Lögberg - 17.02.1916, Side 1
Þetta pláss í blaðinu
er til sölu.
Vér viljum kaupa
allskonar brúkaðar skólabækur, bæSi fyrir barna-
skóla og alla hærri skóla. Hæsta verS borgaS fyrir
þær. Einnig seljum vér eSa skiftum viS ySur A
öllum öSrum bókum, gömlum sem nýjum.
“Ye Olde Book Shop”, 253 Notre Dame Ave.
Gegnt Grace Church. Tals. G. 3118
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FfMTUDAGINN 17. FEBRÚAR 1916
NÚMER 7
ÍSLENZKIR ATKVÆÐAMENN
Ásmundur P. Jóhannsson
Hann er fæddur 5. júlí 1875 á Haugi í Miðfirði í Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans voru Jóhann Ásmundssón bóndi þar og Guð-
rún Gunnlaugsdóttir, seinni kona hans. Var Jóhann mesti merk-
isbóndi og bænda frömuður. Ásmundur ólst upp hjá foreldrum
sínum þangað til hann fór að læra trésmíði; var hann þá fyrir
innan tvítugt.
Hann kom vestur um haf 2. ágúst 1900, og settíst að hér í
Winnipeg. Byrjaði hann tafarlaust á smíðavinnu, og eftir stutt-
an tíma tók hann að stunda samnjngsvinnu og byggingar fyrir
sjálfan sig. Hefir hann bygt hér fjölda húsa og er eigandi þriggja
stórhýsa hér.
Ásmundur er frábærlega duglegur maður, sístarfandi, bæði
að sínum eigin högum og ýmsra félaga, því hann hefir tekið hér
mikinn þátt í opinberum málum. Hann hefir verið forseti con-
servative klúbbsins um langan tíma og einn hinna allra starfsöm-
ustu liðsmanna þess flokks meðal íslendinga. Auk þess hefir
hann staðið mjög framarlega í bindindisbaráttunni hér í landi.
Hann er meðíimur stúkunnar Skuld og hefir gegnt þar öllum
trúnaðarembættum, sem stúkan á til. Mun það ekki ofsögum
sagt að hann hafi bæði fjárhagslega og á annan hátt verið því
félagi traustari stoð en flestir aðrir.
Ásmundur er með auðugri íslendingum hér megin hafsins og
hefir hann þegar lagt fram 10,000 kr. í Eimskipafélag íslands.
Hann kvæntist 1899 og er kona hans Sigríður Jónasdóttir frá
Húki í Miðfirði; eiga þau saman þrjá sonu og heitir einn þeirra
Grettir — Grettir Ásmundsson.
40 skipum sökt.
Rússneskir fallbyssubátar söktu
40 seglskipum fyrir ;Tyrkjum í
Svartahafinu fyrra þriöjudag. Auk
þess brutu þeir sterkar víggiröing-
ar fyrir þeim meöfram Anatolian
ströndinni.
Samsœri?
"Það veröur aö koma í veg fyr-
lr aö haldið sé áfram að rannsaka
hyggingamar á búnaðarskólanum.”
“Já, en það er ómögulegt nema
með þvi móti að koma þessum ná-
unga, Oxton, fyrir kattarnef.”
Þetta er úttráttur úr talþráða-
samtali milli tveggja manna fyrir
tæpum tveimur vikum.
S. C. Oxton, sá sem mn er að
ræða, er sérstakur aðstoðarmaður
verkamálaráð-herrans'. Hefir hann
gefið margar merkilegar upplýs-
ingar í sambandi við öll þau ódæma
svik, sem upp hafa komist í opin-
berum byggingum í fylkinu. Hef-
ir starf hans sparað fylkinu afar-
miklar fjárupphæðir.
Oxton álítur að þessi hótun sé í
alvöru gerð, og er hann því var um
sig. Hann hefir neitað að gefa
nokkrar upplýsingar viðvikjandi
þvi, hverjir þessir menn hafi ver-
ið. En þetta sýnir hversu ant sum-
um er imr það að halda svikum
leyndum og meta meira að vernda
vissa pólitíska skálka en hag þjóð-
arinnar og fjárhirzlu rikisins.
