Lögberg - 10.06.1920, Síða 4
Ble. 4
LOtirBSiRG, FIMTUDAGFNN 10. JÚNf 1920
S>
ecg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Press, Ltd.JjCor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: GARRY 416 og 417
Jón J. BíJdfell, Editor
Ijtanáskrift til blaðsins:
TlfE COLUMBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Winnipeg. Mai-
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Mán.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið.
mm
Heimskringla og mentamálin.
1 síðasDíí bLaði iHeimskringilu, er upphaf
á ritgerð sem nefnd er stefnuskrá Norris-
stjórnarinnar, og’ þó, að það sé ekki vani vor,
að svara ritgerðum fyr en þær eru allar komn-
ar út, þá stendur nú svo á, að bæði krefjast
kringumstæður, og eins sannleiksgildi málefnis
þess sem hér liggur fyrir til umræðu, þess, að
vér verðum greinarhöfundinum í Heims-
kringlu samferða á braut mentamálanna, og
eins verklegra framkvæmda hér í Manitoba
í tíð Norrisstjórnarinnar, ef vera kynni að hann
3’rði þá stöðugri á vegi sannleikans en ella.
I þessum fyrsta kafla sem birtist í síðustu
Heimskringlu, eru mentamál, fylkisins aðal-
lega gerð að- umtalsefni, til leiðbeiningar ís
lenzkum kjósendpm við í hiind farandi kosning-
ar, og eru þar fjögur atriði dregin fram, sem
dæmi þess, hve óhæf Norrisstjórnin sé til að
veita þeim málum forstöðu.
I. Málið um sameiginlegan skóla, í Norður-
. stjörnuskólahéraðinu, í kjördæmi Skúla Sigfús-
sonar.
II. Sprague skólahéraðið.
III. lra Stratton.
IV. Háskóli Manitoba fylki.
/.
Tihlrögin til þess að myndaður var sam-
eiginlegur skóli (Consolidated school) í Norð-
urstjörnu skólaheraðinu eru víst sanngjarn-
lega, og hlutflrægnislaust sett fram í téðri grein
— menn hafa eflaust gjört það til þess að spara
ef unt væri, og líka til þess að gefa fullkonmari
mentun en verið hafði, ef kostur væri á.
Skólinn var myndaður, og börnunum ekið
á hann af þremur mönnum, og á þremur pörum
akneyta.
Alt gekk vel, unz kom til þess að reisa
nýjan skóla, því Norðurstjörnu skólahúsið varð
brátt of lítið, og var þó einhver hluti barnanna
Játinn stunda nám í Únítarakirkjunni.
En slíkt íVrirkomulag gat náttúrlega ekki
orðið til frambúðar, og því var tekið til að ræða
skóla byggingar málið, en þá kom ósamlyndi út
úr því hvar skólinn skyldi standa.
Norðanmenn kröfðust, að skólinn yrði
færður nær sér, svo hægt væri að bæta við enn
fleiri mönnum í skólahéraðið úr þeirri átt.
Sunnanmenn kváðu skólann bezt settan
þar sem Norðurstjörnu. skólahúsið stóð; enda
ætti skólinn þar ágætt skólastæði, og góðan
leikvöll.
En alt kom fyrir ekkert, Norðanmenn voru
ósveigjanlegir, og kröfðust þess að skólahérað-
inu yrði aftur skift, en áður en nokkuð er af-
ráðið í málinu, var gjörðarnefnd sett í það, til
þess að sjá hvort ekki væri hægt að miðla mál-
um og jafna sakir. í nefnd þeirri sátu þrír
valinkunnir menn, og voru þeir þessir:
Björn S. Líndall f\Trir hönd Norðanmanna
Guðmundur Breckmann fyrir hönd Sunnan-
manna, og Parker skólaumsjónarmaður fj’rir
hönd mentamáladeildarinnar.
