Lögberg - 14.09.1916, Side 1

Lögberg - 14.09.1916, Side 1
Peerless Bakeries Heildsöluverzlua Búa til beztu tegundir af sœtabraufSi. Ekkert sparað til að hafa það »em ljúffengast. Giftingar kökur búnar og prýddar aérataklega vel af manni »em er meistari iþeirri ðn. Kringlur og tvíbökur einnig til »ölu. Pantanir fr á verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar. C. HJALMARSON, Eigandi, 1156-8 Inaersoll 8t. - Tals. G. 4140 29. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FfMTUDAGINN 14. SEPT. 1916 NÚMER 37 QUEBEC BRÚIN HRAP-f AR I ANNAB SINN Níu manns missa lífið. Brúin vóg 5100 smá- lestir. Stykkið sem í ána fór kostaði $500,000. Sama brúin hrapaði árið 1907, þá fórust 70 manns og skaðinn metinn um 2 miljónir. f fimm sííastliðin ár hefir staöiS yfir bygging' eins hinna mestu mannvirkja í heimi, þar sem veriS var aS smíSa brú yfir St. Lawrenre fljótiö í Queber. Hún var svo a8 segja fullgerö núna á mánudaginn og átti þá aö setja í skoröur miðstykkiö, sem var úr stáli og vóg 5100 smálestir. Þegar alt var komiö í skoröur féll þetta heljarbákn ofan í ána, sem er 200 feta djúp þar, og fórust 9 manns en margir meiddust. Sagt er aö brúin sé sú lengsta í heimi af sömu gerð; Forth brúin á Skot- landi er sú næsta. $17,000,000 er sagt að brúin kosti öll og er þetta eitthvert alvarlegasta slys sem fyrir hefir komiö af sömu tegund, sér- staklega þegar þess er gætt að þetta er i annaö skifti sem þessi sama brú hrynur. Þaö var áriÖ 1907 sem hún hrundi í fyrra skiftiö og varö þá 70 manns aö bana og meiddi fjölda fólks. Þúsundir manna voru viöstaddir þegar þetta slys vildi til í bæöi skift- in, því það þótti heimsviðburður aö þessi brú fullgeröist. Enn þá er ekki fullljóst hver or- sök hefir verið fyrir þessu slysi, en verið er aö rannsaka þaö. Skuldir Canada. Þær eru nú orðnar 658,620,270.- 00 ósex hundruð, fimmtíu og átta miljónir, sem 'hundruð og tuttugu þúsundir, tvö hundruð og sjötiu dalir). Þær hafa vaxiö um $186,- 212,385.00 árið sem leið og um $23,417,356.00 síðan i júlí i sumar. Skuldir ríkisins hafa svo að segja tvöfaldast síöan striðið byrjaði. Útgjöldin í ágústmánuði voru $10,- 693,916.00 og er það 1,200,000.00 hærra en útgjöldin i sama mánuði í fyrra. Útgjöldin í sambandi við stríöið voru í ágúst $24,986,758.00 eða hátt upp í miljón dali á dag. Uppreistarandinn á Irlandi. Blaðið “London Times’’ segir frá þvi 8. ágúst að uppreistarandinn á írlandi aukist og útbreiðist svo aö ótrúlegt sé. Uppreistarræður séu fluttar við öll möguleg tækifæri; uppreistarmyndir sýndar; uppreist- arsöngvar ortir og sungnir á öllu austur og suðaustur írlandi. Eitt stórstiyið enn. Hefnry Ftord hinn mikli umbóta- maður hefir stigið eitt sporið enn, sem ekki er litils virði. Eins ,og allir vita, er það siður bifreiðafé- laganna að láta einstöku menn í hverjum stað hafa einkasölurétt. Nú hefir Ford hætt þeirri reglu og tekið upp þann sið að hvaða áreið- anlegur maður sem er og eins marg- ir og vera vilji geti selt bifreiðar hans. Kveður hann það ósanngjarna einokun og ranglæti að útilöka