Lögberg - 26.08.1920, Blaðsíða 7
LÖGBERG FIMTUADGINN 26. ÁGÚST 1920.
Bl«. 7
TANLAC LŒKNAR
HOTELMANN
%
Harry McAvoy, vel þektur hótel-
maður í Los Angeles segist hafa
eytt stórfé og reynt allra handa
lækningar án árangurs þar til
hann fór að nota Tanlac. Pjáð-
ist í tuttugu ár.
“Árið 1900 misti eg heilsuna og
á þeim tveim áratugum eyddi eg
afar miklu fé í heilsuleit,” segir
Harry McAvoy, (hjá Alexandra
Hotel í Los Angeles, sem er eitt
stærsta og mesta hótel í suður-
hluta Californiu.
“Eg leitaði til leiknustu sér-
fræðinga í New York, Chicago,
New Orleans og Seattle. Eg reyndi
(öll ráð, sem skildingar máttu
jkaupa, en ekki fékk eg annað en
stundarlinun í staðinn. Eg var
hræðilega vonlítill um bata og
hélt eg mundi verða sjúklingur
alla mína ólifuðu daga.
o-vé trrtðmi ppsyðri-I””ó nagó!!
“Eg hafði hægðateppu þá verstu.
Var í raun og veru aumingi af
meltingarleysi, varð ekíi gott af
neinu og þjáðist af öllum táknum
meltingarkvilla. Hjartslátt hafði
eg svo mikinn, að eg hélt eg hefði
hjartabilun, og varð svo vesæll
og máttfarinn með köflum, að eg
reikaði og hné út af hvað ■ eftir
annað, áður en eg gat náð í nokk-
uð til að halda mér uppréttum.
“Eg var orðinn hræddur við að
Jata nokkurn mat ofan í mig, því
það olli mér kvala eftir á, brenn-
andi sviða í kviði og bringu.
Svefn! Hva, eg vissi ekki hvað
það var að sofa heila nótt! Eg
lagðist fyrir, lá kyr í nokkurn tíma
þar til mér varð svo órótt, að eg
mátti til að fara úr rúmi og ganga
pm gólf. Taugarnar voru nærri
þilaðar með öllu og eg gat jafnvel
ekki setið kyr við að skrifa bréf.
J3g léttist og misti mátt, unz eg
gat varla gengið, og eg er einlæg-
lega sannfærður um, að enginn
maður í öllum heiminum tók meira
út en eg gerði þá.
“í haust leið fann eg, að ekki
dugði svo búið og afréð að reyna
Tanlac, sem eg hafði lesið svo
mikið um. Jæja, herra minn, það
er sú stærsta og sælasta furðu-
stund, sem eg hefi lifað, því mér
fór strax að líða betur. Lystin
batnaði, eg fór að sofa værar og
að styrkjast von ibráðar. Svo eg
hélt áfram að 'brúka meðalið og
eftir fáar vikur voru öll mín mein
burtu vikin, öll saman, og eg var
orðinn 15 pundum þyngri.
“Frá þeim degi til þessa hefi
eg verið betri til heilsunnar, en
nokkru sinni áður á æfi minni.
Eg kenni hvorfki verkjar né kvala,
eg et hvað sem mig langar í og
verður ekkert meint af; finst
sannlega eg vera nýr maður, með
nægta nógu fjöri og kröftum.
Taugarnar eru stöðugar og sterk-
ar, mig svimar aldrei og sef vær-
um og hressandi svefni.”
“Tanlac hefir verið mér gulls
ígildi og allir heimsins skilding-
ar gátu ekki keypt mér þau gæði,
sem það veitti mér.’”
Tanlac er selt í flöskum og fæst
í Liggett’s Drug Store, Winnipeg,
og hjá kaupmönnum út um land.
Fæst einnig keypt Ihjá The Vopni-
Sigurdson, Ltd, Riverton, Man.
Félagið islendimjur ,
(Eftir Vísi.)
