Lögberg - 23.11.1916, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. NOVEMBER 1916.
Joqbeiq
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Press, Ltd.,Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnip>egp Man.
TALSIMI: CARRY 2156
SIG. JUL. JÓIIANNESSON, Editor
J. J. VOHNI, Business Manuuer
Utan&skrift til blaðsins:
THE 00LUIH8UV PfJESS, Ltd., Box 3172, Winnipeg,
Uianáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Man.
VERÐ BLAÐSINS: »2 00 um árið.
27
Alvörumál Canada.
Blaðið “Liberal Monthly” flytur grein í
fyrradag með þessari fyrirsögn; er útdráttur
úr henni á þessa leið:
“Vér erum ekki bölsýnismenn. Vér höfum
ósigrandi trú á framtíð þessa mikla lands. En
vér getum ekki lokað augum vorum fyrir virki-
leikanum — þeim virkileika að canadiska þjóð-
in horfist í augu við alvarleg efni, erfiðar gát-
ur, sem aðeins uppbyggjandi og heilbrigð fram-
sýni og samvizkusöm stjórn getur ráðið fram úr.
Látum oss athuga eitt alvarlegasta atriðið.
Það er meðferð eða umönnun heimkominna,
særðra hermanna. Það er fyrsta og langfyrsta
atriðið, sem stjórnin verður að snúa huga sín-
um að. Það mál eitt út af fyrir sig verður sú
gáta sem löng og alvarleg heilabrot þarf —
jafnvel þó um stórvitra menn væri að ræða.
Að sjá þeim fyrir góðri líðan, sem í stríðinu
bafa tapað heilsu sinni, andlega eða líkamlega.
Það er heilög skylda þjóðarinnar; ekki að sjá
fyrir þeim sem þurfamönnum; heldur á öll um-
önnun þeim til handa að vera ljúf greiðsla lítils
hluta þeirrar þakkarskuldar, sem vér erum í við
þessa menn, sem lagt hafa líf og limi í sölurnar
vor vegna og lands vors.
Ekkert á þessi þjóð að láta ógjört til þess
að æfidagar þeirra manna megi verða sem
bærilegastir.
En þjóðirnar eru oft gleymnar; afreksverk
hetjanna í dag eru oft glevmd á morgun.
Því trúum vér þó að ef stjórnin Iætur dug-
lega til sín taka í byrjun, þá fylgi þjóðin henni
og reynist göfuglynd og skyldurækin.
Endursköpunar tímabilið eftir stríðið, ef
svo mætti kalla, þarf að skoðast frá mörgum
hliðum. Millibiístíminn frá því að stríðið hætt-
ir og þangað til tckið er til virkilegra og frið-
samlogra starfa verður að sumu leyti vandræða
tímabil.
Stór hluti iðnaðarstofnana vorra er nú til
þess notaður að framleiða hervörur og skotfæri
og ekkert annað; og þess er tæplega að vænta
að þær komist aftur í samskonar lag og á frið-
artímum fyrstu mánuðina eða jafnvel fyrsta
árið. Þetta tímabil verður erfitt og jafnvel
hættulegt fyrir Canada.
Einmitt nú er þörf á framsýni og dómgreind,
góðri stjórn og forsjálum leiðtoga, til þess að
ráða þessar gátur. Við verðum að vera við
þessum tíma búnir, til þess að hann komi ekki
að oss óvörum.
Þá eru skattamálin ekki síður athugaverð.
Það hvernig hægt sé og sanngjarnt að fá þær
tekjur, sem nokkurn veginn hrökkvi til þess að
mæta hinni afskaplegu skuldabyrði sem á herð-
um þjóðarinnar hvílir eftir stríðið, hlýtur að
liggja þungt á hugsun allra þeirra borgara, sem
ekki stendur á sama hvernig alt draslast.
Aukin ársgjöld þjóðarinnar eftir stríðið
hljóta að verða afarmikil. * Þjóðskuldin verður
þá um biljón dollara ($100,000,000). Með því
að reikna af þeirri upphaíð 5% vexti er það
$60,000,000 (fimtíu miljónir dollara) á ári sem
þjóðin yrði að borga aðeins í rentur, án þess
að greiða eitt einasta eent af höfuðstólnum.