Þessir menn, sem allra fnanna bezt þektu
kringumstæðnr allar, og sem hver maður sem
þá þekkir ber fylsta traust til, tóku nú málið/til
grandgæfilegar athugunar, og komust að þeirri
niðurstöðu, að eini mögulegi vegurinn fvrir
j essa tvo piálsaðilja í Norðurstjörnu skólahér-
aði, væri að skilja, og var sá úrskurður birtur
öllum hlutaðeigendum.
Vér hyggjum að maðurinn í Heimskringlu
segji satt þegar hann segir, að meiri hluti skóla
héraðsmanna, og líka meiri hluti skólanefndar-
manna (ekki allir, eins og Heimskringla segir)
hafi verið samhuga um að láta skólann nýja
standa þar sem Norðurstjörnu skólinn stendur.
Og þegar svona var komið málum, munu þeir
hafa sent ó fund mentamála ráðherrans, og
farið fram á að hann tæki í strenginn, og léti
uppreisnar, eða útgöngumenn beigja sig nauð-
uga viljuga undir vilja meiri hlutans, og þvert
ofan í dóm gjörðarnefndarinnar.
En allir sanngjarnir menn, Qg sannleiks-
elskir, geta sjálfir skorið úr því, hvort afstaða
sú, sem mentamála ráðherrann tók í þessu máli
að láta gjörðar dóminn standa og þröngva eng-
um til þess að vera í þessu skólahéraði sem ekki
vildi vera það, er heillavænlegri fyrir menta og
menningarmál vor, lieldur en sú sem höfundur
greinarinnar í Heimskringlu heldur fram.
II.
I sarnbandi við þetta Norðurstjörnu skóla-
mál, verður greinarhöfundi mjög tíðrætt um
mann einn sem liann nefnir “mentfrömuð”
“barnakennara” og “sjaldgæfan vísinda-
mann”.
Maður þessi er Ira Stratton, sem hefir það
cmbætti Iijá mentamála stjórninni, að hjálpa til
að koma á stofn barnaskólum hjó því fólki sem
þarf þeirra með, en hefir ekki samtök, eða tök
á því sjálft, að lítvega hæfa kennara við þá
skóla, og í mörgum tilfellum að koma f jármála-
legu ástandi slíkra skólahéraða í sæmilegt horf.
Ira Stratton hefir víst aldrei gefið sig út
fyrir að vera mentafrömuður, eða vísindamað-
ur — hefir o:ss vitanlega aldrei gefið sig út fyr-
ir að vera annað en hann er, umsjónarmaður
barnaskóla, að því er verklegar framkvæmdir
snertir á meðal fólks þess í Manitobafjdki.
sem ekki er fært um að veita slíkum málum for-
stöðu sjálft.
Það er sagt að þessi maður, hafi verið
sendur af mentamála stjórninni í Manitoba, til
þess að semja frið með löndum vorum í Norður-
stjörnu skólahéraðinu, og að hann hafi átt með
þeim nokkra fundi, og “sannfærst strax um
það, að meirihlutinn með allri skólanefndinni,
eigi og skuli, beigja sig fyrir hinum fáu mönn-
um sem voru í minnihluta. En er hánn fær
eigi héraðsbúa til að hlíta þessum úrskurði,
iáðleggur hann að láta leysa upp héraðið, og
skifta í tvö smáhéruð, er síðan hafa hvorugt
getað staðið alminlega straum af skólahaldi”
segir Heimskringla.
Ira Stratton var að eins á einum einasta
fundi, sem haldinn var í Norðurstjörnu skóla-
héraði. K>Tnti hann sér málið, en lagði engan
úrskurð á í því, og hlýtur greinarhöfundurinn
að fara villur vegar, að því er umsögn hans í
téðri grein snertir um afskifti Ira Stratton af
málinu.
En það er eins og þessi maður Stratton,
hafi unnið sér mjög til óhelgis hjá hofundi
greinarinnar í Heimskr., því hann ekki einasta
sakfellir hann fyrir það sem hann átti lítinn
eða engan þátt í, heldur ræðst hann á persónu
mannsins, á útlit hans og skapnað, og er þá
skörin komin upp í bekkinn, þegar menn
liafa ekki annað málstað sínum til varnar.