Svo sem áður er getið hér í
blaðinu, var aðal fundur félagsins
Islendings haldinn í Iðnaðar-
manna húsinu síðastliðið laugar-
dagskvöld.
pað er tilgangur félags þessa að
efla samúð með íslendingum vest-
an hafs og austan og styrkja landa
vora þhr vestra til þess að vernda
þjóðerni þeirra. Hafa þeir og
stofnað félag í því skyni, eins og
frá hefir verið skýrt hér í blaðinu,
og starfa af miklum áhuga og ó-
sérplægni.
■Samkvæmt áskorun frá félaginu
íslendingi, veitti síðasta alþingi
fé til þess að' sendimaður færi
héðan og freðaðist meðal landa
vorra vestan hafs, en félagið lét
það af mörkum til fararinnnar,
sem efni þess leyfðu.
Til vesturfarar þessarar var
ráðinn séra Kjartan prófastur
Helgason í Hruna. Hann var ekki
vanur slíkum ferðalögum, og var
í fyrstu tregur til fararinnar, en
lét þó til leiðast, fyrir fortölur
margra manna. pað mun leitun
á manni sem * jafnvel hefði verið
kjörinn til slíkrar farar sem séra
Kjartan. För hans gekk að öllu
leyti að óskum, honum var hvar.
vetna tekið tveim höndum og
einróma lofi að skilnaði.
Á fyrnefndum fundi flutti hann
erindi um för sína. í fyrstu var
ráðgert að hann flytti það í efra
sal Iðnaðarhssins, en hann reynd-
ist alt of lítill, og var fundurinn
þá fluttur í stóra salinn nirði, og
var hann fullskipaður áheyrend-
um.
Séra Kjartan skýrði frá ferðum
sínum um bygðir lslendinga, alt
frá Winnipeg til Vancouvereyjar
við Kyrrahafsströnd. Hann hafði
flutt erindi á 40 til 50 stöðum og
voru þau jafnan vel sótt, stundum
afbrigða vel. Auk þess prédikaði
hann í mörgum kirkjum íslend-
inga stundum tvisvar á dag.
Hann gat ekki nógsamlega lofað
þá gestrisni og innilegu alúð, sem
hann hafði hvarvetna mætt, o^
sagði hann að sér hefði mjög
gengið til hjarta sú ættjarðarást,
sem ihann hefði orðið var við hjá
mörgum löndum vorum og ræktar-
semi þeirra til lands og þjóðar.
í fyrirlestrum sípum sagðist
h^nn jafnan hafa leitast við að
skýra, hvers virði það væri í and-
legum skilningi að vera íslend-
ingur og hver sá auður væri, sem
geymdist í íslezkum bókmentum.
Að Jokum talaði hann um við.
hald íslenzks þjóðernis vestan
þafs og kvaðst sannfærður um,
að'það mundi verða langlíft og
miklu langlífara en nokkurn hefði
grunað. Lagði hann einkanlega
áherzlu á það atriði og kvaðst hafa
komist á þá skoðun í vesturför-
inni, en áður hefði hann verið
miklu vondaufari í því efni.
Máli hans var mjög vel tekið af
áheyrendum og að lokinni ræðu
tók til máls forseti félagsins Ein-
ar H. Kvaran rithöfundur, og
þakkaði séra Kjartani ræðu hans
og erindrekstur vestan hafs. Skor-
aði hann á fundarmenn að ganga
félagið og urðu margir til þess.
pó væri félaginu enn þörf nýrra
meðlima, sem unna tilgangi þess.
pegar ræðu séra Kjartans var
,lokið, var aðalfundur félagsins
haldinn, lagðir fram reikningar og
starfsmenn endurkosnir. í stjórn
félagsins eru: Einar H. Kvaran,
forseti, Dr. Guðm. Finnbogason
próf., varaforseti, Garðar Gísla-
són, féhirðir, og Baldur Sveinsson
fitari.
Æskilegt væri að nýir félags-
menn gæfi sig fram við einhvern
þessara manna. Árstillag er 3 kr.
en inntökugjaldi ráða menn sjálf-
jr og fer það eftir efnum og á-
stæðum.
