Lögberg - 28.08.1919, Side 1

Lögberg - 28.08.1919, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. REYNIÐ ÞAÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. Garry 1320 32. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 28. ÁGÚST 1919 NUMER 35 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada Mrs. Dolly Matters frá Chicago og tveir menn frá Ottawa, Ont. hafa verið tekin föst. Eru þau kærð fyrir að gjöra tilraun til að nema burt Kathleen Ryan, fjögra ára gamalt stúlkubarn. — Fyrir þremur árum síðan stóð málaferli í Chicago út af því í hvers umsjá stúlka þessi skyldi alin upp. D. D. McKenzie, leiðtogi frjáls- lynda flokksins í Canada á síðasta sambandsþingi, hefir skrifað Sir Robert Borden og beðið hann að sjá um að stjórnin panti kol frá Cape Breton námufélögunum sem allra fyrst, til þess að reyna að bæta úr ástandinu á meðal náma- fólksins þar. Skipi allstóru var hrint af stokkunum í Toro|ito í vikunni sem leið. Er það stálskip, sem Dominion skipasmíðafélagið hefir verið að smíða handa Norðmönn- um. pað var kallað “Skolma”, í höfuðið á einum stjórnarnefndar- manninum í félaginu sem skipið er smíðað fyrir. Leyndarráð Breta hefir gefið út úrskurð um það, að aðstandendur sjómannanna sem fórust með skip- inu Princess Sophia, sem sökk við vesturströnd Canada fyrir nokkru, eigi málsbætur sínar að sækja til stjórnarinnar í British Columbia, því að þær heyri undir skaðabóta- lög verkamanna í fylkinu. prjú þúsund sjö hundruð sextíu og átta bænarskrár frá hermönnum sem heim eru komnir úr stríðinu um lán til þess að kaupa lönd í Vesturfylkjunum, hafa verið sam- þyktar og afgreiddar. Sagt er að stjórnirnar í Canada og í Bandaríkjunum hafi komið sér saman um að ákveða verð á óunnum húðum, sökum þess hve óhæfilega þær séu orðnar dýrar. Tveir námamenn frá Banda- ríkjunurti voru á ferð í Peace River héraðinu, langt frá mannabygðum og varð þeim sundurorða. Magn- aðist óvildin svo mjög að þeir gripu til vopna og skutu hver ann- an til dauðs. Nöfn þeirra voru F. L. Sharpe og J. J. Regoldo. Dagblað sem gefið er út á pólsku í Milwauke og heitir “Kuryer Polski” hefir verið gert útlægt úr Canada. Silfurnámur mjög auðugar eru nýfundnar í læk einum sem nefnd- ur er Carpenter Creek og sem rennur í Slican ána í British Columbia. W. D. .Long og systir hans Mrs. G. S. Bisby hafa gefið $75,000 til þess að byggja heimili handa hjúkrunarkonum, og á heimili það að standa við hið svo kallaSa Mountain Sanatorium í Hamilton, Ont. Lt. Thomas H. Billman, sonur Col. J. N. Billmans í Winnipeg, sem var nýkominn heim úr stríðinu, var að synda í á nálægt Myrtle, Man. og druknaði. Fjögur ritsímafélög í Cana/la hafa farið þess á leit við járn- brautarmálanefnd ríkisins að fá að hækka símagjöld sín um 25%. Bretland Skjöl komust nýlega í hendurn- ar á lögreglunni í Lundúnum, þar sem talað er um að uppreistar- menn skuli taka í sínar hendur vopn og skotfæri sem geymd séu á vissum stöðum, og eins er þar gjört ráð fyrir því að koma á Soviet stjórn í Lundúnum. Indverskar konur sem búsettar eru í Lundúnum fóru á fund ut- anríkisritara Breta og fóru þess á leit við hann að konum á Indlandi yrði veitt jafnrétti við karlmenn í stjórnmálum. prjátíu menn réðust á lögreglu- stöð eina í Moinoe á Irlandi. Lög- reglumennirnir tóku mannlega á móti og skutust þeir á í meir en klukkutíma. Tveir af uppreist- armönnunum særðust. Bretar hafa ákveðið að senda ekki ræðismann til Mexico