Lögberg - 10.06.1920, Qupperneq 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verÖ sem verið
getur. R E Y N IÐ Þ AÐ!
TALSlMl: Garry 2346 - WINNIPEG
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St. - Garrv 1320
33. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 10. JÚNÍ 1920
NUMER 24
Reykjavík 28. Maí, 1920.
Forseti Fálkanna, Winnipeg, Man.-
íslenzkir ípróttamenn sem halda Fredrickson samsœti í
dag, senda félögnm hans beztu heilla óskir, með þökk fyrir af-
rekið í Antwerp.
Sigurjón Pétursson.
Ofanritað símskeyti skýrir sig sjálft. Hlutaðeigend-
ur þakka. — Ritstj.
1
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Kosningar fara
fram hér í fylki
þann 29. þ.m.
Ráðgert er að dýpka meðfram
árbökikunum og gera bryggju fram
af James Str., «vo að vatnabátar
geti ]?ví auðveldar komist alla
leið til borgar uppeftir ánni.
Séra George H. Williams, D.D.,
sagði nýlega, að félag Methodista
í Toronto ætti að rífa fjórar af
kirkjum sínum í verzlunarparti
bæjarins fyrir þá eina ástæðu,
að .þær stæðu nú þar sem minnis-
varði þess sem þær ættu að vera,
og væru ekki lengur megnugar að
framkvæma verk það sem þeim
hefði verið ætlað. En í stað þeirra
kvað hann nær að reisa sali til lík-
amsæfinga og leika, svo út búna,
að þar mætti sýna hreyfimyndir,
því þá hefði fólk sér eitthvað til
skemtunar.
Aðstandendur W. H. Plummer,
sem nú er látinn, hafa lýst yfir
því, að hið fagra heimili hins látna
er stendur í Sault Ste. Marie í
Ontario og iheitir Lyndhurst, hafi
verið af þeim gefið Algona líknar
stofnunar félaginu, og á húsið að
notast sem sjúkrahús og bera nafn
Plummers.
Verkamála ráðherrann í Ottawa
hefir skipað forlíkunarnefnd í á-
greiningsmáli, sem uppi er á milli
sporbrauta félagsins í Winnipeg
og manna þeirra, sem vinna við
gasstöð félagsins. Formaður í
þeirri nefnd er R. H. Myers dóm-
ari, en fyrir hönd mannanna er
R. S. Ward og félagið hefir nefnt
C. Eí. Dafoe fyrir sig.
Félag hefir myndast til þess að
fá bændur til að taka upp óbygð
lönd í sléttufylkjunum; höfuð-
stóll félags þessa á að vera ein og
hálf miljón dollara. Einn þriðji
partur af þeirri upphæð er nú
þegar fenginn og eru forstöðu-
menn þessa fyrirtækis vongóðir
um að hitt fáist bráðlega.
Félag hermanna í Toronto ætl-
ar sér að gangast fyrir því, að her-
menn verði undanþegnir nýjum
skattálögum í Canada—halda því
iram, að canadisku hermennirnir
hafi nú þegar lagt nóg í sölurnar.
Dr. Robert Magill, sem ásamt
öðrum var fenginn til þess að hafa
tal af Ottawa stjórninni fyrir
hönd kornverzlunar manna í Win-
nipeg í sambandi við frjálsa verzl-
un á ihveiti á komanda hausti,
sagði í ræðp, sem hann hélt þar
austur frá í sambandi við þau mál,
að menn mættu búast við að verð
á hveiti yrði frá $3 til $5 mælirinn
næsta vetur.
Á þingi, sem járnsmiðir héldu
nýlega í Toronto, var lýst yfir
því, að þeir sæju ekki annað en að
sú iðnaðargrein yrði alveg að
hverfa sökum þess að engir fengj-
ust til að vinna að henni eða læra
hana.
