Lögberg - 11.09.1919, Síða 1

Lögberg - 11.09.1919, Síða 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. REYNIÐ ÞAÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. - Garry 1320 32. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN II. SEPTEMBER 1919 NUMER 37 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada T. C. Norris, forsætisráðherra Manitobafylkis, átti 58. aldurs- afmæli sitt á föstudaginn var. Myndastytta úr kopar af Victoriu drotningu, sem stjórnin í British Columbia var búin að láta gera í Evrópu fyrir stríðið, er á Ieiðinni frá Englandi og til borgarinnar á Kyrrahafsströnd- inni, sem ber nafn drotningarinn- ar. Hinar vanalegu inntektir Que- bec fylkis á fjárhagsárinu sem endaði 30. júní s. 1. voru $12,- 666,352.03, en útgjöldin voru $12,371,131.01; tekjuafgangur því $259,221.02. Nefnd sú,. sem dómsorð á í ágreiningsmálum í kirkju Meþó- dista í Canada hefir setið á fundi í borginni Toronto undanfarandi. Ýms mál, s4m þá kirkjudeild varða, voru tekin til meðferðar. Eitt af þeim málum, sem fyrir nefndina átti að leggjast var klögun Ivans prests frá Winnipeg yfir því, að vera sviftur rétti til kennimannsembættis innan kirkj- unnar. Nefndarmenn slitu fundi án þess að athuga þá klögun. Bændaflokkurinn í Stormont Glengarry kjördæminu í Ontario hefir neitað að verða við þeirri bón frjálslynda flokksins að bjóða leiðtoganum nýja Hon. W. L. Mac- kenzie King að sækja um þing- mensku í því kjördæmi og út- nefndu mann úr sínum flokki. Sporbrauta félögin í Port Arth- ur og Fort William hafa átt í óskaplegu stríði með fjármál sín, sagst og víst verið að sökkva dýpra og dýpra í skuldasúpuna. Nú hefir Sir Arthur Beck boðist til þess að taka við þessum braut- um og koma þeim í það horf að þær borgi sig. Nefnd sú, sem eftirlit hafði með hveitiverzlun Canada á síð- ustu tveim árum og sem Dr. Robert Magill var forseti í, hefir birt hina árlegu skýrslu sína og stendur þar að nefndin hafi grætt $516,632 á þessum tveimur árum. Beinar skipaferðir milli Noregs og Canada eiga að byrja í haust. Skipið Rafinfjörð, sem er 8000 tonn að stærð og er eign canadian American félagsins á að sigla frá Kristjaníu 10. október og er væntanlegt til Montreal þann 20. s. m. peim ferðum á svo að halda uppi til Montreal á sumrin, en til St. John á vetrum. Foundation skipagjörðafélagið í Victoria.B. C. hefir lokið við skip sem það var að smíða fyrir stjórn- ina á Frakklandi. Skip þetta heitir Wilfred Laurier, og með því telur félagið að það sé búið að ljúka við 75% af skipum þeim, sem það var búið að taka að sér að smíða fyrir Frakka. 1 Ontario fylki eru 140,000 bif- reiðar. Tekjur fylkisins fyrir bif- leiðarleyfi á þessu ári nema $1,500,000. Rev. Archimandrite Adam Phil- lipovski frá Winnipeg hefir verið skipaður biskup yfir rússnesku orþódox grísk-kaþólsku kirkjunni í Canada. Hinn nýi biskup er al- bróðir konu Dr. Jóns Stefánsson- ar í Winnipeg. Nefnd sú, sem stendur fyrir að lána peninga til landakaupa handa heimkomnum hermönnum skýrir frá því, að um mánaðamótin júlí og ágúst þá hafi hún verirð búin að lána rúmar $23,000,000. Frá þingi heildsölumanna í Canada, sem staðið hefir yfir und- anfarandi í höfuðstað landsins kemur sú gleðifregn að fólk megi búast við að borga 20 cent fyrir pundið af sykrinum í vetur. Hópur af ungu fólki var við laugar í á einni í austurfylkjún- um. Var áin grunn þar sem fólk- ið var að lauga sig, en rétt fyrir neðan snardýpkaði hún. í ógáti hafði ung stúlka farið of langt