Lögberg - 09.08.1917, Page 6
6
LÖGBERG, FIMtUDAGINpi 9. ÁGÚST 1917
Jórunn Jónsdóttir
ljósmóöir í Borgarhreppi.
F. 20. segt. 1843. D. 27. april 1917.
Mikilhæf var hún
og mannkostum
búin beztu,
•bragnr kvenna,
ríklunduS, röggsöm
og rausnar-drjúg,
hyggin, hollráö
og hjartagóö.
Ung var hún sveipuð
yndisþokka
ættmæöra ágætra
íslendinga.
Sópaði’ af sviptign,
er silfurkranz
henni ellin
að enni sveigði.
Glatt var á garði,
er gestafjöld
húsfreyju heim
í hópum sótti.
Sjálf var hún glöðust,
er sumarbros
æskunnar ljómuðu
að arni hennar.
Hugul og v’eitul,
hverjum manni
vel hún vildi
vera’ í öllu.
Tregafögur
er íósturbarna
minning mild
um móður góða.
Nú hefir ljósmóður
lausn og frið
veitt hin ljúfa
ljósmóðir alheims:
elskunnar drottins
eilíf sól, —
aflgjafi, ljósvaki
allra sálna.
Svo kveður þig síðast sveit og bær,
er sann-nefnd varst allra móðir kær.
Og saknandi konan þín minnist mörg,
er múkhent þú veittir likn og björg.
Og heiman fylgir þér hópur þinn,
er hhnin og ljósið fyrsta sinn
á skauti þér sá, og síðar fann
í sál þinni tryggan kærleikann.
Svo leggur héraðs-sveit heiðurskranz
í heilögu nafni kærleikans
á hviluna þina’ og viknar við. —
Guð veiti þér nú sinn dýrðar-frið!
Guðm. Guðmundsson.
Heilbrigði.
Lœkning og'meðferð brjóstveikinnar.
Eins og áöur er sagt myndar lík-
aminn móteitur eða varnarefni á móti
berklagerlunum og eituráhrifum
þeirra. Ef þessi varnarefni eru nægi-
leg, læknast sjúkdómurinn, ef þau
reynast ónóg, nær sjúkdómurinn yfir-
tökunum. Að efla þessi varnarefni
sem mest er því tilgangur allrar lækn-
ingar. Það þarf að hlynna að lækn-
ingarkrafti náttúrunnar,” bægja frá
öllum þeim áhrifum, sem geta haft
skaðlegar verkanir á líkamann, og
hins vegar styrkja hann og stæla og
efla orku hans. í þessu er heilsuhœl-
islœkningin fólgin, og er hún grund-
völluð á heilsufræðinni ("‘hygiænisk-
diætisk” meðferð). Skal hér gerð
grein fyrir helztu atriðum hennar.
Þó að hér sé að eins rætt um brjóst-
veikina, þ. e. berklaveikina í lungun-
um, þá er ekki þar með sagt, að lík
meðferð geti ekki komið til greina
við aðrar tegundir berklaveiki, svo
sem berklaveiki í beinum, liðum og
kirtlum, — þar er hún einnig nauð-
synleg—, en við slíka sjúkdóma er
oft og einatt þörf- á skurðlækningum,
umbúöum og öörurh aðgeröum, en út
í slíkt verður ekki farið hér.
Loftið.
Alkunnnugt er að ljós logar illa í
loftlitlu herbergi, og því meir sem
loftið spillist, því daufara verður ljós-
ið, og svo ilt getur loftið orðið, að
ljósið slokni. Eins logar illa í ofnin-
um þegar hreint loft vantar — þegar
lítill loftsúgur er i ofninum.
Hvað er nú ilt loft og hvað er gott?
Vér skulum fyrst athuga samsetn-
ing v'enjulegs útilofts. Hún er þessi:
78 pct. er köfnunarefni og 21 pct.
súrefni. Þetta eru aðalefnin, en auk
þess er í loftinu vatnsgufa og kolsýra.
Vatnsgufan er nokkuð mismunandi,
til jafnaðar hér um bil )4 pct. Kol-
sýran 0,03 pct.