Hinn sameinaði bændaflokkur í
Victoria og Haliburton sýslum í
Ontario hefir kveðið til kjörþings
10. þ.m. til þess að velja þing-
mannsefni úr sínum flokki að
sækja á móti Sir Sam Hughes við
næstu sambandskosningar.
Járnbrautarnefnd ríkisins hefir
ákveðið að halda fundi í Vestur-
Canada sem hér segir: Winnipeg
9. júní, Saskatoon 11., Moose Jaw
12., Calgary 15., Drumheller 17.,
Edmonton 21.
Meðal nýunga í viðskiftasög-
unni, sem nú á tímum er óvenju-
lega viðburðarík, má telja það,
að frá Bretlandi er sagt að eigi
að flytja út talsvert af sykri til
Banda-ríkjanna, en sá isyfkur er
til Bretlands kominn frá Vestind-
ium — forframaður og víðförull
aykur það, og líklega ekki gefinn.
af Mr. Oulby ríkisritara fyrir
hönd Bandaríkjanna og ræðis-
manni Geddes fyrir hönd Breta,
og Sir Duglas Hazen fvrir hönd
Canada.
Maður einn St. Luis, sem vann
í kolanám, hafði nýlokið við mið-
dagsverðinn niður í námunni, og
lagt sig fyrir á bekk sem þar stóð
og hafði sófnað, en vaknaði við
að mús hljóp upp í buxnaskálm-
ina á öðrum fætinum á honum.
Maðurinn stökk á fætur, en rétt í
því datt kolastykki mikið ofan á
bekkinn sem maðurinn hafði legið
á og muldi hann. Maðurinn sem
hugsað hafði músinni gott til
glóðarinnar, en hann skifti um
skoðun, tók lífgjafa sinn heim
til sín, þar sem hann er í bezta
yfirlæti og á góða daga.
Sömuleiðis er sagt að hingað til
lapds sé verið að flytja sunnan að,
beilmtkið af iketi, en af þeirri
vöru á Canada nægta nóg og hefir
miðlað öðrum nokkrum bitum fyr-
irfarandi og gerir enn.
Hér er miki'l umferð á strætum
segja sumir að gangandi fólk hafi
lítinn rétt á sér, aðrir að það hafi
fullan rétt til að nota strætin á
við hjólatæki. Jafnframt er sagt
að það standi ti'l að hækk aflutn-
ingsgjáld með sporbrautum upp í
8 cent, ef samþykki fæst til af
nefnd þeirri sem yfir þjóðnytjum
ræður. pir í Cálgary ætla ekki
að verða minni; tíu cent í skæra
skildingum vilja þeir hafa í
þeirri borg fyrir að flytja mann
bæjarleið, og selja fjögur tickets
fyrir kvartinn, — til þess að mæta
auknum útgjöldum, er sagt.
Enn geysa skógaröldar eystra
þó slokknaðir séu þeir af rign-
ingu er fyrst kviknuðu. Nú er
Logi ikominn til Nýfundnalands
en ekki sagður mjög hættulegur,
því að rigningar eru þar tíðar.
Nokkrar mílur austur af Halifax
logar skógur á tíu milna svæði en
fiöldi manna er þar kominn að
drepa hann, svo tæplega breiðist
hann út.
Ein sú óvenjulegasta huggun
sem sögur fara af á þessum tím-
um er sú sem getið er um í nafn-
kendu blaði, að prísarnir séu
likir lyftivélum: þeir verði að
koma niður öðru 'hvoru, til þess
að geta farið upp!
Kirkjuþing presbyteriana hefir
staðið yfir í Ottawa undanfar-
andi daga, á meðal margra mikils-
varðandi spursmá'la sem þar hafa
verið til umræðu er eitt sem nefnt
er spursmál vesturlandsins, og
snertir það aðallega innflutt fólk
og framtíð þess, eftir því sem
presti einum frá Winnipeg, séra
D. N. MrLaohlen sagðist frá í
ræðu er hann flutti á sunnudag-
inn var í Ottawa.
