Lögberg - 17.05.1917, Síða 7

Lögberg - 17.05.1917, Síða 7
LÖÖBEEG, FIMTUDAGINN 17. MAI 1917 7 ALVEG NY og UNDRAVERÐ UPPFUNDING Eftir 10 ára erfiSi og tilraun'ir hefir Pröf. D. Motturas fundiS upp meSal búiS til sem áburS, sem hann ábyrgist aS lækni allra verstu tilfelli af hinni ægilegu. og svo ódýrt aS allir geta keypt. Hvers vegna skyldu menn vera aS borga iæknishjálp og ferSir 1 sérstakt loftslag, þegar þeir geta fengiS lækn- ingu heima hjá sér. paS bregst al- drei og iæknar tafarlaust. Verð $1.00 giasið. Póstgjald og herskattur 15 cent þess utan. Aðaiskrifstofa og einkaútsölumenn að «14 BUILDERS EXCHANGE BLDG. Dept 9, Winnipeg, Man. Bergbúaljóð eður svo nefnd Hallmundarkviða, c er hennar helzta innihald að finna eftirfylgjandi kvæSi, það nærst verS- ur. fOrkt 1853 eða fyrrij. [í öðru af frumritum Hjálmars þessu kvæöi lætur hann kvæöinu fylgja bæði ágrip af bergbúaþætti og skýringar i óbundnu máli á Hall- mundarkviðu hinni fornu, og ritar þar að lyktum: “Til lesarans. flÞótt eg hafi þanninn fengist við kviöu þessa, er það eingan veginn hér með sagt, að útskýring þessi sé sú rétta og sanna, því dulyröi og dimmyröi slíkra verka getur mjög veriö úr lagi gengin síöan fyrst var ritað, og vil eg enginn svo frekt upp taki; hefir og Hallmundur eitthvert óvenjulegt mál og samsetning brúkaö, sem hvergi er að finna hjá neinum fornskáldum, sem eg hef séð. Líka er hann víöast mjög sundurlaus meiningu sinni og oft langt á eftir sjálfum sér. En það litla, sem eg hefi hér út í erfiðað, tel eg engum þeim of gott, sem nýta vilja, en tek jafnframt til stórra þakka, að, þar sem eg hefi offrað þessum braghrœr- ing á þjóðaraltari, að hann gæti öðl- ast lagfœring hjá þeim, er betur vita og síðar hagtœring til betri vegar, Mitt eina forsvar er þetta: Upp að grafa Óðreyrs brunna, ausa þaðan vínið þunna of boðið er minni ment; Ijóðspil slegið löppum klunna lagfæri, þeir betur kunna. Því er fífl að fátt er kent.”] Fyrirmáli. Eg vil fara í jötunmóð, járnið svara heimtar glóð, að mýkja barinn urnis óð, endurkara draugaljóð. Minum létta leiðirnar löndum nettu samtiðar, helli slétta Hallmundar, hraun og kletta mylja þar. Slíka vinna vegabót verða kynni þreyta Ijót, að kara ólvinnan kletta brjót og kvæði spinna af sömu rót. Hér byrjar kviðan. Hrumur kall í klettum blá kúri eg, fallinn eins og strá, fæti hallar heimi frá heingifjalla brúnum á. Óðins friður farinn er, forni siður aldar þver, kristnin ryður rúms til sér, raunaliviður skapast mér. Flest um gættir fyrnist hér fjalla vætta, sýnist mér, Óðinn hætt á flótta fer, fylgi eg grættum hamra grér. Undarligri fregn þar fór fram um digran álfakór, að kross- með -vigri kraftastór Rristur sigri gamla Þór. Hellisbúar hljóðna þá, hamra smjúga fylgsni blá, Þór ei trúa þurfum á, því hann nú er allur frá. Bruna sveitast bjargálfar, bænir heitar