Þó mest sé af köfnunarefni, þá er
það súrefnið, sem í þessu sambandi
er mikilvægasta efnið. Það er á því
sem ljósið lifir og það er það, sem
brennir kolunum. Það sem fram fer
er það, að súrefnið gengur í samband
við kolefnið og vatnsefnið í kolunum,
steinolíunni eða kertinu og við það
myndast kolsýra og vatn. Við þessa
efnabreytingu myndast hiti og ljós.
Ef ljós eða eldur logar i inniluktu
rúmi, eyðist súrefnið smámsaman og
i þess stað kemur kolsýra. Af þessu
skilst, að ilt loft er súrefnis-snautt
og kolsýruauðugt.
Ef vér nú berum saman ljósið eða
eldinn og mannslíkamann, þá er hér
Iíkt í efni. í likama manna (og dýraý
fer fram sífeld brensla. Lungun taka
við súrefninu úr loftinu. Það fer
svo inn í blóðið og flyst út um allan
líkamann, og við efnabreytinguna
myndast meðal annars kolsýra og
vatn. Kolsýran fer svo aftur með
blóðinu til lungnanna og fer þar út 'f
andrúmsloftið. Vatnið, sem myndast
fer sumpart (sem vatnsgufa) út um
lungu en sumpart út um húðina, en
sumt fer burt með þvagi og saur. Við
þessa efnabreytingu framleiðist einn-
ig hiti, sem eins og kunnugt er, er
kringum 37 stig ('celsiusý.
Ef menn dvelja lengi t herbergi þar
sem endurnýjung loftsins er ekki full-
nægjandi, þá spillist loftið á sama hátt
og við bruna eldsins. Það verður æ
súrefnis-snauðara og kolsýru-auðugra
Menn, sem inni eru, fer nú að vanta
súrefnií blóðið og það getur liðið yfir
þá. Þegar, súrefnið er rýrnað um
helming, þ. e. þegar það er orðið að
eins einn tíundi hluti andrúmslofts-
ins, þá kafna mennirnir.
Menn geta einnig gert sér grein fyr-
ir spillingu loftsins ef mæld er kol-
sýran. Þegar hún er orðinn einn
hundraðasti af andrúmsloftinu, þá er
loftið skaðlegt.
Enn fremur gefur hörundið frá sér
skaðleg efni, sem myndast hafa i lík-
amanum, og spilla þau þannig loftinu.
Þegar menn dvelja lengi í v’ondu
lofti, getur svo farið að menn venjist
að nokkru leyti viö það, og finni ekki
til sérstakra óþæginda svo teljandi sé,
en engu að síður er það skaðlegt.
Eins og Ijósið logar illa í vondu lofti,
eins logar lífsljós mannsins þar illa.
Efnabreyting likamans sljófgast, lífs-
þrótturinn dvínar. Það er hægra að
slökkva það ljósið sem illa logar.
Loftið undir berum himni er því
bezta loftið, og þegar menn verða að
dvelja inni, á Ioftið þar að vera sem
næst útiloftinu.
En loftið getur spilst á annan hátt,
þó súrefnið sé nægilegt. Það getur
verið meira eða minna ryk í loftinu.
Að ryk sé ilt manni er skiljanlegt.
Lungnapípurnar eru að innan klædd-
ar fíngerðri slímhúð, og þessa slím-
húð getur rykið sært, og gert margs-
konar sjúkdómsgerlum hægra fyrir
að komast inn úr henni, og í ryki eru
oftast ýmiskonar gerlar. Að vísu er
þessi lungnapipu-slimhúð ekki alger-
lega varnarlaus. Hún er víða klædd
einskonar bifhárum, sem eru á sifeldu
iði og hreyfast þannig að þau sópa
rykinu út úr lungunum, en ef rykið er
mikið, veita þau ekki nægilega vörn.
énda eyðast bifhárin af ýmsum
lungnasjúkdómum. í nefi eru einnig
slík bifhár, og þar síast einnig rykið
frá. Sést af því að hollara er að
draga andann gegnum nefið en gegn-
um munninn.
Það er einnig margt, sem bendir á
það að berklaveiki leggist fremur á
þá, er vinna að þeirri iðju, er hefir
mikið ryk í för méð sér. Menn hafa
í öðrum löndum talið hve margir eru
berklaveikir meðal manna af ýmsum
stéttum, og bendir sú upptalning á
þetta.