Hann spáði því að eftir 15 ár
hér frá, þá yrðu leiðtogar fólks-
íms í vesturfylkjunum ekki af
“Anglo-Saxneskum ættum. Hann
benti á Ihin mörgu tungumál sem
þar væru töluð, og hve mismun
andi hugsunarháttur þessa fólks
væri. Hann benti á að hópar af
þessum útílendingum, margir
þeirra stórgáfaðir væru að nema
kenningar Karls Marx (alþektur
.sóSialisti), í stað kenningar
Krists.
SPursmál vesturfylkjanna verð-
ur ráðið með því að eins, að veita
þessum ungu mönnum aðgang að
heilbrigðri mentun, og glæða orð
Krists og anda í sálum þeirra”
sagði prestur þessi.
Hvaðanæfa.
lagsmönnum, en er það fékst ekki,
tóku læknar sig saman að skeyta
ekki sjúklingum og stóð svo er
seinast fréttist.
Bandaríkin
Eftirlaun hermanna sem tóku
þátt i þrælastríði Bandaríkjanna,
og enn eru á 'lífi, hafa verið færð
upp úr $ 30 um mánuðinn, og upp
í $ 50, og eftirlaun þau sem ekkj-
ur þeirra sem féllu, eða dáið hafa,
hafa verið færð upp um $ 5, á
mánuði eða úr $ 25,00 og upp I
$ 30,00 um mánuðinn.
Á fundi skólaráðs Babista
prestaskóla austur í Rochester
var isamþykt að veita konum að-
ganga að skólanum jafnt og karl-
mönnum, og að þær -skyldu njóta
sama réttar og menn við námið,
og útskrifast með sömu menta-
stigum og karlmenn.
Samningar á milli Bandaríkj-
anna og Canada um laxveðar,
voru undirskrifaðir í Washington
Sá stjórnarformaður sem nýlega
lét af stjórn í ítalíu, kvaðst von-
ast til að eftirmaður sinn og hans
starfsbræður gætu komið á sannri
endurbóta stefnu í landsmálum.
Hann kvað tvennan háska búinn
landinu: að þingið væri fyrirlitið
af landsmönnum og fjárhagur
landsins í hinni mestu óreiðu.
Fljótið Mississippi rennur fram
hjá borginni Memphis og gerir
þar stundum usla sem víða annars
staðar meðframbökkum sinum. Ný-
lega gróf hún undan járnbrautar-
stöðvum í nefndri borg og í sama
flóði skaut upp eyju i fljótinu þar
fyrir framan með eyrum og grynn-
ingum, sem heftu skipaferðir.
í einni prísund Bandaríkjanna
ganga fangar lausir gegn loforði
upp á æru og trú að strjúka ekki
cg halda settar reglur, en sú til-
högun útbreiðist smátt og smátt.
Nú kom fyrir að einn fanganna
strauk og fór huldu höfði víða unz
hann var gripinn. Maður var alt
af á hælum hans, er tilheyrt hafði
prísundinni og fanganna félags-
skap. Mannskepnan var dæmd af
hinum föngunum til sex mánaða
einveru og fullrar saðningar einu
sinni á hverjum þremur dögum.
Svo gafst honum strokið.
Sögu flytja blöð eftir flótta-
manni frá Síberíu, að Kolchak
flotaforingi, sá er reisti rond við
þjóðstjórninni á Rússland, var tek-
inn höndum, hafður í búri, og
fólki boðið til að skoða hann fyrir
litla borgun. pað hafði troðist
kring um búrið og ausið yfir hann
háði og -brigzli, en náði ekki til
hans að misþyrma honum. Eftir
það var hann leiddur til aftöku,
og var svo ákveðið, að hann skyldi
vera skotinn. Hermenn, er til
þess voru settir, neituðu að hleypa
af, þegar til kom. Kolchak hafði
staðið fyrir byssukjöftunum og
reykt rólegur vindling, svo sem
ekkert væri um að vera. pau urðu
lokin á, að yfirmaður aftökudáta
gekk að Kolchak, greip í hárið á
honum með annari hendi og skaut
hann ska^nmbyssuskoti til bana.
petta er nú síðasta fregnin,
Margar höfðu áður borist um af-
drif hans og geta tæplega allar
verið sannar.
