Lögberg - 23.11.1916, Blaðsíða 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sœtabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem Ijúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni sem er meistari íþeirri
ð i. Kringlur og tvibökur einnig til sölu Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
1156-8 Ingersoll 8t. - Tals. G. 4140
iiQbef ð.
W/NN/P£C'S PfiFMICfi lAUHDfiV
55- tarl St.
Tals. Garry 3785
Forseti, R. J. BARKER
R&ðsmaðuJ, S. D BROWN
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 23. NÓVEMBER. 1916
NÚMER 47
BANDAMENN TAKA MONASTIR,
VERÐUR HÖFUÐBORG SERBlU
Óvinirnjr hörfa urdan í mestu óreglu no rður á
bóginn. Mikill sigur bæði pólitískur og
hinsvegar fyrir Frakka og Serba. Síðasta
frétt segir Canada-menn hafa tekið um 700
fanga og skotgrafir.
Það hefir gengið allvel fyrir
bandamönnum síðustu viku. Mon-
astir, einum aöalbænum í Serbiu,
hafa bandamenn náö aftur úr
höndum Þjóðverja. Serbiuinenn
hafa verið landflótta og ættjarðar-
lausir um langan tíma, en nú ætla
þeir að gera Monastir að höfuðbæ
sínum. MeS því að ná Monastir
hafa bandamenn náð i sínar hendur
járnbrautinni frá Saloniki, og er
það allmikill sigur út af fyrir sig.
Yfir höfuð er svo álitið, sem
' þetta sé eitthvert þýðingarmesta at-
riðið sem komið hafi fyrir í stríð-
inu um langan tima. Auðvitað er
ekki svo að skilja sem alt sé komið
í gott lag enn í Serbiu; bærinn
Monastir hefir verið svo að segja
gjöreyddur, þarf því mikiö til þess
að byggja hann upp þannig að hann
verði hæfur fyrir höfuðborg, samt
sem áður er það talinn vinnandi
vegur, og er sagt að Serbar hlakki
til heimfararinnar eftir alt það sem
á dagana hefir drifið.
Bandamenn hafa unnið talsvert
á bæSi aS norðan og vestan, sérstak-
Iega þó að vestan.
Sagt er að Canadamenn hafi
gengið fram sérlega vel og náð
miklu af skotgröfum frá ÞjóS-
verjum og 700 föngum.
Rumenar hafa fariö halloka fyr-
ir liöi Þjóðverja og Austurríkis-
manna og litur illa út fyrir þeim.
Síðustu fréttir segja að Serber
séu að vinna hverja borgina á fæt-
ur annari og líti nú út fyrir að þeir
muni ná öllu landi simj aftur.
Ný aðferð.
Ottawastjórnin hefir gefiS út þá
tilskipun að hér eftir skuli engum
leyft að taka próf i þeim störfum,
sem stjórnarstöðu tilhevrir og eng-
ir teknir í stjórnar þjónustu meðan
stríðiS stendur yfir, nema þeir ein-
ir sem annaöhvort séu ekki á
stríösaldri eða séu komnir heim
aftur særðir eSa séu ófærir til
striös. Þessi regla gekk í gildi á
laugardaginn og á hún aö vera til
þess aö fleiri fari iherinn.
75 ára ungur.
segja blööiji aS Sir Wilfrid Laurier
hafi verið á mánudaginn 20. þ. m.
Fékk hann bréf og heillaskeyti úr
öllum áttum.
Alvarleg ákæra.
H. H. Dewart lögmaöur og þing*
maður fyrir Toronto flutti ræðu á
liberalfundi á laugardaginn þar sem
hann kærði conservative þingmenn
og sambandsráBherra um þaS að
vera verkfæri til þess aö veita
Þjóöverjum liö. ÞaS er á þennan
hátt, eftir frásögn hans:
AS Merton & Co. lynboðsmenn
fyrir International nikkelfélagið
verzli við Þjóöverja.
AS Hon. F. E. Smith, dómsmála-
stjóri Breta hafi sagt að Merton &
Co. væri fingur á hönd þýzka
málmfélagsins.
AS bréf skrifað i þessum mánuði
sanni að M'erton & Co. séu enn um-
boösmenn International nikkel fé-
lagsins.