Höfundur greinarinnar segir að Ira
Stratton sé “Höfuðstór, úteygður, brúnamikill,
varaþunnur, tanngarðurinn mikill og búkurinn
allur í gildara lagi, handstór og hrikalegur,
beinin stór og liðamót öll.”
Svo var og Abraham Lineoln, og hefir hon-
um aldrei verið talið slíkt til háðungar, og því
síður þjóð þeirri sem hann vann.
III.
Þá er að minnast á Sprague sveitina hér í
austurparti fylkisins, sem greinarhöfundurinn
fer um allmörgum orðum og vill auðsjáanlega
reyna að ná sér niðri, því oss finst við lestur
þessarar greinar að hann muni finna til þess,
hve bráðnauðsynlegt sé að bæta um ástæður til
saka á hendur mentamála stjórninni, ef skrifin
eigi að hafa nokkur áhrif, en til allrar ólukku
lendir hann svo þarna austur í Sprague — aust-
ur í skógum, en í skógnnum er villigjarnt eins
og menn vita.
Greinarliöfundurinn segir að helza bygðin
í Jieirri sveit sé íslenzka bj’gðin við Pine Valley
Segir hann að íslendingar hafi numið land
fyrstir manna í sveitinni, og hafi búið þar
einna-lengst, sem er nú ekki ótrúlegt, ef þeir
námu þar fyrstir land, og búa þar enn.
Strax í bvrjun segir greinar höfundurinn,
að landar vorir hafi komið á hjá sér skóla, til
þess að afla börnum sínum mentunar. Þetta
er ekkert nýtt á meðal íslendinga, því þeir gera
það alstaðar.
Og svo Jiðu árin, og með líðandi árum fer
íólk að flytja inn í sveitina — allra þjóða fólk
sezt_ á skógarlöndin, og tekur að vinna skóginn
— fólk með fjölda barna sem komin voru á
skólaaldur .
Hvað átti nú þetta fólk að gera ? Ekki gat
það alt sent börnin sín á skólann til Islending-
anna. Atti það að byggja sér skóla sjálft
samkvæmt lögum landsins, eða láta börnin sín
alast upp án barnaskólamentunar?
Það tók sama ráðið og íslendingarnir, og
myndaði skólahérað og bjTgði skólahús, án þess
«ð Norrisstjórnin eða mentamála ráðherra
þeirrar stjórnar ættu þar nokkurn þátt í.
Skólar þeir komu eins og aðrir skólar und-
ir lög og umráð sveitarinnar, sveitin lagði
skólagjahl á alla þessa nýkomnu bændur, og þó
að^ bækur Sprague sveitar kynnu að sýna all-
stórar upphæðir sem sumir þessara manna
hafa svikist um að borga, þá er ekki sanngjarnt
að ásaka mentamáladeildina fjTrir það.
Innköllun á skattfé sveita til skólaþarfa er
í höndum sveitastjórna, og ef þeir sem inn-
heimtu á slíku fé höfðu með höndum ár fram
af ári, létu þessa menn höggva viðinn af lönd-
um sínum og selja hann fyrir peninga, og fara
syo í burtu án þess að borga skólaskatt sinn,
þá er bezt að sú skuhl skelli á þeim sem sekir
eru en ekki á saklausum mönnum, eins og þeim
sem fyrir mentamáladeild fylkisins standa.
Og jafnrangt er hitt, að gefa mönnum 1
skyn að skólum hafi verið hlaðið niður í þess-
ari sveit af mentamáladeildinni, eins og beinast
Jiggur við að halda eftir þessari Heimskringlu
grein. Þar stendur: “Skólar hafa verið settir
upp hvervetna, en viðhaldi þeirra og öllum
kostnaði varpað upp á sveitina, samkvaimt nú-
gildandi lögum.”
Það hefir að eins einn einasti skóli verið
bygður að tilhlutun mentamála deildar fylkis-
ins í Sprague sveit, og í honum eru nú sem
stendur innrituð 26 börn.
Hinir allir, hvort heldur þeir eru nií marg-
ir eða fáir, eru bvgðir af sveitarmönnum sjálf-
um og eru því í og undir umsjón sveitarstjórn-
arinnar, að því er til fjárframleiðslu kemur,
að undanteknum þeim ákveðna stj’rk sem fylk-
ið veitir.
