Lögberg - 21.09.1916, Qupperneq 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Gif tingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni sem er meistari íþeirri
ðn. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu. Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
1156-8 Ingersoll St. - Tals. G. 4140
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 21. SEPT. 1916
NÚMER 38
STÓRSIGUR UBERALA
I BRITISH COLUMBIA
Allir ráðherrar Conservatívu stjórnarinnar biðu
ósigur: þar á meðal stjórnarformaðurinn
sjálfur. Fólkið hefir rekið af höndum sér
þann óaldarflokk sem þar befir setið að
völdum. Kvenrettindi og vínbann sigra.
Ein-s.og áöur var skýrt frá fóru
fram fylkiskosningar í British
Columbia 15. september. Hafði
canservative flokkurinn náð svo
miklu haldi þar meö samskonar
tökum og Roblin flokkurinn hér aö
viö siöustu kosningar var ekki nema
einn liberal þingmaöur kosinn. Sá
heitir MeBride er þar hafði for-
ustu og alls konar klækir voru bom-
ir á. En þegar í óefni var komið
fyrir honum smokkar hann sér
undan og fær sér $15,000 árslauna-
stööu heima á Englandi sem um-
boðsmaöur British Columbia og
lætur dómsmálastjórann er Bowser
heitir taka viö forsætisráöherra-
störfum.
Var Bowser þessi nökkurs konar
“Robert Rogers” þar vestra. En
svo var óánægjan oröin almenn meö
fjárdrátt og alls konar svik og gjör-
ræöi hjá Bowser- eöa McBride-
stjórninni að úr hófi hefir þótt
keyra, og hefir hana vist verið far-
ið að dreyma þunga drauma, því
hún tók þáð ráð rétt fyrir kosning-
arnar að taka upp á stefnuskrá sína
ýms umbótamál, sem hún altaf áð-
ur hafði svívirt og unnið á móti.
Pór hún þar að nákvæmlega eins' og
gamli fjárdráttarflokkurinn í Mani-
toba; þar sem hann til málamynda
flaggaði með vinbanni og kvenrétt-
indum eftir 16 ára svívirðilega bar-
áttu gegn því hvorutveggja.
En fólkið sá að þetta var blekk-
ing ein og lét ekki ginnast. Alveg
sama varð sagan í British Columbia.
Þarhafði stjórnin barist með öllum
brögðum gegn frjálsum umbótum;
í dauðateygjunum þóttist hún hafa
breytt um stefnu, en fólkið trúði
ekki afturhaldinu og gjörræðis-
flokknum þar fremur en hér.
Enda rak þessi afturhaldsstjórn í
British Columbia endahnútinn á
hengingaról sinnar eigin tilveru
með þeim óheyrðu einveldislögum,
sem sérstaklega voru þannig samin
réítt fyrir kosningarnar aö hægt væri
að beita meiri pólitískum skálka að-
ferðum en dæmi séu til áður eða
annarsstaðar. Þau lög geta menn
ryfjað uj>p fyrir sér á ný, þau voru
nýlega birt í Lögbergi.
Um leið og kosið var ’t British
Columbia voru einnig greidd at-
kvæði um vínbann og atkvæðisrétt
kvenna. Var vinbannið samþykt
1 með 6öoo atkvæða meiri hluta
[ heimaatkvæða og kvenréttindin með
S 10,000 meiri hluta.
Auðvitað getur þetta breyzt nokk-
uð þegar hermanna atkvæðin koma,
en ekki til stórra muna.
“Nýi dagurinn”.
f blaðinu “The World”, sem er
strang-conservative, var ritstjórn-
argrein á laugardaginn þar sem það
heldur því fram að stofna þurfi
nýjan stjórnmálaflokk í Canada.
Heldur blaðið því fram að nú sé til
þess tími og tækifæri. að menn
mundu þyrpast undir merki nýs
flokks og yfirgefa hina flokkana.
Segir það að ekki þurfi nema 20
til 30 manns til þess að byrja og
stingur upj) á nokkrum conservative
leiðtogum. Þar á m'eðal W. F.
