Lögberg - 17.02.1916, Page 8
A
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. FEBRÚAR 1916.
Bibe.
RibboN
Coffec
Blue Ribbon
KAFFI
og Bökunarduft
œtíð um Blue
Ribbon kaffi og bökunar-
duft.
Eins og öll Blue Ribbon hreina
matvara eru þau framúrskarandi að
gæðum og seld með ábyrgð fyrir
að þau muni gera kaupendur á-
nægða, ella andvirðinu skilað aftur.
Ef þér skylduð
vera í nokkrum
efa, þá reynið oss
ef þér viljið fá gott
kjöt, matvöru eða
garðávexti.
Fort Garry Market Co.
Limited
330-336 Garry St., Winnipeg
Eg hefi nú nægar byrgöir af
“granite” Jegsteinunum “góöu”
stöSugt viö hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg aö bitija
þá, sem hafa verið að biðja mig um
legsteina, og þá, sem aetla að fá sér
legsteina í sumar, að finn mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins v'el 0? aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur,
A. S. Bardal.
Janúar mánuður í Manitoba 1916.
(Xatnesk stakaj.
'Alta nive terra tecta tota dormat
frigora viros foris terrent
flante vento multi errant.
/. G. G.
Þýðing.
Undir þykkum fanna feldi
foldin sefur,
hörðu veðrin tápsmenn trylla
til þá loks af götu villa.
/. G. G.
Or bænum
Kvenfélag Skjaldborgar safnað-
ar ætlar að hafa skemtisamkomu á
mánudaginn þann 28. þ. m., betur
auglýst í næsta blaði. •
Bjarni Sveinsson frá Howard-
ville í IsafoldarbyglS kom til bæj-
arins fyrra miðvikudag og dvaldi
hér þangað til i fyrradag; hann
beið lengur en hann ætlaði til þess
að geta verið á Hermiþinginu á
mánudaginn. Það lag er að kom-
ast á að menn komi þangað þegar
þeir eru i bænum, ef þeir mögulaga
geta.
Sigurður Hjaltalín frá Moun-
tain N. í)., kom til bæjarins á
fimtudaginn vestan frá Wynyard,
þar sem hann hefir verið um tíma
að finna kunningja og vini. Hann
dvelur hér nokkra daga hjá Guð-
jóni bróður sínum; fer norður að
Gimli til Jósefs bróður síns og svo
suður aftur.
Arnor Árnason frá Brandon
kom til bæjarins fyrra þriðjudag
og dvelur um tíma hér hjá Skúla
Sigfússyni þingmanni og konu
hans, sem dvelja bæði í bænum um
þingtímann.
Þorsteinn Sigurðson frá Hnaus-
um var á ferð í bœnum á fimtu-
daginn og fór heim aftur næsta
dag.
Mr. Bjarnason frá Gardar, sem
nýlega var getið um í blaðinu að
farið hefði til Wynyard að finna
kunningja sína, kom þaðan aftur
fyrra miðvikudag. Hann og syst-
ir hans, sem hé'r dvaldi i bænum
meðan hann fór vestur, lögðu af
stað suður aftur á fimtudaginn.
SYRPA, fjórða hefti verður
sent kaupendum innan fárra daga.
Þeir er skift hafa um bústað síð-
an síðasta hefti kom út, eru beðnir
að gera aðvart strax. — Verð 30C.
Ölafur S. Thorgeirsson.
678 Sherbrooke St., Winnipeg.
Séra Sigurður Christophersson
kom til bæjarins fyrir tveim vik-
um norðan frá Langruth og bygð-
unum þar i kring; var hann þar á
ferð að selja ýms rit og lætur ágæt-
lega yfir viðtökunum og erindis-
lokunum. Biður hann Logberg' að
flytja fólki beztu þakkir fyrir við-
tökurnar. — Afarmikill snjór er
þar nyrðra og sagði Sigurður að C.
N.R. lestin hefði ekki gengið eftir
brautinni í 10 daga samfleytt.