fyr en Carranza stjórnin hefir bætt ráð sitt í sambandi við viðurkenningu á eignarrétti Breta í Mexico og sýnt að hún verðskuldar traust og virðingu brezku stjórnarinnar. pað stærsta herskip sem Bretar hafa nokkurntíma átt, eða látið smíða, verður væntanlega fullgjört í október n. k. pað er 900 fet á lengd og á að hafa 38 mílna hraða á klukkutímanum. Utanríkisráðherra Kína Lou Thong Tsing, sem nú er staddur á Englandi segir frá því að Kínverj- ar hafi gert samtök um að kaupa ekki japanskar vörur. petta segir hann að sé gjört til þess að mót- mæla stefnu Japan í Shantung málinu. £1,000,000 virði af ómintuðu gulli, sem sökk með skipinu Laurentic í írska hafinu 28. júní 1917 hefir náðst úr skipinu á hafs- botni. Lloyd George skýrði frá því í brezka þinginu að hann hefði hugsað sér ráð til þess að koma á sátt og samlyndi á írlandi í stjórnmálum, en að nú sem stæði væri ekki æskilegt að taka slíkt til umræðu. Samningur hefir verið fullgerð- ur á milli verksmiðjueigenda í Canada og iðnaðarmannafélagsins á Englandi um að leggja sem mesta rækt við verzlunarviðskifti á milli Bretlands og Canada. Siglingaskrá Loyd’s félagsins á Englandi sýnir að verzlunarskipa floti Bandaríkjanna hefir aukist um 382% á síðastliðnum fimm ár- um, þar sem sá floti hefir minkað um 13% hjá Bretum. Pólitískir fundir á írlandi á meðal Sinn Feiners eru bannaðir með lögum, eins og kunnugt er. Kveld eitt í síðustu viku var flug- vél á ferðinni frá Novan og til Armagh, og sást mannþyrping mikil úti á víðavangi og var lög- reglunni tilkynt það. Hún brá skjótt við og fór til fundarins, og voru það þá Sinn Feiners að ráða ráðum sínum. Herbert Asquith, fyrrum stjórn- arformaður Bretlands, hefir ný- lega lýst yfir því, að hann hafi ákveðið að sækja um kosningu til neðri málstofunnar við fyrstu hentugleika. — Eins og kunnugt er, þá féll Asquith í síðustu kosn- ingum, en nú er talið víst að ein- hver þingmaður úr liberalflokkn- um muni rýma fyrir honum sæti, svo að hann geti leitað kosningar og komist inn í þingið. Er liber- alfjokkurinn talinn að vera án hans eins og höfuðlaus her. Stjórnin á Bretlandi hefir veitt $225,000 lán til stjórnarinnar á Jamaica og á hún að nota peninga þá til þess, að sjá hermönnum þeim sem í stríðið fóru frá Brezku vestur indversku eyjunum fyrir atvinnu. Yfirhershöfðingi Breta Sir Douglas Haig hefir af Bretakon- ungi verið sæmdur jarls nafnbót, og er hann nú ekki lengur Sir Douglas Haig, heldur jarlinn frá Bemersyde. 30,000 hermenn frá Canada giftu sig á Bretlandi meðan á stríðinu stóð. Hermálastjórnin á Bretlandi hefir gefið út eftirfarandi skýrslu: 4. ágúst 1914 voru að eins 733,514 menn í brezka hernum. Síðan var hann aukinn af Bretum upp í 4,006,158, og frá öðrum pört- um ríkisins 4,648,309. par af voru frá Indlandi 1,250,000 Indverjar og 274,187 af Indíánum og Blökku- mönnum. Mannfall í her Breta. Foringjar ................ 38,264 Liðsmenn ................ 628,569 Særðir. Foringjar ................ 92,142 Liðsmenn .............. 1,948,378 Týndir. Foringjar ................ 11,958 Liðsmenn ................ 