Lögberg


Lögberg - 04.09.1919, Qupperneq 4

Lögberg - 04.09.1919, Qupperneq 4
Els. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. SEPTEMBER 1919. i Gefið út hvem Fimtudag af Th« Ccl- umbia Pren, Ltd.,)Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TAI.SIMI: GARHY 41« og 417 Jón J. Bíldfell, Editor J. J.*Vopni, Business Manager Utaniskrih til bUðtinc THE (OlUMBMt PRESS, Ltd., Bex 3172. Winnipeg, M«H- Utanáskrift ntstjórans: EDITOR 10CBERC, Bex 3172 Winnipeg, M»n. VERÐ BLAÐSINS: 32.00 um árið. sA-27 Lincoln og Parnell. Svo heita tvö leikrit, sem verið er að leika á Englandi ogsem vekja meiri eftirtekt, en leik- x'it hafa gjört þar í langa tíð. I. “Abraham Lincoln” eftir John Drinkwater er komið út fyrir nokkru síðan og er búið að leika það 200 sinnum. Er það æfisaga Lincolns, frá bjálkakofanum og þar til að hann hneig í leikhúsinu fyrir kúlu morðingjans. En hiin er sögð með svo mikilli snild, að maður er tekinn með einhverjum töfrakrafti og haldið föstum frá byrjun til enda. Við hin ytri kjör Lincolns fæst Mr. Drinkwater ekki mikið. En það eru hugsjónirnar — sál mannsins, sem gagntekinn var af guðlegri elsku til allra manna, en varð að ganga út í stríð til þess að framtíðarfrið lands- ins, sem hann elskaði, væri borgið, sem sýnd er í sínum mikilleik og fegurð, og sem eftir því sem árin líða fleiri frá starfi hans og dauða, lýsir með æ skærari birtu og hreinni ljóma. II. “Týndi leiðtoginn” eftir Iænnox Robinson. heitir hitt leikritið og er það nýtt af nálinni, stórgöfugt líka. Er þar einnig sneitt hjá þessu fánýta — sneitt hjá hégómanum, en höfundurinn lætur 'það fegursta og hreinasta sem í mannssál- inni býr snúa að manni, og gjörir það með fram- úrskarandi mikilli list. Hann lætur Charles Stewart Parnell koma fram eins og hann hefði getað verið. Það var á tilfinningu margra manna og er eflaust á tilfinningu sumra þann dag í dag að Parnell hafi ekki dáið í október 1891, eins og sagt var, heldur að hann hafi falið sig einhvers- staðar og sé á lífi enn. Og svo kemur spurning- in: Ef Parnell skyldi nú vera á lífi og koma fram eftir 28 ár, mundu Irar þá fylgja honum eins skilyrðislaust og þeir gerðu? Þrír menn eru staddir á gestgjafahúsi í Connemara, ritstjóri, læknir og óbrotinn sjó- maður. Gestgjafinn heitir Maria Linihan og þar er föðurforóðir hennar hjá henni, sem Lucius heitir, gamall maður skeggjaður og ellibeygður, sem enginn aðkomumanna veitti eftirtekt nema læknirinn, sem hafði allmikið fengist við sálar- rannsókn. Hann tók eftir því, að gamla mann- inum leið illa. Hann sat og hugsaði, og hugur hans var auðsjáanlega langt í burtu og dvaldi í liðinni tíð við raunalegar endurminningar. Doktorinn dáleiðir Lucius Linihan og seg- ir við hann að ef hann vilji segja sér hvað angri huga hans, þá segist hann skuli grafa þær óþægilegu hugsanir svo djúpt, að þær ónáði hann aídrei framar. Svo koma þessar hugsanir á stangli. Fyrst líkkista — kona — “Eg skal láta konuna í líkkistuna” segir doktorinn. “Nei, nei, það er eg sem er í líkkistunni,” mælti Luc- ius. “Þá skal eg grafa Lucius Linihan”, segir doktorinn. “Eg heiti það ekki” segir gamli maðurinn, og reis upp eins og nngur væri. “Hvað heitirðu?” spyr