MacLean ritstjóra þess í Ottawa,
Sir Hmbbert Tupper í British Col-
umbia, og Sir Adams Beck í On-
tario. Blaðið stingur upp á að nafn
flokksins verði “Nýi dagurinn", og
segir að endingu: “Conservative
blöð um land alt eru reiðubúin að
gera uppreist á móti aðgerðaleysinu
i Ottawa og skipunum lögmanna-
stjórnarinnar i Toronto. Þjóðin er
á nálum af þrá eftir nýjum flokki;
þetta blað er nVeð stefnubreytingu
og flokki “Nýja dagsins”.
$12,000 sekt.
Samkvæmt skýrslum Manitoba-
stjórnarinnar hafa menn og konur
verið sektuð síðan 1. júni um $12,-
000 fyrir brot á hinum nýju vín-
bannslögum, Sumir hafa ekki get-
að borgað sektina og því orðíð að
fara i fangelsi og þar sitja sex nvi
sem stendur.
Fundinn sekur.
E. H. Devlin þingmaður fyrir
Kinistino kjördæmið í Saskatchew-
an hefir játað sekt sina í þeim kær-
um sem á hann voru bornar. Hafði
hann alls þegið um $10,000 mútur
eða meira. Hann verður dæmdur
11. október.
Sútlkur teknar fastar.
Sjötta september voru tvær sex-
tán ára gamlar stúlkur teknar fast-
ar fyrir það að klæðast karlmanns-
fötum — hermannafötum — nálægt
Hughes herbúðunum. Það var siö-
ferðisnefndin siem tók þær fastar.
Sagt er að fleiri stúlkur muni verða
teknar fastar fyrir það sama.
TVEIR FRŒNDUR í HERNUM ]
-
Frank Mulvey Polson.
Hann er fæddur 31. ágúst
1896; er hann sonur Jóhanns sál.
Polssonar innflutninga umlxiðs-
manns og konu hans hér í bæ.
Jóhann var flestum Islendingum
kunnur hér vestra og leituðu
margir til hans urn ýmsar upp-
lýsingar.
Frank Mulvey er merkisberi i
100. herdeildinni. Hefir hann
unnið alllengi á skrifstofu , hjá
Great West lífsábyrgðarfélaginu,
byrjaði að vinna þar þegar hann
misti föður sinn og hefir komist
sérlega vel áfram.
Arclubald Jón Polson.
Hann er fæddur 25. nóvember
1895 * Winnipeg. Foreldrar hans
eru þau Ágúst Polson verzlun-
arstjóri á Gimli og kona hans.
Hann vann við sömu verzlun og
faðir hans fThorvaldson og Sig-
urdson) þangað til í vetur að
hann gekk i 108. herdeildina og
er í stórskotaliðinu. Archibald
er sérlega efnilegur piltur. Þess-
ir piltar eru bræðrasynir og eru
báðir komnir af stað austur til
Evrópu, hvor með sinni deild.
Ásgeir Fjeldsted
Eins og áður hefir verið getið um
í Lögb. lézt Á'sgeir Fjeldsted verzl-
unarstjóri (nú siðast j>ó undirfor-
ingi í hernum) á Alnrenna spital-
anum i Winnipeg þann 30. ágúst
síðastl. Var það svæsin botnlanga-
bólga sem dró hann til dauða. Varð
altekinn og hastarlega veikur heiina
á heimili sínu í Árborg sunnúdag-
inn þann 13. ágúst, og með þvi að
engin sunrtudagslest er frá Árborg
til Winnipeg, en lækni leizt óráð-
legt að fresta uppskurði til mánu-
dagsmorguns, var keypt sérstök lest
seinni part sunnudags til að flytja
hann til Winnijreg og var hann skor-
inn upp strax um kveldið. Reynd-
ist J>að j>ó alt of seint, botnlanginn
sprunginn og svo illa komið, að lítil
von var um bata. Samt virtist í bili
sem hann mundi komast til heilsu,
ar sló niður aftur og var ]>á auðsætt
að draga mundi að j>ví eina og and-
aðist hann kl. 5.15 að morgni þess
30., nálægt tveimur og hálfri viku
eftir að uppskurðurinn hafði venð
gerður.
