Lögberg - 14.02.1918, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1918
Tryggvi Gunnarsson.
Niðurl. frá síðasta blaði.
Gunnl. Tr. Gunnarsson er fædd
ur í Laufási við Eyjafjörð 18.
okt. 1835. Foreldrar hans voru:
Gunnar prestur í Laufási, Gunn-
arssonar prests í Laufási, Hall-
grímssonar málara, og móðir
hans Jóhanfla Kristjana, dóttir
Gunnlaugs sýslumanns Briem á
Grund í Eyjafirði, er var sonur
Guðbrandar prests á Brjánslæk,
Sigurðssoriar prests á Brjánslæk,
og rrtá rekja þann ættlegg í bein-
an karllegg til séra Jóns Pálsson-
ar Maríuskálds, prests á Grenj-
aðarstað (d. 1471).
f uppvexti naut Tryggvi meiri
mentunar en alment gerðist, en
jafnframt var honum haldið að
vinnu. Um 10 ára aldur var
honum fyrirsett t. d. að prjóna
hálfsokk á dag og kemba fyrir
vinnukonu sem sat við spuna.
Tímann sem af gengi mátti hann
nota sjálfur, og notaði hann
þann tíma einkum til smíða og
teikninga.. Vandist hann því
þegar 1 æsku að nota vel tím-
ann og því að eins kom hann svo
miklu í framkvæmt á æfi sinni
sem raun gaf vitni, að hann hélt
ávalt uppteknum hætti, að vera
sístarfSmdi og að vera hagsýnn
um störf sín.
Til 14 ára aldurs ólst hann upp
í Laufási. pá fór hann til móð-
urbróður síns, ólafs timbur-
meistara Briem
smíðanáms og dvaldist þar að
mestu til 16 V2 árs aldurs, en þá
fékk hann sveinsbréf. Var hann
nú við smíðar hingað og þangað,
en til heimilis í Laufási. pá var
ið til þess að mala korn, en hann
vildi hafa lækjarins meiri not,
en vatnið var lítið. pá fann
Tryggvi uppnýja aðferð að nota
vatnsaflið og fékk nú miklu
meira afl nothæft úr læknum.
Hann lét nú lækinn vinna margt
fyrir sig. Hann malaði kormð
eins og áður, enn fremur sigtaði
hann mjölið, strokkaði smjörið,
sneri hverfisteini, skar tóbak og
hreyfði vefstól til að vefa voðir
o. fl. smávegis. Breiddist þessi
aðferð nokkuð út um næstu
sveitir.
Einar umboðsmaður Stefáns-
son bjó á Reynistað í Skagafirði
um þessar mundir. Hann vildi
hætta að búa, enyvildi fá hina
miklu og góðu jörð í þess mamr.
hendur, sem kunni með að fara.
Hann hafði spurt að Tryggvi
væri meðal efnilegustu bænda á
Norðurlandi, en hefði litla bú-
jörð. Einar reið því norður í
Fnjóskadal í ársbyrjun árið 1871
á fund Tryggva. Bauð hann
Trygg\ra Reynistað. Varð það
úr að Tryggvi reið m^ð Einari, til
þess að skoða jörðma. pegar
þeir félagar komu norður til Ak-
ureyrar á leiðinni til Skagaf jarð-
ar, stóð þar yfir fundur í Gránu-
félaginu og skyldi kjósa káup-
stjóra þess. Lögðu bændur þá
svo fast að Tryggva að gerast
kaupstjóri, og sögðu að félags-
skapurinn myndi að engu verða,
tækist hann ekki þann vanda á
herðar, að Tryggvi afréð að
á r j I vei'ða við ósk þeirra og var þar
'með lokið kaupum á Reynistað
og öllum búskap.
pað var ekki ófyrirsynu að
bændur leituðu til Tryggva um
_______________________ _ __ forystu Gmufélagsins, þótt hann
séra Björn Halldórsson orðinn! hefði næstu íiyin undanfarin ver
aðstoðarprestur séra Gunnars
og voru þeir alla æfi mestu vinir
séra Bjöm og Tryggvi.
