Lögberg - 08.01.1920, Blaðsíða 1

Lögberg - 08.01.1920, Blaðsíða 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. R E Y N IÐ Þ AÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. Garry 1320 33. ARGANGUR WINNiPEG. MANITOBA. FiMTUDAGiNN 8. JANÚAR 1920 NUMER 2 Helztu ViSburSir Síðustu Viku Canada. Við falsaða tíu eenta peninga hefir orði'ö vart í London Ont.. Peningar þessir eru nauðalíkir hinum sönnu peningum, ekki hægt að þekkja þá í sundur á öðru en hljóðinu. Hljóð fölsku pening- anna er harðara en hinna sönnu peninga. pessir fölsuðu peningar eru frá 1918. Upp til enda november mánað- ar hafði hveiti verzlunarnefnd Canada, selt 48,379,315 mæla hveitis á $ 110,188,265. og hafði hveitið aðallega verið selt til þess- .ara landa. Bretlands.... 33,395,300 mælirar Bandarikjanna 4,688,987 Frakkland .... '3,073,016 ítalíu 1,119,290 Gibraltar 1,659,484 Belgiu 1,730,374 Grikklandi 2,666,540 Rúmaniu 45,333 Sagt er að 33,000 hermenn hafi keypt sér bújarðir og farið að búa. 20,000 af þeim hefir tekið lán und- xr hermanna lántöku lögunum og nemur lántaka þeirra $ 53,000, 000. F. A. Acland aðstoðar ráðherra verkamála í Canada. hefir verið nefndur af Canada stjórn til þess að vera. svara maSur hcnnar á fundi sem framkvæmda nefnd sú, er kosin var á alþjóða iðnaðar þinginu, sem haldið var í Wash- ington isíðastliðið haust, heldur bráðlega í Parísar borg. En fyrir veríkamenn í Norður Ameríku á að mætá þar Tomas Moore forseti alsherjar verkamanna félaga í Canada. Til stóð að Samuel Gompers veidcamanna leiðtoginn í Banda- ríkjunum mætti á fundi þessum en af því gat ékki orðið, sökum þess hvernig fór með friðarsamn- ínga-na í öldunga deild þingsins. Fn í hans stað mætir þar P. M. Draper sá er var svaramaður verkamanna fyrir hönd Canada á íðnaðarþinginu. Aðal verkefni þessa fundar í París er að koma í fast form þeim samþyktum og tillögum sem gerð- ar voru á iðnaðarþinginu. Eldur kom upp í verzluar húsi á Market Street hér í bænum ný- lega. En í húsinu bjó eftirlits mað- ur og fjölskylda hans, og komust þau út með því að brjóta glugga og fara þar xxt, erx dóttir hjónanna 22 ára göimul henti sér niður á götuna af öðru lofti, og slasaðist svo að henni er ekki hugað lífs. H.Thomson fyj^rum vistastjóri í Canada og einn úr verzlunar ráði Canada, er nýkominn heim og farast honum orð um ástandið í Mið-Evrópu á þessa leið: “í Vín- arborg til dæmis þar sem að Aust- urríkis peningar eru virði tuttug- asta og fimta parts af þvx sem þeir áður voru,. par verður fólkið að borga $5,00 fyrir pundið af hveiti. $ 6,00 fyrir pund af sykri, 80 cent fyrir nnndið’ af kartöflum’, og $ 10,00 fyrir pumd af kjöti, 2,00 fyrir pundið af eplum, 1,70 f.vrir eitt egg, $3,60 fyrir eina dós af ansiósum, 25 cent fyrir einn hálf skemdan vindling, um $ 50 fyrir karlmann shatt, frá $7-$125 fyrir eitt par af skóm, $ 480 og upp fyrir karlmanna fatnað. Kaupgjald hefir verið fært upp um helming og tvo þriðju en samt eru nauðsynjarnar frá 20 — og upp í 40% hærri en kaupgjaldið. Nefnd sú er sjá á um hafnar