Björn Stefánsson lögmaður, sem
er í hernum í Brandon, kom til
Winnipeg fyrir tveimur vikum og
dvaldi hét 1—2 dága. Hann kvað
10 íslendinga vera þar vestur frá
í hernum, en 1200 manns eru þar
alls. Bjóst hann við að þeir færu
austur í þessum mánuði eða
snemma í þeim næsta.
Sveinn Bjömsson kaupm. frá
Gitnli var hér á ferð nýlega í
verzlunarerindum og fór heim aft-
ur á miðvikudaginn.
Trausti Davidson frá Bifröst
kom til bæjarins fyrra mánudag;
segir hann að snjór sé svo mikill
þar norður frá að fádæmum sæti.
Járnbrautar lestin sem hann kom
á teftist í 10 kulkkutíma á leiðinni
í Stonewall. Davidson fór vestur
aftur á fimtudaginn.
Séra Steingrímur Thorláksson
kom sunnan frá Bandaríkjum
fyrra fimtudag; var hann að sækja
lík föður síns, eins og getið var um
áður. Hann kom til Chirago og
heimsótti þar íslendingana; C. II.
Thordarson og Ágúst Bjarnason.
og J. Halldórsson. Thordar-
son fékk skeyti á meðan
hann var þar þess efnis að koma
til Minneapolis til þess að setja
rafmagnsáhöld í háskólabygging-
arnar. Sýnir það hversu mikils
álits hann nýtur. — Séra Stein-
grimur var i- Chicago kveldið sem
Wilson forseti talaði þar, en ekki
gafst honum færi á að heyra hann.
Aðgönguseðlar höfðu verið seldir
fyrir 5000 manns, en 20,000 voru
komnir áður en hann byrjaði.
Baldvin Anderson var hér á
ferð í fyrra dag ásamt Joseph
Heglasyni með hundasleða sina.
Birtist dálítil lýsing á því síðar,
sem mörgum mun þykja gaman að
lesa.
í fjórða “broti” Þorsteins
Björnssonar er “snjórinn”, á að
yera “sjórinn”.
Þó að fönnin þreyti fót
þó að stormur syngi,
Islendingar eiga mót
uppi á Hermiþingi.
Þorleifur Jónsson frá Reykjum
i Skagafirði andaðist laugardag-
inn 29. janúar í Lögbergsbygð hjá
tengdasyni sínum Frjðrik Friðriks-
syni og Sigriði dóttur sinni. Hann
var ikominn yfir áttrætt; mesti at-
kvæðamaður í fyrri tið; hrepp-
stjóri og sýslunefndarmaður. Verð
ur hans nánar minst síðar.
Kappræða fór fram í conserva-
tive klúblmum á fimtudaginn var
og var hún ágætlega sótt. Um-
ræðuefnið var tveggja mála kensl-
an í alþýðuskólunum. Séra Rögn-
valdur Pétursson hélt með henni,
en Sig. Júl. Jóhannesson á móti,
og virtust menn skemta sér vel.
Hallsteinn Skaptason ráðsmaður
Heimskringlu stýrði fundinum.
Fundur verður haldinn föstudag-
inn 25. þ. m. á Hayland Hall,
Hayland P.O., kl. 4 e.h. Þetta
er almennur fundur til undirbún-
ings undir atkvæðagreiðsluna 13
marz. Ræðumenn verða: Paul
Reyktal, Jón Jónsson frá Sleðbrjót
o. fl. Fleira verður þar til skemt-
ana auk þess að kassar verða seld-
ir og dans á eftir.
Brynjóflur Þorláksson endur-
tekur söngsamkomu sína í Úní-
tarakirkjunni á föstudagskveldið
18. þ. m. Samkoman var vel vönd-
•:>££ jnSueSgy •umuæq 1 nao jijsaS
JI?JEUI OAS UI3S JB(J snij Ijnj BgJ3A
gB jijæ So ‘1 ireui ejuasA 80 suio gn
Vilhjálmur Einarsson
A.T.C.M.
ISLENZKUR FlOLINSKENNARl
Kenslustofa 543 Victor St.