nokkurn mann frá verzlun og veita öðrum einkaréttindi. Ford lét smíða ágætar bifreiðar eigi alls fyrir löngu sem hann selur fyrir minna en $500, og var því spáð af hinum sem við hann keppa að hann mundi tapa á því og verða að hækka verðið ; en því fer f jarri; nú er alt útlit til að hinir verði að feta í fót- spor hans í þessu sem öðru. Ford stígur hvert sporið öðru stærra til þess að bæta kjör verka- lýðsins og er það eins dæmi um mann i hans stöðu. ókeypis útsæði. Búnaðarráðherrann í Ottawa hefir lýst því yfir að í vetur og vor verði útbýtt sérstaklega góðri teg- und af útsæði fyrir korn og kart- öflur. Það verða þessar tegundir: Vorthveiti, 5 pund, hvítir hafrar 4 pund; bygg 6 pund. SömuleiðL 3 pund af kartöflum frá tilraunabu unum. Alt þetta verður sent með pósti kostnaðarlaust. Um að gera að senda pantanir nógu snemma og ættu íslendingar ekki að Iáta hjá liða að nota sér þetta því það getur yerið þýðingarmikið þegar fram i sækir. Canadamenn í sjóliðið. J. D. Hazen flotamálarábherra í Canada hefir lýst því yfir að nokk- ur þúsund manns héðan hafi veriö boðin ensku stjórninni í sjóliðið og hafi því boði verið tekið. Verði þvi bráðlega farið að safna aukaliði til þess út um alt land. 15 börn veik í Manitoba Samkvæmt skýrslu heilbrigðis ráðsins í fylkinu hafa þegar 15 börn veikst af máttleysis plágunni, en aðeins eitt dáið. Heilbrigðisdeild- in álítur þó að lítil hætta sé á út- breiðslu vei-kinnar, sérstaklega vegna þess að hitatíminn er liðinn. Alvarleg villa. Þáð iktemur fyrir einstöku sinn-, um að blöðum yfirsést. Þannig var það með blaðið “Daily Mail” á Englandi 29. ágúst. Á öftustu síðu blaðsins birtist stór mynd af manni í sjómannafötum með sjómanns' /húfu á höfði. Yfir myndinni stóð prentað “Lusitaniu morðinginn”, en undir henni: “Max Valentiner skipstjóri”. Sagt er að myndin hafi verið svo einkennilega glæpamanns- leg að aldrei hafi sést ljótara andlit á lögreglustöðvum á Englandi. En svo segir sagan að þegar til kom hafi myndin alls ekki verið af Valentiner skipstjóra, heldur af Corneliusi Vanderbilt. Hafði myndin verið tekin fyrir skömmu þar sem hann var í skemtiferð á siglingaskútu sem hann á. Sagt er að afar mi'kið skaðabóta- mál hafi verið höfðað gegn útgef- endum blaðsins. Uppreist í S. Afríku. Enn á ný hafa komist upp tilraun- ir til uppreistar gegn Bretum í Suður Afríku. Var uppreistar for- ingi þar tekinn fastur, er Vader Merwe heitir og annar sem heitir Schowen. Voru þeir kærðir í Bloomfontain fyrir það að hafa gengið í samsæri til landráða. Komst það upp að þeir höfðu reynt að fá í lið nteð sér marga leiðandi menn; þar á meðal De Wet herfor- ingja, og sagt þeim að tilbúið væri heilmikið af byssum og skotfærum og að vissir Búaforingjar væru viljugir að stjórna uppreistinni. Rannsókn i málnu stendur yfir. Gullfoss. Símskeyti kom frá íslandi í fyrradag, þar sem Áma Eggerts- syni fulltrúa gufuskipafélagsins hér er tilkynt að Gullfoss hafi farið frá Reykjavík 10. sept. og fari frá New York um 2. október. Allir þeir sem hugsa sér að fara heim með skipinu ættu að kaupa