niður eftir grynningunum og datt ofan í hylinn. Hún kunni ekki til sunds og það virtist að félags- bræður hennar og systur hafi ver- ið eins, því hún hefði druknað í ánni, ef að gamlan mann grá- hærðan, sem var kominn á sjötugs aldur, hefði ekki borið að. Hann sá undir eins í hvert óefni að kom- ið var, steypti sér í hylinn og velti sér í straumnum eins og lax, náði í stúlkúna og færði hana til lands. — Sund er ein af þeim list- um, sem kenna ætti hverjum ein- asta ungling. prumuveður mikið gekk yfir part af Ontario fylkinu s. 1. viku. A einum stað nálægt Fairfield býr bóndi, sem W. M. Asterford heitir. Hann átti 15 fallegar kýr þegar óveðrið skall á. Rak hann þær inn á milli trjáa, sem á landi hans voru til skjóls. pær stóðu þétt saman, eins og títt er með gripi undir svoleiðis kringumstæðr um. Elding hljóp í tréð, sem kýrnar stóðu við og drap þær allar. Hið stóra og veglega skip Can- ada Kyrrahafsfélagsins “Empress of Asia”, er nýkomið til Victoria frá Yakohoma með $10,000,000.00 virði af silki. D. D. Mackenzie verður leiðtogi frjálslynda lokksins á þinginu í Ottawa, sem nú er nýbyrjað, sök- um þess að nýkosna leiðtoganum vinst að líkindúm ekki tími til þess að ná kosningu, áður en þinginu verður slitið. Sagt er að stjórnin í Ottawa hafi í hyggju að sameina Mounted Police (ríðandi varðliðið), sem nafnfrægt er orðið ekki einasta í þessari heimsálfu heldur og víða um lönd, og löggæzlulið stjórnar- innar. Vonandi verður þó nafnið “Mounted Police” látið halda sér. Nýtt Victory lán ætlar stjórnin í Ottawa að bjóða út seinni hluta næsta mánaðar. f sambandi við dýrtíðina er vert að benda á að í fyrsta sinn í sög- unni er nú svo komið að kolafélög í Sydney, N. S. geta framleitt kol og sent þau alla leið til Noregs og selt þau þar ódýrara heldur en Bretar geta selt sín kol. — parna sjást ávextir verkfallanna skýrt. priðja þessa mánaðar var Hon. A. L. Sifton, sem verið hefir toll- málaráðherra í Ottawa síðan 1917 gjörður að verkamálaráðherra Canada, í stað Hon. L. B. Carvell, sem rétt nýlega var veitt for- mannsembættið í járnbrautaniála- nefnd ríkisins. Inntektir Canada Kyrrahafs- brautarfélagsins yfir fjárhags- tímabil það, sem endaði 31. ágúst, hafa verið $4,759.000. Síðastliðið ár voru tekjurnar yfir það sama tímabil $4,130,000. pað er ánægju- efni að sjá að stofnun sú er þó ekki að tapa. Bretland mjög til stjórnmálalegrar ó- ánægju. Fyrir nokkru gaus sá kvittur upp að skipshöfnin, sem var á neðansjávarbátnum Bremen, sem menn hafa verið að halda fram að Bretar hafi tekið í stríðinu og haldið skipshöfninni í fangelsi þar til nú fyrir skömmu að hún hafi verið send heim til sín. Nú hefir hermálastjórnin á Bretlandi lýst yfir því, að fyrir þessum orðróm sé enginn flugufótur. Verzlunarþjónar, sem unnu við félagsverzlanir, það er að segja verzlanir sem fólkið átti sjálft á norður Englandi, gerðu verkfall til þess að bæta launakjör sín. 6000 manns tóku þátt í verkfall- inu. En það stóð stutt, því sam- komulag komst á. Stjórnin í Belgíu hefir skipað barón Monoheur sendiherra sinn á Bretlandi. Heyuppskera hefir brugðist mjög tilfinnanlega á Englandi, og er sagt að fyrirspurnum rigni inn til verzlunarráðanauta Canada í Englandi um það, hvort að Canada muni ekki geta hjálpað í þeim efn- um. Reglulegar loftskipaferðir á milli Lundúna og París eru nú komnar á, og flytja skipin bæði farþega og vörur. Sagt er að stjórnin á Bretlandi hafi látið hætta við smíðar á öllum herskipum nema þeim, sem lengst