Eftirlaunaféð verður að líkindum ekki
minna en $20,000,000 (tuttugu miljónir dollara)
•á ári, og borganir af gömlum skuldum eru að
minsta kosti $10,000,000 (tíu miljónir) á ári.
Auk þessa nemur sú byrði sem járnbrautirnar
hafa bundið þjóðinni mörgum miljónum á ári ’
um langan tíma.
I allra minsta lagi verða því árleg útgiöld
ríkisins ekki lægri en $70,000,000 til $80,000,000
(sjötíu til áttatíu miljónum dollara), eftir stríð-
ið, en voru ekki nema $13,000,000 (þrettán mil-
jónirt fyrir það.
Hingað til hefir stjórnin ekkert gert til þess
að greiða úr þessu vandamáli svo að varan-
legt sé.
Herskattar þeir sem hún hefir lagt á inn-
fluttar vörur og verzlunarágóða eru vanskapn-
ingar og væru með öllu óverjanlegir á friðartím-
um, sökum þess að þeir eru óheilbrigðir í sjálfu
sér og óréttlátir í reyndinni.
Það væri skynsamlegt að endurskoða og
brevta öllu skatta- og tollafyrifckomulaginu.
Reglan sem fylgja ætti þegar nýr mælikvarði
væri lagður fyrir sköttum ætti að vera sú að
skatta bæði beinlínis og óbeinlínis og með jöfn-
vði hvern einstakling eftir gjaldþoli, og hlífa
þeim veikari og efnaminni alstaðar þar sem því
yrði mögulega við komið.
Jafnvel bezta skattafvrirkomulag í beimi
hefir sínar veiku hliðar og óréttlát sérréttindi
í för með sér. Á þessu atriði þarf að hafa vak-
andi auga á því þarf að ráða bót hiklaust og
vægðarlaust.
Núverandi Bordenskattar. með 7(4% auka-
tolli er að mörgu leyti ranglátur og synd gegn
alþýðunni.
Vísindaleg endurskoðun tollalöggjafarinn-
ar, bygð á fullri þekkingu og sannreynd með
sérstöku tilliti til tekjunauðsynja, er það sem
þjóðin þarfnast fremur en alls annars, ekki að-
eins verksmiðjueigendum til verndar, heldur
allri þjóðinni.
Gamla liberalstjórnin gerði tollalöggjöfina
einfaldari og lækkaði tollana allmikið, svo að
til mikilla hagsmuna varð, ekki einungis fyrir
landið eða þjóðina í heild sinni, heldur einnig
fyrir verksmiðjueigendurna sjálfa jafnframt,
og tóku þeir miklum framförum á dögum þeirr-
ar 8tjórnar. Sama árangur má fá með sams-
Konar hvgni og framsýni, ef hún er viðhöfð
nú. Það er jöfnuður og sanngirni sem mest
ríður á.
Því ætti ekki að gleyma að leggja skatta á
landverð. Það virðist máske vera bvltinsra-
blandið, en það er heilbrigt og réttlátt, hvernig
sem á það er litið. I and sem bvs-t er upn hækk-
ar í verði fyrir beinar og óbeinar tilraunir
þjóðfélagsins eða fólksins sem þar býr. Hvers
vegna skyldi þá ekki að minsta kosti nokkur
hluti þess ágóða sem verðhækkunin hefir í för
með sér renna til þarfa þess mannfélags, sem
hún er að þakka?
Sir Thomas White fjármálaráðherra sam-
bandsstjórnarinnar hefir enn ekki snert hendi
sinni við auðsafni og erfðafé hinna voldugu.
Hann hefir lagt auka byrði á herðar hinum fá-
tæku með innflutningstolli á lífsnauðsynjum,
sem hækka stórum söluverð á öllum fæðutegund-
um í Canada, en hina ríku hefir hann látið
sleppa tollfría. Hér þarf bráðra og alvarlegra
breytinga og þeim ætti að verða tekið fegins
hendi af hinum fátækari* hluta þjóðarinnar.
Þá er járnbrautamálið. Það er mál sem
virðist vera komið í vonlaust efni. Vér megum
ekki og getum ekki haldið áfram að .kasta út
tugum miljóna árlega í “International”,
“Transcontinental”, G.T.P. og C N.R. félögin,
án þess að nokkur gild ástæða virðist vera fvrir,
án nokkurra reglulegra skilyrða og án nokkurr-
ar vonar um að nokkuð komi í aðra hönd.