Talo. Sherbr. 2697
Pólitísk éljadrög.
Þegar gullið gengur dræmt
úr greipum stjórna loppnum
flokka lýsnar naga næmt
nyt úr þjóðar kroppnum.
Mun það vera svinnum sæmt
að sitja á stjómar tojjpnum
vörzlu liðið frítt er flæmt
frá með “partí” vopnum.
Forðábúrið fult er tæmt
fer svo hirzlum opnum
illa er orðið ruplið ræmt
úr ríkisdala koppnum.
Þeim af verður þýfið dæmt
þó úr landi skroppnum
ef þeim verður aftur kvæmt
yfir merkin sloppnum.
/. G. G.
Red Cross.
J. H. Johnson, Hove P.O. .. *. $5.00
Kitchener lávarður
skiftir um stöðu.
Samkvæmt síðustu fréttum legg-
ur Kitchener lávarður bráðlega nið-
ur það embættij sem hann nú hefir,
og tekur við herstjóm austur á
Egyptalandi. í hans stað er sagt að
taki við yfirherstjórn Derby jarl,
sá er ráðið hefir hersöfnunaraðferð
á Englandi.
247 morð á eínu ári.
Samkvæmt nýkomnum skýrslum
sést það að 247 manns hafa verið
myrtir í borginni New York árið
1915; árið áður voru þar myrtir
257. Árið sem leið týndust þar
4439 manns, þar af hefir ekkert
frést um 829. Alls voru framdir
161,347 gælpir þar á árinu.
Gjafir til “Betel”.
Frá ónefndum í Winnipeg .. $10.00
Frá ónefndum í Lundarbygð .. 6.00
Það er athugavert við báðar þess-
ar peninga sendingar, að þær eru
auðsjáanlega frá kærleiksríkum og
trúuðum sálum. Sex dala sendingin
er frá fátækri konu, sem hún sendi
með hugheilum blessunaróskum til
Betel. Tíu dalirnir eru frá heilsubil-
uðum manni, og gat hann þess að það
væri tíundi parturinn af peningum
sem hann innvann sér við fylkisbygg-
ingarnar, en varð að hætta þegar
þegar kuldar byrjuðu fyrir alvöru
vegna lasleika, enda er gefandinn kom
inn á efri aldur og þolir illa að vinna.
Betur að hinir yngri og þeir sem
þrótmeiri eru létu sér þetta fagra
dæmi verða sér til fyrirmyndar.
G. P. Thordarson.
Gjafir til “Betel”.
Frá ónefndri konu í Seattle .. $5.00
Einar G. Thomasson, Westbourne 5.00
Mrs. B. Halldórsson, Winnipeg 10.00
H. P. Tergesen, Gimli ('vörurj 20.00
Lúðvik Laxdal, Kandahar...... .5.00
Guðjón J. Vopni, Tantallon .. 10.00
Thorsteinn Sigurðson, Tantalllon 5.00
W. H. Olson, Winnipeg........5.00
Ónefndur í Bradenbury........5.00
J. H. Johnson, Hove P.0.....10.00
Ónefnd kona.................10.00
Sigurður Antoniusson.........5.00
Fyrir alllar þessar gjafir þakka eg
innilega, fyrir hönd nefndarinnar.
J. Jóhannesson, féhirðir.
675 McDermott Ave.
BÆKUR.
Nýkomnar í bókaverzlun H. S.
Bardals
Anders Hovden; Bóndinn, saga í
ljóðum. Þýtt af Matt. Jock .35
í betri pappír...............50
Árni Garborg: Týndi faðirinn
Saga.........................35
Kynlegur þjófur, þýdd saga.......40
Valeygur Lögreglu spægjari......60
Valdimar Munkur..................75
Vladimir Níhilisti...............75
Svartfalla synir: Sögur frá
Montenegro með myndum. . .75
Sagan af Parmes Loðinbjörn......50
Safn af skrítlum og smásögum.. .25
Washington Irving, sögur frá
Alhambra, í b................40
Nasreddin, Tyrkneskar kýmisögur
í b..........................50
Miinningarrit Goodtemplara á ísl.