doktorinn. “Charles Stewart Parnell,” svaraði gamli maðnrinn í hvellum og valdmannlegum róm. Menn eru að brjóta heilann um hvort að hann muni fylla þennan eða hinn stjórnmálaflokkinn. Hvort að hann muni heimta að verða leiðtogi og krefjast skilyrðislausrar hlýðni. Eann hann steinþegir. Að síðustu boðar hann þjóð sína á fund uppi á fjalli einu, og þar flytur hann ræðu og brýnir kærleik og umburðarlyndi fyrir þeim og öllum mönnum. Hann segist ekki vilja tilheyra nein- nm stjórnmálaflokk, vegna þess, að írska þjóð- in verði ekki frelsuð af neinum sérstökum stjórnmálaflokk. Þjóðin þarf andlega lækning ekki pólitíska, og að Irland verði frjálst og að þjóðin finni sjálfa sig — sína eigin sál — þegar hún snýr sér aftnr að hinu ódauðlega lífslög- máli trúarinnar, vonarinnar og kcerleikans, sem að hún hafi fótum troðið, út af hinum blinda ákafa sínum í flokksmálum. Bæði þessi' leikrit eru tákn þess, að þjóðin brezka hefir liðið og lært á þessum nýliðnu stríðsárum — að hún hefir kafað til botns eftir sannleiksperlum. Þau eru boðberar nýrrar stefnu í leikrita skáldskap Breta. Agaleysi. Engum manni sem kominn er til vits og óra getur dulist, hversu mikil hætta að mönnum stendur af ggaleysi. Ef menn vilja brjóta til mergjar hvað það er, sem mestri sundrung og mestri hættu veld- ur nú í heiminum, þá munu menn komast að raun um að það er agaleysi. Þegar maður heyrir fólkið nmhverfis sig tala með léttúðarfullum gáska um góðar, gaml- ar og margreyndar lífsreglur, um landslög og þjóðfélagsskipun sem lítils virði og léttvægi, borið saman við þeirra eigin vilja og hugmynd- ir, þá er agaleysið búið að ná hámarki sínu og þá er líka velfarnan þjóðfélagsins hætta búin Ef til vill geta nokkrir þeirra, sem líta á strangan aga eins og einhvern fornminjagrip sem nútíðarmenn séu vaxnir upp úr og hafi þar af leiðandi hafnað, komist áfram í lífinu án þess að reka sig á eða bíða skipbrot. En það er ekki af virðingu fyrir lögum og reglum, heldur fyrir þrælsótta. Og hverjum hugsandi manni ætti að vera ljóst, hvar slíkur hugsunarháttur lendir og hvað af honum hlýtur að leiða. Þetta vaxandi agaleysi nútíðarinnar er að verða eitt af alvöruspursmálum uppeldisfræð- inganna. Þeir sjá hættuna, sem agaleysið hefir í för með sér, bæði fyrir einstaklinga og heildir. En þeir sjá líka erfiðleikana á því að sporna við benni, því alda agaleysisins í lieiminum veltur áfram með svo miklu afli að menn hafa ástæðu til þess að óttast að bún muni alt svelgja. En þetta er menning nútímans! Að láta unglingana ráða — þá sem innan skamms eiga að taka við af oss, er viðkvæðið nú. Og svo óður en drengjunum er sprottin grön, eða stúlk- urnar hafa klæðst úr stuttpilsunum, þá er þetta fólk orðið svo óstýrilátt og einþykt að foreldrar og vandamenn ráða ekkert við það. Þeir menn, sem tilheyra hinum eldri tíma, muna vel eftir þegar að vöndurinn var látinn kenna unglingunum að hlýða. Því þá eins og nu höfðu börn freistingu til þess að óhlýðnast. Sú aðferð þótti grimm og ómannúðleg, en hún kom unglingnum sem í hlut átti vanalegast til þess að hlýða, og hlýðnin við skylduverkin og það, sem maður veit að er rétt og satt, er undirstöðu atriðið fyrir velferð og manndómi mannanna. Og