A’nnars er mikill raunur á, hvert
rykið er. T. d. þykjast menn hafa
tekið eftir, að kola-, kalk- og mölryk
sé tiltölulega meinlaust. Aftur á m'óti
er steinryk einna skaðlegast. Þvi til
sönnunar hafa menn rannsakað bana-
mein steinhöggvara í Berlín, og kom
það í ljós, að 90 pct. af þeim dóu úr
berklaveiki, en ekki nema 10 pct. úr
öðrum sjúkdómum samtals.
Loftið er miklu rykminna úti en
inni, og útiloftið er mörgu sinnum
hreinna í svéitunum en á götum
borga og kaupstaða.
Htti loftsins. Fyr á tímum töldu
menn berklaveikum sjúklingum nauð-
svnlegt að vera í mjög hlýju lofti. Á
vetrum var það álitið sjálfsagt, að
sjúklingarnir ættu sæti sem næst ofn-
inum, og um opna glugga var ekki að
ræða. Það má geta nærri að slík
meðferð var ekki heppileg. Ef þess-
ir sjúklingar, sem ekkert kul þoldu,
komu svo undir bert loft að vetrarlagi
utðu þeir iijnkulsa og kvefaðir. Þeir
líktust Johnsen presti hjá Carl Bagger
i “Min Broders Levnet.” Presturinn
segir þessi merkilegpj orð: “Eg er
nokkuð kvefaður þessa dagana. Eg
var nefnilega sv'o óvarkár hérna um
daginn, að ganga gegnum herbergi
þar sem gluggi var opinn. — Svona
fer það þegar við gömlu karlarnir
ætlum að verða karlar í krapinu og
gera það sem að eins ungir menn og
frískir þola.”
Þó að langt sé síðan þetta var rit-
að, þá eldir þó enn eftir af þessari
Iofthræöslu. Hreina loftið kalla menn
þá “dragsúg” og telja það komi sjálfs-
morði næst að opna glugga.
Að vísu getur súgur orðið óhollur
þegar sérstaklega sterfdur á. Ef mað-
ur situr t. d. við brennheitan ofn, sem
bakar hann öðru megm, en á hina
hliðina leggur kaldan gust, þá getur
maður fengið gigt eða kvct. Líkam-
inn þolir ekki misjafna upphitun Það
er þvi varhugavert að setja mög nærri
heitum ofni, að eg ekki tali um að
sitja á sjálfum miðstöðvarofnunum,
eins og eg hefi séð menn gera. Ekki
er heldur gott að sitj'a alveg við opinn
glugga að vetrarlagi, í mjög heitu
herbergi. Öðru máli er að gegna
þegar lítill munur er á hitanum úti
og inni. Þá er það óhætt. Hitinn á
að vera sem jafnastur alt í kringum
mann. Best er að íbúðarherbergi séu
sem stærst. Þá cr hitinn jafnari, þó
Iagt sé í ofn. Gluggum skyldi ætíð
skift í efri og neðri glugga, og er þá
að eins efri glugginn opnaður, ef kalt
er úti.
Reynslan sýnir, að þeir sem hafa
miklar innisetur og venja sig á mik-
inn ofnhita, eru kvefgjarnari og gigt-
veikari en hinir, sem mikla útiv'ist
hafa og varast ofmikinn hita inni.
Margir fá kvef þegar kólnar á haust-
in og farið er að leggja í ofnona,
ekki svo mjög af kuldanum úti, held-
ur miklu fremur af hitanum inni og
öllum þeim bakteríum, sem þar safn-
ast fyrir.
Ofnhitinn ætti aldrei að vera meiri
en 12—14 stig á Celsius.
Útivist er ein af allra nauðsynlegj
ustu þáttunum í heilsuhælismeðferð-
inni. Sjúklingarnir eru undir berum
himni allan daginn og fara að eins inn
til að matast. A nóttum sofa þeir
fyrir galopnum gluggum og hitinn í
svefnherbergjunum sem Iíkastur hit-
anum úti. Auðvitað hafa þeir á nótt-
um nögu mörg brekán ofan á sér, en
reynslan sýnir, að þau þurfa sjaldn-
ast að vera öllu fleiri en venjulega
gerist, því húðin herðist við hina
stöðugu útivist.