í gyltu bandi $1.25 í skr. b $1.50
Ljóðmæli Matt. Jock. I-V bindi'
, (1. bindi í kápu, hin öll í baádi
öll.......................$4.50
Rímur af Sörla hinum sterka......25
Saga Starkaðar Stórvirksonar.. .25
Ofurefli, Skáldsaga E. Hj. í b..$1.50
Þrjár Sögur, E. Hj. í b.......$1.00 >
Ferðaminnrngar eftir Guðmund
Magnússon
(Jón Trausti) í bandi.
Percey Sweeting frá Kandahar
kom til bæjarins á mánudaginn.
Hún er þess virði að munað sé
eftir henni samkoman i Fyrstu lút.
kirkjunni í kveld (fimtudagj. Þar
hefir sannarlega bæði verið vel til
vandað og vel æft. Auk beztu
söngkrafta sem bærinn á yfir að
ráða verða þar einnig ágætir söng-
menn annarsstaðar að, t.d. Pétur
Magnússon söngkennari frá
Chicago; munu fáir Islendingar
taka honum fram í sönglist.
CONCERT
undir umsjón söngflokksins
í Fyrstu Lútersku kirkg
Fimtudagskveldið 17. Febrúar 1916
í FYRSTU LÚT. KIRKJU
Byrjar kl. 8 síðd. Aðgangur 35 cent
PROGRAM:
HIRÐINGJARNIR THE CHOIR VIOLIN SOLO—Selected
MISS VIOLET JOHNSON
CONTRALTO SOLO — Selected............
MISS HERMAN
SONG—The Muleteer of Tarragona......Henrion
MR. PAUL BARDAL
SONG—Air from Samson and Delilah”.Saint Saens
MRS. CHRISTIE DOWLING
SONGS-*-(aJ Thou’rt like a lovely flower.Lisst
(b) Flower rain...............Schnieder
(c) In a Garden..................Hawley
MR. W. A. ALBERT
SONGS—Air from Lohengrin.................Wagner
MRS. S. K. HALL
JÓLAVÍSUR..........................Friðfinnsson
THE CHOIR
DUET—The Boys of the Old Brigade........Bonheur
Mr. W. A. ALBERT, Mr. PAUL BARDAL
QUARTETTE—Hush Thee my Baby.........Sullivan
MRS. S. K. HALL, MISS H. HERMAN s
Mr. W. A. ALBERT, Mr. PAUL BARDAL
SONG—Even bravest heart may swell....Gounoh
, MR. P. G. MAGNUS
OCTETTE—Comrades in Arms............
Messrs. STEPHANSSON, METUSALEMSSON, AL-
BERT, JOHNSON, CLEMENS, BARDAL,
THOROLFSSON, JONASSON
KANTATA—....................Sv. Sveinbjörnsson
THE CHOIR
VEITINGAR ÓKEYPIS
20,000 gestir í Winnipeg.
Hátíðavikan í Winnipeg virðist
ætla að verða býsna fjölmenn. Um
20,000 gestir úr öllum áttum eru
sagðir koninir og væntanlegir.
Winnipeg er aða 1 miðstöð sam-
gangna og skemtana, mentunar og
framfara fyrirtækja í vestur Can-
ada, og eykst aðsóknin ár frá ári.
Stórkostlegur sparnaður
Thos. H. Johnson verkamála-
rá(Sherra skýrði frá því í þinginu á
föstudaginn að tugir þúsunda dala
hefðu verið sparaðir fylkinu við
rannsóknina á lögreglustöðinni
nýju.
Samningsvinna hafði þar verið
veitt félögum af Roblinstjórninni
svo há, að engu tali tók, og lét nýja
stjórnin þessi félög skila aftur
stórum upphæðum af fénu.