voru komin áleiðis og hrinda átti af stokkunum innan fárra daga. Indversk kona, búin þjóðbúningi sínum, fékk leyfi til þess að flytja mál sitt í lávarðadeildinni á Bret- landi. Erindið var áskorun um að veita konum á Indlandi pólitískt jafnrétti við karlmenn. Fjöldi fólks sem fór til Eng- lands í sumar frá Canada, getur ekki með nokkru móti fengið skips- rúm til þess að komast heim aftur og er því margt illa statt. Sendiherra Breta til Bandaríkj- anna, Vincount Grey, leggur að öllu forfallalausu á stað frá Bret- Jandi 16. þ. m. í erfðaskrá sem greifainna Har- rington, sem dó á Englandi ný- lega, skildi eftir sig, var tekið fram hvernig skifta skyldi eignum hennar, sem námu $190,000, og svo var tekið fram að engin blóm skyldu leggjast á kistu hennar, né heldur skyldi nokkur kvenmaður vera viðstödd jarðarförina. ir því að þeir verði samþyktir ó- breyttir, að þjóðarviljinn verði svo einbeittur í þeim efnum að þeir sem í öldungaráðinu standa á móti samningunum, dirfist ekki að gjöra neinar verulegar breytingar við samningana. Wilson Bandaríkjaforseti hefir beðið þingið um að veita $825,000 í viðbót við það sem áður var veitt til þess að standast kostnaðinn af veru Bandaríkjafulltrúanna á friðarþinginu. Sagði hann að upp- hæð sú sem hér væri um að ræða væri til að borga kostnað nefnd- arinnar frá 1. júlí og til áramóta. Forsetinn sagði að fram að 1. júlí hefði kostnaðurinn verið $1,250,- 000, og við enda ársins bjóst hann við að kostnaðurinn mundi verða kominn upp í $1,506,706. — Á með- al stærri upphæða þeirra, sem nefndin varð að borga, eru; Fyrir Prinsinum fagnað. Bandaríkin Brezka stjórnin hefir sent nokkur skip til norðurhluta Rúss- lands, með þeirri skipun að flytja alt fólk í burtu úr hinum norðlægu héruðum landsins, sem að óskar að fara þaðan áður en að Bretar kalli lið sitt burtu af þeim stöðvum. Sérstaka fjárhagsnefnd hefir stjórnin á Bretlandi sett til þess að sjá um að stjórnin fylgi þeim nákvæmustu sparnaðarreglum sem unt sé að hugsa sér. Lloyd George er formaður þeirrar nefndar og eru áhrif hennar þegar sýnileg. Hon. W. L. McKenzie King hefir verið boðið að sækja um kosningu til þings í Prince kjör- dæminu í Prince Edward Island, og hiefir hann tekið því boði. Kosning fer þar fram 27. október n. k., og er sagt að Mr. King sé viss að ná kosningu þar, hver sem settur yrði út á móti honum. Mentámálaþingið, sem haldast á hér í Winnipeg í næsta mánuði, verður bæði fjölment og óefað merkilegt, því það sækja menta- menn úr öllu ríkinu, og þeir sem fyrirlestra flytja eru margir hinna fremstu og bezt þektu menta- manna Canada og Bandaríkjanna. Verða þar rædd flest þau menta og menningarmál, sem nú eru á dagskrá. Auðmenn í Belfast á írlandi hafa tekið sig saman til þess að hrinda í framgang verkum þeim, sem nauðsynlegt er að gjöra, og efla framför í iðnaði á allan hátt, sem þeim er unt. peir halda því fram að ókyrð á-hugsun og óeirðir þær, sem átt hafa sér stað hjá ír- um og eru enn, eigi rót sína að rekja til atvinnuleysis og atvinnu- fyrirkomulagsins, en ekki svo Innbrotsþjófar stálu úr öryggis- skáp í skrifstofu Boston & Albany járnbrautarfélagsins í Bonton $100,000 virði af Liberty Bonds skýrteinum og $3,500 í peningum. Sökum þurðar á kolavögnum við kolanámur í austurfylkjum Banda- ríkjanna hefir orðið að takmarka kolaframleiðsluna alt að helming. Ríkisritari Lansing hefir til meðferðar samning sem gjöra á milli Bandaríkjanna og Canada, til þess að ákveða um fiskiveiðar og friðun á