Lögberg - 17.02.1916, Qupperneq 2
LÖGBii;ií(i, PTMTUDAGINN
17. FEBEUAR 1916.
HUSGAGNA-SALA BANFIELDS
Febrúar-sala á húsgögnum og áhöldum gengur með fljúgandi hraða og sýnir það, hversu góðar vörur með lágu
verði ganga alt af út. Fyrir hátíða gesti jafnt sem stöðuga viðskiftavini, höfum vér útbúið skrá yfir allskonar vörur.
Gætið að bláa seðlinum, þar sem það er sýnt, sem hægt er að spara; þeir rauðu, sem sýna vanaverð varanna, eru
einnig á þeim.
“Jacobean” borðstofu-
áhöld.
pessi átta stykkja áhöld
eru öll búin til eftir þeirri
tízku er fegurst þykir; þar
er gler og matáhalda kom-
móða (sjá myndina) með
fóðruðum hnífa og skeiða-
skúffum o. s. frv. Vængja-
borð, með 48 þuml. kringl-
óttum fleti á sterkum fæti
og þegar það er dregið
sundur er það 8 fet. Sex
stórir, með etirlíkingu af fínu morocco leðri. Vanaverðið
$198.50.
Febrúar verð
$159.75
Borðstofu áhöld fyrir
$42.75.
pessi fullkomnu borð-
stofu áhöld eru búin til úr
hörðum viði og gerð eins
og reykt eik. Sést þar eðli-
legt útlit trésins. Áhalda-
skápur (sjá mynd) með
tvær hnífa og skeiða skúff-
ur; lérefts skúffa og vand-
aður spegill. Vængjaborð
með 45 þuml. kringlóttri
plötu og sex fet þegar það
er stækkað, á sterkum og
góðum fæti. Stólamir eru
stórir með eftirlíkingu af fínu morocco leðri.
er $57.50.
Febrúar verð.................................
Venaverðið
$42.75
“JACOBEAN“ RUGGUSTÓLAR
Ekta ruggustólar úr eik, með
Jacobs lagi; spón bak, fjaðra sæti,
fóðraðir með ágætum dúk. Stórir
og rúmgóðir. Alveg eins og mynd-
in. anaverðV $12.
Febrúar verð .....
Stólar sem eiga við ruggi
stólinn. Febrúar verð ..
$8.95
SMÁBORGANA SALA VOR
Er heimili þitt eins og þú vilt að það sé?
Ef ekki, hvers vegna er það það þá ekki?
Farðu eftir sömu reglu með húsgagnakaup þín
og þú hefir við húsakaup. pað er ekki nauðsyn-
legt að borga alt út í hönd hjá okkur. Dálítil
niðurborgun og svolítið á mánuði er nóg. —
pað er ánægja að skýra fyrir þér okkar nýju
sölureglur.
VID GERUM VID HÚSMUNI
Við bjóðum 25 prct. afslátt af öllu hús-
gagna fóðri á meða ná meðan á þessari sölu
stendur og er það svo að segja það sem það
kostar að fóðra þau. Við fóðrum húsgögn
svo vel að það, sem frá okkur er flutt, er hin
bezta auglýsing. Láttu fóðra húsgögn þín í
þessum mánuði á meðan verðið er niðursett.
HÁIR RUGGUSTÓLAR
Ruggustólar úr hörðum viði í
gullslitri eik, birki eða mahogany.
Útflúraðar rendur og bríkur; út-
flúruð bök*; þægileg sæti. Alveg
eins og myndin. Vanaverðið er
$5.00. fljo oe
Febrúar sala.........
Vér seljum öll áhöld fyrir þrjú
herbergi: Setustofu, svefnherbergi
og eldhús d* QQ AA
fyrir......... . . »P»/í/.UU
Skoðið fjögra herbergja áhöldin
okkar: framherbergi, matstofu,
svefnherbergi og eld- 1 *7C QA
hús fyrir.........1 • D.UU
MATBORD
Ekta eikarborð, búið til ýmist með gullblæ
eða reykt. Kringlótt plata, 44 þuml.; 6 fet
þegar það er stækkað, á ferköntuðum og fögr-
um fæti; alveg eins og myndin.
Febrúar verð............