Gjaldþrot banka.
Blöðin í Lundúnaborg fyltja þá
frétt eftir símfrétt frá Svisslandi
að tveir stórir bankar hafi orðið
gjaldþrota á Suður-Þýzkalandi.
Er sagt að skuldir annars þeirra
hafi verið um $125,000,000.
Ensku blöðin telja þetta fyrirboða
alvarlegra fjárþrota meðal Þjóð-
verja, og þannig til að flýta fyirr
stríðinu.
Percey Hagel
Flestir kannast við það nafn.
Hagel er einn hinna yngri lög-
manna Winnipeg bæjar, en frá-
bærielga vel að sér. Hann var einn
aðal lögmaðurinn í sambandi við
Krafchenko málið, en saga hans
þar endaði þannig að hann var
dæmdur í fangelsi. Fékk þetta svo
mikið á föður hans að hann veikt-
ist og dó. Percey Hag-el er kominn
aftur út úr fangelsinu og virðist
nú hugsa sér einlæglega að byrja
nýtt líf. Varð honum sérlega mik-
ið um föðurmissinn, þar sem hon-
um fanst hann geta kent sjálfum
sér um. Það var drykkjuskapur
og illur félagsskapur sem leiddi
hann inn í fangelsið.
Nú ætlar Hagel að segja sína
reynslu af áfenginu á nokkrum op-
inberum fundum og talar hann á
morgun (föstudaginn) í Good-
templara húsinu.
Rigg þingmaðurhleypur
á sig.
Þess var getið i LÖgbergi nýlega
að Rigg þingmaður hefði krafis.t
rannsóknar viðvíkjandi óreglu og
rangindum, sem hefðu átt sér stað
við kosningarnar í Norður-Wmni-
peg í fyrra sumar. Stjórnin varð
tafarlaust við tilmælum hans, en
þegar á átti að herða kom það í
ljós að kærurnar voru ekki á rök-
úm bygðar og dró hann þær til
baka jafnótt og þær voru rannsak-
aðar, hver fyrir sig. Rigg er dug-
andi maður og framgjarn, en hann
Virðist vera af fnamur og ósann-
gjarn og framúrskarandi liávaða-
maður. Hefir hann hlatið af
þessu hina mestu óvirðing og ætti
að biða með kærur sínar næst
þangað til hann hefði orðum sín-
um einhvern staö. v
Fylkisþingið.
, Fangelsin.
Eitt af aðalmálum þeim sem
Manitobastjómin hefir haft með
höndum er bœtt meðferð ö föngum
og breyting á fangelsum. Frá þvi
var nýlega skýrt í Lögbergi að skip-
aður hefði verið dómari til þess
að rannsaka það mál, og er skýrsla
hans svo glögg mynd af þeirri grimd
og þrælmensku sem ríkt hefir hér
að undanförnu að “hárin rísa jafn-
vel á höfði sköllóttra manna”, eins
og’Mark Twain einu sinni komst að
orði. Svartholið í gólfinu, þar sem
fárra feta klefi, gluggalaus og loft-
laus og allslaus var hafður fyrir
ákært fólk, það bundið þar við jám-
hæl með hlekkjunum og barið
með köðlum í hlekkjunum; öllu
þessu var lýst hér í blaðinu. Norris
stjórnin hefir unnið það þarfaverk
að afnema þessa svívirðingar klefa.
En þeir ættu að vera geymdir um
aldur og æfi og varðveittir sem
verðugt minnismark þeirrar djöful-
legn harðneskju sem ríkti í Mani-
toba fram á þennan tíma. Þótt
ekkert hefði unnist við stjómar-
skiftin annað en það að fá þessu
breytt, þá var það mikils virði.
Norrisstjórnin ætlar að rækta og
láta byggja stóran fangabúgarð þar
sem fangarnir séu tiltölulega frjáls-
ir og vel með þá farið með líku fyr-
irkomulagi og Tom L. Johnson í
Cleveland byrjaði og ritstjóri þessa
blaðs skýrði frá í Breiðablikum hér
um árið. Sú aðferð hefir nú verið
tekin upp allvíða og þar á meðal í
Ontario, og hepnast ágætelga.