kristninnar á oss leita alstaðar, illar veita hremmingar. Kvelja drauga kristin tár, klýfur hauga ótta fár, gef eg auga þessu þrár, þykkjan laugar gamlar brár. Siðabót mig særðan lét, sveiflar fót í heljar net, galdra blót og geira hret geri eg móti, það sem get. Læt eg amra ylgdar þá — undir glamrar dýra lá — út um hamra götin grá glóðar kamra mökkinn blá. Þórs eru vinir fallnir frá, feigðarginið svelgir þá, haltra eg iinur eftir á, undir stynur hraunið blá. Stoðum ökla flýta fer feigðar hökli vafinn hver, spreingir jökla og björgin ber, burt þá hröklast landvætter. Illa verði Óðinn þér, oss þú gerðir senda hér •Þór, sem verður einkis er, afli skerður háðung ber. Man eg tíðir fegri fjörs, friðuðu lýði synir Bjors, deyfðu stríð og hrynur hjörs, hófu prýði aldaknörs. Vorra nutum verka þá, vallar lutum skautið á, fræin hrutu af fingrum smá, föxum skutu i loftið blá. Vildi eg búnað bæta minn, brúkaði túna verkfærinfnj, hauðurs krúnu hársvörðinn hrifu snúnu plógjáminfný. (Versna tíðir veldi á, voðahríðir niður slá skóginn friða og blómstrin blá, byrjar stríð og vopnaþrá. Spáir muni mælsku skýr, meginunaðs blóminn flýr, jöklar duna, en járnið gnýr, jörðin brunahraunum spýr. Taka að þynnast trygðirnar, tals ógrynnis þjóðimar bröndum tvinnast blóðþyrstar, borgir vinnast öflugar. Detta í sjálfan dauðans hver dvergar, álfar, landvætter, goðin skjálfa og alt hvað er, enn eg bjálfann hrista fer. Veldishrumur visnar nár, vetrar fuma tíðir þrjár^ Norðri þrumar eins og ár, ekkert sumar milli gár. Veðurbarða gýjan grá gleypir jarðar haddinn smá vorri Garðarseyju á, einkum harðast v'iðrar þá. En þá neyðar aldafar á því skeiði heimsvistar, djörf í reiði dunar þar drepsótt eyðileggingar. Múspells synir þyrpast þá þjóðarkynið jarðar slá, Ragna dynur rökkur á, reið í hvinar lofti blá. Ógnir drauga eins og mý elds með flaugum vekja gný, súrnar augum sjáldar í, saman haugast reykjarský. Veröld flýja verð eg þá, vondar knýja hurðir á, Bifröst skýjum brotin frá bannar nýjan himin sjá. Fætur þreytu þjakaðar Þramma um reitu helgrindar, eg má streytast ofan þar í eldinn heita og kvalirnar. Hlýt eg barinn bölvum þeim, betri kjara firtur seim Níðhögg svarinn, elds með eim ofan fara í þriðja heim. Tek eg að brýna tröllskapinn, í trausti Hlínar fram knúinn, vonin skín á veikri kinn, vini mína í helju finn. Þór einn forðum þaðan bar þvert af storðu heljunnar undir skorðum allsherjar efni Norðurstjörnunnar. Ferjumanninn Karon kall kenni eg þann við eljar stall rishærðanfnj um reikar fjall, reynist glanninn afgamall. Minni kvamu kvíðir hann, krafta ramur ferjumann, við mig amast ókendanfnj, af er gaman tíma þann. Geing eg nökkva gnæpur frá í ginið dökkva Vítis þá, tekur að rökkva um tárga brá, tímann slökkva eilífð má. Upp sér hreykja áleingdar ýldureykjar þokurnar, blossi steikir bustamar, bláar ’sleikir