Lögberg - 05.07.1917, Page 3
LOGBERG. FIMTUDAGINN 5. JÚLÍ 1917
3
Dœtur Oakburns
lávarðar.
Eftir MRS. HENRY WOOD.
Fyrsti kafli.
“Af því, að ef þér hafið nokkur áhrif, vona eg
að þér styðjið að því, að hætt verði að nota þenna
hættulega almenningsvagn. Á þann hátt sem hann
hoppar og stekkur yfir brautina, er auðvelt að
drepa þá, sem í honum eru. Eg fór til South
Wennock þmorgun, og það var nógu slæmt, eins og
þeir sem með mér voru geta borið vitni um; en á
leiðinni hingað í kveld, hélt eg að eg mundi missa
lífið. Stundum rekur maður höfuðið upp í þakið,
svo losna fætumir við gólfið; stundum fleygir
hann manni yfir í aðra hliðina eða á sætið. Eg
verð aum í kroppnum alla þessa viku, ef ekki
lengur; og því oftar sem eg barði og kallaði, því
harðara ók þessi asni. Og eg, sem varð að gæta
þessa barns alla leiðina”.
“pað var stórkostleg skömm”, svaraði Carlton.
“Hið undarlegasta er, að íbúar South Wennock
skuli líða þetta. J?að koma einhverjar afleiðing-
ar af því vonum bráðar, og þá verður þessu
breytt”. 1
Afleiðinganar hafa þegar átt sér stað,” svaraði
frú Smith gröm í geði. “Ung kona, sem naumast
var fær um að ferðast í þægilegum vagni, fór með
almenningsvagninum til South Wennock á föstu-
daginn, og af því leiddi að þetta litla bam fæddist.”
“Er það svo. Og hvemig leið konunni ?”
“pó undarlegt sé, þá batnar henni; en það gat
eins vel ollað dauða.”
Carlton kinkaði kolli. “Ein af sjúklingum
Greysanna væntanlega? Var það hin unga frú
Lipcome á Bakkanum?”
,‘Nei, það var ekki hún, hr., og hver það var,
skiftir engu. Hvort heldur það var hirðkona Vik-
toríu drotningar eða fátæk bóndastúlka, þá er
skaðinn jafn stór. Og ekki skeytir heldur þvtta
þrælmenni, sem ekur almenningsvagninn neitt um
það.”
“Nú komið þér út í vagninn,” kallaði maður,
sem stakk höfðinu inn úr dyrunum.
Frú Smith tók böglana sína og fór út, og Carl-
ton gekk til hinna dyranna; því hann hafði heyrt
vagnskrölt í fjarlægð.
IV. KAPÍTULI.
Slæm tilviljun.
pað kom opinn vagn með sama hraða og al-
menningsvagninn; honum var ekið af manni í ein-
kennisbúningi. pað var sami maðurinn og hafði
verið svo hrottalegur við Judith á heimili Carltons;
vagninn var léttur og snotur, sá hinn sami og frú
Gould kallaði “Cabrioil.”
pegar vagninn nam staðar, gekk Carlton út og
horfði fast á ökumann sinn, að svo miklu leyti sem
myrkrið leyfði það. Maðurinn hafði nokkrum
sinnum sopið meira af áfengi en góðu hófi gegndi,
og Carlton hélt að það væri því að kenna að hann
kom svo seint. En hann virtist ódrukkinn þegar
hann stökk ofan af ökumannssætinu.
“Hvaða skipanir hefir þú fengið Evan ?”
“Mér þykir mjög leitt að eg kem of seint, hr.;
eg skil alls ekki hvemig á því stendur,” var hið
afsakandi svar. “pegar eg mætti almennings-
vagninum, sem kom til baka, hefðuð þér getað
slegið mig niður með fjöður. Eg veit að eg fór
nógu snemma að heiman, og—”
“Enginn ósannindi, Evan,” greip Carlton fram
í fyrir honum rólegur. “pú veist að þú fórst ekki
nógu snemma að heiman.”
Hann benti manninum að fara til hliðar, og sté
sjálfur upp í ökumannssætið. pað var ekki oft
sem Carlton tók taumana í sínar hendur; hann
efaðist máske enn þá um að maðurinn væri ó-
drukkinn.