------o------
ÆFIMINNING
Jóhanna Jóhannesdóttir Einarsson
fædd 14. sept. 1839
dáin 10. júlí 1920
Hún var fædd á Tjörn 1 Aðal-
Reykjadal í pingeyjarsýslu. Voru
foreldrar hennar Jóhannes Odds-
son og kona hans Guðný Krist-
jánsdóttir bónda á Brúum, býli
sem var skamt fyrir sunnan
Grenjaðarstað, en nú í eyði. Kona
Kristjáns, móðir Guðnýjar, hét
Vilborg Pétursdóttir, merkiskona,
vel greind. Oddur faðir Jóhann-
esar föður Jóhönnu bjó á Hróars-
stöðum í Fnjóskadalt var por-
steinsson; kona hans, móðir Jó-
hannesar, hét Guðfinna Sigurðar-
dóttir bónda á Hróarsstöum.
Jóhanna fluttist meS foreldrum
sínum frá Tjörn 9 ára gömul að
Ytra Fjalli í Reykjadal og með
þeim þaðan eftir 4 ár að Strönd-
um í Reykjahverfi, og var þar til
þess hún fór í vinnumensku þil
Friðriks bróður síns, sem þá bjó
á Fljótsbakka. ÁriS 1860 fór hún
austur að Hóli á Hólsfjöllum til
hjónanna Brynjólfá Árnasonar og
Rannveigar Sveinbjörnsdóttur, og
var þar tvö ár, fór svo að Gríms-
stöðum á Fjöllum til Björns
bónda Gíslasonar og konu hans
Aðalbjargar Jónsdóttur; var þar
3 ár. 4rið 1865 fór hún austur að
Brú á Jökuldal og giftist þremur
árum seinna, 1868, Birni Einars-
syni (syni Einars Einarssonar
bónda á Brú og önnu Stefánsdótt-
ur bónda á Gilsárvelli í Borgar-
firSi Ólafssonar.).
Björn og Jóhanna bjuggu á Brú
9 ár; urðu þá að flytja burtu það-
an, þegar askan, sem féll úr
Dyngjufjöllum á annan í páskum
(29. marz 1875) lagði efra Jökul-
dal í eyðv Fóru þau þá norður aS
Fossi í Vopnafjarðar hreppi til
Magnúsar bónda Mikaelssonar og
voru þar árlangt. Fluttu vestur
um haf árið 1876. pau voru á
Gimli fyrsta veturinn, við hörð
kjör sem fleiri; Jóhanna veiktist í
bóluveikinni, var komin hætt; líka
mistu þau dóttur úr veikinni, sem
Anna Ingibjörg hét, fædd á Brú.
Björn nam land í Gimli bygS og
nefndi Berurjóður, og þaðan fluttu
þau hjónin til Norður Dakota í
marzmánuði 1880, fótgangandi,
með einn uxa fyrir sleða, námu
land fyrir austan Mountain og
bjuggu þar 16 ár, fluttu til Ros-
eau, Minnesota 1896 og voru þar
7 ár; fluttu þaSan 1903 vestur til
Vatnabygðanna isvo kölluðu í Sas-
katchewan; ári áður, 1902, fór
Haraldur sonur þeirra vestur
þangað og nam land fyrir sig og
annað fyrir föður sinn í Kristnes-
bygSinni, sem nú heitir. Með Har-
aldi fór í landaskoðunina bóndi úr
Roseau bygðinni, porvaldur por-
valdsson frá Kelduskógum á
Berufjarðarströnd, og nam land i
grend við þá feðga; og þessi fram-
kvæmd þeirra Haraldar og por-
valdar í að nema lönd í þessum þá
lítið þekta parti Norðvesturlands-
ins í Canada, varð til þess. að ís-
lendingar frá Roseau, Minnesota
og Norður Dakota, hófu landnám
í hinni fjölmennu og framfara-
miklu Vatnabygð.