hvelfingar. Sezt að erfi herjans hjón heyra gervan píslartón, tannir sverfa elds vjð ón, allri hverfur veröld sjón. Hús mitt slegna hrauns við reim hels fyrir megni skýldi beim; neyðar vegna um nætursveim nú hafa þegnar sótt mig heim. Hefi eg eigi hingað til Hleiðólfs fley í gríðar byl siglt á megin Sónar hyl, sjaldan slegið gamanspil. Ykkar hver, sem ekki kann út að bera kviðling þann, fallinn gerist fjörs í bann. Fræða hér eg læsi rann. Niðurlag. Svo eru vunnin vignisljóð, vorn í runninn tíðaróð; sér alkunnan þekkir þjóð þeirra klunnavirkan bjóð. Kveð eg fjöll og kletta blá kominn Tröllabotnum frá. Ljósari spjöllin lesa má • lýð gjörvöllum núna hjá. Legg eg hærur hrömaðar hægt á gærur svefnværðar; mér til æru messa þar melir, flær og dordinglar. Frosti bitið fellur strá, fingra titrar brellan smá, hausnum situr ellin á, ennis þvitar hrelling fá. YFIRLIT yfir mannvirki á Islandi 1916 1. Vegir og brýr. í fjárlögum ársins 1916 var veitt til vega og bmargerða 169,400 kr,, en v’egna ófriðarins voru miklir erfið- leikar á að útvega efni til brúargerða og fá það flutt til landsins. Var því frestað að gera tvær stórbrýr, sem veitt var fé til, yfir Austurkvísl Hér- aðsvatna út við sjó of yfir Vatns- dalsá hjá Hnausum. Að öðrum verkum var unnið svo, sem til var ætlað. Var unnið að lagningu allra þeirra flutningsbrauta, sem enn eru ófull- gerðar. Flutningsbrautin um Borg- arfjörð, frá Borgarnesi á þjóðveg- inum frá Kláffossi var fullgerð og afhent sýslufélögum Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu til viðhalds. Hún er um 34 km. á lengd og hefir kostað samtals 145 þús. kr. Enn fremur v'ar unnið nokkuð að lagning akfærra þjóðvega og gerðar þær 4 stein- steypubrýr, sem taldar eru í töflunni, sem hér fylgir, auk nokkurra enn minni brúa. Helztu akvegskaflar lagðir á árinu eru þessir: Húnvetningabraut 1,5 km. löng, 3,75 metra breið og varkostnaður við bygging hennar 10,200 krónur. Skagafjarðarbraut 2,7 km. löng, 3,75 m. breið, verð 7,700 kr. Grímsnesbraut 3,6 km. löng, 3,75 m. breið, verð 10,000 kr. LangadalsVegur í Hvs. 2,4 km. langur, 3,15 m. breiður, verð 7,500 kr. Hróarstunguvegur 2,4 km. langur, 3,15 m. breiður, v'erð 5.800 kr. Brýr gerðar á árinu: Miðfjarðará 30.0 m. bogi, verð 9,500 kr. Árfarið hjá Hnausum 9,0 m. bitar, verð 2,100 kr. Ljá 9,5 m. bitar, verð 2,200 kr. Breiðumýrará 9,0-)-9,0 m. bitar, verð ca. 7,000 kr. Til flutningsbrauta og brúa á þeim var samtals varið um 70 þús. kr. þar af til viðhalds þeim brautum, sem á landssjóði hvíla, um 11 þús. kr. Til þjóðvega og brúa á þeim var samtals varið um 35 þús. kr., þar af til viðhalds um 12 þús. kr. Til viðgerðar á fjallvegum var eytt um 3 þús. kr. Til akfærra sýsluvega um 18. þús. kr. gegn helmings tillagi frá hlutað- eigandi sýslufélögum. Verk þessi öll v'oru unnin undir umsjón Jóns Þorlákssonar fyrverandi landsverkfræðings. 