Á 17 ára afmælisdegi Tryggva
var hann við smíðar heima í
Laufási. Kom séra Bjöm þá til
hans og flutti honum ljóðabréf
er var 17 vísur. Var byrjað á
fæðing hans og rakin sagan, en
síðasta vísan er svona:
Héma eg brýt við blað.
Bara eg segi það:
Svona’ er hann sautján vetra,
seinna verður þó betra.
Spra Gunnar dó árið 1853, en
ekkjan hafði búið næsta ár og
var Tryggvi fyrir búinu. Og
ið bóndi. Tryggvi hafði sýnt
það áður, að hann hafði eigi síð-
ur hæfileika til þess að reka
verzlun.
Um og eftir miðja öldina síð-
astliðnu voru mestu góðæri á
Norðurlandi. Verzlun var og
Samkvæmt hinni bættu verzl-
un var mörgum ÖÍrum nauðsynj-
um hrundið í framkvæmd og var
Tryggvi jafnan fremstur í flokki
Fram að árinu 1876 var salt-
fiskur ekki verkaður norðan-
lands og ekkert flutt til útlanda.
Tryggvi gekst fyrir því, að fá
mann af Vesturlandi, til þess að
kenna Eyfirðingum að verka fisk
inn. pví næst flutti hann salt til
Norður- og Austurlands. Hann
lét reisa “salthús” víða svo menn
ættu hægt með að ná saltinu og
gaf hann ágætt verð fyrir fisk-
inn. Brá svo skjótt við, að árið
1880 vom flutt út frá Norður-
landið 2700 skippund af saltfiski
og árið 1883 5450 skippund.
liggur það í augum uppi, hversu
farsælt þetta verk var.
Lýsi var ein aðalútflutnings-
varan um þessar mundir, því að
hákarlaveiðar voru þá mjög
stundaðar við Eyjafjörð. En
allar aðferðir við bræðsluna voru
mjög ófullkomnar og varan þess
vegna slæm, og í lágu verði.
Með miklum kostnaði, við spott
og hlátur kaupmanna, við van-
trú félagsmanna, kom Tryggvi
á stað gufubræðslu á lýsi. Kaup-
menn hlóu stutta stund og fé-
lagsmenn skiftu fljótt skapi, því
að nýja aðferðin hafði stórkost-
lega yfirburði yfir þá gömlu.
Varan varð bæði meiri og betri
og steig mjög í verði. Komst
hún skjótt í álit á erfendum
markaði og hlaut hæstu verðlaun
á sýningum í Kaupmannahöfn og
Edinborg.
pað var þvi ekki einungis að
verzlunin batnaði, heldur hratt
Tryggvi hinum mestu þarfamál-
um í framkvæmd, um verzlun á
kaupstjórnarárum sínum, kom
nýjum vörum á markað 0g stuðl-
aði að vöruvöndun. En vegur
Tryggva Gunnarssonar var á
þessum árum meiri en nokkurs
manns annars á öllu Norður- og
Austurlandi, hann var átrúnað-
argoð manna um allar þær sveit-
svo mikil í fyrstu, að Tryggvi
byggja á. Sá hann þá að bergið
varð að ganga fast eftir að efn-' að norðanverðu var ótraust, lét
sæmileg til ársins 1657. En á | ir og að fylstu maklegleikum.
næsta ári breytti til um verzlun
og vildu nú kaupmenn ekki gefa
nærri eins gott verð fyrir inn-
lendar vörur og útlendarvörur
stigu í verði. En þær fréttir
komu af Suðurlandi, að vöruverð
væri þar miklu betra.
Gengust þá ýmsir atkvæða-
menn fyrir því að fundur var
fyrsta búskaparár séra Bjarnar, j haldinn í Grenivík, til þess að
er við tók í Laufási, var Tryggvi I ræða um hvað gera skyldi. Var
ráðsmaður hans. j það ráðið á þeim fundi að senda j skapur og smíðar”, segir Tryggvi
Næstu árin þar á eftir átti mann þega>"suður til Reykjavík-1 í æfisögubroti sinu 1888, þess
Manndómsárin var Tryggvi
Gunnarsson í þjónustu Gránufé-
lagsins, frá 1871 til 1893. Eng-
inn íslendingur hefir verið trúrri
þjónn verzlunarstjórpstöðu og
ráðvandari. pótt ekki sé litið á
framkvæmdimar, þá er Tryggvi
Gunnarsson að því einu leyti
meðal inna ágætustu og fágæt-
ustu þjóna.