Ásgeir var maður kornungur,
fæddur 28. júní 1885, á Jörfa í Kol-
beinsstaða hreppi í Hnappadals-
sýslu, þar sem foreldrar hans, Þor-
bergur Fjeldsted og Helga Guð-
mundsdóttir, j>á bjuggu. Munu þau
hjón hafa flútt vestur um haf tveim
árum síðan, eða árið 1887. Settust
þau að i Mikley í Winnijægvatni;
þar misti Þorbergur jkonu sína
strax á fyrsta ári og stóð einn uppi
með hóp barna í ókunnu landi. Áíá
nærri geta hive sár sá missir hefir
veri-ð Þorbergi og börnunum ungu
tap óúíreiknanlegt. Og þó slikir
viðburðir séu tiðir og algengir, ]>á
eru þeir þó nýr harmur hverjum
sem reynir.
Systkini Ásgeirs, ]>au er á lífi eru,
eru Guðmundur, bóndi í grend við
Gimli; Guðrún, kona Jóns Eggerts-
sonar, í Winnij>eg, ébróður Árna
Eggertssonar) ; séra Rúnólfur pró-
fessor í Hassiskum fræðum, i
Chinago; Jón, skraddari i Reykja-
vík á Íslandi; Halldóra, kona Sig.
JÚI. læknis Jóhannessonar, ritstj.
Ivögb., i Winnipeg; Helga, kona
Jóns J. Sveinbjörnssonar, bónda i
nánd við Elfros, Sask.. og Ragn-
heiður kona Halldórs Jóhannesson-
ar í Winnipeg. Hálfsvstkini, sam-
feðra og yngri, eru Jónina skóla-
kennarj í Saskatshewan, Anna og
Helga Arnfríður, báðar heima.
Æfi Ásgeirs Fjeldsteds varð ekki
löng, aðeins rúm ]>rjátíu ár. Á þeim
aldri er sjaldnast orðið fyllilega vist
hvað i mönnum býr, eða hversu nýt-
ur maður einn eða annar kann að
verða. En þó munu flestir sem hann
þöktu hafa það á tilfinningunni, að
með fráfalli Ásgeirs hafi nýtur
maður og góður drengur horf-
ið úr hópi vorum. Munu marg-
ir aðrir en nánustu ástvinir sjá
eftir honum og þykja skaði ekki
all-lítill að hann varð að burtkall-
ast svo snemma.
Ásgei’. var maður friður sýnum,
g ldur, liðlegur á velli, léttur i
hreyfingum og að öllu vel á sig
kominn. Hann var maður dökkur
yfirlitum, með athugult augnatillit,
viðfeídinn svip, glaður og þægileg-
ur í viðmóti og hafði fremur fast,
en hlýtt og gott handtak. Við verzl-
unarstörf var hann ötull og lipur.
Naut þar almennra vinsælda. Hann
var og söngmaðitr ágætur. Hafði
fyrirtaks söngrödd og lagði sig æði
mikið eftir að svngja einsöngva og
nokkuð eftir að spila á-hljóðfæri.
Hefir varla verið svo nokkur sam-
koma haldin í Nýja íslendi norðan-
verðu hin síðari árin, að ekki væri
Ásgeir fenginn þar til að syngja.
Mun fleirum en mér sem heyrðu
hann syngja hafa komið til hugar,
að hann, með nógri æfingu og þar
til heyrandi lærdómi, hefði sem bezt
getað gert sönglistina að lifsstarfi
sínu.
Ásgeir var maður örgerður í lund.
Getur það lundareinkenni verið
manni annaðhvort veikleiki eða
styrkur, alt eftir því í hvaða sam-
bandi það er við aðra eiginleika.