Stefna sem hefir það fyrir markmið að
halda einungis við þeim járnbrautum sem
borga sig, og virðist það vera sjálfsagt að
stjórna þeim þannig að þær geti borgað sig.
Hér mætti einnig minnast á það að John
Fraser, aðalyfirskoðunarmaður ríkisreikning-
anna í Canada, hefir verið sendur til Englands
í mikilsvarðandi erindum.
Honum hefir verið veitt vald til þess frá
rdcisstjóranum, að rannsaka og gefa skýrslu
viðvíkjandi því, sem evtt hefir verið í sambandi
við canadiska lierinn í Evrópu.
Það er skylda hans að ákveða verð þess sem
keypt hefir verið af hergögnum fyrir eanadiska
peninga; að .yfirfara skýrslur og reikninga að-
algjaldkerans og innkaupastjóra og finna það
út hve mikil sé skuld Canadaríkis við England
í sambandi við Canada herinn í Englandi og á
stríðsvellinum.
Hingað til hefir verið gerð grein fyrir um
$300,000,000 (þrjú hundruð miljónum dollara)
eða liðlega það; en þar í er ekki talið það sem
hermálaskrifstofan á Englandi telur til skuldar
hjá oss.
Enginn maður hefir haft vandasamari stöðu
síðan stríðið hófst en yfirskoðunarmaður ríkis-
reikninganna. Hann hefir orðið að fara yfir
öll útgjaldaatriði og vera viss um að stjórnar-
farsleg heimild væri fyrir öllu sem eytt hefir
verið.
Fyrir skarpskygni hans hefir verið komið í
veg fyrir það nokkrum sinnum að ríkisfjár-
hirzlan væri rænt, og auk þess hefir hann oft
orðið til þess að láta skila aftur upphæðum.
Með því að framkvæma skyldu sína hefir
hann áunnið sér heiftarhug Sir Sam Hughes,
hermálaráðherra, sérstaklega í sambandi við
vitnisburðinn, sem fram kom við Davidsons
rannsóknina um sölu þá er J. W. Allison stóð
fyrir til brezku herstjórnarinnar. Svo lanart
fór Hughes í árásum s'num á Fraser út úr
þessu að hann lýsti því yfir í þinginu síðast að
Allison ætti meira af ærlegheitum í minsta
fingri sínum en til væri í öllu “hræi” reiknings-
skoðaranna.
Nú hefir st.jórnin sent Fraser til Englands,
til þess að yfirskoða bækurnar þar og gefa
skýrslu um fjárhagsástand Canada þar.
Hingað til hefir litið svo út sem þeir er mál-
um stjórna þar hinu megin telji sér heimilt að
vera sínir eigin löggjafar, án þess að gera
Canada þinginu reikning fyrir gjörðum sínum.
(Liberal Monthly).
Samtök.
Þessi öld er öld samtakanna. öll möguleg
öfl — góð og ill — sameina sig í hverju því sem
þau vilja koma í framkvæmd.
Auðfélögin sameina sig til þess að fram-
kvæma stórfyrirtæki sem snerta allan heiminn.
Voldugir einstaklingar gera það sama.
Meira að segja heilar þjóðir ganga í sam
bönd sér og málum sínum til sóknar og varnar.
Iðnaðarmenn sameina sg til þess að geta notið
sem fylst arðs vinnu sinnar. Verzlanir samein-
ast til þess að geta rekið stórkaupa- og stórsölu-
verzlun; það er að segja sölu og kaup í stórum
stíl, þótt eins sé selt eða keypt það sem smátt er.
Verkalýðurinn sameinast í félög til þess að
geta orðið sem bezt samtaka í baráttu sinni, þó
það gangi stundum skrikkjótt.
Reynslan hefir sýnt það og sannað að sam-
tök og samvinna, sameining fjár, sameining
lcrafta og átaka geta gert kraftaverk.
Þó hundrað manns bisi við það alla æfi að
reyna að velta steini hver í sínu lagi, sem þeim
öllum er ofvaxið, þá verður steinninn kyrd
sömu skorðum og ekkert vinst nema það að
mennirnir eyða kröftum sínum, lýjast og slitna.
Ef þessir sömu menn beita kröftum sínum
allir til samans — ganga í félag og taka á í ein-
ingu, þá getur takmarkið náðst á örstuttum
tíma með tiltölulega lítilli fyrirhöfn.