Skólamálið.
Annað mál sem þingið hefir haft
til meðferðar er skólamálið. Það
er óefað mesta vandamál sem
stjórnin hefir um að fjalla, eins' og
tekið hefir verið fram í Lögbergi.
Samningur hafði verið gerður
við Frakka þegar í upphafi að mál
þeirra skyldi njóta þeirra réttinda
sem það hefir nú, en þá voru Frakk-
ar aðeins í Quebec. Síöar fluttust
þeir hingað vestur og varð þaÖ þá
að samningi milli Lauriers og
Greenways, sem var stjórnaríor-
maður í Manitoba, að Frakkar
skyldu í þessu tilliti njóta sama rétt-
ar hér í fylki og þar eystra. Það er [
ekki svo að skilja að þessi samning-
ur geti verið bindandi um aldur og
æfi, en á hinn bóginn þykir Frökk-
um það hart sem hér eru búsettir að
njóta ekki sama réttar og bræður
þeirra eystra. Auk þess er það
margra álit að Frakkar hafi hér
frekara tilkall til sérréttar en aðrar
þjóðir sökum þess hvaða hald þeir
höfðu á landinu áður en það féll
Englendingum í hendur. Er það
því ekki ólíklegt að niðurstaða
stjórnarinnar verði sú að Frakkar
fái part af kröfum sínum, fyrst um
sinn, en að öðru leyti verði tveggja
mála kensla lögð niður.
Galiziu menn sendu stóreflis
nefnd' á fund stjórnarinnar til þess
að krefjast kenslu á sinni tungu,
eins og að undanförnu. Er haft á
orði að skipa nefnd' í það mál, en ó-
líklegt er talið að þeim verði nokk-
urs ágengt. Framtíðarstefna lands-
ins yfir höfuð virðist vera sú að
kenna aðeins Ensku í alþýðu skól-
um.
Búnaðarmálið.
Eins og áður hefir verið skýrt frá
hefir stjórnin haft frumvarp með
höndum þess efnis að styrkja fá-
tæka menn til búnaðar, sem flytja
vilja út á land. Hefir eitt atriðið í
því frumvarpi vakið sérstaklega
mikla eftirtekt. Það er það nýmæli
að stjómin láni kýr þeim sem bú-
skap byrja með svo aðgengilegum
skilmálum að allir geti notað sem
þurfa og vilja. Hugmyndin er sú
að hverjum félausum bónda séu af-
hentar 3—5 kýr af bezta kyni þeg-
ar hann byrjar búskap. Skilmál-
aarnir verða auðvitað að vera þann-
ig að trygging fáist fyrir því að
kýrnar verði fyrst og fremts að til-
ætluðum notum og í öðru lagi að
þær verði borgaðar þegar sann-
gjarnt er að ætlast til þess að sá er
fékk geti það sér að bagalausu. Til
þess að tryggja fyrra atriðið verða
gefnar alls konar upplýsingar og
leiðbeiningar því viðvíkjandi hvern-
ig með kýmar skuli farið og afurð-
ir af þeim; hvemig hægt sé að ala
þær sem bezt á sem ódýrastaan hátt
og hvernig fá niegi sem hæst verð
fyrir þær vörur sem þær framleiða..
Að því er hitt atriðið snertir þá er
það erfiðara viðfangs. Það er ekki
æfinlega hlauapið að því að tryggja
borgun á þess konar stjórnarláni,
en það verður stjórnin þó að sjá um
þar sem þetta er fé þjóðarinnar, að-
eins lánað eins og hvert annað trún-
aðarfé. Sumum hefir hugkvæmst
að hafa það þannig að 10 bændur í
sveit til dæmis væru í ábyrgð hver
fyrir annan eða hver með öðmm —
einn fyrir alla og allir fyrir einn —
eins og það var kallað á lagamáli á
íslandi. Er það heppilegt fyrir-
komulag að suniu leyti, en hefir sína
agnúa að vissu leyti. Skúli þing-
maður Sigfússon hélt mjög sann-
gjarna og skipulega ræðu um þetta
mál á mánudagskveldið; enda mun
hann hafa meiri þekkingu á því og
vera færari að leggaj þar orð í belg
en flestir aðrir sem á þingi sitja.