sumum fiskitegundum í landhelgi við vesturströnd Ameríku. Hafskipaskurður í gegnum Florida er nú á hvers manns vör- um þar syðra. Hugmynd sú er að vísu ekki ný, hún er að minsta kosti 30 ára gömul. En hún hefir nú fengið nýjan byr, þar sem Frank Clark þingmaður frá Florida í neðri málstofu Banda- ríkjaþingsins, hefir krafist þess að hermáladeildinni sé falið að gjöra áætlanir um kostnað við að gjöra skipaskurð frá Atlanzhafi til Mexicoflóans yfir Florida. Er talað um að skurður þessi liggi fyrst eftir St. Johns ánni, þangað sem hún rennur í Oklawaha ána, svo eftir þeirri á til Silver árinn- ar og þaðan í gegnum landið til Whithacoc árinnar nálægt Dun- nellon og svo eftir þeirri á alla leið til flóans. Forseti Bandaríkjanna Wilson, hefir nú lagt á stað í fyrirlestra- ferð um Bandaríkin. Gjörir hann það aðallega út af mótspyrnu þeirri sem lög þjóðasambandsins hafa fengið af hálfu Republican flokksins í öldungadeild þingsins, og hugmynd forsetans er víst að skýra friðarsamningana alla fyrir þjóðinni og skerpa svo skilning hennar á þeim og nauðsýninni fyr- Hans konung'Aga 'nátign r’rins- ínn of Wales kom til Winnipeg á þriðjudagsmorguninn með Canada Kyrrahafsbrautinni kl. 10 f. h., og voru þar til staðar að taka á móti honum fylkisstjórinn Sir James Aikins, T. C. Norris forsætisráð- herra Manitobafy^kis, yfirdómari fylkisins og yfirmaður hermála í 10. hermáladeild Canada. Prinsinn fór fyrst suður að ráðhúsinu, þar sem honum var fagnað af borgarstjóra og afhent ávarp frá bænum. Svo var haldið áfram ferðinni eftir Aðalstrætinu, Portage Ave. og Kennedy St., suð- ur að þinghúsinu nýja, þar sem honum var fagnað af fylkisstjóra og ráðherrum fylkisins og afhent ávarp sam forsætisráðherra Norris flutti honum, og þar tók hann á móti ávörpum frá ýmsum félögum. Eftir miðjan dag á þriðjudag var hann í boði hjá borgarstjóra út í Assiniboia skemtigarðinum, og fór þaðan að skoða hermanna- spítalann í Tuxedo. Á miðvikudaginn fór Prinsinn ut á búnaðarskóla, í hveitikaup- höllina hér í bænum og víðar, og að síðustu bauð hann alla bæjar- búa velkomna til þ^ss að kveðja sig í garðinum hjá fylkisstjóra húsinu, og fór svo alfarinn frá Winnipeg og vestur kl. 6.45 á mið- vikudagskveldið. til þess að hjálpa til að selja $10,000,000 virði af írskum verð- bréfum. Thomas Nelson Page, sendi- herra Bandaríkjamanna á ítalíu hefir sagt af sér. Maður að nafni John W. Ster- ling, sem dó í fyrra í borginni New York, hefir arfleitt Yale há- skólann að $18,000,000. Fyrir hvern Bandaríkjahermann sem fluttur var á brezkum skipum til Evrópu á meðan á stríðinu stóð borga Bandaríkin $81.75. Umboðsmenn Sovietsins á Rúss- landi hafa lagt fram peninga til þess að auka flokkahatur innan Bandaríkjanna. Menn þeir sem rækta vínþrúgur í New York fylkinu biðja um $125 fyrir tonnið af þeim, og er búist við að þeir muni hækka það upp í $150. Johnson þingmaður frá Wash- ington, sem er og formaður þing- nefndar þeirrar í neðri málstofu þingsins, sem hefir með höndum innflutningsmálin og þau mál er snerta þegnskyldur manna í Bandaríkjunum, hefir lagt frum- varp til laga fyrir þingið, þar sem farið er fram á að banna allan innflutning til Bandaríkjanna í tvö ár, og skylda alla útlendinga sem innan Bandaríkjanna væru til þess að gjörast borgarar, eða fara úr landi að öðrum kosti. Frá öðrum löndum. mann, forseti lýðveldissinna á pýzkalandi, og kaus flokkurinn aftur sem leiðtoga í hans stað Dr. Marie Elizabeth Lenchers. Lögreglan í París hefir aðvar- að