“Mín mesta skemtun var bú-
ið kæmist á staðinn og yrði not-
að og þurfti jafnvel að hóta að
taka aftur gjöfina. pessi brú
sem teljast má fyrsta brú á ís-
landi, var á Eyvindará í Fljóts-
dalshéraði. — jpað er mikil mann
lýsing í þessu fólgin, að það er
ekki nóg, að Tryggvi gefi efnið,
heldur þarf hann og að ganga
ríkt eftir að það sé notað.
Nú rak hver brúin aðra. Kann
eg ekki að nefna þær í réttri
tímaröð, en þessar eru merkast-
ar: brúin á Skjálfandafljóti, á
Glerá og á pverá í Eyjafirði og
á Jökulsá á brú. En allra stærst
og merkust er ölfusárbrúin. Og
öll afskifti Tryggva af því verki
eru ekki síður góð lýsing á hon-
um.
Alþingi veitti 40 þús. kr. til
brúar á ölfusá og sýslumar áttu
að leggja 20 þús. En danskur
verkfræðingur, sem fenginn var
til að gera aætlun, taldi að brúin
mundi kosta um 80 þús. Nelle-
mann íslandsráðherra þorði nú
ekki að staðfesta brúarlögin, því
hann óttaðist að hvergi fengist
fé til þess að borga það, sem brú-
in kostaði umfram fjárveitmg
pá fór Tryggvi á fund Nelle-
manns og iagði fast að honum
að láta staðfesta lögin, en Nelle-
marin þvemeitaði. pá gerði
Tryggvi sér ferð austur að ölf-
usá til þess að líta á brúarstæðið
Komst hann að þeirri niðurstöðu
að brúnni mætti koma upp fyrir
55 þúsund krónur. Átti hann nú
fund með bændum og létu þeir
líklega um stuðning og hétu að
flytja 300 hestburði ókeypis að
brúarstæðinu frá Eyrarbakka og
leggja til 200 dagsverk við brúar
vinnuna. En þegar suður aftur
ýil Reykjavíkur var honum heif-
ið að fá 6000 kr. frá amtinu
Tryggvi heimili á Hálsi í Fnjóska
dal, en þá var móðir hans gift, í
annað sinn, séra porsteini Páls-
syni á Hálsi. pau árin vann
hann mjög að smíðum.
Árið 1859 gekk Tryggvi að
eiga Halldóru, dóttur séra por-
steins á Hálsi og sama ár reistu
þau bú á Hallgilsstöðum. Hall-
dóra var gáfuð og góð kona
og vel að sér um marga hluti,
en átti við mikla vanheilsu
að stn'ða. Lá hún rúmföst svo
lengi að samtals mundi það jafnt
og hálfur hjónabandstími þeirra,
og andaðist í Kaupmannahöfn 7.
marz 1875.
Árið 186§ fór Tryggvi utan
með konu sína, til þess að leita
henni heilsubótar, en Eggert
bróðir hans var fyrir búinu. pá
fékk hann 500 ríkisdalastyrk til
þess að fara til Noregs, í því
skyni að kynna sér búnaðarhætti
þar. Hafði Pétur Hafstein amt-
maður þá í ráði að stofna fyrir-
myndarbú á Möðruvöllum í
Hörgárdal og átti Tryggvi þá að
veita því forstöðu. Dvaldist
Tryggva alllengi í Noregi, var á
búnaðar háskólanum í Ási og
nam ostagerð í seljum í Guð-
brandsdal og ferðaðist um land-
ið. pegar hann kom þangað,
átti hann kost á að ferðast í
sömu erindum til Skotlands, en
kaus heldur að hverfa heim.
pegar heim kom, var öll ráða-
gerð hætt um búið á Möðruvöll-
um og settist Tryggvi því aftur
á Hallgilsstaði.