$14.95
‘FLANNELETTES’ TEPPI
Innflutt ensk flannelette teppi, sérstaklega
þykk, grá, með þremur röndum, mjög mjúk og
loðin. Full rúmstærð. Vanaverð | /»£
$2.25 parið. Febrúar sala...4)1.0»)
BAD DÚKAR
Ágæt ljósleit hándklæði, 20 þuml. breið og
38 þuml löng, útflúruð með hvítum og rauðum
röndum. ódýr á 45c. parið
Sérstakt verð...............
25c
HAF GEGNLITA OLÍUDÚKA Á GÓLFINU
pegar til lengdar lætur, verða gegnlitaðir
olíudúkar ódýrastir; litirnir eru í gegn um þá
og breytast því ekki fyr ervdukamir eru slitnir.
AHskonar gerðir, rósóttir, stykkjóttir, eikarlitir
o. s. frv. Hentugir fyrir hvaða herbergi sem
er. Allir 2 yards á breidd. Vanaverðið er
frá $1.25 til $1.35 yardið.
Ferhyrnings yard á...............
Tvö hundruð innflutt Axminster boga og
svefn herbergja mottur, með rósum og tyrk-
neskum litum, 27 þuml breiðar og 54 þuml. á
lengd; kögur á báðum endurh. Vanaverðið
er $3.50. O O C
Febrúar sala....................»p t* • D J
95c
KAUPTU Nú GÓLFDÚKA TIL
ÓKOMINS TÍMA
pú getur ekki fengið samskonar
dúka með eins lágu verði í marga
mánuði og jafnvel ekki í mörg ár.
—Gólfdúka sala er nú óregluleg og
ekki hægt að segja hvað fyrir kann
að koma. — Verðið hefir stöðugt
farið hækkandi í marga mánuði.
Framsýni okkar og hugboð gerir
okkur það mögulegt að selja með
lægra verði en fyrir stríðið.
STÓRIR FLAUELSDÚKAR
Að eins 20 innfluttir, enskir
flauelsdúkar, ofnir í einu lagi, án
sauma, með allskonar rósum; og
sömuleiðis góðir tyrkneskir dúkar.
Endast ágætlega", 3*4x4 yards.
Vanaverð $45.00.
Febrúar sala . . .
$27.50
HENGJUR
SNÆRIS
Að eins jijö
snærishengjur
eins og mynd-
in; sumar með
skúfum, sem 3
eru rjómalitir,
1 grænn og 3
brúnir. Vana-
verðið er $10;
sérstakt verð
6.35
200 yards einfaldir og útflúraðir
“muslin” dúkar, sérstaklega hent-
ugir í svefnherbergja glugga, 50—
54 þuml. breiðir. Vanaverðið er
60c. yardið.
Sérstakt verð.........
35c
J. A. BANFIELD,
492 Main St.
Tals. Garry 1580
Líknarstarfsemi og
munaðarleysingjar
Rœða flutt á mœlskusamkepni liins
íslenska stúdentafélags í Good-
Tcmplara húsinu, io. febr. 1916.
af Bergþór >E. Johnson.
Herra forseti. HeiSruðu tilheyr-
endur.
T’essi fáu orð, sem eg ætla aö tala
hér í kveld, eru um líknarstarfsemi
og munaöarleysingja. Við höfum
öll saman tækifæri, einhverntíma
á lifsleiöinni, aö sýna einhverjum
hjálp, í orði eöa verki. Smá atvik
og máske ekki nema fá orð, geta
gert stór stryk á lífsleiðinni. Eitt
hughreystandi orð hefir meiri
áhrif lieldur en margur hugsar.
Það er þörf á líknarstarfsemi í
heiminum; það hefir alt af verið
þörf á henni; en aldrei meiri en
nú.
Þaö er líknarstarfsemi að rétta
gamalmenninu ’hjálparhönd á elli-
árunum, þegar maður sér að það
er einmana og yfirgefið. Það er
líknarstarfsemi að efla og styrkja
þau fyrirtæki, er hjálpa fátækum
og bágstöddum. Og mesta ltknar-
verkið er að hjáJpa munaðarleys-
ingjunum, er alast upp i stórlxtrg-
um heimsins.
Við köllum munaðarleysingja,
þann sem er föður og móðurlaus.
Hann ráfar um götur borgarinnar
tötrum klæddur og skjálfandi í
kulda, og er sulturinn útmálaður í
hverjum drætti i andliti hans.