Hjá Ásgeiri varð þetta að hvoru-
tveggja. Ef um kappsmál var að
ræða var honum fljótt að renna i
skaj>, en fljótur að gleyma, og bar
helzt á þessu á meðan hann var
manni hálfkunnugur. Við nánari
kynni hvarf þetta meir og rneir og
kom þá hið góða i fari hans stöð-
ugt meir í ljós. Man eg að ein-
hvern tíma hafði hann orð á því viö
mig hversu gott væri að temja sér
ró og stilling, og tel eg víst, að með
aldri og reynslu, hefði hann orðið
maður vel stiltur, kannske álíka og
faðir hans, sem er manna stiltast-
ur og prýðilega viti borinn. Sem
styrkleiki hjá Ásgeiri kom örlvndið
fram i því að hanrl var alha manna
fljótastur til að gera greiða og
hjálpa. Kom þetta fram bæði fé-
lagslega og við einstaklinga. í sam-
kvæmislífi sVeitarinnar tók hann
mikinn þátt, var boðinn og búinn að
hjálpa þar á allan hátt, var ötull
styrktarmaður sveitarvínbannsins á
meðan það var og einn af þeim
duglegustu i nefnd þeirri sem Ár-
borgarbúar kusú til að fá menn til
fylgis við fylkisvinbannið síðastlið-
fnn vetur. Þegar hús Templara i
Árborg var bygt var Ásgeir þar
fremstur í flokki. í leikflokiki bygð-
arinnar var hann einnig og sömu-
leiðis í “Árborg- Orchestra”, sem oft
og vel hefir skemt hér á samkom-
um. Um eitt skeið var hann og
formaður sunnudagaskólans í Ár-
borg og lengi- í söngflokk safnaðar-
ins og formaður flokksins. Var
Ásgeir góður sunnudagaskólamað-
ur og eins og áður er fram tekið,
alveg ágætis söngmaður. Var yndi
að heyra hann syngja einsöngva og
ekki sízt andleg Ijóð. Með þau
fanst mér hann fara hreint fyrir-
taks vel. Sakna eg þess nú að fá
ekki að heyra rödd hans framar,
hvorki á samkomum né í kirkjunnii
Svo munu og margir gera. —
Ræðugerð hafði Ásgeir ekki tam-
ið sér neitt að mun og hafði frenuir
litla trú á sér til þeirra hluta. En
hann hefði hæglega getað orðið góð-
ur ræðumaður, sérstaklega á enskri
tungu. Maður með jafngóða greind
og hann hafði, nóg vald á tungu
landsins, fremur gott traust á sjálf-
um sér, hæfilegan metnað, góða
þekkingu yfirleitt, ört og skarpt
hugsandi og fallegur maður á ræðu-
palli, hefði fljótt komið til að verða
fær og vinsæll ræðtnnaður. Átti eg
von á þvi, ef Ásgeiri hefði enzt ald-
ur og hann hefði komið heill aftur
úr stríðinu, að þá hefði hann fyr
eða síðar getað átt kost á að skipa
eitthvert það sæti sem menn sækj-
ast eftir og glæsilegt þykir.
í Árborg hafði Ásgeir haft heim-
ili sitt alla tíð síðan bær sá varð til,
stýrði þar stórri verzlu fyrir Sig-
urðsson og Thorvaldson Co. og var
sjálfur að einhverju leyti meðeig-
andi. Hafði hann gift sig rétt um
sama leyti og hann tók við stjórn
verzlunarinnar í Árborg og flutti
þangað. Kona hans, sem svo
snemma og óvænt er orðin ekkja,
er Ingunn dóttir Kristjóns Finnsson
ar fyrrum kauptnanns og sögunar-
mylnueiganda við ísl.fljót. Eign-
uðust ]>au þrjá drengi, sem allir eru
á lífi. Elztur þeirra er Jóhannes
Hermann, þá Thór Björgvin og
vngstur ]>eirra Ingvar, rúmt árs-
gamall. Hús, mjög myndarlegt og
allkostbært hafði Ásgeir bygt sér
sunnan megin fljótsins í Árborg,
rétt andspænis verzlunarhluta bœj-
arins. Get eg ]>ess til að mörgum
sem koma um þessar mundir til
Ixejarins verði litið vfir til hússins.