sér far- bréf eða skrifa Árna Eggertssyni sem allra fyrst, því svo getur farið að menn verði af ferð ef ekki er alt í röð og reglu i tæka tíð. Fyrir unglinga innan tólf ára verður að greiða hálft fargjald. Símskeyti kom til Arna Eggerts- sonar í gær ('miðvikud.J þar sem frá því er sagt að menn geti sent bréf heim til íslands með Gullfossi, en utan á þau skrifist þannig: “Via Gullfoss, per Bennett Hvosles' & Co. 18 Broadway N.Y. — Takið eftir l>essu og kaupið farbréf sem allra fyrst. Hjálmar Gíslason og Ingunn Baldvinsson voru gefin saman í jhjónaband 7. þ. m. af séra Rögn- valdi Péturssyni. Fróðleg skýrsla.! í búnaðarskýrslum Bandaríkj- anna nýútkomnum er þetta meðal annars. Eftir öllu útliti að dæma fyrsta september er áætlað að uppskera verði sem hér segir: Vorhveiti .. .. 156,000,000 mælar Alt hveiti .. .. 611,000,000 — Mais...........2,710,000,000 — Bygg.............184,000,000 — Hafrar . . . . 1,231,000,000 — Hitar og þurkar í ágúst eyðilögðu 67,000,000 mæla af maís, 43,000,000 af höfrum, 46,000,000 mæla af kartöflum og 43,000,000 mæla af höfrum, en aftur jók sú veðurátta ióbaksuppskeru um 2,000,000 pd. Vorhveitisuppskera í Bandaríkj- unum er 46% af venjulegri upp- skeru, eða tæpir 9 mælar af ekrunni.' Hveiti uppskera alls 12 mælar af ekrunni. Maís uppskera 71% eða 25 mæl- ar af ekrunni. Hafrar 78% eða 30 mælar af skrunni. Bygg 74% eða 24 mælar af skrunni. Hitamir og þurkarnir eyðilögðu enn fremur 11,000,000 mæla af byggi, 1,400,000 mæla af grjónum, 1,100,000 bindi af bómull og 3,900,000 tunnur af kartöflum. I fyrra var alt hveiti Bandaríkj- anna 1,000,000,000, en 738,000,000 að meðaltali i síðastliðin 5 ár. Tóbaks, grjóna og hey uppskera er talsvert meiri en nokkru sinni áður, en kartöfluskortur er fyrir- sjáanlegur, eftir því sem skýrslurn- ar segja og hveita verður svo lítið að ekkert verður til útflutnings af því. Atkvæði kvenna. Konur í Bandarikjunum hafa lengi barist fyrir jafnrétti eða at- kvæðisrétti, en það hefir gengið líkt og hér. Mieira að segja Wilson for- seti, sem í flestu hefir komið fram bæði viturlega og mannúðlega hefir við ýms tækifæri breytt öðruvisi en góðum stjórnanda sómdi í því máli. Þánnig hefir hann daufheyrzt við nefndum frá kvenfélögum sem krafist hafa réttarbóta og jafnvel ekki virt þær svars. En þetta er að smá færast í lag. Wilson hélt ræðu á föstudaginn var í Atlantic City á þingi þar sem rætt var um jafnrétti kvenna: “Eg er hér kominn til þess að berjast með ykkur”, sagði hann; og þóttu það vera gleðifréttir ekki litlar. Fjögur þúsund kvenna voru á þinginu og var Dr. Anna Howard Shaw heið- ursforseti. Stóð hún upp tafarlaust þegar Wilson hafði lokið máli sínu og mælti á þessa leið: “Vér höfum biðið nógu lengi með þolinmæði eftir atkvæðis rétti; en nú kref j- umst vér hans tafarlaust. Vér krefjumst hans á meðan þú situr við völd.” Mrs. Corrie Chapman Colt for- geti félagsins mælti: “Þú snertir við hjartastrengjum vorum, hierra forseti, þegar þú lýstir því yfir að þú værir hér kominn til þess að berjast með oss; og sé það í alvöru jalað hefir