Þetta hafa þeir séð sem hygnir eru og fram-
sýnir, og af því eru öll samtök og samvinna
sprottin.
Islendingar hér í landi hafa erft það af for-
feðrum sínum að vera ósamhentir — ósamtaka.
Félagsskapur og samvinna hefir ávalt látið
þeim fremur illa og þess hefir þjóðin goldið
bæði heima og hér fram á þennan dag.
Hér í bænum var á ferð maður frá Nýja
íslandi fyrir skömmu. Hann var staddur inni
á skrifstofu Lögbergs. Maðurinn heitir Bald-
vin Anderson. Hann var að skýra frá því
hvernig fiskimennirnir töpuðu á því að geta ekki
sjálfir selt vörur sínar beint, heldur yrðu þeir
að gera það þannig að láta hana fara í gegn um
hendur millimanna. En hvernig stendur á að
mennirnir hefjast ekki handa og koma í veg
fyrir þetta böl? — því böl er það. Þeir eyða
tíma sínum og fyrirhöfn og leggja fé í neta-
stúfa og önnur veiðiáhöld hver í sínu lagi.
Hvers vegmi stofna ekki Ný-lslendingar og
fleiri voldugt fiskiveiða- og fiskisölu félag?
Þeir eru nógu margir til þess að stofna
voldugt félag í þessa átt. íslendingar eru sjó-
menn og sjósóknarar að fornu og nýju og nú
er t. d. á ættjörðu vorri allra mesta auðs-
uppsprettan fiskiveiðarnar. Og það er með
samtökum og samvinnu sem þar er rakað sam-
an fé í stórum stíl; þeir ha.fa loksins lært sam-
tök heima, og árangurinn er auðsær nú þegar.
Hvers vegna feta eklci landar vorir hér í
fótspor þeirra í þessu efni? Hvers vegna
stofna þeir elcki fiskifélög þar sem þeir geri alt
sjálfir; veiði fiskinn, geri hann að verzlunar-
vöru og selji hann án milliliða?
Þeir eru sjálfir ágætir sjómenn; þeir eru
sjálfir nógu viti og hæfileikum gæddir; þeir eru
sjálfir nú orðið nógum efnum búnir. Vötnin eru
full af auði sem öllum er opinn til afnota.
Það er aðeins samtök sem brestur. Er það
ómögulegt að hendur og heilar íslenzkra manna
geti unnið svo saman að þeim hepnist að hag-
nýta sér þann mikla arð, sem hér er um að ræða?
Skaðleg ósannsögli.
Laugardagsblöðin fluttu grein þar sem fram
kom vitnisburður hermanns, sem var fangi á
Þýzkalandi og er nýkominn aftur.
Hann heitir Thomas Weir og á heima að 313
Cumberland Ave..
Þegar hann heyrði þær sögur sem hér ganga
Ijósum logum, þess efnis að fangar á Þýzka-
landi séu sveltir og þjakaðir, sagði hann að þær
værn blátt áfram lýgi frá upphafi til enda.
Hann var sjálfur 8 mánuði herfangi á Þýzka-
landi og um tíma til lækninga þar í hospítali,
áður en honum var skift fyrir annan fanga frá
Englandi og leyft að fara heim í desember 1915.
Hann segir að póstur hafi lcomið reglulega
og þegar hann hafi verið á hospítalinu hafi sér
verið hjúkrað vel og fæðið hafi verið óaðfinn-
anlegt. Ilann kvaðst ekki hafa orðið var við
neitt af hinni illu meðferð, sem hér sé talað um
og mikið gert úr.
“Við fengum einnig að vita hvernig alt
gengi, þó það væri stundum seint. Við fengum
blöð frá bandamannalöndunum og nóg af bók-
um og okkur voru látin í té föt þegar við þurft-
um þeirra við,” sagði Weir.
Thomas Weir fór frá Winnipeg þegar stríð-
ið hófst og særðist í olnbogann í orustunni við
Ypres og var tekinn fangi. Hann lýsti því yfir
að læknishjálp væri alveg jöfn í Þýzkalandi,
livort sem um þýzkfa eða brezka fanga væri að
ræða.”
Þetta eru fréttir sem sumum koma líklega á
óvart. Það hefir verið borið fram í flestum
blöðum landsins að föngum liði álíka í Þýzka-
landi og mannsálum í helvíti.
