Lögberg - 14.09.1916, Page 8

Lögberg - 14.09.1916, Page 8
8 LuiiBERG, FIMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1916 Or bænum Gott hús til leigu á Gimli í miö- parti bæjarins fyrir $8 á mánuSi um vetrarmánuBina. Eldavél fylgir hús- inu. Ritstjóri vísar á. Helgi Einarsson kaupmaður frá Fairford var í bænum á mánudag- inn í verzlunarerindum. Miss Dalman frá Gardar sem hér var um tíma hjá Dr. Brandson, Dr. Bjömson og öðru vina fólki, fór suður aftur á föstudaginn var. Svo segir “Edinborg Tribune” að séra Páll Sigurðson og kona hans sem getið var um hér i blaðinu, séu nú komin og presturinn tekinn til starfa. Með þeim kom að heiman Kristján Kristjánsson. Egill Skjöld lyfjafræðingur á- samt konu sinni og barni fór suður til Dakota í vikunni sem leið að heimsækja frændur og vini. “Edinborg Tribune” getur þess að látin sé að Mountain io ára göm- ul stúlka sem Kristin hafi heitað, dóttir Odds Sveinssonar og konu hans. Sama blað getur þess að látin sé Mrs. H. Austford að Hens- el í Norður Dakota. a- úr bænum og grendinni “Wynyard Advance” flytur gæta þýðingu af hinni snjöllu ræðu sem Hjálmar Bergmann lögmaður flutti að Wynyard 2. ágúst í sum- ar. Christian Ólafsson umboðsmað- um “New York Life” félagsins fór norður til Árborgar á föstudaginn í erindum fyrir félag sitt og kom heim aftur á þriðjudaginn. Haraldur Ólafsson sem dvalið hefir um tveggja ára tima suður í Dakota er nú alkominn til bæjarins. Haraldur sagði engar merkar frétt- ir. Hann eins og allir aðrir hafa þá sögu að segja að uppskera sé mjög rýr þar syðra. Sigurður Sveinsson frá Gimli kom til bæjarins á mánudaginn og dvaldi hér til þriðjudags; var hann að finna Óskar son sinn tinsmið hér í bænum. V. Ellert Jóhannsson hljómfræð- ingur frá 350 Reta St. í St. James fór suður til Callingwood, St. Paul 0g Minneapolis í vikunni sem leið og býst við að dvelja þar um tveggja vikna tíma. P. S. Pálsson og kona hans fóru nýlega vestur til Leslie og dvöldu þar hjá foreldrum og bræðrum hennar í viku tima. í>au komu aft- ur á mánudaginn. Pétur Anderson frá Leslie kom til bæjarins á mánudaginn. Með honum kom Björg systir hans, sem verður við nám hér í vetur. Helli rigning' hafði verið þar vestra á sunnudaginn. “Minnesota Mascot” getur þess að séra Friðrik Friðriksson hafi flutt skilnaðarræðu sina þar á sunnudaginn. Blaðið segir einnig þá frétt að söfnuðurinn hafi kallað hann til fastrar prestþjónustu, en áð- ur en hann geti gefið fullnaðarsvar verði hann að fara heim til Islands og grenslast eftir högum ungmenna félaganna. Er sagt að ekki sé ör- vænt um að hann taki kölluninni og lýsir blaðið ánægju sinni yfir þeirri von. Kveður það sé*ra Friðrik svo vinsælan að allir óski að hann megi ílengjast i Minnesota, hvaða trúar- skoðanir sem þeir hafi. VTerkstoíu Tals.: Garry 2154 Hetm. Tals.: Garry 2949 G. L. Stephenson Plumber Allskonar rafmagnsáhöld, svo sem straujárna víra, allar tegundlr af glösum og aflvaka (batterls). VINNUSIOFA; S7E KOME STREET, WINNIPEG Goðmundur Kamban hefir framsögn á eftirfylgjandi stöðum og tíma: Lundar, mánudag 18. Sept. kl. 8 að kveldi. Otto, þriðjudag, 19. Sept., kl. 2 síðdegis. Markland, miðvikud. 20. Sept kl. 2 síðd. Vestfold, fimtud. 21. Sept., kl. 2 síðdegis. NB.