umbætur í Vancouver er nýkom- in frá Ottawa, og hefir frá því að segja, að hafnar bryggju mikla eigx að byggja í Vancouver á kom- andi sumri, og hefir Oanada stjórn lagt fram $ 5,000,000 til þess verks. Bretland Bretar hafa ákveðið að senda nefnd manna til Egyptalands og er Milner lávarður formaður nefndarinnar. Erindi nefndar þeirrar er að hafa tal af leiðtogum ’hinna ýmsu flokka f landinu, og athuga sakirnar þar sem bezt, með það fyrir augum að veita Egyftum sjálfstjórn að svo miklu leyti sem þeir eru færir um, að v-eita móttö'ku. Enn er allmikið talað um, að kosningar séu í vændum á Eng- landi. pingið sem slitið verður í ■ þessari viku á aftur að koma sam- i an í annari v4ku febrúar mánaðar, og þykjast verkamenn þá vissir um að þingið muni verða tafarlaust leyst upp og gengið til kosninga til þess að vita íhvort hugur þjóð- arinnar bafi nokkuð breyst í sam- bandi við Union stjórnina. Verkamenn búast við að 400 menn sæki um þingmensku undir þeirra mdkjum við kosningamar, og a'Öal mál þeirra á að vera þjóð- eign kolanáma. pó hvað vera stór hópur sem álítur þetta vanhugsað, og að sigurvænlegra mundi vera að taka félags málin yfir höfuð, og öll hin mikilvægustu pólitísku spursmál sem á dagskrá eru og gera afstöðu sína skyra á þeim. í skýrslu sem verzlunar ráð Lundúna borgar hefir nýlega gef- ið út, er tekið fram að innan skams muni Bretar geta framleitt nægi- lega mikið af kindakjöti handa þjóðinni. En upp á aðflutt nauta kjöt verði þjóðin að stóla til neyslu fyrir lengri tíma. 2. þ. m. var tvö hundraðasta níutíu og þriðja afmælis hátíð hetjunnar nafnfrægu sem lífið lét í bardaganum á Abrahams slétt- unum í Canada 13 sept 1759. Há- tið þessi hin árlega er haldin í Westernhaur Kent þar sem Wolf var fæddur. ' Nýlega voru veiðimenn á ferð í skógi einum nálægt Aldershot í Hampsihire á Englandi. Fundu þeir steinrunnin konu líkama, hann lá þar í lautu og var undirviður vax- in alt í kring um hann. Kona þessi hafði verið frá þrjá- tíu til fjörutíu ára, á hendi henn- ar var einn baugur. Svarta skó hafði hún haft á fótunum vand- aða og höfðu þeir verið lítt gengn- ir. pað ,sem eftir var af fötum kon- unnar sýndi að hún hafði verið mjög vel klædd. Hún ihafði Iátið draga úr sér allar tennur og fengið sér nýjar sem virðast vera lítt. skemdar. Fundur þessi þykir mjög merkilegur, og talið/er víst að hún muni hafa legið leiTgi þar í skóginum. Einkertnilegur gestur er um þessar mundir í Lundúnum, sem komið hefir 8,000 mílur vegar tíl þess að bera fram fyrir Breta stjórn kröfur þjóðar sinnar, eða þess brots sem eftir er hins vold- uga Nomadiu þjóðflokks, sem einu sinni bygði Mesopotamiu. Landsvæði það sem þjóðflokkur hennar var rekinn 4 burtu af Tyrk- jum og Kúrdum úr landi féðra sinna og það sem eftir var af fólki hennar, 22,000 flúði til fjalla. Prinsessa þessi iheitir Surma di Bith Shimun og er systir ættar þjóðhöfðingja Syriu manna, eða þess parts þeira, sem eru beinir afkomendur Nomadiu manna. í viðtali við blaðamenn farast prinsessunni orð á þessa leið. “Eg kom til