Hann starir biðjandi augum á
hvern sem hann mætir, í von um
skilding að kaupa fyrir brauð, til
að seðja með hungur sitt. Hans
eina skjól fyrir veðri og vindi er
skúmaskot einhversstaðar í borg-
inni, með ltimininn uppyfir fyrir
]>ak. Faðir og móðir eru gleymd.
Hann liefir kannske aldrei séð föð-
ur sinn og máske aðeins litið móð-
ur sína augum; augum barnsins er
gleyma þvi er þau sjá svo ung.
Ilann hefir aldret þekt móðurást.
Hann veit ekki einu sinni hvað
móðurástin er. Hann liafði enga
móður til að sefa sorgir sínar þá
er hann var i æsku. Hve mikið
hefir hann ekki mist, að njóta ekki
móðurástarinnar. Móðurástarinn-
ar, sem ekkert í heintinum megnar
að sundur slíta nema dauðinn.
Ekkert, nei, ekkert í heiminum
megnar eins að sefa sorgir og til-
finningar æskumannsins, cins og
móðirin. Og þó hjarta hennar sé
ntáske fult af raunum lífsins, þá
hefir hún samt liuglireystandi orð
á vörum til ttarnsins síns. Alt þetta
fer munaðarleysinginn á mis við.
Hann verður sjálfur að halda
niðri tilfinningum lijarta sins, og
j hann verður að vera sinn eiginn
I leiðarvísir á liraut æskunnar.
Hann kentur að brautamótum,
þeim lirautamótum sem hver æsku-
maður verður að stanza við og
velja aðra af hinum tveimur braut-
um. Á þessum brautamótum hugs-
ar munaðarleysinginn sig um.
Hami sér stigann tröppu af tröppu,
alt frá lionum sjálfum til hins ríka,
td hins liáttsetta mans' í mannfé-
laginu. Hann imgsar um hvaða
forkig liafi sett sig á þetta þrep.
Tækifærin hafar fltiið hann, alt
liefir snúist öfugt. Hann er orð-
inn mannhatari; hann liatar alt líf-
ið, og liann hatar sjálfan sig.
Hann á enga góða foreldra að
beuda honum á h.ina réttu braut.
Hann á enga góða vini að rétta
honum hjálparhönd og hvetja hann
áfrarn með liugrheystandi ófðum.
Hann er eins og stýrislaust flak á
ólgusjó. Hann er hrakinn af hin-
um ónotalegu öldum lífsins. Hann
velur þá brautina er honum sýnist
glæsilegri og auðveldari að ganga.
Hann finnur brátt að hann er á
braut glötunarinnar, en allur kjark-
ur lians er horf.inn, og hann gengur
brautina á enda. Honum er fljótt
gleymt. Enginn man eftir munað-
arleysingjanum, er lætlaði á götum
Ixirgarinnar. Hann er fallinn í
haf gleymskunnar, og enginn hugs-
ar um liann framar. Þaö fennir
ekki í förin hans, því nógu margir
koma á eftir og ganga sömu braut-
ina. Svona fara ótal margir af
munaðarleysingjum árlega. Hve
mikil nauðsyn er ekki að styðja þá
og styrkja. Að vísu eru sumir af
þeim sem verða góðir og nýtir
Ixirgarar, máske fyrir einhver at-
vik eða 'einhver hefir rétt þeim
hjálparhönd. Og svo er máske einn
eða tveir af hverju þúsundi, sem
hafa þann óbilandi kjark og vilja
frá barnæsku, að ekkert megnar að
lirjóta þá á bak aftur. Þeir brjót-
ast áfram gegnum baráttur lífsins
með þeim fasta ásetningi að verða
nýtir menn, sjálfum sér til sóma og
öðrum til þarfa. Og þeir liætta
ekki fyr en þeir hafa náð því tak-
marki er þeir settu sér.
Þessir menn verða leiðarvísar
mannfélagsins. Þefr geta bent
samtíðinni á brautina til farsældar,
þó hún sé oft erfið í fyrstu. Þeir
geta bent æskulýðnum á hve nauð-
synlegt j>að er að vera öruggur i
baráttunni og staðfastur i hugsún-
um og verkum.
Og þessir menn eru oftast reiðu-
búnir að rétta þeim næsta hjálpar-
hönd, því jæir hafa sjálfir reynt
hvað j>að er að eiga bágt og vera
einmana og hjálparlausir. Én því
miður eigum við alt of fáa af þess-
um mönnum.