ef maðurinn lærir hlýðni þegar á nnga aldri, þá er ekki líklegt að hann ’breyti út af þeim vana þegar hann eldist, því “ það sem ungur nemur gamall temur”. Og hlýðni við yíirboðara sína, hvort heldur um er að ræða ungan eða gamlan, er ein af hinum fögru dygð- um lífsins. Ef til vill munu sumir vandlætarar vor á meðal fórna upp höndunum og segja að nú sé farið að prédika sautjándu aldar kenningar í Lögbergi. Oss gjörir það ekkert til, og látum oss liggja í léttu rúmi hvað þessi eða hinn segir um oss eða kenningar þær, sem blaðið flytur. Oss er nóg ef vér getum komið einhverjum for- eldrum eða þeim, sem eiga fyrir unglingum að sjá, til þess að hugsa betur og með meiri alvöru um þetta þýðingarmikla spursmál, heldur en þau hingað til hafa gert. Komið þeim til þess að hugsa um það og aldrei að gleyma, að líf, lífs- gleði og velferð barnanna þeirra er nndir því komin að þau gæti vel þeirrar skyldu að kenna börnum sínum hlýðni — að aga þau frá því að þau fyrst hafa vit á. Um aðferðina sem notuð er til þess að láta börn og unglinga hlýða, gjörir minna til, svo framarlega að þau líka fái að njóta góðvildar foreldra sinna og yfirboðara. Aðal atriðið er að þeim sé aldrei skipað — aldrei beðin um að gjöra neitt sem þau ekki hlýði — og þó að þurfi að brúka vöndinn til þess að ná því takmarki, 'þá er það miklu hættuminna, heldur en að bam- ið eða unglingurinn komist upp með að huma fram af sér skipanir yfirboðara sinna. Því af syndum þeim, sem foreldrar og þeir sem fyrir uppeldi og uppfræðslu ungdómsins standa gjöra sig seka í, er sú hvað hættulegust, að láta unglinginn verða varan við kæruleysi nm það, hvort að boðum þeirra er hlýtt eða ekki. Því unglingurinn er næmur í þeim efnum —fljótur að finna veikleik yfirboðara sinna og hagnýta sér hann. Svo færir unglingurinn sig altaf upp á skaftið, þar til að foreldrarnir ráða ekkert við hann eða þau lengur. Þau fara sínu fram án tillits til foreldranna, bæði utan heimil- is og innan, og þegar svo er komið, þá eru þau á hraðri ferð til ógæfu og máske glötunar. tslendingar! Hugsið þið um, að agaleysið er að verða einn af höfuðlöstum vorum. Friðarsamningarnir í öldungaráðinu a Hinn 12. f. m. hélt formaður nefndarinnar, sem fjallar um utanríkismálin í öldungadeild- inni og aðal málsvari þeirra, sem á móti þjóða- samibandinu mæla, Senator Lodge, maður sem er leiðtogi Republicana í öldungadeildinni, ræðu, þar sem hann tók fram hættuna, sem honum virtist Bandaríkjunum stafa frá því að samþykkja og undirskrifa lög þjóða- sambandsins. Talið er það víst, að Senator Lodge muni greiða atkvæði með friðarsamningunum að þjóðasambandinn meðtöldu, svo framarlega sem að breytingar þær, sem hann fer fram á, nái fram að ganga. En það leynir sér ekki að hann iætur sér nægja þessar breytingar aðeins til samkomnlags. Vildi miklu heldur fella þann part samningsins, sem fjallar um þjóðasam- bandið, ef það yrði ekki til þess að fella samn- inginn allan. Því hann segir: “Mér dylst ekki að margt af ágætu og þjóðhollu fólki finst sem það sjái fylling fegurðarhugsjóna í orðunum “League for Peace”—friðarsamband. Vér er- um öll hluttakandi í þeim hugsjónum og berum virðingu fyrir þeim. En sumir okkar sjá enga