Afleiðingarnar af þeirri kenningu hafa orð-
ið aðrar en til var ætlast. Það kom greinilega
fram við kosningarnar í Bandaríkjunum að
sumum stóð ótti af því sérstaklega ef þjóðin
lenti í ófriðnum, hversu illa yrði farið með þá,
sem til fanga yrðu teknir.
Þær voðafréttir, sem þessi nýkomni her-
maður segir af eigin reynslu að séu'lognar, hafa
fylt menn og konur hér skelfingu og hugarraun
og áhyggjum vegna sona, bræðra og eigin-
manna, sem þessum ósköpum ættu að sæta í
fangelsunum á Þýzkalandi.
Það verður ekki sýnt með tölum hversu
mörgum þessar kenningar hafa haldið heima,
sem annars hefðu farið í herinn.
Á þennan hátt hafa þeir menn og þau blöð,
sem þessar fréttir hafa flutt til þess að æsa
þjóðina, unnið alveg í öfuga átt.
Ahrifin hafa dregið úr hersöfnun og
þannig orðið landráða kenning, þótt til annars
hafi verið ætlast.
Geturþað verið satt?
BlaSiS “Regina Leader” flytur grein 15. þ. m., þar
sem því er ákveSið haldið fram að skipið “Deutsch-
land” hafi verið hlaðið með nikkel frá Canada. Er
fréttin höfð eftir blaði sem heitir “The Providence
Journal”, og segir þar að canadiska koparfélagið í
Sundbury í Ontario hafi látið flytja þessar hjálpar-
vörur til Þjóðverja. Blaðið segir níu vagnhlöss af
nikkel, fjörutiu smálestir hvert, og tíu vagnhlöss af
leðurlíki, átján smálestir hvert eða alls fimm hundruð
og fjörutíu smálestir hafi verið flutt á skipið. Auk
þessa hafi verið flutt þangað þrjú vagnhlöss af efni
sem “Chromium” heitir, og eitt vagnhlass af “Vanadi
um”; eru bæði þessi efni til þess höfð að herða með
þeim stál.
Enn þá segir félagið að sé eftir í vörugeymsluhús-
inu í New London fjögur hundruð smálestir af leður-
líki og tvö hundruð smálestir af hreinsuðu nikkel
handa Þjóðverjum.
THE DOMINION BANK
Uppborgaður lioluðstóU og vurasjóður $13.000,000
Allar eigiilr ... 87,000,000
Bankastörl öll f 1 jótt og samvlzkusamlega af hendl leyst. Dg
áherzla lögð & a6 gera skiftavinum sem þœgilegust vi6sklftin.
Sparisjóðsdeild,
Vextir borgaðir eða þeim bætt við innstæður frá »1.00 e8a meira,
tvisvar á ári—30. Júnl og 31. Desember. 384
Notre Diuiie Branch—W. M. HAM11/TON, Manager.
8elkirk Branch—M. 8. BUKUiiIK, Manager.
V«»|il
purith rtouRs
Hvaða meiningu
leggið þér í nafn?
Spyrjið matreið^l-
umanninn,
PURITV FLOUR
More Bread and Better Bread
Alt það nikkel sem nú er flutt á
Deutschland segir blaðið að sé
partur af því sem keypt hafi verið
í nóvember 1914 frá Intemational
nikkel félaginu. Blaðið segir að
þessar vörur hafi keypt þýzk-
amerískir menn að nafninu til, en í
raun réttri hafi þeir aðeins verið
umboðsmenn Dr. Heinrich Albert
fjármálaráðanauts þýzku stjórnar-
innar hér í álfu og hafi vörurnar
verið fluttar til geymshi til Nassau
bræðslu- og hreinsunarfélagsins á
29. stræti vestur í North River í
New York. Síðan var það flutt
þaðan til New York hafnarfélags-
ins í Brooklyn og geymt þar i 104.
vöruhúsi og skift niður i parta sem
vigtuðu 900 til 1400 pund. Svo
þegar Deutschland var farið í fyrra
skiftið var sent meira af nikkel.
Var það fyrst i september í haust.