Margir góðir menn og góðar
konur verja lífi sínu til líknarstarf-
semi, og mikið er gjört árlega. En
aldrei hefir jjörfin verið meiri en
einmitt nú. Við getum öll gjört
ökkur í hugarlund hvaða áhrif
þetta mikla stríð hefk á öll lönd
heimsins, allan iðnað og alla menn
ing, En við getum kannske ekki
öll gjört okkur í hugarlund, hvaða
áhrif þetta mikla stríð hefir á börn
jjeirra þjóða er taka þátt í ófriðn-
um; munaðarleysingjana er missa
feður sina á vígvellinum eða á ein-
hvern annan hátt í sambandi við
•stríðið. Þessi börn hafa sárar end-
urminningar um blóðsúthellingar,
ofbeldi, og dauða. Og þessir mun-
aðarleysingjar eiga að verða köm-
andi kynslóð, sú kynslóð, sem þarf
að vera mesta kynslóð er nokkurn-
tíma hefir verið uppi; sú kynslóð
er j>arf að græða þau sár og þau
bágindi og þá spillingu er þetta
stríð hefir í för með sér. Hvernig
á að fara með þessa munaðarleys-
ingja til að gjöra þá hæfa fyrir
þetta verk; þetta verk sem þarf að
vinna trúelga og fyrir heill kom-
andi kynslóða? Á að láta þá fara
eins og svo marga af munaðarleys-
ingjum stórborganna, láta þá ganga
hina dökku braut lífsins, einmana
og óstudda? Nei, og aftur nei.
Það má ekki vera svo. Nú er tím-
inn fyrir alla mestu stjómmála
menn heimsins, og nú er tíminn
fvrir alla beztu uppfyndingamenn
heimsins að finna upp ráð, það ráð
sem dugi, til að búa í haginn fyrir
jjessa munaðarleysingja. Og nú
er tíminn fyrir alla þá er vilja rétta
hjálparhönd, að rétta svo sterka
hjálparhönd, að hún reisi börnin,
er missa feður og mæður í ófriðn-
um á það stig í mannfélaginu, sem
J>au hefðu kost á, ef öðruvísi
hefði farið. Ef þetta verður
framkvæmt J>á verður það rnesta
Ekrtarverkið sem heimurinn hefir
j>ekt.
Kaupmannahafnar
Þetta er tóbaks-askjan sem
hefir að innihalda heimsins
bezta munntóbak.
Munntóbak
Búið til úr Kin-
um beztu, elstu,
safa- mestu tó-
baksblöðum, er
ábyrgst að vera
algjörlega hreint
Hjá öllum tóbakssölum
Skógareldur.
Hér á skóggyðjan heima, hér og
hvergi annarsstaðaar.
Hér eru lönd hennar og ríki. Hér
er höllin hennar, hér á Skuggavatns-
bökkum.
Þú ættir að líta hana, þessa ilm-
andi, grænu, angandi skógarhöll —
um sólsetursbil.
Sólin er eldrauð og varpar geisl-
um á vatnið, fyrir framan höllina.
En á vatninu synda svanir, fann-
hvítir svanir, eins og snjórinn á
efstu jökulgnípunni, þar sem engin
mannleg vera hefir'stigið fæti sín-
um.
Þeir brosa til kvöldsólarinnar,
brosa til hennar og syngja um hana.
Hún er undurfögur þetta kvöld,
og Jjokuhnoðrana í vestrinu hefir
hún gullbrytt og sparibúið.
Þórður hét hann og var einbirni.
Faðir hans var ríkur. Hann átti Ás
og allan skóginn hér umhverfis. Ás
hafði lengi verið í sömu ættinni.
Mann fram af manni búnaðist öll-
um hér á Ási. Þangað til Bjöm,
faðir Þórðar, kom til sögunnaar.
Hann drakk mikið. Vanrækti að
sýsla um búið. Loks var Ás seldur
upp í skgldirnar og skógurinn með.
Björn dó um sama leyti, í eymd og
vanhirðu.
Þórður var 18 ára þegar þetta
gerðist.
Hann hafði verið léttlyndið og
kætin sjálf; máske viðkvæfnur um
of.