Að Merton & Co. séu einnig um-
boSsmenn Frankfurt málmfélags-
ins.
Að bæði sambands- og Ontario-
stjórnin hafi svikist um aö láta efla
þennan mikla canadiska iSnað.
Að Ontario stjórnin hafi svikist
um að láta þýzk-ameríska félagiö
greiða sanngjarnan skatt.
Kosningarnar í Bandaríkiunum
Loksins eru komin fullnaðarúr-
slit í kosningunum syðra og liefir
Wilson 403,326 atkvæöi fram yfir
Hughes. I efri deildinni er meiri
hluti sérveldismanna 12, en í neöri
deilct aSeins 4. ÞaS sætir tíðindum
við þessar kosningar að fyrsta
kona var kosin á sambandsþing í
Bandaríkjunum. Hún er frá
Montana og heitir Jeanette Rankin.
Kvenréttinda frumvarpiS sem
atkvæði voru greidd um i SuSur
Dakota var felt.
Lengi var vafasamt hvoru megin
Norður Dakota yrði, en þaS varö
loks með Wilson.
Helmingur Pandaríkjanna undir
vínbanni.
Arni Jónsson sœrður.
Landi vor Árni Johnson héðan
frá Winnipeg særðist nýlega á víg-
vellinum þannig aS taka varð af
honum annan fótinn. Hann er nú
á hospítali í Southampton á Eng-
landi. Ánii á konu og fjögur börn
hér í bænum.
Tuttugu og fjögur riki í Banda-
ríkjunum hafa nú samþykt vínsölu-
bann. ViS síðustu kosningar bætt-
ust fjögur við þau sem áður voru.
t’essi eru nú bannríki: Michigan,
Nebraska, Montana, SuSur Dakota,
Albama, Arizona, Arkansas, Colo-
rado, Georgia, Idaho, Iowa,
Kansas, Maine, Mississippi, NorS-
11 r dakota, Norður Carolina, Okla-
homa, Oregon, Suður Carolina,
Tennesse, Virginia, Washington,
Vestur Virginia og Utah.
í ýmsum ríkjum var reynt aö
koma í gegn breytingum á vin-
bannslögunum, jiannig aS rýmka
um fyrir brennivinsliöið, og var
það svo aS segja alstaSar felt.
Veöurstaöan hefir breyzt þannig,
hvar sem þióðarviljinn fær aS koma
i ljós að bindindismenn hafa bæði
tqgl og hagllir. Augu manna hafa
alment opnast fyrir skaðsemi áfeng-
isins og eru dagar þess augsýni-
lega taldir.
Hermiþingið.
ÞaS byrjar í kveld f'fimtudag)
kl.. 8. Svo hefir veriS um hnúta
búið að þaö hlýtur að verða fjör-
ugt i ár. Ríikisstjóri veröur séra B.
B. Jónsson. Dómsmálastj. Gordon
Paulson. ForsætisráSherra Th.
Johnson. Verkamálaráðherra Sig.
Tul. Jóhannesson. MentamálaráS-
hierra E. P. Jónsson. Utanríkismála
ráöherra J. J. Swanson. Leiðtogi
andstæöinga verður Arngr. John-
son. Sambandsmál verða rædd, og
er þetta þvi sambandsþing. í
kveld (fimtudag) veröur þingið
sett, hásætisræöan flutt og fjörug-
ar ræður út af henni.
Konur eru sérstaklega ámintar
um að fiölmenna. Nokkrar konur
hafa tekiö að sér að skipa þingsæti;
þar á meöal Steina Stefánson,
María Anderson, Mrs. Th. Borg-
fjörS o. fl.
Bruni og slys.
Á laugardaginn var kviknaði i
söðlasmíöahúsi Babudge að 468
Ross Ave. Var þaS þrílyft bygg-
ing. Hvernig eldurinn kviknaði
veit enginn, en það brann til kaldra
kola á stuttum tíma. Fólk var í
byggingunni og vissi ekkert af fyr
en alt var komiS í bál og brand.
Linn íslendingur var þar í vinnu,
var það Carl Thorson skopniynda-
höfundnr. Hann bjargaSist meö
naumindum þannig að hann stökk
út um glugga á þriSja lofti. Meidd-
ist hann nokkuS, en ekki skaðlega.