342,610 Auk hersins var mikið af Kín- verskum vinnumönnum í Saloniki á Egyptalandi, í Mesopotamiu og víðar. Bandaríkin D. Shanahan hveitikaupmaður frá Bandaríkjunum er nýkominn úr Evrópuferð, þar se mhann hef- ir verið að athuga ástandið að því er kornforða snertir. Segir hann að fólk þurfi ekki að óttast hættu af skorti á kornforða í Evrópu að þessu ári liðnu. Nights of Columbus félagið hef- ir ákveðið að fengnu leyfi frá stjórn Frakklands að reisa La Fayette minnisvarða. Hann á að standa í Metz á Frakklandi og vera búinn til úr fallbyssu, sem hertekin hefir verið frá pjóðverj- um. Stúlka að nal'ni Janie Zimmer- man mætti Dr. Zimmerman á götu í Springfield, Mass. og varð þeim sundurorða. Miss Zimmerman tók upp marghleypu og skaut fimm skotum á Doktorinn og gekk af honum dauðum. Ekki vita menn um ástæðuna fyrir þessu tiltæki stúlkunnar. George W. Shehan forseti Central sykurfélagsins var tekinn fastur í Pittsburgh, Pa. og sakað- ur um að brjóta ríkislögin nýju um sölu á matvöru í Bandaríkjunum með því að leyfa að félag hans seldi sykur^á 14 cent pundið til viðskiftavina sinna. í einu hljóði var samþykt í efri málstofu Bandarikjaþingsins að setja nefnd til þess að rannsaka misgjörðir Mexico manna gegn Bandaríkjaþegnum. Dómnéfnd eða kviðdómur í Suffolk, Mass. var í síðustu viku að athuga verð á skófatnaði í sam- bandi við dýrtíðina. Kom þá í ljós að sumir þeir sem á skóverk- stæðum ynnu innunnu sér $120.00 á viku. Ekki var það samt alment. Margir urðu að gera sig ánægða með $40—$60 um vikuna. Almenn- ir verkamenn sem á undan stríð- inu höfðu $12—$15 um vikuna hafa nú $30.00. pað kom og í ljós að skór sem verksmiðjueigendur seldu á $5.50 voru seldir til al- mennings 1200 fet í burtu frá verk- smiðjunum fyrir $12.00 parið. Maður að nafni Charles Wilson í New York hefir verið fundinn sekur um fjölkvæni. Sagt að hann eigi átta konur í Manhattan og tólf fleiri víðsvegar um Bandaríkin. Maður nokkur sem tilheyrði trú- arflokki þeim, sem nefnir sig Holy Rollers var staddur ásamt mörgum fleirum er þeim flokki til- heyra á þingi, sem þeir héldu í Alabama. Að þingstörfunum lokn- um kvaddi forsetinn sér hljóðs og spurði hvort nokkur sá væri á meðal þingmanna, sem hefði nógu sterka trú á Guði til þess að þora að láta höggorm stinga sig, uppá það að honum yrði ekki meint við bitið. pessi umgetni maður, sem hét Cleveland Harrison og var 32 ára gamall, gaf sig fram. Var þá borin inn í kassa höggormstegund sú sem nefnd er “rattlesnakes”. Mr. Harrison tók einn höggorminn í hönd sér, en óðar en Harrison snerti hann stakk höggormurinn hann fimm sinnum í handlegginn. Harrison varð undir eins veikur og lá í dvala í tvo daga og dó svo. Hjónaskilnaður fer sí vaxandi í Bandaríkjunum. Á árunum 1867 til 1876 skildu 12,212 hjón á hverju ári. Árið 1916 skildu 112,026 hjón. Á síðastliðnum tíu árum hefir fólkinu fjölgað um 20% en hjóna- skilnaður hefir aukist um 68%. Síðan 1. júlí s. 1. að bannað var að selja vín á gestgjafahúsum, hefir verð á gisting og beina hækk- að frá $1 og upp í $7 á dag. Sú fregn hefir borist út að menn sem verzla með fisk vestur við Kyrrahaf hafi hent allmiklum birgðum í sjóinn til þess að halda uppi fiskverðinu. Stjórnin hefir nú sent mann til þess að rann- saka þetta. Síðasta skýrsla um mannfall Bandaríkjamanna í stríðinu segir að í orustum hafi fallið 49,498, og að særst hafi 205,690 og 4,480 teknir til fanga. ast $500,000 skaðabóta fyrir tap og samningsrof. Manntal sem tekið var í New York í síðastliðnum mánuði segir að íbúatala þar sé 6,244,616, og hefir því íbúum borgarinnar fjölg- að um 1,477,733 aíðan 1910. Vegagjörð í stórum stíl stendur til að gjörð verði í Minnesota og eiga lög þessa efnis að leggjast fyrir þegna ríkisins í nóv. 1920; talað er um að ríkið megi taka til láns $75,000,000 