Lögberg - 10.06.1920, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. JÚNÍ 1920
Ble. 5
MlXTDF
^^DsoN'S 0
COMPANV
Lang frœgasta
TÓBAK 1 CANADA
Komið til 54 King Street
og skoðið
Electric Washing Machine
Það borgar sig að leita upplýsinga
City Light & Power
54 King Street
Til bænda er selja rjóma!
Vér getum nú boðið allra hæzta verð út í hönd fyrir rjóma
og greiðum allan kostnað, er af flutningnum leiðir. Vér leggj-
um oss í framkróka með að gera viðskiftavini vora ánægða;
eigum líka í vissum skilningi hægra með >að, >ar sem vér fá-
umst einungis við smjörgerð, og þrjátíu ára reynsla vor í þeirri
grein ætti að gefa bændum hvöt til þess að senda rjóma sinn
beint til
THE MANITOBA CREAMERY COMPANY, LIMITED
846 Sherbrooke Street
\
WINNIPEG - - - MANITOBA
A. McKay, framkvæmdarstjóri Meðmæli Bank of Toronto
Auður er bygður á sparsemi
Ef þú þarft að vinna hart fyrir peningum þín-
um, þá láttu paningana vinna hart fyrir þig.
Sparisjóður vor borgar 3 prct. árlega og er vöxt-
unum bætt við höfuðstólinn tvisvar á ári.
THE DOMINION BANK
NOTRE DAME BRANCH,
SELKIRK BRANCH,
W. H. HAMILTON, Manager.
W. E. GORDON, Manager.
Hillmann, ungum efnismanni. pau
byrjuðu búskap á leigulandi, sem’
þau síðan keyptu. Farnaðist þeim
vel efnalega, en sérstaklega bar
þó heimili þeirra vott ást og at-
orku. Fráfall hennar er því, frá
mörgum hliðum átakanlegt harms-
efni. 24 ára heimilisrækin hús-
freyja deyr frá 4 smábörnum, þá
stendur faðir þeirra eftir sem
þrumulostin eik. Söknuðurinn
eykur lúa mæddra foreldra; en
sveitarfélagið verður á bak að sjá
mjög ábyggilegu heimili. Endur-
miningarnar einar lifa með sárs-
auka sínum og sælu og viðhalda
viðreisnarþránni.
tltför Guðrúnar sál. fór~fram
frá heimili foreldra hennar þann
25. maí. Almenningur sveitar
fylgdi henni til grafar, en maí-
veður þann dag samihljóðaði at-
höfninni. Haglskúrir skiftust á
við næðings-nepju, sem vék að lok-
um fyrir sólskini og yl í heiði.
Svo fer börnum guðs í Kristi.
P. H.
ísafold og Lögrétta á ísiandi eru
1 beðin að endurprenta og flytja
þessa andlátsfregn.
G. B.
Wonderland.
prjár merkilega góðar myndir
þessa viku á Wonderland. prjár
enn betri næstu viku og vikuna
næstu þar á eftir má sjá Nazi-
mova, Harold Lockwood og Mon-
roe Salisbury. Miðvikudag og
fimtudag i þessari viku má sjá
Constance Talmadge í “Experi-
mental Mariage”, á föstudag og
laugardag Francelia Billington í
“The Day She Paid.” Næsta mánu-
dag verður sýndur hlægilegur
leikur “A Twilight Baby”. Næstu
viku verða Blanche Sweet, Alice
Lake og Edith Robert í leikjum.
16 feta borð og hvlja 2 fet og 7 þml. af meiðunum. Tvö fet af
þessu bili verða gólf í stokkinn, sem er tveggja feta hár og 16
feta langur. Sjö þml. framan til halda uppi íbjúgum upp-
stöndurum, sem eru skornir úr 1x8 þml. borðum, eftir því sem
myndin sýnir. Eftir anælingunni verður að fara, sem þar er
sýnd, svo rétt bugða fáist á tinskjöldinn. Uppstandarar eru
negldir á hjólið og þverspítur grópaðar í þá.