Upp á hvað hefir þá höfundur Heimskr.
greinarinnar að klaga?
Veitti.ekki fylkisstjórnin hinn lögákveðna
fjárstyrk, til þessara skóla í Sprague sveit?
Hann veit ofur vel að ákveðið er í skóla-
lögnm, á hvern hátt skólar og skólahéruð skulu
stofnuð.
Atti að brjóta Iög á þessu fólki í Sprague,
og neita því um þau réttindi sem öðrum borg-
urum fylkisins eru heimiluð, nefnilega þau, að
veita börnum sínum mentun ?
Hann veit líka, að hvorki hafði stjórnin
rétt til þess, þegar skólahéruð eru mynduð
lögum samkvæmt, né heldur léti nokkur ærleg-
ur mentamála ráðherra sér detta nein s'lík
þrælatök í hug.
Börn þessa fátæka fólks áttu sama rétt á
að njóta mentunar eins og börn Islendinganna,
og eins fyrir það, þó foreldrar sumra þeirra
flyttu burt úr Sprague sveitinni, þegar atvinnu
þeirri er þau stunduðu var lokið.
“Þetta er saga alþvðuskóla málanna” seg-
ir greinarhöfundurinn, eftir að hann hefir tal-
að út um Sprague sveitina.
Ekki vildum vér byggja sáluhjálp vora á
því, að saga alþýðuskóla málanna sé sannleik-
anum samkvæm, eins og hún er sögð í þessri
Heimskringlu grein.
Framh.
-------o-------
Landbúnaðar-ráðgjafi Manitoba
látinn.
Sú liarmafregn birtist í morgunblöðunum
hinn 8. þ.m., að landbúnaðar ráðgjafinn í Mani-
toba, Hon. Valentine Winkler, hefði látist á
sjúkrahúsi í Morden kvöldið áður. Báðgjafinn
hafði farið þangað á laugardaginn í kýnnisför
til sonar síns, er umsjón hefir með óðali ættar-
innar þar í bygðinni. Seinni hluta mánudags-
ins veiktist Mr. Winkler snögglega og var liðið
lík að kvöldi. Hann hafði veitt forstöðu land-
búnaðardeild f\Tlkisins síðan að Norris stjórnin
komst til valda árið 1915 og notið óskifts trausts
embættisbræðra sinna í ráðaneytinu, sem og al-
mennings í heild sinni.
Mr. Winkler var fæddur í Neustadt, Grey
County, Ont., 18. marz 1864; voru foreldrar
hans David Winkler og Barbara J. Lang. er
]>ar bjuggu um langan aldur. Að loknu alþýðu-
skólanámi fluttist hann fimtán ára gamall til
Manitoba og gaf' sig við timburverzlun nokkra
hríð, en gerðist því næst bóndi skamt frá Mor-
den og reisti þar fyrirmyndarbú. Afskifti Mr,
Winklers af opinberum málum hófust með því,
er hann á ungum aldri var kosinn oddviti í Stan-
ley sveitinni, þar sem Mordenbær stendur, og
sýíidi hann í þeirri stöðu bæði skörungsskap
og góða forsjá. Hann var kosinn fyrst á þing
árið 1892 fyrir Rhineland kjördæmið gamla í
stjórnartíð Greenways, en við kjördæmaskift
ing Roblinstjórnarinnar var Rhineland sam-
einað við Morden kjördæmið og kallað Morden-
Rhineland. Mr. Winkler var endurkosinn 1896
og eins 1899, og við fall Greenway stjórnarinn-
ar varð hann einn af áhrifamestu alidstæðing-
um Roblinflokksins í fylkisþinginu.
Eins og kunnugt er, var allmikill hiti í
kosningunum 1914 og sendu íhaldsmenn þá lít
einn sinn öflugasta mann, W. J. Tupper, til höf-
uðs Winkler, en svo fóru leikar, að hinn síðar-
nefndi vann kosninguna með miklum meiri
hluta og hefir verið fulltrúi þessa sama kjör-
dæmis jafnan síðan.