sigurvon fyrir þær — heldur beinan ósigur í þessum óglöggu reglum, sem lagðar eru til gnmdvallar fyrir þjóðasambandinu.” Aðal mótbára Mr. Lodge á móti þjóðasam- bandinu byggist á því, að það bindi saman Evrópu og Bandaríkin, og frá því sjónarmiði sé það sama eðlis og hið svo kallaða Helga sam- band (Holy Allience) frá fyrri parti síðustu aldar, sem var bæði “hættulegt og fjandsamlegt frelsi mannanna”. Mr. Lodge las upp VI. greinina úr Vínar- samningunum frá 1815. Samningunum sem hið Helga sambandið byggist á. Hún hljóðar svo: “Til þess að greiða fyrir og tryggja fram- kvæmd á þessum samningum, og til þess að gjöra enn tryggara samband það, sem nú hnýtir saman þá fjóra þjóðhöfðingja sem hér eiga hlut að máli, til velferðar öllum heimi, þá hafa hinir háttstandandi hlutaðeigendur komið sér saman um að koma saman á vissum tímabilum, annað- hvort nndir stjórn þjóðhöfðingjanna sjálfra eða undir stjórn ráðgjafa þeirra, til 'þess að tala um eða bera sig saman um sameiginlegan hag. Og til þess að athuga það sem sérstaklega þarf atliugunar við, í sambandi við ró og velmegun þjóðanna og gott samkomulag með Evrópu þ jóðunum. ’ ’ ' “Ekkert getur verið viturlegra eða lofsam- legra heldur en áform það, sem vakir fyrir höf- undum þessarar greinar,” sagði Mr. Lodge. Og bætti við: “Það er ómótmælanlegt að samn- i.ngurinn, sem þessir háu herrar gjörðu með sér átti eftir að verða það, sem í sögunni þekkist með nafninu Helga sambandið, og vér mættum bæta við, sem af mönnum verður bölvað um ókomna tíð. Líkindin eru þau, að þjóðasam- bandið, eins og því er nú haldið fram, geti orðið mönnum slík ógæfa.” En Mr. Lodge heldur að afstýra megi þess- ari hættu, með því að gjöra 5 breytingar við lög þjóðasambandsins, og þær hljóða svo: 1. Engin samþykt eða ráðstöfun sem þjóðasambandið gjörir getur tekið í burt frá þjóðþingi Bandaríkjanna réttinn til þess að ákveða hvar eða hvenær að Bandaríkja her- rnenn gangi til víga. Þessi breyting á við X. grein grundvallar- laga þjóðasambandsins, þar sem tekið er fram að allar þjóðir sem í sambandinu eru skuli í einingu verja hverja þá þjóð, sem í sambandinu er, á móti hverju ríki eða hvaða þjóð sem sækir hana með vopnum. 2. í XI. grein grundvallarlaga þjóðasam- bandsins er sagt: “ Stríð, eða hótanir um stríð, hvort heldur að það snertir þjóðir þær, sem til- heyra þjóðasambandinu eða ekki, getur þjóða- sambandið ekki leitt hjá sér, heldur varðar slíkt þjóðasambandið í heild sinni.” Við þessa grein vill Mr. Lodge bæta: “Bandaríkin í Ameríku geta ekki tekið neinn þátt í stríði samkvæmt framanskrifaðri grein, án þess að þing þjóðarinnar samþykki fyrst þá þátttöku. ’ ’ 3. Bandaríkin í Ameríkn áskilja sér rétt til þess að leggja sinn skilning í Monroe kenn- inguna og færa sér hana í nyt. 4. Tekíð skal fram að Bandaríkin líti svo á, að þjóðasambandið hafi ekkert ákvæðisorð um innflutning fólks til Bandríkjanna, né held- ur um nein tollmál sem snerta Bandaríkja þjóð- ina. 5. í fyrstu grein grundvallarlaga þjóða- sambandsins stendur: “Þjóðir þær, sem ganga í sambandið geta gengið úr því aftur, með því að gefa tveggja ára fyrirvara og með því móti að þjóð sú, sem úr sambandinu vill ganga, hafi fullnægt öllum