Englands á móti vil- ja mínum” (á ensku sem var eins fullkominn og vér fáum að heyra hér í Lundúnaborg). Eg hefi aldrei komið til Evropu áður. En það var engum á að skipa. Bróðir minn leiðtogi og höfðingi fólks vors var svikin og myrtur af Ivurdum, og yngri bróðir minn, sem tok við af honum liggur veikur, annar bróð- ir minn er í herþjónustu. Svo fólkið treysti engum nema mér. ' Yður sýnist máske undarlegt að kona skyldi vera valin til þessa vanda sama og erfiða verks. En það er siður hjá þjóð vorri að syst- ir þjóðhöfðingans sverji þess dýr- an eið að giftast aldrei en verja líífi isínu til hjálpar bróður sínum á stjórnartíð hans.” Landsvæði það sem prinsessan er að biðja um er eitt það élsta sem sögur fará af og liggur x suður frá Kákasus, en norður frá Euphrates og var söguríkt á tíð Gamla testamentisins. Æfi þessa fólks, sem hefir verið kristið síðan á postula tíðinni hefir verið í orðsins fylsta skiln- ingi hörmunga æfi, ofsóknunum hefir aldrei lint og nú síðast á árunum 1917 og 1918 bjargaði það sér á flótta yfir fjöllin. “Bæir vorir voru teknir undir eins og vér höfðum bjargað oss á flótta, allur búfénaður vor hefir verið burt numin, peningum okkar og bókum okkar brent. Vér erum faranda Iýður sem hvergi á heima” sagði prinsessan. Sinn Feiners gerðu áhlaup mikið á járnbrautarstöðina í Kork á ír- landi. Vinnufólki • var boðið að hætta vinnu sinni og sagt að standa upp við vegg og hreyfa sig ekki unz aðkomumenn, sem allir voru vopn- aðir og grímuklæiddir, höfðu rann- sakað vörur og vörugeymsluhúsin. Sagt er að menn þessir hafi verið að leita að vopnum, sem senda átti ti'l víggirðinga meðfíam strönd- um írlands. Frá öðrum iönáum. Nýjustu fréttir frá Buda-Pest segja, að Bela Kun, sá er um eitt skeið hrifsaði undir sig völd í Ungverjalandi og gerði stjórnina eftir háttum gerbyltingamann- anna rússnesku, hafi nú verið fundinn sekur fyrir dómstólum þjóðar sinnar um 236 morð, 19 rán og að hafa eytt í óleyfi af almenn- ings fé 197,000,000 króna til út- breiðslu Bolsheviki stefnunnar í Vínarborg einni, og má af því nokkuð ráða samvizkusemi hans í meðferð fjármálanna. pegar Bela Kun hröklaðist úr valdastóli, þá flýði hann á brott úr Buda-Pest og til Vínarboi’gar, og hefir stjórn Ungverjalands nú krafist þess, að hann verði fram seldur til þess að svara til saka. Talið er víst að Clemenceau, yf- irráðgjafi Frakka, muni verða kjörinn forseti hins franska lýð- veldis án gagnsóknar fyrír næsta forsetatímabil. — Hann er nú frekra áttatíu ára iað aldri, og leikur orð á, að gamli maðurinn sé að hugsa um að kvongast vold- ugri hertogafrú. Ráðherraskifti í Ottawa Ur bœnum. Peir prestarnir, séra Jónann Bjarnason að Árborg og séra. Frið- rik Hallgrímsson frá Baldur, komu til bæjarins á miðikudags- morguninn. Séra Kjartan Helgason heldur fyrirléstra á meðal íslendinga á Kyrrahafsströndinni að öllu for- fallalausu. sem hér segir: Seattle, þriðjudagskveldið 13. jan- úar kl. 8. Bellingham, fimtudag 15. jan. Blaine, laugardagskveld 17. jan. Crescent, mánudag 19. jan. Point Roberts, þriðjudag 21. jan. | Vancouver, föstudagskv. 