þú unnið mi'kið með þvi.” Wilson talaði ekki greinilegar um málið; en þetta er alment þannig skilið að konum verði veitt atkvæði ef Wilson nái kosningu. Hughes þefir þegar lýst því yfir að hann sé m]eð atkvæðisrétti kvenna og er þeim eftir því trygður sigur í baráttunni hvernig sem fer. Tvöföld laun. Úrskurður hefir fallið í ]>á átt að bæjarráðsmenn, sem farið hafa i striðið geti tekið tvöföld laun; fyrst hinn venjulega mála og eins bæjarráðslaunin, þótt þeir yfirgefi embættið. Ekki er of þung byrðin á fól'kinu þótt á hana sé bætt með öllu móti. Þinghússprengingin. Þvi var lýst yfir í Lögbergi ný- lega hvernig stjórnin hefði látið sprengja þinghúsveggina i Ottawa. Var þar farið um það miklu mild- ari orðum en í mörgum öðrum blöðum landsins, þar á meðal “Tribune”. En Heimsk. “fitjar upp á það” síðast og vill reyna að telja mönn- um trú um að stjórnin sé ekki sek um það sern á hana er borið og hér sé um ekkert athugavert að ræða. Fíflalátum blaðsneypunnar í sam- bandi við þetta efni skal hér ekki svarað, en sökum þess að hér er um alvarlegt mál að ræða sem snertir þjóðina í heild sinni, og sökum þess enn fremur að Lögberg er blað sem lætur sig varða heill almennings, þá telur l>að sér skylt að segja sann- leikann í því sem öðru, og draga enga fjöður yfir. Til þess að þeir geti sannfærst sem sannleika unna í þessu máli, skal þeim bent á ritstjórnarsiður blaösins “Tribune” 4. ágúst í sum- ar. Þar er saga málsins greinilega sögð og “|Tribune” er af öllum sann- gjörnum mönnum viðurkent óháð blað og alls ekki óvinveitt Borden- gtjóminni. Sannleikur málsins er sá að eftir brunann voru útnefndir af Robert Rogers tveir 'byggingameistarar til þess að skoða þinghúsið og koma með tillögur um hvað gera skyldi; þetta var síðast í febrúar í vetur. Þ'eir gáfu þær skýrslur að þeir hefðu skoðað byggingarnar ná- kvæmlega og sannfærst um að meiri hluti bygginganna eins og þær stæðu hefðu ekki orðið fyrir nein- ym verulegum skemdum. I skýrslu þeirra er þannig komist að orði: “Byggingin, eins og hún nú stendur, er virði fullkomlega $2,- 000,000 (tveggja uiljóna dollara) í efni og vinnu, sem hægt er að nota. Ytri veggirnir þurfa aðeins lítil- fjörlegra aðgerða og þegar það er gert sjást engin merki þess að nokk- um tima hafi brunnið.” Vill Heimsk. bera á móti því að þetta sé rétt og orðréltt þýðing úr opinberri stjórnarskýrslu sem bygg- ingameistararnir Úve>r) sambands- stjórnarinnar gáfu eftir nákvæma rannsókn? Vill hún virkilega gera það? Þegar þetta álit byggingameistar- anna var komið var skipuð nefnd til þess að standa fyrir viðgerð þing- hússins, í henni voru fulltrúar bæði stjórnarinnar og liberala. Þessir voru í nefndinni: Robert Rogers, J. D. Reid, P. E. Blondin, J. D. Hazen ráðherrar og I.ong'nead úr öldungaráðinu. Þessir allir eru fulltrúar stjórnarinnar; en fyrir liberala voru: William Pugsley, Rudolph Lemioux, Watson og Charles' Murphy. Liberal fulltrúarnir kröfðust þess tafarlaust að látið yrði bjóða í við- gerðina á þinghúsinu; en Rogers nehaði þvi með öllu og félagar hans; kváðu þeir