Áður en hann komst út hafði hann
brunnið lítiö eitt.
Maður sem ráðsmensku hafði á
hendi við verzlunina og E. J.
Hoover hét brann svo að hann beiö
bana af, en aðrir sköSuðust svo að
þeir Uggja á hopítalinu.
Kelly dæmdur.
Hálft þriðja ár í fangelsi.
Hótelhaldarar hafa í heijingum
Hótelhaldarar í Winnipeg kveð-
ast munu loka hótelunum í vetur;
þykjast þeir ekki fá inr. nógu mik-
ið fé til þess að standast kostnað.
Þetta er álitiS bragS til þess aö
koma óáliti á vínbannið.
Loksins er Kellymálinu lokið.
ÞaS var dæmt á laugardaginn var.
Coyne lögmaður stjómarinnar
krafðist þess aS hann væri dæmd-
ur; rakti hann sögu málsins; sýndi
fram á allan þann mótþróa, er hann
hefSi sýnt frá því fyrsta; þann
mikla auka kostnaS sem hann hefði
valdiS að óþörfu, fyrir utan fjár-
dráttinn, og hversu mikils virði þeir
peningar hefðu veriS nú í sam-
bandi viS stríðiS, sem hann hafði
af fylkinu, ef þeir væru til reiðu.
Anderson lögmaður Kellys hélt
þvi fram að hinn sakborni hefði
ekki fengiö sanngjarnan málarekst-
ur; ekki næeilegan Þma til vamar
o. s. frv. Hann hélt því einnig
fram aS Kelly væri aSeins samsek
ur mönnum alment i hans stöðu
það sem Kelly hefSi aðhafst’ værí
aðeins það sama sem tíðkast hefSi
hér alment í 40 til 50 ár; kvaS hann
þjóðiría vera seka um það og engan
einstakan mann; væri því rangt að
velja einn úr þeirra hópi er slíkt
hefði gert og hegna honum, þar
sem allir aðrir slippu.
Sjálfur talaði Kelly; kvaðst vera
með öllu saklaus; sagðist hafa ver-
ið beittur rangindum og sér hefði
ekki veriö veitt sanngjöm mál-
færsla. Kvaðst hann hefði átt
hæet með að sanna fólki í Manitoba
saklevsi sitt, hefði sér verið veittur
santieiamlega lamrur tími til.
Dómarinn hélt stutta ræSu.
KvaSst hann hafa tekiö a't til at-
hugunar, áður en hann hefði í huga
sér ákveðið dóminn. Hann kvaöst
verða vægari i dómi vegna þess að
Kelly væri háaldraður maður: einn-
ig sökum þess að hann hefði átt
góða daga og notið mikilla virð-
inga, og þess vegna sé hegning
honum þungbær.
Hins vesrar kvaðst hann hafa
tekið það til greina hversu alvarlegt
málið væri, bversu mikiS það heföi
kostað og hvílik nauSsvn væri á þvi
að réttlætið næSi fram aS ganea.
Hann kvaðst þvi dæma hann i bálfs
þriSja árs fangelsi í Stony Moun-
tain og þr)á mánuði auk þess fvrir
lítilsviröingu á réttvísinni og ólög-
hlýSni, þar sem hann heföi neitaö
að koma fram meö skjöl og skil-
ríki. Þessir þrir mánuðir fari þó
samhliöa hinum tímanum þannig
að þeir í raun og veru lengi ekki
fangelsisveruna. Sekt kvað bann
hafa komið sér í hug að dæma Kelly
i auk hegningarinnar, en horfið frá
því sökum þess að litil sekt ætti
ekki viS, en afar há sekt væri ó-
sanngjörn, þar sem borgaralegt mál
yrði höfðaS gegn honum, til þess
að ná aftur því fé er hann hefði
rangíega dregið úr fylkissióði.
Sagt er aS Anderson lögmaSur
Kellys ætli að fara þess á leit fyr-
ir hann að honum sé vægt
við erfiöisvinnu í fangelsinu sökum
elli og þess aö hann sé óvanur
henni. Var farið með Kelly til
Stony Mountain á mánudagsmorg-
uninn.
Þannig lendaði eitthvert harð-
sóttasta mál sem staöið hefir yfir
i þessu landi, og er það rnikill sig-
ur réttlætinu hvernig það fór.