Biblíufyrirlestur
verður haldinn að 804y2 Sargent
Ave. (milli Arlington og Alver-
stone stræta) miðvikudaginn 16.
febr. kl. 8 síðd. Efni: Síons
hreyfingar. Munu Gyðingarnir
safnast í Palsetinu áður en Krist-
ur kemurf,
Sunnudaginn 20. febr. kl. 4. e.
h. Verður umræðuefnið: Upphaf
syndarinnar. Kœrleiki guðs og
réttlœti birtist í striðinu minni Ijóss-
ins og myrkursins.
Inngangur ókeypis. Allir vel-
komnir.
Davið Guðbrandsson.
Hið árlega
Miðsvetrarsamsæti Is-
lendinga í Leslie
vörðup lialdið í samkomuhúslnu
í Ijeslle
Föstudaginn 18. [Febr.
Skemtiskráin v'erður fjölbreyttari
en nokkru sinni áður.
Herra Thorbergur Thorwaldsson,
prófessor, mælir fyrir minni Islands.
Herra Björn Hjálmarsson, skóla-
stjóri, mælir fyrir minni Canada.
Herra Walter Lindal, lögfræðing-
ur, mælir fyrir minni Vestur-lslend-
inga.
Auk þessa flytja ýmsir heimamenn,
sem eru alveg nýir í tölu ræðumanna,
stuttar ræður og mæla fyrir minnum.
Viðeigandi kvæði verða sungin á
eftir ræðunum undir forustu karl-
manna söngflokksins “Hekla”, sem
auk þess syngur úrvals íslenzk söng-
lög, annað slagið á meðan samkom-
an stendur yfir.
Þaulæfður hljómleikenda flokkur
skemtir gestunum og spilar við
dansinn.
Veitingar verða hinar fullkomn-
ustu og verður ýmiskonar al-íslenzk-
ur matur fram reiddur, svo sem:
Svið, kjöt, harður fiskur, slátur, skyr
og margt fleira.
Prentaðri skemtiskrá verður út-
býtt á meðal gestanna.
Aðgangur að öllu þessu verður:
$1.00 fyrir fullorðna.
$0.50 fyrir böm.
Norsk-Ameríska
línan
Ný farþegaskip með tveimur skrúfum
“KRISIIANAFJORD” og
“BERGENSFJORD”
i förum milli NewYork og Bergen i Nor>
egi. Frá Bergen eru tíðar ferSir
til Islands.
Fardagar frá New York:
"Bergensfjorcr* 16. okt.
“Kristianafjord” 6. nóv.
“Bergensfjord” 27. nóv.
“Kristianafjord” 11. des.
Skipin fara 250 mílur norður af ófrið-
ar svæðinu og fara frá New York til
Bergen á minna en 9 dögum.
Um fargjöld, lýsingar með myndum,
og s.f.v. ber að leita til.
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
C. H. DIXON,
Lögfrœðingur, Notary Public
Lánar peninga, Rentar hús,
Innheimtir skuldir
265 Portage AVe.
TalsM 1 734- Winnipefi:
Til minnis.
Fundur í Skuld á hverjum miðviku
degi kl. 8 e. h.
Fundur t Heklu á hverjum föstu- ]
degi kl. 8 e. h.
Fundur í barnastúkunni “Æskan”
á hverjum laugardegi kl. 4 e. h.
Fundur í framkvœmdarnefnd stór-
stúkunnar aftnan þriðjudag í
hverjum mánuði.
Fundur í Bandalagi Fyrsta lúterska
safnaðar á hverjum fimtudegi
kl. 8 e. h.
Fundur t Bjarma (bandal. Skjald-
borgar) á hverjum þriðjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur t bandalagi Tjaldbúðar
safnaðar á hverjum þriðjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur í Unglingafélagi Onítara
annanhvorn fimtuaag Ki. 0 e. n.
Fundur í Liberál klúbbnum á hverj
um föstudegi kl. 8 e. h.
Hermiþing Liberal klúbbsins. á
hverjum mánudegi kl. 8 e. h.
Fundur í Conservative klúbbnum á
hverjum fimtudegi kl. 8 e. h.
Járnbrautarlest til Islendingafljóts
á hverjum degi nema sunnu-
dögum kl. 2.40 e. h.