Vörina má búa til úr venjulegu þakrenuujárni, ein hliðin
flött út á við og negld í gólfið, sem á myndinni er sýnt, en skjöld
urinn úr galvaníséruðu járni eða tini er negldur á uppstand-
araiia. Neðri brúnin er negld á lægstu þverrimina og síðan á
hverja af þeim efri. Eftir að skjöldurinn er á festur, er drag-
ið, 2 þml., 6 þml. og 24 fet, sett á sinn stað og ýtt að
brúninni þar til opið milli lægri brúnar skjaldar og varar er
hálfur annar þuml. Fremri brún varar ætti að vera um 4 þml.
frá fremri hlið skjaldar. Með því verður vörin nógu brött til
að kasta öllum sprettum, sam fyrir henni verða, inn í stokkinn
fyrir aftan hann og hindra að þær skríði út á ný.
Stokkinn má smíða áður eða eftir að skjöldur er negldur á
sinn stað. Það er miklu auðveldara að gera þetta á undan og
það hjálpar til að styrkja uppstandarana, þegar skjöldurinn er
festur á. Myndin af grindinni með dragið á réttum stað, en
óneglt á, sýnir hvernig áhaldið lýtur út áður en járnið er
neglt á.
Þegar búið er að smíða skjöld og vör, þá er spíta með gróp-
um fyrir uppstandarana negld ofan á stokkgrindina, jafnhátt
skildinum sem sjá má á þversku rðarmyndinni. Hvín gerir ekki
að eins að loka hverri opnu, sem á þeim stað kann að verða,
heldur má ^g negia á hana hjörur stokkloksins.
Stokkinn má hólfa svo hægra sé að ná úr honum og liafa
lok yfir hverju hólfi. Á imyndinni eru tvö hólf sýnd og tvö lok.
Lokin og afturveggur stokksins eru vírsett. Þetta veldur, að
•sprettumar færast aftur í stokkinn frá brúninni, með því að
þær skríða á Ijósið þegar að þeim þrengir.
1 endana hefir stokkurinn þunn borð, sem standa fram af
sem á myndinni er sýnt. Tilgangurinn með að láta endana
standa fram með meiðunum, er sá, að hindra það að engisprett-
ur komist undan með því að hoppa meðfram vélinni.
Strengur eða mjó spíta er negld framan á meiðana til þess
að fá engispretturnar til að hoppa og hitta skjöldinn.
Sitt af hvoruim enda vélarinnar standa spítur fram, svo
hestarnir færist ekki livor að öðrum. Hestarnir eru festir við
dráttarbjálka, unglingar geta riðið þeim, eða ef taumar eru
hafðir, þá má festa innri tauminn á spíturnar, sem fram úr
standa.
Engisprettur verpa aðallega í ágústmáuuði. Ef þau egg,
sem eru í eggjapokumi nálægt yfirborði, eru látin óhreyfð til
næsta vors og veður eru hagstæð, þá mun mikið af þeim skríða
út. En ef eggja hýðin eru hrist upp með diskherfi eða plógi
þá fyrirferst mikið af þeim. Yænsta ráðið, til að eyða hýðun
um er að plægja djúpt að haustinu, enda að vorinu líka, ef
djúpt er plægt áður en í þeim kviknar. Að diskherfa slegið
íland tvívegfis, dugar einnig ve,l, mikilJ 'liluti eggja í'yðist
við það, en ékki er þeirri aðferð mikið hrósað. Við diskherfing
sundrast egghýðin og sól og kuldi vinnur á þeim. Ef plægt er,
færast egghýðin svo djúpt niður, að ungarnir komast ekki upp
að vorinu.
Myndir af þeim verkfærum, som hér er lýst, verða að bíða
næsta blaðs.
i
I
lausan jarðveg, sú gagnsæja á gras eða raklendi og smáa
flökkutegTindin á slegna grund. Ungu spretturnar eru í svo
þéttum breiðum, að ekki sex' í jörð fyrir þeim, og þegar þæi'
ganga í akra éta þær alt svo að ekki verður örmul eftir. Síð-
ast í breiðunnni eru þær, sean seinastar skríða út, og þær sópa
í sig öllu sem þær fyrri kunna að hafa eftir skilið.
Aðferðir til að hamla engisprettum.
1. Eitrun.
Með því eitrn bran og strá því fyrir hópana, má eyða þeim
á fyrsta skeiði, sem hentast er, áður en þeim yaxa vængir. —
1 pund af Paris Green (eða Arsenic)
20 þund af Bran 2 pottar af sýrópi
3 Oranges eða Lemmons
tvö og hálft gallon af vatni.