AðalatriSiS var það að hér væri
sýnt aS lögin næðu jafnt yfir rík-
an og fátækan. Sumir halda þvi
fram að fangelsis tíminn hefði átt
að vera lengri, og má vera aö þeir
hafi rétt að mæla frá vissu sjónar-
miði; en hefnigirni má ekki eiga
sér staö í þessu fremur en öðru, og
þessi dómur er nógu þungur þegar
tillit er tekið til þess hve maðurinn
er gamall og liversu honum hlýtur
aS bregða viS umskiftin, þótt því sé
ekki aS neita hins vegar að ýmsir
aSrir hafi hlotið harðari dóma
fyrir minni sakir.
Manitobastjórnin á heiður skilið
fyrir þaS hversu vel hún hefir fylgt
fram réttlæti og lögum í þessu máli
frá byrjun til enda.
Kelly-málið enn.
Anderson lögmaður Kellys lýsti
því yfir á þriðjudaginn að hann
hefði sent beiðni til Doherty dóms-
málastjóra Canada um þaS aö
Thomas Kelly fengi nýja málsrann-
sóikn, þrátt fyrir það þótt honum
hafi veriö neitaS um þaö fyrir öll-
um dómstólum Canada.
Nýmæli.
Eins og getið hefir veriö um áð-
ur, hafa Goodtemplarastúkurnar
haft til meöferöar mál, sem al-
menning varðar, það, aS haldnir
séu alþýSufyrirlestrar i vetur. ÞaS
hafa þegar veriö fengnir allmargir
af færustu Islendingum til aö
flytja þá. Fyrsti fyrirlesturinn
verSur fluttur á miðvikudagskveld-
iS 29. nóvember klukkan átta af Dr.
Sig. Júl. Jóhannessyni. Efni fyrir-
lestursins verSur um Gretti Ás-
mundsson. Vonandi er aS íslend-
ingar fjölmenni. ÞaS eru allir vej-
komnir. ASgangur er ókeypis, svo
ekki ætti þaö að fæla neinn frá. —
Komið öll og komiö í tíma.
Grikkjakonungur óþjáll
ASstoöar flotaforingi banda-
manna eystra, sem er frakkneskur
og heitir Du Foumet krafðist þess-
af Grikkjum á mánudaginn aö þeir
létu af hendi öll vopn og skotföng
og létu fara úr landi burt ræðis-
menn Þjóöverja, Austurríkis-
manna, Bulgara og Tyrkja. Kon-
ungur kallaði' tafarlausr saman
leiðtoga sína til skrafs og ráða-
gerSa, og eftir samkomulagi við þá
lýsti hann þvi yfir aö hann neitaöi
þessum kröfum bandamanna.
Þegar konungur kom út úr ráð-
stefnusalnum og ljóst var orðið
hvað hann hafði afráðið, var hrpp-
aö fyrir honum heilla- og fagnaö-
aróp af fjölda manns er úti fyrir
beið.
Annars er fariS aö líta ískyggi-
lega út á Grikklandi og tæplega
hægt að sjá hvernig þjóðin getur
haldiö sig frá stríöinu miklu leng-
ur.
Vilhjálmur Stefáns-
868 sjúklingar á hospítalinu.
Skýrslur hospitalsins sýna aS
868 sjúklingar hafa veriö þar í
október. 26 dóu; en sjúkrastund-
un þar nam sli. 12,712 dögum á
mánuöinum. í 10 mánuSi frá 1.
janúar til 31. október voru þar
10,514 sjúklingar, sjúkrastundun
15,351 dagar. ^íeðal sjúklingatala
á dag í október var 410; en í fyrra
35°' _
Jöfn eftirlaun.
Mikil hreyfing hefir vaknaö um
það að allir særöir hermenn fái jöfn
eftirlaun og allar fjölskyldur jafn-
mikið eftir fallna menn, hvort sem
þeir hafa verið liðsforingjar eða
óbreyttir hermenn. “Lifandi her-
foringi getur verið meira virSi fyr-
ir þjóöina en lifandi hermaður, en
dauður herforingi ekki meira virði
en dauöur hermaður,’’ þannig
kemst “Free PreSs” að oröi um
þetta mál í ritstjómargrein á laug-
ardaginn.