2. Vatnsvirki. Undir umsjón Jóns Þorlákssonar var að mestu lokið við að fullgera áveitu á Miklavatnsmýri. Varð greiddur kostnaður á árinu um 17 þús. kr. Langmestur hluti skurðgraftrar var unninn á akkorðsvinnu samkvæmt sérstöku útboði. Vatnið í áveituna er tekið úr Þjórsá, skamt fyrir ofan Mjósund, og er áveitusvæðið alt um 2,000 hektarar. Verður væntanlega hægt að veita þar á nú í vor. 3. Ritsímar og talsímar. Auk venjulegra viðgerða eftir skemdir vetrarins var aðallega þetta f ramkvæmt: 1. Lokið við talsímalínu úr tvö- földum koparþræði til Hornafjarðar, lagður kaflinn Svínhólar í Lóni — Hornafjörður, 35 km. 2. Sett upp stauraröð frá Brekku í Núpasveit til Húsavíkur ca. 60 km. og strengd símalína úr einföldum járnþræði milli Þórshafnar og Húsa- víkur ca. 115 km. Bygð talsímalína úr tv'öföldum járnþræði frá Brekku i Núpasveit til Raufarhafnar, ca. 29 km. 3. Settir niður staurar í talsíma- línu frá Hafnarfirði til Grindavíkur, ca. 16 km. ný stauraröð og frá Kefla- vik til Hafna, ca. 13 km. Línur þessar gátu ekki orðið full- gjörðar á árinu vegna þess að ein- angrara vantaði í þær. 4. Lagður tvíþættur sæsimi yfir Hvalfjörð, vegna nýrrar talsímalínu frá Reykjavík að Kalastaðarkoti. 5. Lagður jarðsimi fyrir innanbæj- arsímanum á Akureyri, á svæðinu frá símastöðinni út að Torfunefi — 1,125 metrar með 125 tvöföldum línum. Loftkaflarnir, sem voru á þessu svæði, voru teknir niður og lagðir neðanjarðar eftir Oddeyrinni. Á Siglufirði var sett upp nýtt skiftiborð og innanbæjarsíminn end- urbættur. Stöðv'arnar Svínhólar í Lóni og Esjuberg vöru lagðar niður, en þess- ar opnaðar: Bygðarholt í Lóni, Hólar í Hornafirði, Gerðar i Þistil- firði, Brekka í Núpasveit, Raufar- höfn, Skógar í Axafirði og Víkinga- vatn. i 4. Vitar. Undir umsjón landsverkfræðings vitamálanna, Th. Krabbe, voru á ár- inu 1916 settir upp 2 nýir vitar, ann- ar á Ingólfshöfða (var smíðaður á verkstæði landsins 1915J, hinn í Bjarnarey fram af Kollamúla. Auk þess hefir einn viti verið smíðaður en ekki settur upp JMalarrifsviti). Ingólfshöfða-vitinn. Ljóskerið er soðið saman úr járnplötum; það stendur á 7 metra hárri járngrind. I vitanum eru aceton-ljóstæki frá Svenska a/bolaget Gasaccumulator í Stockhólmi, með 3. flokks ljóskrónu, stærri gerð, frá Bénard, Barbier & Turenne í Parts. Vitinn sýnir hvitt ljós, 2 blossa með stuttu millibili 6 sinnum á mínútu. Sjónarvídd vitans er h. u. b. 17,5 stn. Á vitanum er sjónventill (system DalénJ. Vitinn kostar alls kr. 17,331.19. Éjamareyjar-vitinn. Ljóskerið stendur á 2yí m. háu steinsteypuhúsi. í vitanum er aceton-ljóstæki og ljós- kröna eins og í Ingólfshöfða-vitanum. Ljósmagpi vitans samsvarar 15 sm., og sýnir hann hvítt Ijós, 3 blossar með stuttu millibili 3svar á mínútu. Kostnaðurinn varð kr. 13,736.35. Auk þess voru settir upp leiðar- staurar fyrir skipbrotsmenn á Skeið- arársandi og sjómerki reist á Beru- firði, Þórshöfn og Kópaskeri. Ti! þess var varið kr. 6,654.22 á árinu. 