Málinu er enn ekki til lykta leitt,
þvi það þarf vandaðan undirbúning.
Breyting á styrkveitingu.
Edward Brown íjármálaráð-
herra i Manitoba, hefir meðferðis
lagafrumvarp þess efnis að breyta
til með styrkveitingar til þurfandi
fólks og hjálparfélaga.
Nokkrar konur, , sem nefnd,
heimsóttu stjómina á föstudaginn
og beiddust styrks fyrir barna-
heimilin í Winniiæg. Lýsti Brown
j>ví þá- yfir aö stofnanir sem að
líknarverkum ynnu og þurfandi
fólk ætti ekki að neyðast til að
koma í nokkurs konar betliferðum.
Rikið væri skyldugt að hjálpa þeim,
sem virkilega |>yrftu hjálpar við
og jieir sem fyrir líknarstofnunum
stæðu ættu aöeins að jxtrfa að gefa
skýrslur og ganga síð m eftir fé |
úr rxki^- eða fylkissjóði sem
skyldugjaldi samkvæmt höfða-
fjölda og sanngjörnum tilkostnaði.
Kvaðst hann mundu semja frum-
varp er i þá átt stefndi, og jafn-
framt reglur er nákvæmlega yrði
að fylgja til ]>ess að þessi skyldu-
styrkur yrði ekki hafður að skálka-
skjóli. Þessi breyting er einkar
mikils verð og ber meðal annars
vott unt það, hversu mi'kil fram-
fara- og endurbóta stjórn Norris-
stjórnin ætlar að veröa.
Lœknamál.
Dr. Thprnton, mentamálaráð-
herra. flytur frumvarp jjess efnis
að canadiskir læknar hafi leyfi til
]>ess að stunda lækningar á Bret-
landi og brezkir læknai hér. Sarns
konar lög yrðu auövn.,L aö sam-
j>ykkjast einnig i öðrunt fylkjum
ríkisins.
Astæðan fyrir jæssu frumvarpi
er sú, að fjölda margir canadiskir
læknar sækja um að fara i herinn,
en til jæss að stunda lækniLgar í
liði Breta, .verða j>eir eftir núgild-
andi lögum að taka sérstakt próf,
og þykir þaö ósanngjarnt, eins og
]>að er. Búist er við að ]>essi lög
verði til j>eirra stórvægilegu og
sanngjörnu umbóta að læknar hafi
leyfi í öllu ríkinu, jægar j>eir hafa
tekið próf í einum stað; núgildandi
lög eru þannig að ef j>eir flytja sig
á milli fylkja, þá verða j>eir að taka
próf og greiða hátt fé í hvert skifti
sem skift er um; er það á engri
sanngirni bygt. Sá læknir sem er
nógu lærður til j>ess að stunda
veika austur í Ontario eða Quebec,
er það sannarlega eins j>ótt hann
flytji til Manitoba eða Alberta.
Þessi nýju lög, þegar þau komast
í gildi, eru stórkostlegar réttarbæt-
ur og sýna það hversu frjálslynd-
ur og framsýnn sá maður er, sem
hér stendur nú fyrir mentamálum,
! enda er hann talinn einn hinna
[ allra lærðustu og f jölhæfustu
lækna í Canada.
Það er eftirtekta vert að sumt
af j>ví sem Norrisstjórnin er að
gera aö lögum, er svo yfirgrips-
mikið, að alt Canadaríki verður að
feta í sömu fótspor og Manitoba;
þannig er það með jætta mál og
j>annig er |>að með kvenréttinda-
málið.
Rikisháskóli.