23. jan. ; Victoria, mánudagskveld 26. jan. —-Hlutaðeigendur eru beðnir vel- virðingar á því, að samkomur þessar eru ákveðnar að þeim forn- spurðum, en það var óhjákvæmi- legt, tímans vegna. En ef sam- komurnar skyldu reka sig á ein- einihverjar ráðstafanir, sem gerð- ar hafa verið af héraðsmönum, þá er nægilegt svigrúm gefið til þess að ekki þurfi að verða á- rekstur. Miðsvetrar samsæti heldur Helgi magri þ. 17. febrúar n. k. Fólk er beðið að minnast þess. par verður góð íslenzk skemtun. Meira seinna. Tómas Frímann frá Akra N. D., kom til bæjarins í vikunni. Hann kom til þess að hafa tal af lækn- um í sambandi við heilsubilun sína. Tómas ætlar að skreppa austur til Dryden, Ont., til þess að heimsækja systur sína, er þar býr, °g býst við að dvelja þar tveggja vikna tíma. Séra Jónas A. Sigui-ðsson frá Churchbridge, Sask., kom til bæj- arins á mánudaginn var. Hann var á leið vestur til Seattle. f ferðina með honum vestur slóst séra Kjartan Helgason, og búast þeir við að verða um mánaðartíma í leiðangrinum. Séra Kjartan flyt- ur fyrirlestra í öllum helztu bygð- um landa vorra á ströndinni og eru þeir auglýstir á öðrum stað í blaðinu. Miss Auiæro Vopni, sem kenslu •stundar í bænum Melville, Sask., hefir dvalið um hátíðarnar hjá foreldrum sínum hér í bænum. Hún hélt aftur til Melville í byrj- un vikunnar. Hið nýja Allen hreyfimynda leik- hús var formlega opnað á föstu- daginn var. petta er hið skraut- legasta leikhús Winnipegborgar, ef elcki í öllu Canada ríki. 17- manna “orchestra” spilar þar á hverju kveldi, og af þeim eru þrír íslendingar: W. Einarson, Walter Dalman og Brynj. O. Vopni. Séra K. K. Ólafsson frá Moun- tain, N. D., var staddur í bænum í vikunni. Hann kom til þess að vera á skólaráðsfundi Jóns Bjarna sonar skóla og á stjórnarnefndar- fundi kirkjufélagsins. Á öðrum stað 1 blaðinu auglýs- ir þjóðræknisfélagsdeildin Frón ársfund sinn, sem haldinn verður næsta mánudagskveld, þann 12. þ. m. Á fundinum verða lagðir fram reikningar deildarinnar, embætt- ismenn kosnir fyrir komanda ár og ýms áríðandi mál rædd. Land- ar góðir, munið eftir að fjölmenna og komið í tíma. pað var talið víst fyrir skömmu, að Borden stjórnarformaður mundi láta af embætti um áramótin síð- ustu sökum heilsubilunar, en af því hefir ekki orðið, heldur hefi*r hann tekið sér hvíld um óákveðinn tima. Mr. Foster gegnir stjórnar- formanns stöðunni til bráðabirgða. Maj. Gen. Mewburn, hermálaráð- gjafi, hefir sagt af sér embætti, en í hans stað \ hefir verið settur til bráðábirgða Hon. James Calder innflutningsmála ráðgjafi og mæl- ast þau skifti misjafnlega fyrir, mð því að ókunnugt er með öllu, að Mr. Calder íhafi yfir nökkurri þeirri hérmálaþekkingu að ráða, er geri hann sæmilega hæfan til stöðunnar. Hon. Ai-thur L. Sifton, sem gegnt hefir um hríð ráðgjafa- embætti opinberra verka, hefir verið gerður að rikisritara, en við embætti hans tók Hon. Mar- tin Burrell.