Eftir 15 ára dvöl í Kristnes-
bygð, árið eftir lát manns síns,
fluttist Jóhanna með Haraldi syni
sínum til Elfros, hvar bún lézt
eftir nokkuð langa sjúkdómslegu,
þó þjáningar lítil, þann 10. júlí
síðastl., var löéð til hvíldar hjá
manni sínum í grafreit Kristnes-
safnaðar sunnudaginn þann 11.
Séra Halldór Jónsson hélt hús-
kveðju ög talaði við gröfina. Fjöldi
fólks fylgdi hinni látnu til grafar.
Börn Jóhönnu og manns henn-
ar voru fimm; þrjú dóu í Nýja Is-
landi; þau tvö, sem fullorðin urðu,
Hróðný, kona Friðriks Eggerts-
sonar Vatnsdal, fyrsta íslenzka
verzlunarmannsins í Vatna-
bygðum, hún dó 1906, og Harald-
ur harðvöru verzlunarmaður í Elf-
ros. kvæntur Elínu Guðvaldsdótt-
ur og konu hans Kristínar por-
grímsdóttur frá Hámundarstöðum
í Vopnafirði.
Tvær systur Jóhönnu sál. eru á
lífi, Guðfinna kona Sigurgeirs
Björnssonar, Mountain, N. D., þau
eru tengdaforeldrar séra Kristins
K. ólafssönar; og Oddný, kona
Magnúsar Jónssonar í Eyford-
bygð, N. D. Bræður hennar voru;
Friðrik, dáinn að Akra, N.D., árið
1913, og porsteinn, vel hagorður
maður, dáinn í Mouse River bygð
26. ágúst 1918.
JóHanna var gáfuð kona, mjög
hneigð fyrir bókina,. líka búsýslu
kona, og lét sér ávalt mjög ant
um að alt væri í réttri röð og reghi
sem búi hennar tilheyrði. Hún
var laus við bakmælgi, þolinmóð
og umburðarlynd í margskonar
mótlæti sem fyrir ihana kom á
GIGT
Stórmerk heimalækning: fundin af
manni er þjáftist sjálfur.
Um voriiS 1893 sótti aiS mér vötSva
og bólgugigt mjög illkynjuö. Eg
þjáðist I þrjú &r, eins tilfinnanlega
og þeir einir geta skilið, er líkt hefir
verið ástatt fyrir. Fjölda lækna
reyndi eg ásamt ógrynni meðala, en
alt kom fyrir ekki.
Loksins fann eg sj&lfur meðal sem
dugði. Hefi læknað síðan fjölda
sjúklinga, suma fr& 70-80 ára gamla.
reyna þenna nja læknlerdóm. Sendið
Eg vil láta hvern gigtarsjúkling
enga peninga; aðeins fulla áritun.
Eftir að þér hafitS læknast að fullu,
megið þér senda mér andvirðið, einn
dollar, en munið það, a eg vil ekki
peningana, nema þér séuð fyllilega
ánægðir. Er það ekki sanngjarnt.
J»ví að þjást, þegar lækning er fáan-
leg.
Skrifið undireins.
Mark H. Jackson, 8570 Durston Bldg.
Syracuse, N.Y.
Mr. .Tackson ábyrgist. Ofanskr&ð
satt og rétt.
Business and Professional Cards
æfinni, en gat vel ságt það sem
henni þótti að, hverjum sem í
hlut átti ef þörf var á. Hún og
maður hennar voru gestrisin, og
minnist eg sem rita þetta að þau
tóku mig og konu mína og barn
sem við höfðum seint um haustið
1903, í hús sitt, meðan eg var að
búa um mig á landi mínu í grend
við þau, aðhlynningin sem við
nutum hjá þeim, var veitt af sönn-
um kristilegum kærleika.