5. Hafnarvirki. Reykjavíkurhöfn. A árinu var fullgert bólvirki og fylling fram und- an miðbænum. Bólvirkið er járn- veggur veð sérstakri gerð JSystem LarsenJ. — Er veggurinn úr breiðum, þunnum járnstöngum, er reknar eru niður úr botni, renna þær í fals hver við aðra og mynda þannig þéttan vegg. Bólvirkið er 160 m. langt, en flatarmál fyllingarinnar er um 18,- 000 m2. Yfirbygging Örfiriseyjar- garðsins var fullgerð á 380 m. langd frá landi. Stórum sívalning úr járn- bentri steinsteypu, er gerður hafði verið á landi i örfirisey, var komið fvrir, þar sem hann á að standa, fremst í Batterí-garðinum. Að mestu v'ar Iokið við dýpkun hafnarinnar. Á árinu var greitt í verkalaun 232,200 kr., og voru við þessa vinnu að með- altali 140 manns. Hafnarsjóður greiddi til hafnargerðarinnar um milj. krónur. Yfirverkfræðingur er sá sami og fyr, N. P. Kirk. Vestmannaeyjahöfn. Hringskers- garðurinn var fullgerður og afhentur sýslufélaginu í september, en fáum dögum síðar bilaði hann nokkuð fremst í ofsgveðri, og hafa skemdir þessar heldur ágerst í vetur, því ekki var hægt að vinna að aðgerð á hon- um’ fyrri hluta vetrar. Hörgseyrar- Tannlækning. VIÐ höfum rétt nýlega fengið tannlæknir sem er ættaður frá Norðurlöndum en nýkominn frá Chicago. Hann hefir útskrifast frá einum af stærstu skólum Bandaríkjanna. Hann hefir aðal umsjón yfir skandinavisku tannlækninga-deild vorri. Hann brúkar allar nýjustu uppfundingar við það starf. Sérstaklega er litið eftir þeim sem heimsœkja oss utan af landsbygðinni. Skrifið oss á yðar eigin tungumáli Alt verk leyst af hendi með sanngjörnu verði. REYNIÐ OSS! VERKSTOFA: TALSlMI: Steiman Block, 541 Selkirk Ave. St. John 2447 % Dr. Basil O’Grady, áður hjá International Dental Parlors WINNIPEG Tals. Garry 3462 A. Fred, Stjórnandi The British Fur Co. Flytur inn og framleiðir ágætar loðskinnavörur bæði fyrir konur og menn, loðskinns- feða eltiskinnsfóðruð föt. Föt búin til eftir máli. LOÐSKINNA FÖT GEYMD ÓKEYPIS Allar viðgerðir frá $10.00 og þar yfir hafa innifalda geymslu og ábyrgð. Allar breytingar gerðar sem óskað er. Pantanir nýrra fata afgreiddar tafarlaust fyrir lægsta verð og aðeins lítil niðrborgun tekin fyrir verk gerð í vor. ÖLL NÝJASTA TÝZKA. - Winnipeg, Man. 72 Princes* St. 4 McDermot Business and Messinnal Cards Dr. R. L HUR5T, Member of Royal Coll. of Surgeons, Eng„ útskrlfaBur af Royal Collego of Physiclans, London. Sérfrætflnsur I brjúst- tauga- og kven-sjúkdðmum. —Skrlfst. 305 Kennedy Bldg, Portage Ave. (ft. mðtl Eaton’s). Tals. M. 814. Helmlli M. 2696. Tíml til viðtals: kl. 2—5 og 7—8 e.h. Reyndir klæðskerar og loðfata- ---------— gerðarmenn------------------ Föt á menn og konur gerð eftir máli. Kosta $27.50 og þar yfir. Hreinsun, sléttun og viðgerðir. Ekkert tekið fyrir geymslu. Fötin sótt heim og flutt heim eftir að búið er að gera við þau 526 Sargent Ave., - Winnipeg, Man. Talsími Sherbr. 