Hún hét Ásta, stúlkan hans. Þeg-
ar Ás var farinn, yfirgaf hún hann,
bað hann að gleyma sér, fyrirgefa
sélr. Hún hefði ekki vitað hvað ást
var, þegar hún lofaðist Þórði. Hún
elskaði hann ekki.
Þá varð hann svona, einrænn og
undarlegur.
Eg var að hugsa um þetta, von-
brigði Þórðar og hvers hann hefði
farið á mis í lífinu, um þessa sorg-
arsögu, sem hafði gerbreytt lífi
hans, þegar Ásbóndinn mælti:
“Það hefir líklega átt að fara
svona. Eg er búinn að gera mikið
á Ási, miklu meira en Þórð nokkru
sinni hefir dreymt um.”
Það var sigurhreimur í röddinni.
Mér varð litið upp. Eg horfði á
hann. En hann horfði á akra og
hús, skóg og engjar, og sá, að það,
sem hann hafði gert, var “hárla
gott”.
“Alfarinn! Já. Hér verður ekki
gaman að vera þegar skógurinn er
farinn." Og hann brosti við, hálf-
raunalega.
“Við skulum vona að guð hlífi
skóginum þínum, vinur minn.”
“Nei. Það er ekki guðs að hlífa.,
Hann refsar. Og hann eyðir og
Iætur aftur vaxa.”
Hann gekk í áttina til kofans síns.
Þegar eg kom á fætur næsta dag,
stóð margt manna á hlaðinu á Ási.
Menn ræddu þar um yfirvofandi
hættu af skógareldinum.
Bóndinn á Ási talaði hæst og
mælti, tun leið og hann benti til
austurs:
“Eldurinn færist stöðugt nær, og
breyti hann ekki vindstöðunni eða
nái áð rigna, þá er úti um Ásskóg.”
En vindstaðan breyttist ekki, og
það var ekkert útlit fyrir rigningu.
Eldurinn nálgaðist óðum.
Um hádegisbilið var hann kom-
inn í austasta jaðarinn á Ásskógi.
Reykjarmökkinn lagði út á
Skuggavatn og huldi það. Þaö
snarkaði og brakaði í trjánum, og
eldflóðið breiddist um allan skóg-
inn.
Um kvöldið var enginn skógur í
Áslandareigninni. Þar sem skóg-
urinn hafði staðið, var sæart ösku-
flag, sem nokkrir hálfbrunnir stofn-
ar gægðust upp úr.
Þ ví lengur sem eg hugsa um
hann, því undarlegri finst mér hann,
líf hans og alt, sem við hann er
tengt.
Það var einrtiitt á svona kvöldi,
sólhýru vorkvöldi, sem eg rakst á
hann fyrst. Það var skömmu eft-
ir sólarlag, í Ásskóginum, þar sem
hann er dimmastur.
Hann kom svo hljóðlega. Eg
varð hans ekki var, fyr en við stóð-
um augliti til auglitis.
Hann virtist vera gamall maður.
Andlitið var raunalegt, ennið hátt,
skær, glampandí augu.
Hann brosti við, svo undarlega,
eins og gamlir menn einir geta bros-
að.
En brosið hvarf von bráðar.
Það kom einskonar tignarsvipur á
andlit haús. Hann benti með hend-
inni út yfir skógarásana og mælti:
“Þetta eru lönd mín og ríki. Eg
er konungur skógarins.”
Hann leit á mig með fyrirlitningu
og bætti við:
“Eg hefi gengið um skóginn í
alla nótt og allan dag. Eg er búinn
að telja daggardropana á laufum
trjánna. Þeir eru perlur, dýrindis
gimsteinar. Og þessar perlur á eg,
því j>etta land’, sem þú stendur á,
og svo langt sem augað eygir, er
mín eign. Skilirðu það, mín eign,
mitt ríki.”
Svo hvarf hann inn í skóginn,
jafn-hljóðlega og hann kom.
Þetta atvik kom fyrir mig seinni eins
hluta júlímánaðar, snmarið sem eg
dvaldi á Ási.
Eg gat ekki gleymt karlinum,
gamalmenninu einmana, sem reik-
aði fram og aftur um skóginn, til
þess að telja daggardropana á lauf-
um trjánna. Eitthvað vaar það í
fari hans, sem gaf til kynna, að
hann ætti sér einhverja sögu, ein-
hverja einkennilega raunasögu.