“pú hefir ekki kveikt á ljósunum?”
“Nei, hr., eg hélt þess þyrfti ekki. Og þess
hefði heldur ekki þurft, ef skýin hefðu ekki hulið
tunglið.”
Carlton ók nú af stað. Ekki jafn hart og al-
menningvagninn máske, en þó all hart. Vagninn
hans hafði góðar fjaðrir, almenningsvagnsins voru
eflaust fyrir löngu eyðilagðar. pað var oflítill
spölur á miðri leið nokkumveginn sléttur, þeir
voru nú komnir þangað og óku hart, þegar hest-
urinn alt í einu prjónaði mjóg hátt og datt. Carl-
ton og ökumaður hans köstuðust út úr vagninum
og stengumar brotnuðu.
petta var augnabliks atburður. Eina sekúndu'
óku þeir hratt, og á þeirri næstu lágu þeir þar.
Carlton var sá fyrsti sem stóð upp. Hann hafði
raunar fengð myndarlegt högg, og hann kendi til
í öðmm fætinum, en ekki var hann meiddur til
muna. Hvað það var sem fældi hestinn, gat hann
ekki ímyndað sér; hann sá heldur enga orsök til
þess. Hann gekk að hestinum og reyndi að reisa
hann upp, en gat það ekki.
“Evan!” kallaði hann.
Ekkert svar kom. Carlton sneri sér við til að
Hta eftir ökumanni sínum, og fann hann liggjandi
hreyfingarlausan á jörðinni. Hann sýndist vera
meðvitundarlaus.
“Nú, þetta lítur bærilega út,” sagði læknirinn
hátt.
“Hvað er þetta, Hvað gengur á?” spurði rödd
spottakorn bak við hann. Hún kom frá bónda-
konu, sem var að ganga að girðingarhliði annars-
vegar við brautina. Á þessu augnabliki sendi tungl-
ið geisla sína á milli skýjanna ofan á sjónarsviðið.
“Er nokkur maður hér í nánd ?” spurði Carlton.
“Eg þarfnast hjálpar.”
Konan hristi höfuðið. “pað er enginn í nánd
nema eg; maðurinn minn” — hún benti á kofa
fyrir innan hliðið — “liggur veikur af hitasýki.
Datt hesturinn? ó hamingjan góða, þama liggur
maður.”
“Eg verð að fá hjálp,” endurtók Carlton.
“Hvorki maðurinn eða hesturinn mega liggja hér.”
Konan laut niður að hestinum. “Eg held að
hann sé ekki til muna meiddur,” sagði hún, eftir
að hafa þreifað á honum hingað og þangað. “Sumir
hestar eru eins þrjózkir, eftir að þeir detta, eins
og múlasnar, og vilja ekki standa upp fyr en þeim
sjálfum sýnist. Einn af fótunum hefir máske
undist. Af hvérju kom þetta?”
“pað veit eg sannarlega ekki,” svaraði læknir-
inn. “Hann hefir alt af verið fótviss þangað til í
kvöld. Mér er alveg óskiljanlegt hvers vegna
hann datt.
Konan hugsaði sig um. Hún gekk frá hestin-
um að Evan og athugaði hann. Maðurinn lá graf-
kyr og hún rétti úr sér aftur.
“Mér geðjast illa að þessum óskiljanlegu til-
fellum,” sagði hún eins og í draumi, “þær tilvilj-
anir sem koma án þess nokkur viti hvemig, boða
ógæfu.”
“pær flytja næga ógæfu án þess að boða hana,”
svaraði Carlton.
“pær boða hana líka,” sagði konan og kinkaði
kolli. “Gætið yðar, herra að yður vilji ekkert ilt
til fyrstu stundimar eða fyrstu dagana.”
“Hvað ilt ætti að vilja mér til?” spurði Carlton
og brosti að hjátrú konunnar.
“Enginn af okkur veit fyrirfram hvað það illa
er, sem yfir okkur vofir, eða hvaðan það kemur,”
svaraði hún. “Máske þér leggið upp í ferð ? — pað
veft eg auðvitað ekki hr., eða hver þér eruð; en ef
það væri, áform yðar skyldi eg segja, að þér ættuð
að hætta við það og snúa frá þeirri leið, sem þér
hafið ákveðið.