Eg sat við rúm hinnar látnu
merkiskonu fáum dögum áður en
hún dó, augu hennar horfðu til
mín, en tungan hafði ekki mátt til
að tala. Hún tel eg víst hefir
verið að hugsa um það sama og
eg, að eftir lítinn tíma yrði hún
Drixik
HVAÐ sean þér kynnuð að kaupa
af húsbúnaði, þá er hægt að
semja við okkur, hvort heldur
fyrir Peninga út í hönd eða að
Láni. Vér höfum alt, sem til
húsbúnaðar þarf. Komið og skoð-
ið munina.
0VER-LAND
H0USE FURNISHING Co. Ltd.
580 Main St., Korni Alexander Ave.
Gyllinœð
Kveljist
eigi degi
lengur af
kláða, af
blóðrás eða niðursigi. Engir hold-
skurðir. Komið eða leitið skrif-
legra upplýsinga hjá AXTELL &
THOMAS, Chiropractors og Elec-
tro-Therapeutrist, 175 Mayfair
Ave., Winnipeg, Man.;— Vor nýja
sjúkrastofa að 175 Mayfair Ave',
er þægileg sjúkrastofnun, hæfi-
lega dýr.
Læknaði eigið kviðslít
ViÖ aö lyfta kistu fyrir nokkrum árum,
kviðslitnaftí eg afarilla. Læknar erögðu aö
ekkert annað en uppskurður dygöi. Um-
búðir komu að engu haldi. Loksins fann
eg ráð, sem læknaði mig að fullu. Síðan
eru liðin mörg ár og heíi eg aldrel kent
nokkurs meins, vinn þó harða stritvinnu
við trésmlðl. Eg þurfti engan uppskurð og
tapaði engum tlma. Eg býð ykkur ekkert
til kaups, en veiti upplýsingar & hvern hátt
þér getið læknast án uppskurðar; skrifið
Eugene M. Pullen, Carpenter 130G Mar-
cellus Avenue, Manasquan, N. J. Klippið
þenna miða úr blaðinu og sýnið hann fólki
er þjáist af kviðsliti—með því getið þér
bjargað mörgum kviðslitnum frá þvl að
leggjast á uppskurðarborðlð.
Reðisterec
On
Everybodys
Lips
flutt yfir á landið eilifa, og sæla
hefir það verið fyrir ihana að koma
þar, sem ihafði lifað og dáið í
sinni kristnu fagnaðar boðsk:
trú.
MEÐMÆU MEÐ U. S. TRACT0R
U. S. Tractor Co.
Minneapolis, Minn.
Kæri herra: —-
pegar eg fékk yður til að plægja land
mitt, þá hélt eg í fyrstu að niðurstaðan mundi
verða sú, sama og vant var. pér megið vita
að eg var ekki lítið undrandi, er eg sá að hin
litla dráttarvél yðar, vann betra verk og meira
en nokkur hinna stærri véla. Plægingin gekk
alveg eins vel í brekkum og dældum, sem á
bezta sléttlendi. Eg get ekki annað en óskað
yður til hamingju með þessa óviðjafnarilegu,
litlu dráttarvél, sem er réttilega rfefnd U. S.
Tractor.
Yðar með virðingu
A. B. Miller,
Atkinson, Minn.
U. S. Tractor Co.,
Minneapolis, Minn.
Herra minn: —
Eftir að hafa séð dráttarvél yðar vinna,
sannfærðist eg um að hún er -ein sú allra
fullkomnasta slíkrar tegundar, sem enn hefir
smíðuð verið. — pað er blátt áfram yfirnátt-
úrlegt, hve miklu jafnlítil vél orkar, þegar tek-
ið er tillit til þess hve óbrotin hún er. En
hún er smíðuð úr allra bezta og vandaðasta
*efni, og það gerir allan muninn; þess vegna
endist hún flestum vélum betur.
Yðar f
Sumner S. Johnston.
Jacson, Florida, 5, maí 1919.
U. S. Tractor Co.,
Minneapolis, Minn.