skyldukvöðum sambandsins, bæði út á við og inn á við.” -Mr. Lodge vill að þar sé bætt við að Banda- ríkin séu eini og aðaldómarinn, ef þau skyldu vilja ganga úr sambandinu, hvort þau hafa upp- fylt skyldur sínar að iþví er þetta atriði snertir eða ekki. Mr. Lodge endar þessa vönduðu og vel und- irbúnu raíðu sína á þennan hátt: ‘ ‘ Þér getið kallað mig sérgóðan, ef þér vilj- ið, íhaldsmann eða þversum — þér getið valið mér hin nöprustu lýsingarorð, ef ykkur sýnast þau við eiga. Eg er faxddur Bandaríkjamaður og Bandaríkja þegn hefi eg verið alla mína æfi, og get aldrei annað orðið. Og því verð eg að hugsa fyrst og fremst um Bandaríkin. Og þeg- ar eg er að hugsa um hvað bezt sé fyrir Banda- ríkin í þessu efni, þá er eg að hugsa um hvað bezt sé fyrir heiminn allan. Því ef Bandaríkin líða skipbrot, þá líða líka allar fegurstu hug- sjónir mannanna skipbrot með þeim. Þegnholl- ustu mína hefi eg gefið þessu landi og engu öðru. Henni get eg ekki deilt. Einum fána hefi eg lotið og elskað. Þeirri virðingu og ást get eg ekki deilt á meðal 'kynblendinga fána þess, sem þjóðasambandinu hefir verið valinn. — Al- þjóðasamband, sem bezt yrði lýst með Bolshe- vismanum og mönnum, sem láta sér standa á sama um öll þjóðerni og öll lönd, aðeins að þeir geti rakað saman fé í þeim, er frá mínn sjónar- miði andstyggilegt. Bandaríkjamaður verð eg að vera, og á því svæði, eins og allir aðrir Bandaríkjaborgarar, gétum vér orðið heiminum til mestrar upphyggingar.” Georg Brandes og friðarþingið. 1 blaðið Tilskueren ritar Georg Brandes um friðarþingið og segir þar, að friður- inn sem saminn hafi verið sé óáhyggilegur. Bendir hann á ástandið í heiminum, sem bendi allstaðar á að varanlegs friðar sé ekki að vænta. Ilann bendir á stjórn Breta í Egyptalandi og á Indlandi og styðst þar við skýrslur Breta sjálfra. Hann segir að á þinginu í Vínarborg 1804 hafi Frakkland verið útilokað, og nú hafi Þjóðverjar og Rússar verið útilokaðir frá þing- inu í Versölum. Sem vörn gegn útbreiðslu Bolshevismans segir hann að eigi að koma skaðabætur í löndum og lausum aurum, þrátt fyrir það, þótt heiminum standi engin hætta af vopnaburði Þjóðverja, heldur af uppreistaranda þeim, sem stríðið hafi vakið um allan heim. Bezta ráðið segir hann, til þess að stemma stigu fyrir þessari alheims nppreist sé, að taka burtu allar hömlur, sem lagðar hafa verið á við- skifti !þjóðanna. Mr. Brandes álítur að Alsace Lothringen eigi að sameinast Frakklandi, sökum þess hve • Þjóðverjar hafi misboðið innbúum fylkjanna og að þeir hafi aldrei skilið þá. Að því er skaðabætur til Frakka snertir heldur hann því fram, að héruðin Alsace og Lothringen séu svo auðug, að þau muni borga hb fullu skaða þann, sem Frakkar hafi beðið við stríðið. HERMENN! Ávísanir og víxlar, er gildi borgun og uppbót til hermanna í “Sterling Exchange”, verða teknir gildir í þessum banka fyrir $4.86 2-3. fyrir sterlingpundið. Vér sendum peninga fyrir hermenn hvert sem er í Canada, þar sem vér höfum útibú, endurgjalds- laust. Notro Daiue llranch—W. H. HAMLLTON, Manager. Selkirk Branch—F. J. MANNING, Manager. jpiiinniHiiiiHiiiiBiiiiHiiiiHiiiiBiiiBiniHiiiiHiiiiBiinBiiiiHiiBiiiiHMHiiiiaiiiiBiiianiiHminiimiiiaiiiiBii I The