Leiðrétting
Þess var getiö í Lögbergi ný-
lega að rangt hefði verið skýrt frá
úrskuröi og skýringu Howells há-
yfirdómara í blöðunum. H. A.
Bergman hefir góðfúslega bent oss
á þá villu. Hún er í því fólgin aS
sagt var að Howell heföi lagt til að
Kelly væri fríaöur af öllu nema
lítilfjörlegasta brotinu og dæmdur
í vægustu hegningu fyrir þaS.
Þletta var ekki rétt. Kelly var
kærður um þrent: 1. Þjófnað, 2.
aö taka viS stolnu fé og, 3. að draga
fé undir fölsku yfirskyni. En þetta
voru alt sömu peningamir. Howell
sagði því að ef eitt væri sannaö
félli hitt niöur í raun og veru. Þar
sem um eina upphæð væri aö ræða
aðeins, væri þaö tæplega hægt að
segia aö sömu upphæðinni í sama
skiftið hefSi veriö stoliö, hún tekin
sem stolið fé og henni náð undir
fölsku yfirskyni og það alt af sama
manninum, þó það í raun réttri
gæti verið satt.
Kvað hann endurrannsókn ó-
þarfa kostnað og Kelly engin rang-
indi sýnd ef honum væri neitaö um
það, en á sama tima væri honum
aðeins dæmd þyngsta hegning fyrir
minsta brot sem um var kært. Og
þannig var dómurinn að síðustu.
Bærinn Craiova í Rumeniu féll í
hendur Þjóöverjum á þriSjudag-
inn. Er það talið mjög alvarlegt
atriði bæði sökum þess að sá bær
er á afar ríkri hveitisléttu og þar
voru stórkostleg hveiti geymsluhús,
og í ööru lagi eru bandam'enn með
þvi útilokaðir frá jámbrautarsam-
bandi á stóru svæði, því bærinn er
miðstöö járnbrautakerfa. Þjóö-
verjar höfðu gert svo snögga árás
aö öllum kom á óvart.
' son
Bréf kom frá honum nýlega þar
sem hann kvaöst ekki mundu koma
til mannabygöa fyr en 1918. Hann
skrifar frá Kellett höfða á Banks-
eyju til Dr. Herbert J. Spinders
listasafnsstjóra í New York og
segir aö til vandræöa horfi meö
Eskimóana, þeir hafi ráöist á menn
Stefánssonar og rænt þá. Höföu
þeir veikst af influenzu og haldið
aS þaö væru gjörningar af höndum
hinna hvítu manna. Þeir grát-
bændu Stefánsson um aö taka
veikina í burtu og treystu honum
til þess; en ef þeim batnar ekki og
sérstaklega ef nokkrir þeirra
deyja úr veikinni, telur Stefánsson J
líklegt aö ilt verði viö þá að eiga.
Landsíminn 10 ára.
1906 — 29. september — 1916.
Eftir
Gísla J. Óiafsson stöövarstjóra.
j^Bræður sem fóru með 1 84. herdeildinni 'j
» 5.« *
■ :v' s-
William Björn Benson.
Ingólfur Benson.
Meðan landsíminn var í móðurlífi
MeBgöngutíminn meö þann króa
var óvenjulangur, hvorki meiri né
minni en full 15 ár, og reikna eg
hann þá frá þeim tíma, sem síma-
málinu var fyrst hreyft af íslend-
ingum sjálfum á Alþingi 1891.
Það voru þeir Skúli sálugi Thor-
oddsen og Jens heitinn Pálsson,
sem þá lögðu til, að bygð yröi land-
símalína milli Reykjavíkur og aö-
alkaupstaðanna, ísafjarðar, Akur-
eyrar og SeyðisfjarSar, og munu
þeir meðfram hfa gert þaö í þeim
tilgangi, að flýta fyrir því, aS Is-
land kæmist i símasamband við um-
heiminn. En þaS féll þá auðvitaö,
eins og flest önnur þarfleg þjóð-
þrifa- og framfarafyrirtæki, sem
ný eru af nálinni. Á þessu sama
þingi var þó skorað á stjórnina aö
hlutast til um, aö það verði borið
fram við erlend ríki, hvort og aö
hve miklu leyti þau kynnu aö vilja
styðja að þvi, sérstaklega veSur-
fræöinnar vegna, aö lagður veröi
fréttaþráöur til íslands”.