til þess að full- komna akvegi í ríkinu og byggja aðra nýja. Ekki má upphæð sú, sem eytt verður til þessa starfa, fara fram úr $10,000,000 á ári. Ætlast er til að tekjur til þess að borga vexti af láninu og lánið sjálft, fáist fyrir bifreiðarleyfi, því tala bifreiða í ríkinu á næsta vori er sagt að muni verða 300,- 000, og svo er farið fram á að fá $3.000,000 á ári úr ríkissjóði til styrktar fyrirtækinu. Frá öðrum löndum. Fyrir nokkru síðan myndaði ieikfólk í New York félag með sér. Ein af fyrstu framkvæmdum fé- lagsins var að gjöra verkfall og biðja um hærra kaup. Leikhúsa eigendurnir hafa nú höfðað mál Friðarþingið hefir komist að niðurstöðu um hvað gjöra skuli við Thrace, en það er landspilda sem liggur í vestur frá Svartahaf- inu og tekur yfir alt svæðið á milli Ister eða Danube árinnar og Agea hafsins. Dálítill hluti þess legst til Grikklands. Annar part- urinn af því sem þá verður eftir skal leggjast undir Miklagarð og verða frjálst ríki ásamt borginni, en sá þriðji skal og vera frjálst ríki undir umsjón Alþjóðasam- bandsins. 24,000 verkamenn, sem vinna við vopnabúr stjórnarinnar í Japan hafa krafist kauphækkunar sem nemur frá 20—50%. Ef það ekki fáist segjast þeir tafarlaust gjöra verkfall. Eignir sem Ferdinand fyrver- andi Bulgariu konungur átti á Englandi og námu $2,000,000 hafa verið gerðar upptækar. Ekki kvað hann vera uppiskroppa fyrir það, Sagt að hann eigi $1,000,000 virði af verðbréfum í Sviss, og að eignir hans séu dreifðar víða um heim. prátt fyrir bann frá friðarþing- inu þá hafa pjóðverjar flutt allar eignir sínar í burt úr héruðum ^eim, sem lágu undir þýzku krún- una fyrir stríðið, en sem friðar- þingið ákvað að leggjast skyldu undir Pólland. Og í viðbót við það eru þeir að búa sig undir að taka kornið sem þar er framleitt í ár og flytja það til pýzkalands. Ungverjar hafa boðið fyrverandi Austurríkiskeisara Charles, að gjörast konungur þeirra. Keisar- inn svaraði að þar sem hann hefði áður verið bæði konungur og keis- ari, þá gæti hann ekki fengið af sér að taka á móti einföldu kon- ungsnafni, því það væri að vaxa niður á við. Umboðsmaður stjórnarinnar í Ástralíu sem er á Englandi er bú- inn að semja við brezku stjórnina um að flytja 12,000 brezka her- menn og aðstandendur þeirra til Vestur Ástralíu. Skjöl sem náðst hafa hjá Spartacan mönnum í Berlín á pýzkalandi segja frá fyrirkomu- lagi, sem sá flokkur manna— Bolsheviki flokkurinn hefir hugs- að sér til þess að steypa stjórninni sem nú situr að völdum í pýzka- landi og hvernig að hægt sé að koma af stað alheims stjórnar- byltingu. Um sjö þúsund menn, sem flýðu frá pýzkalandi og til þlollands til þess að komast hjá að þurfa að taka þátt í stríðinu hafa fengið til- kynningu um að í nálægri framtíð þurfi þeir að hafa sig í burtu, en hvert þeir eiga að fara er ekki getið um. pað vita þeir víst held- ur ekki sjálfir. Undanfarandi hafa þýzku bar- dagaberserkirnir sumir verið að bjóða sig fram í stað keisarans, upp á þá kosti að við þá væri gert hvað sem sambandsmönnum sýnd- ist, ef að eins að blessaður keisar- inn fengi að leika lausum hala. Hinn síðasti sem til þess hefir orðið er Von Falkenhyan. Nefnd sú sem hafði til meðferð- ar að kveða á um kaup karla og kvenna í Danmörku hefir lagt til, að karli og konu skuli verða borg- að jafnhátt kaup fyrir sömu vinnu og jafn langan vinnutíma — að hvað kaupgjald snertir þá séu þau jafn rétthá. Tyrkneskir hermenn gerðu áhlaup á