Royal Bank of Canada 1 HöfuCstðll löggriítur $25.000,000 HöfuCstöll greiddur $16,100,000 ■ VarasjötSur.. $16,400,000 Total Assets over.. $460,000,000 |j Forseti..................................Slr HERBERT S. HOLT Vara-forsetl .... E. L. PEASE Aðal-ráðsrnaður . . O. E NEILIi ■ AJlskonar bankastörf afgrreidd. Vér byrjum reiknlnga við elnstakllnga jg aða félög og sanngjarnlr skilmélar veittir. Ávlsanlr seldar til hvaða j ataðar sem er ft fslandl. Sérstakur gaumur geflnn sparirjöðsinnlögum, ■ aem byrja mft með 1 doilar. Rentur lagðar við ft hverjum 6 m&nuðum. ■ WINNTPEG (West End) BRANCHES m Cor. Wllllam & Sherbrook T. E. Thorsteinsoo, Manager Cor. Sargent & Beverley F. Thordarson, Manager H Cor. Portage & Sherbrook R. L. Paterson, Manager Cor. Main & Logan M. A. 0’Hara Manager. ffBlli:miimilllBIIIIB:<l'B!l!IB!|i:Bi|{'Hil:'BiB-BlllinillBIIIIBIimilliH:'"H!í:!B::miliail"B::.BIli:miimillll m ■ i fHllilllllIHllinilIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItlllllllllIlllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllHllllllllUlllllillllim Members Winnipog Grain Exchange. Mcmbers Winnipeg Grain and Produce Clearing- Association. NORTH-WEST COMMISSION CO., LTD. Islenzkír Hveitikaupmenn Talsími Main 2874 - 216 Grain Exchange WINNIPEG, MANITOBA íslenzkir bændur! Canadastjórnin hefir ákvarðað að $2.15 sé það, sem við megum borga sem fyrirfram borgun út á hveiti í ár fyrir No. 1 Northern. Fyrir aðrar tegundir verður borgað sem ákvarðað er. Við viljum einnig minna menn á að við fáum frá stjórn- inni hluthafamiða (Participation ticket), sem við sjáum um að senda hverjum einum manni, sem sendir okkur hveiti sitt. íslendingar! Við viljum mælast til þess að þið sendið okkur sem mest af korni ykkar í ár. Við erum þeir einu landar sem rekum þá atvinnu að selja korn fyrir bændur gegn um- boðssölulaunum. Við höfum ábyrgðar og stjórnarleyfi og gjörum okkur far um að gjöra viðskiftamenn okkar ánægða. Ef vigtarútkoma á vagnhlössum, sem okkur eru send, ekki stendur heima við það, sem í þau hefir verið látið, gjörum við það sérstaklega að okkar skyldu að sjá um að slíkt gé lagfært. Einnig gæti það verið peningar í yðar vasa að við skoðum sjálfir kornið í hverju vagnhlassi sem okkur er sent, svo að rangindi við tegundaflokkun (grading) getur ekki átt sér stað. petta er nokkuð, sem mörg stærri félög ekki gjöra, því þau hafa mörgu að sinna og eiga flest sín eigin korngeymsluhús, svo það er þeirra hagnaður ef flokkunin er gjörð bóndanum í óhag. petta er ætíð gott að vita, þegar maður sendir korn, að einhver líti eftir ef óviljandi skyldi vera gjörð röng flokkun, og að einhver sjái um að slíkt sé strax lagfært. í sambandi við þær korntegundir, sem að samkepni er hægt að koma að, skulum vér gjöra eins vel, ef ekki hetur, en aðrir. peir sem viidu geyma hafra, bygg eða flax um lengri eða skemri tíma, ættu að senda til okkar það sem þeir hafa. Við borgum ríflega fyrirframborgun og látum hvern vita um, þegar við álitum verð sanngjarnt. Við þökkum svo þeim, sem að undanförnu hafa skift við okkur, og vonum að þeir og allir íslendingar skrifi okkur, þeg- ar þá vantar upplýsingar um kornverzlun. öllum slíkum bréf- um er svarað um bæl. Skrifið á ensku eða íslenzku. Virðingarfylst. Hannes J. Lindal, Ráðsmaður. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll lllllll!llllllllll!llll!llllllllllllllllllllllll!lllllllllllllll!llllllllllllllllll!IIIIIIIIIIUIIIilllllllllllllllll|]iÍ Andatrúin, guðspekin og þjóðkirkjan. Eftir séra Sigurð Stefánsson Niðuri. Eins og áður er sagt eru anda- trúin og guðspekin náskyldar. En þó sannast á þeim, að frændur eru frændum verstir; guðspekin hefir lengstum haft horn í síðu andatrú- arinnar og finnur anda opinberun- um hennar margt til foráttu. Hún dregur heldur engar dulur á að hún eigi enga samleið með kristin- dómi kirkjunnar og er að því leyti töluvert hreinskilnari en anda- trúin. Uppruni hennar er austan í Himalayafjöllum í Tibet. par hefir um marga tugi þúsunda ára setið leynileg sveit hinna mestu spekinga heimsins sem nefnist “Hin mikla hvíta stúka”. pessir vísu feður geyma leynilega fjár- sjóði hinnar æðstu speki og í ljósi hennar liggur allur heimurinn op- inn fyrir sjónum þeirra. peir eru hinir æðstu lærifeður guðspekinn- ar. Frá þeirri speki eru runnin öll aðaltrúarbrögð heimsins. En mennirnir hafa ekki skilið insta kjarnan í þessari miklu speki, og engin trúarbrögð hafa því að gejmia hinn algilda sannleika, en sá sannleikur, sem í þeim finst, er útstreymi frá hinu mikla “hvíta ljósi” guðspekinnar. Mannkynið hefir aðeins komið auga á dauf geislabrot frá þessu ljósi í myrkri vanþekkingarinnar um hin æðstu sannindi og hinar dýpstu gátur tímans og eilífðarinnar, og þess vegna hefir það til skamms tíma vaðið í villu og reyk um tilorðning heimsins og mannsins og framþró- un og fullkomnun mannsandans. Sú leynda speki hefir aðeins verið eign sárfárra lærisveina Himalaya vitringanna og kristna kirkjan hefir frá öndverðu verið hennar versti óvinur. Guðspekin þykist vilja safna öllum sannleikskorn- um í hinum margvíslegu trúar- brögðum heimsins í eina allsherj- ar trúarbragðasamsteypu, undir ægishjálm spekinganna þarna austur frá. 1 þeirri alheimstrú á maðurinn að fá fullnægju sinna dýpstu þarfa. Mannsandinn nær takmarki fullkomnunarinnar með fjölmörgum tilverustigbreytingum endurholdgunum og sálnaflakki; með þeim sífeldu hamskiftum hinnar jarðnesku tilveru bætir hann smá^t og smátt fyrir brot sín og yfirsjóíiir í jarðlífinu, unz hann hverfur að lokum til hinna æðri stöðva tilverunnar og missir að mestu einstaklingseðli sitt. Hér er mjög fljótt yfir sögu farið og mörgum undarlegum hlutum slept í þessari speki. Guðspekin er sambland úr heiðnum, gyðinglegum og kristnum trúarbragða hugmyndum. í þess- um trúarbragðagraut eru mörg siðfræðileg gulikorn, sem flest eru tínd úr kristindóminum. En að öðru leyti ægir þar saman hinum fáránlegasta heilaspuna-hindur- vitnuri, rangfærslum og afbökun- um á sannsögulum heimildum fyr- ir kristindóminum og allskonar til- búningi, sem á sér engan stað nema í höfði guðspekinganna sjálfra. Guðspekin kveður frásagnir guð- spjallanna um Krist því nær tóm- an tilbúning. Kristur lifði 100 árum fyr en guðspjöllin greina. Hann var uppalinn meðal Essea í eyðimörk Júdeu. 19 ára að aldri gekk hann í klaustur þeirra á f jall-

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.