þetta vera aðeins aðgerð en ekki byggingu og því ó- þarft að auglýsa eftir tillx>ðuni. Var það svo samþykt í nefndinni með meiri hluta atkvæða að ekki skyldi auglýst eftir tilboðum. Rogers samdi því næst við s'inn pólitiska vin Lyall að gera við hús- ið. Átti hann að fá $80 af hverju þúsundi sem kostað væri til húss- ins í efni og vinnu auk kostnaðar- ins sjálfs; félagið rnátti vera eins lengi og því sýndist og átti að fá $200 á ári af hverju $1000 virði í verkfærum sem notuð væru við verkið, eða með öðrum orðum $1200 fyrir hverja $1000 sem verk- (færi kostaði í sex ár og eiga verk- færin eftir sem áður. Þetta atriði hefir áður verið skýrt i Lögbergi og skorum vér á Heimsk. að sýna fram á eina einustu staðhæfingu, þar sem hallað sé máli í því efni. Svo vita menn ekki fyr til en að einn góðan veðurdag heyrast dynkir og dunur, skothríðar og sprengingar og þinghúsveggirnir og allar byggingamar eru sprengd- ar upp ögn fyrir ögn. Liberal fulltrúar nefndarinnar kröfðust skýringar á þessu athæfi. Hafði Rogers kallað fulltrúa blaðanna að rústunum eftir spreng- ingarnar, sagt þeim að hann hefSi Játiií gera þaS meS ráfii samnefnd- ar manna sinna. Þetta var snemma í júlí mánuði. En þegar nefndarmenn neituðu ^ð þeir hefðu haft hugmynd um þetta verk eða gefið samþykki sitt til þess, þá kemur hik á Rogers og kennir hann þá byggingarmeistur- unum um það og sagði að það vœri alvarlegt rnál sem þcir yrðu að gera grein fyrir. Þetta var 21. ágúst. Byggingameistaramir heita Pear- son og Morchand. Þáma ber hann tvær sögur um sama efni alveg hvora á móti annari. Lögberg skorar á Heimsk. að benda á það ef hallað er sannleika j þessu máli. Þessu reiddust fulltrúar liberala í nefndinni, sem von var, og hafa þeir sagt af sér hver af öðrum. Heimtuðu þeir nú að Lyall væri borgað fyrir að hafa sprengt upp bygginguna og verkið svo auglýst til útboðs. Þ'essu neitaði Rogers og fylgi- fiskar hans með öllu og vildu á ekk- ert annað hlusta en láta Lyall hafa alt saman útboðslaust. Og Lyall fær ekki einungis samning fyrir $2,000,000 viðbót, heldur eru 8% af þeirri auka upphæð $160,000. Og svo segir Heimsk. að þetta hefði ekki getað haft neina þýðingu. Þeir sem yfir kosningasjóði ráða hafa ef til vill aðra skoðun. Þeir sem fylgst hafa með atferli Mani- toba stjórnarinnar gömlu í sam- bandi við þinghússamninginn hér og kosningasjóð, þeir skilja það að þessi endurbygging og sprenging er ekki tilgangslaus. Vill nú Heimsk. benda á eitthvað rangt í þessu? Svar! „Heimafáninn^ — Erindi, 2. ág. 1916. Markerville, Alberta. — Heiðraða hé'raðsfólk l Forseti ræðuhaldanna hefir mælst til þess af mér, að eg fagnaði með nokkrum orðum fánanum nýja, þessum íslenzka, sem nú blaktir hér við hún, í fyrsta sinn, svona gerð- ur. Eg færist aldrei undan, ef á mig er skorað, að segja upp allan hug um það, sem mér þýkir eihvers vert. Fáni er þjóðar-þörf, á erlendum almenningi, þeim lýð sem fer landa milli. Á því almanna-móti er hann heimilistákn þeirra sem með hann fara.' Með honum á að spyrjast, eins fljótt og augað eygir, hverjir gestir undir