Branið og eitrið er vel blandað þurt í þvottabala eða öðru
hentugu íláti. Ef mikið þarf að brúka, þá má hræra saman á
stórum 'strigadúk. Ávextirnir eru brytjaðir eða malaðir í
smátt og blandaðir í vatni við púðursykurinn. Þessi blanda
síðan látin í hið eitraða bran og vel hrært með spýtu eða klár.
Síðan er ætinu dreift eins þunt og verða má, þar sem engi-
spretturnar em mestar. Bezti tíminn að bera út eitrið er vit-
anlega um sólar uppkomu eða stuttu þar á eftir. Tuttugu
punda þungi er nægilegt á reit, sem er 60 rods á lengd og 1 á
breidd. Beituna skyldi ekki bera út í köldu eða votu veðri, því
að ekki éta þær þegar svo stendur á. Eitrið verkar seint, en
afleiðingar ættu að sjást eftir tvo sólarhringa.
Þar sem sprettur eru miklar á stóru svæði, er bezt að velja
vissa staði til að blanda eitrið á, svo sem einn fyrir heilt town-
•ship eða meira. Þeir sem eiturs þyrftu með kæmu þá til þessa
staðar, þar sem eitrið er blandað og látið í té með hæfilegu
eftirliti. Með þessu móti er beitan öll blönduð á sama hátt og
úti látin á S'aina tíma.
2. Sprettu stcfir.
Þessi áhöld eru þannig tilbúin, að trog úr galvaníséruðu
jámi, 16 feta löng, 20 eða 26 feta víð og 3 og hálfs þuml. djúp
með eins og Jiálfs þuml. brún, sem snýr niður og inn á við, til
að fyrirbyggja að kerosenið skvettist út, og milligerðir, með
fjögra feta millibili til að hindra að út skvettist til endanna.
Þetta trog er á meðum úr borðum, 8 feta löngum og olíudúkur
festur á það; sleipa hliðin snýr að troginu, vel þanin á upp-
standara. Keðja úr hlekkjum er fest á meiðana, svo laust að
bún dregst með jörðu til að styggja spretturnar. Spítur eru
negldar á meiðana, 2x6 þumil., með fram endum trogsins, er
ná um þrjú fet upp fyrir þá. Hross er spent fyrir og aktaum-
ar festir á þessar spítur; bilið milli þeirra 22 fet. Vatn og olía
er þá látið í trogið , einn eða tveir þuml. á dýpt af hinu fvrra,
hálfur til heill þuml. af hinu síðara og með það er engisprettu
sæfirinn fullgerður.
3. Verkfari til að veiða engisprettur.
Fyrst skal búa til meiða úr 2x4 þml. viðum, negla svo á þá
Ur ýmsum áttum.
Til þess að takmarka vínnautn
hefir sá, sem þau ráð hefir í
Washington, lagt ti.l að enginn
læknir megi gefa út fleiri ávísan-
ir á brennivín en sem svari einu
hundraði um hvern ársfjórðung.
væntanlega hefir skamturinn, sem
á lyfseðil mátti setja, verið áður
takmarkaður með lögum.
í símfrétt frá Los Angeles segir
svo: Metúsalem, eginmaur önnu
drotningar dó í dag, sextugur að
aldri. Hinir strútarnir í strúta-
búi N N eru sagðir að sakna hans.
Flest er hey í harðindum og frétt-
ir á friðartímum.
Meðan stóð á afgreiðslu landa-
skifta í Slésvik, samkvæmt friðar-
samningunum, voru þar hersveit-
ir frá Frakklandi, er síðan héldu
til Kaupmannahafnar og fengu
þar góðar viðtökur, sérstaklega sú
sveit er í voru veiðiskyttur frá
Alpafjöllunum.
Lögfræðingaþing er haldið 1
Portsmonth á Englandi þessa
rtaga af fulltrúum frá flestum
löndum. Forseti fundarins kvað
samband þeirra holdgaða hug-
mynd þess sem öllum riði mest á,
sem sé The League of tihe World.
