIS Matvöru og Kjötsalar Horni Bannatyne og Isabel St. Sérstök kjörkaup á hverjum Föstu- og Laugardegi. Sím- ið oss eftir kjörkaupum á hænsum, öndum, tyrkjum, smjöri og eggjum. GŒÐA VÖRUR FYRIR LITLA PENINGA Tals. Garry 788 I •f ♦ -+ * + V 4 -t- t ♦ •í- +- + M W. H. Graham KLÆDSKERI Alt verk ábyrgst. Síðasta tízka m\ I I I 1 +- + 4 t + -♦ 4* *■ 4 4 i t 4« Slx 190 James St. Winnipeg Tals. M. 3076 ITALS. G. 2252 Royal Oak Hotel GHAS, GUSTAFSON, EiganDi Eina norrœna Kótelið í bænum. Gisting og máltíðir $1.50 á dag Sérstakar máltíðir 35c. Sérstakir skilmálar fyrir stöðuga gesti 281-283 Market St., Winnipeg SENDISVEINAK. pegar þér kaupiS einhvern hlut eSa pantiS meSöl, þð. er ba8 ekki nauSsyn- legt fyrir y'Sur a8 biöa ‘þangað til búi5 er a8 afgrei8a pöntunina, me8 því a8 vér sendum alla hluti, hverju nafni sem nefnast, heim til kaupanda, án Eruö þér reiöubúnir aö deyja? ef ekki, þá finnið E. H. Williams Insuranoe Agent «06 Lindsay Block Phone Maln 2075 Emboðsmaðnr fyrir: The Mut- ual Life of Canada; The Dominion of Canada Guar. Accident Co.; og og einnig fyrir eldsábyrg8arfélög, Plate Glass, BifreiBar, Burglary og Bonds. Viðgerðum sér.takur gaumur gefinn Alt verk ábyrgst í 12 mánuði R DAVÍS ^rsn,iöi"> ló. L'/A V ICJ, GullsniiÖur Aður hjá D. R. Dingwall, Ltd. 874 Sherbrook St., Winnipeg Nálægt William Ave. tafar og án aukakostnaðar. Vér vilj- um leggja kurteisi við hina mestu rá8vendni ekki a8eins i lyfjaverzlun inni, heldur i öllu, smáu og stóru, er ver^iun vorri vi5kemur. FRANKWH ALEY ílrfgfription Uruggtðt Phone Sheebr. 258 og 1130 Horni Sargent og Agnes St. Meðala ráðlegging. SANOL LÆKNAR nýrna og blöSru sjúkdóma. Ver8 $1.00.— Sanol Anti-diabetes læknar þvag sjúkdóma. Sanol Blood Build- er enduroærir blóSið. Sanol dys- pepsia salt bætir meltinguna.— Rá81eggingar ókeypis. Læknis- skoðun ef um er beðið. — Sanol fón Sher. 4029. 465 Portage ave. C. H. DIXON, Lögfræðingur, Notary Public. 508 Portage Ave., W.pg Tals. Sherbr. 4111 Lögfræðislegar ráðleggingar gefnar fyrir 50c., með pósti fyrir$I.00, Sakamálum sérstakur gaumur gefinn Lán — Renta — Innheimtun Til Leigu Sex herbergja hús áToronto stræti nálœgt Sargent Ave. Verður laust I6. Sept., með gasi og ljósum og (Hot Wat- er Heating) fyrir $15.00 um mánuðinn. Og 1 1 herberg- ja hús á Alverstone Stræti, fæst að öllu eða að parti með afar vægum skilmálum yfir vetrar mánuðina. Listhaf- endur snúi sér til Matreiðslu-stór úr járni og stáli Nýjar—á öllu ver51. $1.00 við nióttöku og $1.00 á viku Saumavélar, brúkaðar og nýjar; mjög auSveldir borgunarskilmálar. Allar vi8ger8ir mjög fljótt og vel af hendi leystar. pér geti8 nota8 bif- rei8 vora. Phone Garry 821. J. E. BRYANS, 531 Sargent Ave., Wlnnlpeg. H. EMERY, liornl Notre Darae og GerUe Sts. TALS. GARRY 48 ÆtUS þér a8 flytja y8ur? Ef y8ur er ant um aB húsbúna8ur y8ar skemmist ekki í flutningn- um, þá finni8 oss. Vér leggjum sérstaklega stund á þá i8na8ar- grein og ábyrgjumst að þér ver5- ið ánæg8. Kol og vi8ur selt lægsta ver8i. Baggage and Express S. Vilhjálmssonar 637 ALVERSTONE ST. Verðlisti á alifuglum. Turkeys Bronzé, 2 hens and gobler $7.00 or $5.00 a pair; Tolouse Geese $5.00 a pair; Bouine Ducks, 2 ducks and drake $3 or $1 ea. S.C. Rodge Is- land Reds or Plymouth Rock cockrels $2, or $5 for three to one address. Pullets $1 each of either bird. Guar- anteed pure bred and 1915 birds. — Sold by Mrs. George A. Poyner, Box 517 Souris, Manitoba, Can. mánuði og sýnir fjórða þáttinn úr Zaza. Einnig kemur Caroline White innan skamms. Aðgöngugjald á mat- inees hefir verið fært niður. Aðg.- gjald á neðsta gólfi er 25c. en uppi á lofti 15c. Konur ættu að nota sér þetta og skreppa inn í leikhúsið er þær gera innkaup. Leikhúsið er svalt og þægilegt í eftirmiðdagshitanumL Komið og hafið sem flesta af fjöl- skyldunni með yður. . KENNARA VANTAR við Pine Valley skóla, Distr. No. 1168, fyr- ir sex mánuði. Kenslutími er frá 15. október 1915 til 15. apríl 1916. Kennarinn verður að hafa 2ndl Class Professional Certificate. Til- boðum er skýra frá æfingu og kaupi er óskað er eftir, verður veitt móttaka af undirrituðum til 15. september 1915. B. Stephanson, Sec. Treas.. . Piney, Man.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.