honum búi, og hvar sá, siem gengur einn á erlendum öræf- um, megi hitta á sina sveit. Þessi islenzki fáni er þó ekki orð- inn þetta enn, svo uppi þyki meiga halda, jafn fánýt fyrirmunun eins og það er. Eins og íslendingar áð- ur stundum, siglir hann í konungs- banni, ef hann leitar út fyrir land- steina. Hér má hann þó veifa sér í vinahóp. Þó er þannig með þjóðfána, að út úr fylgisvip þeirra les hugsandi hugur, ekki einungis hvað þeim sem flíka honum, sé vel gefið, heldur lika nokkuð af hinu, sem 'þeim kann að vera áfátt í. I þá ætt er íslenzka fánanum einn- ig skotið. Það verður honum til menningar- brags metið, að hann fer svo prúð- Jega í fánaþvögu grann-þjóðanna, ,að hann þekkist varla frá þeim sem kallast kynstærri og óteljandi hönd- ur hafa til að halda sér uppi. En hitt ferst samt hjá, að hann sverji sig í sveitina þá, með höfð- ingjasvipnum þeim sem sker sig ■skírt úr, vekur á sér athygli hvar sem hann fer, og verður mönnum piinnis'stæður. í svona fána hefir Ingveldur allra-systir ofið, en ekki Bergþóra. krossmörkin i íslenzka fánanum eru hreinni en flestra hinna þjóð- anna, sem hafa gert þau að goðgá, mieiri en mistilteinn hefir orðið heiðnum sið. Allar helztu þjóðir heimsins hafa merkt sína fána á undan íslending- um, og valið í þá alt sem þeim virt- ist eigulegast, jafnvel sól og mána og stjörnur himins. Enn eru 'þó norðurljósin ótekin frá norðurljósa landinu, og friðar- boginn, fjölskreyttari en jafnvel þríliti krossinn, prýði lofts, láðs og lagar, eins víða og regn fellur og sól sér. — Hann hefir engínn hrifsað af þeirri þjóðinni siem fer um allan heim með friði. Þó er það síður fáni þessi, frem- ur er það fólkiö, sem að undir hon- um gengur, sem við fögnum hér í ,dag, við, sem höllumst upp að öðru merki. Við treystum því, að enginn óréttur, erlendur né innlendur, þori nokkru sinni að þurka blett af brandi sinum í íslenzkan fána, af því að hann sjái fyrir, “að undir þeirri blæju muni búa sinn höfuð- bani”. 1 Við vonum, að undir islenzkum fána vaxi allra manna ^elmegun.— Sá mannskapur, sem enga lund hefir til að lítilþægja nokkuð það, sem hver frjáls þjóð á a^ vera ein- ráð um. — Sú framför, sem i heims- fylkingu sannrar mannkynsmenn- ingar, aldrei þarf að bera fána sinn á flótta. Verði ætíð frjálst og frítt undir fána íslendinga. Steþhan G. Stephansson. Siðbótafélögin. Þing fyrir alla Canada ætlaði siðbótafélagið að halda í Toronto 18. september til þess aðallega að ræða um það, hversu ófullkomin þau lög séu sem fylkin hafa völd til að samþykkja, um takmörkun vínverzlunarinnar. Þiessu þingi hefir nú verið frestað um óákveð- inn tíma. Frakkar vinna enn á ný stórsigur við Somme Stöðuyir vinningar á vestur og austur hlið. Can- adamenn komnir til Somme, þar sem harð- ast er uú barist. Búist við einhverju sögu- legu á næstu sex vikum. Sigur bandamanna heldur stöð- ugt áfram á vestur hersvæðinu; hafa Frakkar þar brotið herlínu Þjóðverja, tekið heilmikið af skot- gröfum og þúsundir fanga. Er sagt að keisarinn sé sjálfur kominn þangað til yfirstjómar og eigi nú að taka