I
í litlum bæ í Svissland var með-
al annara sýninga í leikhúsi einu
sú, að stúlka lét nöðru mkla, er
hún hafði tamið, hringa sig utan
um sig; en er á því stóð, byrjaði
hún að veina og kalla á hjálp; á-
horfendur klöppuðu lof í lófa,
hugðu þetta vera part í sýningar-
leiknum, unz sýningarstjóri skildi
að naðran kreisti sig utan um
-stúlkuna af afli, hljóp til og rot-
aði orminn með byssuskoti. Stúlk-
an varð ekki lífguð, var marin og
beinibrotin til bana.
Þingmannsefni útnefnt.
Fuliltrúar er kjörnir voru fyrir
nokkru til að útnefna þingmanna-
efni Norrisstjórnarinnar í næstu
kosningum, komu saman á mánu-
dagskvöld. :par vaí margt
manna auk fulltrúanna og margar
ræður fluttar. Á fundinum voru
tiilnefndir merkis'berar stjórnar-
ir.nar í öllum hinum gölmu kjör-
dæmum. Nú er, sem kunnugt
er, allur bærinn eitt kjördæmi, og
þingmannaefnin útnefnd öll í
einu. pessir hlutu útnefning,
sumir eftir ítrekaðar kosningar:
Hon. Thos. H. Johnson, W. L.
Parrish, R. Jacob, R. N. Lowery
og Ör. T. G. Hamilton, allir í einu
hljóði. peir ihafa allir verið
þingmenn að undanförnu, en hinn
sjötti, fyrrum dómsmálaráðgjafi
Hudson, skoraðist undan endur-
kosning til þings, þó gjarnan
segðist styðja vilja stjórnina utan
þings. Aðrir er kosningu hlutu,
voru: Mr. F. Law, Mrs. R. A.
Rogers, Mr. John Stovel, Mr.
D. Cameron.Mr. W. Gi-bben.
Af ræðum er þeirra getið, sem
ráðherrarnir fluttu Hon Thos. H.
Johnson kvað stjórnina hafa gert
meira en staðið við loforð sín,
hún hefði haft ';óðar gætur á
þörfum og hagsmunum fylkls-
búa, og jafnan ger( ráðstafanir
til að fullnægja þeim og gæta
þeirra, og þó stjórnin þættlst ekki
alfullkomin, gæti hún með góðri
samvizku sagt, að bún hafi staðið
vel í stöðu sinni á þeim vanda-
sömu og erviðu timum er yfir
stóðu þegar hún tók við stjórnar-
taumunum. Hon. Dr. Thornton
hvað stjórnina enga tilraun hafa
gert á undanförnum árum til að
þvinga skoðanir eða sannfæringu
þeirra er -henni hefðu fylgi veitt
að undanförnuj, miklu fremur
hefði mátt segja, að stjórnin hefði
fylgt þeirra tillögum og svo hlut-
drægnislfiust, að þaðan stafaði sú
litla mótstaða, er stjórninni hefði
veitt verið. Margir aðrir fluttu
ræður, er góður rómur var gerð-
ur að.