í Japan hefir verið mikið um
fjárþrot að sögn^ en bankar hafa
ataðið af sér óáran og tjáist pen-
ingaverzlun þar komin í bærilegt
horf með að stoð stjórnarinnar.
—peir sem vinna á járnbraut-
um á írlandi tóku þá ákvörðun
nýlega, að ekki ákyldu neinir í
þeirra hóp vinna að flutningi
skotvopna með járnbrautum, í
róstum þeim sem sagt er að gerist
þar víða um land. Járnbrauta
vinnumenn á Engiandi ætla að
halda allsherjar fulltrúa þing um
þetta og taka þar ákvörðun af eða
á.
Á stærsta spítala í stórborginni
St. Louis var sérstakur partur
ætlaður þeim sem teknir voru fast
ir fyrir ölæði. Nú er sú deild
lögð niður, með því að enginn kom
þar. par hafi áður verið mann-
kvæmt, þar ti'l vínbannið komst á.
Tveir menn komu inn í gim-
steinabúð í New York og báðu um
að 'lofa sér að sjá dýra gimsteina;
þeim voru sýnd mikil djésn, en
þegar minst varði silógu þeir pipar
i augu seljandans og stukku burt
með 100 þúsund dollara virði.
petta skeði í helztu verzlunargötu
borgarinnar, að sögn.
Nýlega hópuðu sig saman 2,000
konur í London, er á skrifstofum
vinna, stjórnar og borgar, og
gengu í fyilkingu með fánum er á
voru letraðar kröfur þeirra, “Jafnt
káup við karlmenn og engar gæl-
ur.” Mikill rigning var þann
dag^ en ekki létu stúlkurnar það
íyrir standa, heldur fóru sem
þær höfðu ætlað sér.
Yfir 'hundrað verksmiðjueig-
endur og iðnaðar fórsprakkar
komu til boirgarinnar í gær, aust-
an úr landi. peir fengu hér
góðar viðtökur, var sýnt inn í
iðnaðar stöðvar bæjarins og gefið
að borða eftir á. Tölur fluttu
Sir James fyrir fylkið og mayor
Gray af borgarinnar hálfu. Ferða-
menn hóldu síðan vestur eftir
landi og silógust nokkrir í hóp
þeirra héðan, á fund iðnaðarfé-
lagsins sem halda skal í Vancou-
ver næstu daga.
Bolsheviki uppþot varð ekki alls
fyrir löngu í Jugo-Slavíu. Véla-
byssur voru notaðar í Belgrade
til þess að reyna að koma á reglu
og féll fólk þar í hundraða tali.
í fleiri bæjum þar í landi hafði og
mannfall orðið.
Andlátsfregn.
pann 22. maí s. 1. andaðist á
sjúkrahúsinu í Innisfail, Alberta,
húsfreyja Guðrjin Hillmann frá
Markervilile, Alta.
Fædd 8. mai 1896 á Mýrum í
Húnavatnssýslu, dóttir Guðmund-
ar Björnssonar, frá Hlíð í Ko'lla-
firði, Strandasýslu, og konu hans
Helgu Gestsdóttur frá Tungu í
Bitru. — Hjá foreldrum sínum
ólzt hún upp og flutti með þeim
vestur um Ihaf árið 1900, til Pem-
bina sýslu í N. Dak, en 1901 til
Markerville, Alberta. — Giftist 12.
nóv. 1913 Jóhanni Hermannssyni
Kjósendur í Winnipeg
Fyrirlestur um
HLUTFALLS
K0SN1NGAR
heldur
Mr. A. E. Parker, Fditor Canadian Finance
MIÐVIKUDAGINN 9. Júní
Klukkan 8 að kveldi
MAIN LECTURE HALL
Board of Trade Building [Industrial Bureau|
Skorað á kjósendur að fjölmenna
WE HAVETHERED
MAN TO THANK
Fyrir að finna eitt hið bezta læk nislyf, sem heimur-
inn þekkir.
Löngu á undan hvítum mönnum fundu Indíánarnir
hina óviðjafnanlegu lækningar eiginleika í Salinvatn-
inu úr Little Manitou Lake, Sask.
Meðöl unnin úr þessu vatni eru nú löngu komin á
markaðinn víðsvegar um heim.
SAL MANITOU
EFFERVESCENT SALINE