Eitt af því sem Norrisstjómin
hefir á prjónunum er j>að að liá-
skólinn í Manitoba verði ríkishá-
skóli i orðsins fylsta skilningi, þar
sem allar mögulegar deildir verði
sameinaðar undir einni stjórn, en
hver deild út af fyrir sig hafi sina
eigin fulltrúa. Meb jætta fyrir
augum er dómsmálastjórinn að
undirbúa frumvarp, sem ákveði að
búnaðarskólinn skuli verða ein
deild háskólans á sama hátt og
Westley, Manitoba og St. Johns
skólarnir eru.
Fjárvcitingar til ekkna.
Þá er það nýlunda, sem aldrei
hefir fyr verið framkvæmd hér í
fylki né nokkursstaðar i Canada,
að stjórnin áætlar 15,000 til styrkt-
ar ekkjum sem þess þurfa. Er
þetta talið til mentamáladeildinni
og er gert bæði til j>ess að gera
konum, sem missi menn sína, létt-
ara fyrir og eins til þess að tryggja
það að böm j>eirra njóti sæmilegs
uppeldis. Hefir stjómin það glögt
á meðvitundinni að þjóðfélagið er
skyldugt að búa þannig í haginn
fyrir framtiðarborgara landsins,
sem hér em fæddir, að þeim sé unt
að öðlast alla þá krafta andlega og
likamlega, sem til hefir verið ætl-
ast af hendi náttúrunnar.
Illgresi.
Afar mikill skaði hefir hlotist af
illgresi í vetsurfylkjunum undan-
farin ár. Er svo áætlað að margir
tugir miljóna hafi tapast af upp-
skeru á þann hátt árlega. Winkler
akuryrkjumálaráðherra hefir flutt
frumvarp í þinginu í því skyni að
eyðileggja þetta illgresi í samráði
og samvinnu við hin fylkin. Verða
þrír aðalumsjónarmenn í nefnd j
sem það starf hafa með höndum, j
sinn frá hvoru fykli; Manitoba,
Saskatchewan og Ablerta. Nefnd
]>essi hefir vald ti lað beita öllum
ráðum illgresinu til upprætingar;
þó þannig að sem minst sé eyðialgt
hjá mönnum. Þar sem ekki verð-
ur hjá því komist að eyða akra ein-
stakra manna, heilum svæðum til
verndar, þá sé þab að einhverju
1>ætt, eftir j>vi sem ástæður liggi
til og sanngirni mæli með.
Tannlækningar.
Dr. Clingan flytur frumvarp
jæss efnis að tannlæknar, sem hér
leyti leyfis, skuli stunda nám und-
ir umsjón háskólans og verði þann-
ig stofnaður tannlæknÆskóli með
sömu réttindimi og skyldum og
aðrar deildir hans. Yfir höfuð er
stefnan sú að sameina alla æðri
skóla í háskólann og koma menta-
málum fylkisins í fastara og væn-
legra horf en verið hefir.
Lán handa bœndmn.
Um það heíir miikið verið rætt í
jnnginu, hvílík nauðsyn væri á því
að koma á fót betri lánkjörum
handa bændum. Valentine Winkl-
er búnaðarráðherra, kvað það eitt
af viðfangserfuðustu verkum
stjórnarinnar að ráða fram úr því;
en jafnframt væri það mál þannig
vaxið að j>ví þyrfti að gefa ná-
kvæman gaum. Um j>að voru allir
sammála að bændur ættu við svo
hörð kjör að búa að þeir gætu ekki
snúið sér við fyrir skuldum, og
væri svipa lánfélaganna svo reidd
yfir höfuð j>eirra að Jæir nytu sín
ekki og yrðu jafnvel að flýja lönd
sín fyrir þessar ástæður. Stjóm-
in finnur til þess að það er köllun
hennar að hlynna að hag bóndans
um fram alt, þar sem hann er stoð
og stytta lands og þjóðar í flestum
skilningi ; er það því áhugamál
hennar að finna ráð til þess að út-
vega bændum lán með betri kjör-
um en verið hefir — með lægri
vöxtum og um lengri tíma. En
]>etta mál er umfangsmikið og þarf
nákvæma yfirvegun; þar má að
engu flana; er því stjórnin að leita
sér allra fáanlegra upplýsinga og
leiðbeininga, áður en hún komi
fram með tillögu til laga.