2888 garðurinn var orðinn um 40 metra langur um nýjár. Yfirverkfræðingur er N. P. Kirk. I Bolungarvík Var endurbygður sá partur brimgarðsins, er skemdist 8. nóv. 1915, og var kostnaðurinn við það hér um bil 12,500 kr. Á Siglufjarðareyri var unnið að framhaldi sjóvarnargarðsins er byrj- aður var 1915, og auk þess lagaðar skemdir þær, er orðið höfðu á honum í óveðrinu 5. febr. 1916. Kostnaður- inn var alls um 18,500 kr. 6. Rafniagnsst'óðvar. Byrjað var á byggingu rafmagns- stöðva í Húsavík, Patreksfirði og Bíldudal, en á engum staðnum gat verkinu orðið lokið 1916 sökum örð- ugleika á útvegun efnis stríðsins v’egna, 7. Mannvirki Reykjavíkurbcejar. Á árinu hefir verið unnið að götu- gerð í þessum götum: Suðurgata 100 m. langur akvegur, 6,0 m. breiður, verð 3,000 kr.; hellu- lagðar stéttir 100 m., verð 1,900 kr. Bankastræti 300 m. langttr akv., 8,5 m. breiður, verð 10,8(K): hellul. stéttir 400 m., verð 7,900 kr. Kirkjustræti, 160 m. hellul. stéttir, verð 2,900 kr. Akvegirnir eru gerðir með tjöru- púkki og þjappaðir með gufuvaltara 6 tonna þungum. Enn fremur hefir verið varið til viðhalds gatna 5 þús. kr., til holræsa 4,800 kr„ til þrifnaðar 8,100 kr. Til fullkomnunar v’atnsveitu bæj- arins var gerður vatnsgeymir á Rauð- arárholti. Hann er stór sívalningur úr járnbentri steinsteypu, hæð að innan er 6,75 m. og þvermál 14,0 m„ og er yfir lok úr sama efni, sem hvil- ir á hliðarveggjum hans og 9 súlum steyptum, er standa í botni geymisins. Hann rúmar um 1,000 tenm. og hefir kostað 30 þús. kr. Vegna mikillar húsnæðiseklu, lét bæjarstjórn gera timburhús einlyft 50 álna langt og 10 álna breitt. Eru þar 10 íbúðir, tveggja herbergja, en eldstæðið er í öðru herberginu, og skúr fylgir hverjum tveim ibúðum, er þar inngangur og dálítið geymslu- rúm. Hús þetta stendur við Laufás- veg sunnarlega og kostaði 16 þús. kr. Þessi verk voru unnin undir um- sjón bæjarverkfræðings Þórarins Kristjánssonar. —Tímarit Verkfræðingafél. Isí. Grikkir deyja úr hungri. Bandamennn hafa bannað eða tak- markað svo aðflutning vista til Grikk- lands að fólkið deyr tugum saman á dag úr hungri. Þetta er farið að ganga svo langt að við sjálft liggur að þjóðin hrynji niður ef ekki er að gert. Ormameðal Prof. SIITTON’S og Jurtir sem Iosa líkamann viö orma og eitur. Hundruð njálga og orma, sem geymdir eru I alkoholi eru til sýnis. Vitnisburð ir frá öllum þjóðflokkum og verðskrá. 