Förin til Noregs varð þó sízt
árangurslaus. Má telja víst, að
mjög hafi við hana vaknað hug-
ur Tryggva um ýmsar nauðsyn-
legar framkvæmdir í búnaði og
öðru, er hann sá hversu Norð-
menn stóðu íslendingum framar
itm marga hluti.
ur, til þess að semja við kaup-|vegna sá hann eftir að verða
menn þar,- um að senda vörur j kaupstjóri Gránufélagsins. En
norður og kaupa vörur í staðinn ihann hafði svo mikla ánægju og
pá var fyrir skömmu stofnað
Búnaðarfélag Suður-pingeyinga.
Eftir að heim kom úr utanför-
jnni, varð Tryggvi lífið og sálin
í þeim félagsskap og formaður
félagsins frá 1866 og þangað til
hann fór alfarinn úr sýslunni.
Komust þau mál mörg síðar í
framkvæmd, sem í þeim félags-
skap voru rædd, t. d. brúin á
Skjálfandafljóti, verzlunarsam-
tök og pjóðvinafélagið.
Hreppstjóri í Fnjóskadal var
Tryggvi í þrjú ár. Lenti þá í all-
miklum deilum milli þeirra ná-
granna, Tryggva og Péturs amt-
manns. Róstusamt og tíðinda-
samt var í Fnjóskadal um þær
mundir, en sú saga verður ekki
frekar rakin hér.
Á Hallgilsstöðum var lítill bæj
arlækur. Trygg\ri notaði vatnsafl
&f Eyfirðingum. Tryggvi var
við smíðar í Grenivík, hjá Jóni
Loftsyni skipstjóra er fundurinn
var haldinn og skoruðu fundar-
menn nú fast á Tryggva að fara
förina.
Reið Tryggvi suður einn og
leysti erindið af hendi með hinni
mestu forsjá og dugnaði. Hann
fékk loforð kaupmanna syðra urn
vörur, gæti hann komið ^suður
með afurðir bænda. Reið” hann
há norður aftur og náði saman
skipsfarmi og var það aðallegs
lýsi. Hann fór þegar suður aft-
ur með farminn og var hann um
6000 ríkisdala virði. Skipinu
kom hann svo norður aftur
hlöðnu af nauðsynjavöru. Gekk
þessi verzlun svo greiðlega, að
hreinn ágóði af fyrirtækinu voru
1335 ríkisdalir — og einokunar-
hringur kaupmanna var brotinn.
Næstu árin bættu kaupmenn
verzlunina nokkuð fyrir bragðið
og verzunarsamtökin féllu niður
í bili. pá sneri Tryggvi sér að
búskap, eins og áður er sagt. En
vegna framkvæmda hans var
það, að bændur lögðu svq fast að
honum að takast á hendur kaup-
stjórastöðuna við Gránufélagið.
X litlú æfisögubroti, sem ritað
er 1888, segir Tryggvi sjálfur
svo frá: “Gránufélagið byrjaði
1871 rr.eð einu skipi og einum
farmi, en frá 1877 til 1883 átti
það þrjú skip og flutti 10 til 15
skipsfarma frá fslandi og hafði
nálega 500,000 króna verzlun.
pau árin hefir félagið rekið meo
stærstu eða stærstu verzlun á fs-
landi; síðan hafa lengst af verið
hörð ár og hafís mikill Norðan-
lands, svo verzlun félagsins er
eins og annara, minni nú en áður
þó líklega með þeim stærstu
norðanlands og hefir fimm fasta
verzlunarstaði”.
“pau 18 ár, er félagið hefir
staðið, hefir það, með betra vöru
verði, einkum á útiendri vöru,
flutt í hendur landsmanna svo
skiftir hundruð þúsundum króna’
Hér er ekki ofmælt. Meðan
Tryggvi stýrði Gránufélagi varð
vegur þess mikill og ágætur.
Kaupmenn ætluðu að ríða það
niður í fyrstu, en þeir máttu
engu viðkoma, því að Tryggvi sá
við öllurn brögðum þeirra og
urðu þeir skjóft að láta sér Iynda
að meir og meir drógst af verzl-
un í hendur Gránufélagi, og sjálf
ir urðu þeir að miða verð við það
sem Tryggvi setti á vörumar.