lið frá öðrum stöðum. Hafa bandamenn komið sér saman um að fara hægt en stöðugt í árás- um sinum, fóma sem minstu af mönnum, en standa fastir fyrii* sem veggur, þar sem reynt sé að ráðast á, en þjappa svo stöðugt að og sækja á með þunga. Svo segja fréttir að austan að Falkenhaven hafi verið settur frá aðalherstjóm Þjóðverja og Hind- enburg tekið við sökum þess að hinn: fyrnefndi hafi haldið því fram að Þjóðverjar ættu aðeins að láta hina sækja á en verjast sjálfir, og með því gætu þeir haldið út þótt stríðið stæði yfir i fjórðung aldar, en Hindenburg kvað það ósæmilegt manndómi Þjóðverja; þeir ættu að sækja á hlífðarlaust og hafi keisar- inn fallist á mál hans. Venezelos hefir gefið út heilmikla ifirlýsingu, þar sem hann kveður Grikki vera skylduga að fara í strið- ið með bandamönnum ef þeir eigi ékki að fremja sjálfsmorð sem þjóð “Eftir stríðið verður gríska þjóðin annars hundur” segir hann, “sem stendur utan veggja ráðhússins og sníkir bein, sem undir hælinn er lagt að hann fái. David Livingstone Allir hafa heyrt getið um hinn ynikla og fræga mann David Living- stone. Æfisaga þess manns er af- ar merkileg. Hann var fæddur af fátæku fólki á Skotlandi; alinn upp í svo mikilli fátækt að hann varð að fara í vinnu þegar hann var bam til þess að hjálpa foreldrum sínum. Saga hans lýsir því hvemig menn geta komist áfram í gegn um alla erfiðleika ef ekki brestur dugnað og sjálfsafneitun. Livingstone varð snemma svo bókhneigður að hann ,varði öllum frístundum sínum til Jesturs—las þegar aðrir sváfu. 27 ára gamall fór hann í trúboðsferð til mið-Afríkn og eyddi þar allri æfi sinni svo að segja. í fjögur hundruð ár hafði þræla- verzlun átt sér stað þar syðra; sam- vizkulausir f járgróðamenn höfðu farið þangað og tekið fólkið tugum þúsunda saman, rekið það í stór- hópum þangað sem það komst ekki undan, bundið það, flutt í burtu og selt í þrældóm eins og skepnur, nema hve miklu ver var farið með það en víðast er farið með skepnur nú. Það erátakanlegt að lesa frásögn Livingstons um þetta efni. Saga hans segir frá því hvernig hann fann heil héruð í Afríku, heilar ár og stórvötn, sem enginn vissi um áður. Hún getur þess hvilikar hörmungar hann varð að þola þar syðra meðal viltra þjóða; hversu villimennimir hræddust hann fyrst og hversu vel honum tókst að gera þá alla að vinum sinum. Hann var fyrst þar syðra með konu og bömum, en síðar lét -hann fjölskyldu sina fara lieim og var sjálfur eftir syðra og komst þá í óheyrðar raunir. Hann hóf reglu- Jegt stríð á móti þrælasölunni og á heimurinn honum þar mikið að þakka. Það er svo margt í sögu Livingstons sem gagntekur lesand- ann að fáar bækur eru áhrifameiri. Alls konar sagnir um viðureign hans við óargadýr, þar sem hann beinbrotnaði og stórslasaðist; alls konar hættur af völdum villimanna. AJls konar þrautir á ferðalögum; hjátrúarsögum viltu þjóðanna o. fl., o.fl. En tveir kaflamir eru þó áhrifamestir; það er þegar Stanley finnur Livingstone gamlan og hrör- legan, eftir langa leit; þegar hann flytur honum stóran bréfabunka og hann leitar og aðskilur