Eftir þetta fer áhugi þings og
þjóSar sívaxandi í símamálinu, þó
að litið bóli raunar á því þar til
1897; þá ligrgja fyrir þinginu tvö
tilboð um að leggja sæsíma frá
Hjaltlandi til íslands, yfir Færeyj-
ar; annað er frá 2 Englendingum,
Mitchel og Cooper, og vilja þeir fá
til þess 45,000 kr. styrk úr lands-
sjóði á ári í 25 ár: hitt er frá Mikla
norræna Ritsímafélaginu, og fer
það fram á 40,000 kr. árstillag í 20
ár, en lætur þess þó jafnframt giet-
ið, aS það muni líklega láta sér
nægja 35,000 kr. á ári, og þessa
upphæö veitti svo þingið. Þetta er
í fyrsta skifti, sem simamáliS
kemst inn i fjárlögin, og þetta sama
árstillag hefir veriö samþykt á
hverju þingi síðan.
ÁriS eftir sendi Mikla norræna
félagið amerískan verkfræöing,
Hanson að nafni, hingaö upp til
rannsókna, og f'erðaðist hann hér
um í tvö ár í þeim erindagerðum.
Hann kemur fyrst upp meö það aS
leggja sæsimann upp til Austur-
landsins, en ekki til Reykjavikur,
og aS félagið greiði aftur á móti
Islandi fé það, sem sparaöist viS
betta, til að byggja fyrir landlínu
til Revkiavíkur, og var upphæö
þessi áætluö 300,000 kr.
HSal ástæðan til þess aS síma-
Iagn:ngunni Var ekki komiö í fram-
kvæmd á næstu árum, var sú, aS fé-
lögin sem sóttu um leyfi þetta, gátu
ekki fengið nægilegan fjárstyrk frá
öðrum ríkjum, eins og þau munu
hafa gert sér vonir um.
Eftir þetta er málinu aö vísu
hreyft á hv'erju þingi, en lítiS í því«
gert, er miði í framfaraátdna, þar|
til Hannes Hafstein verSur ráð-
herra 1904. Han» og hans flokkur [
tekur máliö á sínar herðar og færir
það fljótt fram til sigurs.
Hannes Hafstein byrjaöi þegar á
samningstilraunum, bæði við Mar-
coni, félagiö í undúnum og Mikla
norræna RitsímafélagiS. Honum
tókst að komast að töluvert betri
kjörum hjá síöarnefnda félaginu en
það hafði nokkurn tíma áöur boöið,
og gerði hann samning viS það í
September 1904, se mvar lagður fyr-1
ir alþing 1905. HvaS sem annars
má um samning þennan segja, og[
ýmislegt má auðvitað að honum j
finnna, þá er það varla nokkrum
efa undirorpið, að með honum var
stigið eitthvert allra stærsta og
happadrýgsta sporiö í framfaraátt-
ina, sem stigið hefir verið á þessu
landi, því að þjóð, sem er simasam-
bandslaus, getur aldrei orSiö fram-
faraþjóö; símasambandið er sú und-
irstaöa, sem allar aörar sannar
framfarir verða að byggjast á.
Alþingi 1905 veitti svo nauðsyn-
legt fé til landlinulagningarinnar
Þessir bræöur, William Björn
Benson og Ingólfur Benson eru
báðir fæddir í Winnipeg; hinn fyr-
nefndi 16. október 1891, en sá síö-
ari 1. september 1895. Foreldrar
þeirra eru þau Sakarías Benson og
Kristin Brynjólfsdóttir, sem heim-
ili eiga aö 775 Toronto stræti i
Winnipeg, bæöi ættuö af Vestur-
landi. Komu þau aö heiman fyrir
-þrjátíu árum og hafa lengstum
dvalið hér í borg.
Þeir bra^öur eru mannvænlegir
menn, enda eiga þeir ætt til þess
aö rekja. Séra Björn í Frosta-
tungu var lanpfi þeirra.