Það er ofur skiljanlegt, hvers vegna
útivistin er svo nauðsyuleg — efna-
breytingin verður örari, matarlystin
vex, allur líkaminn styrkist, hörund
og taugar harðna, og þegar skemd
eða Sár er í lunga, er bezt að loftið,
sem kemst að sárinu, sé hreint, ryk-
laust og gerlalaust.
fFramh.J.
Fáein svör.
Herra ritstjóri Lögbergs.
Eg vona að þér leyfið þessum fáu
línum rúm í blaðinu.
Af því J. J. Vopni lagði fyrir mig
þessa hér cftirfarandi spurningu:
“Hvað gerðir þú, ef þú værir
‘premier of Canada’?” Af því við
höfðum ekki tækifæri til að hafa
Iengri samræðu, vil eg þvl svara þeirri
spurningu í hér eftirfylgjandi línum,
í sumum atriðum.
1. Herslcyldu lögin, sem nú eru á
dagskrá, Iéti eg bera undir atkvæði
þjóðarinnar freferendumj og stuðla
að því að jafnt málfrelsi væri veitt
frá báðum hliðum, svo þjóðinni gæf-
ist kostur á að fá sem lj'ósastan skiln-
ing á undirstöðu atriðum þeim, sem
að því m:li liggja frá báðum póli-
tísku flokkunum hér.
2. Eg mundi semja frumvarp til
algjörlegra laga breytinga á þeim
hegningarlögum, sem nú eru gildandi
í landinu, og vinna að því að þau 4ög
yrðu viðtekin, sem algjörlega koll-
vörpuðu þeim hegnangarhúsum
(stofnunum) eða því fyrirkomulagi
og þeim “lögum” því viðkomandi
sem nú er. Þannig að hegningarhús-
unum yrði breytt í sektarskóla, þar
sem hver sakfeldur fengi viðunanlegt
fæði og klæði, en væru látnir vinna
daglegá þjóöfélaginu til þarfa að
allri landsins framleiðslu, undir
ströngum siðgæðis reglum, eftir fyr-
irsögn sérfræðings; að þeir væru
látnir vinna við þann starfa, sem hver
og einn væri bezt til fallinn. Fram-
leiðslan af vinnunni mundi borga
kostnaðinn, og þess konar starfsemi
ekki kosta þjóðfélagið einn einasta
dollar.
3. Eg mundi vinna að því, að fá
þess konar lög staðfest, að þegar ein-
hver væri tekinn fyrir rétt og sakað-
ur um “lagabrot”, væri hann yfir-
heyrður, krafinn sagna pg látinn skýra
frá því hvernig hann hefði verið al-
inn upp, með hvaða fólki hann hefði
lifað og hvaða áhrifum hann hefði
orðið fyrir og hvaða lífskjörum hann
hefði orðið að sæta. Að dóminum sé
hagað eftir þvi, hvort lífskjörin hafi
verið hörð eða væg, og ef þau hafa
verið hörð og orsök þess að maður-
inn varð sekur gagnvart lögunum,
þarf hegningarvistin að vera skóli,
kensluleg hjálparstofnun, en ekki
myrkraklefi upp á, vatn og brauð, sem
með réttu ætti að kallast glötunarhús.
Ennfremur: að hegningartímanum
afloknum sé engum slept þaðan pen-
ingalausum nema með því móti að
maðurinn hafi einhvern starfa eða
stöðu vísa til að ganga að þegar hann
er laus látinn. ,
4. Eg mundi semja og vinna að að
fá samþykt fast ákveðin lög, sem á-
kvæðu hvað skyldi vera hár gjaldeyrir
verkalauna allra, embættismanna og
stjórnar ráðsmanna og stjórnarráðs-
þegna og þeirra, sem standa í opin-
berri stöðu, og lög sem ákvæð^ lág-
mark daglauna hins svokallaða lægri
flokks verkalýðs, þannig úr garði
ger að þau væru ætíð hlutfallslega í
samræmi við mismunandj verðhæð
og framleiðslumagn lífsnauðsynja, en
gætu samt aldrei farið niður fyrir tak-
markað lágmark. Lög sem gerðu allar
stéttir embættismanna og stjóarnar-
þegna að daglaunamönnum, og að
daglaun þeirra hefðu sitt hámark,
sem þau gætu aldrei farið yfir, að
þeir séu sem daglaunamenn stjórnar-
innar eða þjöðarheildarinnar, borgað
af því opinbera.