“ Góða kona mín, eg held næstum að þér séuð
eitthvað ruglaðar,” sagði Carlton.
“Nei, það er eg ekki; en eg hefi máské tekið
eftir fleiru en flestir aðrir og er þar af leiðandi
glöggskygnári. Eg er viss um—reynslan hefir sann
fært mig um það, að margar af þessum hindrun-
um, þessum óhappatilviljunum, eru fyrirboði — ef
við að eins væmm nógu hyggin til að líta þannig á
þær. Nú, hr., voruð þér á leiðinni til eins eða ann-
ars staðar—”
“Til Bouth Wennock, mílufjórðung héðan,”
greip Carlton fram í fyrir henni með háðslegri
raust.
“South Wennock; látum svo vera, hr. pað
sem eg svo ætla að segja er, að væri eg í yðar spor-
um, þá færi eg ekki til South Wennock; og mundi
snúa aftur til þess staðar sem eg kom frá. petta
er máske sent yður sem aðvörun um, að hætta við
ferð yðar þangað.”
Ef kringumstæðumar hefðu ekki verið jafn ó-
heppilegar og leiðinlegar, þá hefði læknirinn hlegið
hátt að henni. “Hvað þá? eg á heima í South
Wennock,” sagði hann, um leið og hann stóð upp
frá ökumanni sínum, sem hann hafði verið að at-
huga. “En nú er ekki spurningin um það, hvaða
gæfa eða ógæfa bíður mín,” bætti hann við, um
leið og hann gekk aftur að hestinum; “en um það,
hvar og hvemig eg get fengið hjálp. Hér er bjarg-
arlaus hestur og bjargarlaus maður. Getið þér út-
vegað mér vatn?”
Hún fór burt án þess að segja eitt órð og sótti
vatn í litla fötu, kom svo með hana og lítinn bolla.
Carlton tók við því.
“Getið þér nú farið til Rauða ljónsins í South
Wennock, og beðið þá að senda nauðsynlega
hjálp?”
“Eg er fús til þess, hr. Maðurinn minn líður
engan baga við að vera einn, þó hann sé mikið
vcikur.”
Hvaða læknir hafið þér handa honum?”
“Eg hefi engan haft enn þá. Við fátækling-
amir höfum engin efni á að hafa lækni, fyr en
veikin er orðin alvarleg og lífið hangir eins og í
einu hári.”
“Sem er mjög óhyggilegt af yður,” sagði Carl-
ton. “Já góða kona, ef þér vilduð gera mér þerna
litla greiða, þá skal eg fara inn og vita hvað eg get
gert fyrir manninn yðar undir eins og þér komið
með hjálp.”
“Eruð þér læknir, hr. ?”
“Já, eg er það. Látið frú Fitch senda þægileg-
an vagn, og tveir eða þrír menn er bezt að komi
líka. En eg er nú á sömu skoðun og þér, að hestur-
inn minn liggi þama af leti, fremur en af því að
hann hafi meiðst.”
“Haldið þér að hann hafi meiðst, hr. ?” spurði
konan og benti á manninn.
“Eg held að hann sé að eins í yfirliði. Flýtið
þér yður nú eins og þér getið, þá eruð þér góð kona.
Segið frú Fitch að hjálpin sé til Carltons.“
Konan, sem var hraust og sterk, fór af staö
með þeim hraða, sem Carlton hefði naumast getað
fylgt, og kom aftur með þá nauðsynlegu hjálp á
tiltölulega stuttum.tíma. Á meðan hún var í burtu
hafði Carlton komið hesti sínum á fætur; einn fót-
urinn hafði undist, en að öðru leyti var hann ó-
skemdur. Evan var enn þá meðvitundarlaus.
Læknirinn gekk nú inn til mans konunnar, sem
hann fann veikan af hitasótt. Hann sagði við
konuna, að ef hún vildi korna heim til sín næsta
tnorgun, þá skyldi hann gefa henni lyf handa
honum.