229 Pacific Ave. Horni King St. £: VKR HREINN PÖDDU-DUFTIÐ JACKSONISKA hið fljótandi lúsadrápslyf er til sölu á sama staðnum gamla 466 Portage Ave„ Winnipeg, og þeir sem kaupa segja aS ekkert sé betra til að drepa ....essi kvikindi. pað er sent svo að segja til hverrar borgar og hvers bæj- ar I Vesturlandinu, alla leið til Prince Rupert, B. C. NORWOOD’S Tá-nagla Meðal lseknar fljótt «g vel NAGLIR SEM VAXA 1 H0LDIÐ Þegar meðalið er hrókað þá ver það bólgu og sárs- aukinn hverfur algerlega ÞAÐ MEÐAL BREGST ALDREI TU sölu hjá lyfsölum eða sent með pósti fyrir $1.00 A. CAR0THEN8, 184 l{oseberr> 8t., St James Búið tíl í Winnipeg Tals. M. 1738 Skrifstofutimi: Heimasimi Sh. 3037 9 f. h. til 6 e.h CHARLES KREGER FÖTA-SÉIRFRÆÐINGUR (Eftirm.Lennox) Tafarlaus lækning á hornum, keppum og innvaxandi nöglum. Hraðnudd og fleira. Suit* 2 Stobart 81.190 Portags l(ve., Winippog HVAÐ sem þér kynnuð að kaupa af húsbúnaði, þá er hægt að semja við okkur, hvort heldur fyrir PENINGA ÚT I HÖND eða að LÁNI. Vér höfum ALT sem til húshúnaðar þarf. Komið og skoðið 0VER-LAND H0USE FURNISHING Co. Ltd. 580 Main St„ horni Alexander Ave. VÉR MALMPÆGJUM HDUTI. PIat«-o: Silfur lagning og fæging; hreinsar og lætur húð á samtimis, 50 cent og 80 cent. Kleen-o: Silfur- og gull hreinsun; skemmir ekki fágaða muni, 25 cent og 50 cent. Touch-o: Málmblendings- kopar- og nikkel hreinsun. 10 og 25 cent. Winnipeg Silver Plate Co„ l.tíl. Sími: Main 4625. 136 Rupert St„ Wpg. Dr. B. J.BRANDSON Oífice: Cor. Sherbrooke 4 WiUiara Tblbphone oarrv 3ftO Ovncp-TfMAK: 2—3 HQlmili: 776 Vietor St. Tilbphonb oarry 8*1 Winnipeg, Man. Vér leggjum sérstaka áherzlu á að selja meðöl eftir forskriftum lækna. Hin beztu lyf, sem hægt er að fá, eru notuð eingönsu. þeear þér komlð með forskriftina til vor, megið þér vera viss um að fá rétt það sem læknirinn tekur til. COLCLEUGH & CO. Notre Danie Ave. og Sherbrooke St. Phones Garry 2690 og 2691 GiftinKaleyfisbréf seld. Dr. O. BJORNBON Office: Cor, Sherbrooke & WUliara niLIPWmSKARRT SSt Office-timar: a—3 HBHWILII 764 Vlctor 6t>••« Tblbphonb, oarry 788 Winnipeg, Man. Dr- J. Stefánsson 401 Boyd Building; C0R. P0RTVSE AVE. & EDMOJITOfi ST. Stusdar eingöngu augna, ejnna. nef og kverka sjúkdóma. — Er að hitta frákl. 10-12 f. h. eg 2 — 5 e. h.— Talsími: Main 3088. Heimili 105 Olivia St. Talsími: Garry 2315. ^ARKET JJOTEL VIB sölutorgiö og City Hall «1.0« til «1.50 á dag Eigandé P. O’CONNELL. J. G. SNÆDAL, 'TANNLŒKNIR 614 Someraet Block Cor. Portage Ave. eg Donald Streot Tals. main 5302. Talslmið Garry 3324 J. W. MORLEY Hann málar, pappírar og prýðir hús yðar ÁÆTLANIR GEFNAR VERKIÐ ABYRGST Finnið mig áður en þér látið gera þannig verk 624 Sherbrook St., Winnipeg 592 EUice Ave. Tals. Sh. 2096 Ellice Jitney og Bifreiða keyrsla Andrew E. Guillemin, Ráðsm. THE IDEAL Ladies & Gentlemens SH0E DRESSING PARLOR á móti Winnipeg leikhúsinu 332 Notre Dame. Tals. Garry 35 Manitoba HatWorks Við hreinsum og lögum karlaog kvenna hatta af öllum tegundum. 