— Fremur þykja þess- ar breytingar benda til að farið sé að losna um samsteypustjórnina. Lœknastríð í Noregi. Maður er nefndur Hindhede. Hann er einhver frægasti maður Danmerkur, þeirra sem nú lifa. Hann hefír orðið ættlandi sínu einhver hinn farsælasti núlifancR manna. Hindhede er læknir. Á fimtíu árum hefir enginn tekið svo hátt og glæsilegt próf í læknisfræði við háskólann í Kaupmannahöfn sem hann. Og siðan hefir hann átt því láni að fagna að geta eingöngu gefið sig idð þpLn vísindum sem honum eru kærust, rannsóknum um það, hvað menn eiga að borða og drekka. Danska ríkið veitir honum árlega laun eins og pró- fessorum háskólans, en setur honum engar skyldur. Hann getur lifað alveg áhyggjulausu lífi í því efni og gefið sig við vísindunum. Hann þarf ekki til neinis tillit að taka. annars en að segja og skrifa það sem hann álítur rétt, út frá vísindaiðkunum sínum. Fjölmörgum hér á landi munu kunnar kenningar hans, enda eru þær kunnar um víða veröld. pá er styrjaldarvandræðin fóru að þrengja að Dönum, og það varð hið brýnasta úrlausnarefni að finna hinar réttustu leiðir um að sjá þjóðinni fyrir nægum mat og nota matinn sem til var á sem réttastan hátt, var nefnd skipuð i Danmörku til þess að ráða fram úr því mikla vandamáli. Hindhede var að sjálfsögðu skipaður í þá nefnd og nefndin og stjórnin féll- ust á þær tillögur sem Hindhede gex-ði. Urðu þær að vísu stórkost- lega óvinsælar— því að vei þeim sem fer að skifta sér af því hvað beint á þá leið, að hann hvetti menn til að neita víns til lækninga í veikinni. Yfirlýsing þessi vakti geysimi'kið umtal og hneiksli. Yfirlæknarnir við stærsta spítala í Noregi, sem er stærsti spítali á Norðurlöndum, sömdu yfirlýsingu þvert ofan i Axel Holst. — Víðar en á íslandi hefir læknastríð verið háð út af “spönsku veikinni”. Hindhede var staddur í Noregi, þá er yfirlýsing Holst kom fram. Hindhede er ekki vanur að hafa stór orð í ræðum sínum, en hon- um varð svo mikið um, er hann heyrði yfirlýsingu, frá prófessor við háskólann ú læknavísindum, að hann hafði þau orð um Holst, að hann væri í áfengismálinu “viden- skabelig Svindler”, c: glæframað- ur í vísindum. pá er Hindhede hafði haldið fyrirlesturinn, skrifaði hann Holst bréf og sagði ihonum frá því, að hann hefði sagt þetta um hann og að hann ætlaði >sér að standa við það opinberlega. Hann bauðst til að standa við þau á opiníberum um- ræðufundi, þar sem þeir leiddu saman hesta sína. Funduxtinn var háður nokkru síðar í Kristjaníu og vakti go\vi- mikla athygili. Eins og auðvitað var lá Holst alveg flatur fyrir Hindhede. Annars vegar var hinn nafntogaði vísindamaður, sem beitti engu öðru fyrir sig en rök- um, sem voru árangur af margra ára vísindastarfsemi afburða- mannsins. — Hins vegar var rök- semdaþrot, en stóryrði og meiðyrði í istað rösemda. Hann kallaði Hind- hede vitfirring og því um líkt. Jafnvel mikill vinur Holsts og samverkamaður, varð að lýsa sig honum algerlega andvígan, þótt hann kinokaði sér við að nefna Holst svo lítilsvirðandi nafni sem Hindhede hafði gert. En það hafði engin áhrif á á- heyrendurnar. Mentamennirnir í Kristjaníu