Eins og áður 'hefir verið tilkynt (
heldur sunnudagsskóli Fyrstu lút.
kirkju “picnic” sitt í Keenora'
Park laugardaginn 26. júní. Auk j
ferðarinnar á bátnurn, sem er
sjaldgæf skemtun í þessum bæ, j
verður -mjög vandað til skemtana
þegar í skemtigarðinn kemur. par
fara fram kapphlaup af öllum
tegun-dum, knattleikur og ýmsir
gamanleikir of margbreyttir til að
telja upp hér. Ice Cream fyrir
alla. Vinum skólans er boðið að
koma með börnunum og njóta
þeirrar heilbrigðu skemtunar, sem
þar verður á -boðstólum.
Ur bœnnm.
Friðrik Nielsson frá Árborg,
Man. kom til bæjarins á þriðjudag-
inn.
Mr. Tryggvi Ingjaldsson er
staddur í bænum um þessarmund-
ir í erindum fyrir sveit sína.
Kvennfélag Skjald-borgarsafn
aðar heldur Basar þann 16. og
17. þ. m. í kirkjunni. Fólk er sér-
staklega beðið að minnast þess,
því þar gefur að líta góðan varn-
ing og gotit verð.
Lárus Sigu-rjónsson skáld dvel-
ur í borginni'um þessar mundir;
hann kom 'hingað með systur sína
Mrs. Jóhann Sigbjörnsson frá
Leslie til lækninga.
Næsta sunnudag kl. 11 f.h. verð-
ur, að forfallalausu, í Fyrstu lút-
ersku kirkju haldin guðsþjónusta
sérstaklega til-einkuð nemendum
Jóns Bjarnasonar skóla. petta er
samkvæmt venju undanfarandi [
ára í sambandi við skólaslit. j
Næsta dag á eftir, m-ánudaginn 14. j
júní, fer fram skólalokah'átíðin í
Good Templara salnum á Sargent
Ave., og 'hefst kl. 8.15 að kvöld-
inu. par verður til skemtunar
mjög mikið af góðum söng. Ræð-
ur verða allar stuttar og fluttar
af nemendunum, sem eru að út-
skrifast. Verðlaunum verður út-
býtt. Allir velkomnir. Samskota
leitað til arðs fyrir skólann.
Góðar brautir.
Frá flestum fylkjum landsin-s,
og víðar að eru menn komnir hing-
r.ð til borgarinnar að ræða um
vegagjörð. í þeim hóp eru
margir ráðherrar úr ýmsum fylkj-
um, og ýmsir er góð skil kunna
á vegagerð, af lærdómi og reynslu.
Fyrirlestrar og fræðandi tölur
hafa ve-rið fluttar um nauðsyn
góðra vega innanland-s, um hvern-
ig gera skuli vegina sem traust-
astia og endingarbesta, hverja
þýði-ngu góðir vegir hafi fyrir
landið, svo og um viðhald þeirra
og margt annað. Jafnframt stend-
ur yfir sýning á allskon-ar áhöld-
um sem höfð eru til að búa til
vegi, slétta þá, raka, bera ofan í
o. -s. frv., svo hundruðum skiftir,
stór og smá, sem er nýstárlel sjón
þeim er ófróðir eru í þeim efnum. |
Vegagerð útiheimtist breytilegri -
og traustilegri og miklu -meiri en |
áður gerði-st í flestum löndum,
með því að flutningur og ferðalög
innan héraða aukast æ meir og
meir.
Sýning á notkun sumra þeirra
hefir einnig farið fram utan til í
bænum.
Ný stofnun í landsheilla skvni.
Hr. Grímur Laxdal kaupmaður
í Árborg, Man., kom til borgar
innar á þriðjudaginn.
DORKAS PICNIC
Laugardaginn 12. júní 1920, í
Keenora Park, — báturinn legg-
ur af stað klukkan 2.15 e. h.
Mr. G. J. Oleson, ritstjóri frá
Glenboro, Man., dvelur í þorg-
inni um þessar mundir ásamt fjöl-
skvldu sinni.