Verzlun á öllu Norður- og Aust-
urlandi batnaði stórlega.
áhuga á smíði að hann lagði það
aldrei á hylluna.
Tryggvi Gunnarsson hefir ver
ið með afbrigðum náttúruhagur,
verkhygginn og jafnvel hugvits
maður. Smíðamar urðu honum
ekki annað en aukastarf, en það
sem hann afkastaði á því sviði
er engu að síður svo mikið að
furðu gegnir og væri sá ekki kall
aður meðalmaður sem hefði haft
þau störf að aðalstarfi.
Árið áður en hann fór að búa
voru smíðarnar aðalstarfið og
árin sem hann var bóndi, annað
aðalstarfið. Hann hafði þá löng-
um marga sveina í smíðanámi á
Hallgilsstöðum og viðaraðdrætt
imir voru þá ekkert smáræði. Á
vetrum var smíðað alt sem að
gagni mátti verða, en mestu
verkin um þessar mundir voru
kirkjusmíði og skipasmíði.
Tryggvi smíðaði kirkju í Lauf
ási og Hálsi í Fnjóskadal og gerði
sjálfur teikningamar. #
Skipasmíði stundaði hann og
all-mikið. Var það verk fræg-
ast, er hann keypti franska
fiskiskútu er strandaði í Fá-
skrúðsfirði, fleytti henni inn
fjörðinn, dró hana á land og
gerði hana sjófæra á fáum dög-
um, svo henni var siglt milli
landa, og var nálega verkfæra-
laus. pað skip mun Gránufélag
ið eiga enn, og heitir, eða hét,
Rósa.
Frægastur er Tryggvi af brú-
arsmíðunum. pað var í Noregs-
ferðinni að áhugi hans vaknaði
fyrir því að brúa ár á íslandi, en
þá var engin brú teljandi á ís-
landi. Hann braust þegar í því
að fá Skjálfandafljót brúað, en
undirtektir urðu afardaufar í
fyrstu.
pá er það lítið atvik, sem verð-
ur orsök til þess, að Tryggvi lof-
ar að gefa efni í brú á smá á í
FljótSdalshéraði, ef bændur vildu
flytja efiýð af Seyðisfirði og
koma brúnni upp.
En það var ekki nóg að gefa
efnið, þa,5 yarð að hafa það alt
tilhöggið, og það þannig, ^ að
flyt.ja mætti á hestum og það
þurfti að ákveða gerð brúarinn-
ar. pað var Tryggvi sem fann
upp brúargerðina, gerði teikning
af henni. Með þeirri gerð eru
allar þær brýr sem komust upp
á fslandi á næstu árum.
Efnið í hina lofuðu brú flutti
Tryggvi næsta ár til Seyðisf jarð
arf' á skipi Gránufélagsins og
var það á miklu stærri á, en lof-
að var í fyrstu. En deyfðin var
Við þessi tíðindi fór Tryggvi
utan og fékk Nelleman til að
staðfesta brúarlögin og bjóða út
brúarsmíðina. Var það gert í
Noregi, pýzkalandi og Danmörku
Lægsta tilboðið sem kom var 78
þús. kr. Brást Nellimann nú
reiður við og sagði að Tryggvi
hefði komið sér í slæm vandræði
pá varð það að samningum að
Tryggvi tók að sér brúarsmíðið
fyrir 60 þús. kr.
Flest loforðin brugðust. Ekk-
ert fé kom frá amtinu. Bændur
höfðu eftirtölur með að flytja ó-
keypis til brúarstæðisins og
Tryggvi hafðj* þá ekki skap til
að þiggja neitt af þeim. Ýms
mjög bagaleg óhöpp komu fyrir,
en engu að síður var brúin komin
upp á réttum tíma og Tryggvi
borgaði úr eigin vasa það sem
hún kostaði umfram fjárveiting.
pað var meginregla hans í öllum
franjkvæmdum, að vinna verkið
vel og svo sem full þurf var á,
og borga þá sjálfur. ef þjóðin
hafði ekki þroska til þess að sjá
sinn sóma og nauðáyn. pingið
sá þó sóma sinn síðar að nokkru
og veitti Tryggva nokkum styrk
eftir á.