Koma þeirra til South Wennock vakti mikinn
óróa i bænum, og enn þá meiri á heimili Carltons.
Með hestinn var farið inn í hesthús og sent eftir
dýralækni, en sjálfur annnðist Carlton um öku-
mann sinn. Evan hafði raknað við á heimleiðinni,
og Carlton fann að hann var h'tið meiddur.
Carlton hafði munað eftir gildi yfirskinsins,
þegar hann valdi sér þetta hús — ungur læknir
hefði komist af með margfalt minna hús. Til
beggja hliða við innganginn voru dagstofur; mjög
verðmikill stigi lá upp að skrautlegum samkvæm-
issal og rúmgóðra svefnherbergja. f samkvæmis-
salinn og nokkuð af svefnherbergjunum vantaði
húsmuni; en það var nægur tími til að bæta úr því.
pegar Carlton var búinn að hlynna að Evan,
gekk hann ofan í forstofuna og inn í dagstofuna
til vinstri handar, vanalega kölluð borðstofa. Hún
hafði tvo glugga — annar sneri að götunni, hinn,
breiður og lágur bogagluggi, sneri að matjurta-
garðinum. Á þessu augnabliki voru blæjumar
dregnar niður fyrir báða gluggana, og eina birtan
í herberginu kom frá eldinum í ofninum, sem
Carlton skaraði vel að til þess, að hann gæti logað
og hringdi svo bjöllunni.
Vinnukona kom inn, hún leit heiðarlega út og
var hér um bil miðaldra. pessi vinnukona, Evan
og drengurinn var alt heimilisfólkið. Starf drengs-
ins var að_f^a með lyfin til sjúklinganna og þess
á milli að vera í læknisstofunni og taka á móti
skilaboðum til Carltons, þegar hann var ekki
heima.
“Eg þarf að tala við Ben, Hanna”.
“Já, hr., eg skal segja honum það. pér viljið
að líkindum fá eitthvað að borða, hr?”
Já, það vil eg feginn; eg hefi ekkert borðað
síðan í morgun að eg neytti morgunverðar. Hvað
hafið þér í húsinu núna?”
“Kalda uxasteik, hr., og—”
“pað er gott,” sagði Carlton; “komið þér með
uxasteikina hingað og sendið Ben til mín.”
Ben kom; sami ungi maðurinn, sem hafði verið
svo ósvífinn við Judith Ford á föstudaginn. Fyrir
framan húsbónda sinn stóð hann mjög auðmjúkur.
“Eru nokkur boð eða bréf til mín, Ben ?”
“Bréf hafa ekki komið,” svaraði Ben. “Tvær
eða þrjár manneskjur hafa komið, sem vildu tala
við yður, en þær fóru aftur þegar þær heyrðu að
þér voruð ekki heima. Og svo kom boð í gær frá
Chesney kaptein, hr., og aftur í morgun. Hann
var lakari, sagði svarti þjónninn, og bálvondur
yfir því að þér voruð ekki heima; hann hafði skip-
að þjóninum að segja, að ef þér kæmuð ekki til
hans í dag, þá ætlaði hann að senda eftir Grey.”
“Hann getur sent eftir fjandanum, ef hann
vill,” sagði Carlton í bræði sinni. “Er þetta alt
Ben?”
“Já, þetta er alt, hr.”
Hann fór burt, en Carlton stóð augnablik hugs-
andi. Svo gekk hann fram í forstofuna og tók hatt-
inn, einmitt þegar Hanna kom úr eldhúsinu með
bakka í hendinni. Hún varð hissa af að sjá hús-
bónda sinn fara, þar eð hún hélt að hann biði eftir
matnum.
“pegar eg kem heim aftur,” sagði hann við
hana. “pú býrð það til á meðan.”
Hann gekk áleiðis til Bakkans, ,pví hann hafði
í hyggju að heimsækja manninn, sem hafði gert
honum gremjulegu boðin — kaptein Chesney.
Sumir læknar hefðu naumast gert sgr ómak fyrir
sjúkling, sem þeir vissu að í engri hættu var
staddur. Carlton hefði naumast gert það sjálfur,
sem læknir, því hann var að geðslagi fremur
drembinn en eftirgefanlegur; en það var önnur á-
stæða, sem ekki stóð í sambandi við stöðu hans, er
knúði hann til að fara.