Nokkur herbergi
563 Maryland St.
til leigu að
Á Frakklandi hafa þeir lagt
skatt á allar persónur sem eru ut-
an hjónabands eftir vist aldurs-
takmark. Einn meðlimur stjórn-
arinnar hefir stungið upp á því,
að létta þeim skatti af hinum
friðari hluta þjóðarinnar, með því
stúlkur kjósi ekki einlífi af sjálfs-
dáðum, heldur “verði hjón” ef þær
fái færi til. Kvenréttinda félag
þess lands sendi manninum þakk-
ar ávarp, þótti hann vel mæla og
fara með sannindi.
í Madrid á Spánverja landi hafa
læknar lagt niður vinnu, þeir er
sinna sjúklingum verkamanna fé-
laga fyrir vissa borgun. Heimta
2. þ.-m. voru gefin saman i
-hjónaband í kirkju Fríkirkju safn-
aðar í Argyle bygð hr. Percy Don-
ald Fraser, frá Keewatin, Ont.,
og ungfrú Fjóla John-son, dóttir
porsteins 'bónda Johnson á Hólmi.
Hélt porsteinn rausnarlega veizlu
heima hjá sér að ilokinni hjóna-
vigslunni, og sátu þá veizlu á
annað hundrað manns. Ungu
hjónin lögðu samdægurs af stað í
brúðkaupsferð suður í Bandaríki.
Gefin saman í hjónaband af
séra Rúnólfi Marteinssyni, að 557
Agnes St., 2. þ.m., þau Halldór
Vopni og Olga Davidson. — 3. þ.m.
voru gefin saman í hjónaband af
sama presti, að 493 Lipton St.,
þau Kristj-án Hinrik Jóhannesson
og Guðrún Piálína Sigurðsson.
Hvorutveggju voru þessi brúð-
læknar hærra endurgjald af fé- hjón frá Winnipeg.
Svo er sagt að félag hafi mynd-
ast tíl að fá innflytjendur til þess
að setjast að á auðum löndum
vestanlands. Félags-skapur í
þessu skyni er ekki nýr, en þetta
nýja félag er ®agt með þeirri
furðu skapað, að meðlimir þess
hafi ekki fjármunalega hagsmuni
af aðgerðum þeim, heldur sé stofn-
sett af mönnum með 'hug á fram-
förum landsins og vilja til að
styðja það sem því er fyrir beztu.
Allir fésýslumenn vestanlands eru
sagðir standa að baki þessari fé-
lagsstofnun ásamt þeim s-em
skildingaráð hafa austanlands.
pað er því ekki nema eðlilegt að
íyrirtækinu sé vel tekið í blöðun-
u-m.
Svo er sagt að um 20 miljón
ekrur bíði ræktunar á sléttunum
einu-m saman, sem virðist vera
komið í eign einstaikra manna, er
hvorki stjórn né járnbrauarfé-
lög geta lagt í. En hin nýju
samtök ætla sér að hafa samvinnu
með þei-m. Oflítið þykir hafa
verið hugsað fyrir því, að fá inn-
flyténdur til að setjast á lönd sem
þeim hæfðu. Félagið ^ætlar sér
að hafa menn til að taka á móti
innflytjendum þegar þá ber að,
veita þei-m upplýsingar og að
stoð sem þeir þurfa með, og hafa
hönd í bagga með þeim fyrstu ár-
in, meðan þeir eru að koma fót
unum fyrir -sig. Sömuleiðis á að
greiða fyrir þeim sem sig flytja
vilja milli fylkja, fýsir að skifta
um bústaði af einhverjum ástæð-
um, og koma þannig í veg fyrir
útflutning s'kilgóðra manna úr
landi. Með þessu er gamli van-
ínn aftekinn að láta hvern berast
eftir atvikum og vild í stað þess
að venja við þá strags við land
siði og borga-ravenjur. Lönd hafa
verið í höndum gróðamnna hér
vestra, að undanförnu er mjög
hafa auðgast á þeim, en af því hef-
ir stafað að löndin hafa bygst
miklu tregar en élla. Um til
högun að öðru leyti er ekki getið
nema a'ð tstjórnend'ur fylkjanna
standi allir bakvið félagsskapinn
Mrs. Ingibjörg Thorlacius Bergmann
GARDAR, N. DAK.