þar sem ekkjan og litlu bræðurnir
þrir enn eiga heima og komist við í
huga sínum út af þeim harmi að
húsráðandinn, svo ungur og vænn
og vinsæll, skyldi svo fljótt og
skyndilega í burtu tekinn. Og það
er það, eina sem vér mennirnir get-
um i svona tilfellum— vér getum
samhrygst þeim sem sorgin heim-
sækir, en engit kipt í lag, svo mikill
er vanmáttur vor og tilfinnanlegur.
Eitt atriði er það sérstaklega í
sambandi við kynni mín af Ásgeiri
Fjeldsted, sem eg minnist með
ánægju. Reunar á eg þaðan marg-
ar minningar sem mér eru ánægju-
legar, svo sem það hversu ágætur
samferðamaður hann var og ýmis-
legt fleira sem eg hefi allareiðu
minst á, en minningin sem mér þyk-
ir lang bezt, er sú, að þvi meira sem
eg þekti hann ]>ví rneiri mætur fekk
eg á honum. Mun það sjaldan
bregðast, að vinir sem eru nokkuð
lengi á leiðinni tii manns, ef svo
mætti að orði komast, reynast manrfi
þrautsegir, og þá mun hitt heldur
varla bregðast, að þeir sem ekki
taka tilfinning manns mjög geyst
fyrst í stað sem æskilegir vinir, en
fara svo smátt og smátt að verða
manni kærari og maður fær vax-
andi mætur á þeim, að það eru
menn sem góðum kostum eru bún-
ir, þó litið kunni að bera á því i
fyrstu.
Naumast býst eg við að þetta i
viökvnning minni við Ásgeir Fjeld-
sted hafi verið nokkuð sérstakt fyr-
ir mig. Þvert á móti býst eg við
að það hafi yfirleitt verið revnsla
þeirra sem urðu honum vél kunn-
ugir. Getur maður þá lika betur
skilið harma ástvinanna sem áttu
liann sérstaklega og þektu hann
allra bezt. —
Jarðarför Ásg^irs var afar fjöl-
I
menn. Kirkjan í Árborg troðfull
og hópar af fólki úti. Mun aldrei
áður hafa verið jafnmargt fólk þar
við jarðarför. Veður var hið inn-
dulasta. En mörgum mun þá
öðrum en syrgjendunum nánustu
hafa verið harmur i hug og þótt
sárt, a|S leiðir urðu að skiljast svo
snemma.
Jóh. B.
Danmörk tapar.
Eins og lesendur Lögbergs muna
fluttu blöðin þær fréttir nýlega að
Danmörg hefði stórgrætt á stríðinu.
Nýrri fréttir hafa gagnstæða sögu
að segja. Skeyti frá Winslow að-
alræðismanni í Kaupmannahöfn
dagsett 15. þ.m. s'kýrir frá því að
Danmörk hafi biðið stórtjón af
striðinu. Fjárhagsárið sem endaði
1. april tapaði landið $12,000,000;
höfðu tekjurnar yfir árið verið
35,000,000 en útgjöldin $47,000,-
jooo. Ekki er minst í þessu skeyti
á þær $23,000,000 stem Þjóðverjar
sektuðu Dani um fyrir að leyfa
Englendingum greiða leið innan
landhelgi. $25,000,000 sem Danir
fá fyrir Vesturhafseyjarnar vega á
móti því tapi sem verður næsta f jár-
hagsár.
Holland í klípu.
Bandamenn í stríðinu hafa lagt
bann við þvi að ‘'vissar vörur séu
fluttar til Hollands frá Bandaríkj-
unum og neita að taka gildar á-
byrgðir Bandaríkjanna fyrir því að
vörurnar fari til Skandinavisku
landanna. Hafa Bretar tekið þá
stefnu að leyfa aðeins vissa upphæð
af vörum sem flutt sé til hvers hlut-
lauss lands í Evrópu á ári. Segja
þeir að sum löndin hafi þegar dreg-
jð að sér meiri vörur á þeim sjö
mánuðum sem liðnir eru af þessu
ári en venjulegt sé alt árið. Þannig
hafi Hplland þegar dregið að sér
50,000 smálestir af kaffi, en þurfi
ekki nema 18,000 smálestir á ári og
halda þeir að eitthvað af þessu geti
komist til Þýzkalands.