Hér um bil þremur mánuðum áður hafði kap-
teinn Chesney, sjóliðsforingi með eftirlaunum,
sezt að í South Wennork, og kom þangað frá hér-
aðinu kringum Plymouth. Húsið sem hann bjó í,
hét Cedar Lodge, lítið, hvítt, sveita-skemtiheimili,
sem stóð spottakorn frá þjóðbrautinni í stórum
eyðimerkurlegum garði. Hann verðskuldaði þó
ekki nafnið eyðimörk af því, að hann væri van-
ræktur, heldur sökum hinna þéttu runna og trjáa
sem þöktu hann allan. Honum var ágætlega hald-
ið við, því hinn gamli sjóliðsforingi var reglusamur
inaður, og vildi að alt væri sem þokkalegast og
fallegast í kring um sig, þó að oft væri skortur á
skildingum, til þess að geta látið það vera þannig.
Eins og tilfellið er með marga sjóliðsforingja, voru
efni hans alt af í aumkunarverðu ásigkomulagi.
Kapteinninn átti þrjár dætur, Jane, Lauru og
Lucy; hann var mjög oft þjáður af fótagigt, og
þar eð hann var að eðlisfari bráðlyndur, jók gigtin
asingu hans, sem alt af kom mest í ljós þegar
gigtin var á hæsta stigi. Tilviljanin hafði látið
hann velja sér Carlton fyrir lækni. pegar kap-
teinninn kom til South Wennock, þjáðist hann af
gigt, og sendi svarta þjóninn sinn, sem verið hafði
lijá honum í mörg ár og var honum tryggur, af
stað að sækja læknir. Pompey, sem var ókunnug-
ur í þessum bæ, spurði sig fyrir og kom til bræðr-
anna Greys, en hvorugur þeirra var heima; en
aðstoðarmaður þeirra lofaði honum, að annar
þeirra skyldi koma áður en dagurinn liði, en þá
var orðið áliðið dags. Pompey fór heim og sagði
frá þessu, en kapteinninn varð æstur. Hann vildi
og skyldi fá læknir undir eins, og Popey var send-
ur af stað aftur til að finna annan lækni. Hann
fór strax beina leið til Carltons, því á heimleiðinni
hafði hann tekið eftir dyraspjaldi hans: “Hr..
Lewis Carlton, starfandi læknir.” Carlton var
heima og hafði frá þessari stundu verið læknir
kapteins Chesney. Allan veturinn hafði kapteinn-
inn fengið hverja gigtarkviðuna á fætur annari;
Carlton kom þar á hverjum degi og var svo að
segja orðinn trúnaðarvinur fjölskyldunnar.
Carlton gekk upp Baltkann. Hús Chesneys
stóð til hægri handar, hér um bil í miðri brekkunni
Hann opnaði hliðið og gekk eftir gangstignum,
sem lá í bugðum innan um runnana, heim að hús-
inu, og það var að eins af þessum stíg að líttill
spotti sást úr neðstu gluggunum. Fyrir framan
þessa glugga var grasflöt, sem hallaðist frá þeim,
en við hlið hússins var blómagarður. pað var fag-
urt en lítið pláss; að undantekinni stærðinni var
það viðeigandi staður fyrir aðalborinn mann.
Carlton leit á dagstofuglijggana og sá dálítinn
bjarma frá eldinum í ofninum, en í herberginu
uppi yfir logaði ljósið glatt; það var herbergi
Chesneys.
“Ekki komnar heim frá kirkjunni enn þá,”
tautaði Carlton við sjálfan sig um leið og hann
hringdi dyrabjöllunni. “Chesneys ungfrúrriar
fara vanalega til kvöldguðsþjónustunnar í hinum
enda bæjarins, skyldu þær hafa farið allar?”
Svarta en heiðarlega andlitið hans Pompey
geislaði af gleði, þegar hann sá hver kominn var.
“Húsbóndinn var einmitt núna að tala um að senda
mig af stað eftir hinum lækninum, honum hr.