Þeir fóru 1 herinn 29. febrúar
1916 og gengu .þá í 108. herdeildina
(Manitoba Buffalos) og eru nú
komnir til Englands.
frá Seyðisfirði til Reykjavíkur til 1 $40,000
viðbótar þeim 300,000 kr., er Mikla
norræna, samkv. samningi átti aö
greiöa landsjóði fyrir að sleppa viö
að leggja simann upp til Revkja-
víkur.
Ekki fæddist krói þessi hljóða-
laust, því aö aldrei áöur á þessu
landi haföi verið geröur eins mik-
,11 hávaSi út af nokkru máli eins og
þessu, og svo miklu ‘ryki var þyrl-
aö upp, aö skilningsvit sumra fylt-
ust alveg. Og æsingamar náöu há-
marki 'sínu meö bændafundinum
sæla 1. ágúst 1905. Þrátt fyrir
þessa megnu mótspyrnu gegn síma-
málinu, var því þó til lykta ráðið
á Alþingi 1915, og eg hygg aö
flestir sanngjarnr menn muni nú
játa, að þaö hafi veriö gert á þann
hátt, sem ættjöröu vorri var heilla-
vænlegast.
Þaö er nógu gaman að athuga,
hvaöa vonir þingmenn geröu sér
um þetta viöskiftatæki. Flestuin
mun hafa veriö þaö full-ljóst, aö
hér var um aö ræða eitt af þýðing-
armestu og viStækustu velferðar-
málum lands og þjóðar, og að ó-
beini hagnaöurinn af þvi væri óút-
reiknanlegur; en synd væri að
segja aö þeir hefðu gert sér of
miklar vonir um beinu tekjumar
af simasambandinu.
(Framh.)
var eytt fyrir skóflu-
ræfla sem hraöritarastúlka hjá Sam
Hughes fann upp, en voru einskis
virSi.
$400,000 var sóaö fyrir Eatons
vélina sælu, sem alveg reyndist
ónýt. — Nóg er til af peningum,
piltar!
Það sannaöist fyrir Merdith-
Duff nefndinni að $1,000,000 fjár-
dráttur átti sér staö í einum samn-
ingi í sambandi viö skotfærakaup.
■— Hví er ekki hegnt fyrir þaö?
Anderson lögmaður Kellys' fer
fram á það við dómsmálastjórann
í Ottawa að hann ónýti geröir allta
dómstóla landsins í því raáli, frá
[>eim lægsta til þess hæsta. —
Svona mienn ættu að syngja þýzku
einveldi lof og dýrð.
Skotfæranefndin er kærð um aö
hafa látið ræna frá þjóðinni $100,-
000,000 (bara hundraS miljónumj
í sambandi við þau skotfæri sem
hún útviegaöi áður en hún var rekin.
1.
BITAR
1
Austurríkiskeisari
skifti. — Hvenær
deyja næst?
dauöur í 4
skyldi hann
“Free Press” og "Tribune” segja
að Haultain háyfirdómari i Sask-
atchewan ihafi að baki sér tár-
hreina stjórnmálasögu. Hvaö
sögðu þessi sönni blöð um hann
1911, þegar .hann (aö dómi þeirra
og fleiri) seldi sig auövaldinu fyrir
háyfirdómara embættið og smerist
móti verzlunarfrelsi, sem hann áð-
ur hafSi barist fyrír frá barnæsku?
Hafa þau gleymt því?
Miljónum dollara var eytt fyrir
ónýtar byssur,- sem stofnuöu lífi
canadiskra hermanna i lifshættu
áBur en enska stjóniin lét fleygja
þeim út í sorphaug.
1
Fundur til fróðleiks og
skemtunar fyrir alla
Islenski Liberal-klúbburinn heldur opinn fund í
Good Templara húsinu fimtudagskvöldið hinn
30. þessa tnánaðar.
ÞAR VERDUR MIKIÐ UM DÝRÐIR
Rœðuntenn:
Hon. T. C. Norris
Hon. Thos. H. Johnson
Mr. Adamson, (þingmannsefni frjálslynda
flokksins ).
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson.
Hon. Thos. H. Johnson flytur tölu um verka-
mannalöggjöfina hina nýju
A milli ræðanna verður skcmt með einsöng, tvisöng
og hljóðfccraslœtti.
MUNIÐ ÞF.TTA, MENN OG KONURI
Aðgangur ókeypis. Fundurinn hefst kl. 8 síöd.
I