Járnbrautarlest til Arborgar á
hverjum degi nema sunnudögum
kl. 5.40 e. h.
Járnbrautarlest til Vatnábygða á
hverjum degi kl. 11.40 e. h.
STEARN’S
Wine of Cod Liver Oil
hefir í sér fólgin öll þau efni
sem hreint lýsi hefir en þó
bragðgott. Það hefir styrkj-
andi áhrif. Er bezta meðal
við öllum háls- og lungna-kvill-
um af hvaða tagi sem er.
VERÐ $l,oo
FRANKWHALEY
JP«0£ription úrnggtst
TALS. G. 2252
Royal Oak Hotel
GHAS. GUSTAFSON, Eigaodi
Eina norræna hótelið f bænum.
Gisting og máltfðir $1.50 á dag
Sérstakar máltíðir 35c.
Sérstakir skilmálar fyrir stöðuga gesti
281-283 Market St., Winnipeg
Eruö þér reiöubúnir
aö deyja?
ef ekki, þá finnið
E. H. Williams
Insurance Agent
806 Lindsaj Block
Phono Maiti 2075
Umboðsmaður fyrir: The Mut-
ual Life oí Canada; The Dominion
of Canada Guar. Accident Co.; og
og einnig fyrir eldsábyrgðarfélög,
Plate Glass, Bifreiðar, Burglary
og Bonds.
Matreiðslu-stór
úr járui og stáli
Nýjar—& öllu verði.
$1.00 við nióttöku og $1.00 á vlku
Saumavélar, brúka'Sar og nýjar;
mjög auðveldir borgunarskilmálar.
Allar viðgerðir mjög fljótt og v*l af
hendi leystar. pér getið notað hif-
relð vora. Phone Garry 821.
J. E. BRYANS,
531 Sargent Ave., Wlnnipeg.
H. EMERY,
hornl Notre Dame og Gertie sns.
TALS. GARRY 48
ÆtliS þér að flytjá ySur? Ef
yður er ant um aS húsbúnaSur
ySar skemmist ekki I flutningn-
um, þá finniS oss. Vér leggjum
sérstaklega stund á þá iSnaSar-
grein og ábyrgjumst að þér verS-
iS ánægC. Kol og viSur selt
lægsta verSi.
Baggage and Express
ORPHEUM.
Claude Gillingwater ásamt fleir-
um, verður á Orpheum næstu viku
“The Decision of Governor
Looke” eftir Ethel Clifton og
Brenda Towler, er sjænnandi
stjómmála leikur. Er þar sýnt
hve langt menn fara til þess að
koma fram máli sínu.
“An Oriental Betrothal” heitir
annar leikur, ekki síður aðlaðandi.
DOMINION.
“Merely Mary Ann” heitir leik-
ur sem þar verður sýndur, er það
nokkurs konar ástaleikur eftir
Israel Zangwille, þar sem alt það
fegursta og göfugasta í ástalífi er
dregið fram.
Auk þessa verða þar betri söngv-
ar og vandaðri hljóðfærasláttur
þessa viku en nokkru sinni áður.
PANTAGES.
“September Morn”, sem hefir
verið sýndur um alla Ameríku,
verður á Pantages næstu viku og
mælir sá leiikur með sér sjálfur.
“The Frame-up” er annar leik-
ur, sem hefir áunnið sér mikið
nafn hvar sem hann hefir verið
leikinn.
Ýmislegt verður þar fleira sem
of langt yrði upp að telja.
TVO KENNARA vantar við Norð-
ur-Stjömu skóla No. 1226, annan með
2nd, en hinn með 3rd Class Certi-
ficate.
Kenslutíminn er sjö mánuðir, frá
1. apríl til 1. des. næstkomandi. Frí
yfir ágústmánuð. Tilboðum sem til-
taki kaup og æfingu, verður veitt mót-
taka af undirrituðum til 1. marz.
G. Johnson, Sec. Treas.
Stony Hilll, Man.
“Islendingar viljm vér allir verá’
KENNARA vantar fyrir Vallar
skóla No. 1020. Kenslutími átta
mánuðir og byrjar i. apríl. Send-
ið tilboð til undirritaðs og tilgrein-
ið kaup, mentastig og æfingu.