öll þau bréf- in sem voru frá bömum hans, sem hann hafði ekki séð svo árum skifti. Hinn kaflinn er frásögn villimann- anna og þjóna Livingstons um dauða hans, því hann lét líf sitt þar syðra. Livingstone var bæði trúboði, læknir og landkönnunarmaður og þeir sem lesa vilja sannmentandi bók ættu að lesa æfisögu hans. Aðalatriðin úr þessari sögu verða sögð í kveld (fimtud.) í Fyrstu lút- kirkjunni og 40 myndir sýndar í fullri stærð og réttum litum sem s'kýra líf þessa heimsfræga manns og svo að segja gera manni mögu- legt að lifa með honum í anda. Komið á þessa samkomu. Landi vor Ámi lögmaður Ander- son hefir verið kosinn í stjórnar- nefnd Wesley skólans. Það er heiður honum og oss og Lögberg samgleðst. 108. herdeildim fór austur kl. 3 aðfaranótt miðvikudagsins. Þar eru flestir íslendingar. — Farið vel landar og komið heilir með heiðri! Frá íslandi. 100 ára afmæli bókrmentafélags- ins var hátiðlegt haldið í Reykjavík 15. ágúst. Þar var sunginn heil- mikill kvæðaflokkur eftir Þorstein Gislason, sem birtist í næsta blaði. Björn M. Olson prófessor var kos- inn forseti félagsins. Svo skifti um tíðarfar 15. þ.m. að þá kom sólskin og þurkar um alt suðurland, alt vesturland og nokk- urn hluta norðurlands, og ágætis tíð segir Lögrétta 18. þ.m. Látinn er Jón hreppstjóri Halls- son á Smiðjuhóli i Álftaneshreppi á Mýrum. BITAR 1 Hafið þið tekið eftir stóru götu- auglýsingunni, sem “Telegram” hefir fest upp? Þar er rauður skjöldur og á hann skráð stóru letri: "öannleikur í auglýsingum”. Skyldi það eiga að þýða að hér eftir ætli blaðið að segja satt í auglýs- ingum en halda áfram gömlu að- ferðinni i öllu öðm? — Jæja, betra er lítið en ékki neitt. Hemiennimir frá Winnipeg leggja fúslega lífið í sölumar á Frakklandi. Er hægt að segja sama um konurnar þeirra í Winnipeg? Heimsik. þykir það heimskulegt að halda að Rogers hafi sprengt eða látið sprengja þinghúsið i Ottawa, þar eð tilgangurinn hafi ekki getað verið annar en aðeins að vinna verkið. Gat ekki tilgangur- inn verið sá sami og hann var hjá Roblin þegar hann eyðilagði átta hundruð þúsund dala samninginn? Svar! “Án fólksins væri landið einskis ,virði”, sagði séra Guðmundur Árnason. Það kemur illa heim við kenningar þeirra sem segja að vér eigum alt landinu að þakka, en ekk- ert sjálfum oss. í júlí mánuði kallaði Robert Rogers blaðamenn til þess að sýna þeim þinghúsið eftir sprenginguna og sagðist hafa látið gera það sjálf- ur í samráði við nefndarmenn sína. Nefndin neitaði að það væri satt og 21. ágúst sagði Rogers að bygging- arnTeistararnir hefðu gert þetta ,og yrðu að gera grein fyrir at- hæfi sinu. — I annaðhvort skiftið hlaut hann að segja ósatt; í hvort skiftið var það? Þegar verkamennimir í Banda- rí'kjunum vilja fá 8 stunda vinnu með góðu og auðvaldið neitar með hörðu, þá lætur forsetinn semja lög sem auðvaldið verður að beygja sig undir, en þegar verkamennirnir í Canada reytta að hera hönd fyrir höfuð sér, þá skipar verkamálaráð- herrann að flytja þá í burtu eins og landráðamenn.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.