Allar áætlanir um brúarkostn-
aðinn voru bygðar á mælingum
sem gerðar höfðu verið á hafinu
milli landa. Áður en Tryggvi
bygði stöplana rannsakaði hann
nákvæmlega bergið beggja meg-
rannsaka það frekar og kom þá
í ljós, að brúin yrði að vera þrem
álnum lengri, ætti grundvöllur-
inn að vera traustur. Allir samn-
ingar hljóðuðu um hina ákveðnu
Iengd. Féð var of lítið sem veitt
var, jafnvel til þeirrar lengdar.
— Engu að síður lét Tryggvi
lengja brúna um þrjár álnir og
tók á sig kostnaðinn. Hann
sagði við þann er þetta ritar:
“Eg vissi það, að ef ölfusárbrú-
in hryndi, þá mundi seint verða
bygð aftur slík brú á íslandi”. —
Brúin fékk eldraunina rétt á
eftir, J^ndskjálftana miklu. pað
er óvíst hvemig farið hefði, hefði
einhver annar en Tryggvi Gunn-
arsson staðið fyrir smíðinni.
Smíðamar éru miklu fleiri en
þær, sem nú eru italdar, Tryggvi
bygði mörg hús fyrir Gránufé-
lagið, auk þess gagnfræðaskól
ann á Möðruvöllum og loks
Landsbankahúsið í Reykjavík.
Árið 1893 varð Tryggvi Gunn
arsson bankastjóri Landsbank
ans, íluttist þá til Reykjavíkur
ðg dvaldi þar þaðan af til æfiloka
pá var hann kominn hátt á sext
ugs aldur, en ellimörk sáust eng-
in á honum. Er það skemst frá
að segja, að næstu áratugina er
hann langmesti framkvæmdar-
maður í höfuðstað landsins, og
Reykjavík á engum eins og hon
um, að þakka vöxt sinn og far
sælt gengi.
Tryggvi hafði aðstöðuna til
þess, þar eð hann var banka
stjóri 0g gat þannig stutt að
framkvæmdunum. Og bankinn
óx fyrst og fremist í höndum
hans. Umsetningin var 2(4 hiilj
króna, þegar Tryggvi tók við
bankanum og alt fyrirkomulag
mjög þröngt og lítilf jörfegt. peg-
ar hann lét af starfinu var um
setningin um 27 milj. kr. Var
þó annar banki þá stofnaður við
hlið Landsbankans, með miklum
forréttindum. Og verk Tryggva
var það fremur en nokkurs
manns annars, að ekki tókst að
drepa Landsbankann, einu i>en-
ingastofnun landsins. -Tryggvi
bar hag bankans mjög fyrir
brjósti, en fyrst og fremst vildi
hann að bankinn yrði að gagni,
en lægi ekki eins og ormur á
gulli.
Bankastjómin var þó í raun
réttri ekki aðalstarfið. Tryggvi
Gunnarsson var lífið og sálin í
öllum framfarar fyrirtækjum
bæjarins. Og nú sneri hann
hendi og huga einkum að sjávar-
útveginum.
Hann var að láta rita síðast
þátt um nokkur störf sín í
Reykjavík, hann var ekki full-
búinn, en átti að heita: “Kveðja”
Mig minnir að hann ætlaði að
veginn snertu lét Tryggvi vera
sér nærkomin og var forstöðu-
maður miklu fleiri félaga, en hér
hafa verið talin í þeirri grein.
pegar trollaraútgerðin hófst dró
fyrst úr áhrifum Tryggva af sjá-
varútveginum, enda var hann þá
kominn á áttræðisaldur. Var
honum það næsta mikið móti
skapi, er menn jafnframt förg-
uðu seglskipunum, en ráðum
hans var þó lítt fylgt. Er það
nú fram komið, að Tryggvi sá
lengra en aðrir menn í þessu efni
sem öðrum.