Eg mundi fá það lögleitt að þjóðin
hafi heimild til að kjósa og ráða ti!
eins árs tímabils í senn, nefndarfull-
trúa sem væru óháðir öllum stjórn-
arembættisstörfum, sem væru af al-
þýðunni til þess kjörnir að rannsaka
alla embættisstarfrækslu þjóðfulltrú-
anna ('stjórnarinnar) á hverju
þriggja eða sex mánaða tímabili og
birta þær skýrslur sérprentaðar eða
í opinberum blöðum að hverri rann-
sókn aflokinni. J
Larsen’s Rheumatism Sanitorium
449 Main St. Phone: M. 4574.
Arkansan hvera aðferð er höfð við liðagigt, bakgigt og
húðsjúkdómum.
Gigt orsakast af þvagsjúkdómum í blóðinu; þig losnið
við það á þennan hátt.
Fimm ára reynsla við Arkansas hverina.
Hér eru taldir fáeinir af hinum mörgu sjúklingum, sem
geta sagt ykkur um lækninguna, sem þeir fengu í Larsen’s
gigtarhælinu.
Mrs. J. L. Knight, Ph. G. 399.
Mrs. A. H. Hoskings, 712 Portage Ave.
Mr. A. Corbett, Shipman Court, Suite 15.
Mr. W. H. Steadman, C.N.R. Weightmaster, Fort Rouge
Mr. A. W. Amott, Transcona.
Auglýsið í Lögbergi það sem selja þarf.
•• 1 • timbur, fjalviður af öllum
Nyjar vorubirgðir tegundum, geúettu, ogai.-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar til vetrarins.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
Limlt.d
HENRY AVE. EAST
WINNIPEG
GÓÐAR VÖRUR!
SANNGJARNT VERÐ!
Áreiðanlegir verkamenn
Petta er það sem hvern mann og konu
varðar mestu á þessum tímum. Heim-
scekið verkstœði vort og þér sannfærist
um alt þetta. Nýjustu snið, lægsta verð
í bœnum. Velsniðin föt sem ætíð fara vel
H. SCHWARTZ & CO.
The Popular Tailors 563 Portage Ave.
Phone Sh. 5574
6. Eg mundi gjöra alla aflstöðva .
framleiéslu að þjóöar eigii og hafaj
undir starfrækslu stjórnarinnar og!
allar járnbrautir landsins, og fá þaö
staðfest með lögum, að allur verka-
lýður, sem ekki hefir fasta stöðu
fengi frítt far með öllum brautum
landsins til að afla sér atvinnu.
7. Eg mundi afnema heildsöluhús-
in og alt verzlunarauðvalds-samband.
Þau eru einn af aukaliðunum í verz-
unarsambandinu að minu áliti. Ef
þau eru nauðsynleg, ættu þau að vera
starfrækt af þvi opinbera.
8. Eg mundi breyta kenslu fyrir-
komulaginu á barna- og hinum æðri
alþýðuskólum í mörgum atriðum —
og margt fleira.
Að ræða þessi atriði til hlitar ásamt
öðrum fleiri mundi taka upp marga
dálka í nokkrum blöðum af Lögbergi.
Þetta eru aðeins fá helztu atriðin,
sem eg vildi vinna að, ef eg hefði
tækifæri til, vald og mátt.
Þinn einlægur.
S. Vilhjálmsson.
*
iðLiinr
/
IðLSIIN
S
DUGLEG LÍTIL STÚLKA.
pegar eg var búinn að drekka kaffið mitt
kl. 3, leið mér ósköp vel, jafnvel þó hitinn væri
voðalega mikill. Eg tók hattinn minn, sem eg
gleymi svo fjarska oft hvar eg læt; hattinn, sem
ein frú í Winnipeg sagði um, þegar hún var að
leita að honum fyrir mig: “Hamingjan hjálpi
ykkur karlmönnunum þegar kvenfrelsi er komið
á, hver ætli að verði þá til að finna hattinn ykk-
ar”. En þetta er nú útúrdúr frá aðalefninu, sem
er að eins til að sýna ykkur, elskulegu böm,
hvað hugsana gangur okkar gamla fólksins, sér-
staklega okkar gömlu karlanna, er ólíkur fjöruga
og bráðláta hugann ykkar, sem strax, já, strax,
strax, viljið komast að aðalefninu. — Jæja þá, —
eg tók hattým minn, braut niður barðið að fram-
an til að gefa augunum skugga, og gekk áleiðis
niður í bæinn. Eg mætti nokkru af fólki á leið-
inni, bæði kvenfólki og karlmönnum. Allir báru
sig hálf illa og höfðu svipað umkvörtunarefni:
“ó, hvað er heitt! — mikill dæmalaus hiti er
þetta, ó, nú er voða heitt”.