Fimm ára stríð hér eftir.
Robert M. Thompson herforingi,
formaður sjóliðsdeildarinnar í
Bandaríkjunum álítur að stríöið
hljóti að vara i fimm ár hér eftir.
Hann segir að Þ jóðverjar sigrist ef
nógu lengi sé haldið út, en til þess
þurfi að minsta kosti tvö ár að reka
þá burtu úr þeifti löndum sem þeir
hafi tekið, og þegar það sé búið þá
hafi þeir sýnt svo harðfenga mót-
stöðu að þeir verði aldrei sigraðir
innan eigin landamæra á skemmri
tíma ten þremur árum.
fslendingur hækkar í stöðu.
Kristján Fjeldsted Anderson
(sonur Andrésar á Hvítárvöllum í
Mýrasýslu) hefir verið lengi í kon-
unglega varnarliði vesturlandsins.
Hann hefir verið déildarstjóri í
mörg ár,~en nú er hann útnefndur
umsjónarmaður varnarliðsins í stað
P. W. Pennefethers, sem það hefir
verið áður. Er það virðingar staða
mik.il og sýnir hvílíkt traust er borið
til Kristjáns’. Hann er kvæntur
enskri konu.
Séra Sigurbjörn Á. Gíslason. .
Ritstjóra Lögbergs barst bréf frá
séra Sigurbirni Ástvaldi Gislasyni
rétt um ]>að leyti sem blaðið var að
fara í prentsmiðjuna. Hann getur
]>ess þar að hann hafi tekið að sér
til eignar og ritstjórnar blaöið
“Bjarma” og kveðst hann eftir því
sem rúm leyfi munu láta það blað
styðja samkomulag milli vor hér
vestra og systkyna vorra þar eystra.
Það er vel mælt og verður óefað
efnt. Vér þekkjum séra Ástvald og
alvöru lians. — Meira síðar.
Or bœnum og grend.
Jón Hannesson prentari er nýlega
kominn vestan frá Saskatchewan,
hefir verið þar á heimilisréttarlandi,
en verður hbr i vetur.
F.lin Magnússon frá Minneota
kom til Ixejarins á laugardaginn var
að finna Mrs. Þórðarson frænd-
konu sína og fleiri kunningja og
fór heimleiðis aftur á mánudaginn.
J. J. Sveinbjörnsson frá Elfros
var hér á ferð nýlega, kom á sunnu-
dag og fór á mánudag. Jón átti
lengi heima hér í bænum en flutti
vestur fyrir 8 árum og hefir búið
á landi nálægt Elfros.
Guðmundur Johnson klæðskeri
frá Pembina var á ferð í bænum
um síðastliðna helgi og fór suður
aftur á mánudaginn. Hann ætlar
vestur til Big River innan skamms
og verður þar við matreiðslu í vetur.
Jón Ólafsson frá Geldingaholti
kom til Winnipeg á laugardaginn
vestan frá Klettafjöllum, þar sem
hann hefir verið i þjónustu C. P. R.
fólagsins um tíma.
Helgi Jónsson bróðir Guðmund-
ar Johnson klæðskera tók skip-
stjórapróf á Englandi í sumar.
Hann var stýrimaður á skipi við
strendur Canada í fyrra stimar. —
Þött hann hafi prófið getur hann
ekki fengið skip til stjórnar á Eng-
landi nú sem stendur, sökum þess
að hann er ekki brezkur borgari.
Eru það herreglur sem því valda.
Guðni Johnson 30 ára gamall
maður frá Glenboro andaðist á
hospítalinu í Winnipeg 11. þ. m.
Hafði orðið veikur snögglega við
þreskingu og var fluttur hingað.
Faðir hans var efnaður bóndi í
Argýle. Hann átti fjóra bræður og
þrjár systur.
Jakobina Olson frá Pembina
(dóttir Guðmundar Olson og Guð-
fríðar konu hans) útskrifaðist í
hjúkrunarfræði í Chicago í sumar;
fátæk stúlka og vann sig áfram af
eigin rammleik.
Björn Eymundsson frá Pembina
sem útskrifaðis t af háskóla í St.