Bæjarmál Reykjavíkur lét
hann sig miklu skifta. Hann sat
í mörg ár í bæjarstjórn og var
jafnan í þeim nefndum, sem\e:n-
hverjum framkvæmdum áttu að
ráða. Sumar framkvæmdir bæj-
arins tókst hann jafnvel sjálfur
á hendur að fremja, t. d. að
byggja bæjarbryggj una og ýms-
ar vegagerðir, en hafði mikil af-
skifti af hinum stærstu fram-
kvæmdum bæjarins: vatnsleiðsl-
unni og hafnargerðinni.
Félög þau í Reykjavík, sem
Tryggvi Gunnarsson var í, og í
flestum formaður, voru ákaf-
lega mörg, getur hver sem vill
bezt sannfærast um það, sem lít-
ur í gamlar bæjarskrár Reykja-
víkur. Hann lét sér ekkert ó-
skylt sem bænum og bæjarbúum
mátti að gagni verða. Hann
asti og fastasti fylgismaður Jóns
Sigurðsonar, meðan hans naut
við. pegar frelsisöldurnar risu
sem hæst og pjóðvinafélagið og
“rauðvínsbindindið” var stofnað
voru Tryggvi og Eggert bróðir
hans fyrstu forsprakkamir og
voru þá ekki vel séðir á “hærn
stöðum”.
pess meira kvað að honum á
fyrstu löggjafarþinunum, er land
ið hafði fengið fjármál í eigin
hendur, og farið var fyrir alvöru
að snúa sér að verklegum fram-
kvæmdum. Um þau mál var
hann tillögudrýgstur allra þing-
manna. Formaður fjárlaga-
nefndar hefir hann verið oftast
og lengur en nokkur annar og
mátti sín jafnan mikils.
Af sérstökum þingstörfum
verðá'hér fá talin. pó má geta
þess, að hann stóð fyrir fagnaði
þeim er Kiístjáni konungi 9. var
veittur á pingvöllum 1874 svo
fullur sómi var að og hann var
formaður í móttökunefnd Frið-
riks konungs 8.
Jóni Sigurðssyni reyndist
Tryggvi Gunnarsson betur en
nokkur artnar íslendingur, enda
voru þeir aldavinir. Er það ekki
á allra manna vitorði, að Tryggvi
bjargaði Jóni frá gjaldþroti, og
barg þannig sóma fslands og
óskmagar þess. pað var verk
Tryggva fremur en nokkurs
veitti forstöðu alþýðulestrarfé-! annars að landið keypti bækur
laginu, ekknasjóði Reykjavíkur, og handrit Jóns Sigurðesonar.
áburðarfélaginu, aldamótargarð-
inum, skóræktarfélaginu, jám-
steypufélaginu, framfarafélag-
inu, námufélaginu.v auk þeirra
sem áður eru talin 0g margra
fleiri, sem hér verða ekki talin,
og starfaði og styrkti mörg önn-
pað var og verk Tryggva að
landið erfði muni hans og konu
hans. Loks var það honum
mjög að þakka að þau hjón hvíla
nú í íslenzkri mold.
“petta síðasta er máske eitt
af því fáa, ‘sem eg hefi heppilega
ur, t. d. fiskifélagið og sjúkra- :og vel gert og sem gleður mig
samlagið. Og alstaðar var það
meira en að vera. öll fyrirtækin
sem Tryggvi kom nærri, báru
góðan arð, en íshúsið og “slipp-
urinn” frægust, er rétt að minn-
ast á jámsteypuna sem dæmi.
Tryggvi tók við henni svo að við
gjaldþroti lá, en skilaði henni
aftur að fimm árum liðnum, um
leið og hún var seld, og fengu þá
hluthafar fulla hluti og ríflega
fram yfir.
Flestum félögum stjómaði
Tryggvi til dauðadags og lagði
það á sig milli kvalakastanna að
sitja fundi.
Tryggva Gunnarssyni var vik-
ið frá bankastjóra embættinu
árið 1909. Hér verður ekki kveð-
inn upp dómur um þá athufn.
pess gerist ekki þörf. Hafi
nokkurir verið á báðum áttum
?á, um réttmæti þeirrar athafn-
ar, þá munu þeir engir vera nú.