Kæri herra Werthem: —
Sem svar upp á bréf yðar dags. 28. apríl,
skal þess getið að U. S. Tractor sá, er eg keypti
af yður fyrir tveimur árum, hefir reynst á-
gætlega; engrar viðgerðar þurft á öllum þeim
tíma. Hefði eg ekki reynt þetta sjálfur,
mundi eg varla hafa trúað því, að jafn lítil og
, einföld dráttarvél mundi hafa getað afkastað
eins miklu, og það á jafn hrufóttu grenilandi.
Mér þætti vænt um, að mega taka að mér
umboðssölu á dráttarvél þessari í Florida
ríkinu. Yðar
N. Chamberlain.
U. S. Tractor Co.,
Minneapolis, Minn.
Kæri herra: —
Aldrei hefir vorvinna gengið betur á
landi mínu en nú, eftir að eg fékk eina af yðar
ágætu dráttarvélum. Eg get ekki annað en
látið yður vita af því, svo þér getið tilkynt það
öðru fólki.
Eftir að eg kom á land þetta, hafa flestar
tegundir dráttarvéla verið reyndar, en engin
gefist nálægt því eins vel. Skal með ánægju
svara öllum fyrirspurnum frá væntanlegum
kaupendum, því eg- get með góðri samvizku
mælt með U. S. Tractor.
Yðar með virðingu
Jas. Quinlan.
970 Snelling Ave., St. Paul, Minn.
Vér höfum mörg hundruð bréfa í líka átt
og iþessi, frá bændum víðsvegar um Banda-
ríkin, og til viðbótar leyfum vér oss að geta
þess, að þessi tegund, er sú langfullkomnasta
2—3 plow tractor, sem enn hefir þekst, og vinn
ur jafn vel á hvaða landi sem er.
\ Vér getum sent yður eina slíka dráttarvél
nvenæV sem þér óskið, og ábyrgjumst hana í
alla staði. hvað endingu og frágangi viðkemur.
Yðar með virðingu
U. S. Tractor Co.
Minneapolis, Minn.
U. S. Tractor Co.,
Minneapolis, Minn.
Kæri herra: —
pað fær mér ósegjanlegrar ánægju að
mæla með U. S. Tractor.
Eg hefi búið mörg á í Rauðárdalnum, og
er nú sannfærður um að engin dráttarvél á
jafnvel við jarðveginn þar, og einjnitt þessi.
Hún er svo auðveld í meðförum að allir geta
við hana ráðið fyrirhafnarlaust.
Eg hefi aldrei séð nokkra dráttarvél
vinna verk sitt eins vel.
J. F. Higgins.
Moorhead and Minneapolis, Minn.
U. S. Tractor Co.,
Minneapolis, Minn.
Kæri herra; —
pegar eg var beðinn að fara og sjá drátt-
arvél yða!r vinna, hugði eg slíkt í fyrstu ekki
ómaksins vert; hélt hún mundi vera svipuð
flestum hinna. En eg var ekki ilengi að
skifta um skoðun, enda hefi eg aldrei kynst
jafn góðri dráttarvél og U. S. Tractor. Get
því með ánægju mælt með þenni við hvern
sem er.
Yðar
Andrew S. Sandberg.
Úr Literary Digest. \
“pað er alment álit hugsandi manna, að
dráttvéla iðnaðurinn muni eiga mikla og fræga
framtíð fyrir höndum. Sumir halda jafnvel
að sú grein muni innan skamms skara fram
úr bifreiðariðnaðinum. pessi skoðun er rök-
studd með þeim sannleika, að það eru tvær
miljónir og sjö hundruð þúsund bújarðir í
landinu, sem vel geta veitt sér dráttarvél.
Hvers vegna eru bændur að svipast um
eftir þannig lagaðri hjálp? Svarið er ein-
falt. Kostnaðurinn við vinnudýrahald tekur
því nær fjórðung af inntektum bóndans. Geti
bóndinn lækkað kostnaðinn niður í einn átt-
unda, þakkar hann vitanlega fyrir og verður i
sjöunda himni.”
Mossehorn 30. júlí, 1920.
Mr. T. G. Peterson.