Voru þá nokkur vagnhlöss flutt til
“Eastern” flutningafélagsins í
New London. Tvö vagnhlössin
komu 14. september, eitt 15. sept.
og fjögur 18. sept: 25. september
komu tvö hlöss af nikkel og leður-
liki og 29. september eitt vagnhlass
af nikkel og leðurlíki. 11. október
kom vagnhlass af nikkel og á átta
dögum þar á eftir komu tuttugyt og
níu vagnhlöss af leðurlíki; þrjú
vagnhlöss af Chromium og eitt
vagnhlass af Vanadium. Það
nikkel sem keypt var frá Inter-
national kopar félaginu kom til þess
frá Sudbury í Canada, fyrir milli-
göngu canadiska koparfélagsins.
Þetta er óefað einhver alvarleg-
asta landráðakæra, sem komið hef-
ir fram i nokkru landi síðan striðið
hófst. Þess hefir áður verið getið
í Lögbergi hverjir séu hluthafar í
sumum þessum félögum, sem sagt
er að þannig séu að selja skotfæra
efni til Þjóðverja og mun flestum
virðast það skylda þjóðarinnar að
skerast í leikinn og rannsaka málið.
Þegar svona greinilegar skýrslur
eru gafnar með manna- og félaga-
nöfnum, nákvæmri dagsetningu og
ákveðinni upphæð og vissir staðir
tilnefndir, þá er auðvelt að hefja
rannsókn hvenær sem er.
Aðgerðaleysi sfjórnarinnar í
þessu tilliti mun af mörgum verða
talið sem óræk sönnun um sekt
þeirra sem til eru nefndir og óræk
sönnun þéss einnig áð stjórnin
vilji hlifa þeim og sé þess vegna
samsek.
Getur þetta verið satt?
Hvaðá að bjóðaokkur?
Það er ekki sjaldgæft að sjá
auglýsinigar í íslenzku blöðunum um
samkomur til arðs fyrir eitthvað af
okkar mörgu félögum hér í bæ, og
þá oftast getið um leið hvað verði á
skemtiskránni, ræður, upplestur, pí-
anó söló, o. s. frv., og þá stundum
kaffi á eftit, og þetta alt fyrir að-
eins tuttugu og fimm cent. Þessu
erum við íslendingar hér í bæ orðn-
ir svo vanir, að maður getur naum-
ast hugsað sér öðruvísi samkomur,
það er orðið að sterkum vana að
sækja þær; mernn fárast ekki svo
mjög um breytingarleysið, menn
vita, þegar getið er um samkomur,
hvaið þar verður á boðstólum, og
það er sjálfsagt að sækja samkom-
urnar vegna félagsskaparins, sem á
að njóta ágóðans,—og það út af fyr-
ir sig er lofsvert, að styðja það fé-
lag sem maður heyrir til, og það
málefni, sem maður hefir trú á.
Því sækja hin ýmstt félög lítið sam-
komur hvort hjá öðru, allir v'ita, að
það sama er á boðs'ólum hjá öllum
og það styrkir því hver sinn eigin
félagsskap.
Það hefir víst mörgum þótt illa
brugðið gamalli venju, þegar aug-
lýst var að það ætti að vera sam-
koma í Tjaldbúðarkirkju á mánu-
dagskveldið var og inngangurinn að
eins tíu cent, sem t sjálfu sér var nú
nóg, því skemtiskráin var ekki svo
sérlega fjölbreytt, engin pianó sóló,
engin ræða—en það gerði nú reynd-
ar ekkert til—og ekkert kaffi á eft-
ir. Það var eiginlega ekkert. Sum-
ir sögðu að það ætti bara að lesa
eithvað úr einhverri sögu um eitt-
hvað, sem maður skildi líklega ekk-
ert í, eitthvað um sálina, eitthvað
óttalega háfleygt.
Já, ekki fara þær batnandi, sam-
komurnar, þær eru nú ekki einu
sinni að verða tíu centa virði. Aðr-
ir vissu betur, þeir vissu hvað þessi
einhver saga hét og þeir vissu líka
eftir hvern hún var og að þeir hefðu
aldrei lesið hana; þeir vissu, að sag-
an hét “Sálin vaknar”, síðasta skáld-
sagan og ef til vill sú bezta, sem
komið liefir út eftir Einar Hjör-
leifsson Kvaran; en enginn hafði
séð hana né lesið, því hún er enn ó-
fáanleg hér í bókabúðinni, ein-s og
svc margar aðrar nýútgefnar ís-
lenzkar bækur á íslandi. “Það kem-
ur ekkert hingað vestur,” heyrir
inaður marga segja. En því koma
þá ekki allir sem vetlingi geta vald-
ið og fá að heyra söguna lesna?