Valentine Winkler var frjálslyndur fram-
faramaður í orðsins sönnustu merkingu, >Tfir-
lætislaus, einlægur og stefnufastur. Hann kom
ávalt til dyra eins og hann var klæddur og bar
aldrei kápuna á báðum öxlum. Hann var lítill
málskrafsmaður, en svo segja þeir, er honum
vorp handgengnastir, að fáir menn muni hafa
haft víðtækari þekkingu á fylkismálum en ein-
mitt hann. Undir forystu Winklers hefir land-
búnaðurinn í Manitoba tekið svo stórstígum
framförum að furðu sætir, ekki sízt þegar tek-
ið er tillit til þess, að þjóðin átti í ófriði því nær
alla bans ráðgjafatíð.
Mr. Winkler lét sér mjög umhugað um
að bæta hag nýbyggja þeirra, er tekið höfðu sér
bólfestu víðsvegar um fylkið. Má í þvi sam-
bandi benda á lagabálk þann, er hann átti frum-
kvæði að og alment er nefndur “Winkler’s
Cow Bcheme”, sem orðið hefir efnalitlum frum-
byggjum að miklu liði.
Landbúnaðurinn í Manitoba hefir mikið
mist við fráfall Wiiiklers, en fylkið ber lengi
minjar liinna margvíslegu þjóðnytjamála, er
hann beitti sér fyrir og hrinti í framkvæmd.
-------o-------
Þjóðrœkni.
Já, íslenzkir viljum við vera
á Vesturheims iðgrænu sléttum,
og hver annars byrði að bera,
við bróðurhönd hvor öðrum réttum,
og eins þó það kunni að kosta
kjaptshögg og barsmíði stundum,
með þjóðernis rembing og rosta
menn rífast og skammast á fundum.
“ Er það ekki munurV’
Þó feðratungan flytji
oss fugla og gígju klið,
og brothljóð blárra kletta
og brims og fossa nið,
er enskan eitthvað mýkri,
með unaðs hlýrri blæ,
því íslenzkt mál á ekki
neitt orð, sem þýðir “Pie”.
K. N.
PENINGASENDINGAR
TIL BANDARlKJANNA
Bændum, kaupmönnum og alm enningi er boðið að nota sér
þjónustu bankans, þegar senda skal peninga til Bandaríkja.
THE ROYAL BANK 0F CANADA
HOFUDSTÓLL og VARASJÓDUR . $35,000,000
ALLAR EIGNIR.......... $558,000,000
5%
VEXTIR 0G JAFNFRAMT
O ÖRUGGASTA TRYGGING
Leggið sparipeninga yðar I B% Fyrsta Veðréttar Skuldabréf með arð-
miSa — Coupon Bonds — I Manitoba Farm Loans Association. — Höf-
uðstéll og vextir ábyrgst af Manitoba stjórninni. — Skuldabréf gefin ðt
fyrir eins til tiu ára tímabil, I upphæðum sniðnum eftir kröfum kaupenda.
Vextir greiddir viO lok hverra sex mánaOa.
Skrifið eftir upplýsingum.
Lán handa bændum
Peningar lánaðir bændum til búnaðarframfara gegn mjög lágrl rentu.
Upplýsingar sendar tafarlaust þeim er æskja.
The Manitoba Farm Loans Association
WINNIPEG, - - MANIT0BA
“LOVE and PRIDE.”
Motto: Fáir munu þeir íslendingar vera hér í
landi, er heirrlan að hafa komið fullorðnir, sem
náð hafa jafn góðum tökum á ensku—”.
—Hkr., 12. maf.
Her “finale obtestation”, with “sobs akin to those” of yore,
The lady “þronounced” to her jilted lover, proud and sore.
“Immense” was her “tremor”, “her form so prostrate with
despair”,
“To render its reminder” hc gazed upon her then and there
With “infinite hopelessness, agony and suffering,
Portrayed in his look”, — yet he spurned the tender offering
Of lov and joy; in his pride there was no curvature,
And so ihe told her straight: “ihe would not accept her overture.”