Lög um erfðaskrár.
E. A. McPherson, þingmaður
fyrir Portage La Prairie, flytur
frumvarp í þingi j>ess efnis að þeg-
ar einhver skilji óftir erfðaskrá,
þar sem eignir hans séu ánafnaðar
opinberum líknarstofnunum, svo
sem skólum. kirkjum. hospitölum
o. s. frv., en láti eftir sig ekkju,
börn og aðra lögmæta erfingja,
sem ekki hafi nægilegt fé til lifeyr-
is, þá skuli umsjónarmönnum þess
fjár sem arfleitt var að, vera heim-
ist að veita af því hæfilega upphæð
slíkum erfingjum til framfærslu.
Eru jæssi lög einkar sanngjörn og
verða væntanlega samþykt á þing-
inu.
Af því sem hér hefir verið sagt
er það auðsætt að fylkisþingið i
j>etta skifti hefir verið starfsam-
ara en dæmi séu til i sögu Canada.
Sum málin eru þannig vaxin að
þau mynda alveg nýtt timabil, svo
sem atkvæðisréttur og kjörgengi
venna; lögleiöing beinnar löggjaf-
r o. s. frv.
Hermálaritari Banda-
ríkjanna segir af sér
Garrison hermálaritari Banda-
ríkjanna sagði af sér embætti sínu
á fimtudaginn var, sökum mis-
munandi skoðana sem j>eir Wilson
og hann höfðu á hermálum ríkis-
ins. Hermálaritarinn krafðist þess
aö Wilson samþykti og héldi fram
skilyrðislaust landhers aukningu
þeirri, sem þingið stakk upp á, en
Wilson neitaði því.
Aðstoðar hermálaritarinn Henry
C. Breckenridge sagði einnig af
sér og er því Wilson sjálfur her-
málaritari sem stendúr.
Glaðar stundir *
$5,000,000 tillagi
neitað.
Manitoba stjórnin bauð Sam-
bandsstjórninni að leggja fram
$5,000,000 til herkostnaðar, en þvi
var neitað. Samt var þvi vel tekið
af Borden ráðaneytinu og því lýst
yfir að ef á þyrfti að halda þá
mundi veröa leytað til Manitoba.
Brown fjármála ráðherra lýsti
þessu yfir í jxnginu nýlega.
>t-f 4-f 4-f+ -f+f-t- fffffffff
Eins og getið var um í síðasta
Lögbergi, var haldið þrefalt silf-
urbrúðkaup i Tjaldbúðarkirkjunni
fyrra þriðjudag. Jóhannes' Gott-
skálksson, Siguðrur Anderson og
Loftur Jörundsson og konur þeirra
voru silfurbrúðhjónin. Var þar
fjölmenni mikið saman komið og
undirbúningur hinn bezti af hálfu
nefndar þeirrar, sem fyrir J>ví stóð.
Loftur Jörundsson, sem er forseti
safnaðarins, sat fyrir miðju há-
borði ásamt konu sinni, en hin silf-
urbrúðhjónin sín til hvorrar hand-
ar honum.
Séra Friðrik Bergmann stýrði
samkvæminu; mintist liann j>ess í
byrjun að þetta hátíðahald hefði að
réttu lagi átt fram að fara nokkru
fvrri, en sölcum j>ess ólags og
hinna erfiðu kringumstæða, sem af
stríðinu stóðu, hefði ]>að dregist.
En nú kvað hann menn vera farna
að átta sig og þeim að lifna vonir;
þeir sæju nú eða þættust sjá út-
gönguvon úr erfiðleikunum; enda
væri mannlegu eðli þannig háttað
að J>egar einhver ósköp dyndu á,
]>á stæðu þeir eins og ráðþrota, en
vendust við smátt og smátt, áttuðu
sig og tækju til starfa..