Grey,” hvíslaði hann; og Carlton gekk upp stigann
til herbergis Chesneys og rykti höfðinu til drembi-
lega, þegar hann heyrði þetta — því, þótt undar-
legt sé, þá vakti þessi ertni frá hálfu sjúklingsins
æsing hjá honum.
v
J. N. Sommerville
Lyfsali
Horni William & Isabel, Winnipeg I
Tals. Garry 2370
Vér mælum meö eftirfylgjandi
hressingarlyfum aö sumrinu
Beef, Iron & Wine
Big 4 D Compound
sem er blóöhreinsandi meöal.
Whaleys blóðbyggjandi
lyf
Voriö er komið; um þaö leyti er
altaf áríöandi aö vernda og styrkja
líkamann svo hann geti staðiö gegn
sjúkdómum. Það veröur bezt gert
með því að byggja upp blóðið.
Whaleys blóðbyggjandi meðal gerir
það.
Whaleys lyfjabúð
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
Gernm við Húsbúnað
pólerum, gerum upp að nýju; sláum
utan um hann ef sendur burtu. Gam-
all húsbúnaður keyptur.
J. LALONDE, 108 Marion St.
Phone Main 4786 NORWOOD
Innvortis bað.
Eina örugga aðferðin til þess að
lækna magasjúkdóma og innýflaveiki.
Til þess að sannfærast um að þessi
staðhæfing sé rétt, þarf ekki annað
en skrifa Harry Mitchell D. P., 466
Portage Ave. í Winnipeg. Hann er
eini umboðsmaðurinn, sem getur sagt
yður alt um “J. B. L. Cascade”. Hann
gefur yður sérstakar upplýsingar og
ráðleggingar, sem gera yður það
mögulegt að lækna alla læknanlega
sjúkdóma. Biðjið um ókeypis bók
eftir Charles A. Tyrrell M.D., sem
heitir “Hvers vegna nútíðarmaðurinn
er ekki nema 50% að dugnaði. —
Bókin kostar ekkert.
I.
Maður er nefndur Patrirk Bruyers
og átti heima i River Desert fFljóts-
auðn) í Quebec. 27. júní fór hann á
smákænu með konu sinni út á Duck
Lake, til þess að fiska. í>au lentu
við eyði eyju í vatninu, sem ekkert
var annað en klettar. Eftir stutta
stund skall á stórviðri og rak bátinr.
frá landi. Bruyer var ekki syndur,
en hann batt enda á kaðli utan um
sig og bað konu sína að halda i hinn
endann; siðan óð hann út í vatnið og
bjóst v'ið að ná þannig bátnum. I>eg-
ar kaðallinn var á enda átti hanr.
skamt eftir vit að bátnum og kallaði
á konu sína að sleppa kaðlinum. Hún
hlýddi því og þótti víst að hanr.
mundi ná í bátinn. En rétt í sama
bili verður djúpur áll fram undar.
honum; stigur hann ofan í hann og
fer á kaf. Hann neytti allra bragða
til þess að komast í land, en gat ekki,
og druknaði fyrir augum konu sinnar.
Líkið rak í land en bátinn hrakti
brott. Þarna var konan á eyjnni al-
ein og allslaus, yfir sig komin af sorg
og frávita af örvæntingu. Svo langt
var i land að engin nevðaróp gátu
heyrst og engin merki sést.
Hjónin áttu hund, sem þau höfðu
skilið eftir heima. Eftir tvo sólar-
hringa er eins og hann gruni að eitt-
hvað óvenjulegt hafi skeð því hann
leggur út í vatnið og syndir alla leið
út í eyjuna. Verður þar bæði sorgar-
og fagnaðarfundur. Konunni dettur
það ráð i hug að skrifa á blað hvern-
ig komið sé, bínda seðilinn um háls-
inn á hundinum og segja honum sið-
an að fara heim. Þessu hlýddi hann
tafarlaust; synti alt sem af tók og
nam ekki staðar fyr en komið var
heim. Fólk sem komið var þar las
bréfið og brá við þegar. Konunni
var bjargað, og var það hundinum
að þakka.
II.