On this point he dwelt in a rather long soliloquy,
And thereupon sihe fainted with feminine alacrity.
Snowy-pale, “motionless” altogether, “as if dead” —
What a sight to look at, for such a hero, born and bred!
“It became disclosed to him that she was all his life to him”,
And so the sad thing happened, for when a person full of vim
Loses all his self-control,—the foook philosophizes thus—
Yea, then the consequences are “apt to be calamitous.”
A “portion of strychnin”, “the strongest poison of that kind”,
Was “wildly” “intaken”—Ihe chanced to call the dose to mind;
It had been “intended for a possible emergency” —
And straightway “it diffused”, with electrical celerity,
All through his.system”, “his giantphysic” stood it not;
But then a hurried phone-summons “brought the doctor on
the spot.”
“Resuscitation” followed the “physician’s genuine antidote.”—
“They reconciled” and married and “honeymooned to”—parts
remote.
Thanks be to Kringla for sampling phrases such as these,
For now we know for sure that the book is quite a masterpiece:
Six hundred pages of striking lexicography,
And then the story ends with “electrical celerity.”
One of the Victims.
First Lutheran Church, June 16th 70
Söngflokkurinn, og Soloists:
Mrs. S. K. Hall, Mrs. Alex Johnson, Mr. Gísli Jónsson,
Mr. Paul Bardal, Mr. Alex Johnson, Mr. Alfred Albert,
Mr. C. F. Dalman, Cellist
1. Ó, GuS vors lands...........................Sveinbjörnsson
Söngflokkurinn
2. Baritone Solo—Selected..........................
Mr. Paul Bardal
3. Duet—Selected...................................
Mr. og Mrs. Alex Johnson
4. Soprano Solo—Selected...........................
Mrs. S. K. Hall v
5. Cello Solo—Tarantella.............................. Popper
Mr. C. F. Dalman
6. Double Quartette ...............................
7. Cello Solo—Dedication ............................. Popper
Mr. C. F. Dalman
8. Anthem—Láttu guSs hönd þig leiSa hér ...........S. K. Hall
Sörlgflokk.urinn
KANTATA....................................... Sveinbjörnsson
Sungin viS komu konungs tíl íslands 1907.—TileinkuS Hans
Hátign KriSpiki konungi áttunda
I. Velkominn, hilmir, af hafi ....................
Söngflokkurinn, og
Mrs. S. K. Hall, Soprano
Mr. A. Albert, Tenor
II. Dana gramur....................................
Söngflokkurinn, og
Mr. Gísli Jónsson, Tenor
III. Danmerkur ljóö...........................-....
Söngflokkurinn, og
Mr. Gísli Jónsson, Tenor
IV. Norræni stofninn ..............................
Söngflokkurinn
GOD SAVE THE KING
PROF. SV. SVEINBJÖRNSSON, Pianist
MR. S. K. HALL, Sóngstjóri
AÐGANGUR: 75 CENT. Byrajr kl. 8
Ráð til að hafa hemil á engisprettum.
Stutt ágrip.
Engisprettnr fnndnar í Saskatchewan.
Sprettur þær sem komu upp og- dreyfðust um útsuður-
part f>Tlkisins árið 1919, voru ekki “seytján ára” tegundin.
Sú plága, sem tekur sig upp við og við, eru ekki engisprettur í
réttri merking. Þær, sem mikinn skaða gerðu 1919 voru gagn-
sæjar (Camnula pellucida) og reykitegundin smáa (Melan-
oplus Atlanis). Aðrar í smærri breiðum og óskaðvænni eru
þær tvístrykuðu (Melanoplus bivittalus), rauðfættu (Melan-
polus femur-rubrum) og Packrds engisprettur.
Engispretturnar koma úr hýði seint á vorin, vanalega í
maí og éta gráðugt jarðargróður frá þeim tíma til uppskeru.
Þær eru fullorðnar seinni part júní eða snemrna í júlí og byrja
að verpa kring um mánuð þar eftir. Flestar verpa í léttan eða