— Framsögn á Vestfold var auglýst í síðasta blaði 20 Sept., en verður nú hinn 21. Allir þeir sem vilja fá fyrirlestra Sigurðar Vilhjálmssonar „A leið sannleikans" og „Kraftur og efni“ geta sent pantnnir til hans. Bókin kostar 75 cts. Látið borgun fylgja pöntnninni. Bókin verður send kostnaðarlanst til kaupanda. S. Vilhjálmsson, 637 Alverstone St., Winnipeg Viðskiftabálkur. Ólafur Jakobsson í Swan River spyr eftir “Leiftri” Hermanns Jón- assonar. Það mun ekki komið hingað vestur til sölu enn þá, en H. S. Bardal getur óefað útvegað það. Auglýsing. f tilefni af mörgum eftir- spurnum frá íslendingum eftir þessum vel þektu plástrum: “Guðshandarplástur” og “Gum- miplástur” sendum við frá lyfjabúðinni í Edinburg, N. D., til hvaða staðar í Canada og Bandaríkjunum sem er 3-16. úr pundi af þessum plástrum fyrir $1.00. Borgun þarf að fylgja hverri pöntun. Burðargjald frítt. B. B. HANSON. Edinburg, N. D. Til þess að vama* sóttnæmum sjúkdómum hefir heilbrigðisráðið í Winnipeg gert allmikið árið sem leið. Samkvæmt nýútkomnum skýrslum hefir það gengist fyrir sótthreins'un á 46 húsum, 15 kenslu- stofum í alþýðuskólum og 1075 herbergjum. Hettusótt hefir verið tíðari árið sem leið en um langan tíma að undanfömu, sömuleiðis berklaveiki og kíghósti, en úr kíghósta dóu þó helmingi færri þetta ár en næsta ár á undan (1914). Alls voru á árinu 1915 í Winnipeg 4009 manns sem veiktust af næmum sjúkdómum, en næsta ár á undan voru þeir 4615. $500,000 skaðabætur. Fimtudaginn 24. f.m. voru gefin saman í hjónaband i Glenboro, Man Friðrik kaupmaður Friðriksson og ungfrú Þóra Sigurðsson; hjóna vígsluna framkvæmdi séra F. Hall grimsson á heimili foreldra brúð gumans F. S. Fredericksons og konu hans. Samdægurs lögðu ungu hjónin af stað í skemtiferð tii Winnipeg í bifreið sinni, og voru þeirri ferð rúma viku. — Nokkrum dc%um eftir að þau komu heim aft- ur, Héldu íslendingar í Glenboro þeim veizlu í samkomuhúsi sínu og gáfu þeim gjafir til minja, enda hafa þau að mestu leyti alið þar ald ur sinn og eru einkar vinsæl. Föstudaginn 8. þ.m. gaf sera Bjöm B. Jónsson saman í hjóna- band að heimili sinu í Winnipeg þau Joseph Borra og Katterine Petrovich. Bæði brúðhjónin eru rómversk kaþólsk. E. Sigrtyggur Jónasson á Gimli býður konu eða stálpaðri skólastúlku heimili í vetur gegn lítilli hjálp. Tiltioð sendist tafarlaust. Sigurður Sölvason aktýgjasmið- ur frá Westburne var hér á ferð nýlega, kom á föstudaginn og fór heimleiðis aftur á þriðjudag. Hann kom í verzlunarerindum. Sigurður Iét vel yfir öllu þar ytra; bjóst við að yfirleitt yrði þar meðal upp- skera. Þó er alt gjöreytt hjá sum- um, þannig var lagður eldur í 500 ekrur siem Ottawa bankinn átti og brent upp söicum þess að ekki þótti svara kostnaði að slá. Sumir hafa fengið þar 26 mæla af góðu hveiti af ekrunni. Sigurður hefir ekkert frétt lengi af dreng sínum sem hann á í Striðinu; hafa hervöldin engar upplýsingar getað gefið honum, en vonandi er að hann sé fangi eystra. Þessa visu gerði B. Benedikísson nýlega: Eg veit þú lætur falan frið, ef fólkið vildi reyna; en til hvers er að tala við trúarlausa steina? “Markland”, bók Guðbrandar Er lendssonar er til sölu hjá J. J. Vopna ráðsmanni Lögbergs og kostar 50 cent. Þeir sem vilja fræðast um nýlendulíf íslendinga ættu að