alla verzlunarmenn í borginni að ef að þeir marki ekki allar vörur, sem þeir hafi til sölu, með söluverði svo skýru að öllum sé skiljanlegt, þá verði þeir sóttir að lögum. Nýtt Zeppelin loftfar, sem pjóðverjar eiga, flaug um daginn frá Frederichafen eg til BerMnar á 6 klukkustundum. Vegalengdin er 435 mílur. fæði og húsnæði $144,914, kaup $103,000, kostnaður sendimanna nefndarinnar til annara landa $105,000, og forsetinn bætti við að honum fyndist þessi reikningur mjög sanngjarn, þegar maður tæki tillit til þess að allir hlutir hefðu stígið 200% í verði á Frakklandi sökum stríðsins. “George Washington, skipið sem Wilson forseti sigldi með til frið- arþingsins, á að flytja Albert Belgíukonung og Elísabetu drotn- ingu hans yfir hafið til Banda- ríkjanna í þessum mánuði. Verzlunarmálanefnd Bandaríkj- anna hefir fengið skipun um að rannsaka hið afarháa verð á skó- fatnaði, og komast eftir af hverju það stafi. Eimlestir tvær rákust á í Grawn, Mich., sem báðar voru á hraðri ferð. Var önnur vöruflutninga- lestir en hin farþegalest. Sex menn biðu bana og 14 meiddust. Grímuklæd.dir stigamenn stöðv- uðu eimlest, sem var á hraðri ferð á milli Columbia og Pulaski, Tenn. og rændu pósttöskunum. Talsmenn írska lýðveldisins hafa leigt sér skrifstofur í New York, 5,000,000 pjóðverjar hafa beðið innanríkisdeild þýzku stjórnarinn- ar um leyfi að mega flytja burt úr landinu. Til þess að vera viðbúnir upp- reist nær sem er, þá hafa borgar- ar úr 1600 bæjum í Hollandi tekið sig saman og-*eft sig tíl þess að vera viðbúnir ef á þarf að halda að verja opinberar byggingar og eignir manna. Bæjarráðið 1 Lille á Frakklandi hefir krafist þess að hershöfðingi Von HeinriCh og Von Gravenitz, sem voru borgarstjórar í Lille eftir að bærinn komst í hendur pjóðverja og Capt. Von Himmel, sem var löggæzlustjóri pjóðverja í Lille meðan á stríðinu stóð, séu framseldir. Dr. W. S. Bruce, sem er formað- ur nefndar þeirrar, sem Skotar sendu til Spitzbergen, til þess að rannsaka málma og kol, segist hafa fundið kolalag í jörðu svo auðugt að þó að lagið þykni ekkert þegar niður kemur, þá séu þarna að minsta kosti 5,000,000 tonn á hverri ferhyrningsmilu. Spitz- bergen liggur, eins og kunnugt er, norður í íshafi, fyrir norðan Noreg og á að leggjast undir Noreg, samkvæmt fyrirmælum friðarsamninganna í París. Nefnd sú, sem Frakkar settu til þess að ákveða skaðabætur Frakka í sambandi við stríðið, hefir á- kveðið skaðabætur þær $40,000,- 000,000, þar af eru 15,000,000,000 skaðabætur til einstaklinga, en $25,000,000,000 fyrir skemdir á þjóðeignum. Á lestir Rauða kross félagsins, sem hafa verið á ferð milli París og Bucharest með vistir, hafa austurrískir uppreistarmenn ráð- ist hvað eftir annað og gjört skemdir. Yfirvöldin í Ukraníu hafa lýst yfir því að stjórnin þar hafi reist svo strangar skorður við hryðju- verkum þeim, sem átt hafa sér stað í sambandi við Gyðinga þar í landi, að slíkt geti ekki komið fyrir oftar. Skip sem var að flytja heim japanska hermenn rak sig á sker suður af Sanegashima í Japan og sökk. Með því fórust á annað hundrað manns. pingið í Sviss hefir verið kallað saman 15. þ. m. Aðalhlutverk þess er að ræða um þjóðasambandið og bvern þátt að Svisslendingar eigi að taka í því. Nefnd sú, sem Herbert Hoover var formaður í og hafði skrifstof- ur sínar í París til þess að deila út og jafna niður forða á meða'l Evrópuþjóðanna, er nú hætt þeim starfa og Mr. Hoover leggur á stað heimleiðia innan fárra daga. Dáinn er í