Trjrggvi Gunnarsson stóð og
stendur jafnréttur eftir. Skugg-
inn féll enginn á hann.
Með Tryggva Gunnarsyni er
hniginn til foldar aldurs forseti
telja þar fimm fyrirtæki, sem íslenzkra þingmanna, þeirra sem . .
hann kom á fót: pilskipaábyrgð-1 nú lifa, bæði að aldri og þingaldri ®er?. meiri tarsælh verkum
ina, líftrygging sjómanna, íshús- Hann sat fyrst á þingi 1869 og heiir hrundið 1 tramkvæmd,
ið, “slippinn” og reknetafélagið.
petta var “keðjan”, hlekkimir í
samfeldri festi og miðaði alt til
þess að tryggja og auka sjávar-
útveginn. pær framkvæmdir
kostuðu Tryggva mikla baráttu,
pað verður þó sagt Reykjvíking-
um til lofs, að margir góðir menn
urðu til þess að vinna með
Tryggva að stofnun þessara fyr
in, sem gert var ráð fyrir að irtækja. — öll mál er sjávarút^
mest af því litla, sem eg hefi af-
rekað. Vegna síns góða vilja,
fróðleiks, mannkosta og áhuga
fyrir öllu því, er íslandi var til
gagns og sóma á hann (þ.e. J.S.)
skilið virðingu og elsku allra
þeirra íslendinga, er ættjörðu
sinni unna.” — Svo farast
Tryggva orð sjálfum í æfisögu-
brotinu 1888.
Seinna var Tryggvi formaður
í samskotanefnd Jóns Sigurðs-
sonar. — pess er getið, að eftir
fyrsta þingið, sem Tryggvi sat,
eftir að ' hann var búsettur í
Reykjavík, vildi hann ekki veita
móttöku þingkaupinu. Af því að
hann kostaði engu sérstöku til,
til þess að sitja þingið, var laun-
aður við annað starf og gat gegnt
því um leið — fanst honum hann
ekki eiga að fá neitt kaup. Fyrir
þrábeiðni annara þingmanna, bú-
settra í Reykjavík, lét hann þó
loks til leiðast að veita fénu mót-
töku. — En sagan er góð mann-
lýsing.
par sem Tryggvi Gunnarsson
ar til moldar hniginn, á ísland
þeim syni sínum á bak að sjá,
var þá þingmaður Norður-ping-
eyinga. pingmaður Sunnmýl-
inga var hann frá 1875—1885.
pá gaf hann ekki kost á sér til
þingsetu í bili. Aftur varð hann
þingmaður Ámesinga frá 1894—
99 og loks þingmaður Reykvík-
inga frá 1901—1907. Upp frá
gaf hann ekki kost á sér. Hann
sat samtals 16 þing.
Tryggvi var einhver eindregn-
þjóðinni til heilla, en nokkur sem
eftir lifir.
Mjög margir hafa safnað
meiri auð fyrir sjálfa sig. Marg-
ir aðrir hafa sýnt mikinn dugn-
að, fyrir sjálfa sig—meiri dugn-
að fyrir sjálfa sig, en hann. En
enginn núlifandi íslendingur hef-
ir unnið eins mörg og farsæl verk
fyrir heildina, í framkvæmdum
(Framh. á 7. bls.).
RŒNDUR
Hveiti
Peningum sínum
Látið ekki Gophers
ræna öllum ágóðan
um, notið heldur ..
G0PHERCIDE
Það drepur Gopher á öllum tímum.
Það er uppleysandi eitur (Strychnine) án
beízks bragðs og þarf eigi annað en heitt vatn til
þess að leysa það í sundúr.
Hveiti vætt í Gophercide, helzt banvænt þar
til Gophers hafa étið það.
Fæst hjá öllum lyfsöl,um og sölubúðnm.
Bíðjið aðeins áreiðanlega um „Gophercide“
BUIÐ TIL A F
National Drug and Chemical Co. of Canada Limited, Montreai
Útibú í Vesturlandinu; Winnipeg, Calgary, Edmonton, Nelson, Vancouver og Victoria.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiillllllllillliliiiiiiiiiiiiiiiffiiiiiiiMmiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
V