smábæ í Shanto í Grikklandi og drápu og særðu fólk — hvað margt hefir enn ekki frézt. Feikna stórt franskt loftfar sem heitir Golíat flaug í vikunni sem leið frá Versölum og til Casa- blanca í Morocco. Átta farþegar voru með skipinu. Sagt er að stjórnin á ítalíu hafi boðið Bandaríkjamönnum járn- brautir ríkisins sem tryggingu fyr- ir peningaláni. E1 háskólinn í Mexico hefir boðið að borga þeim manni 25,000 pesos, sem finnur upp óbrygðult meðal við taugaveiki. Allir prentarar í Japan hafa gert verkfall og krefjast hærra kaups. Ekkert blað hefir komið út i Tokio í nokkra daga. Portúgalsmenn hafa kosið Senor Almeida fjyir forseta. sinn. Garn sem búið er til úr bréfs- efni eða trjám hafa Japanítar sent á markaðinn í Suður Afríku. Garn þetta, sem er hvítt á lit, er sterkt og mjög áferðar fallegt. pað er búið til úr berki af Mulberja tré. petta er ekkert nýtt hjá Japanít- um, því fyrir fimtíu árum síðan þótti það allra efna bezt í sumar- kvenföt í Japan. Nú á stríðstím- unum hafa pjóðverjar og Austur- ríkismenn notað þetta garn all mikið, þeir búa það til úr sumu tegund trjáa og pappír er búinn til úr. Stjórnin á íslandi segir af sér. Farþegjar sem hingað komu með Gullfoss segja þau tíðindi, að þremur dögum eftir að þeir fóru frá Islandi, þá hafi skipinu borist loft- skeyti, sem sagði frá því, að stjórnin á Islandi hafi sagt af sér. Nánari fréttir um þennan at- burð hafa ekki borist hingað vestur, og'verða því að bíða seinni tíma. i Verkfalli því sem vélstjórar og kyndarar á eimlestum hótuðu að gera á Englandi hefir verið af- stýrt, með því að stjórnin gekk inn á að hækka kaup þeirra, og var hámark á kaupi vélstjóra ákveðið 15 s. en 11 s. á kaupi kyndara. á móti verkfallsmönnum og krefj-j Washington í haust. Verkamenn útnefna þingmannsefni í Toronto. Fylkiskosningarnar í Ontario eru óðum að nálgast. Jafnvel bú- ist við að kosningar muni fara fram þann 6. október næstkomandi, enda kvað nú vera farið að hitna í pólitíkinni. í þetta sinn stendur rimman á milli þriggja flokka að minsta kosti, framsóknarmanna undir forustu Hartley Dewart, íhaldsmanna með núverandi for- sætisráðherra í broddi, og hins nýja verkamannaflokks, sem nú er í óða önn að útnefna þingmanna- efni í hinum einstöku kjördæmum, og hefir alveg nýverið útnefnt menn úr sínum hópi til að sækja um kosningu í Torontoborg' Danskur sendifaerra á Islandi. Hinn 5. þ. m. gerðust þau stór- tíðindi, að stjórn Danmerkur út- nefndi fyrsta sendiherra sinn til íslands. Maður sá, er fyrir val- inu varð heitir Johannes Böggild, og hefir áður gegnt ræðismanns- starfi í San Francisco og nú síðast í Lundúnum. * Agrip af stefnuskrá frjálslynda flokks- ins, sem samþykt var á síðasta flokksþingi. Tollmál. 1. Tollur skal afnuminn á hveiti, hveitimjöili og öllum öðrum tegundum, sem úr hveiti eru unn- ar og notaðar til manneldis eða fóðurs. 2. Allar tegundir af vörum, sem til manneldis þurfa. Akur- yrkjuverkfæri og vélar, þar með taldar dráttarvélar (tractors), vél- ar sem notaðar eru við námagröft, í hveitimylnum, sögunarmylnum, og það sem. slíkum vélum þarf til viðhalds. Óunninn og hálfunninn bygg- ingarviður, olía til ljósneytis, olía til brenslu í vélum og hráolía, net, netagarn og þeir hlutir, sem þurfa til fiskiútgerðar, cement og land- áburður. Að lækkaður sé tollur á fötum og fataefnum svo að nemi 50% og á óunnu efni sem til skógerðar er notað. 