Fædd 19. júlí 1854—Dáin 22. marz 1920.
Öðum kvöldar; þeim fjölgar einlægt leiðunum lágu. En
“á fegra landi gróa blómin bláu, í bjartri dögg við lífsins helg-
an straum.” Svo er lífsins saga.
Hér kvöldaði í ár; Mrs. Ingibjörg sál. Bergmann, kona Ei-
ríks Bergmanns á Gardar, var lögð í sína gröf. Hún, sem um
langan aldur bygði höll svo blýja og bjarta; hún, sem veitti
straumum yls og birtu út um bygðina sína; hún, sem kunni
móðurtökin á börnunum sínum, og náði hreinustu og fegurstu
tónunum á hljómstrengi sálna þeirra — hún lagðist þreytt til
hvíldar, er hún andaðist að heimili sínu 22. marz í ár. Jarð-
sungin var hún á Gardar 25. s. m. að fjölmenni viðstöddu.
Banamein hennar var innvortis sjúkdómur, sem hún þjáð-
ist af lengstan hluta æfi sinnar, en ágerðist á efri árum og dró
hana til dauða. í vetur sem leið, var hún orðin svo farin að
heilsu, þessi prýðimyndarlega kona, að hún var ekki orðin nema
svipur hjá sjón er hún dó. Stanslaust var dauðinn að verki;
og fyrir augunum á ástvinum hennar, þeirra er heima voru,
rénuðu kraftar hennar si og æ og ljfsþrótturinn þvarr. pján-
ingar sínar bar hún með hugprýði 'og barnslegri ró til síðustu
stundar. Andlát hlaut hún hægt og milt, líkt og þegar birtan
er að dofna og barnið fer að sofna. pá var hún 65 ára að aldri.
Mrs. Ingibjörg sál. Bergmann var eyfirzk að ætt. Faðir
hennar var Pétur Thorlacíus, sonur séra Hallgrims Thorlací-
usar, prests á Hrafnagili, föðurbróðir frú Guðrúnar ekkju séra
Friðriks Bergmanns; og móðir hennar var Kristín ólafsdóttir,
föðursystir séra Kristins Ólafssonar á Mountain og þeirra syst-
kina. Bjuggu þau foreldrar hennar á Stokkahlöðum i Eyjafiröi
og eignuðust auk hennar einn son, er dó ungur. En til fósturs
tóku þau tvö bræðrabörn sín: Hallgrím Thorlacius Einarsson,
sem nú er -bóndi á Gardar, og Kristgerði ólafsson, sem nú er
kona Guðlaugs Erlendssonar í Wyndmere, N. Dak.
Ingibjörg sál. ólst upp í heimahúsum hjá foreldrum sínum;
og þá er þau tóku sig upp og fluttu til Ameríku með fóstur-
börnin sín 1873, fór ihún með þeim og yfirgaf þau aldrei upp frá
því á meðan þau lifðu. pá er komið var vestur, settust þau að
í Wisconsin. En að ári liðnu deyr faðir hennar þar. Lifir hún
þá með móður sinni og annast hana og fósturbörnin eftir mætti,
þar til 1876, að hún giftist eftirlifandi manni sínum, Eiriki
Bergmann, og tekur fólkið sitt heim til sín. Er móðir hennar
hjá þeim hjónunum til dauðadags, og fósturbörnin þar til að
þau giftast. Reyndist hún æ þessu fólki sínu með þeirri trú-
mensku og snild, sem einkum voru einkenni hennar alla æfi.