kaupa þessa bók. Þrjár mæðgur komu hingað til bæjarins á föstudaginn sunnan frá Battle Creek í Michigan. Vom það þær Þuríður Oddson og Guðrún og Helga dætur hennar. Þær eru Borgfirðingar, er Þúríður tengda- dóttir Odds bónda á Brennistöðum og Helgti ikonu hans og svsturnar því sonardætur Odds, Böðvars- dætur. — Guðrún er útskrifuð hjúkrunarkona, en Helga er nýbyrjuð á sams konar námi. Er það frábær dugnaður og þrek þegar þess er gætt að ekki em nema aðeins 5 ár síðan þær mæðgur komu að heiman. — Engir íslendingar segja þeir að séu i Battle Creek nema þær og þrjár stúlkur aðrar; Myndasthiing fer fram í Fyrstu lútersku kirkjunni í kveld (fimtu dagskveld), eins og auglýst er ann- arsstaðar í blaðinu. Þar verða sýndar 40 litskuggamyndir einstak- I'ega fagrar og lærdómsríkar úr sögu og lífi Livingstons. Sig. Júl. Jóhannesson skýrir myndirnar, eða segir þá sögu sem á bak við þær liggur. Séra Rúnólfur Marteinsson pré- dikar í Skjaldborg næsta sunnudag á venjulegum tima. “Hagalagðar” Júlíönu Jónsdótt- ur, sem getið var um í síðasta blaöi, eru ekki gefnir út af O. S. Thor- geirssyni, heldur aðeins prentaðir hjá honum. Bókin er gefin út af gömlu konunni sjálfri; það væri því vel að íslendingar gerðu sitt bezta til þess að bókin gæti fengið sem mesta útbreiðslu, þar sem hér á hlut bláfátæk, munaðarlaus og há- öldmð kona. Helzt ættu einhverj ir i hverri bygð að taka sig til og selja bókina endurgjaldslaust; með því er unnið mannúðarverk án mikillar fyrirhafnar eða útláta og allir geta boðiö bókina blygðunar laust, því hún er fullkomíega þess virði sem fyrir hana er borgað og sómir sér vel að efni og innihaldi í hvaða bókasafni sem er. Ford, bifreiðákóngurinn mikli hefir höfðáð skaðahótamál á móti blaðinu “Chicago Tribune” fyrir það að ritstjórinn hafði kallað hann stjórnleysingja í ritstjórnargrein. Eiríkur Hjartarson raffræðing- ur fór af stað í gær alfarinn héðan mcð fjölskyldu sinni. Hann fór fyrst til Chicago og vinnur þar hjá Hirti Þórðarsyni um tíma og hygst síðan að hverfa heim til íslands aftur. — Það er gleðilegt að frétta að Þórðarson kennir hverjum ung- um íslendingnum á fætur öðrum, sem láta svo ættjörðina njóta þekk ingar sinnar og krafta. Sigurður Kjartanson sem nýlega er kominn heim lærði hjá honum og Eiríkur einnig; hefir Eirikur verið hjá hon um áður svo árum skifti. Hedl fylgi hverjum þeim er hér safnar menningu og fer svo heim. SKÓLANÁMIÐ ÞITT. FYRSTU VIKU hausttímabilsins bafa margir nýir nemendur komið í Winnipeg Business College. Fleiri byrja næsta mánudag. Þeir sem nám ætla að stunda ættu að athuga vel að með þvi að ráða yfir hinu undra- verða „Paragon“ hraðritunarkerfi hefir þessi gamli á- reiðanlegi skóli tækifœri til þess að spara nemendum tveggja til þriggja mánaða kostnað, og eins að því er praktískan árangur snertir af mentuninni. Gætir þú komið því svo fyrir að þú ákvæðir í dag að byrja næsta mánudag ? Winnipeg Business College 222 PORTAGE AVE. WINNIPEG, MAN. George S. Houston, Skólastjóri George Loos, C.A., Verzlunarkenslustjóri. Fulltrúanefnd. Blaðið “Wynyard Advance” hef ir að undanförnu flutt merkilegar ritgerðir á ritstjórnarsíðunni. Heita þær “Blöð úr óritaðri minnisbók” Höfundarins' er ekki getið, en grein arnar eða hugleiðingarnar eru