3. Að auka verzlunarhlunnindi Breta svo nemi 50%. kvæðisorð um það, hvernig að iðn- aðarfyrirkomulaginu skuli fyrir- komið, og um að sjá hag sínum borgið og rétt sinn verndaðan að því er framtíðar fyrirkomulag iðn- aðarins snertir. 2. Með gjaldþol Canada þjóð- arinnar fyrir augum og að öðru leyti að því er frekast er fært að setja á stofn tryggingu gegn vinnuleysi, veikindum, ellilasleik og annari fötlun, þar með eru tal- in eftirlaun til gamalmenna, ekknasjóður, styrkur til mæðra, í samráði og sambandi við stjórnir hinna ýmsu fylkja landsins. Og í sambandi við félags eða iðnaðar- löggjöf ætti að reyna að komast hjá öllum vafa um í hvers hönd- um framkvæmdarvaldið væri, með því að koma á samtökum og sam- vinnu á meðal stjórnanna. 3. Að í konunglegum nefndum þeim, sem settar séu og að ein- hverju leyti snerta verkamenn eða verkamannamálefni, hafi verka- ,menn sinn málsvara. 4. Ákveðin löggjöf sem vernd- ar líf og heilsu borgara landsins. 5. Að umboðsmaður verka- manna eigi sæti í stjórnarnefnd járnbrauta þeirra, sem ríkið á. 6. Að fyrirkomulag það sem notað verður í sambandi við heim- komna hermenn, sem ekki eru fær- ir að vinna fyrir sér, nái líka til þeirra manna, sem ófærir eru til vinnu sökum meiðsla er þeir hafa orðið fyrir við vinnu sína heima fyrir. 7. Að reisa ákveðnari skorður við innflutningi Kinverja til Canada. 8. Ríkislöggilding á samvinnu- félögum. 9. Að viðurkenna frumreglu þá, sem liggur til grundvallar fyr- ir hlutfallskosningum. 10. Að stjórnin ráði bráða bót á dýrtíðafástandinu og komi í veg fyrir að menn noti sér ástandið eins og það er nú, til þess að pressa fé út úr fólki. 11. Að koma framkvæmdarvald- inu aftur undir ákvæði þingsins og fólksins, með því að hætta að stjórna með stjórnarsamþyktum og að búa til réttlát kosningalög og beita þeim frjálsmannlega. Tekjuskattur. Að þing þetta vítir landstjórn- ina fyrir það, að hafa ekki fram- fylgt lögum nógu vel, til þess að su tekjugrein hefði orðið eins mikil eins og hún hefði mátt verða ef lögunum hefði verið samvizku- samlega framfylgt. Ríkissamband. Engin breyting á stjórnarskrá Canada að því er snertir samband þess við brezka ríkið'ætti að geta orðið án þess að breyting sú yrði fyrst samþykt af ríkisþinginu í Canada og síðan samþykt með at- kvæðagreiðslu fólksins. Mikil áherzla er lögð á það að forsætisráðherra Frakka Clemen- ceau verði viðstaddur á fyrsta fundi alþjóðasambandsins, sem væntanlega verður haldinn í 1. Verkamannamálið. Að sú regla verði viðtekin á svæ$i iðnaðar að verkamennirnir og almenningur, ásamt þeim, sem auðnum ráða megi allir hafa á- Heimkomnir hermenn. 1. par sem að frumregla sú sem fylgja ætti í sambandi við heimkomna hermenn er viðurkend að vera sanngirni og réttlæti í hvaða stöðu sem hermaðurinn hef- ir verið, takandi tillit til tíma- lengdarinnar sem hver og einn var í herþjónustu og hvaða stöðu hann hafði á hendi. Lýsum vér yfir því að vér álítum að peninga- borgun til hermanna og aðstand- enda þeirra sem í stríðinu féllu sé sanngjarnasti og ánægjulegasti vegurinn til þess að gjöra hlutað- eigendum mögulegt að standast samkepnina og ná stöðu þeirri i | borgarafélaginu, sem þeim ber. Peningaborgun þessi sé umfram þóknun þá sem hermennirnir fá nú, og líka umfram skaðabætur þær er þeir er særst hafa svo að þeir eru lítt færir til vinnu fá. 2. ping þetta lýsir því og yfir að það er álit þess að mentun aft- urkominna hermanna ætti að vera í höndum hæfra manna, sem væru sér úti um samvinnu hæfra manna víðsvegar í landinu, til þess að fullkomna og útbreiða kensluna bæði í verklega átt og eins frá bókfræðilegu sjónarmiði. 