Hann talaði því næst um starf
það <>g umhvggju, sem Tjaldbúð-
ar söfnuður hefði notið frá hálfif
jiessara j>riggja hjóna.
Har næst stóð upp Hjálmar
Rergmann og hélt alllanga ræðu,
frábærlega skemtilega; var það
rninni allra silfurbrúðhjónanna.
Hann skifti ræðunni í þrjá kafla:
tilhugalíf. búrðkaup og silfurbrúð-
kaup. Mundi margur hafa gaman
af að Iesa þá ræðu í heilu líki.
Hann afhenti því næst brúðhjón-
unum sinn kassann hvoru, fullan
af silfurborðbúnaði og áranaði
þeim allra heilla. Það er reglulega
í frásögu fæamdi, hversu vel
Bergmann er máli farinn á íslenzka
tungu, jægar jæss er gætt að hann
er uppalinn hér og menaöur á
ensku máli, og verður auk j>ess að
æfa talgáfu sína á Ensku.
Þá voru flutt 6 kvæði. Einar
Páll Jónsosn flutti minni brúð-
hjónanna allra og M. Markússon
annað. Sigfús' Pálsson hafði ort
minni jæirra Jörundson hjóna, en
Nikulás Otteson liafði skrautskrif-
að það. Kristján Asg. Benedikts-
son flutti minni Gottskálkson
hjóna og annað fyrir minni And-
erson hjóna og bauðst N. Otteson
til ]>ess að skrautskrifa þau einnig,
en Sig. Júl. Jóhannesson flutti
minni allra hrúðhjónanna.
Að því búnu fluttu silfurbrúð-
gumarnir allir sina ræðuna hver,
°g sögðu frá tilhugalifi sínu ojf
ýmsu öðru, auk j>ess sem ]>eir ]>ökk-
uðu fvrir samsætið og gjafirnar.
Lárus Guðmundsson flutti tölu til
brúðhjónanna og lýsti því hversu
illa Adam hefði liðið í Eden, áður
en Eva kóm til sögunnar. Guð-
leifur Dalmann frá Selkirk mælti
einnig nokkur orð til þeirra Jör-
undsons hjóna.
A milli þess' sem ræður voru
fluttar og kvæði lesin upp voru
sungnir margir íslenzkir söngvar
og lék Mrs. H. Johnson á hljóð-
færi.
j Samsætið var í alla staði hið
j ánægjulegasta og vel úr garði gert
af hálfu- nefndarinnar. Þess má
geta að -þar voru staddir menn og
konur af öllum flokkum, bæði
pólitískum og trúarleg-um. Er það
ekki oft að tækifæri gefst til þess
að vera staddur á ]>reföldu silfur-
brúðkaupi. Einn ræðumaður gat
jæss, að j>ótt margur væri kominn
til ára sinna þar inni, mundi þar
enginn vera, er slíkt tækifæri hefði
lifað áður, og mótmælti því eng-
inn. Klukkan á tólfta tíma var
samsætinu lokið og kvöddust menn
að skilnaði eftir glaða stund og
góða.
Sharpe í öldungaráðið.
Eins og menn muna sagði W.
H. Sharpe af sér Sambandsþing-
mensku fyrir Lisgar kjördæmi til
jæss að hjálpa til að halda við con-
servative flokknum. Var þess get-
ið til að hann mundi fá háa stöðu
að launum. Hann tapaði kosning-
unni. en nú hefir hann verið gerð-
ur að meðlim í öldungadeíldinni í
Ottawa í stað Kirchoffers. Sharpe
er nú herforingi í liði Canada.
Uppþot á Svisslandi
Tveir hæstu hershöfðingjar i
liði Svisslendinga, Col. von Wall-
erwyl og Col, Karl Egli, eru á-
kærðir um að hafa sent daglegar
upplýsingar til þýzkra fulltrúa í
Berne viðvíkjandi öllum hermála-
ráðum og hreyfingun* Frakka. Er
jætta talið mesta hitl- og hættu-
mál, sem nokkru sinni hafi komið
upp á Svisslandi.