frá bærlega vel ritaðar og blaðinu stór sómi. Magnús jTh. Johnson frá Selkirk kom til bæjarins á fimtudaginn Hann sagði fremur dauft þar nyrðra, lítið um vinnu nema við ís húsin. Talsviert kvað hann hafa verið um barnalasleika þar að und anfömu, en ekki þó alvarlegan. Benson lögmaður í Selkirk fékk bréf nýlega frá s'éra Steingrími Þorlákssyni, og getur hann þess að sonur hans hafi ekki getað lagt af stað á Kyrrahafið þegar til stóð sökum þess að kona hans var ekki ferðafær. Háfði hún verið lasin um tíma og taldi læknir það óráð fyrir hana að fara sem stæði. Séra Steingrimur bjóst við að þau mundu því ekki fá fierð fyr en í desember Þóra Johnson frá Leslie og A1 berta systurdóttir hennar eru stadd' ar hér í bænum og dvelja um nokk- urra vikna tíma. Jóhannes Pálsson læknir frá Ár- borg var á ferð í bœnum á fimtu- daginn. Hann sagði uppskeru al- ment afarrýra þar nyrðra; ryð hef- ir skemt svo mikið að sumstaðar svarar þresking ekki kostnaði. Lundar Home Economia Socrety iefir útsölu (Bazaar) og matsölu Lundar Hall, Iaugardaginn 7. okt. Þar verður til sölu heitur miðdags- verður, kaffi með brauði eftir nón- ið og ísrjómi. Þar að auka margt gott og nytsamlegt til sölu. — Arð- inum af samkomu þessari verður varið til að hjálpa ísienzku her- mönnunum. Guðsþjónustur. Séra Carl J. Olson messar æssum stöðum sunnudaginn 17. sept.: Að ísafold P.O. kl. 11 f.h. Að Wild Oak P.O. kl. 3 e.h. Langruth P.O. kl. 7.30 e.h. Að Félagið “Jón Sigurðsson” er að undirbúa samsöng og hljómleika- skemtun, sem það heldur bráðlega. Nánar auglýst í næsta blaði. Samkoman og myndasýningin í Fyrstu lút. kifkjunni í kveld (fimtu- ein þeirra heitir Guðriður Finnsson 1 dag) er ókeypis; en samskot verða og er að læra hjúkrunarfræði. [tekin. Guðsþjónustur. Sunnudaginn 17. sept.: 1 Kanda- har kl. 11 f.h. í Wynyard kl. 1.30 e.h. í Mozart kl. 3.30 e.h. H. Sigmar Hagalagð ar ljóð eftir Júlíönu Jónsdóttur, kosta 50 cents'. Bæði íslenzku blöðin hafa getið þessarar bókar rækilega. Eg hefi á hendi aðal-útsölu hennar, en skáldkonan sjálf er útgefandinn og gengur því það er afgangs verð- ur í prentkostnaði til hennar. Allir góðir menn og konur eru beðnir að styðja að útbreiðslu bókar þessarar, þvi með þvi rétíta þeir hjálparhönd háaldraðri konu, sem er einstæð- ingur, — fyrir utan að bókin borg- ar vel verð sitt. Ólafur S. Thorgeirsson, 678 Sherbrooke St., Wpg. Verkamanna og iðnaðarmanna samkoma var haldin í Winnipeg á fimtudaginn og þar samþykt að skora á v’erkamála ráðherrann að láta ékki hætta við þinghúsbygg- inguna í haust. Var Rigg þingmað- ur verkalýðsins foringi nefndarinn- ar sem kosin var til að flytja þetta mál. Nefndin gekk á fund ráð- herrans á laugardaginn, skýrði fyr- ir honum málið; 'kvað það mundu valda fátækt og vandræðum í vetur ef verkinu yrði hætt og krafðist því áframhalds. Nefndinni var vel og kurteislega tekið og þvi lofað að í- huga málið, en ekkert ákveðið. Stærð Winnipeg bæjar. Bærinn nær yfir 14,865 ekrur af landi og 472 ekrur af vatni. Alls' er bæjarstæðið 24 fermílur. Lítilsháttar viðurkenning. I,ögberg hefir ljós oss fært, líf, og sálarhita, — og meira’ að siegja margan nært á mörgum góðum “bita”. S. R. Takið eftir, íslendingar! 