Loksins mætti eg 10 ára gaúialli stúlku, sem
eg þekti vel, því eg hafði kent henni að lesa ís-
lenzku. Hún var ósköp fín, í hvítum kjól með blóm
í hárinu og blóm í barminum; og alt andlitið var
svo fallegt of leiftraði af gleði. Heni sýndist
ekkert heitt, að minsta kosti mintist hún ekki
neitt á hita.
“Hvað ósköp líður þér vel, kæra bam”, sagði
eg. “pað hefir oft verið á þér sólskinsandlit, en
aldrei jafn mikið eins og nú. Hvað stenur þama
upp úr tuskunni þinni ?” spurði eg. — “pað er
Lögberg með Sólskini sagði hún svo fjarskalega
hróðug og gekk sinn veg áfram, og eg minn. En
þegar eg kom á móts við húsið þar sem litla stúlk-
an átti heima, sat móðir hennar út á pallinum;
hún kallaði til mín: “Mættir þú Josie?” — svo
kallaði hún: “litlu stúlkuna, sem heitir fullu nafni
Josephina Margrét Johannson”. Eg kvað já við,
og sagði að mér hefði sjaldan fundist hún jafn
glöð og falleg. “Já það hefir gert erindið, sem
hún var að hugsa um. Veiztu hvað”, sagði móð-
ir hennar, “hún hefir ekki smáræði í huganum
núna. Hún fór út með Sólskin bæði í huganum
og töskunni að safna fyrir gamalmennaheimilið.
Og mér þykir vænt um ^það, og systir hennar
Thelma segist með glöðu geði skulu gera verkin
hennar á meðan”. petta var kl. 3 á föstudegi eftir
að blaðið Lögberg kom. En eftur kl. 3 á laugar-
dag gekk eg fram hjá sama húsinu í sama veður-
lagi, og jafn miklum hita og daginn áður. pá sagði
Mrs. Jóhannson mér að Jósie litla væri búin að
safna 12 dollurum, og alstaðar hefði henni verið
tekið mjög vel og öll sólskinsbömin tekið henni
með fögnuði og gleði eins og lítilli systur sinni. En
svo voru einstaka menn og konur, sem ekkert
vildu með þetta hafa. En Josie litla hafði nógu
mikið þrek til að fara frá þeim jafn glöð og hinum,
sem að tóku henni sérlega vel.
Josephina litla ætlar að senda ritstjóra Lög-
bergs þessa peninga. Hún segir að hann sé svo
góður að hafa stungið upp á þessu; og að mamma
sín segi að þetta geri öllum bömum gottt. —
Josephinu litlu hefi eg ekki séð síðan, en Thelma
systir hennar 14 ára gömul segir að Josie sé
dæmalaust glöð, og þakklát við alla, sem að tóku
henni svo sérlega vel.
Gimli 28. júlí 1917 "
J. Briem.
Elgin, Man. 27. júlí 1917.
Kæri herra:—
Amma mín hefir blaðið þitt, og þegar eg fór
að finna hana sá eg sólskin. Eg er 8 ára gömul
og eg er í IV. bekk í skólanum. Eg fer reglulega
í skóla, en eg kem of seint stundum. Mér þætti
gaman að þú létir þetta í Sólskin. Eg á heima í
Elgin og amma mín er í Beresford. pað eru fimm
kenslustofur í skólanum okkar. Amma mín á
heima 20 mílur héðan. Eg hefi aldrei séð blaðið
þitt fyrri en eg kom til ömmu. Eg fer til hennar
hvenær sem eg get, því eg fæ að leika mér þar.