Peter í sumar er á förum til Chicago
og ætlar að nema þar læknisfræði.
Bjöm er kvæntur maður, heitir
kona hans Oddný (dóttir Guðjóns
Stefánssonar í Pembina); hefir
hún stundað hljómfræðis- og söng-
nám. Hún fer suður til Chicago
með manni sínum.
Frímann Árnason frá Pembina
var skorinn upp hér á hospítalinu
nýlega af Dr. Brandssyni; heilsað-
ist honum vel og er kominn heim
heill á húfi.
Sofonias Thorkelsson, sem dval-
ið hefir um tíma hjá Þorsteini
bróður sinum að Oak Point, er ný-
lega kominn heim aftur hress eftir
hvíldina.
Anna Erlend!sdóttir i Selkirk,
lœna Ásmundar Jóhannessonar
andaðist að heimili sínu 20 júlí eftir
sjö mánaða legu. Hún var 61 árs
að aldri, ættuð af Reykjaströnd;
kom vestur 1887 og hefir dvalið
lengst af í Winnipeg, lætur hún eft-
ir sig ekkjumann og fimm börn;
Guðrúnu gifta I. M. Pugh verzlun-
armanni hjá Ashdown, Steinunni
hraðritara, Jón, Önnu og Olgeir
(þrjú hin siðasttöldu heima). —
ísafold er beðin að birta þessa frétt.
Páll Þorgrímsson frá 582
Burnell stræti gekk í 107 herdeild-
inu 6. febrúar í vetur og fór austur
með henni 13. september. Páll er
fæddur 7. september 1869 á. Ber-
serkseyri í Eyrarsveit í Snæfells-
nessýslu. Hann kom hingað árið
1900 og kvæntist sama ár Sveinsínu
Jósefinu Amgrímsdöttur frá Ólafs-
vík.
Utanáskrift Bjama E. Björns-
sonar trésmiðs eru nú að Leney,
Sask.
Tvö herbergi eru til leigu á góð-
um stað í bænum, með öllu tilheyr-
andi; talsími í húsinu. Ritstj. vís-
ar á.
Maria Magnússon að 940 Inger-
soll stræti hefir byrjað aftur að
kenna piano spil. Þeir sem hugsa
sér að njota kenslu hjá henni geri
svo vel að láta hana vita sem fvrst.
Talsimi Garry 1310.
Helgi Jónsson klæðskeri og kona
hans eru að flytja héðan til Winni-
pegosis og ætla að setjast að ]>ar i
bænum.
Tvo herbergi eru til leigu að 679
Beverley stræti, með öllu tilheyr-
andi. Talsími er í húsinu. Rit-
stjóri vísar á.
\ innu'kona sem Annie Thompson
hét hjá Patrick Shea brennivíns-
gerðarmanni að 140 Colonv St.
fyrirfór sér á mánudaginn ;’hafði
hún hengt sig í svefnherbergi sinu
og voru stórar stungur í brjóstinu,
sem lýstu því að hún hefði fyrst
ætlað að reka sig i gegn. Enginn
veit um ástæður.
Eins og hálfs árs gömul stúlka,
sem Dorothv Mary Chilwell hét að
149 Inkster St. datt ofan í vatns-
tunnu á mánudaginn og druknaðír
Samkomu hefir kvenfélag Fyrsta
lút. safnaðar ákveðið að halda á
. T.hanksgiving day” 9. okt. í kirkju
safnaðarins, verður vandað til
þeirrar samkomu eftir beztu föng-
um. Þar verður kveldverður og
margbreytilegar skemtanir. Skemti-
skráin og fyrirkomúlag samkom-
unnar auglýst síðar.
Jón Arnason læknaskólastúdent
er nýkominn til bæjarins vestan frá
Saskatchewan. Hann verður kenn-
ari við Manitobn háskólann 1 ár;
kennir þar efnafræði.
Bretar finna upp ósigr-
andi skotvagn.
Geta skotiðjúr honum á óvinina, en
engin skothríð sakar sjálfa þá.