BITAR
Hjálmar Bergmann sagði í silf-
urbrúðkaupinu fyrra þriðjudag að
erfitt væri að' segja hvenær til-
hugalíf byrjaði, hvort það væri
jægar pilturinn færi að draga sig
eftir stúlkunni eða þegar stúlkan
færi að gefa piltinum undir fótinn.
sem vanalega væri fyrri.
Arinbjöm Bardal sagði nýlega í
ræðu að Lloyd George teldi Eng-
land eiga þrjá erkióvini — Þýzka-
land, Austurríki og Áfengið, en af
þeim vferi hinn síðasttaldi lang-
skæðastur. Hann sagði einnig frá
því að brennivínsmenn teldu sér
vís 80% af atkvæðum hermann-
anna: “Er J>að satt?” spurði Bar-
dal, “að hermennirnir séu með
skæðasta óvini rikisms? Og
ef það er satt, er Jæim þá trúandi
til þess að berjast rnóti hinum
smærri óvinum jæss' --- Þjóðverj-
um og Austurríkismönnum?
Þetta er alvarlegasta spurningin
sem fram hefir verið sett siðan
stríðið hófst.
Robson dómari kvað nauðsyn-
legt að rannsaka gerðir bæjar-
stjórnarinnar i Winnipeg, en hún
fbæjarstjórnin sjálf) lýsti því
yfir að jæss J>yrfti ekki, og við
það var látið sitja. Th. H. John-
son hélt því fram að rannsaka
þýrfti gerðir Roblinstjómarinnar,
en hún (Roblinstjórnin sjálf) lýsti
j>ví yfir að j>ess j>yrfti ekki; en við
það var ekki látið sitja. — Allir
vita árangurinn.
"Hvað borgar Heimskringla j>ér
fyrir breytingarnar, sem j>ú hefir
gert á blaðinu?” spurði merkur
, maður ritstjóra Lögbergs nýlega:
“Eg hefi engar brevtingar gert á
]>ví!” svaraði ritstjóri Lögbergs.
“JÚ, blessaður vertu!” sagði mað-
urinn. “t hitteð fyrra komstu J>eim
til jæss að taka upp “Kringlur” á
móti “Bitum”; ]>ó jæir væru ekki
rtcgu skynsamir til að halda jæim
áfram, þá var það samt tilraun hjá
j>eim greyjunum. Fyrir skömrnu
fóru ]>eir að skrifa svolitið fyrir
bönin og láta þau skrifa, og J>ó J>eir
hefðu eldki-vit á að hafa það í sér-
stöku blaði handa börnunum, þá
er J>að samt virðingarverð eftir-
liermutilraun. Nú síðast hafa þeir
tekið ]>að eftir þér að láta ytra út-
lit ritstjórnardálkanna vera líka
j>ví, sem þeir eiga að vera; og j>ó
þá bresti hæfileika til jæss að hafa
þar nokkuð af viti, þá eru j>etta
j>ó umbætur á búninghum. Þér
tekst að gera Heimskringlu viðun-
anlegt blað ef hún heldur áfram að
taka rMgberg sér til fyrirmyndar."
j Free Press og Tribune bera það
j hvort á annað að hitt hafi upphaf-
lega birt brennivínsauglýsingar.
Þessar ákærur og afsakanir blað-
anna bera glöggastan vott um það
hversu mikið bindindismálið er að
græða.
Telegram hefir loksins sann-
færst um j>að að fólkið trúi því
ekki lengur sem það segir nema
því aðeins að það þykist skifta um
stjórn og eigendur. — Maður
keypti gamalt hússkrifli, málaði
það að utan og sagði svo að ]>að
væri alveg nýtt, en pest hafði ver-
ið í húsinu og voru sóttkveikjurn-
ar ]>ar eftir sem áður.
Hvemig skyldi ]>eim hafa liðið
Afturhaldsmönnunum á samsæti
kvenfólksins' þegar þær höfðu feng
ið atkvæðisrétt, eftir alla mótstöð-
una sem jæir höfðu veitt því máli?
1