elska vínið. Flestir á- heyrendanna voru úr þeirra hóp. Langsamlega flestir fundarmanna klöppuðu Holist lof í lófa. Og að fundinum loknum báru þeir Holst heim á gulllstól með glymjandi fagnaðarlátum. Loftskipafélag myndað hér í WioDÍpeg. Loftskipaféilag hefir verið myndað hér í Winnipeg undir nafninu “The Aerial Transport & Taxi Co Ltd.” aðalstöðvar hér í Wpg. Félagið hefir þegar pantað nokkur loftskip, stór og smá, til fólksflutninga og vöru flutninga milli Minneapolis og Wpg, og Duluth og Wpg. og einnig til að hafa niður á Winnipeg Beach til skemtiferða fyrir fólk. pað hefir cg í hug að koma á reglubundnum loftskipaferðum til Saskatchewan og Al'berta bæja. Félagið hefir fengið “Charter” frá Dominion stjórninni til istarfrækslu, með $75,000 höfuðstól. pað hefir þegar ráðið nokkra flugmenn, og er búist við að taka til starfa strax með vorinu. Almenningi er boðið hlutir í félaginu sem seldir verða fyrir $1.00 hluturinn. Landi vor Mr. Leonard Magnússon Winnipeg, er ráðinn sem uxnsjónarmaður loft- f-ii , „ , .. , ^ stöðvarinnar hér, og hefir hann tolk borðar og drekkur — en það1..,.,, er nú samhuga álit allra þeirra! 1cl sem skyn bera á þá hluti, að til- lögur Hindhede hafi bókstaflega talað bjai’gað Danmörku út úr matvælavandræðunum á stríðstím- unum. Og margir láta svo um mælt, að hefði pýskaland farið hinar sömu leiðir og Danir, þá væru þeir ekki en búnir að bíða ósigur. Vísindarannsókinir Hindhede, hafa gert hann að einhverjum hin- um ákafasta bindindis og bann- manni sem til er í heiminum. Munu fáir tala ákveðnar um skaðsemi áfengisins fyrir mannlegan lík- ama, og um hinn stórkostlega mis- skilning að áfengi sé til margra hluta nytsamlegt, enda munu þeir vera fáir í veröldinni, sem svo geta úr flokki talað sem hann — ef til vill enginn. Vegna þess hefir hann mjög verið á oddi hafður af býidindis og bannmönnum á Norðurlöndum. í baráttunni 4 Noregi fyrir at-- oss að sér þætti vænt um að komast i samband við þá íslend- inga sem hefðu í hyggju að kaupa hluti, og er adressa hans 919 Banning Str. Phone Garry 3855 eða á aðalskrifstofu félagsins, Great West Permanent Bldg., 356 Main St., Tals. M. 7218, og er hann fús að gefa allar upplýS' ingar félaginu viðvíkjandi. Merkileg samkoma. Að kvöldi miðvikudagsins 14. þ. m. verður merkileg samkoma haldin 4 samkomusal Fyrstu lút- ersku kirkju, og stendur kvennfé- lag safnaðarins fyrir henni. Meg- in-atriði samkomunnar verður fyrirlestur, sem Hon. T. H. John- son flytur um iðnaðarmála-þingið mikla, er háð var í Washington í haust. Var Thomas ráðherra John- kvæðagreiðslunni um aðflutnings-j Son á alþjóðaþingi þessu, einn af fleirum, fyrir hönd Canada. Geta bann á áfengi, sem nú er nýaf- staðin, tók Hindhede mikin þátt, þar eð bannmennirnir norsku fengu hann til að halda fyrir- lestra víðsvegar um Noreg. — Maður er nefndur Axel Holst Hann er prófessor f læknisfræði við háskólann í Kristjaníu. Hánn er einhver hinn á'kafasti andstæð- ingur aðflutningsbannsins þar í landi. Hann trúir á, talar a. m. k. mikið um ágæti