Winnipeg, Man.
Kæri herra; —
U. S. Tractor sem vér keyptum að yður í
apríl síðastliðnum, hefir gefist ágætlega á
hinu mismunandi landi, er hún hefir unnið.
Vér höfum verið að hrjóta land, sem bæði er
grýtt og óslétt, með þéttum runnum. pegar
tekið er tillit til þess hve smá vélin er, má það
hreint ótrúlegt teljast hve gott og mikið verk
hún vinnur, bæði við plæging, sáning, korn-
slátt og þreskingu.
Vér erum reiðubúnir að mæla með henni
við væntanlega kaupendur.
Vér höfum aldrei þurft að láta gera við
vélina enn, þrátt fyrir það, hve mikið hún hefir
verið notuð.
Með ósk um aukin viðskifti,
Yðar
Gustow Schneider.
Ed: Buechler.
Fannestell, 2. júlí 1919
Mr. T. G. Peterson.
Winnipeg, Man,
Kæri herra: —
Eg hefi nú rutt og plægt 100 ekrur lands
og líkar mér dráttarvélin hið bezta.
Byrjaði að vinna með dráttarvélinni þann
9. síðastliðins mánaðar.
James Brue.
Eftir ýtarlegri upplýsingum skrifið
T. G. Peterson, 961 Slierbrooke St., Wpcg.
AÐAL UMB0ÐSMAÐUR I CANADA.
A. G. Carter úrsmiður, selur gullstáss o.s.frv. lc og gleraugu við allra hæfi. Mí prjátíu ára reynsla. Gerir við ^ úr og klukkur á styttri tíma en fólk á alment að venjast. pr 206 Notre Dame Ave. 0g Sími M. 4529 . tVlnnlpeg, Man.
Dr. B. J. BRANDSON te kv 701 Lindsay Building un Tki.e-phonk gakry 380 OrrtcB-TfHAR: a—3 Helmili: 776 Victor St. Tklepuone qarky 381 Winnipeg, Man,
Vér ltKgJum eérataka fiherzlu fi að telja meböl eftlr forskriftum lwki.a Hin beztu lyí, sem hægt er aC ffi, eru notub eltigöngu. pegar þér komiC meC forskriftina tll vor. meglC þér vern viss um aS ffi rétt þaC sem — læknlrlnn tekur til. COIiOLiBtlGK & CO. Votre Dauie Ave. og Sherbrooke Sl. Phones Garry 2690 og 2691 Gfftingaleyfishréf s«i..
Dr. O. BJORN8GN 701 Lindsay Building Pei.ephonk. qakry JÍSie Office-timar: 2—3 HCIMILI: — 764 Victor Stteet fhl.El'HONK. QAKRY 703 Winnipeg, Man.
DR. B. H. OLSON 701 Lindsay Bidg. Office Phone G. 320 Viðtalstími: 11—12 og 4,—5.30 Heimili 932 Ingersol St. Talsími: Garry 1608 WINNIPEG, MAN.
■■
Dr- J. Stefánsson 401 Boyd Buiiding; C0R. P0RTRCE ATE. & EOMOfiTOfi $T. Stundar eingongu augna, eyma. nef og kverka sjúkdóma. — Er að hitta i frékl. 10-12 f.h. eg 2-5 e.h,— Talsími: Main 3088. Heinrili 105 OliviaSt. Talsími: Garry 2315.
1 Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd BuUdlng Cor. Portage Ave. og Bdmonton Stundar sérstaklega berklasýkl og aCra lungnasjúkdöma. Br aC finna & skrlfstofunnl kl. 11— 12 f.m. og kl. í—4 c.m. Skrif- stofu tals. M 3088. Helmill: 46 Alloway Ave. Talslmi: Sher- brook 3158 ~~