Travemunde á pýzkalandi Joseph Fredrich Nau- Rögnvaldur Björnsson frá Réttarholti. í anda yfir hafið eg eygi leiðið þitt, niinn óð fær ekkert tafið við æskuskeiðið mitt, þar fyrst á okkar fundum oss fjör og yndi hló, með sólarglóð á sundum og söng í berjamó. Við lásum ljóð og sögur um lands vors höpp og þraut, hvar margur gildur mögur til manndóms ruddi braut. Hvert augnablik var óður með ástarþrunginn klið, í skauti mærrar móður við morgundagsins frið. í faðmi blárra fjalla um frjálsan, heiðan dag, með ljóð um hlíð og hjalla og hljómþungt fossa lag, þú festir hugann heima að hefja þína bygð, og ei var unt að geyma þér æðri sonar trygð. En æskuárin líða sem elfa fram í haf, svo kemur kall að stríða með kraft sem Drottinn gaf. pinn hlut þú hlauzt að bera á hörðum reynslu stig, en takmark trúr að vera var táp sem leiddi þig. Af öllum virtur varstu með vinhlý orð og ráð, og marga byrði barstu af bróðurhug og dáð, með hreint og göfugt hjarta þú helgan græddir sjóð, við andans útsýn bjarta og ást á land og þjóð. pér hörð var hinsta stundin og haustið dimt og kalt, en traust, og ljúfa lundin sér lýsti gegnum alt, unz bleikur dauðinn breiddi sinn bliða frið á þig, og sál til ljóssins leiddi á lífsins hærra stig. Nú syrgir sveitin bjarta við sonar leiði hljótt, er henni gaf sitt hjarta og hönd, og andans þrótt. í bljúgum brjóstum vina þó blæði sorgar und, þeir eiga eilífðina og annan gleðifund. Á blíðan bernsku haga eg breiði kveðjuljóð, og þaikka þína daga 1 þjóðar vorrar sjóð. En þeir sem háðu heima við hlið þér, sæld og neyð, :í ást og göfgi geyma þitt gengið æfiskeið. M. Markússon. Hugsað heim. (N. og C. í ág. 1919). I. Nóttin á förum. Fyrir degi nýjum fjöllunum yfir roðar lofti á. Og sjórinn kaldur hlær við degi hlýjum og hlýtur kossa morgunsólu frá. Á hverri grund og túni titrar döggin og tárin hennar falla stráum af. Mér finst eg sláttumanna heyra “höggin”, er hamanst þeir og vekja grund, er svaf. Og reykir bláir upp í loftið líða og leikur blær við fjarðaröldur smá, en kátir óma hlátrar upp til hlíða þars hlæja börnin kvíaánum hjá. Og við og við í kringum féð er farið, á fingrum talið, ekkert vanta má. Eg man það vel, afs svona var því varið, er Veiga og eg í Koti sátum hjá. Og máske enn í Koti frá þeir færa; mér finst eg sjá í anda lítinn pilt með bók á hné, því hann er ljóð að læra og lítil telpa situr þar svo stilt með sauma í hönd og sannrar gleði nýtur, því sólin skín á fjöllin himinblá. Og svanninn smái á sveininn unga lítur — og svo á ærnar. peim ei gleyma má. Og dagur líður. Sögur eru sagðar og sungið ljóð og stundum fleira en eitt. Og stundum eru litlar hendur lagðar svo létt á vanga’, en ennþá kyzt ei neitt. Og það er gaman; hús úr hellusteinum á holti reist og leggja talin fjöld og það er mergð af ungum álfasveinum, sem eru að dansa og leika sér í kvöld. Og kvöldið blessað hvíldir öllum færir, er kveður sólin, biður góðaNiótt. Á hverju strái dropar titra tærir og tárvot jörðin dregur andann rótt. II. Nú sorgum fjarri’ eg sit hér einn og vaki, því sólin skín og ljóð mitt knúð af veiku vængjataki nú vitjar þín. pú, móðir, veist, að leiðin mín var löngum svo langt frá þér og ástin mín var bara í sögu og söngum og sálu mér. Eg reikað hef í suður sólarlöndum og sælt er þar, en betra í þínum mjúku móðurhöndum eg man að var. Eg vildi seinna fækka þúfum þínum, en þangað til eg sendi ljóð frá heilum huga mínum og hjartans yl. A. Th.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.