vínsins. í fyrra, þegar “spánska veikih má nærri, hversu mikla fræðslu menn fái um þetta stórmál sam— tíðarinar fyrir það að hlýða á fyrirlestur ráðherrans. Mönnum býðst sjaldan annað eins tækifæri og þetta. Auk fyrirlestursins verð- ur á samkomunni, til skemtunar ágætur söngur. Aðgangur að samkonTunni er jöllum frjáls ókeypis. Samskota | verður leita til arðs fyrir piano- geisaði í Noregi, gaf Axel Holst 8jóð kvenféiagsins. út yfirlýsingu, sem skilin var Kaffi selt á eftir. HRING tJT—HRING INN. Eftir Tennyson. (úr Memoriain.) Hring mikinn, lífsins Iikaböng, Um ljóshaf svalt og vindelt ský. I nótt deyr árið, ytfir því Hring aldurtila reginsöng. Hring út alt fornt, liring inn alt nýtt, Um ísþak jarðar hljóma þýtt. — Er flvtur ór, með feigð á kinn, Hring fláttskiap út, hring sannleik inn. Hring út þá sorg, er sviftir frið, Og söknuð fyllir hugskot vort. Hring út alt þras um auð og skort. Hring inn það göfgar mannkynið. Hring út hin fornu feigðarslög, Með flokadrátt og úrelt kíf. Hring inn sanngöfugt, æðra líf, Með aufcna. samhygð, betri lög. Og hring út synd og hugarvíl, Og heimsins trúlaust kuldaþref; Þann sorgaróð, sem ort eg hef, Hring inn hinn glaða ljóða stíl. Og ihring út þjóða hroka-brag, Öll heiftarorð og friðarspjöll, — Að satt og rétt við elsfcum öll; Hring inn mannkærleifk, þjóðahag. Hring út hin fornu fúa sár, Ilring fégimd út, er kreppir lýð; Hring út manns þúsund ára stráð, Hring inn Guðs þúsund friðar ár. Hring inn liinn frjálsa, hrausta hal, Með hjartað stórt — og lí'knarhönd; — Hring myrkrið út, — urn alheims lönd, - Hring inn þann Krist, er ríkja skal! Jónas A. Sigurðsson. 1 þes'su gudl-fallega. kvæði, sem birtist í jóla- blaði Lögbergs, rugluðust Knumar í fyrsta er- indinu í nokkru af upplagi blaðsins, og birtum vér því km'ðið í heild sinni aftur.—Ritstj. Lóan heima. Eftir Jónas A. Sigurðsson. Eg reifcað hefi um Rauðárdal, — Frá -Ráu að Ivlettafjöllum, — Um margan fagran fjallasal, — Á frjóum akurvöllum; Um sfcógarhmd, við lækjarnið, Eg l'eita um vesturs geima; Að dýrðar-lofsöng, ljúfum klið, sem lóusöngnum — heima. Þó angi blóm og brosi grund Á blíðum Furðuströndum, Og gjafmild fóstran gull í mund Oss gefi báðum höndum; — Hér skortir margan andans arf, Menn æðstu nótum gleyma, — Þvtí lóan frá þeim löndum hvarf Og lofsöng Guði — Iteima. Yið hrjóstrin ber um hæð og mó, Um báa fjallasali, Og upp til heiða, iit við sjó, Um ættlands fögru dali, — Nú* syngja fuglar sólarbrag, Er seint mun nokfcur gleyma, Því enginn heyrði ljúfar lag Eu ióan syngur — heima. Eg þrói fagran fuglasöng, Er frið og sannleik boðar, Þá grýtt er leið og gatan þröng, Sú Guðs rödd manninn stoðar. En nótum heims og háttabrag Eg helzt vil alveg gleyma, En syngja barnsins ljóð og lag Með lóuflokfknum — heima. Við daghvörf sit í sólarglóð, Um sólhvörf er að dreyma, — En hjartað þráir ljúflings ljóð Sem lóusönginn — heima. — Er síðast feðra eg safnast til Og svíf í æðri geima: Um sumardýrð og sólaryl Mór syngi lóan — heimá.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.