309 Notre Dame. Tals. G. 2426 JOSEPH TAYLOR, LÖGTAKSMAÐUR Heimllls-Tals.: St. John 1844 Skrifstofn-Tuls.: Main 7978 Tekur lögtaki 'braði húsaleiguskuldir, veðskuldir, vixlaskuldir. AfgTeiðir alt sem að lögum lýtur. Room 1 Corbett Blk. — 615 Main St. Talsímið Main 5331 HOPPS & Co. BAILIFFS Tökum Iögtaki, innheimtum skuldir og tilkynnum stefnur. Room 10 Thomson Bl., 499 Main Vér gerum við og foegjum húsmuni, einnig tónum vér pítnö mg pólerum þau ART FINISHING COMPANY, Coca Cola byggingunni Talsími Garry 3293 W innip Dagtals. St.J. 474. Næturt. St.J.: 866. Kalli sint á nótt og degi. DR. B. GERZABEK. M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frá London, M.R.C.P. og M.R.C.S. frá Manitoba. Fyrverandi aðstoðarlæknlr v ið hospítal í Vínarborg, Prag, og Berltn og fleiri hospltöl. Skrifstofa í eigin hospltali, 415—417 Pritchard Ave„ Winnipeg, Man. Skrifstofutlmi frá 9—12 f. h : 3_6 og 7—9 e. h. Dr. B. Gerzabeks eigið hospítal 415—417 Pritchard Ave. Stundun og lækning valdra sjúk- linga, sem þjást af brjóstveiki, hjart- veiki, magasjúkdómum, innýflave'iki, kvensjúkdómum, karlmannasjúkdðm- um, taugaveiklun. THOS. H. JOHNSON « HJÁLMAR A. BERGMAN, fslentkir lógfraeBiagar, Skmfstofa:— Room 8ri McArlhor Building, Portage Avsnus Ákirua: P. O. Box 1680, Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg Gísli Goodman TINSMIÐUR VBRKSTtBBI: Homi Teronlo og Notre Dame I k.i~iii- Phone Omrry MN J. J. BILDFELL FA3TBKÍNA3ALI R*»m SSO Unitn Sant TCL. tð&i Selur hús og lóCKr og aanajt alt þar aO lútandi. Peaingalftn '***—’*""""*■ ............ J. J. Swanson & Co. Verale með fastoigdúr. Sjéwa æ*u á hú.um. Annaet lán og eUeábyrgðir o. fi. SA4 Ha I A. S. Bardal 8418 Sherbrooke 8*. Selur líkkistur og annast um útfarir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfrem- ur hann aiskonar minnisvarða og Iegsteina. Heimilie Tal., - Qsirry 21S1 Skrir.taVu Tal«. - Qarry 300, 375 FLUTTIR til 151 Bannatyne Ave Homi Rorie Str. í staerri og betrí verkstofur Tals. Main 3480 KanalyElectricCo Motor Repair Speciaiist Electric French Cleaners Föt þur-hreinsuð fyrir 81.25 því þá borga $2.00? Föt pressuð fyrir 35c. 484 Portage Ave. Tals. S. 2975 Lífs-jafnvægi. Það að maður sé í Jgóí skapi og Vel upplagður I vinnu, er vottur um gó? heilsu og jafnvægi er á li færunum. Slikt ásigkomi lag heilsunnar veitir líl amanum mótstöðuafl geg sjúkdómum. Notið Trii ers American EUixir ( Bitter Wine til þess i styrkja innýflin, taugar < allan líkamann. Þi styrkir meltingarfærin < gerir þau eðlileg. Þér g< ið ekki fengið neitt bet við hægðaleysi, höfuðve magagasi og magasjú dóm, slappleika, o. s. fi Verð $ 1.50. Fæst í lyfj búðum. Triners áburður flyt heimili þínu áreiðanle lyf bæði við alvarleg u sjúkdómumoggigt, taug gigt, slysum, mari, ból| og þreytu í vöðvum fótum. Verð 70c. Se með pósti. Joseph Triner, Manofactnri Chemist, 1333-39 S. Ashla Ave., Chicago, 111.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.