400 heimilisréttarlönd verða opn- uð í British Columbia 9. október. Er sagt að löndin séu öll ágæt og ekkert jæirra lengra en 10 mílur frá járnbraut. Flest löndin eru i hinum svokallaða Nechako dal, í Fort Fraser héf-aðinu. Einhverjir íslendingar geta ef til vill fært sér þetta í nyt. Hlver sem selt getur söguna “Elmorona” eftir Gunnstein Eyj- ólfsson geri svo vel að láta ritstjóra Lögbergs vita. Mrs. Louse Ottensen í River Park er komin sunnan frá St. Paul og Minneapolis, þar sem hún hefir dvalið i sumar; hún hefir nú byrj- að aftur að kenna hljómfræði eins og að undanfömu. Egill Zoega frá Silver Bay kom til bæjarins. á þriðjudaginn. Hann var að fara út i Sewell, er í 222. herdeildinni, en hefir verið heima að vinna land sitt um mánaðar tíma að undanförnu. Þakklœti. Vér undirritaðir œttingjar og aðstandendur Ásgeirs sál. Féld- steds vottum vort innilegt þakk- læti öllum þaim mörgu, er hlut- töku sýndu við fráfall hans, bæði með aærveru sinni við jarðarförina í Wjnnipeg og á Árborg og á ýmsan annan hátt. Ekkja hins látna, faðir hans og systkyni Til minms. mið- Fundur t “Skuld” á hverju vikudagskveldi kl. 8. Fundur t Heklu” á hverju föstu- dagskveldi kl. 8. Fundur í barnastúkunni “TEskan á hverjum laugardegi kl. 3,30 e.h Sigurður Vilhjálmsson hélt snjallan og efnisríkan fyrirlestur gærkveldi í neðri sal Unitara kirkj unnar. Nefndi hann fyrirlesturinn “Kraft og efni”. Það er auðheyrt að Sigurður er þaullesinn eðlisfræð- isiega. Hann er maður sem aldrei hefir gengið skólaveginn, en ment- að sjálfan sig í hjástundum sínum Efnið er viðfangsmikið, en snild var það hvað vel því var fyrir kom- ið. Fyrirlesturinn var heldur vel sóttur, eftir því sem viðgengst hér við svoleiðis tækifæri. Sigurður kvrjð hafa í hyggju að ferðast til nýja íslands og flvtja þar erindið. Er það engum vafa bundið að sú ferð verður honum til frægðar, en fólkinu til uppbygg ingar. /. Paulson. Þessa greiu var Heimskringla beðin að birta um það leyti er fyr- jrlesturinn var haldinn, en einhverra ástæða vegna var neitað að birta hann. Nú er Sigurður búinn að láta prenta erindið og mun fólki gefast tækifæri að dæma það sem ekki var viðstatt. /. P. Séra Rúnólfur Marteins'son kom á þriðjudaginn norðan frá Norrows bygðum; hefir hann verið þar hálfan mánuð í fjársöfnunarferð fyrir skólasjóðinn og hafði aflast vel; árangiyinn verður væntanlega auglýstur siðar. Með honum fór frú Lára Bjarnason og kom með honum aftur; var hún að finna vinkonu sina Elinu Scheving og dvaldi hjá henni á meðan séra Rúnólfur ferðaðist um bygðina. Þess var getið fyrir skömmu að Lárus Ámason á Leslie hefði slas ast þannig að hann varð sjónlaus af. Hann er kominn á efra aldur og er einstæðingur. Hefir hann fengið sér verustað á Gamalmenna- heimilinu “Betel” og lætur vel af liðan sinni þar. Lárus getur þess í bréfi sem hann hefir látið skrifa Lögbergi fyrir sig að vænt þætti sér um að vinir sinir og kunningj- ar sendu línu, því það sé dægra- stytting og hugfró að heyra vina- bréf, þótt augunum sé vamað sjón- ar að lita höndina. Fallegt kvæði eftir Sv. Simonson kemur í næsta Sólskini. Séra B. B. Jónsson fór vestur til Argyle á þriðjudaginn og kom aft- ur í gærkveldi (miðvikudag). Vinnukonu vantar strax út á land á fámennu myndar heimili, vana húsverkum. Upplýsingar á skrifstofu