Það hvernig aðsóknin var á mánu-
dagskveldið var í Tjaldbúðarkirkju,
þegar séra F. J. Bergmann las kafla
úr sögu Kvarans—sýnir bezt, hvað
íslendingar eru sólgnir í að heyra
nýjustu skáldrit, sem koma heiman
af ættjörðinni, og það eftir eut
bezta sögu- og leikrita skáklið sem
þjóðin á. Sér F. J. Bergmann las
mjög vel, fór sérlega vel með efni
og sambönd sögunnar. Ef dæma má
af þeim köflum sem hann las, má
óhætt fullyrða að sagan er þess
virði að hún verði lesin af ölluin
með athygli, og vonandi verður þess
ekki lengi að bíða að hún komi hing-
að vestur. Aðeins tuttugu til þrjá-
tíu manns hlýddu á upplesturinn 1
Hvað viljum við? Hvað á að
bjóða okkur? Margir mundu segja
sem svo, að það er ekki von að fólk
sæki það, sem það v'eit ekki hvað er.
Þetta hefst af því að vera að breyta
til, það er betra að hafa það eins
og það hefir verið, þá veit maður
þó hverju maður á von a. Er engin
löngun i fólki? er engin þörf fyrir
eitthvað hressandi, vekjandi, lífg-
andi, svalandi, í þessu þjóðernis
móki okkar? Eða, eru allir að
verða svo sljóir, svo hugsunarlausir
að þeim sé sama þó að sálin sofi?
sama hvort hún raknar nokkum tima
við eða ekki? Það er sv'o mikið 6-
samræmi í okkar félagslífi, í sam-
bándi við okkar þjóðernis baráttu
að það er naumast hægt að gera
sér grein fyrir því, hvar við s.önd-
um og hvert við stefnum. Það
sjálfsagt kemur til af þvi að það
eru svo margar sálir sem sofa. Það
var lengi vel hrópað hvelt og sam-
róma: “íslendingar viljum vér allir
v'era!” Svo fóru raddirnar að verða
ósamstæðari, það leið lengra á milli,
ópin urðu veikari og veikari, og nú
heyrast þau naumast lengur; þau eru
orðin kraftlaus. Og þó erum við
viðkvæmir fyrir öllum ámælum i
okkar garð, sé því dróttað að okkur
að við séum ekki lengur íslending-
ar. I allra náðarsamlegasta máta
Ert ÞÚ hneigður fyrir hljcmfrafi ?
Ef svo er þá komdu og flndu okkur
áður en þú kaupir annarsstaðar. Vi6
höfum mesta úrval allra fyrir vest-
an Toronto af
Söngvum,
Kenslii-áliöldum,
I,úðranótum,
Sálmum og Söngvum,
HljóðfæraáhiiUlnm. o.sfrv.
Reynsla vor er til reiSu þér tll hagn-
aSar. Vér óskum eftlr fyrirspurn
þinni og þær kosta ekkeft.
WRAY’S MUSIC STORE
247 Notre Dame Ave.
Plione Gaiæy 688 Winnipeg
NORTHERN CROWN BANK
Höfuðstóll iöggiiíur 46,00 ),000 Höfuðstóll greiddur $1,431,200
Varasjóðu...... $ 715.600
Pormaður.............- - - Slr I>. H. McMIUUAN. K.C.M.G
Vara-formaður - Capt. WM. ROBINSON
Sir T>. C. CAMERON, K.C.M.G., J. H ASHHOWN.
E. F. IIUTCHINGS, A. McTAVTSH CAMPBEUI,, JOHN STOVEI,
AMrk mar bvi'rntö-f afgreiId. Vér byrjurn reikn'nga við einstaklinga eða
fé'ðg og sann jjarnir ski'mtlar veitt'r Aviianir seldar til Kvaða daðar scm er
á lslanti. Sértakur gi'Jiur gícinn soarisjóðsinílögum, sem byrja má með
einam d rilar. Rentur lagðar við á Kverjum sex mánuðum.
T. e. T 4 JTiTilMSSOIM, Ráðsmaður
Cor. William Ave. og SKerbrookeiSt., . * Winnipeg, Man.
m\
>jg