Ókunnug stúlka, sem Elsie Dennis
hét og heima átti í Johnsons stórhýs-
inu á Sargent götu andaðist á föstu,
daginn. Hafði hún tekið inn eitur,
sem varð henni að bana. Stúlkan v’ar
við veitingar þar sem “Carlton Café”
heitir. Enginn var hér i bæ, sem
þekti hana, en það vissu menn að hún
kom utan af landi fyrir þremur mán-
uðum til þess að leita sér atvinnu.
Hún var aðeins 20 ára gömul.
Bex Gleaners
LITA, HREINSAog
PRESSA FÖT
Búa til ný föt, gera við föt
Föt pressuð meðan þér
standið við...............ZBc.
Karla og kvenna fatnaður
hreinsaður fyrir.........$1.50
Einnig viðgerðir á loðskinnsfötum
332J Notre Dame Ave.
TaJs. G. 67 Winnipes;
Vér ábyrgjumst ekki föt sem ei
er vitjað innan 30 daga
-
JOSIE & McLEOD
Gera við vatns og hitavélar
í húsum. Fljót afgreiðsla.
353 Notre Dame Tals. G. 4921
TAROLEMA lœknar ECZEMA
Gylliniæð, geitur, útbrot, hring-
orm, kláða ög aðra húðsjúkdóma
Læknar hösuðskóf og varnar hár-
fallii. 50c. hjá öllum lyfsölum.
CLARK CHEMICAL CÖ.,
309 Somerset Block, Winnipeg
Silki-afklippur
til að búa til úr duluteppr. Vér höfutn
ágætt úrval af stórum pjötlum meðalls-
konar litum
Stór pakki fyrir 25c
5 pakkar fyrir $1.00
Embroidery silki
af ýmsum tegundum og ýmsum litum
1 unzu pakki aðeins 25c
Peoples Specialties Co.
P.O. Box 1836 jWinnipeg, Man.
/ "N
BIFREIÐA
“TIRES”
Vér aeljum nýjar og brúk-
aðar “tires”. Kaupum og
tökum gamlar í skiftum
fyrir nýjar, gefum gott
verð fyrir þær gömlu. All-
ar viðgerðir eru afgreiddar
fljótt og vel.
Skrifið eftir verði.
Watsons Tire
Service
180 Lombard St., Tal. M.4577
Williams & Lee
Reiðhjól og bifhjóla stykki og Ji-
höld. Allskonar viðgerðir.
Bifreiðar skoðaðar og endurnýjað-
ar fyrir sanngjarnt verð. Barna-
vagnar og hjólhringar á reiðum
höndum.
764 Sherbrooke St. Hopni Notre Oame
Wm. H. McPherson,
Uppboðshaldari Og
Virðingamaður . .
Selur viðuppboð Landbúnaðaráhöld, als-
konar verzlunarvörur, húsbúnað og fleira.
264 Smith St. Tals. M. 1 781
Art Craft Studios
Montgomery Bldg. 215] PortageAv
i gamla Queens Hotel
G. F. PKNNY. Artiat
Skrifstöfu talsími ..Main 2065
Heimihs talsími .... Garry 2821
C. H. NILS0N
KVENNA- og KARLA
SKRADDARI
Hin stærsta skandinaviska
skraddarastofa
208 Logan Ave.
í öðrum dyram frá Main St.
Winnipeg, Man.
Tals. Garry. 117
Efnafrœðislega sjálfslökkvandi
Hvað þýða þessi orð fyrir þig? pau þýða meira
öryggi á heimilinu. — pað er vissulega atriði, sem þú
lætur þig varða, meira en lítið.
Ef til vill hefir þú tekið eftir þessum orðum og setn-
ingum: “Enginn eldur eftir þegar slíkt hefir verið” á
vorum nýju, hljóðlausu stofu eldspýtnakössum. Hver
einasta spýta í þessum kössum er gegn vætt í efnafræð-
islega samsettum legi, sem breytir þeim í óeldfiman
þegar búið er að kveikja í þeim og slökkva aftur, og hætt-
an á bruna frá logandi eldspýtum gerð ein slítil og mögu-
legt er.
öryggi fyrst, og notið ávalt Eddys hljóðlausu 500s
- ■■ ■
r