T. Bjarnason.
Gerald, Sask.
KENNARA vantar fyrir Thor
skóla No. 1430, Umsækjandi verð-
ur að hafa fyrsta eða annars stigs
kennaraleyfi fyrir Manitoba.
Kenslutími eru 8 mánuðir, frá 1.
apríl til 1. desember.
Tilboðum verður veitt móttaka
til 20. marz af undirskrifuðum.
Eðvald Ólafsson, Sec. Treas.
Baldur P.O., Box 273.
KENNARA vantar fyrir West-
side skóla No 1244, fyrir 8 mánuði.
Kensla byrjar 1. apríl n.k. Kennari
verður að hafa 2nd Class Certific-
ate. Umsækjandi tilgreini kaup,
sem um er beðið og'æfingu sem
kennari. Tilboð verða að vera kom-
in 10. marz.
Skúli Björnson, Sec Treas.
Box 35, Leslie, Sask.
VJER
KAUPUM
SEL.TUM OG SKIITUM
GÖMUL
FRIMERKI
írá ölluni lönduni nema, nema ekki
þessi vanaleiru 1 og 2 e. frá Uanada
og Bandaríkjiinuin. Skrifið á ensku.
O. K. PRESS, Printers,
Rm. 1 334 Main St. Winnipeg
Phone Sherþr. 268 og 1130
Horni Sargent og Agnes St.
KENNARA vantar við “Nordra”
skófa Nr. 1947, Wlyniyard, Sask.
Umsælkjandi tilgreini mentastig og
kaup. Skólatíma, níu mánuðir, skal
byrja um eða eftir 15 Marz. Tilboð-
um > v’eitt móttaka til 20. Febr. 1916.
S. B. Johnson,
...... Sec.-Treas.
KENNARA vantar fyrir Vestri
skólahérað No. 1669 um þriggja
mánaða tíma, frá 1. apríl til 1. júlí
1916. Umsækjendur þurfa að hafa
Third Class Professional Certific-
ate. Tilboðum sem tiltaka menta-
stig og kaup, verður veitt móttaka
af undirrituðum.
G. Oliver, Sec Treas.
Framnes P.O., Man.
KENNARA vantar fyrir Vest-
fold skólahéraði No. 805. Kenslu-
timi frá 1. apríl til 31. október, að
undanskyldum égúst mánuði.
' Kennarinn verður að hafa 3rd
Class professional certificate. Lm-
sækjendur tiltaki kaup sem óskað
er eftir, einnig æfingu við kenslu.
Vestfold, 2. febr. 1916.
A. M. Freeman, Sec. Treas.
KENNARA vantar fyrir Valhalla
skóla Nr. 2062. Annars stigs kennara
próf nauðsynlegt; einnig hljómfræð-
is þekking, ef hægt er. Skólinn
byrjar 1. Apríl. Gef mentastig og
meðmæli, þegar sótt er um.
T. T. Hart, skrifari,
Leslie, Sask.
Lœrið símritun
Lærifc sirnritun: jArnbraulnr og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdeildir.
Einstaklings kensla. SkrifiÖ eft-
ir boðsriti. Dept. "G”, Western
Schools. Telegraphy and Rail-
roading, 007 Iiuilders' Exchange,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
Öryggishnífar
•afety skerptir «**ors
Ef þér er ant um að fá góða
brynslu, þá höfum við sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhní.fa og skæri. “Gilett’s” ör-
yggisblöð eru endurbrýnd og “Dup-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar vér höfum endurbrýnt
blöðin. — Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Hazor & Stiear Sharpening Co.
4. lofti, 614 Buildera Exchang:#* Grinding Dpt.
333i Portage Are., Winnipeg
Ef eitthvað gengur að úrinu
þínu þá er þér langbezt að senda
það til hans G. Thomas. Hann er
í Bardals byggingunni og þú mátt
trúa því að úrin kasta ellibelgn-
um í höndunum á honurn.