Eg kann ekki vel að tala íslenzku, en eg er að
reyna eins vel og eg get að læra hana. Nú ætla eg
að hætta. J?ín einlæg.
Sigríður Margrét Bailey.
Winnipeg, 28. júlí 1917.
Kæri ritstjóri Sólskins.
Mig langar til að Ieggja dálítið í Sólskinssjóð
gamla fólksins, því þó eg sé lítill «nn þá, bara sjö
ára í næsta mánuði, þá las eg sjálfur fyrir ömmu
um Betel og gömlu Sólskinsbömin þar, og langaði
þá til að gera eitthvað fyrir þau, svo eg sendi
innan í þessum miða einn dollar. pað er tillag í
Sólsikkinssjóðinn. Með lukkuóskum til Sólskins-
sjóðsins og allra sólskinsbarnanna.
Stefán Ingvar Paulson.
svona fegurð nær ei neinn
nema drottinn sjálfur.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Sólskins -s j óðurinn
„Margt smátt gerir eitt stórt.”
Gimli, 30. júlí 1917.
Kæri ritstjóri Sólskins:—
Eg hefi altaf lesið Sólskinið síðan það byrjaði
að koma út. Og altaf þykir mér vænna og vænna
um það, og gleymi aldrei deginum sem það kemur.
Og núna seinast þótti mér gott. að fá verkefni,
þegar eg las um Betel og gömlu Sólskinsbömin,
sem þar eiga heima. Eg þekki þau öll, og þar er
amma mín. Eg kem þangað *bft og hefi gaman af
því; öllum líður þar vel.
Eg hljóp út og fór að taka samskot í Sólskins-
sjóð gamla fólksins. Mér gekk furðu vel, og eg
þakka öllum sem gáfu, og sendi eg þér listann
með nöfnunum og upphæðinni.
Með beztu óskum til þín og allra Sólskins-
bamanna.
Josiphine Margret Johannsson,
10 ára, 5. bekk.
Smárablað.
(pjóSmerkl lra)
Hugsir þú um þetta blað,
þar er margt að skoða;
sorg og gleði gegn um það
guð og himinn boða.
Allur svipur einka hreinn,
enginn dráttur hálfur;
SafnaS af Josiphine MargTet Johannsson aS Gimli.
Frá börnum á aldrinum tveggja vikna til fjórtán ára.
Josiphine Margret Johannsson .................. $ .25
Magnus Johannsson ................................. 25
Thelma Johannsson ..................................25
George'Crane.....................■..................15
Dorthia Hugrun Arnason ........................... 50
Valdina Kristjánson............................... .10
Ella Stefánson .................................... 15
Stefán Steffánson ................................ .10
GuSbjörg Einarson .... .... ........................15
Buster Jðnasson................................. .10
Fjóla Sólmundson ....;.... ..................../rr .50
Sylvia Thorstefnson.................................25
Jon Thordarson ........... .... ....................26
SigriSur Thordarson ............................... 10
Olof Anna Jonasson..................................25
Margaret Katrin Oleon .... .........................25
Ingibjorg Lillian Olson ............................25
Aima Tergesen.......................................25
GuSrún Bjarnason .................................. 25
Anna Laruson .......................'...............25
Kuby Thorstelnson...................................15
Gertrude Scarff .................... .... ..........15
Mabel Scarff........................................10
Leona Ward ........................................ 25
Frank Ward.................................... .. .25
Konrad Poison ................... .... .............25
JJola A. Polson................................... 25
Lena B Polson .................................... 25
Blithe Mcleod .................................... ‘26
Olina Erlendson ................................. 25
SigrlSur Erlendson.................................. 25
GuSmundur Erlendson .... .......................... 25
Willle Jonasson.....................................10
Heiga Jonasson .................. .... ........ .10
Thelma Jonasson................ . . ................io
Steinunn Jonasson .................................. io
Jonasina Jonatansson .. ............................10
Emiiy Jonatanson .................................. 25
IndriSi Jonatanson..................................25
Laurence Benson.....................................io
GuSrún Anderson ................................... 25
Olga Olson................................. . .. .. .25
Earl Valgarson...................................... 25
Jðn Sigurdson................................. .. .60
Ruth GuSbrandson............................ .. .. .10
Mekln Péturson......................................05
Oli Pótureon....................................... 05
Halldór Póturson....................................05