Bóndinn á Ási sagði mér sögu
hans, skömmu síðar, þegar eg hafði
fært j>etta í tal við hann.
Svo var það nokkrum vikum
seinna.
Það var hásumar og brakandi
þerrir.
Alt var að J>orna og skrælna upp,
þvi aldrei kom deigur dropi úr lofti.
Loftið var óhreint. í margaar
vikur hafði enginn séð heiðbláan
himin.
Dagblöðin voru að geta um skóg-
arelda í næstu bygðalögum og bónd-
inn á Ási var orðinn hræddur um
skóginn sinn.
Þann dag gekk eg um Ásskóg. Eg j
gekk fram á Þórð. Hann sat þar
á grenistúf. Mér sýndist hann hafa
grátið. Eg var orðinrt honum kunn-
ugur og gekk því til hans.
“Hefir þú grátið, Þórður minn?”
spurði eg.
“Gamlir menn gráta sjaldan. Eg
skammast mín ekkert fyrir það. Eg
hefi grátið, grátið yfir skóginum
mínum. Bráðum hefir hann lifað
sitt fegursta. Og kannske á eg ekki
langt eftir.”
“Heldurðu það? Hefir þig
dreymt um þetta ?”
“Já. Mig dreymdi svo undárlega
í nótt.”
“Viltu segja mér drauminn,
Þórður?”
Hann liugsaði sig um og sagði
svo:
“Það var vor, og eg gekk um
skóginn minn.
Eg hlustaði á dillandi fugla-
sönginn, sem alstaðar hljómaði. í
öllum runnum.
Eg sat á vatnsbakkanum og
horfði á, hvernig bjarkirnar spegl-
uðust i þvi. Það var yndislegt
kvöld, eins og þau eru fegurst á
vorin.
Svanimir kvökuðu angurvært og
blítt. Þá kom skógargyðjan út úr
hoilinni sinni og — hún. serr. einu
sinni var unnusta mín.”
Hann þagnaði stundarkorn, en
hélt svo áfram:
“ “ Loksins komum við,” sagði
skóggyðjan. “Þú ert búinn að bíða
lengi, en nú skaltu fá hana.”
» Og mér fanst Ásta koma til mín
og kyssa mig á ennið, eins og hún
gerði stundum i gamla daga.”
“Var ekki draumurinn lengri r”
spurði eg.
“Jú, J>egar hún hafði kyst mig,
litum við til austurs. Loftið var
og gullhvelfing. Við sáum
mann riða í loftinu á kolsvörtum
liesti.
Maðurinn hélt á glóandi kyndli í
henoinni og varpaði honuni i Ás-
skóginn.”
» Við j>ögðum báðir. Mér fanst eg
ekki geta hughréyst Þórð með því
að ráða drauminn fyrir góðú. Mér
fanst, hð Þórður yrði að ráða hann
eftir eigin geðjtótta.
“Eg verð víst að kveö«j a þig núna,
Þórður minn. Annað kvöld fer eg
alfarinn frá Ási.”
Þórður dó í skóginum, eins og
tiginn konungur, sem vill heldur líða
undir lok með riki sínu, en lifa eft-
ir, rasntur því bezta, sem lífið hafði
veitt honum: konungstigninni.
Nýr skógur er þegar byrjaður að
nema land á rústum gamla, horfna
skógarins.
Þegar sá skógur verður fullvax-
inn, man enginn eftir konungsrík-
inu hans Þórðar gamla.
Júlí 1914.
Axel Thorsteinsson.
—Eimreiðin.
Thorsteinsson Bros.
& Company
ðyggja hús, selja lóðir, útvega
lin og eldsibyrgð
P6n: H. »99». »1» Somwnt Bldg.
Hetmaf.: O. 7M. Wtnlpes, Uu.
J.G.
HARGRAVECO.
Límited
334 Main Street
Vér seljum |koI
og við, vel útilát-
ið og eins ódyrt
og nokkrir aðrir
í bænum.
Talsímar:
M. 432, Ft. R. 417
GERA OSS MÖGU-
LEGT AÐ FRAM-
LEIÐA PRENTUN
SEM GERIR VIÐ-
SKIFTAVINI VORA
ANÆGÐA
The Columbia Press,
Limiteci
Book. and Commefcial
Printers
Phona Garry^S P.O.Bo»3172
WIHNIPKG
/