blaðsins. Kvenfálag Skjaldborgar safnað- ar er að undirbúa samkomu vand- aða og góða, sem haldist á þakklæt isdaginn. — Nánar auglýst síðar. O. G. Olafsson frá Tantallon og Margrét Anna ísafold Vigfússon voru gefin saman í hjónaband að heimili brúðarinnar í Tantollon 8. þ.m. af séra Guttormi Guttorms- syni. Brúðguminn er sonur Guð- mundar Ólafssonar bróður Einars sál. Ólafssonar, en brúðurin dóttir Narfa bónda Vigfússonar í Tan- tallon. Brúðhjónin komu hingað til bæjarins eftir giftinguna og eru sezt hCT að. Hæimili þeirra er Suite 23 Coronado Apartments á Furby og Ellice strætum. Silfurbrúðkaupshátið var þeim haldin 5. september Mr. og Mrs. N. Ottenson í River Park. Var þar fjöldi manns saman kominn bæði innanbæjar og utan. Ritstjóri Lögbergs gat ekki sótt samkvæmið sökum forfalla og hef- ir því ekki tök á að skrifa um það svo í lagi fari. Má vera að það verði gert siðar af einhverjum sem viðstaddur var. f Gefið þið Lasarusi bita af borð- um yðar. — Djáknanefnd Fyrsta úterska safnaðar heldur s>kemtisam- komu í kveld, fimtudaginn 14. sept., til arðs fyrir líknarstarfið. Þar verður fluttur fyrirlestur um æfi David Livingston, sem lét líf sitt j Afríku fyrir þjóð og kristindóm. JÞar verða sýndar 40 skuggamyndir af ferðalagi hans. Söngur og hljóð- færasiáttur verður þar einnig til skemtunar. Fyrir hönd nefndarinnar. A. S. Bardal. bréfi frá séra Sigurði Ólafs- sym til ritstjóra Lögbergs í dag, segir að séra S. O. Thorlaksson hafi j siglt frá Vancouver 7. þ. m. Þórður Vatnsdal kaupmaður frá Wadena var hér á ferð fyrir helg- jna á heimleíð frá Dakota. ORPHEUM. Miss Laura Nelson Hall i leikn- um “The Cat and the Kitten” leik- ur svo að allir hljóta að dáðst að. Sömuleiðis Paul Morton og Naomi Glass i hinum merkilega skopleik sem heitir “1916—1950”. Britt Wood sem kallaður er stundum “The Bobb’ ’ leikur svo skringilega að allir áheyrendur velt- ast i hlátri. ROYAL CROWN SÁPA er Kreinust og bezt Verðmætir hlutir gefnir í skiftum fyrir COUPONS og UMBÚÐIR Byrjið strax að safna þeim. Yður mun blöskra hversu fljótt þeir koma. Þír skuldið sjálfum yður það að brúka þá sápu sem hefir reynst yður best að undanförnu. Sendið eftir verðlaunalista. Hann kostar ekkert. Verðlaunalistinn söm gefinn var út fyrir Maí 1916 er fallinn úr gildi. Skrifið til THE ROYAL CROWN S0APS Limited PREMIUM DEPARTMENT - WINNIPEG, MAN. NorsK-Ameriska Linan Nýtízku gufuskip sigla frá New York sem segir: ‘‘Berg'ensfjord'’ 16. Sept. “Kristianiafjord” 7. Okt. “Bergensfjord” 28. okt. Norðvesturlands farþegar geta ferðast með Burlington og Baltimore og Ohio járnbrautum. F*rbrj«f fra !•- landi eru seld til hvaða staða sem er í Bandaríkjunum og Canada. — Snúið yður til HOBE & CO., G.N.W.A. 123 S. 3rd Street. Minneapolis, eða H. S. BARDAL, 892 Sherbrooke Street, Winnipeg. Klæðskerar og saumakonur alls konar geta fengið vinnu við kvenn- föt, yfirhafnir og kjóla. Gott kaup og stöðug atvinna. Komið og spyrj- ist fyrir hjá The Faultless Ladies Wear Co. Ltd., Cor. McDermot & Lydia St. Eg hefi nú nægar byrgðir af “granite” legsteinunum “góðu” stöðugt við hendina handa öllum, sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá, s'em hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina í sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur. Yðar einlægur. A. S. Bardal. Ef eitthvað gengur að érinu þínu þá er þér langbezt að sendA það til hans G. Thomas. Haua er í Bardals byggingunni og þá naátt trúa því að úrin lcasta eflibalgn- um 5 höndunum á honum. •AFETY Öryggishnífar skerptir RAZO Ef þér er ant um að fá góða brýnslu, þá höfum viö sérstaklega gott tækifæri að brýna fyrir þig rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ®r- yggisblöð eru endurbrýnd og “Ditp- lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein- föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf- ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur *ýna þér hversu auðvelt það er að raka þegar v'ér höfum endurbrýut blöðin. — Einföld blöð einnig lög- uð og bætt. — Einnig brýnum við skæri fyrir lOc.—75c. The Razop It Shear Sharpening Co. 4. lofti, 6M Buildera Exchange Grinding Dpt. 333i Portage Are., Winnipeg Málverk. Handmálaðar 1 i t my nd i|r [“Pastel” og olíumálverk] af mönnum og landslagi býr tilog *elur með sanngjörnu verði. Þortteiin Þ. Þorsteinsson, 732 McQee St. Tals. G. 4997 Staðurinn sem þér ætt- uð að kaupa meðul er í LYFJAB0Ð Kauptu te af matvörusalanum, silki af fatasalanum og járnvörur annarstaðar. En þegarþú þarft að kaupa ósvikin meðul. breinlætisáhöld eða muni, einkaleyfis- meðul o.s.frv. þákom Þú hingað, Vér höfum lyfjabúð. WHALEYS LYFJABÚÐ Phone Sheebr. 268 og 1130 Horni Sargent Ave. og Agnes St. Simplex Straujárn Hið bezta og áreiðanlegasta rafmagns straujárn semtiler Vér höfum tvær stærðir. GAS ELDAVÉLA-DEILDIN Co. 322 Main St. Tals. M. 2522 KENNARA vantar fyrir Mary Hill skóla Nor. 987 frá 1. Október til 1. Desember 1916. Ef einhver vill sinna því þá tilgreini hann kaup og æfingu sem kennari og sendi tilboð sín sem fyrst til undirritaðs. S. Sigurðsson, Sec.-Treas. Mary Hill P.O., Man. Stúkan Skuld er að undirbúa af- mælishátíð sina 26. þ.m., er hún þá 28 ára gömul. Nánar auglýst síðar. VÉR KENNUM GREGG Hraðritun SUCCESS VÉR KENNUM PITMAN Hraðritun BUSINESS COLLEGE Limited H0RNI PORTAGE 0G EDM0NT0N ST. WINNIPEG, - MANIT0BA ÖTIBUS-SK0LAR frá hafi til hafs TÆKIFÆRI pað er mikil eftirsókn eftir nemendum, sem út- skrifast af skóla vorum. — Hundruð bókhaldara, hraðritara, skrifara og búðarmanna er þörf fyr- ir. Búið yður undir þau störf. Verið tilbúin að nota tækifærin, er þau berja á dyr hjá yður. Látið nám koma yður á hillu hagnaðar. Ef þér gerið það, munu ekki að eins þér, heldur foreldr- ar og vinir njóta góðs af, — The Success College getur leitt yður á þann veg. Skrifist í skólann nú þegar. YFIRBURÐIR Beztu meðmæli eru með- mæli fjöldans. Hinn ár- legi nemendafjöldi í Suc- cess skóla fer langt fram yfir alla aðra verzl- unarskóla í Winnipeg til samans. Kensla vor er bygð á háum hugmynd- um og nýjustu aðferð- um. ódýrir prívatskólar eru dýrastir að lokum. Hjá oss eru námsgreinar kendar af hæfustu kenn- urum og skólastofur og áhöld eru hin beztu. — Lærið á Success skólan- um’ Sá skóli hefir lifað nafn sitt. Success verð- ur fremst í flokki. STJCCESS- XIjMAN 1)1 IIELDUR IIAMARKI I VJELRITUJí INNRITIST HVENÆR SEM ER Skrifið eftir bæklingi SUCCESS BUSINESS COLLEGE Limited F. G. Garbutt, Pres. D. F. Ferguson, Prin.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.