3. Ákvæði ætti að vera um það að þar sem að iðgjöld á lífsábyrgð- ar skírteinum hermanna, sem borgast eiga til aðstandenda þeirra hefir hækkað sökum atvika sem stafa af stríðinu, þá ætti ríkið að borga þann mismun. 4. Eftirlaun. (a) Að eftirlaun hermanna séu ákveðin nægilega há til þess að hermaðurinn sem í hlut á eða aðstandendur hans geti lifað sæmilegu lífi og notið sann- giarnra hlunninda þess, sem eru nauðsynleg skilyrði fyrir heilsu og menningu borgara landsins. (b) peim af hermönnum sem særtst hafa svo, að þeir eru ekki færir til vinnu, skal kendur sá starfi sem þeir sjálfir kjósa sér og sem þeir eru hæfir til að gjöra, og skulu þeir njóta þeirrar kenslu þar til þeir eru fullnuma í iðn þeirri sem þeir hafa kosið sér. En að þeirri kenslu lokinni skal stjórnin gjöra sitt ýtrasta til þess að útvega þeim atvinnu fyrir sanngjarna borgun við þá iðn, sem ,þeir hafa numið. (c) Frá því að þessir umræddu hermenn eru leystir úr herþjón- ustu og þar til að þeir hafa lokið námi sínu og fengið atvinnu, skal stjórnin sjá þeim og skylduliði þeirra fyrir sómasamlegum líf- eyri. Og eftir að þeir hafa lokið námi sínu og fengið atvinnu, ef borgun sú sem þeir fá fyrir hana nægir ekki til þess að þeir geti framfleytt sér og fjölskyldu sinni sómasamlega af því, þá á stjórnin að bæta upp hallann eða það, sem til vantar. (d) Til hermanna þeirra sem heim eru komnir eða sem hér eftir koma heim særðir eða fallnir, og sem verða frá vinnu um lengri eða skemri tíma, og til aðstandenda þeirra skal ríkið borga sæmileg laun til lífsframfærslu, á meðan þeir geta ekki séð sjálfum sér og sínum fyrir sæmilegum lífeyri. Eins og að framan er tekið fram. 5. Að nefnd af læknum verði skipuð til þess að ferðast um og ákveða hverjir hafi rétt til þátt- töku í eftirlaunum sökum sára eða meiðsla sem hermenn hafi orðið fyrir í stríðinu og hverjir ekki. 6. Að vistráðningaskrifstofur fullkomnari en þær sem vér höf- um nú ætti að vera settar á stofn og þær ásamt þeim sem nú eru sameinaðar undir ákveðnu fyrir- komulagi og einni ákveðinni stjórn. 7. par sem talað er um her- menn hér að framan, þá er það skilningur þingsins að átt sé við menn úr sjóhernum og þá, sem við siglingar hafa verið, eins þá, sem í flugliðinu hafa verið og hjúkr- unarkonur þær, sem í herþjónustu voru. Og alla canadiska herfnenn, hvar svo sem þeir gengu til víga. Nema því að eins að brezka stjórn- in eða stjórnir sambandsmanna hafi séð þeim sem í hlut á fyrir líf- eyrir. Landbúnaður. Til þess að létta undir með framförum og framleiðslu í land- búnaði, þá er haganlegt að auka samvinnu sem mest og efla traust manna til og áhuga þeirra fyrir landbúnaðinum. pess vegna lýsum vér yfir því, að það er meining vor að láns- traust þjóðarinnar ætti að vera notað til þess að hjálpa bændafé- lögunum til þess að fá nægilega stóran höfuðstól með sem beztum kjörum, til þess að auka og efla landbúnaðinn. Með það fyrir augum að draga úr hinu gífurlega verði á lífsnauð- synjum manna, með því að draga sem mest úr kostnaðinum við vör- urnar frá því þær fara frá fram- leiðandanum og þangað til þær koma í höndur þess, sem nýtur vörunnar, þá er' nauðsynlegt að fjölga kornhlöðum stjórnarinnar. Koma á frystihúsum, bæði við hafnstaði og eins innanlands, og Framli. á 5. bls.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.