Yfir 40 ár lifði hún í mjög farsælu hjónabandi, og var
mannsins síns önnur hönd í hvívetna. Allstaðar vildi hún
koma fram til góðs öllum gera gott og alt færa til betri vegar.
Aldrei vorkendi hún sjálfri sér, þó hún yrði eitthvað á sig að
leggja og eitthvað að líða; en hún kendi í brjósti um svo marga
aðra, sem áttu eitthvað bágt. Og allar sínar skyldur rækti hún
æfinlega af ýtrasta megni á meðan mátti. pessi góðlega og
stillilega sómakona, sjálf ímynd friðarins hvar sem hún sást,
utan húss og innan, gerði sannarlega sitt til að gera garðinn
frægan.
Fyrstu hjúskaparárin sín bjuggu þau Bergmannshjónin í
Minnesota. En 1880 fluttu þau til Dakota, og settust þá að á
Gardar, og hafa dvalið hér síðan alla tíð. Hér gefur því að líta
aðal æfistarf þeirra ibeggja; er það bæði mikið starf og marg-
vislegt, og miðaði ekki að því einu, að sjá sér og sínum far-
borða, heldur var það og ávalt þeirra áhugamál, að sjá bygðina
sína blómgast og blessast í öllum greinum. Hennar hag og
sóma báru þau fyrir brjóstinu; velgengni hennar og fegurð
langaði -þau að sjá, og eittihvað af því fengu þau að sjá. Heim-
ili þeirra hjónanna mun ávalt hafa verið i lang-fremstu röð, að
öllum myndarskap, snyrtimensku, gestrisni og góðgerðasemi, á-
nægju og hlýju. Enda sóttu þau margir heim, aðkomumenn
sem bygðarbúar, og nutu þar aldrei nema góðs. Á meðal
þeirra, sem þessi bvgð á allar sínar framfarir að þakka munu
Bergmannshjónin lengi í minni höfð. Og miklar þakkir verð-
skulda þau bæði, fyrir starfið sem þau unnu—steinana, sem þau
ruddu úr braut, og byrðarnar sem þau báru, til almennings-
heilla—á meðan þau áttu samleið hér. Saknaðarefni mætti það
því mörgum vera, þegar hún er nú fallin frá, sem svo mikla al-
úð og trúmensku sýndi í öllu því sem verða mætti til góðs.
Enda mun hennar heldur hvergi nema að góðu getið.
Guð blessaði samúð og samleið þeirra hjónanna með fjór-
um börnum, sem hann gaf þeim. Eitt þeirra mistu þau nýfætt,
en þrjú eru enn á lífi. Eru það: Hjálmar Bergmann lögmað-
ur í Winnipeg, Friðrik Pétur Bergmann fasteignasali i Willis-
ton, N. Dak., og Kristín Bergmann, sem heima er. Dýrustu og
hjartfóignustu gimsteinana sína lætur Ingibjörg sél. eftir sig
þar sem börnin hennar eru. Innan um allar minningarnar um
hana, verður móðurminningin lang-fegurst. Og það er sú
minning, sem lengst verður geymd, og -bezt verður geymd, í
hjörtum barnanna hennar, sem foreldrum sinum eru til mikils
sóma og mikillar gleði, bæði lifs og liðnum.
Ætti eg svo að túlka tilfinningar hins aldurhnigna og upp-
gefna ekkjumanns við leiði konunnar sinnar sál., þá yrði einna
bezt komið orðu-m að því með þessum stefjum skáldsins:
Eg sá um mitt. En hún var húss míns hjarta,
og húss míns sól og yndi; hvílík móðir!
Og þó að margir svannar séu góðir,
með sæmri kostum færri mundu skarta.
Hún gerði marga mæðudaga bjarta.......
En sjálf er hún nú laus við mæðudagana alla og skartar í
ljósi 'eilífðarinnar. — Guð blessi ástvinum hennar allar þeirra
minningar um þvílíka eiginkonu og þvílíka móður.
Páll SigurSsson.