Eftir því sem lýst er nýjum hreyfi
vagni sem Bretar hafa fundið upp,
þá er hann afar merkilegur. Hann
kvað þannig útbúinn að hægt sé að
vera í honum og senda skot af skoti
á óvinina, án þess að nokkuð saki
þó stöðug skothríð dynji á honum.
Er sagt að Bretar hafi hleypt þess-
um vögnum á lið óvina sinna i
Frakklandi á mánudaginn og blátt
áfram ruðst í gegn um fylkingarn-
ar, þrátt fyrir allar dynjandi skot-
hríðar. Vagnamir eru búnir til úr
blendingi af stáli og aluminum, og
eirthverju fleira. Er sagt að Þjóð-
verjar telji þetta þá verstu djöfuls
vél sem þeir hafi nokkru sinni mætt.
Bandamenn hafa unnið allmikið
á síðustu viku í Somme héraðinu,
tekið mörg þúsund fanga og nokkra
bæi auk allstórra svæða. En nú er
veður þar óhagstætt og kalt og
hefir það tafið fyrir og hindrað.
Á austurstöðvum vígvallarins
hafa Þjóðverjar aftur á móti haft
betur núna síðustu dagana. Þeir
fóru yfir ána Strakhod nálægt
Zarecze og Rússar þar flúið undan.
Tóku Þjóðverjar þar 17 vélabyssur
og 2542 manns í einni orustu, og
næsta dag héldu þeir enn áfram
árásum sínum, tóku allmikið af
skotgröfum frá Rússum fyrir suð-
austan Lemberg og 4200 manns í
viðbót.
Sömuleiðis segja síðustu fréttir
að Þ jóðverjar hafi borið hærra hlut
yfir Rúmenum í Transylvaniu og
Dubrudja.
Serbar hafa aftur á móti unnið
á í Florina héraðinu. Þeir hafa
hertekið bœina Krushread og
Neokayi. Og allra síðustu fréttir
segja að Bulgarar séu að yfirgefa
Monastir.
Allmikið uppþot varð í franska
þinginu á þriðjudaginn. Þingmað-
ur að nafni M. Roux-Costada og
annar að nafni M. Brizon kröfðust
þess að farið væri að semja um frið
og töldu það mögulegt og mikið til
þess vinnandi. En Briand forseti
hélt þrumandi ræðu og sýndi fram
á að slíkt tæki engu tali. Var mik-
ill rómur gerður að ræðu hans og
samþykt að prenta hana og festa
upp á öllum opinberum stöðum.
Tveggja vikna munaðarlaust l>arn
fanst á sunnudaginn á Assineboine
árbakkanum lijá Arlington St.
Móðirin var austurrísk stúlka 17
ára, og fanst eða náðist á mánudag-
inn. Var hún dæmd i árs fangelsi.
Brotist var inn í Bobinson búð-
ina hér i bænum á sunnudagsmorg-
uninn, varðmaðurinn bundinn og
stungið upj> í hann. Ytr: dvrttar
voru sprengdar upp. Ræningjarnir
bruttt síðan upo peningaskáp, en þar
var ekkert. í öðrum skáp vortt
$2,000, sem þeir fundu ekki. Eng-
inn veit hverjir óbótamennirnir eru.
IVilhjálmur Thorarinson.
Wilhjálmur Thorarinson er son-
ur þeirra hjónanna Einars Thorar-
insonar og konu hans, Sigriðar
Oddsdóttur. Þau eru nú bæði á
fallanda fæti og eiga heima á Gintli.
Wilhjálntur er fæddur árið 1872
á Húsavík í Þingeyjarsýslu. Hann
flutti til Ameriku með foreldrum
sínum ár ð 1884, og giftist hann ár-
ið 1899 Jóníntt Antóníusardóttur.
Þáu eiga sjö börn.
Wilhjálmur gekk í 184 herdeikl-
ina 21. febrúar 1916, og er nú í
Camp Hughes.
Wilhjálniur er ekki stór maður,
en er hugdjarfur og snar, og ér það
nokkuð sem hermanni þénar.
Hann vann á aðal pósthúsinu hér
í sex ár, áður en hann gekk i her-
inn. —