J. G. SNÆDAL, TANNLŒKNIR 614 Somerset Block Cor. Portage Ave. eg Donald Street Tals. main 5302.
Verkstofu Tals.: Heim. Tals.: Garry 2154 Garry 2949 G. L. Stephenson m PLUMBER , * n< Allskonar rafnMMrnsAhöId, ivq sem straujám vira, ftllar tegundlr af glösum og aflv&kft (batteris). VERKSTOFA: 676 HOME STREET
JOSEPH TAYLOR LÖGTAKSMAÐUR HetmUis-Tals.: St. John 1844 Skrtfstofn-Tals.: Main 7978 — Tekur lögtaki bæCf húsaleiguskuldtr, veCskuldir, vfxlaskuldir. AfgrelClr alt sem aC lögum iýtur. SkrifStofa. 255 M»!n Street
Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐI: v Horni Toronto og Notre Dame Phone : lleimllli* Qarry 2088 Garry 889 —
Giftinga og . ., Jarðarfara- 010155 með litlum fyrirvara Birch blómsali 616 Portage Ave. Tals. 720 , ST JOHN 2 RING 3
J. J. Swanson & Co. Verzla með faateignir. Sjá um leigu fi hú.um. Annaat lfin og eldsáhyrgðir O. fl. ( 808 Paris BuUdlng Phone Maln 2506—7
Kalli slnt ft nótt og degl.
DIi. B. GKRZABKK,
R.C.S. frfi. Knglandl, L.RC.f. lii
lon, M.R.C.P. og M.R.C.S. fr*
ifstofa á. eigtn hospltail, 418—417
íard Ave., Winnipeg, Man.
ifstoíutími frfi 9—12 f. h.; 1—4
-9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks elgiC hospital
416—417 Prltchard Ave.
TH0S. H. J0HNS0N og
HJaLMAR A. BERGMAN,
fslenxkir lógfraeriiaqar,
Skmfstopa:— Room 8n McArtbur
Building, Portage Avenue
ÁmiTUN: P. O. Box 1653,
Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg
islenkur Iaijffræðinsnir
Skrifstofa aB 12*7
<ÍK., Winnipeg. Tai-
— Hr. Lindai hef-
Joseph T. J horscn,
Ulenzkur Lögfræðingur
Heimili: 16 Alioway Court,,
1 Allowa-y Ave.
MBSSRS. rK!IiI,II‘S & SCARTH
Barristers, Etc.
fontreal Trust Bldg., Wlnnlpeg
Phone Main 512
Company
Löggildir Yfirskoðunarœenn
H. J. PALMASON
ísl. yfirskoðunarmaður.
808 Confederation Life Bltíg.
hone Main 186 • Winnipeg
Rejðhjól, Mótor-hjól og
' Bifreiðar.
Aðgerðir afgreiddar fljótt og
!. Seljum einnig ný Perfect
reiðhjól.
autar smíðaðir, skerptir og
Endurbættir.
J. E. C. WILLIAMS
641 Notre Dame Ave.
A. 8. Bardal
843 Sherbrooke St.
Selur ltkkistur og annast um útfarir.
Allur útbúnaður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann alskonar minnisvarða
og legsteina.
Helmltia T*i*
Skrlfstefu Tala.
> Qsrry 1111
Qarry 300, 378
GOFINE & C0.
Hornlnu fi Hargrave.
Verzla með og vlrða brúkaða hú«-
ASGEIRSSYNIR
fóðrun (Paperhanging) —
Vönduð vinna ábyrgst
Heimili 382 Toronto stræti
Sími: Sher. 1321
Phones: N6225 A7996
Halldór Sigurðsson
General Contractor
08 Great West Permanent Loa
Bldg., 356 Main St.
B. B. Ormiston
blómsali.
Blóm fyrir öll tækifæri.
Bulb, seeds o. s. frv.
Sérfræðingur í að búa til út?-
fararkranza.
96 Osborne St., Winnipeg
Phoqe: F R 744 HeinylújF R 1980
Sími: A4153. tsl. Myndastofa
WALTER’S PHOTO STUDIO
Kristín Bjarnason eigandi
Næst við Lyceum leikhúsið
290 Portage Ave. Winnipeg